AEG L7FBE840E Používateľská príručka

Typ
Používateľská príručka
USER
MANUAL
IS Notendaleiðbeiningar
Þvottavél
L7FBE840E
EFNISYFIRLIT
1. ÖRYGGISUPPLÝSINGAR.............................................................................................3
2. ÖRYGGISLEIÐBEININGAR......................................................................................... 4
3. INNSETNING............................................................................................................... 6
4. FYLGIHLUTIR..............................................................................................................10
5. VÖRULÝSING.............................................................................................................11
6. STJÓRNBORÐ........................................................................................................... 12
7. SKÍFA OG HNAPPAR................................................................................................ 14
8. KERFI...........................................................................................................................17
9. STILLINGAR................................................................................................................21
10. FYRIR FYRSTU NOTKUN.........................................................................................22
11. DAGLEG NOTKUN................................................................................................. 22
12. GÓÐ RÁÐ.................................................................................................................27
13. UMHIRÐA OG ÞRIF.................................................................................................28
14. BILANALEIT............................................................................................................. 33
15. NOTKUNARGILDI................................................................................................... 36
16. TÆKNILEGAR UPPLÝSINGAR................................................................................37
17. STUTTAR LEIÐBEININGAR...................................................................................38
18. VÖRUUPPLÝSINGABLAÐ Í SAMRÆMI VIÐ REGLUGERÐ ESB 1369/2017.........39
TIL AÐ NÁ SEM BESTUM ÁRANGRI
Þakka þér fyrir að velja þessa vöru frá AEG. Við höfum framleitt þessa vöru til að
starfa fullkomlega í mörg ár og við höfum notað nýstárlega tækni sem gerir lífið
einfaldara með aðgerðum sem ekki er víst að séu til staðar í venjulegum
heimilistækjum. Vinsamlegast lestu þér til í nokkrar mínútur til að geta nýtt tækið
sem best.
Heimsæktu vefsvæði okkar til að:
Fá leiðbeiningar um notkun, bæklinga, svör við vandamálum og
þjónustuupplýsingar.
www.aeg.com/webselfservice
Skrá vöruna þína til að fá enn betri þjónustu:
www.registeraeg.com
Kaupa aukahluti, rekstrarvörur og upprunalega varahluti fyrir heimilistæki þitt:
www.aeg.com/shop
AÐSTOÐ OG ÞJÓNUSTA VIÐ VIÐSKIPTAVINI
Við mælum með notkun upprunalegra varahluta.
Þegar haft er samband við þjónustuskrifstofuna skal hafa eftirfarandi gögn tiltæk:
Gerð, vörunúmer, raðnúmer.
Upplýsingarnar má finna á merkiplötunni.
Aðvörun / Upplýsingar um öryggismál
Almennar upplýsingar og ráð
Upplýsingar um umhverfismál
Með fyrirvara á breytingum.
www.aeg.com
2
1. ÖRYGGISUPPLÝSINGAR
Fyrir uppsetningu og notkun heimilistækisins skal lesa
meðfylgjandi leiðbeiningar vandlega. Framleiðandinn
ber ekki ábyrgð á neinum meiðslum eða skemmdum
sem leiða af rangri uppsetningu eða notkun. Geymdu
alltaf leiðbeiningarnar á öruggum stað þar sem auðvelt
er að nálgast þær til síðari notkunar.
1.1 Öryggi barna og viðkvæmra einstaklinga
Börn, 8 ára og eldri og fólk með minnkaða líkamlega-,
skyn- eða andlega getu, eða sem skortir reynslu og
þekkingu, mega nota þetta tæki, ef þau eru undir
eftirliti eða hafa verið veittar leiðbeiningar varðandi
örugga notkun tækisins og ef þau skilja hættuna sem
því fylgir.
Halda skal börnum á milli 3 og 8 ára gömlum og fólki
með mjög miklar og flóknar fatlanir frá, nema þau séu
undir stöðugu eftirliti.
Halda skal börnum yngri en 3 ára frá tækinu nema þau
séu undir stöðugu eftirliti.
Leyfðu ekki börnum að leika sér með tækið.
Haltu öllum umbúðum frá börnum og fargaðu þeim á
viðeigandi hátt.
Haltu þvottaefnum frá börnum.
Haltu börnum og gæludýrum frá heimilistækinu þegar
hurðin er opin.
Ef heimilistækið er með barnalæsingu ætti hún að vera
virkjuð.
Börn eiga ekki að hreinsa eða framkvæma
notandaviðhald á heimilistækinu án eftirlits.
1.2
Almennt öryggi
Breyttu ekki tæknilýsingu fyrir þetta heimilistæki.
Þetta heimilistæki er ætlað til notkunar á heimili og við
svipaðar aðstæður og:
Í starfsmannaeldhúsum í verslun, á skrifstofum og á
öðrum vinnustöðum;
ÍSLENSKA
3
af viðskiptavinum á hótelum, mótelum,
gistiheimilum og á öðrum íbúðarstöðum;
svæðum fyrir sameiginlega notkun í íbúðablokkum
eða þvottahúsum.
Farðu ekki umfram hámarkshleðslu upp á 8 kg (sjá
kaflann „Þvottakerfistafla“).
Vatnsþrýstingur við inntaksstað vatns frá
úttakstengingunni verður að vera á milli 0,5 bör (0,05
MPa) og 8 bör (0,8 MPa).
Teppi, mottur eða einhverjar gólfábreiður mega ekki
hylja lofttúðurnar undir tækinu.
Heimilistækið verður að vera tengt við vatnsveituna
með nýja slöngusettinu sem fylgir með, eða öðru nýju
slöngusetti sem viðurkennd þjónustumiðstöð útvegar.
Ekki má endurnýta gamlar slöngur.
Ef rafmagnssnúra er skemmd verður framleiðandi,
viðurkennd þjónustumiðstöð, eða svipað hæfur aðili
að endurnýja hana til að forðast hættu vegna
rafmagns.
Áður en eitthvert viðhald er framkvæmt skal slökkva á
heimilistækinu og aftengja klóna frá
rafmagnsinnstungunni.
Ekki skal nota háþrýstan vatnsúða og/eða gufu til að
hreinsa heimilistækið.
Hreinsaðu tækið með rökum klút. Notaðu aðeins
hlutlaus þvottaefni. Notaðu ekki rispandi efni, stálull,
leysiefni eða málmhluti.
2.
ÖRYGGISLEIÐBEININGAR
2.1 Uppsetning
Uppsetningin verður að
fylgja viðeigandi
innanlandsreglugerðum.
Fjarlægðu allar umbúðir og
flutningsboltana, þar með talið
gúmmífóðringu með plastmilliskífu.
Geymdu flutningsboltana á öruggum
stað. Ef færa á heimilistækið í
framtíðinni verður að setja þá aftur í til
að læsa tromlunni til að koma í veg
fyrir innri skemmdir.
Alltaf skal sýna aðgát þegar
heimilistækið er fært vegna þess að
það er þungt. Notaðu alltaf
öryggishanska og lokaðan skóbúnað.
Ekki skal setja upp eða nota skemmt
heimilistæki.
Fylgdu leiðbeiningum um
uppsetningu sem fylgja með
heimilistækinu.
Ekki skal setja upp eða nota
heimilistæki þar sem hitastigið er
www.aeg.com4
undir frostmarki eða þar sem tækið er
útsett fyrir veðri og vindum.
Gólfsvæðið þar sem á að setja upp
heimilistækið verður að vera flatt,
stöðugt, hitaþolið og hreint.
Gættu þess að loftflæði sé á milli
heimilistækisins og gólfsins.
Þegar tækið er sett á sinn endanlega
stað skaltu athuga hvort það sé lárétt
með hjálp hallamælis. Ef svo er ekki
skal stilla fæturna í samræmi við það.
Settu heimilistækið ekki upp beint yfir
niðurfalli í gólfi.
Úðaðu ekki vatni á heimilistækið eða
hafðu það berskjaldað gagnvart
óhóflegum raka.
Ekki setja upp heimilistækið þar sem
ekki er hægt að opna hurðina til fulls.
Settu ekki lokað ílát til að safna
hugsanlegum vatnsleka undir tækið.
Hafðu samband við viðurkennda
þjónustumiðstöð til að ganga úr
skugga um hvaða aukahluti má nota.
2.2 Tenging við rafmagn
AÐVÖRUN!
Hætta á eldi og raflosti.
Heimilistækið verður að vera
jarðtengt.
Notaðu alltaf rétt ísetta innstungu
sem ekki veldur raflosti.
Gakktu úr skugga um að
færibreyturnar á merkiplötunni séu
samhæfar við rafmagnsflokkun
aðalæðar aflgjafa.
Notaðu ekki fjöltengi eða
framlengingarsnúrur.
Gakktu úr skugga um að
rafmagnsklóin og snúran verði ekki
fyrir skemmdum. Ef skipta þarf um
rafmagnssnúru verður viðurkennd
þjónustumiðstöð okkar að sjá um það.
Aðeins skal tengja rafmagnsklóna við
rafmagnsinnstunguna í lok
uppsetningarinnar. Gakktu úr skugga
um að rafmagnsklóin sé aðgengileg
eftir uppsetningu.
Ekki snerta rafmagnssnúruna eða
rafmagnsklóna með blautum höndum.
Ekki toga í snúruna til að taka tækið úr
sambandi. Taktu alltaf um klóna.
Þetta heimilistæki samræmist
tilskipunum EBE.
2.3 Tenging við vatn
Ekki valda skemmdum á
vatnsslöngunum.
Áður en þú tengir ný rör, rör sem ekki
hafa verið notuð í langan tíma, þar
sem viðgerðarvinna hefur verið
framkvæmd eða nýr búnaður settur
upp (vatnsmælar, o.s.frv.) skaltu láta
vatnið renna þar til það er hreint og
tært.
Tryggðu að það sé enginn sýnilegur
vatnsleki við og eftir fyrstu notkun
heimilistækisins.
Ekki nota framlengingarslöngu ef
inntaksslangan er of stutt. Hafðu
samband við viðurkennda
þjónustumiðstöð til að fá nýjar
inntaksslöngur.
Mögulegt er að sjá vatn renna úr
tæmingarslöngunni. Þetta er vegna
prófunar á heimilistækinu með notkun
vatns í verksmiðjunni.
Þú getur framlengt tæmingarslönguna
í að hámarki 400 cm. Hafðu samband
við viðurkennda þjónustumiðstöð til
að fá hina tæmingarslönguna og
framlenginguna.
2.4 Notkun
AÐVÖRUN!
Hætta á meiðslum, raflosti,
eldi, bruna eða skemmdum
á heimilistækinu.
Fylgdu öryggisleiðbeiningunum á
umbúðum þvottaefnisins.
Settu ekki eldfim efni eða hluti sem
eru blautir af eldfimum efnum í,
nálægt, eða á heimilistækið.
Gakktu úr skugga um að allir
málmhlutir hafi verið fjarlægðir úr
þvottinum.
Þvoðu ekki fataefni sem eru mjög
óhrein af olíu, feiti, eða öðrum
fitugum efnum. Það getur skemmt
gúmmíhluta þvottavélarinnar. Forþvo
skal slík fataefni í höndunum áður en
þeim er hlaðið í þvottavélina.
Snertu ekki glerið í hurðinni á meðan
þvottakerfi er í gangi. Glerið getur
orðið heitt.
ÍSLENSKA
5
2.5 Þjónusta
Hafðu samband við viðurkennda
þjónustumiðstöð til að gera við
heimilistækið.
Notaðu eingöngu upprunalega
varahluti.
2.6 Förgun
AÐVÖRUN!
Hætta á meiðslum eða
köfnun.
Aftengdu heimilistækið frá rafmagns-
og vatnsinntaki.
Klipptu rafmagnssnúruna af upp við
heimilistækið og fargaðu henni.
Fjarlægðu hurðarlokuna til að koma í
veg fyrir að börn eða gæludýr lokist
inni í tromlunni.
Fargaðu heimilistækinu í samræmi við
staðbundnar kröfur um förgun
úrgangsrafmagns- og
rafeindabúnaðar (WEEE).
3. INNSETNING
AÐVÖRUN!
Sjá kafla um Öryggismál.
3.1 Umbúðir fjarlægðar
AÐVÖRUN!
Fjarlægðu allar umbúðirnar
og flutningsboltana fyrir
uppsetningu
heimilistækisins.
AÐVÖRUN!
Notaðu hanskana.
1. Fjarlægðu filmuna sem er utan um.
Notaðu dúkahníf ef þörf krefur.
2. Fjarlægðu pappatoppinn og
pólýstýren-umbúðarefnið.
3. Fjarlægðu filmuna innan í.
4. Opnaðu hurðina og fjarlægðu
pólýstýren-bitann af
hurðarþéttingunni og alla hlutina úr
tromlunni.
5. Leggðu heimilistækið varlega niður á
bakið.
www.aeg.com
6
6. Settu pólýstýren-umbúðaeininguna
að framan á gólfið undir
heimilistækinu.
Passaðu að skemma ekki
slöngurnar.
7. Fjarlægðu pólýstýrenvörnina af
botninum.
1
2
8. Togaðu heimilistækið upp í upprétta
stöðu.
9. Fjarlægðu rafmagnssnúruna og
útslönguna úr slönguhöldunum.
Mögulegt er að sjá vatn
renna úr
tæmingarslöngunni.
Þetta er vegna prófunar
heimilistækisins með
vatni í verksmiðjunni.
10. Fjarlægðu boltana þrjá með
skrúflyklinum sem fylgir
heimilistækinu.
11. Togaðu plastpinnana út.
12. Settu plastlokin, sem finna má í poka
notandahandbókar, í götin.
Við mælum með að þú
geymir umbúðirnar og
flutningsboltana fyrir alla
flutninga með heimilistækið.
3.2 Staðsetning og
jafnvægisstilling
1. Settu heimilistækið upp á flötu og
hörðu gólfi.
ÍSLENSKA
7
Gakktu úr skugga um að
gólfteppi stöðvi ekki
loftflæðið undir
heimilistækinu.
Gakktu úr skugga um að
heimilistækið snerti ekki
veggi eða aðrar einingar.
2. Losaðu eða hertu fæturna til að gera
það lárétt.
AÐVÖRUN!
Ekki setja pappa, tré eða
viðlíka efni undir fætur
heimilistækisins til að gera
það lárétt.
x4
Heimilistækið þarf að vera rétt hallastillt
og stöðugt.
Rétt hæðarstilling
heimilistækisins kemur í veg
fyrir titring, hávaða og
hreyfingu heimilistækisins
þegar það er í gangi.
Þegar vél er sett upp á
sökkli, eða ef þvotta-þurrkari
er settur ofan á þvottavél,
skal nota aukabúnaðinn sem
lýst er í kaflanum
„Aukabúnaður“. Lestu
vandlega leiðbeiningarnar
sem koma með
heimilistækinu og með
aukabúnaðinum.
3.3 Inntaksslangan
1. Tengdu vatnsinntaksslönguna við bak
heimilistækisins.
2. Staðsettu hana til vinstri eða hægri
eftir stöðu vatnskranans.
20
O
20
O
45
O
45
O
Gættu þess að
inntaksslangan sé ekki í
lóðréttri stöðu.
3. Ef nauðsyn krefur skal losa hringróna
til að stilla hana í rétta stöðu.
4. Tengdu vatnsinntaksslönguna við
kaldavatnskranann með 3/4"
skrúfgangi.
VARÚÐ!
Gakktu úr skugga um að ekki
leki frá tengjunum.
www.aeg.com8
Ekki nota
framlengingarslöngu ef
inntaksslangan er of stutt.
Hafðu samband við
þjónustumiðstöð til að fá
nýja inntaksslöngu.
3.4 Lekavari
Inntaksslangan er með lekavara. Þessi
búnaður kemur í veg fyrir vatnsleka í
slöngunni vegna eðlilegrar öldrunar.
Rauða svæðið í glugganum «A» sýnir
þessa bilun.
A
Ef þetta kemur upp skaltu skrúfa fyrir
kranann og hafa samband við
viðurkennda þjónustumiðstöð til að
endurnýja slönguna.
3.5 Frárennsli
Tæmingarslangan ætti að vera í ekki
minni hæð en 60 cm og ekki meiri en 100
cm frá gólfi.
Þú getur framlengt
tæmingarslönguna í að
hámarki 400 cm. Hafðu
samband við viðurkennda
þjónustumiðstöð til að fá
hina tæmingarslönguna og
framlenginguna.
Mögulegt er að tengja
tæmingarslönguna á mismunandi vegu:
1. Leggja tæmingarslönguna í U og
setja hana utan um slöngustatífið úr
plastinu.
2. Á vaskbrúnina - Festu statífið við
vatnskranann eða við vegginn.
Passaðu að plaststatífið geti
ekki hreyfst til á meðan
heimilistækið tæmir sig.
Gakktu úr skugga um að
endi tæmislöngunnar sé ekki
á kafi í vatni. Þá kann óhreint
vatn að renna til baka inn í
heimilistækið.
3. Við frístandandi rör með loftgati -
Settu tæmingarslönguna beint inn í
niðurfallsrörið. Sjá skýringarmyndina.
Það verður alltaf að leika loft
um endann á útslöngunni,
þ.e. innra þvermál
niðurfallsrörsins (lágm. 38
mm - lágm. 1,5") verður að
vera meira heldur en ytra
þvermál
tæmingarslöngunnar.
ÍSLENSKA 9
4. Ef endi tæmingarslöngunnar lítur
svona út (sjá myndina) getur þú þrýst
henni beint inn í frístandandi rörið.
5. Án plaststatífs slöngu, við
vaskkrana - Settu tæmingarslönguna
upp á kranann og hertu að með
klemmu. Sjá skýringarmyndina.
Gættu þess að lykkja sé á
tæmingarslöngunni til að
koma í veg fyrir að agnir úr
vaskinum komist inn í
heimilistækið.
6. Staðsettu slönguna beint við
innbyggt frárennslisrör í vegg
herbergisins og hertu með klemmu.
4. FYLGIHLUTIR
4.1 Fáanlegt hjá
www.aeg.com/shop eða hjá
viðurkenndum söluaðila
Aðeins viðeigandi
aukabúnaður, samþykktur af
AEG, tryggir öryggisstaðla
heimilistækisins. Ef
ósamþykktir hlutir eru
notaðir verða allar kröfur
gerðar ógildar.
4.2 Festiplötusett
Ef þú setur heimilistækið upp á sökkli
skaltu festa heimilistækið með
festiplötunum.
Lestu vandlega leiðbeiningarnar með
fylgihlutnum.
4.3 Hleðslusett
Aðeins er hægt að setja þurrkarann ofan
á þvottavélina með því að nota rétta
hleðslusettið sem framleitt er og
samþykkt af AEG.
www.aeg.com
10
Staðfestu samhæfa
hleðslusettið með því að
athuga dýpt
heimilistækjanna þinna.
Aðeins er hægt að nota hleðslusettið
með heimilistækjum sem tilgreind eru í
bæklingnum sem fylgir með
aukabúnaðinum.
Lestu vandlega leiðbeiningarnar sem
koma með heimilistækinu og með
aukabúnaðinum.
AÐVÖRUN!
Settu þurrkarann ekki undir
þvottavélina.
5. VÖRULÝSING
5.1 Sérstakir eiginleikar
Nýja þvottavélin þín stenst allar
nútímakröfur um skilvirka meðferð á
þvotti með lítilli notkun vatns, orku og
þvottaefnis og réttri umhirðu fataefna.
ProSense-tæknin greinir stærð
þvottahleðslu og skilgreinir tímalengd
þvottakerfisins á 30 sekúndum.
Þvottakerfið er sérsniðið að
þvottahleðslunni og tegund fataefna
án þess að taka lengri tíma, orku og
vatn en nauðsynlegt er.
Gufan er hröð og auðveld leið til að
hressa upp á fötin. Mildu gufukerfin
fjarlægja lykt og draga úr krumpum í
þurrum fataefnum svo ekki er mikil
þörf á að strauja.
Viðbætt gufa-valkosturinn lýkur
hverri lotu með mildri gufu sem slakar
á þráðunum og dregur úr krumpum
efnisins. Auðveldara verður að strauja!
Þökk sé Mýkri þvottur-valkostinum
dreifist mýkingarefnið jafnt um
þvottinn og gengur djúpt inn í
efnisþræðina og styður fullkomna
mýkt.
5.2 Yfirlit yfir heimilistækið
1 2 3
9
5
6
7
4
10
8
11 12
1
Borðflötur
2
Þvottaefnisskammtari
3
Stjórnborð
4
Hurðarhandfang
ÍSLENSKA 11
5
Merkiplata
6
Tæmingardælusía
7
Fætur til að gera heimilistækið lárétt.
8
Tæmingarslanga
9
Tenging inntaksslöngu
10
Rafmagnssnúra
11
Flutningsboltar
12
Stuðningur slöngu
6. STJÓRNBORÐ
6.1 Lýsing á stjórnborði
2
3
6
12 11 10 8
1
4
5
7
9
1
Þvottakerfisskífa
2
Skjár
3
Snertihnappur fyrir sparnað
(Orkusparnaður)
4
Snertihnappur fyrir tímasparnað
(Tímasparnaður)
5
Snertihnappur fyrir skolun (Skolun)
Valkosturinn Aukaskolun
(Aukaskolun)
Þvottastigi sleppt - aðeins
valkosturinn Skolun (Aðeins
skolun)
6
Snertihnappur fyrir Byrja/gera hlé
(Kveikt/Hlé)
7
Snertihnappur fyrir Bletti/forþvott
(Blettaþvottur/Forþvottur)
Valkosturinn Blettir (Blettaþvottur)
Valkosturinn Forþvottur
(Forþvottur)
8
Snertihnappur fyrir seinkaða ræsingu
(Tímaval)
9
Snertihnappur fyrir Steam Plus
(Viðbætt gufa)
10
Snertihnappur fyrir minnkaða
vindingu (Vinding)
Valkosturinn Halda skolvatni
Valkosturinn Mjög hljóðlátt
Þvotta- og skolunarstigum sleppt
- aðeins valkosturinn Vinding
(Aðeins vinding)
Þvotta-, skolunar- og
vindingarstigum sleppt - aðeins
valkosturinn Tæming (Aðeins
vatnslosun)
11
Snertihnappur fyrir hitastig (Hitastig)
www.aeg.com
12
12
Þrýstihnappur til að kveikja/slökkva
(Kveikt/Slökkt)
6.2 Skjár
Vísir fyrir hámarkshleðslu. Vísirinn leiftrar meðan á mati á þvottar-
hleðslu stendur (sjá efnisgreinina um ProSense-hleðslugreiningu).
Vísir fyrir þvottarhleðslu. Hann blikkar ef magn þvottar fer umfram skil-
greinda hleðslu.
Vísir fyrir læsta hurð.
Vísir fyrir seinkaða ræsingu.
Stafræni vísirinn getur sýnt:
Tímalengd þvottakerfis (t. d. ).
Seinkunartíma (t. d. eða ).
Lok lotu ( ).
Aðvörunarkóða (t.d. ).
Vísi fyrir þvottastig. Hann leiftrar meðan á forþvottar- og þvottarstigi
stendur.
Vísir fyrir skolunarstig. Hann leiftrar meðan á skolunarstigi stendur.
Þegar Soft Plus valkosturinn er virkjaður birtist vísirinn .
Vísir fyrir vindingar- og tæmingarstig. Hann leiftrar meðan á vindingar-
og tæmingarstigi stendur.
Vísi fyrir gufustig.
Vísir fyrir krumpuvarnarstig.
Vísir fyrir barnalæsingu.
ÍSLENSKA 13
Orkusparnaðarvísar. -vísirinn birtist með því að velja kerfi fyrir bóm-
ull við 40°C eða 60°C.
Tímasparnaðarvísir.
Vísir fyrir vindingarhraða.
Vísir fyrir Halda skolvatni.
Vísir fyrir Mjög hljótlátt.
Vísir fyrir hitastig. Vísirinn birtist þegar kaldþvottur er stilltur.
7. SKÍFA OG HNAPPAR
7.1 Kveikt/Slökkt
Ef ýtt er á þennan hnapp í nokkrar
sekúndur er hægt að kveikja eða slökkva
á heimilistækinu. Tvö mismunandi lög
hljóma á meðan verið er að kveikja eða
slökkva á heimilistækinu.
Þar sem Biðstöðuaðgerðin slekkur
sjálfkrafa á heimilistækinu til að draga úr
orkunotkun í sumum tilfellum kannt þú
að þurfa að kveikja á því aftur.
Til að fá frekari ítaratriði sjá efnisgreinina
um Biðstöðu í kaflanum Dagleg notkun.
7.2 Inngangur
Ekki er hægt að velja
valkostina/aðgerðirnar með
öllum þvottakerfum.
Athugaðu samhæfnina á
milli valkosta/aðgerða og
þvottakerfa í
„Þvottakerfistafla“.
Valkostur/aðgerð geta
útilokað hvort annað, í þessu
tilfelli leyfir heimilistækið þér
ekki að stilla ósamhæfa
valkosti/aðgerðir saman.
Gakktu úr skugga um að
skjárinn og snertihnappar
séu alltaf hreinir og þurrir.
7.3 Hitastig
Þegar þú velur þvottakerfi leggur
heimilistækið sjálfkrafa til sjálfgefið
hitastig.
Snertu endurtekið þennan hnapp þar til
óskað hitagildi birtist á skjánum.
Þegar skjárinn sýnir vísana og
hitar heimilistækið ekki vatnið.
7.4 Vinding
Þegar þú stillir þvottakerfi stillir
heimilistækið sjálfkrafa hámarks
leyfilegan vindingarhraða.
Snertu þennan hnapp endurtekið til að:
Minnka vindingarhraðann.
Skjárinn sýnir aðeins þann
vindingarhraða sem er
tiltækur fyrir þvottakerfið
sem stillt er á.
Virkja valkostinn Halda skolvatni.
Lokavindingin er ekki framkvæmd.
Vatnið úr síðasta skoli er ekki tæmt út
til að koma í veg fyrir að þvottur
krumpist. Þvottakerfinu lýkur með vatn
í tromlunni.
Skjárinn sýnir vísinn
. Hurðin helst
læst og tromlan snýst reglubundið til
að draga úr krumpum. Þú verður að
tæma vatnið af til að aflæsa hurðinni.
Ef þú snertir hnappinn Kveikt/Hlé
framkvæmir heimilstækið
vindingarstigið og tæmir af vatnið.
Heimilistækið tæmir út
vatnið sjálfvirkt eftir um
það bil 18 klukkustundir.
Virkja valkostinn Mjög hljóðlátt.
www.aeg.com
14
Milli- og lokavindingarstigin eru bæld
niður og þvottakerfið endar með vatn
í tromlunni. Þetta hjálpar til við að
draga úr krumpum.
Skjárinn sýnir vísinn . Hurðin helst
læst. Tromlan snýst reglulega til að
draga úr krumpum. Þú verður að
tæma vatnið af til að aflæsa hurðinni.
Þar sem kerfið er mjög hljóðlátt
hentar það til notkunar að nóttu til
þegar hægt er að fá ódýrara rafmagn.
Í sumum kerfum eru skolanir
framkvæmdar með meira vatni.
Ef þú snertir Kveikt/Hlé-hnappinn
framkvæmir heimilistækið aðeins
tæmingarstigið.
Heimilistækið tæmir út
vatnið sjálfvirkt eftir um
það bil 18 klukkustundir.
Virkjaðu valkostinn aðeins tæma
(sleppir þvotta-, skolunar- og
vindingarstigum): Aðeins vatnslosun.
Heimilistækið framkvæmir aðeins
tæmingarstig valda þvottakerfisins.
Skjárinn sýnir vísinn (kalt) og
vísinn (engin vinding) og vísinn
.
Virkjaðu valkostinn aðeins vinda
(sleppir þvotta- og skolunarstigum):
Aðeins vinding.
Áður en þú stillir þennan
valkost skaltu velja
hentugt þvottakerfi fyrir
fatnaðinn. Heimilistækið
mun framkvæma þá
vindingarlotu sem best
hentar umhirðu
fatnaðarins (t.d. skal fyrst
velja þvottakerfið
Straufrítt og síðan
valkostinn Aðeins vinding
fyrir flíkur úr gerviefni).
Heimilistækið framkvæmir aðeins
vindingarstig valda þvottakerfisins.
Skjárinn sýnir vísinn
(kalt), vísinn
fyrir stig og vísinn fyrir vindingu.
7.5 Blettaþvottur/Forþvottur
Ýttu endurtekið á þennan hnapp til að
virkja annan valkostinn.
Viðeigandi vísir kviknar á skjánum.
Blettaþvottur
Veldu þennan valkost til að bæta við
blettahreinsistigi við þvottakerfi til að
geta meðhöndlað mjög óhreinan eða
blettóttan þvott með blettaeyði.
Helltu blettaeyðinum í hólfið .
Blettaeyðinum verður bætt við á
viðeigandi stigi í þvottakerfinu.
Þessi valkostur er ekki
tiltækur með hitastigi
lægra en 40°C.
Forþvottur
Notaðu þennan valkost til að bæta við
forþvottarstigi á 30°C fyrir
þvottastigið.
Mælt er með þessum valkosti fyrir
mjög óhreinan þvott, sérstaklega ef
hann inniheldur sand, ryk, leðju og
aðrar þéttar agnir.
Þessi valkostur getur aukið
lengd þvottakerfisins.
7.6 Viðbætt gufa
Þessi valkostur bætir gufustigi og síðan
stuttu krumpuvarnarstigi við í lok
þvottakerfis.
Gufustigið dregur úr krumpum í
fataefnum og auðveldar straujun þeirra.
Vísirinn leiftrar á skjánum meðan á
gufustiginu stendur.
Þessi valkostur getur aukið
lengd þvottakerfisins.
Þegar þvottakerfið stöðvast sýnir skjárinn
núll
, vísirinn er logar stöðugur og
vísirinn byrjar að leiftra. Tromlan
framkvæmir mjúkar hreyfingar í um 30
mínútur til að halda gufuávinningnum.
Með því að snerta einhvern hnapp
stöðvast krumpuvarnarhreyfingin og
hurðin aflæsist.
ÍSLENSKA
15
Lítil magn af þvotti hjálpar til
við að ná betri árangri.
7.7 Tímaval
Með þessum valkosti getur þú seinkað
ræsingu þvottakerfis þar til þægilegri tími
gefst.
Snertu hnappinn endurtekið til að stilla
óskaða seinkun. Tíminn eykst í 30
mínútna skrefum upp í 90' og frá 2
klukkustundum upp í 20 klst.
Eftir að þú hefur snert Kveikt/Hlé-
hnappinn sýnir skjárinn vísinn
og
valinn seinkunartíma og heimilistækið
byrjar niðurtalninguna.
7.8 Skolun
Með þessum hnappi getur þú valið einn
af eftirfarandi valkostum:
Aukaskolun Valkosturinn
Þessi valkostur bætir nokkrum
skolunum við í samræmi við valið
þvottakerfi.
Notaðu þennan valkost fyrir fólk sem
hefur ofnæmi fyrir þvottaefnisleifum
og á svæðum þar sem vatn er mjúkt.
Þessi valkostur eykur
örlítið við lengd
þvottakerfisins.
Þvottastigi sleppt - Aðeins skolun -
valkosturinn
Heimilistækið framkvæmir aðeins
skolunarstig, vindingar- og
tæmingarstig valda kerfisins.
Samsvarandi vísir kviknar fyrir ofan
snertihnappinn.
7.9 Tímasparnaður
Með þessum valkosti getur þú minnkað
tímalengd kerfis.
Ef þvotturinn þinn er með venjuleg
eða lítil óhreinindi kann að vera
ráðlegt að stytta þvottakerfið. Snertu
þennan hnapp einu sinni til að stytta
tímalengdina.
Ef um er að ræða minni hleðslu skal
snerta þennan hnapp tvisvar til að
stilla á mjög snöggt kerfi.
Skjárinn sýnir vísinn .
Hægt er að nota þennan
valkost til að stytta
tímalengd Gufa-
þvottakerfisins.
7.10 Orkusparnaður
Valkosturinn Orkusparnaður dregur úr
orkunotkun og viðheldur góðum
þvottaárangri.
Stilltu þennan valkost fyrir lítið eða
venjulega óhreinar flíkur sem þvegnar
eru á 30°C eða hærri hita.
Vatns- og orkunotkun kann að velta á
mismunandi orsökum, eins og
vatnsþrýstingi, hörku þess og hitastigi,
umhverfishita, tegund og magni þvottar,
innstilltum valkostum, vindingarhraða og
spennusveiflum í dreifikerfinu. Skjárinn
sýnir vísinn
.
Ef þú velur bómullarkerfið á
40°C eða 60°C og engir aðrir
valkostir eru stilltir sýnir
skjárinn vísinn ;
þetta eru venjuleg
bómullarkerfi, skilvirkustu
kerfin hvað varðar
sameinaða orku- og
vatnsnotkun.
7.11 Kveikt/Hlé
Snertu Kveikt/Hlé-hnappinn til að byrja,
gera hlé á heimilistækinu, eða rjúfa kerfi í
gangi.
www.aeg.com
16
8. KERFI
8.1 Tafla yfir kerfi
Þvottakerfi
Kerfi Lýsing á kerfi
Þvottakerfi
Aðalþvottur
Hvít bómull og lituð bómull. Venjuleg, mikil og lítil óhreinindi.
Stöðluð kerfi fyrir Energy Label orkuneyslutölur. Samkvæmt
reglugerð 1061/2010 eru þvottakerfið Aðalþvottur við 60°C og
þvottakerfið Aðalþvottur við 40°C með valkostinum
«Staðlað 60°C bómullarþvottkerfi» og «Staðlað 40°C bómullar-
þvottakerfi» hvort um sig. Þau eru skilvirkustu kerfin hvað varð-
ar samsetningu orkunotkunar og vatnsnotkunar til að þvo ven-
julega óhreinan bómullarþvott.
Vatnshitastig þvottastigsins getur verið frá-
brugðið skráðu hitastigi fyrir valið kerfi.
Straufrítt
Fatnaður úr gerviefnum eða blönduðum efnum. Venjuleg
óhreinindi.
Viðkvæmt
Viðkvæm efni eins og akrýl, viskós og blönduð efni sem út-
heimta mildari þvott. Venjuleg óhreinindi.
Ull/Silki
Ull sem þvo má í vél, ull sem þvo má í höndunum og önnur
efni með þvottatákninu «handþvottur».
1)
.
Gufukerfi
Gufa
Gufukerfi fyrir fatnað úr bómull og gerviefnum.Hægt er að
nota gufukerfi fyrir þurrkaðan
2)
, þveginn, eða þvott sem farið
hefur verið einu sinni í. Þetta kerfi dregur úr krumpum og lykt
3)
og slakar á þráðunum. Þegar kerfið klárast skaltu fjarlægja
þvottinn fljótt úr tromlunni. Eftir gufukerfi verður straujun át-
akalaus. Ekki nota neitt þvottaefni. Ef nauðsyn krefur skaltu fjar-
lægt bletti með því að þvo þvottinn eða nota blettahreinsi
beint á blettina. Gufukerfi framkvæma ekki neina þrifalotu. Ekki
nota kerfið Gufa fyrir þessar gerðir þvottar:
Flíkur sem ekki henta fyrir þurrkun í þurrkara.
Allar flíkur sem á eru hlutir úr plasti, málmi, tré og svipuðum
efnum.
Þvottakerfi
ÍSLENSKA 17
Kerfi Lýsing á kerfi
Ofnæmisvörn
Hvítur bómullarþvottur. Þetta kerfi fjarlægir örverur, þökk sé
þvottastigi þar sem hitastigi er haldið hærra en 60°C í nokkrar
mínútur. Það hjálpar til við að fjarlægja sýkla, gerla, örverur og
agnir. Viðbótarskolunarstig tryggir rétt brottnám þvottaefnis-
leifa og frjókorna/ofnæmisvaldandi hluta. Þá verður þvotturinn
skilvirkari.
20 mín. - 3 kg
Flíkur úr bómull og gerviefnum lítið óhreinar eða einu sinni
farið í.
Útivistarklæði
Ekki nota mýkingarefni og gakktu úr skugga
um að það séu engar mýkingarefnisleifar í
þvottaefnisskammtaranum.
Útivistarfatnaður, tækniföt, íþróttafatnaður, vatnsheldir
jakkar sem anda, skeljarjakkar með lausu flísfóðri eða innri
einangrun. Ráðlögð þvottahleðsla er 2.5 kg.
Einnig er hægt að nota þetta þvottakerfi sem lotu til að endur-
glæða vatnsfráhrindingu, sérstaklega sniðna til að meðhöndla
fatnað með vatnshrindandi húð. Til að framkvæma endurglæð-
ingarlotu vatnsfráhrindingar skal gera sem hér segir:
Helltu þvottaefninu í hólfið .
Helltu sérstöku efni til að endurglæða vatnsfráhrindingu fyr-
ir fataefni í skúffuhólfið fyrir mýkingarefni
.
Minnkaðu magnið af þvottinum niður í 1 kg.
Til að bæta enn frekar endurglæðingaraðgerð
vatnsfráhrindingar skal þurrka þvottinn í þurrk-
ara með því að stilla þurrkkerfið Útivistarklæði
(ef það er til staðar og ef þvottamiði flíkurinnar
leyfir þurrkun í þurrkara).
Vatt-teppi
Ein ábreiða úr gerviefni, fóðraður fatnaður, sængur, dún-
jakkar og svipaðir hlutir.
Gallabuxur
Föt úr gallaefni og peysur. Venjuleg óhreinindi. Þetta þvotta-
kerfi framkvæmir milt skolunarstig, hannað fyrir gallaefni, sem
dregur úr upplitun og veldur ekki þvottaduftsleifum í þráðun-
um.
1)
Meðan á þessari lotu stendur snýst tromlan hægt til að tryggja varfærinn þvott. Það kann að líta út eins
og tromlan snúist ekki eða snúist ekki rétt, en þetta er eðlilegt fyrir kerfið
2)
Ef þú stillir á Gufukerfi fyrir þvott sem hefur verið þurrkaður getur þvotturinn verið rakur viðkomu að
þvotti loknum. Hengdu flíkurnar á snúru í um 10 mínútur.
3)
Gufukerfi fjarlægir ekki sérstaklega sterka lykt.
www.aeg.com18
Hitastig þvottakerfis, hámarksvindingarhraði og hámarkshleðsla
Kerfi Sjálfgefið hita-
stig
Hitasvið
Viðmiðunarvinding-
arhraði
Hraðasvið vindingar
Hámarkshleðsla
Þvottakerfi
Aðalþvottur
40°C
95°C - Kalt
1400 s/mín.
1400 s/mín. - 400 s/
mín.
8 kg
Straufrítt
40°C
60°C - Kalt
1200 s/mín.
1200 s/mín. - 400 s/
mín.
3 kg
Viðkvæmt
40°C
40°C - Kalt
1200 s/mín.
1200 s/mín. - 400 s/
mín.
3 kg
Ull/Silki
40°C
40°C - Kalt
1200 s/mín.
1200 s/mín. - 400 s/
mín.
1.5 kg
Gufukerfi
Gufa
- - 1.5 kg
Þvottakerfi
Ofnæmisvörn
60°C
1400 s/mín.
1400 s/mín. - 400 s/
mín.
8 kg
20 mín. - 3 kg
30°C
40°C - 30°C
1200 s/mín.
1200 s/mín. - 400 s/
mín.
3 kg
Útivistarklæði
30°C
40°C - Kalt
1200 s/mín.
1200 s/mín. - 400 s/
mín.
2.5 kg
1)
1 kg
2)
Vatt-teppi
40°C
60°C - 30°C
800 s/mín.
800 s/mín. - 400 s/mín.
2.5 kg
Gallabuxur
40°C
60°C - Kalt
1200 s/mín.
1200 s/mín. - 400 s/
mín.
8 kg
1)
Þvottakerfi.
2)
Þvottakerfi og vatnsheldnistig.
ÍSLENSKA 19
Samhæfni kerfisvalkosta
Aðalþvottur
Straufrítt
Viðkvæmt
Ull/Silki
Gufa
Ofnæmisvörn
20 mín. - 3 kg
Útivistarklæði
Vatt-teppi
Gallabuxur
Vinding
Halda skolvatni
Mjög hljóðlátt
Aðeins vatnslosun
Aðeins vinding
1)
Blettaþvottur
2)
Forþvottur
Aukaskolun
Aðeins skolun
3)
Tímasparnaður
4)
Tímaval
Viðbætt gufa
5)
Mýkri þvottur
1)
Áður en þú stillir þennan valkost skaltu velja hentugt þvottakerfi fyrir fatnaðinn. Heimilistækið mun
framkvæma þá vindingarlotu sem best hentar umhirðu fatnaðarins (t.d. skal fyrst velja þvottakerfið Strau-
frítt og síðan valkostinn Aðeins vinding fyrir flíkur úr gerviefni).
2)
Þessi valkostur er ekki tiltækur með hitastigi lægra en 40°C.
3)
Þessi valkostur er ekki tiltækur með hitastigi lægra en 30°C.
4)
Ef þú stillir á styttstu tímalengd mælum við með að þú minnkir hleðsluna. Mögulegt er að fylla heimilis-
tækið af þvotti, hins vegar verður þvottaárangurinn ekki eins ánægjulegur.
5)
Þessi valkostur er ekki tiltækur með hitastigi lægra en 40°C.
www.aeg.com20
  • Page 1 1
  • Page 2 2
  • Page 3 3
  • Page 4 4
  • Page 5 5
  • Page 6 6
  • Page 7 7
  • Page 8 8
  • Page 9 9
  • Page 10 10
  • Page 11 11
  • Page 12 12
  • Page 13 13
  • Page 14 14
  • Page 15 15
  • Page 16 16
  • Page 17 17
  • Page 18 18
  • Page 19 19
  • Page 20 20
  • Page 21 21
  • Page 22 22
  • Page 23 23
  • Page 24 24
  • Page 25 25
  • Page 26 26
  • Page 27 27
  • Page 28 28
  • Page 29 29
  • Page 30 30
  • Page 31 31
  • Page 32 32
  • Page 33 33
  • Page 34 34
  • Page 35 35
  • Page 36 36
  • Page 37 37
  • Page 38 38
  • Page 39 39
  • Page 40 40
  • Page 41 41
  • Page 42 42
  • Page 43 43
  • Page 44 44

AEG L7FBE840E Používateľská príručka

Typ
Používateľská príručka

V iných jazykoch