AEG L7FBE840E Používateľská príručka

Typ
Používateľská príručka
USER
MANUAL
IS Notendaleiðbeiningar
Þvottavél
L7FBE840E
EFNISYFIRLIT
1. ÖRYGGISUPPLÝSINGAR.............................................................................................3
2. ÖRYGGISLEIÐBEININGAR......................................................................................... 4
3. INNSETNING............................................................................................................... 5
4. VÖRULÝSING...............................................................................................................9
5. STJÓRNBORÐ........................................................................................................... 11
6. SKÍFA OG HNAPPAR................................................................................................ 13
7. KERFI ..........................................................................................................................15
8. STILLINGAR................................................................................................................20
9. FYRIR FYRSTU NOTKUN...........................................................................................20
10. DAGLEG NOTKUN................................................................................................. 21
11. GÓÐ RÁÐ.................................................................................................................25
12. UMHIRÐA OG ÞRIF.................................................................................................26
13. BILANALEIT............................................................................................................. 31
14. NOTKUNARGILDI................................................................................................... 34
15. TÆKNILEGAR UPPLÝSINGAR................................................................................35
16. FYLGIHLUTIR........................................................................................................... 36
TIL AÐ NÁ SEM BESTUM ÁRANGRI
Þakka þér fyrir að velja þessa vöru frá AEG. Við höfum framleitt þessa vöru til að
starfa fullkomlega í mörg ár og við höfum notað nýstárlega tækni sem gerir lífið
einfaldara með aðgerðum sem ekki er víst að séu til staðar í venjulegum
heimilistækjum. Vinsamlegast lestu þér til í nokkrar mínútur til að geta nýtt tækið
sem best.
Heimsæktu vefsvæði okkar til að:
Fá leiðbeiningar um notkun, bæklinga, svör við vandamálum og
þjónustuupplýsingar.
www.aeg.com/webselfservice
Skrá vöruna þína til að fá enn betri þjónustu:
www.registeraeg.com
Kaupa aukahluti, rekstrarvörur og upprunalega varahluti fyrir heimilistæki þitt:
www.aeg.com/shop
AÐSTOÐ OG ÞJÓNUSTA VIÐ VIÐSKIPTAVINI
Við mælum með notkun upprunalegra varahluta.
Þegar haft er samband við þjónustuskrifstofuna skal hafa eftirfarandi gögn tiltæk:
Gerð, vörunúmer, raðnúmer.
Upplýsingarnar má finna á merkiplötunni.
Aðvörun / Upplýsingar um öryggismál
Almennar upplýsingar og ráð
Upplýsingar um umhverfismál
Með fyrirvara á breytingum.
www.aeg.com
2
1. ÖRYGGISUPPLÝSINGAR
Fyrir uppsetningu og notkun heimilistækisins skal lesa
meðfylgjandi leiðbeiningar vandlega. Framleiðandinn
ber ekki ábyrgð á neinum meiðslum eða skemmdum
sem leiða af rangri uppsetningu eða notkun. Geymdu
alltaf leiðbeiningarnar á öruggum stað þar sem auðvelt
er að nálgast þær til síðari notkunar.
1.1 Öryggi barna og viðkvæmra einstaklinga
Börn, 8 ára og eldri og fólk með minnkaða líkamlega-,
skyn- eða andlega getu, eða sem skortir reynslu og
þekkingu, mega nota þetta tæki, ef þau eru undir
eftirliti eða hafa verið veittar leiðbeiningar varðandi
örugga notkun tækisins og ef þau skilja hættuna sem
því fylgir.
Leyfðu ekki börnum að leika sér með tækið.
Alltaf verður að halda börnum 3 ára og eldri frá þessu
heimilistæki þegar það er í notkun.
Haltu öllum umbúðum frá börnum og fargaðu þeim á
viðeigandi hátt.
Haltu þvottaefnum frá börnum.
Haltu börnum og gæludýrum frá heimilistækinu þegar
hurðin er opin.
Ef heimilistækið er með barnalæsingu ætti hún að vera
virkjuð.
Börn eiga ekki að hreinsa eða framkvæma
notandaviðhald á heimilistækinu án eftirlits.
1.2
Almennt öryggi
Breyttu ekki tæknilýsingu fyrir þetta heimilistæki.
Farðu ekki umfram hámarkshleðslu upp á 8 kg (sjá
kaflann „Þvottakerfistafla“).
Vatnsþrýstingur við inntaksstað vatns frá
úttakstengingunni verður að vera á milli 0,5 bör (0,05
MPa) og 8 bör (0,8 MPa).
Teppi, mottur eða einhverjar gólfábreiður mega ekki
hylja lofttúðurnar undir tækinu (ef við á).
ÍSLENSKA
3
Heimilistækið verður að vera tengt við vatnsveituna
með nýja slöngusettinu sem fylgir með, eða öðru nýju
slöngusetti sem viðurkennd þjónustumiðstöð útvegar.
Ekki má endurnýta gamlar slöngur.
Ef rafmagnssnúra er skemmd verður framleiðandi,
viðurkennd þjónustumiðstöð, eða svipað hæfur aðili
að endurnýja hana til að forðast hættu vegna
rafmagns.
Áður en eitthvert viðhald er framkvæmt skal slökkva á
heimilistækinu og aftengja klóna frá
rafmagnsinnstungunni.
Ekki skal nota háþrýstan vatnsúða og/eða gufu til að
hreinsa heimilistækið.
Hreinsaðu tækið með rökum klút. Notaðu aðeins
hlutlaus þvottaefni. Notaðu ekki rispandi efni, stálull,
leysiefni eða málmhluti.
2. ÖRYGGISLEIÐBEININGAR
2.1 Uppsetning
Fjarlægðu allar umbúðir og
flutningsboltana.
Geymdu flutningsboltana á öruggum
stað. Ef færa á heimilistækið í
framtíðinni verður að setja þá aftur í til
að læsa tromlunni til að koma í veg
fyrir innri skemmdir.
Alltaf skal sýna aðgát þegar
heimilistækið er fært vegna þess að
það er þungt. Notaðu alltaf
öryggishanska og lokaðan skóbúnað.
Ekki setja upp eða nota skemmt
heimilistæki.
Fylgdu leiðbeiningum um
uppsetningu sem fylgja með
heimilistækinu.
Ekki setja upp eða nota heimilistæki
þar sem hitastigið er undir frostmarki
eða þar sem tækið er útsett fyrir veðri
og vindum.
Gólfsvæðið þar sem á að setja upp
heimilistækið verður að vera flatt,
stöðugt, hitaþolið og hreint.
Gættu þess að loftflæði sé á milli
heimilistækisins og gólfsins.
Stilltu fæturna af svo nauðsynlegt bil
sé á milli heimilistækisins og gólfsins.
Ekki setja upp heimilistækið þar sem
ekki er hægt að opna hurðina til fulls.
Settu ekki ílát til að safna
hugsanlegum vatnsleka undir tækið.
Hafðu samband við viðurkennda
þjónustumiðstöð til að ganga úr
skugga um hvaða aukahluti má nota.
2.2 Tenging við rafmagn
Heimilistækið verður að vera
jarðtengt.
Notaðu alltaf rétt ísetta innstungu
sem ekki veldur raflosti.
Gakktu úr skugga um að
færibreyturnar á merkiplötunni séu
samhæfar við rafmagnsflokkun
aðalæðar aflgjafa.
Notaðu ekki fjöltengi eða
framlengingarsnúrur.
Gakktu úr skugga um að
rafmagnsklóin og snúran verði ekki
fyrir skemmdum. Ef skipta þarf um
rafmagnssnúru verður viðurkennd
þjónustumiðstöð okkar að sjá um það.
Aðeins skal tengja rafmagnsklóna við
rafmagnsinnstunguna í lok
uppsetningarinnar. Gakktu úr skugga
www.aeg.com
4
um að rafmagnsklóin sé aðgengileg
eftir uppsetningu.
Ekki snerta rafmagnssnúruna eða
rafmagnsklóna með blautum höndum.
Ekki toga í snúruna til að taka tækið úr
sambandi. Taktu alltaf um klóna.
Þetta heimilistæki samræmist
tilskipunum EBE.
2.3 Tenging við vatn
Ekki valda skemmdum á
vatnsslöngunum.
Áður en þú tengir ný rör, rör sem ekki
hafa verið notuð í langan tíma, þar
sem viðgerðarvinna hefur verið
framkvæmd eða nýr búnaður settur
upp (vatnsmælar, o.s.frv.) skaltu láta
vatnið renna þar til það er hreint og
tært.
Tryggðu að það sé enginn sýnilegur
vatnsleki við og eftir fyrstu notkun
heimilistækisins.
2.4 Notkun
AÐVÖRUN!
Hætta á líkamstjóni, raflosti,
eldi, brunasárum eða því að
heimilistækið skemmist.
Þetta heimilistæki er eingöngu ætlað
til heimilisnota.
Fylgdu öryggisleiðbeiningunum á
umbúðum þvottaefnisins.
Settu ekki eldfim efni eða hluti sem
eru blautir af eldfimum efnum nálægt
eða á heimilistækið.
Gakktu úr skugga um að allir
málmhlutir hafi verið fjarlægðir úr
þvottinum.
Þvoðu ekki fataefni sem eru mjög
óhrein af olíu, feiti, eða öðrum
fitugum efnum. Það getur skemmt
gúmmíhluta þvottavélarinnar. Forþvo
skal slík fataefni í höndunum áður en
þeim er hlaðið í þvottavélina.
Snertu ekki glerið í hurðinni á meðan
þvottakerfi er í gangi. Glerið getur
orðið heitt.
2.5 Þjónusta
Hafðu samband við viðurkennda
þjónustumiðstöð til að gera við
heimilistækið.
Notaðu eingöngu upprunalega
varahluti.
2.6 Förgun
AÐVÖRUN!
Hætta á líkamstjóni eða
köfnun.
Aftengdu heimilistækið frá rafmagns-
og vatnsinntaki.
Klipptu rafmagnssnúruna af upp við
heimilistækið og fargaðu henni.
Fjarlægðu hurðarlokuna til að koma í
veg fyrir að börn eða gæludýr lokist
inni í tromlunni.
Fargaðu heimilistækinu í samræmi við
staðbundnar kröfur um förgun
úrgangsrafmagns- og
rafeindabúnaðar (WEEE).
3.
INNSETNING
AÐVÖRUN!
Sjá kafla um Öryggismál.
3.1 Umbúðir fjarlægðar
AÐVÖRUN!
Fjarlægðu allar umbúðirnar
og flutningsboltana fyrir
uppsetningu
heimilistækisins.
AÐVÖRUN!
Notaðu hanskana.
1. Fjarlægðu filmuna sem er utan um.
Notaðu dúkahníf ef þörf krefur.
2. Fjarlægðu pappatoppinn og
pólýstýren-umbúðarefnið.
ÍSLENSKA
5
3. Fjarlægðu filmuna innan í.
4. Opnaðu hurðina og fjarlægðu
pólýstýren-bitann af
hurðarþéttingunni og alla hlutina úr
tromlunni.
5. Leggðu heimilistækið varlega niður
með bakhliðina ofan á pólýstýrenið.
6. Settu pólýstýren-umbúðaeininguna
að framan á gólfið undir
heimilistækinu.
Passaðu að skemma ekki
slöngurnar.
7. Fjarlægðu pólýstýrenvörnina af
botninum.
1
2
8. Togaðu heimilistækið upp í upprétta
stöðu.
9. Fjarlægðu rafmagnssnúruna og
útslönguna úr slönguhöldunum.
Mögulegt er að sjá vatn
renna úr
tæmingarslöngunni.
Þetta er vegna prófunar
heimilistækisins með
vatni í verksmiðjunni.
www.aeg.com6
10. Fjarlægðu boltana þrjá með
skrúflyklinum sem fylgir
heimilistækinu.
11. Togaðu plastpinnana út.
12. Settu plastlokin, sem finna má í poka
notandahandbókar, í götin.
Við mælum með að þú
geymir umbúðirnar og
flutningsboltana fyrir alla
flutninga með heimilistækið.
3.2 Staðsetning og
jafnvægisstilling
1. Settu heimilistækið upp á flötu og
hörðu gólfi.
Gakktu úr skugga um að
gólfteppi stöðvi ekki
loftflæðið undir
heimilistækinu.
Gakktu úr skugga um að
heimilistækið snerti ekki
veggi eða aðrar einingar.
2. Losaðu eða hertu fæturna til að gera
það lárétt.
AÐVÖRUN!
Ekki setja pappa, tré eða
viðlíka efni undir fætur
heimilistækisins til að gera
það lárétt.
x4
Heimilistækið þarf að vera rétt hallastillt
og stöðugt.
Rétt hæðarstilling
heimilistækisins kemur í veg
fyrir titrig, hávaða og
hreyfingu heimilistækisins
þegar það er í gangi.
3.3 Inntaksslangan
1. Tengdu vatnsinntaksslönguna við bak
heimilistækisins.
ÍSLENSKA
7
2. Staðsettu hana til vinstri eða hægri
eftir stöðu vatnskranans.
20
O
20
O
45
O
45
O
Gættu þess að
inntaksslangan sé ekki í
lóðréttri stöðu.
3. Ef nauðsyn krefur skal losa hringróna
til að stilla hana í rétta stöðu.
4. Tengdu vatnsinntaksslönguna við
kaldavatnskranann með 3/4"
skrúfgangi.
VARÚÐ!
Gakktu úr skugga um að ekki
leki frá tengjunum.
Ekki nota
framlengingarslöngu ef
inntaksslangan er of stutt.
Hafðu samband við
þjónustumiðstöð til að fá
nýja inntaksslöngu.
3.4 Lekavari
Þessi inntaksslanga er með lekavara.
Þessi búnaður kemur í veg fyrir vatnsleka
í slöngunni vegna eðlilegrar öldrunar.
Rauða svæðið í glugganum «A» sýnir
þessa bilun.
A
Ef þetta kemur upp skaltu skrúfa fyrir
kranann og hafa samband við
viðurkennda þjónustumiðstöð til að
endurnýja slönguna.
3.5 Frárennsli
Tæmingarslangan ætti að vera í ekki
minni hæð en 60 cm og ekki meiri en 100
cm.
Þú getur framlengt
tæmingarslönguna í að
hámarki 400 cm. Hafðu
samband við viðurkennda
þjónustumiðstöð til að fá
hina tæmingarslönguna og
framlenginguna.
Mögulegt er að tengja
tæmingarslönguna á mismunandi vegu:
1. Leggja tæmingarslönguna í U og
setja hana utan um slöngustatífið úr
plastinu.
2. Á vaskbrúnina - Festu statífið við
vatnskranann eða við vegginn.
Passaðu að plaststatífið geti
ekki hreyfst til á meðan
heimilistækið tæmir sig.
www.aeg.com8
Gakktu úr skugga um að
endi tæmislöngunnar sé ekki
á kafi í vatni. Þá kann óhreint
vatn að renna til baka inn í
heimilistækið.
3. Við frístandandi rör með loftgati
-
Settu tæmingarslönguna beint inn í
niðurfallsrörið. Sjá skýringarmyndina.
Það verður alltaf að leika loft
um endann á útslöngunni,
þ.e. innra þvermál
niðurfallsrörsins (lágm. 38
mm - lágm. 1,5") verður að
vera meira heldur en ytra
þvermál
tæmingarslöngunnar.
4. Ef endi tæmingarslöngunnar lítur
svona út (sjá myndina) getur þú þrýst
henni beint inn í frístandandi rörið.
5. Án plaststatífs slöngu, við
vaskkrana - Settu tæmingarslönguna
upp á kranann og hertu að með
klemmu. Sjá skýringarmyndina.
Gættu þess að lykkja sé á
tæmingarslöngunni til að
koma í veg fyrir að agnir úr
vaskinum komist inn í
heimilistækið.
6. Staðsettu slönguna beint við
innbyggt frárennslisrör í vegg
herbergisins og hertu með klemmu.
4.
VÖRULÝSING
4.1 Sérstakir eiginleikar
Nýja þvottavélin þín stenst allar nútíma
kröfur um skilvirka meðferð á þvotti með
lítilli notkun vatns, orku og þvottaefnis og
tilhlýðilegri virðingu fyrir umhirðu
fataefna.
ProSense-tæknin greinir stærð
þvottahleðslu og skilgreinir tímalengd
þvottakerfisins á 30 sekúndum.
Þvottakerfið er sérsniðið að
þvottahleðslunni og tegund fataefna
án þess að taka lengri tíma, orku og
vatn en nauðsynlegt er.
ÍSLENSKA 9
Gufan er hröð og auðveld leið til að
hressa upp á fötin. Mildu gufukerfin
fjarlægja lykt og draga úr krumpum í
þurrum fataefnum svo ekki er mikil
þörf á að strauja.
Viðbætt gufa-valkosturinn lýkur
hverri lotu með mildri gufu sem slakar
á þráðunum og dregur úr krumpum
efnisins. Auðveldara verður að strauja!
Þökk sé Mýkri þvottur-valkostinum
dreifist mýkingarefnið jafnt um
þvottinn og gengur djúpt inn í
efnisþræðina og styður fullkomna
mýkt.
4.2 Yfirlit yfir heimilistækið
1 2 3
9
5
6
7
4
10
8
11 12
1
Borðflötur
2
Þvottaefnisskammtari
3
Stjórnborð
4
Hurðarhandfang
5
Merkiplata
6
Tæmingardælusía
7
Fætur til að gera heimilistækið lárétt.
8
Tæmingarslanga
9
Tenging inntaksslöngu
10
Rafmagnssnúra
11
Flutningsboltar
12
Stuðningur slöngu
www.aeg.com10
5. STJÓRNBORÐ
5.1 Lýsing á stjórnborði
2
3
6
12 11 10 8
1
4
5
7
9
1
Þvottakerfisskífa
2
Skjár
3
Snertihnappur fyrir sparnað
(Orkusparnaður)
4
Snertihnappur fyrir tímasparnað
(Tímasparnaður)
5
Snertihnappur fyrir skolun (Skolun)
Valkosturinn Aukaskolun
(Aukaskolun)
Þvottastigi sleppt - aðeins
valkosturinn Skolun (Aðeins
skolun)
6
Snertihnappur fyrir Byrja/gera hlé
(Kveikt/Hlé)
7
Snertihnappur fyrir Bletti/forþvott
(Blettaþvottur/Forþvottur)
Valkosturinn Blettir (Blettaþvottur)
Valkosturinn Forþvottur
(Forþvottur)
8
Snertihnappur fyrir seinkaða ræsingu
(Tímaval)
9
Snertihnappur fyrir Steam Plus
(Viðbætt gufa)
10
Snertihnappur fyrir minnkaða
vindingu (Vinding)
Valkosturinn Halda skolvatni
Valkosturinn Mjög hljóðlátt
Þvotta- og skolunarstigum sleppt
- aðeins valkosturinn Vinding
(Aðeins vinding)
Þvotta-, skolunar- og
vindingarstigum sleppt - aðeins
valkosturinn Tæming (Aðeins
vatnslosun)
11
Snertihnappur fyrir hitastig (Hitastig)
12
Þrýstihnappur til að kveikja/slökkva
(Kveikt/Slökkt)
ÍSLENSKA
11
5.2 Skjár
Vísir fyrir hámarkshleðslu. Vísirinn leiftrar meðan á mati á þvottar-
hleðslu stendur (sjá efnisgreinina um ProSense-hleðslugreiningu).
Vísir fyrir þvottarhleðslu. Hann blikkar ef magn þvottar fer umfram skil-
greinda hleðslu.
Vísir fyrir læsta hurð.
Vísir fyrir seinkaða ræsingu.
Stafræni vísirinn getur sýnt:
Tímalengd þvottakerfis (t. d. ).
Seinkunartíma (t. d. eða ).
Lok lotu ( ).
Aðvörunarkóða (t.d. ).
Vísi fyrir þvottarstig. Hann leiftrar meðan á forþvottar- og þvottarstigi
stendur.
Vísir fyrir skolunarstig. Hann leiftrar meðan á skolunarstigi stendur.
Þegar Soft Plus valkosturinn er virkjaður birtist vísirinn .
Vísir fyrir vindingar- og tæmingarstig. Hann leiftrar meðan á vindingar-
og tæmingarstigi stendur.
Vísi fyrir gufustig.
Vísir fyrir krumpuvarnarstig.
Vísir fyrir barnalæsingu.
Orkusparnaðarvísar. -vísirinn birtist með því að velja kerfi fyrir bóm-
ull við 40°C eða 60°C.
Tímasparnaðarvísir.
www.aeg.com12
Vísir fyrir vindingarhraða.
Vísir fyrir Halda skolvatni.
Vísir fyrir Mjög hljótlátt.
Vísir fyrir hitastig. Vísirinn birtist þegar kaldþvottur er stilltur.
6. SKÍFA OG HNAPPAR
6.1 Kveikt/Slökkt
Ef ýtt er á þennan hnapp í nokkrar
sekúndur er hægt að kveikja eða slökkva
á heimilistækinu. Tvö mismunandi lög
hljóma á meðan verið er að kveikja eða
slökkva á heimilistækinu.
Þar sem Biðstöðuaðgerðin slekkur
sjálfkrafa á heimilistækinu til að draga úr
orkunotkun í sumum tilfellum kannt þú
að þurfa að kveikja á því aftur.
Til að fá frekari ítaratriði sjá efnisgreinina
um Biðstöðu í kaflanum Dagleg notkun.
6.2 Inngangur
Ekki er hægt að velja
valkostina/aðgerðirnar með
öllum þvottakerfum.
Athugaðu samhæfnina á
milli valkosta/aðgerða og
þvottakerfa í
„Þvottakerfistafla“.
Valkostur/aðgerð geta
útilokað hvort annað, í þessu
tilfelli leyfir heimilistækið þér
ekki að stilla ósamhæfa
valkosti/aðgerðir saman.
6.3 Hitastig
Þegar þú velur þvottakerfi leggur
heimilistækið sjálfkrafa til sjálfgefið
hitastig.
Snertu endurtekið þennan hnapp þar til
óskað hitagildi birtist á skjánum.
Þegar skjárinn sýnir vísana og
hitar heimilistækið ekki vatnið.
6.4 Vinding
Þegar þú stillir þvottakerfi stillir
heimilistækið sjálfkrafa hámarks
leyfilegan vindingarhraða.
Snertu þennan hnapp endurtekið til að:
Minnka vindingarhraðann.
Skjárinn sýnir aðeins þann
vindingarhraða sem er
tiltækur fyrir þvottakerfið
sem stillt er á.
Virkja valkostinn Halda skolvatni.
Lokavindingin er ekki framkvæmd.
Vatnið úr síðasta skoli er ekki tæmt út
til að koma í veg fyrir að þvottur
krumpist. Þvottakerfinu lýkur með vatn
í tromlunni.
Skjárinn sýnir vísinn . Hurðin helst
læst og tromlan snýst reglubundið til
að draga úr krumpum. Þú verður að
tæma vatnið af til að aflæsa hurðinni.
Ef þú snertir hnappinn Kveikt/Hlé
framkvæmir heimilstækið
vindingarstigið og tæmir af vatnið.
Heimilistækið tæmir út
vatnið sjálfvirkt eftir um
það bil 18 klukkustundir.
Virkja valkostinn Mjög hljóðlátt.
Milli- og lokavindingarstigin eru bæld
niður og þvottakerfið endar með vatn
í tromlunni. Þetta hjálpar til við að
draga úr krumpum.
Skjárinn sýnir vísinn
. Hurðin helst
læst. Tromlan snýst reglulega til að
draga úr krumpum. Þú verður að
tæma vatnið af til að aflæsa hurðinni.
Þar sem kerfið er mjög hljóðlátt
hentar það til notkunar að nóttu til
þegar hægt er að fá ódýrara rafmagn.
ÍSLENSKA
13
Í sumum kerfum eru skolanir
framkvæmdar með meira vatni.
Ef þú snertir Kveikt/Hlé-hnappinn
framkvæmir heimilistækið aðeins
tæmingarstigið.
Heimilistækið tæmir út
vatnið sjálfvirkt eftir um
það bil 18 klukkustundir.
Valkosturinn Aðeins vatnslosun
(Sleppir þvotta-, skol- og
vindingarstigunum) .
Heimilistækið framkvæmir aðeins
tæmingarstig valda þvottakerfisins.
Skjárinn sýnir vísinn (kalt) og
vísinn (engin vinding) og vísinn
.
Valkosturinn Aðeins vinding (Sleppir
þvotta- og skolstigunum) .
Heimilistækið framkvæmir aðeins
vindingarstig valda þvottakerfisins.
Skjárinn sýnir vísinn (kalt), vísinn
fyrir stig
og vísinn fyrir vindingu.
Ef nauðsynlegt er að
draga úr
vindingarhraðanum skal
velja kerfi með minni
vindingarhraða sem
sjálfgefið.
6.5 Blettaþvottur/Forþvottur
Ýttu endurtekið á þennan hnapp til að
virkja annan valkostinn.
Viðeigandi vísir kviknar á skjánum.
Blettaþvottur
Veldu þennan valkost til að bæta við
blettahreinsistigi við þvottakerfi til að
geta meðhöndlað mjög óhreinan eða
blettóttan þvott með blettaeyði.
Helltu blettaeyðinum í hólfið
.
Blettaeyðinum verður bætt við á
viðeigandi stigi í þvottakerfinu.
Þessi valkostur er ekki
tiltækur með hitastigi
lægra en 40°C.
Forþvottur
Notaðu þennan valkost til að bæta við
forþvottarstigi á 30°C fyrir
þvottastigið.
Mælt er með þessum valkosti fyrir
mjög óhreinan þvott, sérstaklega ef
hann inniheldur sand, ryk, leðju og
aðrar þéttar agnir.
Þessi valkostur getur aukið
lengd þvottakerfisins.
6.6 Viðbætt gufa
Þessi valkostur bætir gufustigi og síðan
stuttu krumpuvarnarstigi við í lok
þvottakerfis.
Gufustigið dregur úr krumpum í
fataefnum og auðveldar straujun þeirra.
Vísirinn leiftrar á skjánum meðan á
gufustiginu stendur.
Þessi valkostur getur aukið
lengd þvottakerfisins.
Þegar þvottakerfið stöðvast sýnir skjárinn
núll , vísirinn er logar stöðugur og
vísirinn byrjar að leiftra. Tromlan
framkvæmir mjúkar hreyfingar í um 30
mínútur til að halda gufuávinningnum.
Með því að snerta einhvern hnapp
stöðvast krumpuvarnarhreyfingin og
hurðin aflæsist.
Lítil magn af þvotti hjálpar til
við að ná betri árangri.
6.7 Tímaval
Með þessum valkosti getur þú seinkað
ræsingu þvottakerfis þar til þægilegri tími
gefst.
Snertu hnappinn endurtekið til að stilla
óskaða seinkun. Tíminn eykst í 30
mínútna skrefum upp í 90' og frá 2
klukkustundum upp í 20 klst.
Eftir að þú hefur snert Kveikt/Hlé-
hnappinn sýnir skjárinn vísinn og
valinn seinkunartíma og heimilistækið
byrjar niðurtalninguna.
6.8 Skolun
Með þessum hnappi getur þú valið einn
af eftirfarandi valkostum:
Valkosturinn Aukaskolun
www.aeg.com
14
Þessi valkostur bætir nokkrum
skolunum við í samræmi við valið
þvottakerfi.
Notaðu þennan valkost fyrir fólk sem
hefur ofnæmi fyrir þvottaefnisleifum
og á svæðum þar sem vatn er mjúkt.
Þessi valkostur eykur
örlítið við lengd
þvottakerfisins.
Þvottastigi sleppt - Aðeins skolun -
valkosturinn
Heimilistækið framkvæmir aðeins
skolunarstig, vindingar- og
tæmingarstig valda kerfisins.
Samsvarandi vísir kviknar fyrir ofan
snertihnappinn.
6.9 Tímasparnaður
Með þessum valkosti getur þú minnkað
tímalengd kerfis.
Ef þvotturinn þinn er með venjuleg
eða lítil óhreinindi kann að vera
ráðlegt að stytta þvottakerfið. Snertu
þennan hnapp einu sinni til að stytta
tímalengdina.
Ef um er að ræða minni hleðslu skal
snerta þennan hnapp tvisvar til að
stilla á mjög snöggt kerfi.
Skjárinn sýnir vísinn
.
Hægt er að nota þennan
valkost til að stytta
tímalengd Gufa-
þvottakerfisins.
6.10 Orkusparnaður
Stilltu þennan valkost fyrir lítið eða
venjulega óhreinar flíkur sem þvegnar
eru á 30°C eða hærri hita.
Heimilistækið lækkar þvottahitastigið og
framlengir þvottatímann til að ná góðri
þvottaskilvirkni með því að spara orku.
Skjárinn sýnir vísinn
.
Ef þú velur bómullarkerfið á
40°C eða 60°C og engir aðrir
valkostir eru stilltir sýnir
skjárinn vísinn ;
þetta eru venjuleg
bómullarkerfi, skilvirkustu
kerfin hvað varðar
sameinaða orku- og
vatnsnotkun.
6.11 Kveikt/Hlé
Snertu Kveikt/Hlé-hnappinn til að byrja,
gera hlé á heimilistækinu, eða rjúfa kerfi í
gangi.
7.
KERFI
7.1 Tafla yfir kerfi
Þvottakerfi
Kerfi Lýsing á kerfi
Þvottakerfi
ÍSLENSKA 15
Kerfi Lýsing á kerfi
Aðalþvottur
Hvít bómull og lituð bómull. Venjuleg óhreinindi og lítil
óhreinindi.
Stöðluð kerfi fyrir Energy Label orkuneyslutölur. Samkvæmt
reglugerð 1061/2010 eru þvottakerfið Aðalþvottur við 60°C og
þvottakerfið Aðalþvottur við 40 °C með valkostinum
«Staðlað 60°C bómullarþvottkerfi» og «Staðlað 40°C bómullar-
þvottakerfi» hvort um sig. Þau eru skilvirkustu kerfin hvað varð-
ar samsetningu orkunotkunar og vatnsnotkunar til að þvo ven-
julega óhreinan bómullarþvott.
Vatnshitastig þvottastigsins getur verið frá-
brugðið skráðu hitastigi fyrir valið kerfi.
Straufrítt
Fatnaður úr gerviefnum eða blönduðum efnum. Venjuleg
óhreinindi.
Viðkvæmt
Viðkvæm efni eins og akrýl, viskós og blönduð efni sem út-
heimta mildan þvott. Venjuleg óhreinindi.
Ull/Silki
Ull sem þvo má í vél, ull sem þvo má í höndunum og önnur
efni með þvottatákninu «handþvottur».
1)
.
Gufukerfi
Gufa
Gufukerfi fyrir fatnað úr bómull og gerviefnum.Hægt er að
nota gufukerfi fyrir þurrkun
2)
, þveginn þvottur eða farið einu
sinni í. Þetta kerfi dregur úr krumpum og lykt
3)
og slakar á
þráðunum. Þegar kerfið klárast skaltu fjarlægja þvottinn fljótt úr
tromlunni. Eftir gufukerfi verður straujun átakalaus. Ekki nota
neitt þvottaefni. Ef nauðsyn krefur skaltu fjarlægt bletti með því
að þvo þvottinn eða nota blettahreinsi beint á blettina. Gufu-
kerfi framkvæma ekki neina þrifalotu. Ekki nota kerfið Gufa fyrir
þessar gerðir þvottar:
Flíkur sem ekki henta fyrir þurrkun í þurrkara.
Allar flíkur sem á eru hlutir úr plasti, málmi, tré og svipuðum
efnum.
Þvottakerfi
Ofnæmisvörn
Hvítur bómullarþvottur. Þetta kerfi fjarlægir örverur, þökk sé
þvottastigi þar sem hitastigi er haldið hærra en 60°C í nokkrar
mínútur. Það hjálpar til við að fjarlægja sýkla, gerla, örverur og
agnir. Viðbótarskolunarstig tryggir rétt brottnám þvottaefnis-
leifa og frjókorna/ofnæmisvaldandi hluta. Þá verður þvotturinn
skilvirkari.
20 mín. - 3 kg
Flíkur úr bómull og gerviefnum lítið óhreinar eða einu sinni
farið í.
www.aeg.com16
Kerfi Lýsing á kerfi
Útivistarklæði
Ekki skal nota mýkingarefni og gakktu úr
skugga um að það séu engar mýkingarefnis-
leifar í þvottaefnisskammtaranum.
Útivistarfatnaður, tækniföt, íþróttafatnaður, vatnsheldir
jakkar sem anda, skeljarjakkar með lausu flísfóðri eða innri
einangrun. Ráðlögð þvottahleðsla er 2.5 kg.
Einnig er hægt að nota þetta þvottakerfi sem lotu til að endur-
glæða vatnsfráhrindingu, sérstaklega sniðna til að meðhöndla
fatnað með vatnshrindandi húð. Til að framkvæma endurglæð-
ingarlotu vatnsfráhrindingar skal gera sem hér segir:
Helltu þvottaefninu í hólfið .
Helltu sérstöku efni til að endurreisa vatnsfráhrindingu fyrir
fataefni í skúffuhólfið fyrir mýkingarefni
.
Minnkaðu magnið af þvottinum niður í 1 kg.
Til að bæta enn frekar endurglæðingaraðgerð
vatnsfráhrindingar skal þurrka þvottinn í þurrk-
ara með því að stilla þurrkkerfið Útivistarklæði
(ef það er til staðar og ef þvottamiði flíkurinnar
leyfir þurrkun í þurrkara).
Vatt-teppi
Ein ábreiða úr gerviefni, fóðraður fatnaður, sængur, dún-
jakkar og svipaðir hlutir.
Gallabuxur
Föt úr gallaefni og peysur. Venjuleg óhreinindi. Þetta þvotta-
kerfi framkvæmir milt skolunarstig, hannað fyrir gallaefni, sem
dregur úr upplitun og kemur í veg fyrir þvottaduftsleifar í þráð-
unum.
1)
Meðan á þessari lotu stendur snýst tromlan hægt til að tryggja varfærinn þvott. Það kann að líta út eins
og tromlan snúist ekki eða snúist ekki rétt, en þetta er eðlilegt fyrir kerfið
2)
Ef þú stillir á Gufukerfi fyrir þvott sem hefur verið þurrkaður getur þvotturinn verið rakur viðkomu að
þvotti loknum. Hengdu flíkurnar á snúru í um 10 mínútur.
3)
Gufukerfi fjarlægir ekki sérstaklega sterka lykt.
Hitastig þvottakerfis, hámarksvindingarhraði og hámarkshleðsla
Kerfi Sjálfgefið hita-
stig
Hitasvið
Hámarksvindingar-
hraði
Hraðasvið vindingar
Hámarkshleðsla
Þvottakerfi
Aðalþvottur
40°C
95°C - Kalt
1400 s/mín.
1400 s/mín. - 400 s/
mín.
8 kg
Straufrítt
40°C
60°C - Kalt
1200 s/mín.
1200 s/mín. - 400 s/
mín.
3 kg
ÍSLENSKA 17
Kerfi Sjálfgefið hita-
stig
Hitasvið
Hámarksvindingar-
hraði
Hraðasvið vindingar
Hámarkshleðsla
Viðkvæmt
40°C
40°C - Kalt
1200 s/mín.
1200 s/mín. - 400 s/
mín.
3 kg
Ull/Silki
40°C
40°C - Kalt
1200 s/mín.
1200 s/mín. - 400 s/
mín.
1.5 kg
Gufukerfi
Gufa
- - 1.5 kg
Þvottakerfi
Ofnæmisvörn
60°C
1400 s/mín.
1400 s/mín. - 400 s/
mín.
8 kg
20 mín. - 3 kg
30°C
40°C - 30°C
1200 s/mín.
1200 s/mín. - 400 s/
mín.
3 kg
Útivistarklæði
30°C
40°C - Kalt
1200 s/mín.
1200 s/mín. - 400 s/
mín.
2.5 kg
1)
1 kg
2)
Vatt-teppi
40°C
60°C - 30°C
800 s/mín.
800 s/mín. - 400 s/mín.
2.5 kg
Gallabuxur
40°C
60°C - Kalt
1200 s/mín.
1200 s/mín. - 400 s/
mín.
8 kg
1)
Þvottakerfi.
2)
Þvottakerfi og vatnsheldnistig.
Samhæfni kerfisvalkosta
Aðalþvottur
Straufrítt
Viðkvæmt
Ull/Silki
Gufa
Ofnæmisvörn
20 mín. - 3 kg
Útivistarklæði
Vatt-teppi
Gallabuxur
Vinding
www.aeg.com18
Aðalþvottur
Straufrítt
Viðkvæmt
Ull/Silki
Gufa
Ofnæmisvörn
20 mín. - 3 kg
Útivistarklæði
Vatt-teppi
Gallabuxur
Halda skolvatni
Mjög hljóðlátt
Aðeins vatnslosun
Aðeins vinding
Blettaþvottur
1)
Forþvottur
Aukaskolun
Aðeins skolun
2)
Tímasparnaður
3)
Tímaval
Viðbætt gufa
1)
Mýkri þvottur
1)
Þessi valkostur er ekki tiltækur með hitastigi lægra en 40°C.
2)
Þessi valkostur er ekki tiltækur með hitastigi lægra en 30°C.
3)
Ef þú stillir á styttstu tímalengd mælum við með að þú minnkir hleðsluna. Mögulegt er að fylla heimilis-
tækið af þvotti, hins vegar verður þvottaárangurinn ekki eins ánægjulegur.
7.2 Woolmark Apparel Care -
Blue
Ullarþvottakerfið í þessari vél hefur verið
samþykkt af The Woolmark Company
fyrir þvott á ullarflíkum sem merktar eru
«handþvottur» að því tilskyldu að
flíkurnar séu þvegnar í samræmi við
leiðbeiningarnar sem framleiðandi
þessarar þvottavélar gefur út. Fylgdu
þvottamiðanum varðandi þurrkun og
aðrar þvottaleiðbeiningar. M1623
Í Bretlandi, á Írlandi, í Hong Kong og á
Indlandi er Woolmark-táknið vottað
vörumerki.
ÍSLENSKA 19
8. STILLINGAR
8.1 Barnalæsing
Með þessum valkosti getur þú komið í
veg fyrir að börnin leiki sér með
stjórnborðið.
Til að virkja/afvirkja þennan valkost
skaltu snerta hnappana Blettaþvottur /
Forþvottur og Vinding samtímis þar til
vísirinn kviknar/slokknar á
skjánum.
Þú getur virkjað þennan valkost:
Eftir að þú snertir Kveikt/Hlé-
hnappinn: Allir hnappar og
kerfisskífan eru afvirkjuð (nema Kveikt/
Slökkt-hnappurinn).
Áður en þú snertir Kveikt/Hlé-
hnappinn: Ekki er hægt að ræsa
heimilistækið.
Heimilistækið heldur vali þessa valkosts
eftir að þú slekkur á því.
8.2 Hljóðmerki
Þetta heimilistæki er búið mismunandi
hljóðmerkjum sem fara í gang þegar:
Þú kveikir á heimilistækinu (sérstakt
stutt lag).
Þú slekkur á heimilistækinu (sérstakt
stutt lag).
Þú snertir hnappana (smellur).
Þú velur rangt (3 stutt hljóð).
Kerfinu er lokið (röð af hljóðum í um 2
mínútur).
Bilun er í heimilistækinu (röð af
stuttum hljóðum í um 5 mínútur).
Til að slökkva/kveikja á hljóðmerkjunum
þegar þvottakerfinu er lokið skaltu snerta
hnappana Blettaþvottur / Forþvottur og
Tímaval samtímis í um 6 sekúndur.
Ef þú afvirkjar hljóðmerkin
halda þau áfram að ganga
þegar heimilistækið er bilað.
8.3 Varanleg viðbótarskolun
Með þessum valkosti getur þú varanlega
verið með viðbótarskolun þegar þú stillir
nýtt kerfi.
Til að virkja/afvirkja þennan valkost
skaltu snerta hnappana Skolun og
Blettaþvottur / Forþvottur samtímis
þar til vísirinn fyrir hnappinn
Aukaskolun kviknar/slokknar.
8.4 Mýkri þvottur
Stilltu valkostinn Mýkri þvottur til að
hámarka dreifingu mýkingarefnisins og
bæta mýkt fataefnanna.
Stungið er upp á þessu þegar þú notar
mýkingarefnið.
Þessi valkostur eykur örlítið
við lengd þvottakerfisins.
Til að virkja/afvirkja þennan valkost
skaltu snerta hnappana Hitastig og
Vinding samtímis þar til vísirinn
kviknar/slokknar fyrir ofan vísinn .
9.
FYRIR FYRSTU NOTKUN
1. Gakktu úr skugga um að allir
flutningsboltar hafi verið teknir úr
heimilistækinu.
2. Gakktu úr skugga um að rafmagn sé
til staðar og að vatnskraninn sé
opinn.
3. Helltu 2 lítrum af vatni í
þvottaefnishólfið sem merkt er með
.
Þessi aðgerð virkjar tæmingarkerfið.
4. Helltu litlu magni af þvottaefni í
hólfið sem merkt er með .
5. Stilltu á og ræstu kerfi fyrir bómull á
hæsta hita með engan þvott í
tromlunni.
Það fjarlægir öll hugsanleg óhreinindi úr
tromlunni og belgnum.
www.aeg.com20
  • Page 1 1
  • Page 2 2
  • Page 3 3
  • Page 4 4
  • Page 5 5
  • Page 6 6
  • Page 7 7
  • Page 8 8
  • Page 9 9
  • Page 10 10
  • Page 11 11
  • Page 12 12
  • Page 13 13
  • Page 14 14
  • Page 15 15
  • Page 16 16
  • Page 17 17
  • Page 18 18
  • Page 19 19
  • Page 20 20
  • Page 21 21
  • Page 22 22
  • Page 23 23
  • Page 24 24
  • Page 25 25
  • Page 26 26
  • Page 27 27
  • Page 28 28
  • Page 29 29
  • Page 30 30
  • Page 31 31
  • Page 32 32
  • Page 33 33
  • Page 34 34
  • Page 35 35
  • Page 36 36
  • Page 37 37
  • Page 38 38
  • Page 39 39
  • Page 40 40

AEG L7FBE840E Používateľská príručka

Typ
Používateľská príručka

V iných jazykoch