eða þar sem tækið er útsett fyrir veðri
og vindum.
• Gólfsvæðið þar sem á að setja upp
heimilistækið verður að vera flatt,
stöðugt, hitaþolið og hreint.
• Gættu þess að loftflæði sé á milli
heimilistækisins og gólfsins.
• Þegar tækið er sett á sinn endanlega
stað skaltu athuga hvort það sé lárétt
með hjálp hallamælis. Ef svo er ekki
skal stilla fæturna í samræmi við það.
• Settu heimilistækið ekki upp beint yfir
niðurfalli í gólfi.
• Úðaðu ekki vatni á heimilistækið eða
hafðu það berskjaldað gagnvart
óhóflegum raka.
• Ekki setja upp heimilistækið þar sem
ekki er hægt að opna hurðina til fulls.
• Settu ekki lokað ílát til að safna
hugsanlegum vatnsleka undir tækið.
Hafðu samband við viðurkennda
þjónustumiðstöð til að ganga úr
skugga um hvaða aukahluti má nota.
2.2 Tenging við rafmagn
AÐVÖRUN!
Hætta á eldi og raflosti.
• Heimilistækið verður að vera
jarðtengt.
• Notaðu alltaf rétt ísetta innstungu
sem ekki veldur raflosti.
• Gakktu úr skugga um að
færibreyturnar á merkiplötunni séu
samhæfar við rafmagnsflokkun
aðalæðar aflgjafa.
• Notaðu ekki fjöltengi eða
framlengingarsnúrur.
• Gakktu úr skugga um að
rafmagnsklóin og snúran verði ekki
fyrir skemmdum. Ef skipta þarf um
rafmagnssnúru verður viðurkennd
þjónustumiðstöð okkar að sjá um það.
• Aðeins skal tengja rafmagnsklóna við
rafmagnsinnstunguna í lok
uppsetningarinnar. Gakktu úr skugga
um að rafmagnsklóin sé aðgengileg
eftir uppsetningu.
• Ekki snerta rafmagnssnúruna eða
rafmagnsklóna með blautum höndum.
• Ekki toga í snúruna til að taka tækið úr
sambandi. Taktu alltaf um klóna.
2.3 Tenging við vatn
• Ekki valda skemmdum á
vatnsslöngunum.
• Áður en þú tengir ný rör, rör sem ekki
hafa verið notuð í langan tíma, þar
sem viðgerðarvinna hefur verið
framkvæmd eða nýr búnaður settur
upp (vatnsmælar, o.s.frv.) skaltu láta
vatnið renna þar til það er hreint og
tært.
• Tryggðu að það sé enginn sýnilegur
vatnsleki við og eftir fyrstu notkun
heimilistækisins.
• Ekki nota framlengingarslöngu ef
inntaksslangan er of stutt. Hafðu
samband við viðurkennda
þjónustumiðstöð til að fá nýjar
inntaksslöngur.
• Þegar heimilistækið er tekið úr
umbúðunum er mögulegt að sjá vatn
renna úr tæmingarslöngunni. Þetta er
vegna prófunar á heimilistækinu með
notkun vatns í verksmiðjunni.
• Þú getur framlengt tæmingarslönguna
í að hámarki 400 cm. Hafðu samband
við viðurkennda þjónustumiðstöð til
að fá hina tæmingarslönguna og
framlenginguna.
• Gakktu úr skugga um að kraninn sé
aðgengilegur eftir uppsetningu.
2.4 Notkun
AÐVÖRUN!
Hætta á meiðslum, raflosti,
eldi, bruna eða skemmdum
á heimilistækinu.
• Fylgdu öryggisleiðbeiningunum á
umbúðum þvottaefnisins.
• Settu ekki eldfim efni eða hluti sem
eru blautir af eldfimum efnum í,
nálægt, eða á heimilistækið.
• Þvoðu ekki fataefni sem eru mjög
óhrein af olíu, feiti, eða öðrum
fitugum efnum. Það getur skemmt
gúmmíhluta þvottavélarinnar. Forþvo
skal slík fataefni í höndunum áður en
þeim er hlaðið í þvottavélina.
• Ekki snerta glerið í hurðinni á meðan
þvottakerfi er í gangi. Glerið getur
orðið heitt.
• Gakktu úr skugga um að allir
málmhlutir hafi verið fjarlægðir úr
þvottinum.
ÍSLENSKA
5