AEG L75470FL Používateľská príručka

Typ
Používateľská príručka

Táto príručka je tiež vhodná pre

L 75470 FL
L 75670 FL
IS Notendaleiðbeiningar
EFNISYFIRLIT
1. ÖRYGGISUPPLÝSINGAR . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 3
2. ÖRYGGISLEIÐBEININGAR . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 4
3. TÆKNILEGAR UPPLÝSINGAR . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 5
4. VÖRULÝSING . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 6
5. STJÓRNBORÐ . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 7
6. ÞVOTTASTILLINGAR . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 10
7. UPPLÝSINGAR UM ORKUNEYSLU . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 13
8. FYRIR FYRSTU NOTKUN . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 14
9. NOTKUN HEIMILISTÆKISINS . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 14
10. GÓÐ RÁÐ . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 18
11. MEÐFERÐ OG ÞRIF . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 19
12. BILANALEIT . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 23
13. INNSETNING . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 26
SVO AÐ VARAN NÝTIST ÞÉR SEM BEST
Takk fyrir að velja þessa vöru frá AEG. Hún var hönnuð til þess að starfa óaðfinnanlega í fjölda
ára, með nýjustu tækni sem léttir þér lífið – tæknieiginleikum sem þú finnur ef til vill ekki í
venjulegum heimilistækjum. Vinsamlegast taktu þér nokkrar mínútur í að lesa þessar
upplýsingar svo að þú fáir sem mest út úr vörunni.
Heimsæktu vefsíðu okkar á slóðinni:
Fáðu leiðbeiningar um notkun, bæklinga, svör við vandamálum og
þjónustuupplýsingar.
www.aeg.com
Skráðu vöru þína til að fá enn betri þjónustu:
www.aeg.com/productregistration
Keyptu aukahluti, íhluti og upprunalega varahluti fyrir heimilistæki þitt:
www.aeg.com/shop
AÐSTOÐ OG ÞJÓNUSTA VIÐ VIÐSKIPTAVINI
Við mælum með notkun upprunalegra varahluta.
Þegar þú hefur samband við þjónustuaðila okkar, gættu þess að hafa eftirfarandi upplýsingar á
reiðum höndum.
Upplýsingarnar eru til staðar á stigaplötu tækisins. Árgerð, framleiðslukóti (PNC), Raðnúmer.
Viðvörun/Varúðar- og öryggisupplýsingar
Almennar upplýsingar og ábendingar
Umhverfisupplýsingar
Með fyrirvara á breytingum.
2
www.aeg.com
1. ÖRYGGISUPPLÝSINGAR
Fyrir uppsetningu tækisins og notkun þess, skal lesa
meðfylgjandi leiðbeiningar vandlega. Framleiðandinn er
ekki ábyrgur fyrir tjóni ef röng uppsetning eða notkun
veldur líkamstjóni eða skemmdum. Alltaf skal geyma
leiðbeiningarnar með heimilistækinu til síðari notkunar.
1.1 Öryggi barna og viðkvæmra einstaklinga
AÐVÖRUN
Hætta á köfnun, líkamstjóni eða varanlegri örorku.
Börn, 8 ára og eldri og fólk með minnkaða líkamlega-,
skyn- eða andlega getu, eða sem skortir reynslu og
þekkingu, mega nota þetta tæki, ef þeim hafa verið
veittar leiðbeiningar varðandi örugga notkun tækisins
og ef þau skilja hættuna sem því fylgir.
Leyfið ekki börnum að leika sér með heimilistækið.
Haldið öllum umbúðum frá börnum.
Haldið öllum þvottaefnum frá börnum.
Haldið börnum og gæludýrum frá hurðinni á heimilis-
tækinu þegar hún er opin.
Ef heimilistækið er með barnalæsingu er mælt með
því að þú setjir hana á.
Börn mega ekki annast þrif og viðhald á heimilistæk-
inu án eftirlits.
1.2 Almennt öryggi
Áður en viðhald fer fram á tækinu skal slökkva á því
og aftengja aðalklóna frá rafmagnsinnstungunni.
Ekki skal breyta sérstökum eiginleikum þessa tækis.
Fylgja skal leiðbeiningum um hámarksrúmmál hleðslu
upp á 7 kg (sjá “Þvottakerfis línurit” kaflann).
Ef rafmagnssnúran er skemmd, verður að fá nýja frá
framleiðanda, þjónustuaðila hans eða svipuðum hæf-
um aðila til þess að koma í veg fyrir hættu.
ÍSLENSKA 3
Starfandi vatnsþrýstingur (lágmarks og hámarks) verð-
ur að vera á milli 0,5 bör (0,05 MPa) og 8 bör (0,8 MPa)
Lofttúðurnar undir tækinu (ef við á) mega ekki vera
lokaðar vegna teppis.
Heimilistækið skal tengja við vatn með nýju slöngun-
um sem fylgja með því. Ekki skal endurnýta gamlar
slöngur.
2.
ÖRYGGISLEIÐBEININGAR
2.1 Uppsetning
Fjarlægið umbúðirnar og flutnings-
boltana.
Geymið flutningsboltana. Þegar þú
hreyfir heimilistækið aftur verður þú að
koma í veg fyrir að tromlan hreyfist.
Ekki setja upp eða nota skemmt heim-
ilistæki.
Ekki setja upp eða nota heimilistæki
þar sem hitastigið er undir frostmarki
(minna en 0 °C) eða þar sem tækið er
útsett fyrir veðri og vindum.
Fylgja skal uppsetningarleiðbeiningum
sem fylgja með tækinu.
Gætið þess að gólfið þar sem tækið er
sett upp sé slétt, stöðugt, hitaþolið og
hreint.
Ekki setja upp heimilistækið þar sem
ekki er hægt að opna tækið að fullu.
Farðu alltaf varlega þegar þú hreyfir
tækið af því að það er þungt. Alltaf
skal nota öryggisgleraugu.
Gættu þess að það sé gott loftflæði á
milli heimilistækisins og gólfsins.
Stillið fæturna af svo að nauðsynlegt
bil sé á milli heimilistækisins og teppi-
sins.
Rafmagnstenging
AÐVÖRUN
Eldhætta og hætta á raflosti.
Heimilistækið þarf að vera jarðtengt.
Gætið þess að rafmagnsupplýsingarn-
ar á tegundarspjaldinu passi við af-
lgjafann. Ef ekki, skal hafa samband
við rafvirkja.
Alltaf nota rétt uppsetta innstungu
sem gefur ekki raflost.
Ekki nota fjöltengi eða framlengingar-
snúrur.
Gætið þess að rafmagnsklóin og snúr-
an verði ekki fyrir skemmdum. Ef
skipta þarf um rafmagnssnúru verður
þjónustuver okkar að sjá um það.
Aðeins skal tengja rafmagnsklóna við
rafmagnsinnstunguna í lok uppsetn-
ingarinnar. Gætið þess að rafmagns-
klóin sé aðgengileg eftir uppsetningu.
Ekki toga í rafmagnssnúruna til að taka
heimilistækið úr sambandi. Togið alltaf
í rafmagnsklóna.
Ekki snerta rafmagnssnúruna eða raf-
magnsklóna með blautum höndum.
Þetta heimilistæki samræmist EBE-til-
skipunum.
Tenging við vatn
Passið að vatnsslöngurnar verði ekki
fyrir skemmdum.
Heimilistækið skal tengja við vatn með
nýju slöngunum sem fylgja með því.
Ekki skal endurnýta gamlar slöngur.
Áður en heimilistækið er tengt við ný-
jar pípur eða pípur sem hafa ekki verið
notaðar í langan tíma, skal láta vatnið
renna þangað til það er hreint.
Í fyrsta skipti sem heimilistækið er not-
að, skal tryggja að enginn leki eigi sér
stað.
4
www.aeg.com
2.2 Notkun
AÐVÖRUN
Hætta á líkamstjóni, raflosti, eldi,
brunasárum eða því að heimilis-
tækið skemmist.
Nota skal þetta heimilistæki innan
heimilisins.
Ekki skal breyta sérstökum eiginleikum
þessa tækis.
Farið eftir öryggisleiðbeiningunum á
umbúðum þvottaefnisins.
Ekki skal setja eldfimar vörur eða hluti
sem eru blautir af eldfimum vökva á,
eða nálægt heimilistækinu.
Ekki snerta glerið í hurðinni á meðan
þvottaferill er í gangi. Glerið getur ver-
ið heitt.
Gætið þess að fjarlægja alla málmhluti
úr þvottinum.
Ekki skal setja ílát til að safna hugsan-
legum vatnsleka undir tækið. Hafið
samband við þjónustu til að fá upplýs-
ingar um hvaða aukahluti má nota.
2.3 Meðferð og þrif
AÐVÖRUN
Hætta á líkamstjóni eða því að
heimilistækið skemmist.
Áður en viðhald fer fram á tækinu skal
slökkva á því og aftengja aðalklóna frá
rafmagnsinnstungunni.
Ekki nota vatnsúða og gufu til að
hreinsa heimilistækið.
Þvoið heimilistækið með rökum og
mjúkum klút. Notið aðeins mild
þvottaefni. Ekki nota rispandi efni, stál-
ull, leysiefni eða málmhluti.
2.4 Förgun
AÐVÖRUN
Hætta á líkamstjóni eða köfnun.
Aftengið heimilistækið frá rafmagns-
gjafanum.
Klippa rafmagnssnúruna af og fleygið
henni.
Fjarlægið dyraklemmuna til að koma í
veg fyrir að börn eða dýr geti lokast
inni í tækinu.
3. TÆKNILEGAR UPPLÝSINGAR
Mál Breidd / Hæð / Dýpt 600 / 850 / 605 mm
Dýpt alls 640 mm
Tenging við rafmagn: Spenna
Heildarafl
Öryggi
Tíðni
230 V
2200 W
10 A
50 Hz
Hlífðarplatan utan um tryggir einhverja vörn gegn
föstum ögnum og raka, nema þar sem lágspennu-
búnaðurinn er ekki rakavarinn
IPX4
Vatnsþrýstingur Lágmark 0,5 bör (0,05 MPa)
Hámark 8 bör (0,8 MPa)
Vatnsaðföng
1)
Kalt vatn
Hámarksmagn þvottar Bómull 7 kg
ÍSLENSKA 5
Vinduhraði Hámark 1400 snúningar á mínútu
(L 75470 FL)
1600 snúningar á mínútu
(L 75670 FL)
1)
Tengið innslönguna við krana með 3/4” skrúfgangi.
4. VÖRULÝSING
1 2 3 8
9
5
6
7
4
1
0
1
1
1
2
1
Borðflötur
2
Þvottaefnishólf
3
Stjórnborð
4
Hurðarhandfang
5
Tegundarspjald
6
Tæmingardæla
7
Fætur til að stilla hæð og halla
heimilistækisins
8
Útslanga
9
Vatnsinntaksloki
10
Rafmagnssnúra
11
Flutningsboltar
12
Fætur til að stilla hæð og halla
heimilistækisins
4.1 Fylgihlutir
1 2
34
1
Skrúflykill
Til að taka flutningsboltana úr.
2
Plasthettur
Til að loka götunum aftan á húsinu
eftir að flutningsboltarnir eru teknir
úr.
3
Innslanga með flæðivörn
Til að hindra mögulegan leka
4
Statíf fyrir plastslöngu
Til að tengja útslönguna á vaskbrún.
6
www.aeg.com
4.2 Barnalæsing
Þegar barnalæsingin er á er ekki hægt
að loka hurðinni. Það kemur í veg fyrir
að börn eða gæludýr geti lokast inni
tromlunni. Barnalæsingin er sett á með
því að snúa henni réttsælis þar til
grópin er lárétt. Barnalæsingin er tekin
af með því að snúa henni rangsælis
þar til grópin er lóðrétt.
5. STJÓRNBORÐ
Aðalþvottur
+ forþvottur
+ Forþvottur
Aðalþvottur
hljóðlátt
Straufrítt
Straufrítt
Straulétt
Viðkvæmt
Ull/Silki
ruðanrapsukrO
g
k 3 - tlaK
gk 3 - ním 02
ruxuballaG
aukaskolun
runídraG
nu
l
o
k
S
/g
n
idniV
nu
so
lsn
t
aV
Kveikt/Slökkt
gitsa
t
iH
gn
idn
i
V
é
l
H
/tki
e
v
K
-attel
B
ruttovþ
l
a
v
a
m
í
T
Tíma-
ruðanra
p
s
Auka-
skolun
Flýtikerfi með
Orkusparnaður
og
1 2 3
45678910
1
Kveikt/Slökkt-hnappur
2
Kerfishnappur
3
Skjár
4
Kveikt/Hlé-hnappur
5
Tímaval-hnappur
6
Tímasparnaður-hnappur
7
Aukaskolun-hnappur
8
Blettaþvottur-hnappur
9
Vinding-hnappur
10
Hitastig-hnappur
5.1 Kveikt/slökkt-hnappur
1
Ýtið á þennan hnapp til að kveikja eða
slökkva á heimilistækinu. Þegar kviknar á
heimilistækinu hljómar lítið lag.
Aukavalið AUTO Stand-by slekkur sjálf-
krafa á heimilistækinu til að draga úr
orkunotkun þegar:
Heimilistækið er ekki notað í 5 mínútur
án þess að ýtt sé á hnapp
4
.
Allar stillingar eru þá afturkallaðar.
ÍSLENSKA 7
Ýtið á hnapp
1
til að kveikja aftur á
heimilistækinu.
Stillið aftur á þvottaferil og alla
mögulega valkosti.
5 mínútum eftir að þvottaferli lýkur.
Sjá ,,Við lok þvottaferils".
5.2 Kerfishnappur
2
Snúið þessum hnappi til að stilla á
þvottaferil. Þá kviknar á vísinum tengdum
þeim þvottaferli.
5.3 Skjár
3
A B C D
Skjárinn sýnir:
A Hámarkshitastig þvottaferilsins.
B Sjálfgefinn vinduhraði þvottaferilsins.
,,Engin þeytivinding"
1)
og ,,Halda skolvatni"-táknin.
C
Skjátáknin.
2)
Tákn Lýsing
Þvottur
Skolanir
Þeytivinding
Barnalæsing
Ekki er hægt að opna hurð heimilistækisins þegar kveikt er
á þessu tákni.
Ekki er hægt að opna hurðina fyrr en það slökknar á tákn-
inu.
Ef þvottaferlinum er lokið og táknið helst áfram kveikt:
Það er vatn í tromlunni.
Stillt er á aukavalið ,,Halda skolvatni".
Tímaval
8
www.aeg.com
D Tími þvottaferilsins
Þegar þvottaferillinn fer í gang styttist tíminn í 1 mínútu skrefum.
•Tímaval
Þegar ýtt er á hnappinn tímaval sýnir skjárinn tíma tímavalsins.
Aðvörunarkóðar
Ef heimilistækið bilar sýnir skjárinn aðvörunarkóða. Sjá kaflann ,,Bilana-
leit".
Villa
Skjárinn sýnir þessi skilaboð í nokkrar sekúndur ef:
Stillt er á aukaval sem er ekki viðeigandi fyrir þvottaferilinn.
Þvottaferli er breytt á meðan hann er í gangi.
Vísir Kveikt/hlé-hnappsins
4
blikkar.
Þegar þvottaferillinn hefur klárast.
1)
Aðeins tiltækt á Vinding/tæming-stillingu.
2)
Táknin birtast á skjánum þegar stillt hefur verið á viðkomandi þvottastig eða aukaval.
5.4 Byrja/Hlé-hnappur
4
Ýtið á hnapp
4
til að hefja eða stöðva
þvottaferil.
5.5 Tímavalshnappur
5
Ýtið á hnapp
5
til að seinka upphafi
þvottaferils frá 30 mínútum upp í 20
klukkustundir.
5.6 Tímasparnaðarhnappur
6
Ýtið á hnappinn
6
til að auka tímalengd
þvottaferilsins.
Ýtið einu sinni á hnappinn til að stilla
á ,,Flýtikerfi" fyrir daglegan þvott.
Ýtið tvisvar til að stilla á ,,Mjög stutt"
fyrir þvott sem er næstum ekkert
óhreinn.
Sumir þvottaferlar leyfa aðeins
annan af þessu tveimur aukaval-
kostum.
5.7 Aukaskolunarhnappur
7
Ýtið á hnapp
7
til að bæta fleiri skolun-
um við þvottaferil.
Notið þessa stillingu fyrir fólk sem hefur
ofnæmi fyrir þvottaefnum og á svæðum
þar sem vatn er mjúkt.
5.8 Blettir-hnappur
8
Ýtið á hnapp
8
til að bæta blettaeyð-
ingarstigi við þvottaferil.
Notið þessa stillingu fyrir þvott með
blettum sem erfitt er að eyða.
Þegar þetta aukaval er valið seturðu
blettaeyðinn í hólfið
.
Þetta aukaval lengir þvottatí-
mann.
Þetta aukaval er ekki tiltækt á
lægri hita en 40° C.
5.9 Vinding-hnappur
9
Ýtið á þennan hnapp til að:
Minnka hámarkshraða þeytivindunnar í
þvottaferlinum sem stillt er á.
Skjárinn sýnir aðeins þann vindu-
hraða sem er tiltækur fyrir þvotta-
ferilinn sem stillt er á.
Slökkvið á þeytivindingu.
Stillið á aukavalið ,,Halda skolvatni".
Stillið á þetta aukaval til að hindra að
efni krumpist. Heimilistækið tæmir þá
ekki vélina af vatni þegar þvottaferlin-
um lýkur.
Slökkt er á þeytivind-
ingu.
Stillt er á ,,Halda skol-
vatni".
ÍSLENSKA 9
5.10 Hitastigshnappur
10
Ýtið á hnappinn
10
til að breyta sjálf-
gefna hitastiginu.
- - = kalt vatn
5.11 Aukastillingin hljóðmerki
Hljóðmerki heyrast þegar:
Þú kveikir á heimilistækinu.
Þú slekkur á heimilistækinu.
Þú ýtir á hnappana.
Þvottaferli er lokið.
Heimilistækið er bilað.
Slökkt/kveikt er á hljóðmerkjunum með
því að halda niðri hnappnum
8
og
hnappnum
7
samtímis í 6 sekúndur.
Ef slökkt er á hljóðmerkjunum
heyrast þau aðeins ef ýtt er á
hnappana eða heimilistækið bil-
ar.
5.12 Aukavalið barnalæsing
Þetta aukaval kemur í veg fyrir að börn
leiki sér að stjórnborðinu.
Kveikt er á þessu aukavali með því að
ýta á hnapp
10
og hnapp
9
samtímis
þar til skjárinn sýnir táknið
.
Slökkt er á þessu aukavali með því að
ýta á hnapp
10
og hnapp
9
samtímis
þar til slökknar á tákninu
.
Hægt er kveikja á aukavalinu:
Áður en ýtt er á Kveikt/hlé-hnappinn
4
: þá getur heimilistækið ekki farið í
gang.
Eftir að ýtt er á Start/Hlé-hnappinn
4
- allir hnappar og kerfishnappurinn
verða þá óvirk.
5.13 Föst aukaskolun sem
aukaval
Með þessu aukavali er hægt að hafa
aukavalið aukaskolun alltaf á þegar stillt
er á nýjan þvottaferil.
Kveikt er á þessu aukavali með því að
ýta á hnapp
6
og hnapp
5
samtímis
þar til kviknar á vísinum fyrir hnapp
7
.
Slökkt er á þessu aukavali með því að
ýta á hnapp
6
og hnapp
5
samtímis
þar til slökknar á vísinum fyrir hnapp
7
.
6. ÞVOTTASTILLINGAR
Þvottaferill
Hitastig
Gerð þvottar
hám. þyngd þvott-
ar
Ferill
lýsing
Aukaval
Aðalþvottur
95° - Kalt
Hvít og lituð bómull,
venjuleg óhreinindi.
hám. 7 kg
Þvottur
Skolar
Löng þeytivinding
VINDING
HALDA SKOL-
VATNI
BLETTIR
AUKASKOLUN
TÍMASPARNAÐ-
UR
1)
10
www.aeg.com
Þvottaferill
Hitastig
Gerð þvottar
hám. þyngd þvott-
ar
Ferill
lýsing
Aukaval
Aðalþvottur +
Forþvottur
95° - Kalt
Hvít og lituð bómull,
mikil óhreinindi.
hám. 7 kg
Forþvottur
Þvottur
Skolar
Löng þeytivinding
VINDING
HALDA SKOL-
VATNI
BLETTIR
AUKASKOLUN
TÍMASPARNAÐ-
UR
1)
Aðalþvottur
hljóðlátt
95° - Kalt
Hvít og lituð bómull,
venjuleg óhreinindi.
hám. 7 kg
Stöðvast með
vatn í tromlunni
Skolar
Löng þeytivinding
BLETTIR
AUKASKOLUN
TÍMASPARNAÐ-
UR
1)
Straufrítt
60° - Kalt
Gerviefni eða ger-
viefnablöndur, ven-
juleg óhreinindi.
hám. 3.5 kg
Þvottur
Skolar
Stutt þeytivinding
VINDING
HALDA SKOL-
VATNI
BLETTIR
AUKASKOLUN
TÍMASPARNAÐ-
UR
1)
Straufrítt +
Forþvottur
60° - Kalt
Gerviefni eða
blönduð efni, mikil
óhreinindi.
hám. 3.5 kg
Forþvottur
Þvottur
Skolar
Stutt þeytivinding
VINDING
HALDA SKOL-
VATNI
BLETTIR
AUKASKOLUN
TÍMASPARNAÐ-
UR
1)
Straulétt
2)
60° - Kalt
Gerviefni, venjuleg
óhreinindi.
hám. 3.5 kg
Þvottur
Skolar
Stutt þeytivinding
HALDA SKOL-
VATNI
AUKASKOLUN
TÍMASPARNAÐ-
UR
1)
Viðkvæmt
40° - Kalt
Viðkvæm efni eins
og akrýl, viskósa og
pólýester, venjuleg
óhreinindi.
hám. 3 kg
Þvottur
Skolar
Stutt þeytivinding
VINDING
HALDA SKOL-
VATNI
BLETTIR
AUKASKOLUN
TÍMASPARNAÐ-
UR
1)
Ull/Silki
40° - Kalt
Ull sem má þvo í
þvottavél. Ull sem
má þvo í þvottavél
og viðkvæm efni
með þvottamiðan-
um «handþvottur»
(hand washing).
hám. 2 kg
Þvottur
Skolar
Stutt þeytivinding
VINDING
HALDA SKOL-
VATNI
ÍSLENSKA 11
Þvottaferill
Hitastig
Gerð þvottar
hám. þyngd þvott-
ar
Ferill
lýsing
Aukaval
Vinding /
Vatnslosun
3)
Öll efni
Hámarksmagn
þvottar sem setja
má í vélina fer eftir
gerð þvottarins.
Tæming vatns úr
vélinni
Þeytivinda á há-
markshraða.
VINDING
ENGIN ÞEYTI-
VINDING
Skolun Handþvottur. Skolar
Löng þeytivinding
VINDING
HALDA SKOL-
VATNI
AUKASKOLUN
Gardínur
40° - Kalt
Stillið á þennan
þvottaferil fyrir
gardínuþvott. Þá
bætist sjálfkrafa við
forþvottarstig til að
hreinsa ryk úr gard-
ínunum.
Ekki setja þvottaefn-
ið í forþvottarhólfið.
hám. 2 kg
Forþvottur
Þvottur
Skolar
Stutt þeytivinding
VINDING
HALDA SKOL-
VATNI
AUKASKOLUN
4)
Gallabuxur
60° - Kalt
Allur þvottur úr gall-
abuxnaefni. Prjóna-
flíkur úr hátækniefn-
um.
hám. 7 kg
Þvottur
Skolar
Stutt þeytivinding
VINDING
HALDA SKOL-
VATNI
AUKASKOLUN
TÍMASPARNAÐ-
UR
1)
Flýtikerðimeð
aukaskolun
60° - 40°
Hraðþvottaferill, fyr-
ir lítið óhreina hvíta/
litaða þvottekta
bómull og blönduð
efni.
hám. 5 kg
Þvottur
Skolar
Löng þeytivinding
VINDING
HALDA SKOL-
VATNI
AUKASKOLUN
20 mín - 3 kg
40° - 30°
Bómull og gerviefni,
lítið óhreint eða flík-
ur sem aðeins hefur
verið farið í einu
sinni.
Þvottur
Skolar
Stutt þeytivinding
VINDING
Orkusparnaður
Kalt - 3 kg
5)
Kalt
Blönduð efni (bóm-
ull og gerviefni).
hám. 3 kg
Þvottur
Skolar
Löng þeytivinding
VINDING
HALDA SKOL-
VATNI
AUKASKOLUN
12
www.aeg.com
Þvottaferill
Hitastig
Gerð þvottar
hám. þyngd þvott-
ar
Ferill
lýsing
Aukaval
Orkusparnaður
og
6)
60° - 40°
Hvít og lituð bómull
sem litar ekki, venju-
leg óhreinindi.
hám. 7 kg
Þvottur
Skolar
Löng þeytivinding
VINDING
ENGIN ÞEYTI-
VINDING
HALDA SKOL-
VATNI
BLETTIR
AUKASKOLUN
1)
Ef ýtt er á hnappinn 6 tvisvar (Mjög stuttur þvottatími), er mælt með því að setja minni
þvott í vélina. Hægt er að fullhlaða vélina en þá verður þvottaárangurinn ekki góður.
2)
Þvotta- og þeytivindustig þessa þvottaferils er haft mjúklegt til að þvotturinn krumpist
ekki. Heimilistækið bætir við nokkrum skolunum.
3)
Stillið vinduhraðann. Passið að hann sé réttur fyrir þvottinn. Til að velja TÆMINGU
eingöngu stillirðu á aukavalið ENGIN ÞEYTIVINDING.
4)
Stillið á þetta aukaval til að bæta við skolunum. Á lágum vinduhraða skolar vélin varlega
og þeytivinding er stutt.
5)
Stillið á þennan þvottaferil til að stytta þvottatímann og minnka orku- og vatnsneyslu.
6)
STAÐLAÐIR ÞVOTTAFERLAR fyrir Orkumerkis- (Energy Label) tölur um orkunotkun.
Samkvæmt reglugerð 1061/2010, eru þessir þvottaferlar hið «staðlaða 60° C
bómullarþvottaferli» og hið «staðlaða 40° C mullarþvottaferli». Þau eru skilvirkustu
kerfin hvað varðar samsetningu orkunotkunar og vatnsnotkunar, til að þvo venjulega
óhreinan bómullarþvott.
Stillið á þennan þvottaferil til að ná góðum þvottaárangri og minnka orkunotkun.
Þvotturinn tekur lengri tíma.
Þvottahitastig þvottaferilsins getur verið frábrugðið skráðu hitastigi fyrir valið þvott-
aferli.
7. UPPLÝSINGAR UM ORKUNEYSLU
Við upphaf þvottakerfisins birtir skjárinn lengd kerfisins fyrir hámarks hleðsl-
ugetu.
Á meðan á þvottakerfinu stendur er lengd kerfisins reiknuð út sjálfkrafa, og
það má stytta hana til muna ef magn þvotts er undir hámarks hleðslugetu
vélarinnar (þ.e. Bómull 60°C, hámarks hleðslugeta 7 kg, lengd þvottakerfisins
er meiri en 2 klst.; ef raunveruleg hleðsla er 1 kg, þá mun lengd þvottakerfis-
ins verða styttri en 1 klst.).
Á meðan vélin reiknar út raunverulega lengd þvottakerfisins, blikkar punktur
á skjánum.
Gögnin í þessari töflu eru námunduð gildi. Mismunandi ástæður geta breytt
gildunum: magn og tegund þvottar, hitastig vatns og umhverfishitastig.
ÍSLENSKA 13
Þvottastill-
ingar
Hleðsl
a
(kg)
Orku-
neysla
(KWh)
Vatns-
notkun
(lítrar)
Nám-
unduð
lengd
kerfis
(mínút-
ur)
Raki
sem eft-
ir er
(%)
1)
L 75470
FL
Raki
sem eft-
ir er
(%)
1)
L 75670
FL
Bómull 60 °C 7 1.1 60 180 52 43
Bómull 40 °C 7 0.9 60 160 52 43
Straufrítt 40
°C
3.5 0.7 50 100 35 35
Fíngert 40 °C 3 0.5 65 80 35 35
Ull/Hand-
þvottur 30 °C
2 0.4 55 60 30 30
Stöðluð bómullarþvottakerfi
Staðlað 60 °C
bómull
7 0.91 49 207 52 43
Staðlað 60 °C
bómull
3.5 0.69 39 155 52 43
Staðlað 40 °C
bómull
3.5 0.46 39 150 52 43
1)
Við lok vindingarfasa.
Slökkt (W) Í biðstöðu (W)
0.48 0.48
Upplýsingarnar í töflunum hér að ofan eru í samræmi við reglugerð Fram-
kvæmdastjórnar ESB 1015/2010 sem innleiðir tilskipun 2009/125/EC.
8. FYRIR FYRSTU NOTKUN
1.
Tæmingarkerfið vélarinnar er sett af
stað þannig að 2 lítrum af vatni er
hellt í aðalþvottarhólf þvottaefnis-
hólfsins.
2.
Setjið örlítið af þvottaefni í aðal-
þvottarhólf þvottaefnishólfsins. Stillið
á þvottaferil fyrir bómull á hæsta hita
og setjið vélina í gang með engum
þvotti í. Það fjarlægir öll hugsanleg
óhreinindi úr tromlunni og vatns-
tankinum.
9. NOTKUN HEIMILISTÆKISINS
1.
Skrúfið frá vatnskrananum.
2.
Tengið klóna við rafmagnsinnstung-
una.
3.
Ýtið á hnapp
1
til að kveikja á
heimilistækinu.
4.
Setjið þvottinn í heimilistækið.
14
www.aeg.com
5.
Notið rétt magn af þvottaefni og
aukefnum.
6.
Stillið á réttan þvottaferil eftir því
hvað er í vélinni og hversu óhreint
það er.
9.1 Þvottur settur í vélina
1.
Opnaðu hurð heimilistækisins.
2.
Setjið þvottinn í tromluna, eitt stykki í
einu. Hristið stykkin áður en þau eru
sett inn í heimilistækið. Gætið þess
að setja ekki of mikinn þvott í troml-
una.
3.
Lokið hurðinni.
Gætið þess að ekki sé þvottur á milli
dyraþéttingarinnar og hurðarinnar. Þá
væri hætta á vatnsleka eða þvotturinn
gæti skemmst.
9.2 Þvottaefnið og bætiefni sett í
Þvottaefnishólfið fyrir forþvottinn og skolunina.
Setjið í þvottaefni fyrir forþvott, og látið liggja í bleyti áður en
þvottaferlið byrjar.
Þvottaefnishólf fyrir þvottastigið.
Ef notað er þvottaefni á vökvaformi skal setja það í rétt áður en
þvottaferillinn er settur í gang.
Hólf fyrir aukefni á vökvaformi (mýkingarefni, línsterkju).
Setjið efnið í hólfið áður en þvottaferillinn er settur af stað.
Magn aukefna á vökvaformi má ekki ná upp fyrir þetta merki.
Hólfið fyrir blettaeyðinn.
Setjið efnið í hólfið og stillið á aukavalið blettir áður en þvottaf-
erillinn er settur af stað.
ÍSLENSKA 15
Flipi fyrir þvottaefni á duft- eða vökvaformi
Setjið hann (upp eða niður) í rétta stöðu fyrir þvottaefni á duft-
eða vökvaformi.
Fylgið alltaf leiðbeiningunum sem er að finna á umbúðum þvottaefn-
anna.
Athugið í hvaða stöðu flipinn er
1.
Dragið þvottaefnishólfið út þar til
það stoppar.
2.
Ýtið flipanum niður til að taka hólfið
út.
3.
Ef notað er þvottaefni á duftformi á
að láta flipann vísa upp.
4.
Ef notað er þvottaefni á vökvaformi
á að láta flipann vísa niður.
Með flipann í stöðunni NIÐUR:
Ekki nota þykk eða sterkjurík
þvottaefni á vökvaformi.
Ekki láta þvottaefni á vökvafor-
mi ná upp fyrir magnið sem
sýnt er í flipanum.
Ekki stilla á forþvott.
Ekki stilla á aukavalið tímaval.
5.
Mælið skammt af þvottaefni og
mýkingarefni.
6.
Lokið þvottaefnishólfinu varlega.
Gætið þess að flipinn valdi ekki stíflu
þegar skúffunni er lokað.
9.3 Velja og hefja þvottaferil
1.
Snúið kerfishnappnum. Þá kviknar á
vísinum tengdum þeim þvottaferli.
2.
Vísir fyrir hnapp
4
blikkar þá í rauð-
um lit.
3.
Skjárinn sýnir sjálfgefna hitastigið og
vinduhraðann. Hitastigi og/eða
16
www.aeg.com
vinduhraða er breytt með því að ýta
á viðeigandi hnappa.
4.
Stillið á tiltækt aukaval. Vísir þess
aukavals sem stillt er á kviknar eða
skjárinn sýnir táknið tengt því.
5.
Ýtið á hnappinn
4
til að setja
þvottaferilinn í gang. Það er kveikt á
vísi hnapps
4
.
Tæmingardælan getur starfað í
smástund þegar heimilistækið er
að fyllast af vatni.
Heimilistækið lagar tíma-
lengd þvottaferilsins sjálfkrafa
að þeim þvotti sem þú hefur
sett í tromluna þannig að
þvottaárangurinn verði óað-
finnanlegur á stysta mögu-
lega tíma. Eftir um það bil 15
mínútur frá byrjun þvotta-
ferilsins sýnir skjárinn nýju tí-
malengdina.
9.4 Rjúfa þvottaferil
1.
Ýtið á hnapp
4
. Vísirinn blikkar.
2.
Ýtið aftur á hnapp
4
. Þá heldur
þvottaferillinn áfram.
9.5 Hætt við þvottaferil
1.
Ýtið á hnapp
1
til að hætta við
þvottaferilinn og slökkva á heimilis-
tækinu.
2.
Ýtið aftur á hnapp
1
til að kveikja á
heimilistækinu. Nú er hægt að stilla
á nýjan þvottaferil.
Heimilistækið tæmist ekki af
vatni.
9.6 Aukavali breytt
Aðeins er hægt að breyta vissu aukavali
áður en það fer í gang.
1.
Ýtið á hnapp
4
. Vísirinn blikkar.
2.
Breytið aukavalinu sem stillt er á.
9.7 Stillið tímavalið
1.
Ýtið aftur og aftur á hnapp
5
þar til
skjárinn sýnir mínútu- eða klukku-
stundafjöldann. Viðeigandi tákn birt-
ast.
2.
Ýtið á hnapp
4
, heimilistækið byrj-
ar þá niðurtalningu tímavalsins.
Að niðurtalningu lokinni fer þvottaf-
erillinn sjálfkrafa í gang.
Áður en þú ýtir á hnapp
4
til að
setja heimilistækið í gang get-
urðu hætt við eða breytt tímaval-
inu.
Tímaval er ekki hægt að nota
með Gufu.
9.8 Hætt við tímavalið
1.
Ýtið á hnapp
4
. Viðkomandi
gaumvísir blikkar.
2.
Ýtið á hnapp
5
aftur og aftur þar til
skjárinn sýnir 0’.
3.
Ýtið á hnapp
4
. Þvottaferillinn fer
þá af stað.
9.9 Opnið hurðina
Á meðan þvottaferill eða tímaval er í
gangi er hurð heimilistækisins læst.
Hurð heimilistækisins opnuð:
1.
Ýtið á hnapp
4
. Hurðarlæsingar-
táknið á skjánum hverfur.
2.
Opnaðu hurð heimilistækisins.
3.
Lokið hurð heimilistækisins og ýtið á
hnapp
4
. Þvottaferillinn eða tíma-
valið heldur áfram.
Ef hitastigið og vatnsyfirborðið í
tromlunni er of hátt, er hurðar-
læsingartáknið áfram á og ekki er
hægt að opna hurðina. Við opn-
un hurðarinnar skal fylgja eftirfar-
andi skrefum:
1.
Slökkvið á heimilistækinu.
2.
Bíðið í nokkrar mínútur.
3.
Aðgætið að ekkert vatn sé í
tromlunni.
Ef þú slekkur á heimilistækinu
þarf að stilla aftur á þvottaferil.
9.10 Við lok þvottaferils
Heimilistækið stöðvast sjálfkrafa.
Hljóðmerkin heyrast.
birtist á skjánum.
ÍSLENSKA 17
Það slökknar á vísinum fyrir Kveikt/hlé-
hnappinn
4
.
Það slökknar á hurðarlæsingartákninu.
Ýtið á hnappinn
1
til að slökkva á
heimilistækinu. Fimm mínútum eftir að
þvottaferlinum lýkur slekkur aukavalið
orkusparnaður sjálfkrafa á heimilistæk-
inu.
Þegar þú kveikir aftur á heimilis-
tækinu sýnir skjárinn lok síðasta
þvottaferilsins sem stillt var á.
Snúið kerfishnappnum til að stilla
á nýjan þvottaferil.
Takið þvottinn úr heimilistækinu.
Gangið úr skugga um að tromlan sé
tóm.
Hafið hurðina hálfopna til að hindra
myglu og ólykt.
Skrúfið fyrir kranann.
Þvottaferlinum er lokið, en það er vatn
í tromlunni:
Tromlan snýst reglulega til að hindra
að þvotturinn krumpist.
Hurðin er áfram læst.
Þú þarft að tæma vélina af vatni til að
geta opnað hurðina.
Vatnið tæmt úr vélinni:
1.
Ef þörf krefur skaltu minnka vindu-
hraðann.
2.
Ýtið á Kveikt/hlé-hnappinn
4
.
Heimilistækið tæmist af vatni og
þeytivindur.
3.
Þegar þvottaferlinum er lokið og
hurðarlæsingartáknið hverfur get-
urðu opnað hurðina
4.
Slökkvið á heimilistækinu.
Heimilistækið tæmist af vatni og
þeytivindur sjálfkrafa eftir um það
bil 18 tíma.
10. GÓÐ RÁÐ
10.1 Þvotturinn sem fer í
vélina
Skiptið þvottinum niður í: hvítan, litað-
an, gerviefni, viðkvæmt og ull.
Fylgið þvottaleiðbeiningunum sem eru
á þvottamiðunum.
Þvoið ekki saman hvítan og litaðan
þvott.
Litaður þvottur getur stundum látið lit í
fyrsta þvotti. Við mælum með að hann
sé þveginn sér í fyrstu skiptin.
Hneppið koddaverum saman, festið
rennilása, króka og smellur. Hnýtið
belti.
Tæmið vasana og brjótið þvottinn í
sundur.
Snúið marglaga efnum, ull, og þvotti
með ámáluðum myndum á rönguna.
Fjarlægið erfiða bletti.
Þvoið mjög óhreina bletti með sér-
stöku þvottaefni.
Meðhöndlið gardínur varlega. Fjarlæg-
ið krækjurnar eða setjið gluggatjöldin í
þvottanet eða koddaver.
Í þessu heimilistæki má ekki þvo :
Þvott án falds eða þvott sem hefur
rifnað
Brjóstahaldara með spöngum.
Notið þvottanet til að þvo lítil stykki.
Mjög lítill þvottur í vélinni getur valdið
skorti á jafnvægi í þeytivindingu. Ef
þetta gerist skaltu laga stykkin í troml-
unni til og hefja þeytivindinguna aftur.
10.2 Erfiðir blettir
Á suma bletti dugar ekki vatn og þvotta-
efni.
Við mælum með því eyða þessum blett-
um áður en þvotturinn er settur í heimil-
istækið.
Sérstakir blettaeyðar eru fáanlegir. Notið
réttan blettaeyði fyrir þá gerð bletta og
efnis sem um ræðir.
18
www.aeg.com
10.3 Þvottaefni og aukefni
Notið aðeins þvottaefni og aukefni
sem eru gerð sérstaklega fyrir þvotta-
vélar.
Ekki blanda saman ólíkum gerðum
þvottaefna.
Til að vernda umhverfið skal ekki nota
meira en nákvæmlega rétt magn af
þvottaefni.
Fylgið leiðbeiningunum sem er að
finna á umbúðum þvottaefnanna.
Notið rétt þvottaefni fyrir gerð og lit
þess efnis sem á að þvo, hitastig
þvottaferilsins og óhreinindastig.
Ef þú notar þvottaefni á fljótandi formi
skaltu ekki stilla á forþvott.
Ef heimilistækið þitt er ekki með
þvottaefnishólf með flipabúnaði, skal-
tu setja þvottaefnið í með skömmtun-
arkúlu.
10.4 Herslustig vatns
Ef herslustig vatnsins á þínu svæði er
hátt eða meðalhátt, mælum við með að
þú notir vatnsmýkingarefni fyrir þvotta-
vélar. Á svæðum þar sem herslustig
vatns er mjúkt er ekki nauðsynlegt að
nota vatnsmýkingarefni.
Til að komast að því hvað herslustig
vatns er þar sem þú býrð, skaltu hafa
samband við vatnsveituna á staðnum.
Fylgið leiðbeiningunum sem er að finna
á umbúðum efnanna.
Jafngildir kvarðar mæla herslustig vatns:
Þýskar gráður (dH°).
Franskar gráður (°TH).
mmol/l (millimol fyrir hvern lítra - al-
þjóðleg eining fyrir herslustig vatns).
Clarke-gráður.
Tafla sem sýnir herslustig vatns
Stig Gerð
Herslustig vatns
°dH °T.H. mmól/l Clarke
1 mjúkt 0-7 0-15 0-1.5 0-9
2 miðlungs 8-14 16-25 1.6-2.5 10-16
3 hart 15-21 26-37 2.6-3.7 17-25
4 mjög hart > 21 > 37 >3.7 >25
11. MEÐFERÐ OG ÞRIF
AÐVÖRUN
Takið heimilistækið úr sambandi við raf-
magn áður en það er þrifið.
11.1 Kalkhreinsun
Vatnið sem við notum inniheldur kalk. Ef
nauðsyn krefur skaltu nota vatnsmýking-
arefni til að fjarlægja kalkið.
Notið sérstakt efni fyrir þvottavélar. Fylg-
ið leiðbeiningum á umbúðum framleið-
andans.
Gerið þetta þegar enginn þvottur í vél-
inni.
11.2 Þrif að utan
Þrífið heimilistækið með sápu og volgu
vatni eingöngu. Þurrkið alla fleti alveg.
VARÚÐ
Ekki nota áfengi, leysiefni eða
efnavörur.
11.3 Viðhaldsþvottur
Á þvottaferlum með lágum hita er mög-
ulegt að eitthvað af þvottaefni verði eftir
í tromlunni. Þvoið reglulega viðhalds-
þvott. Það er gert þannig:
Takið allan þvott úr tromlunni.
Veljið heitasta bómullarþvottaferilinn
ÍSLENSKA 19
Notið mátulegt magn af lífrænu
þvottaefni á duftformi.
Eftir hvern þvott skal hafa hurðina opna í
dágóða stund til að hindra myglu og
hleypa allri ólykt út.
11.4 Tromla
Grannskoðið tromluna reglulega til að
fyrirbyggja uppsöfnun kalks og ryðagna.
Notið aðeins sérhæfð efni til að fjarlægja
ryðagnir úr tromlunni.
Það er gert þannig:
Hreinsið tromluna með efni sem er
sérstaklega ætlað fyrir ryðfrítt stál.
Setjið í gang stuttan þvottaferil fyrir
bómull á hæsta hita með örlitlu
þvottaefni.
11.5 Dyraþétting
Skoðið dyraþéttinguna reglulega og fjar-
lægið allar agnir innan úr henni.
11.6 Þvottaefnishólf
Að hreinsa þvottaefnishólfið:
1
2
1.
Þrýstið á flipann.
2.
Dragið hólfið út.
3.
Fjarlægið efsta hluta aukefnishólf-
sins fyrir vökva.
4.
Þrífið alla hlutana með vatni.
20
www.aeg.com
  • Page 1 1
  • Page 2 2
  • Page 3 3
  • Page 4 4
  • Page 5 5
  • Page 6 6
  • Page 7 7
  • Page 8 8
  • Page 9 9
  • Page 10 10
  • Page 11 11
  • Page 12 12
  • Page 13 13
  • Page 14 14
  • Page 15 15
  • Page 16 16
  • Page 17 17
  • Page 18 18
  • Page 19 19
  • Page 20 20
  • Page 21 21
  • Page 22 22
  • Page 23 23
  • Page 24 24
  • Page 25 25
  • Page 26 26
  • Page 27 27
  • Page 28 28
  • Page 29 29
  • Page 30 30
  • Page 31 31
  • Page 32 32
  • Page 33 33
  • Page 34 34
  • Page 35 35
  • Page 36 36

AEG L75470FL Používateľská príručka

Typ
Používateľská príručka
Táto príručka je tiež vhodná pre

V iných jazykoch