IKEA RENLIG Používateľská príručka

Typ
Používateľská príručka
RENLIG
IS
ÍSLENSKA
Á öftustu síðu þessarar handbók er skrá yfir alla veitendur
eftirsöluþjónustu sem útnefndir hafa verið af IKEA og viðeigandi
símanúmer í hverju landi.
ÍSLENSKA
4
Efnisyfirlit
Öryggisupplýsingar 4
Öryggisleiðbeiningar 6
Vörulýsing 8
Stjórnborð 9
Fyrir fyrstu notkun 12
Dagleg notkun 12
Góð ráð 15
Þvottastillingar 16
Notkunargildi 19
Umhirða og þrif 20
Bilanaleit 22
Tæknilegar upplýsingar 26
Umhverfismál 27
IKEA-ÁBYRGÐ 28
Með fyrirvara á breytingum.
Öryggisupplýsingar
Fyrir uppsetningu og notkun heimilistækisins skal lesa
meðfylgjandi leiðbeiningar vandlega. Framleiðandinn ber ekki
ábyrgð á neinum meiðslum eða skemmdum sem leiða af rangri
uppsetningu eða notkun. Geymdu alltaf leiðbeiningarnar á
öruggum stað þar sem auðvelt er að nálgast þær til síðari
notkunar.
Öryggi barna og viðkvæmra einstaklinga
Börn, 8 ára og eldri og fólk með minnkaða líkamlega-, skyn-
eða andlega getu, eða sem skortir reynslu og þekkingu,
mega nota þetta tæki, ef þau eru undir eftirliti eða hafa verið
veittar leiðbeiningar varðandi örugga notkun tækisins og ef
þau skilja hættuna sem því fylgir.
Halda skal börnum á milli 3 og 8 ára gömlum og fólki með
mjög miklar og flóknar fatlanir frá, nema þau séu undir
stöðugu eftirliti.
Halda skal börnum yngri en 3 ára frá tækinu nema þau séu
undir stöðugu eftirliti.
Leyfðu ekki börnum að leika sér með tækið.
Haltu öllum umbúðum frá börnum og fargaðu þeim á
viðeigandi hátt.
Haltu þvottaefnum frá börnum.
ÍSLENSKA
4
Haltu börnum og gæludýrum frá heimilistækinu þegar hurðin
er opin.
Ef heimilistækið er með barnalæsingu ætti hún að vera
virkjuð.
Börn eiga ekki að hreinsa eða framkvæma notandaviðhald á
heimilistækinu án eftirlits.
Almennt öryggi
Breyttu ekki tæknilýsingu fyrir þetta heimilistæki.
Farðu ekki umfram hámarkshleðslu upp á 7 kg (sjá kaflann
„Þvottakerfistafla“).
Vatnsþrýstingur við inntaksstað vatns frá úttakstengingunni
verður að vera á milli 0,5 bör (0,05 MPa) og 8 bör (0,8 MPa).
Teppi, mottur eða einhverjar gólfábreiður mega ekki hylja
lofttúðurnar undir tækinu.
Heimilistækið verður að vera tengt við vatnsveituna með nýja
slöngusettinu sem fylgir með, eða öðru nýju slöngusetti sem
viðurkennd þjónustumiðstöð útvegar.
Ekki má endurnýta gamlar slöngur.
Ef rafmagnssnúra er skemmd verður framleiðandi, viðurkennd
þjónustumiðstöð, eða svipað hæfur aðili að endurnýja hana
til að forðast hættu vegna rafmagns.
Áður en eitthvert viðhald er framkvæmt skal slökkva á
heimilistækinu og aftengja klóna frá rafmagnsinnstungunni.
Ekki skal nota háþrýstan vatnsúða og/eða gufu til að hreinsa
heimilistækið.
Hreinsaðu tækið með rökum klút. Notaðu aðeins hlutlaus
þvottaefni. Notaðu ekki rispandi efni, stálull, leysiefni eða
málmhluti.
ÍSLENSKA
5
Öryggisleiðbeiningar
Uppsetning
Uppsetningin verður að fylgja
viðeigandi
innanlandsreglugerðum.
Fjarlægðu allar umbúðir og
flutningsboltana, þar með talið
gúmmífóðringu með plastmilliskífu.
Geymdu flutningsboltana á öruggum
stað. Ef færa á heimilistækið í framtíðinni
verður að setja þá aftur í til að læsa
tromlunni til að koma í veg fyrir innri
skemmdir.
Alltaf skal sýna aðgát þegar
heimilistækið er fært vegna þess að það
er þungt. Notaðu alltaf öryggishanska og
lokaðan skóbúnað.
Ekki skal setja upp eða nota skemmt
heimilistæki.
Fylgdu leiðbeiningum um uppsetningu
sem fylgja með heimilistækinu.
Ekki skal setja upp eða nota heimilistæki
þar sem hitastigið er undir frostmarki eða
þar sem tækið er útsett fyrir veðri og
vindum.
Gólfsvæðið þar sem á að setja upp
heimilistækið verður að vera flatt,
stöðugt, hitaþolið og hreint.
Gættu þess að loftflæði sé á milli
heimilistækisins og gólfsins.
Þegar tækið er sett á sinn endanlega
stað skaltu athuga hvort það sé lárétt
með hjálp hallamælis. Ef svo er ekki skal
stilla fæturna í samræmi við það.
Settu heimilistækið ekki upp beint yfir
niðurfalli í gólfi.
Úðaðu ekki vatni á heimilistækið eða
hafðu það berskjaldað gagnvart
óhóflegum raka.
Ekki setja upp heimilistækið þar sem ekki
er hægt að opna hurðina til fulls.
Settu ekki lokað ílát til að safna
hugsanlegum vatnsleka undir tækið.
Hafðu samband við viðurkennda
þjónustumiðstöð til að ganga úr skugga
um hvaða aukahluti má nota.
Tenging við rafmagn
AÐVÖRUN! Hætta á eldi og
raflosti.
Heimilistækið verður að vera jarðtengt.
Notaðu alltaf rétt ísetta innstungu sem
ekki veldur raflosti.
Gakktu úr skugga um að færibreyturnar
á merkiplötunni séu samhæfar við
rafmagnsflokkun aðalæðar aflgjafa.
Notaðu ekki fjöltengi eða
framlengingarsnúrur.
Gakktu úr skugga um að rafmagnsklóin
og snúran verði ekki fyrir skemmdum. Ef
skipta þarf um rafmagnssnúru verður
viðurkennd þjónustumiðstöð okkar að sjá
um það.
Aðeins skal tengja rafmagnsklóna við
rafmagnsinnstunguna í lok
uppsetningarinnar. Gakktu úr skugga um
að rafmagnsklóin sé aðgengileg eftir
uppsetningu.
Ekki snerta rafmagnssnúruna eða
rafmagnsklóna með blautum höndum.
Ekki toga í snúruna til að taka tækið úr
sambandi. Taktu alltaf um klóna.
Þetta heimilistæki samræmist tilskipunum
EBE.
Tenging við vatn
Ekki valda skemmdum á vatnsslöngunum.
Áður en þú tengir ný rör, rör sem ekki
hafa verið notuð í langan tíma, þar sem
viðgerðarvinna hefur verið framkvæmd
eða nýr búnaður settur upp (vatnsmælar,
o.s.frv.) skaltu láta vatnið renna þar til
það er hreint og tært.
Tryggðu að það sé enginn sýnilegur
vatnsleki við og eftir fyrstu notkun
heimilistækisins.
Ekki nota framlengingarslöngu ef
inntaksslangan er of stutt. Hafðu
ÍSLENSKA
6
samband við þjónustumiðstöð til að fá
nýja inntaksslöngu.
Þú getur lengt tæmingarslönguna í allt
að 400 cm. Hafðu samband við
viðgerðarþjónustuna til að fá hina
tæmingarslönguna og framlenginguna.
Notkun
AÐVÖRUN! Hætta á meiðslum,
raflosti, eldi, bruna eða
skemmdum á heimilistækinu.
Þetta heimilistæki er eingöngu ætlað til
heimilisnota.
Fylgdu öryggisleiðbeiningunum á
umbúðum þvottaefnisins.
Settu ekki eldfim efni eða hluti sem eru
blautir af eldfimum efnum í, nálægt eða
á heimilistækið.
Gakktu úr skugga um að allir málmhlutir
hafi verið fjarlægðir úr þvottinum.
Þvoðu ekki fataefni sem eru mjög óhrein
af olíu, feiti, eða öðrum fitugum efnum.
Það getur skemmt gúmmíhluta
þvottavélarinnar. Forþvo skal slík
fataefni í höndunum áður en þeim er
hlaðið í þvottavélina.
Snertu ekki glerið í hurðinni á meðan
þvottakerfi er í gangi. Glerið getur orðið
heitt.
Þjónusta
Hafðu samband við viðurkennda
þjónustumiðstöð til að gera við
heimilistækið.
Notaðu eingöngu upprunalega varahluti.
Förgun
AÐVÖRUN! Hætta á meiðslum
eða köfnun.
Aftengdu heimilistækið frá rafmagns- og
vatnsinntaki.
Klipptu rafmagnssnúruna af upp við
heimilistækið og fargaðu henni.
Fjarlægðu hurðarlokuna til að koma í
veg fyrir að börn eða gæludýr lokist inni í
tromlunni.
Fargaðu heimilistækinu í samræmi við
staðbundnar kröfur um förgun
úrgangsrafmagns- og rafeindabúnaðar
(WEEE).
ÍSLENSKA 7
Vörulýsing
Yfirlit yfir heimilistækið
1
2
3
4
5
6
1
Þvottaefnisskúffa
2
Stjórnborð
3
Handfang til að opna hurð
4
Merkiplata
5
Aftöppunarsía
6
Stillanlegir fætur
Skömmtunarskúffa þvottaefnis
Hólf fyrir þvottaefni sem notað er fyrir
forþvott og bleyti. Þvottaefni fyrir forþvott og
bleytingarstig er sett í í upphafi
þvottakerfisins.
Hólf fyrir þvottaefnisduft eða fljótandi
þvottaefni sem er notað í aðalþvotti. Ef verið
er að nota fljótandi þvottaefni, skal hella því í
hólfið rétt áður en þvottakerfið er sett af stað.
Hólf fyrir fljótandi aukefni (mýkingarefni,
sterkja).
Fylgdu ráðleggingum framleiðanda varðandi skammtastærðir og farðu aldrei yfir
«MAX» merkið á þvottaefnisskúffunni. Mýkingarefnum eða sterkju verður að hella
í hólfið áður en þvottakerfi er sett af stað.
ÍSLENSKA 8
Barnalæsing
Þetta heimilistæki inniheldur sérstakar aðgerðir til að koma í veg fyrir að börn og gæludýr
festist inni í tromlunni.
Gættu þess að börn eða gæludýr klifri ekki inn í tromluna. Vinsamlegast athugaðu tromluna
áður en hún er notuð.
Til að virkja þennan búnað skaltu snúa
hnappinum (án þess að ýta á hann) innan á
hurðinni réttsælis þar til raufin er lárétt.
Notaðu smápening ef þörf krefur.
Til að afvirkja þennan búnað og gera
mögulegt að loka dyrunum á ný skaltu snúa
hnappinum rangsælis þar til raufin er lóðrétt.
Stjórnborð
Lýsing á stjórnborði
21
5678910
43
1
Kerfishnúður
2
Skjár
3
Hnappur fyrir seinkun ræsingar
4
Vísir fyrir læsta hurð
5
Byrja/Hlé-hnappur
6
Aukaskolunarhnappur
7
Straufrítt-hnappur
8
Forþvottarhnappur
9
Valkostahnappur :
Skyndiþvottarvalkostur
Sparnaðarvalkostur
ÍSLENSKA 9
10
Valkosturinn Vindingarminnkun og
Halda skolvatni
Kerfishnúður Það gerir þér kleift að kveikja/slökkva á heimilistækinu og/eða
velja þvottakerfi.
Skjár
BA
Skjárinn sýnir eftirfarandi upplýsingar:
A - Barnalæsing
Þessi búnaður gerir þér kleift að fara frá heimilistækinu á
meðan það er í gangi.
B – Tölustafur:
Lengd valins þvottakerfis. Eftir að þvottakerfi er valið er
lengd þess sýnd í klukkustundum og mínútum (t.d. ).
Lengt þvottakerfis er reiknuð sjálfkrafa miðað við ráðlag-
ða hámarkshleðslu fyrir viðkomandi gerð af efni. Eftir að
þvottakerfi byrjar er tíminn sem eftir er uppfærður á mín-
útu fresti.
Seinkuð ræsing. Hin valda seinkun birtist á skjánum í
nokkrar sekúndur, síðan birtist aftur lengd hins valda
þvottakerfis. Tímalengd seinkunar styttist um eina einingu
á hverri klukkustund og þegar 1 klukkustund er eftir styttist
tíminn hverja mínútu.
Aðvörunarkóðar. Ef upp koma notkunarvandamál birtast
hugsanlega aðvörunarkóðar, t.d. (sjá efnisgreinina
«Bilanaleit»).
Rangt val á valkosti. Ef valkostur sem ekki er samhæfur
við stillt þvottakerfi er valinn birtast skilaboðin neðst
á skjánum í nokkrar sekúndur. Rauði vísirinn sem inn-
byggður er í hnapp byrjar að leiftra.
Lok þvottakerfis. :Þegar þvottakerfinu er lokið birtist
leiftrandi núll , vísirinn og vísirinn á hnappi
slokkna. Hægt er að opna hurðina.
Hnappur fyrir seinkaða
ræsingu
Með þessum hnappi er hægt að seinka kerfinu um 30 mín. - 60
mín. - 90 mín., 2 klst. og síðan í 1 klst. þrepum upp í hámark 20
klukkustundir.
Vísir fyrir læsta hurð Vísirinn kviknar þegar þvottakerfið byrjar og gefur til kynna
hvort hægt sé að opna hurðina:
Vísir logar: Ekki er hægt að opna hurðina. Heimilistækið starf-
ar eða hefur hætt að starfa með vatn ennþá í belgnum.
Vísir slökktur: Hægt er að opna hurðina. Þvottakerfinu er lokið
eða vatnið hefur verið tæmt úr vélinni.
Vísir leiftrar: Hurðin opnast eftir örfáar mínútur.
ÍSLENSKA 10
Byrja/Hlé hnappur Þessi hnappur gerir þér kleift að ræsa eða rjúfa valin þvottakerfi.
Aukaskolunarhnappur Þetta heimilistæki er hannað til að spara orku. Ef nauðsynlegt er
að skola þvottinn með aukamagni af vatni (aukaskolun), veldu
þá þennan valkost. Nokkrar viðbótarskolanir eru þá gerðar.
Mælt er með þessum valkosti fyrir fólk sem er með ofnæmi fyrir
þvottaefnum og á svæðum þar sem vatnið er mjög mjúkt.
Viðeigandi vísir kviknar.
Straufrítt-hnappur Með þessu valkosti er þvotturinn varlega þveginn og undinn til
að forðast krumpur. Þannig er auðveldara að strauja.
Ennfremur framkvæmir heimilistækið viðbótarskolun í sumum
þvottakerfum.
Í bómullarkerfum er hámarksvindingarhraði sjálfvirkt minnkaður.
Tengdur vísir kviknar.
Forþvottarhnappur Með því að velja þennan valkost framkvæmir heimilistækið for-
þvott á undan aðalþvotti. Heildarþvottatíminn lengist. Mælt er
með þessum valkosti fyrir mjög óhreinan þvott.
Viðeigandi vísir kviknar.
Valkostahnappur Með því að ýta á þennan hnapp getur þú stillt:
Skyndiþvottarvalkost : Heimilistækið framkvæmir stutta
lotu fyrir lítið óhreinan þvott eða þvott sem bara þarf að fríska
aðeins upp á.
Við mælum með að minni þvottur sé settur í vélina.
Viðeigandi vísir kviknar.
Sparnaðarvalkost :
Með þessum valkosti getur þú ná góðum þvottaárangri og
minnkað orkunotkun um leið.
Heimilistækið framlengir þvottatímann og minnkar hitann.
Tengdur vísir kviknar.
ÍSLENSKA 11
Vindingarminnkunar-
hnappur
Með því að ýta á þennan hnapp getur þú breytt hraða vinding-
ar innan valins þvottakerfis.
Viðeigandi vísir kviknar.
Valkosturinn Halda skolvatni
Stilltu þennan valkost til að koma í veg fyrir að þvottur krumpist.
Tromlan snýst reglulega til að koma í veg fyrir að þvotturinn
krumpist.
Viðeigandi vísir kviknar.
Vatn er í tromlunni þegar kerfinu er lokið. Hurðin helst
læst. Þú verður að tæma vatnið af til að aflæsa hurð-
inni. Til að tæma af vatnið sjá «Við lok kerfisins».
Fyrir fyrstu notkun
1. Tryggðu að tengingar við rafmagn og
vatn séu í samræmi við leiðbeiningar um
uppsetningu.
2. Taktu allt tau úr tromlunni.
3. Helltu 2 lítrum af vatni í aðalþvottahólfið
á þvottaefnisskúffunni til að virkja
SPAR-lokann.
Veldu bómullarstillingu fyrir tóma vél á
hæsta hita til að fjarlægja hvers kyns leifar
úr framleiðsluferlinu úr tromlu og þvottakari.
Helltu 1/2 skammti af þvottaefni í
aðalþvottahólfið og settu heimilistækið í
gang.
Dagleg notkun
Þvottur settur í vélina
Skrúfaðu frá vatnskrananum. Tengdu klóna
við rafmagnsinnstunguna.
1. Togaðu í hurðarhandfangið til að opna
hurð heimilistækisins.
2. Settu þvottinn í tromluna, eitt stykki í
einu.
3. Hristu stykkin áður en þau eru sett inn í
heimilistækið.
Gættu þess að setja ekki of mikinn þvott í
tromluna. Sjá hám. hleðsla sem gefin er til
kynna í „Þvottakerfistafla“.
4. Lokaðu hurðinni.
VARÚÐ!
Gættu þess
að ekki sé
þvottur á
milli
þéttigúmmís
og hurðar.
Þá er hætta á vatnsleka eða skemmdum á
þvotti.
ÍSLENSKA 12
Mældu þvottaefni og mýkingarefni
Helltu þvottaefninu í
aðalþvottahólfið
eða í viðeigandi hólf
ef valið þvottakerfi/
valkostur krefst þess
(sjá nánari
upplýsingar í
„Þvottaefnisskúffan“).
Til að hella réttu
magni þvottaefnis í
hófið, sjá nánar í
„Gráður vatnshörku“.
Helltu mýkingarefni í
hólfið sem er merkt
(má ekki fara yfir
«MAX» mörkin í
skúffunni).
Lokaðu skúffunni varlega
Kerfi stillt
1. Snúðu kerfishnúðnum til að kveikja á
heimilistækinu og stilla kerfið:
Vísir hnappsins leiftrar.
Skjárinn sýnir hvað kerfið tekur
langan tíma.
2. Ef nauðsyn krefur skaltu breyta
vindingarhraða, eða bæta við tiltækum
valkostum. Þegar þú virkjar valkost
kviknar vísir fyrir stillta valkostinn.
Ef þú stillir eitthvað rangt sýnir
skjárinn skilaboðin .
Til að fá lýsingu á hverri
þvottalotu, samhæfni milli
þvottakerfa og valkosta, skal
skoða kaflann «Þvottakerfi».
Kerfi sett í gang án seinkunar á ræsingu
Ýttu á hnappinn
Vísirinn fyrir hnappinn hættir að
leiftra og helst logandi.
Kerfið byrjar, hurðin læsist og vísirinn
logar.
Tími kerfisins styttist í einnar mínútu
skrefum.
Aftöppunardælan getur gengið í
stuttan tíma í upphafi
þvottalotunnar.
Kerfi sett í gang með valkosti um seinkun
ræsingar
1. Ýttu aftur og aftur á hnappinn þar til
skjárinn sýnir seinkunina sem þú vilt
stilla. Vísir fyrir seinkun ræsingar kviknar.
2. Ýttu á hnappinn :
Hurðin er læst og vísirinn logar.
Heimilistækið hefur niðurtalninguna.
Að niðurtalningu lokinni fer kerfið
sjálfkrafa í gang.
Þú getur hætt við eða breytt
stillingu valkostsins áður en þú
ýtir á hnappinn . Eftir að hafa
ýtt á hnappinn
getur þú
aðeins hætt við valkostinn .
Til að hætta við valkostinn :
a. Ýttu á hnappinn til að stilla að
heimilistækið geri hlé. Vísir
hnappsins
leiftrar.
b. Ýttu á hnappinn þar til skjárinn
sýnir .
Ýttu aftur á hnappinn
til að setja
kerfið samstundis í gang.
Rof á kerfi og valkostum breytt
Aðeins er hægt að breyta ákveðnum
valkostum áður en þeir fara í gang.
ÍSLENSKA
13
1. Ýttu á hnappinn
Vísirinn blikkar.
2. Breyttu valkostunum.
3. Ýttu aftur á hnappinn .
Kerfið heldur áfram.
Hætt við kerfi í gangi
1. Snúðu kerfishnúðnum í stöðuna til að
hætta við kerfið og slökkva á
heimilistækinu.
2. Snúðu kerfishnúðnum aftur til að kveikja
á heimilistækinu. Nú getur þú stillt nýtt
þvottakerfi.
Heimilistækið gæti tæmt af sér
vatnið áður en byrjað er á nýju
kerfi. Í því tilfelli skaltu gæta þess
að þvottaefnið sé enn í
þvottaefnishólfinu og ef ekki, fylla
aftur á hólfið.
Að opna hurðina
Á meðan kerfi eða er í gangi er hurð
heimilistækisins læst. Vísirinn
logar.
VARÚÐ! Ef hitastigið og
vatnsyfirborðið í tromlunni er of
hátt og tromlan snýst ennþá er
ekki hægt að opna hurðina.
Til að opna hurðina á fyrstu mínútum
lotunnar eða þegar er í gangi:
1. Ýttu á hnappinn
til að heimilistækið
geri hlé.
2. Bíddu þar til vísirinn
slokknar.
3. Þú getur opnað hurðina.
4. Lokaðu hurðinni og snertu hnappinn
aftur. Kerfið (eða ) heldur áfram.
Við lok þvottakerfis
Heimilistækið stoppar sjálfkrafa.
Hljóðmerkið heyrist (ef það er virkjað).
Á skjánum birtist .
Það slokknar á vísinum fyrir -
hnappinn.
Hurðarlæsingarvísirinn
slokknar.
Snúðu kerfishnúðnum í stöðuna til að
slökkva á heimilistækinu.
Þú getur opnað hurðina.
Taktu þvottinn úr heimilistækinu. Gættu
þess að tromlan sé tóm.
Skrúfaðu fyrir kranann.
Hafðu hurðina og þvottaefnishólfið
hálfopin til að koma í veg fyrir myglu og
ólykt.
Þvottakerfinu er lokið, en það er vatn í
tromlunni:
Tromlan snýst reglulega til að hindra að
þvotturinn krumpist.
Vísirinn
helst logandi til að minna þig
á að tappa af vatninu.
Vísirinn fyrir hurðarlásinn logar. Slökkt
er á vísi hnapps . Hurðin helst læst.
Þú verður að tappa vatninu af til að
opna hurðina.
Vatni tappað af:
1. Til að tappa vatninu af.
Stilltu kerfi eða .
Ýttu á hnappinn Heimilistækið
tæmist af vatni og vindur.
2. Þegar kerfinu er lokið og vísir fyrir
hurðarlás slokknar geturðu opnað
hurðina.
3. Snúðu kerfishnúðnum í stöðuna til að
slökkva á heimilistækinu.
Biðstaða
Nokkrum mínútum eftir að þvottakerfi
klárast fer orkusparnaðarkerfið í gang.
Birtustig skjásins minnkar. Með því að ýta á
einhvern hnapp á heimilistækinu fer það úr
orkusparnaðastillingunni.
ÍSLENSKA
14
Góð ráð
Flokkun á þvotti
Fylgdu þvottatáknunum á hverri flík og
þvottaleiðbeiningum framleiðanda.
Flokkaðu þvottinn sem hér segir Hvítt, litað,
gerviefni, viðkvæmt, ull.
Blettir fjarlægðir
Erfiða bletti er oft ekki hægt að fjarlægja
eingöngu með vatni og þvottaefni. Því er
ráðlegt að meðhöndla þá fyrir þvott.
Blóð: Meðhöndlaðu ferska bletti með köldu
vatni. Láttu storknaða blóðbletti liggja yfir
nótt í vatni með blettahreinsi og nuddaðu
svo með sápu og vatni.
Olíumálning: Vættu með
bensínblettahreinsi, leggðu flíkina á mjúkt
efni og þrýstu létt á blettinn; gerðu þetta
nokkrum sinnum.
Þurrir fitublettir: Vættu með terpentínu,
leggðu flíkina á mjúkt efni og þrýstu létt
með fingurgómum og bómullarklút á
blettinn.
Ryð: Oxalsýra leyst upp í heitu vatni eða
ryðleysir fyrir föt notaður kaldur. Farðu
varlega með ryðbletti sem eru ekki nýir þar
sem trénistrefjarnar eru orðnar skemmdar
og efnið hefur tilhneigingu til að gatast.
Myglublettir: Notaðu klór, skolaðu vel
(aðeins hvít bómull og litekta).
Grasgræna: Settu örlitla sápu og notaðu
svo klór (aðeins hvít bómull og litekta).
Kúlupenni og lím: Bleyttu með asetóni
1)
,
leggðu flíkina á mjúkt efni og þrýstu létt á
blettinn.
Varalitur: Vættu með asetóni eins og að
ofan, hreinsaðu svo bletti með spritti.
Notaðu klór á allar blettaleifar.
Rauðvín: Leggðu í bleyti í vatn og
þvottaefni, skolaðu og notaðu edikssýru
eða sítrónusýru, skolaðu aftur. Notaðu klór
á allar blettaleifar.
Blek: Það fer eftir tegund bleks, en fyrst ætti
að væta efnið með asetóni
1)
, síðan með
ediksýru; notaðu klór á allar blettaleifar á
hvítu efni og skolaðu svo vandlega.
Tjörublettir: Notaðu fyrst blettahreinsi, spritt
eða bensínhreinsi, nuddaðu svo með
hreinsikremi.
Vatnsharka
Harka vatns er flokkuð í svokölluðum
„stigum“ hörku. Upplýsingar um vatnshörku
á hverjum stað er hægt að nálgast hjá
viðkomandi vatnsveitu eða
staðaryfirvöldum
Einkenni
Hörkustig vatns
Þýsk °dH Frönsk °T.H.
Mjúkt 0-7 0-15
Miðlungs 8-14 16-25
Hart 15-21 26-37
Mjög hart > 21 > 37
1)
Ekki nota asetón á gervisilki
ÍSLENSKA 15
Bæta þarf við vatnsmýkingarefni
þegar harka vatns er
miðlungsmikil. Fylgið
leiðbeiningum framleiðanda.
Síðan er alltaf hægt að laga
þvottaefnisskammtinn (minnka) út
frá vatnshörku sé vatnið mjúkt.
Þvottastillingar
Tafla yfir kerfi
Vinsamlegast skoðaðu alltaf þvottamiðann á flíkinni og veldu þvottakerfi
samkvæmt því sem þar stendur.
Kerfi
Hitasvið
Hámarkshleðsla
Hámarksvind-
ingarhraði
Lýsing á kerfi
(Tegund hleðslu og óhreinindastig)
BÓMULL
90° - 60° - 40° -
30°
7 kg
1400 s/mín.
Hvít bómull og lituð bómull. Venjuleg óhreinindi og
lítil óhreinindi.
+ valkostur
BÓMULL VIST-
VÆNT
1)
60°C - 40°C
7 kg
1400 s/mín.
Hvít bómull og litföst bómull. Venjuleg óhreinindi.
Orkunotkunin minnkar og tími þvottakerfisins lengist.
GERVIEFNI
60° - 40° - 30°
3 kg
900 s/mín.
Fatnaður úr gerviefnum eða blönduðum efnum.
Venjuleg óhreinindi.
VIÐKVÆMT
40° - 30°
3 kg
700 s/mín.
Viðkvæm efni eins og akrýl, viskós og blönduð
efni sem útheimta mildari þvott. Venjuleg óhrein-
indi.
HANDÞVOTTUR
40° - 30° -
(Kalt)
2 kg
900 s/mín.
Viðkvæm efni með þvottamiðanum „handþvottur“.
2)
ÍSLENSKA 16
Kerfi
Hitasvið
Hámarkshleðsla
Hámarksvind-
ingarhraði
Lýsing á kerfi
(Tegund hleðslu og óhreinindastig)
ULL
40°
2 kg
900 s/mín.
Ull sem þvo má í vél og ull sem þvo má í höndun-
um
2)
GALLABUXUR
40°
3 kg
1200 s/mín.
Föt úr gallaefni og peysur. Einnig fyrir dökkan
þvott.
BLANDA 20°
20°C
3 kg
900 s/mín.
Sérstakt kerfi fyrir bómull, gerviefni og blönduð efni
sem eru lítið óhrein. Veldu þetta kerfi til að minnka
orkunotkun. Gættu þess að þvottaefnið sé hentugt
fyrir lágt hitastig svo að árangur af þvottinum verði
góður
3)
Í BLEYTI
30°C
7 kg Forþvottur - Leggur í bleyti í um 40 mínútur - Stöðv-
ast með vatn í belgnum. Sérstakt kerfi fyrir mjög
óhreinan þvott. Í lok þessa tíma mun heimilistækið
stöðvast sjálfvirkt með vatn í belgnum. Áður en
næsta þvottastig hefst er nauðsynlegt að tæma af
vatnið (lestu „Við lok kerfisins“)
4)
.
STUTT KERFI
30°C
3 kg
700 s/mín.
Stutt lota fyrir gerviefni og viðkvæman fatnað sem
er lítið óhreinn eða fyrir föt sem þarf að fríska upp
á.
Rinse
7 kg
1400 s/mín.
Til að skola og vinda þvottinn. Öll efni nema ullar-
efni og mjög viðkvæm efni. Dragðu úr vindingar-
hraða í samræmi við tegund þvotts.
Drain
7 kg Til að tæma vatnið úr tromlunni. Öll efni.
Spin
7 kg
1400 s/mín.
Til að vinda þvottinn og til að tæma vatnið úr troml-
unni. Öll efni nema ullarefni og mjög viðkvæm efni.
ÍSLENSKA 17
Kerfi
Hitasvið
Hámarkshleðsla
Hámarksvind-
ingarhraði
Lýsing á kerfi
(Tegund hleðslu og óhreinindastig)
KVEIKJA/SLÖK-
KVA
Staða til að slökkva á heimilistækinu eða/og endurstilla þvottakerfi.
1)
Stöðluð kerfi fyrir Energy Label orkuneyslutölur. Samkvæmt reglugerð 1061/2010 eru þessi þvottakerfi «Staðlað
60°C bómullarþvottakerfi» og «Staðlað 40°C bómullarþvottakerfi» hvort um sig. Þau eru skilvirkustu kerfin hvað varðar
samsetningu orkunotkunar og vatnsnotkunar til að þvo venjulega óhreinan bómullarþvott.
Vatnshitastig þvottastigsins getur verið frábrugðið skráðu hitastigi fyrir valið kerfi.
2)
Meðan á þessari lotu stendur snýst tromlan hægt til að tryggja varfærinn þvott. Ef svo virðist sem tromlan snúist ekki
eða snúist ekki rétt skaltu líta á þetta sem venjulega virkni heimilistækisins.
3)
Heimilistækið setur í gang stutt hitunarkerfi ef hitastig vatnsins er undir 20°C. Heimilistækið getur sýnt stillingu hitast-
igs sem „kalt“.
4)
Þetta kerfi er ekki hægt að nota fyrir mjög viðkvæm efni eins og silki eða ull. Helltu þvottaefninu fyrir leggja-í-bleyti
kerfið í hólfið sem merkt er . Í lokin á bleytinu (eftir að hafa tæmt af vatnið) getur þú valið óskað þvottakerfi. Fyrst
skaltu slökkva á heimilistækinu, síðan velja kerfið og ræsa það.
Samhæfni kerfisvalkosta
Þvottakerfi
1)
2) 3) 4)
ÍSLENSKA 18
Þvottakerfi
1)
2) 3) 4)
1)
Þessi valkostur er aðeins virkur við 40°C og 60°C.
2)
Þegar þú stillir þennan valkost mælum við með að þú minnkir magn þvottsins. Hægt er að fullhlaða vélina en þá
verður þvottaárangurinn ekki góður. Ráðlögð hleðsla: Bómull: 3.5 kg, gerviefni og viðkvæm efni: 1.5 kg.
3)
Ef notað er fljótandi þvottaefni þarf að velja kerfi án FORÞVOTTAR.
4)
Hámarkshleðsla með valkostinum Straufrítt er 1,5 kg.
Notkunargildi
Yfirlýstum gildum er náð á rannsóknarstofum með viðeigandi stöðlum. Mismun-
andi ástæður geta orðið til þess að breyta upplýsingunum: Magn og gerð
þvottar og umhverfishitastig. Vatnsþrýstingur, rafmagnsspenna og hitastig inn-
taksvatns kunna einnig að hafa áhrif á lengd þvottakerfis.
Kerfi Hleðsla
(kg)
Orkunotkun
(kWh)
Vatnsnotkun
(lítrar)
Viðmiðunar-
lengd kerfis
(mínútur)
Raki sem eftir
er (%)
1)
Bómull 60°C 7 1.35 67 150 52
Bómull 40°C 7 0.85 67 140 52
Gerviefni 40°C 3 0.55 42 90 35
Viðkvæmur þvottur
40°C
3 0.55 63 65 35
Ull/Handþvottur
30°C
2 0.25 55 60 30
Venjuleg kerfi fyrir bómullarefni
Venjulegt 60°C
bómull
7 1.01 52 180 52
Venjulegt 60°C
bómull
3.5 0.78 44 149 52
Venjulegt 40°C
bómull
3.5 0.61 44 140 52
1)
Við lok vindingar.
ÍSLENSKA 19
Slökkt-hamur (W) Hamur í gangi (W)
0.10 0.98
Upplýsingarnar í töflunni hér að ofan eru í samræmi við reglugerð Framkvæmdastjórnar
ESB 1015/2010 sem innleiðir tilskipun 2009/125/EB.
Umhirða og þrif
AÐVÖRUN! Sjá kafla um
Öryggismál.
AÐVÖRUN! Slökktu á tækinu
áður en þú framkvæmir einhverja
hreinsun eða viðhaldsverk.
Viðhaldsþvottur
Þvottur við lágan hita getur valdið
uppbyggingu leifa innan á tromlunni.
Við mælum með viðhaldsþvotti með
reglulegu millibili.
Viðhaldsþvottur:
Tromlan ætti ekki að hafa neinn þvott í
sér.
Veldu heitasta bómullarþvottakerfið.
Notaðu venjulegan skammt af
þvottaefni, verður að vera vistvænt duft.
Að hreinsa þvottaefnisskúffuna og
skúffuhólfið
Þvottaefnis- og aukefnaskúffuna ætti að
þvo reglulega.
Til að fjarlægja
skúffuna skaltu ýta
flipanum niður og
toga hana út.
Til að styðja við
hreinsun skaltu einnig
fjarlægja efri hluta
aukefnahólfsins.
Notaðu stífan bursta
til að hreinsa og
fjarlægja allar leifar
af þvottaefni.
Skolaðu alla hluti sem
hafa verið fjarlægðir
úr
þvottaefnisskúffunni
undir krananum til að
fjarlægja allar leifar
af uppsöfnuðu dufti.
Notaðu fyrrnefndan
bursta til að hreinsa
skúffuhólfið og
tryggðu að efri og
neðri hlutar þess séu
vel hreinsaðir.
ÍSLENSKA 20
  • Page 1 1
  • Page 2 2
  • Page 3 3
  • Page 4 4
  • Page 5 5
  • Page 6 6
  • Page 7 7
  • Page 8 8
  • Page 9 9
  • Page 10 10
  • Page 11 11
  • Page 12 12
  • Page 13 13
  • Page 14 14
  • Page 15 15
  • Page 16 16
  • Page 17 17
  • Page 18 18
  • Page 19 19
  • Page 20 20
  • Page 21 21
  • Page 22 22
  • Page 23 23
  • Page 24 24
  • Page 25 25
  • Page 26 26
  • Page 27 27
  • Page 28 28
  • Page 29 29
  • Page 30 30
  • Page 31 31
  • Page 32 32

IKEA RENLIG Používateľská príručka

Typ
Používateľská príručka

v iných jazykoch