Aeg-Electrolux L87680FL Používateľská príručka

Typ
Používateľská príručka
IS Notendaleiðbeiningar
Þvottavél
L 87680 FL
EFNISYFIRLIT
1. ÖRYGGISUPPLÝSINGAR................................................................................................ 3
2. ÖRYGGISLEIÐBEININGAR.............................................................................................4
3. VÖRULÝSING...................................................................................................................6
4. STJÓRNBORÐ.................................................................................................................7
5. ÞVOTTASTILLINGAR ................................................................................................... 10
6. NOTKUNARGILDI......................................................................................................... 13
7. VALKOSTIR/AUKAVAL..................................................................................................14
8. STILLINGAR................................................................................................................... 15
9. FYRIR FYRSTU NOTKUN.............................................................................................. 16
10. DAGLEG NOTKUN.....................................................................................................16
11. GÓÐ RÁÐ.................................................................................................................... 19
12. UMHIRÐA OG ÞRIF.....................................................................................................20
13. BILANALEIT.................................................................................................................25
14. NEYÐAROPNUN HURÐAR........................................................................................ 27
15. TÆKNILEGAR UPPLÝSINGAR....................................................................................28
16. ÁBYRGÐARSKILMÁLAR............................................................................................. 28
TIL AÐ NÁ SEM BESTUM ÁRANGRI
Þakka þér fyrir að velja þessa vöru frá AEG. Við höfum framleitt þessa vöru þannig að
hún geti starfa fullkomlega í mörg ár og við höfum notað nýskapandi tækniþekkingu
sem gerir lífið einfaldara með aðgerðum sem eru ekki til staðar á venjulegum
heimilistækjum. Vinsamlegast lestu þér til um tækið í nokkrar mínútur til að geta nýtt
það sem best.
Heimsæktu vefsíðu okkar til að finna:
Fáðu leiðbeiningar um notkun, bæklinga, svör við vandamálum og
þjónustuupplýsingar:
www.aeg.com/webselfservice
Skráðu vöru þína til að fá enn betri þjónustu:
www.registeraeg.com
Kauptu aukahluti, íhluti og upprunalega varahluti fyrir heimilistæki þitt:
www.aeg.com/shop
ÞJÓNUSTA OG UMHYGGJA FYRIR VIÐSKIPTAVININUM
Við mælum með notkun upprunalegra varahluta.
Þegar haft er samband við þjónustuskrifstofuna skal hafa eftirfarandi gögn tiltæk:
Gerð tækis, PNC, raðnúmer.
Upplýsingarnar eru til staðar á merkiplötu tækisins.
Viðvörun / aðvörun - upplýsingar um öryggismál
Almennar upplýsingar og ráðleggingar
Upplýsingar um umhverfismál
Með fyrirvara á breytingum.
www.aeg.com
2
1. ÖRYGGISUPPLÝSINGAR
Fyrir uppsetningu og notkun heimilistækisins skal lesa
meðfylgjandi leiðbeiningar vandlega. Framleiðandinn
ber ekki ábyrgð á neinum meiðslum eða skemmdum
sem leiða af rangri uppsetningu eða notkun. Geymdu
alltaf leiðbeiningarnar á öruggum stað þar sem auðvelt
er að nálgast þær til síðari notkunar.
1.1 Öryggi barna og viðkvæmra einstaklinga
Börn, 8 ára og eldri og fólk með minnkaða getu, mega
nota þetta tæki, ef þeim hafa verið veittar
leiðbeiningar og/eða eftirlit varðandi örugga notkun
tækisins og ef þau skilja hættuna sem því fylgir.
Leyfðu ekki börnum að leika sér með tækið.
Halda ætti börnum yngri en 3 ára frá heimilistækinu,
nema þau séu undir stöðugu eftirliti.
Haltu öllum umbúðum frá börnum og fargaðu þeim á
viðeigandi hátt.
Haltu þvottaefnum frá börnum.
Haltu börnum og gæludýrum frá hurðinni á
heimilistækinu þegar hún er opin.
Ef heimilistækið er með barnalæsingu ætti hún að vera
virkjuð.
Börn eiga ekki að hreinsa eða framkvæma
notandaviðhald á heimilistækinu án eftirlits.
1.2
Almennt öryggi
Breyttu ekki tæknilýsingu fyrir þetta heimilistæki.
Farðu ekki umfram hámarkshleðslu upp á 8 kg (sjá
kaflann „Þvottakerfistafla“).
Vatnsþrýstingur við inntaksstað vatns frá
úttakstengingunni verður að vera á milli 0,5 bör (0,05
MPa) og 8 bör (0,8 MPa).
Teppi, mottur eða einhverjar gólfábreiður mega ekki
hylja lofttúðurnar undir tækinu (ef við á).
ÍSLENSKA
3
Heimilistækið verður að vera tengt við vatnsveituna
með nýja slöngusettinu sem fylgir með, eða öðru nýju
slöngusetti sem viðurkennd þjónustumiðstöð útvegar.
Ekki má endurnýta gamlar slöngur.
Ef rafmagnssnúra er skemmd verður framleiðandi,
viðurkennd þjónustumiðstöð eða svipað hæfur aðili að
endurnýja hana til að forðast hættu vegna rafmagns.
Áður en eitthvert viðhald er framkvæmt skal slökkva á
heimilistækinu og aftengja klóna frá
rafmagnsinnstungunni.
Ekki skal nota háþrýstan vatnsúða og/eða gufu til að
hreinsa heimilistækið.
Hreinsaðu tækið með rökum klút. Notaðu aðeins
hlutlaus þvottaefni. Notaðu ekki rispandi efni, stálull,
leysiefni eða málmhluti.
2. ÖRYGGISLEIÐBEININGAR
2.1 Uppsetning
Fjarlægðu allar umbúðir og
flutningsboltana.
Geymdu flutningsboltana á öruggum
stað. Ef færa á heimilistækið í
framtíðinni verður að setja þá aftur í til
að læsa tromlunni til að koma í veg
fyrir innri skemmdir.
Alltaf skal sýna aðgát þegar
heimilistækið er fært vegna þess að
það er þungt. Notaðu alltaf
öryggishanska og lokaðan skóbúnað.
Ekki setja upp eða nota skemmt
heimilistæki.
Fylgdu leiðbeiningum um
uppsetningu sem fylgja með
heimilistækinu.
Ekki setja upp eða nota heimilistæki
þar sem hitastigið er undir frostmarki
eða þar sem tækið er útsett fyrir veðri
og vindum.
Gólfsvæðið þar sem á að setja upp
heimilistækið verður að vera flatt,
stöðugt, hitaþolið og hreint.
Gættu þess að loftflæði sé á milli
heimilistækisins og gólfsins.
Stilltu fæturna af svo nauðsynlegt bil
sé á milli heimilistækisins og gólfsins.
Ekki setja upp heimilistækið þar sem
ekki er hægt að opna hurðina til fulls.
2.2 Tenging við rafmagn
Heimilistækið þarf að vera jarðtengt.
Notaðu alltaf rétt ísetta innstungu
sem ekki veldur raflosti.
Gakktu úr skugga um að
rafmagnsupplýsingarnar á
merkiplötunni passi við aflgjafann. Ef
ekki, skal hafa samband við rafvirkja.
Notaðu ekki fjöltengi eða
framlengingarsnúrur.
Gakktu úr skugga um að
rafmagnsklóin og snúran verði ekki
fyrir skemmdum. Ef skipta þarf um
rafmagnssnúru verður viðurkennd
þjónustumiðstöð okkar að sjá um það.
Aðeins skal tengja rafmagnsklóna við
rafmagnsinnstunguna í lok
uppsetningarinnar. Gakktu úr skugga
um að rafmagnsklóin sé aðgengileg
eftir uppsetningu.
Ekki snerta rafmagnssnúruna eða
rafmagnsklóna með blautum höndum.
Ekki toga í snúruna til að taka tækið úr
sambandi. Taktu alltaf um klóna.
Þetta heimilistæki samræmist EBE-
tilskipunum.
www.aeg.com
4
2.3 Tenging við vatn
Ekki valda skemmdum á
vatnsslöngunum.
Áður en þú tengir ný rör, rör sem ekki
hafa verið notuð í langan tíma, þar
sem viðgerðarvinna hefur verið
framkvæmd eða nýr búnaður settur
upp (vatnsmælar, o.s.frv.) skaltu láta
vatnið renna þar til það er hreint og
tært.
Tryggðu að það sé enginn sýnilegur
vatnsleki við og eftir fyrstu notkun
heimilistækisins.
2.4 Notkun
AÐVÖRUN!
Hætta á líkamstjóni, raflosti,
eldi, brunasárum eða því að
heimilistækið skemmist.
Þetta heimilistæki er eingöngu ætlað
til heimilisnota.
Fylgdu öryggisleiðbeiningunum á
umbúðum þvottaefnisins.
Settu ekki eldfim efni eða hluti sem
eru blautir af eldfimum efnum nálægt
eða á heimilistækið.
Gakktu úr skugga um að allir
málmhlutir hafi verið fjarlægðir úr
þvottinum.
Settu ekki ílát til að safna
hugsanlegum vatnsleka undir tækið.
Hafðu samband við viðurkennda
þjónustumiðstöð til að ganga úr
skugga um hvaða aukahluti má nota.
Snertu ekki glerið í hurðinni á meðan
þvottakerfi er í gangi. Glerið getur
orðið heitt.
2.5 Þjónusta
Hafðu samband við viðurkennda
þjónustumiðstöð til að gera við
heimilistækið.
Notaðu eingöngu upprunalega
varahluti.
2.6 Förgun
AÐVÖRUN!
Hætta á líkamstjóni eða
köfnun.
Aftengdu heimilistækið frá rafmagns-
og vatnsinntaki.
Klipptu rafmagnssnúruna af upp við
heimilistækið og fargaðu henni.
Fjarlægðu hurðarlokuna til að koma í
veg fyrir að börn eða gæludýr lokist
inni í tromlunni.
Fargaðu heimilistækinu í samræmi við
staðbundnar kröfur um förgun
úrgangsrafmagns- og
rafeindabúnaðar (WEEE).
ÍSLENSKA
5
3. VÖRULÝSING
3.1 Yfirlit yfir heimilistækið
1
2
3
5
6
7
4
1
Borðflötur
2
Þvottaefnisskammtari
3
Stjórnborð
4
Hurðarhandfang
5
Merkiplata
6
Tæmingardælusía
7
Fætur til að gera heimilistækið lárétt.
3.2 Hvernig barnalæsingin er
virkjuð
Þessi búnaður kemur í veg fyrir að börn
eða gæludýr lokist inni tromlunni.
Snúðu búnaðinum réttsælis þar til raufin
er lárétt.
Þú getur ekki lokað hurðinni.
Til að loka hurðinni skaltu snúa
búnaðinum rangsælis þar til raufin er
lóðrétt.
3.3 Festiplötusett
(4055171146)
Fáanlegir hjá viðurkenndum söluaðila.
Ef heimilistækinu er komið fyrir á sökkli
þarf að festa heimilistækið niður í
festiplöturnar.
Lestu vandlega leiðbeiningarnar með
fylgihlutnum.
www.aeg.com6
4. STJÓRNBORÐ
4.1 Lýsing á stjórnborði
gitsatiH
g
n
idn
iV
élH/tkievK
Tímaval
/a
t
tel
B
ruttovþrof
Auka-
skolun
Ull/Silki
Aðalþvottur
Aðalþvottur
hljóðlátt
Straufrítt
Straulétt
Viðkvæmt
Vatt-teppi
Ofnæmisvörn
Vinding/
Vatnslosun
Skolun
r
u
xuballaG
gk 3
-
ní
m
02
ruðanra
p
sukrO
gk
3
-
t
l
ak
nuksírF
n
r
ö
v
u
pmu
r
K
Kveikt/Slökkt
Tíma-
ruðan
r
aps
Orkusparnaður
og
1 2 3
45678910
1
Kveikt/Slökkt hnappur (Kveikt/Slökkt)
2
Kerfishnúður
3
Skjár
4
Byrja/Hlé-hnappur (Kveikt/Hlé)
5
Hnappur fyrir seinkaða ræsingu
(Tímaval)
6
Tímasparnaðarhnappur
(Tímasparnaður)
7
Hnappur fyrir viðbótarskolun
(Aukaskolun)
8
Hnappur fyrir Bletti/forþvott (Bletta/
forþvottur)
9
Hnappur fyrir minnkaða vindingu
(Vinding)
10
Hnappur fyrir hitastig (Hitastig)
4.2 Skjár
A H
JKL
C D E F GB
I
Skjárinn sýnir
ÍSLENSKA 7
A
Hitastig innstillts þvottakerfis
Kalt vatn
B
Vindingarhraði innstillts þvottakerfis
Ekkert vindingartákn
1)
Halda skolvatni-tákn
1)
Aðeins tiltækt fyrir kerfið VINDA/TÆMA.
C
Tákn sem sýna þvottastig
Þegar stillt er á þvottakerfi kvikna öll táknin fyrir þau stig sem eru tengd þvottakerf-
inu.
Þegar þvottakerfið fer í gang leiftrar aðeins tákn þess þvottastigs sem er í gangi.
Þegar þvottakerfinu er lokið logar tákn síðasta þvottastigsins áfram.
Forþvottur
Þvottastig
Skolunarstig
Vindingarstig
D
Gufutáknið kviknar þegar Gufu-þvottakerfið er stillt (ef tiltækt í þínu
heimilistæki).
E
Táknið fyrir ofskömmtun þvottaefnis kviknar í lok þvottakerfisins þeg-
ar heimilistækið greinir of mikið þvottaefni.
F
Þú getur ekki opnað hurð heimilistækisins þegar þetta tákn logar. Þú
getur aðeins opnað hurðina þegar það slokknar á tákninu.
Ef þvottakerfinu er lokið og táknið helst áfram kveikt:
Er aðgerðin «Halda skolvatni» í gangi.
Er vatn í tromlunni.
G
Táknið fyrir seinkun ræsingar kviknar þegar þú stillir aðgerðina Seink-
un ræsingar.
www.aeg.com8
H
Tími þvottakerfis
Þegar þvottakerfið fer í gang styttist tími þvottakerfisins í einnar mín-
útu skrefum.
Seinkun ræsingar
Þegar þú ýtir á hnapp fyrir seinkun ræsingar birtir skjárinn seinkunartí-
mann
Viðvörunarkóðar
Ef heimilistækið bilar sýnir skjárinn viðvörunarkóða. Sjá «Bilanaleit».
Skjárinn sýnir þessi skilaboð í nokkrar sekúndur þegar:
Þú getur ekki stillt aðgerð með þvottakerfinu
Þú reynir að breyta þvottakerfinu á meðan það er í gangi.
Þegar þvottakerfinu er lokið.
I
Barnalæsingartáknið birtist þegar þessi búnaður er virkjaður.
Súlurit
Tóm vísisúla birtist aðeins ef tengd aðgerð er tiltæk fyrir innstillt
þvottakerfi.
Vísisúlan fyllist í samræmi við innstilltar aðgerðir.
Ef þú velur rangt gefa skilaboðin Err til kynna að þetta val sé ekki mögu-
legt.
J
Tímasparnaðartáknið kviknar þegar þú stillir tímalengd eins af þvotta-
kerfunum:
Styttur tími
Mjög hratt
K
Táknið fyrir aukaskolun kviknar þegar þessi aðgerð er virkjuð.
Gildið sýnir heildarfjölda skolana.
Vísisúlan er alveg fyllt þegar þú stillir hámarksfjölda skolana.
ÍSLENSKA 9
L
Táknið fyrir Bletti kviknar þegar þú virkjar aðgerðina.
Táknið fyrir Forþvott kviknar þegar þessi aðgerð er virkjuð.
Súlan er ekki alveg fyllt þegar þú stillir aðeins eina af aðgerðunum.
Súlan er alveg fyllt þegar þú stillir báðar aðgerðirnar.
5. ÞVOTTASTILLINGAR
5.1 Tafla yfir kerfi
Kerfi
Hitasvið
Hámarkshleðsla
Hámarksvinding-
arhraði
Lýsing á kerfi
(Tegund hleðslu og óhreinindastig)
Þvottakerfi
Aðalþvottur
95°C - Kalt
8 kg
1600 s/mín.
Hvít bómull og lituð bómull. Venjuleg
óhreinindi og lítil óhreinindi.
Aðalþvottur hljóðlátt
95°C - Kalt
8 kg Hvít og lituð bómull.Venjuleg óhreinindi
og lítil óhreinindi. Kerfið sleppir öllum vin-
dingarstigum til að framkvæma hljóðláta
lotu. Lotan stöðvast með vatn í belgnum.
Straufrítt
60°C - Kalt
4 kg
1200 s/mín.
Fatnaður úr gerviefnum eða blönduðum
efnum. Venjuleg óhreinindi.
Straulétt
60°C - Kalt
4 kg
800 s/mín.
Gerviefni sem útheimta varkáran þvott.
Venjuleg og lítil óhreinindi.
1)
Viðkvæmt
40°C - Kalt
4 kg
1200 s/mín.
Viðkvæm efni eins og akrýl, viskós, pól-
ýester. Venjuleg óhreinindi.
Ull/Silki
40°C - Kalt
1,5 kg
1200 s/mín.
Ull sem þvo má í vél, ull sem þvo má í
höndunum og viðkvæm efni með þvotta-
tákninu «handþvottur».
2)
Vatt-teppi
60°C - 30°C
3 kg
800 s/mín.
Sérstakt kerfi til að þvo eina ábreiðu,
sæng, rúmteppi og þess háttar úr ger-
viefni.
Ofnæmisvörn
60°C
8 kg
1600 s/mín.
Hvítur bómullarþvottur. Þetta kerfi eyðir
örverum, þar sem þvegið er á 60°C með
einni aukaskolun. Þá verður þvottaárang-
urinn betri.
Vinding/Vatnslosun
3)
8 kg
1600 s/mín.
Til að vinda þvottinn og til að tæma vatnið
úr tromlunni. Öll efni nema ullarefni og
mjög viðkvæm efni.
www.aeg.com10
Kerfi
Hitasvið
Hámarkshleðsla
Hámarksvinding-
arhraði
Lýsing á kerfi
(Tegund hleðslu og óhreinindastig)
Skolun
4)
Kalt
8 kg
1600 s/mín.
Til að skola og vinda þvottinn. Öll efni
nema ullarefni og mjög viðkvæm efni.
Dragðu úr vindingarhraða í samræmi við
tegund þvotts.
Gallabuxur
60°C - Kalt
8 kg
1200 s/mín.
Föt úr gallaefni og peysur. Einnig fyrir
dökkan þvott.
20 mín - 3 kg
40°C - 30°C
3 kg
1200 s/mín.
Bómull og gerviefni, lítið óhreint eða
flíkur sem aðeins hefur verið farið í einu
sinni.
Orkusparnaður Kalt - 3
kg
Kalt
3 kg
1200 s/mín.
Blandað efni (fatnaður úr bómull og ger-
viefnum)
5)
Orkusparnaður 60°C og
40°C
6)
60°C - 40°C
8 kg
1600 s/mín.
Hvít bómull og litföst bómull. Venjuleg
óhreinindi. Orkunotkunin minnkar og tími
þvottakerfisins lengist.
Gufukerfi
7)
Gufu má nota á þurrkaðan, þveginn þvott eða flíkur sem aðeins hefur verið farið í
einu sinni. Þessi þvottakerfi geta minnkað krumpur og ólykt og gert þvottinn þinn
mýkri.
Ekki nota neitt þvottaefni. Ef nauðsyn krefur skaltu fjarlægt bletti með því að þvo
þvottinn eða nota blettahreinsi beint á blettina.
Gufukerfi framkvæma ekki neina þrifalotu.
Ekki nota kerfið Gufa fyrir þessar gerðir þvottar:
Flíkur sem á að þvo á lægra hitastigi en 40°C.
Flíkur þar sem ekki er tekið fram á þvottamiðanum að það megi setja þær í þurrkara.
Allar flíkur sem á eru hlutir úr plasti, málmi, tré og svipuðum efnum.
Frískun
1,5 kg Gufukerfi fyrir fatnað úr bómull og ger-
viefnum. Þessi lota fjarlægir lykt úr þvott-
inum.
8)
ÍSLENSKA 11
Kerfi
Hitasvið
Hámarkshleðsla
Hámarksvinding-
arhraði
Lýsing á kerfi
(Tegund hleðslu og óhreinindastig)
Krumpuvörn
1,5 kg Gufukerfi fyrir fatnað úr gerviefnum. Þes-
si lota hjálpar við að ná krumpum úr
þvotti.
1)
Til að draga úr krumpum stillir þetta kerfi hitastig vatnsins og framkvæmir mjúkt þvotta- og vindingar-
stig. Heimilistækið bætir við nokkrum skolunum.
2)
Meðan á þessari lotu stendur snýst tromlan hægt til að tryggja varfærinn þvott. Það kann að líta út eins
og tromlan snúist ekki eða snúist ekki rétt, en þetta er eðlilegt fyrir kerfið.
3)
Stilltu vindingarhraðann. Vertu viss um að hann sé hentugur fyrir það efni sem verið er að þvo. Ef þú
stillir valkostinn Ekki vinda er aðeins tæmingarstigið tiltækt.
4)
Ýttu á hnappinn Aukaskolun til að bæta við skolunum. Á lágum vindingarhraða skolar vélin varlega og
vinding er stutt.
5)
Þetta kerfi er fyrir daglega notkun og minnstu orku- og vatnsnotkun sem viðheldur um leið góðri þvott-
aframmistöðu.
6)
Stöðluð kerfi fyrir Energy Label orkuneyslutölur. Samkvæmt reglugerð 1061/2010 eru þessi þvotta-
kerfi «Staðlað 60°C bómullarþvottakerfi» og «Staðlað 40°C bómullarþvottakerfi» hvort um sig. Þau eru
skilvirkustu kerfin hvað varðar samsetningu orkunotkunar og vatnsnotkunar til að þvo venjulega óhreinan
bómullarþvott.
Vatnshitastig þvottastigsins getur verið frábrugðið skráðu hitastigi fyrir valið kerfi.
7)
Ef þú stillir á Gufu fyrir þvott sem hefur verið þurrkaður, verður þvotturinn rakur viðkomu að þvotti
loknum. Betra er að láta lofta um þvottinn í um 10 mínútur til að leyfa rakanum að þorna. Þegar kerfið
klárast skaltu fjarlægja þvottinn fljótt úr tromlunni. Eftir þvott á gufustillingu gæti þurft að strauja þvottinn,
en það verður auðveldara.
8)
Gufa fjarlægir ekki dýralykt.
Samhæfni kerfisvalkosta
Kerfi
Bletta/forþvottur
1)
Aukaskolun
2)
Tímasparnaður
3)
Tímaval
Aðalþvottur
Aðalþvottur hljóðlátt
Straufrítt
Straulétt
4)
www.aeg.com12
Kerfi
Bletta/forþvottur
1)
Aukaskolun
2)
Tímasparnaður
3)
Tímaval
Viðkvæmt
Ull/Silki
Vatt-teppi
5)
Ofnæmisvörn
Vinding/Vatnslosun
6)
Skolun
Gallabuxur
4)
20 mín - 3 kg
Orkusparnaður Kalt - 3 kg
Orkusparnaður 60°C
og 40°C
7)
1)
Ef þú notar fljótandi þvottaefni skaltu stilla kerfi án Forþvottar. Valkosturinn Blettir er ekki tiltækur með
hitastigi lægra en 40°C.
2)
Á lágum vindingarhraða framkvæmir heimilistækið varlega skolun og stutta vindingu.
3)
Ef þú stillir styttri tímalengd mælum við með að þú minnkir hleðsluna. Mögulegt er að fylla heimilis-
tækið af þvotti, hins vegar verður þvottaárangurinn ekki eins ánægjulegur.
4)
Aðeins aðgerðin Forþvottur er tiltæk.
5)
Aðeins aðgerðin Blettir er tiltæk.
6)
Stilltu vindingarhraðann. Vertu viss um að hann sé hentugur fyrir það efni sem verið er að þvo. Ef þú
stillir valkostinn Ekki vinda er aðeins tæmingarstigið tiltækt.
7)
Með þessum kerfum getur þú aðeins stillt styttri tímalengd.
6. NOTKUNARGILDI
Gögnin í þessari töflu eru til viðmiðunar. Mismunandi breytistærðir geta
haft áhrif á gögnin: Magn og gerð þvottar, hitastig vatnsins og umhverf-
ishitastig.
ÍSLENSKA 13
Við upphaf þvottakerfisins sýnir skjárinn lengd kerfisins fyrir hámark-
shleðslugetu.
Á meðan á þvottakerfinu stendur er lengd kerfisins reiknuð út sjálfkrafa
og má stytta hana til muna ef magn þvotts er undir hámarkshleðslugetu
vélarinnar (t.d. Bómull 60°C, hámarkshleðslugeta 8 kg, lengd þvottaker-
fisins er meiri en 2 klst.; ef raunveruleg hleðsla er 1 kg, þá mun lengd
þvottakerfisins verða styttri en 1 klst.).
Á meðan heimilistækið reiknar út raunverulega lengd kerfisins leiftrar
punktur á skjánum.
Kerfi Hleðsla
(kg)
Orkunotkun
(kWh)
Vatnsnotk-
un (lítrar)
Viðmiðunar-
lengd kerfis
(mínútur)
Raki sem
eftir er
(%)
1)
Aðalþvottur 60°C 8 1.60 72 168 44
Aðalþvottur 40°C 8 1.00 72 164 44
Straufrítt 40°C 4 0.60 50 110 35
Viðkvæmt 40°C 4 0.70 60 91 35
Ull/Silki 30°C
2)
1,5 0.35 57 58 30
Venjuleg kerfi fyrir bómullarefni
Venjulegt 60°C
bómull
8 0.90 55 208 44
Venjulegt 60°C
bómull
4 0.65 47 156 44
Venjulegt 40°C
bómull
4 0.49 47 156 44
1)
Við lok vindingar.
2)
Ekki fáanlegt fyrir sumar gerðir.
Slökkt-hamur (W) Biðhamur (W)
0.05 0.05
Upplýsingarnar í töflunni hér að ofan eru í samræmi við reglugerð Framkvæmdastjórnar
ESB 1015/2010 sem innleiðir tilskipun 2009/125/EB.
7. VALKOSTIR/AUKAVAL
7.1 Kveikt/Hlé
Ýttu á hnapp Kveikt/Hlé til að hefja eða
rjúfa kerfi.
7.2 Tímaval
Með þessum valkosti getur þú seinkað
ræsingu kerfis frá 30 mínútum upp í 20
klukkustundir.
www.aeg.com14
Skjárinn sýnir tengdan vísi og
seinkunartíma.
7.3 Tímasparnaður
Með þessum valkosti getur þú minnkað
tímalengd kerfis.
Ýttu einu sinni á þennan hnapp til að
stilla „Stytt tímalengd“ fyrir þvott með
daglegum óhreinindum.
Ýttu tvisvar á þennan hnapp til að
stilla „Mjög snöggt“, aðeins fyrir þvott
sem er lítið óhreinn.
Sum kerfi samþykkja aðeins
annan af þessu tveimur
valkostum.
7.4 Aukaskolun
Með þessum valkosti getur þú bætt
nokkrum skolunum við sum þvottakerfi,
sjá „Tafla yfir kerfi“.
Notaðu þennan valkost fyrir fólk sem
hefur ofnæmi fyrir þvottaefnum og á
svæðum þar sem vatn er mjúkt.
Tengdur vísir kviknar.
7.5 Bletta/forþvottur
Ýttu á þennan hnapp til að bæta bletta-
og forþvottarferlinu við þvottakerfi.
Ýttu endurtekið á hnappinn til að virkja
annan eða báða valkostina. Tengdur vísir
og vísisúlan kvikna á skjánum.
Blettaþvottur: Notaðu þennan
valkost fyrir þvott með blettum sem
erfitt er að fjarlægja.
Þegar þú velur þennan valkost skaltu
setja blettaeyði í hólfið . Þessi
valkostur eykur lengd þvottakerfisins.
Þessi valkostur er ekki
tiltækur á lægri hita en
40°C.
Forþvottur: Notaðu þennan valkost
til að bæta við forþvottarstigi á undan
aðalþvottinum.
Við mælum með að þú notir þennan
valkost þegar þvotturinn er mjög
óhreinn.
Þessi valkostur eykur
lengd þvottakerfisins.
7.6 Vinding
Ýttu á þennan hnapp til að:
Minnka hámarkshraða vindingar í
þvottakerfinu.
Skjárinn sýnir aðeins þann
vindingarhraða sem er
tiltækur fyrir þvottakerfið
sem stillt er á.
Slökkt á vindingunni.
Virkja valkostinn Halda skolvatni.
Stilltu þennan valkost til að koma í veg
fyrir að efnið krumpist. Þvottakerfinu
lýkur með vatn í tromlunni. Tromlan
snýst reglulega til að draga úr
krumpum.
Hurðin helst læst. Þú verður að tæma
vatnið af til að aflæsa hurðinni.
7.7 Hitastig
Ýttu á þennan hnapp til að breyta
sjálfgefna hitastiginu. Þegar skjárinn sýnir
og hitar heimilistækið ekki
vatnið.
8.
STILLINGAR
8.1 Hljóðmerki
Hljóðmerkin heyrast þegar:
Þú kveikir á heimilistækinu.
Þú slekkur á heimilistækinu.
Þú ýtir á hnappana.
Kerfinu er lokið.
Heimilistækið er bilað.
Til að slökkva/kveikja á hljóðmerkjunum
skaltu ýta samtímis á Bletta/forþvottur og
Aukaskolun í 6 sekúndur.
Ef þú afvirkjar hljóðmerkin
halda þau áfram að ganga
þegar heimilistækið er bilað.
ÍSLENSKA 15
8.2 Barnalæsing
Með þessum valkosti getur þú komið í
veg fyrir að börnin leiki sér með
stjórnborðið.
Til að virkja/afvirkja þennan valkost
skaltu ýta samtímis á Hitastig og
Vinding þar til vísirinn
kviknar/
slokknar.
Þú getur virkjað þennan valkost:
Eftir að þú ýtir á Kveikt/Hlé :
Valkostirnir og kerfishnúðurinn eru
læstir.
Áður en þú ýtir á Kveikt/Hlé : Ekki er
hægt að ræsa heimilistækið.
8.3 Varanleg viðbótarskolun
Með þessum valkosti getur þú varanlega
verið með viðbótarskolun þegar þú stillir
nýtt kerfi.
Til að virkja/afvirkja þennan valkost
skaltu ýta samtímis á Tímasparnaður
og Tímaval þar til viðeigandi vísir
kviknar/slokknar.
9. FYRIR FYRSTU NOTKUN
1. Settu 2 lítra af vatni í
þvottaefnishólfið fyrir þvottastig.
Þetta virkjar tæmingarkerfið.
2. Settu lítið magn af þvottaefni í hólfið
fyrir þvottastig.
3. Stilltu á og ræstu kerfi fyrir bómull á
hæsta hita með engum þvotti í.
Það fjarlægir öll hugsanleg óhreinindi úr
tromlunni og belgnum.
10. DAGLEG NOTKUN
AÐVÖRUN!
Sjá kafla um Öryggismál.
10.1 Kveikt á heimilistækinu
1. Tengdu klóna við
rafmagnsinnstunguna.
2. Skrúfaðu frá vatnskrananum.
3. Ýttu á hnapp Kveikt/Slökkt til að
kveikja á heimilistækinu.
Stuttur tónn hljómar.
10.2 Þvottur settur í vélina
1. Opnaðu hurð heimilistækisins
2. Settu þvottinn í tromluna, eitt stykki í
einu.
3. Hristu stykkin áður en þau eru sett
inn í heimilistækið.
Gættu þess að setja ekki of mikinn þvott í
tromluna.
4. Lokaðu hurðinni tryggilega.
VARÚÐ!
Gættu þess að ekki sé
þvottur á milli þéttigúmmís
og hurðar. Þá er hætta á
vatnsleka eða skemmdum á
þvotti.
www.aeg.com16
10.3 Fyllt á þvottaefni og
íblendiefni
Hólf fyrir forþvottarstig og
bleytingarkerfi.
Hólf fyrir þvottastig.
Hólf fyrir fljótandi íblendiefni
(mýkingarefni, línsterkju).
Hámarksstaða fyrir magn fljótandi
íblendiefna.
Hólf fyrir blettaeyði.
Speldi fyrir þvottaefni í duft- eða
vökvaformi.
Fylgdu alltaf
leiðbeiningunum sem er að
finna á umbúðum
þvottaefnanna.
10.4 Athugaðu í hvaða stöðu
speldið er
1. Dragðu þvottaefnisskammtarann út
þar til hann stöðvast.
2. Ýttu handfanginu niður til að
fjarlægja skammtarann.
1
2
3. Til að nota duftþvottaefni skal snúa
speldinu upp.
A
4. Til að nota fljótandi þvottaefni skal
snúa speldinu niður.
B
Með speldið í stöðunni
NIÐUR:
Notaðu ekki
hlaupkennd eða þykk
fljótandi þvottaefni.
Láttu ekki fljótandi
þvottaefni ná upp
fyrir mörkin sem sýnd
eru á speldinu.
Stilltu ekki á forþvott.
Stilltu ekki seinkaða
ræsingaraðgerð.
5. Mældu þvottaefnið og
mýkingarefnið.
6. Lokaðu þvottaefnisskammtaranum
varlega.
Gættu þess að speldið valdi ekki stíflu
þegar skúffunni er lokað.
10.5 Kerfi stillt
1. Snúðu kerfishnúðnum. Þá kviknar á
vísinum sem tengist því þvottakerfi.
ÍSLENSKA
17
Vísirinn á hnappi Kveikt/Hlé leiftrar þá í
rauðum lit.
Skjárinn sýnir sjálfgefna hitastigið,
vindingarhraðann og tómu súlurnar fyrir
tiltækar aðgerðir.
2. Til að breyta hitastigi og/eða
vindingarhraða skal ýta á tengda
hnappa.
3. Tiltækar aðgerðir stilltar.
10.6 Kerfi sett í gang án
seinkunar á ræsingu
Ýttu á hnapp Kveikt/Hlé til að setja kerfið
í gang.
Viðeigandi vísir hættir að leiftra og helst
logandi.
Á skjánum byrjar vísirinn fyrir vinnustigið
að leiftra.
Kerfið byrjar, hurðin er læst. Skjárinn sýnir
vísinn .
Tæmingardælan getur
starfað í smástund þegar
heimilistækið er að fyllast af
vatni.
10.7 Kerfi sett í gang með
seinkun ræsingar
1. Ýttu aftur og aftur á hnapp Tímaval
þar til skjárinn sýnir fjölda mínútna
eða klukkstunda fyrir seinkun.
Tengdur vísir kviknar.
2. Ýttu á hnapp Kveikt/Hlé.
Heimilistækið byrjar niðurtalningu á
seinkun ræsingar.
Að niðurtalningu lokinni fer kerfið
sjálfkrafa í gang.
Áður en þú ýtir á hnapp
Kveikt/Hlé til að setja
heimilistækið í gang geturðu
hætt við eða breytt seinkun
ræsingar.
10.8 Hætt við seinkaða
ræsingu
Hætt við seinkaða ræsingu:
1. Ýttu á hnapp Kveikt/Hlé til að stilla að
heimilistækið geri hlé.
Tengdur vísir leiftrar.
2. Ýttu endurtekið á hnapp Tímaval þar
til skjárinn sýnir .
3.
Ýttu aftur á hnapp Kveikt/Hlé til að
setja kerfið samstundis í gang.
10.9 Hegðun heimilistækisins
Um það bil 15 mínútum eftir
að kerfið hefst:
Heimilistækið lagar
lotutímann sjálfkrafa að
þeim þvotti sem þú hefur
sett í tromluna þannig að
þvottaárangurinn verði
óaðfinnanlegur á stysta
mögulega tíma.
Skjárinn sýnir nýja
tímagildið.
10.10 Hætt við kerfi í gangi
1. Ýttu á hnappinn Kveikt/Slökkt til að
hætta við þvottakerfið og slökkva á
heimilistækinu.
2. Ýttu aftur á hnappinn Kveikt/Slökkt til
að kveikja á heimilistækinu.
Nú getur þú stillt nýtt þvottakerfi.
Heimilistækið gæti tæmt af
sér vatnið áður en byrjað er á
nýju kerfi. Í því tilfelli skaltu
gæta þess að þvottaefnið sé
enn í þvottaefnishólfinu og
ef ekki, fylla aftur á hólfið.
10.11 Rof á kerfi og valkosti
breytt
Aðeins er hægt að breyta ákveðnum
valkostum áður en þeir fara í gang.
1. Ýttu á hnapp Kveikt/Hlé.
Tengdur vísir leiftrar.
2. Breyta stilltum valkosti.
3. Ýttu aftur á hnappinn Kveikt/Hlé.
Kerfið heldur áfram.
10.12 Að opna hurðina
Ef hitastigið og staða vatns í
tromlunni eru of há og/eða
tromlan snýst ennþá er ekki
hægt að opna hurðina.
Á meðan kerfi eða seinkun ræsingar er í
gangi er hurð heimilistækisins læst.
1. Ýttu á hnapp Kveikt/Hlé.
www.aeg.com
18
Á skjánum slokknar á vísi tengdum
hurðarlás.
2. Opnaðu hurð heimilistækisins.
3. Lokaðu hurðinni og ýttu á hnapp
Kveikt/Hlé.
Kerfið eða seinkun ræsingar heldur
áfram.
10.13 Lotu lokið
Þegar kerfinu er lokið stöðvast
heimilistækið sjálfkrafa. Hljóðmerkið
heyrist (ef það er virkt).
Á skjánum kviknar og vísir fyrir læsta
hurð
slokknar.
Það slokknar á vísinum fyrir Kveikt/Hlé-
hnappinn.
1. Ýttu á hnappinn Kveikt/Slökkt til að
slökkva á heimilistækinu.
Fimm mínútum eftir að kerfinu lýkur
slekkur orkusparnaðaraðgerðin sjálfkrafa
á heimilistækinu.
Þegar þú kveikir aftur á
heimilistækinu sýnir skjárinn
lok síðasta kerfis sem stillt
var á. Snúðu
kerfishnappinum til að stilla
nýja lotu.
2. Taktu þvottinn úr heimilistækinu.
3. Gættu þess að tromlan sé tóm.
4. Hafðu hurðina hálfopna til að koma í
veg fyrir myglu og ólykt.
10.14 Vatn tæmt af eftir að
lotu lýkur
Þvottakerfinu er lokið, en það er vatn í
tromlunni:
Tromlan snýst reglulega til að hindra að
þvotturinn krumpist.
Vísirinn fyrir hurðarlásinn logar.
Hurðin helst læst.
Þú þarft að tæma af vatnið til að opna
hurðina:
1. Ef þörf krefur skaltu minnka
vindingarhraðann.
2. Ýttu á Kveikt/Hlé-hnappinn.
Heimilistækið tæmist af vatni og vindur.
3. Þegar kerfinu er lokið og vísir fyrir
hurðarlás
slokknar geturðu
opnað hurðina.
4. Ýttu á Kveikt/Slökkt í nokkrar
sekúndur til að slökkva á
heimilistækinu.
Heimilistækið tæmir vatnið
og vindur sjálfvirkt eftir um
það bil 18 klukkustundir.
10.15 Valkosturinn AUTO OFF
Aðgerðin AUTO OFF slekkur sjálfkrafa á
heimilistækinu til að draga úr orkunotkun
þegar:
Þú notar ekki heimilistækið í 5 mínútur
áður en þú ýtir á hnappinn Kveikt/Hlé.
Ýttu á hnappinn Kveikt/Slökkt til að
kveikja aftur á heimilistækinu.
5 mínútum eftir að þvottakerfi lýkur.
Ýttu á hnappinn Kveikt/Slökkt til að
kveikja aftur á heimilistækinu.
Skjárinn sýnir lok síðasta stillta kerfis.
Snúðu kerfishnappinum til að stilla á
nýja lotu.
Ef þú stillir kerfi eða valkost
sem lýkur með vatn í
tromlunni slekkur aðgerðin
AUTO OFF ekki á
heimilistækinu til að minna
þig á að tæma út vatnið.
11. GÓÐ RÁÐ
AÐVÖRUN!
Sjá kafla um Öryggismál.
11.1 Þvottamagnið
Skiptu þvottinum niður í: Hvítan,
litaðan, gerviefni, viðkvæmt og ull.
Fylgdu þvottaleiðbeiningunum sem
eru á þvottamiðunum.
Þvoðu ekki hvítan og litaðan þvott
saman.
Litaður þvottur getur stundum
upplitast í fyrsta þvotti. Við mælum
með að hann sé þveginn sér í fyrstu
skiptin.
Hnepptu koddaverum saman, lokaðu
rennilásum, krókum og smellum.
Hnýttu belti.
ÍSLENSKA 19
Tæmdu vasana og brjóttu þvottinn í
sundur.
Snúðu marglaga efnum, ull og þvotti
með ámáluðum myndum á rönguna.
Fjarlægðu erfiða bletti.
Þvoðu mjög óhreina bletti með
sérstöku þvottaefni.
Meðhöndlaðu gluggatjöld varlega.
Fjarlægðu krækjurnar eða settu
gluggatjöldin í þvottanet eða
koddaver.
Þvoðu ekki þvott án falds eða sem
hefur rifnað. Notaðu þvottanet til að
þvo lítil og/eða viðkvæm stykki (t.d.
brjóstahaldara með spöng, belti,
sokkabuxur, o.s.frv.).
Mjög lítill þvottur getur valdið
jafnvægisvandamálum við vindingu. Ef
þetta gerist skaltu laga stykkin í
belgnum til og hefja vindinguna aftur.
11.2 Erfiðir blettir
Á suma bletti dugar ekki vatn og
þvottaefni.
Við mælum með að þú for-meðhöndlir
þessa bletti áður en þú setur flíkurnar í
heimilistækið.
Sérstakir blettaeyðar eru fáanlegir.
Notaðu réttan blettaeyði fyrir þá gerð
bletta og efnis sem um ræðir.
11.3 Þvottaefni og íblendiefni
Aðeins skal nota þvottaefni og
íblendiefni sem eru gerð sérstaklega
fyrir þvottavélar:
Duftþvottaefni fyrir allar tegundir
efna,
duftþvottaefni fyrir viðkvæm efni
(40°C hámark) og ull,
fljótandi þvottaefni, helst fyrir
þvott á lágu hitastigi (60°C
hámark) fyrir öll efni, eða sérstök
þvottaefni fyrir ull eingöngu.
Ekki blanda saman ólíkum gerðum
þvottaefna.
Til að vernda umhverfið skaltu ekki
nota meira en rétt magn af þvottaefni.
Fylgdu leiðbeiningunum sem er að
finna á umbúðum þvottaefnanna.
Notaðu rétt þvottaefni fyrir gerð og lit
þess efnis sem á að þvo, hitastig
þvottaferilsins og óhreinindastig.
Ef heimilistækið þitt er ekki með
þvottaefnishólf með flipabúnaði skaltu
setja fljótandi þvottaefni í með
skömmtunarkúlu (fáanleg hjá
framleiðanda þvottaefnisins).
11.4 Vistfræðileg heillaráð
Stilltu kerfi án forþvottar þegar
þveginn er venjulega óhreinn þvottur.
Byrjaðu alltaf þvottakerfi með hámarks
leyfilegt magn af þvotti.
Ef þörf er á má nota blettaeyði þegar
þú stillir kerfi með lágu hitastigi.
Til að nota rétt magn af þvottaefni
skaltu athuga herslu heimilsvatnsins.
Sjá „Harka vatns“.
11.5 Herslustig vatns
Ef herslustig vatnsins á þínu svæði er hátt
eða meðalhátt, mælum við með að þú
notir vatnsmýkingarefni fyrir þvottavélar.
Á svæðum þar sem herslustig vatns er
mjúkt er ekki nauðsynlegt að nota
vatnsmýkingarefni.
Til að komast að því hvert herslustig
vatns er þar sem þú býrð skaltu hafa
samband við vatnsveituna á staðnum.
Notaðu rétt magn af vatnsmýkingarefni.
Hlýddu leiðbeiningunum sem er að finna
á umbúðum vörunnar.
12.
UMHIRÐA OG ÞRIF
AÐVÖRUN!
Sjá kafla um Öryggismál.
12.1 Hreinsun að utan
Hreinsaðu heimilistækið eingöngu með
sápu og volgu vatni. Þurrkaðu alla fleti til
fulls.
VARÚÐ!
Ekki nota áfengi, leysiefni
eða kemískar vörur.
12.2 Kalkhreinsun
Ef herslustig vatnsins á þínu svæði er hátt
eða meðalhátt mælum við með að þú
www.aeg.com20
  • Page 1 1
  • Page 2 2
  • Page 3 3
  • Page 4 4
  • Page 5 5
  • Page 6 6
  • Page 7 7
  • Page 8 8
  • Page 9 9
  • Page 10 10
  • Page 11 11
  • Page 12 12
  • Page 13 13
  • Page 14 14
  • Page 15 15
  • Page 16 16
  • Page 17 17
  • Page 18 18
  • Page 19 19
  • Page 20 20
  • Page 21 21
  • Page 22 22
  • Page 23 23
  • Page 24 24
  • Page 25 25
  • Page 26 26
  • Page 27 27
  • Page 28 28
  • Page 29 29
  • Page 30 30
  • Page 31 31
  • Page 32 32

Aeg-Electrolux L87680FL Používateľská príručka

Typ
Používateľská príručka

V iných jazykoch