IKEA RENLIGFWM7 Používateľská príručka

Typ
Používateľská príručka
RENLIG
FWM7
IS
ICELANDIC
4
Efnisyfirlit
Öryggisupplýsingar 4
Öryggisleiðbeiningar 5
Vörulýsing 7
Stjórnborð 8
Fyrir fyrstu notkun 10
Stillingar 11
Dagleg notkun 11
Þvottastillingar 15
Orkunotkun 20
Góð ráð 21
Umhirða og þrif 22
Bilanaleit 25
Tæknilegar upplýsingar 29
UMHVERFISMÁL 30
IKEA-ÁBYRGÐ 30
Með fyrirvara á breytingum.
Öryggisupplýsingar
Fyrir uppsetningu tækisins og notkun þess, skal lesa
meðfylgjandi leiðbeiningar vandlega. Framleiðandinn er ekki
ábyrgur fyrir tjóni ef röng uppsetning eða notkun veldur
líkamstjóni eða skemmdum. Alltaf skal geyma leiðbeiningarnar
með heimilistækinu til síðari notkunar.
Öryggi barna og viðkvæmra einstaklinga
Þetta tæki mega börn nota frá 8 ára aldri og einnig aðilar
með skerta líkamlega hæfni, skynjun eða geðslag eða sem
skortir reynslu eða þekkingu ef viðkomandi hafa fengið
kennslu eða leiðbeiningar um hvernig nota skal tækið á
öruggan hátt og skilja þær hættur sem fylgja notkun þess.
Börn mega ekki leika sér með tækið.
Halda skal börnum undir 3 ára aldri frá tækinu nema þau séu
undir ströngu eftirliti.
Öllum pakkningum skal halda fjarri börnum.
Öllum þvottaefnum skal halda fjarri börnum.
Halda skal börnum og gæludýrum fjarri hurð tækisins þegar
hún er opin.
Heimilistækið er með barnalæsingu, við mælum með notkun
hennar.
ÍSLENSKA
4
Börn mega ekki hreinsa eða framkvæma viðhald á tækinu án
þess að vera undir eftirliti.
Almennt öryggi
Ekki breyta tæknilýsingu fyrir þetta heimilistæki.
Fylgja skal leiðbeiningum um hámarksrúmmál hleðslu upp á 7
kg (sjá kaflann „Þvottakerfistafla“).
Vatnsþrýstingur (lágmark og hámark) verður að vera á milli
0,5 bör (0,05 MPa) og 8 bör (0,8 MPa).
Lofttúðurnar undir tækinu (ef við á) mega ekki vera lokaðar
vegna teppis.
Heimilistækið skal tengja við vatn með nýju slöngunum sem
fylgja með því. Ekki skal endurnýta gamlar slöngur.
Ef rafmagnssnúran er skemmd, verður að fá nýja frá
framleiðanda, þjónustuaðila hans eða svipuðum hæfum aðila
til þess að koma í veg fyrir hættu.
Áður en viðhald fer fram á tækinu skal slökkva á því og
aftengja aðalklóna frá rafmagnsinnstungunni.
Ekki nota vatnsúða og gufu til að hreinsa heimilistækið.
Þvoðu tækið með rökum og mjúkum klút. Notið aðeins mild
þvottaefni. Ekki nota rispandi efni, stálull, leysiefni eða
málmhluti.
Öryggisleiðbeiningar
Uppsetning
Fjarlægðu umbúðirnar og
flutningsboltana.
Geymdu flutningsboltana. Þegar þú flytur
heimilistækið aftur verður þú að koma í
veg fyrir að tromlan hreyfist.
Farðu alltaf varlega þegar þú hreyfir
tækið af því að það er þungt. Alltaf skal
nota öryggishanska.
Ekki setja upp eða nota skemmt
heimilistæki.
Fylgja skal uppsetningarleiðbeiningum
sem fylgja með tækinu.
Ekki setja upp eða nota heimilistæki þar
sem hitastigið er undir frostmarki eða þar
sem tækið er útsett fyrir veðri og vindum.
Gættu þess að gólfið þar sem tækið er
sett upp sé slétt, stöðugt, hitaþolið og
hreint.
Gættu þess að það sé gott loftflæði á
milli heimilistækisins og gólfsins.
Stilltu fæturna af svo að nauðsynlegt bil
sé á milli heimilistækisins og teppisins.
Ekki setja upp heimilistækið þar sem ekki
er hægt að opna hurðina til fulls.
ÍSLENSKA 5
Tenging við rafmagn
Heimilistækið þarf að vera jarðtengt.
Alltaf nota rétt uppsetta innstungu sem
gefur ekki raflost.
Gætið þess að rafmagnsupplýsingarnar
á tegundarspjaldinu passi við aflgjafann.
Ef ekki, skal hafa samband við rafvirkja.
Ekki nota fjöltengi eða
framlengingarsnúrur.
Gætið þess að rafmagnsklóin og snúran
verði ekki fyrir skemmdum. Ef skipta þarf
um rafmagnssnúru verður viðurkennt
þjónustuver okkar að sjá um það.
Aðeins skal tengja rafmagnsklóna við
rafmagnsinnstunguna í lok
uppsetningarinnar. Gætið þess að
rafmagnsklóin sé aðgengileg eftir
uppsetningu.
Ekki snerta rafmagnssnúruna eða
rafmagnsklóna með blautum höndum.
Ekki toga í snúruna til að taka tækið úr
sambandi. Takið alltaf um klóna.
Einungis fyrir Bretland og Írland: Tækið
er með 13 ampera rafmagnskló. Ef
nauðsynlegt er að skipta um öryggi í
rafmagnsklónni, skal nota 13 ampera
ASTA (BS1362) öryggi.
Þetta heimilistæki samræmist EBE-
tilskipunum.
Tenging við vatn
Passið að vatnsslöngurnar verði ekki fyrir
skemmdum.
Áður en heimilistækið er tengt við nýjar
lagnir eða pípulagnir sem hafa ekki verið
notaðar í langan tíma, skal láta vatnið
renna þangað til það er hreint.
Í fyrsta skipti sem heimilistækið er notað,
skal tryggja að enginn leki eigi sér stað.
Notkun
AÐVÖRUN! Hætta á líkamstjóni,
raflosti, eldi, brunasárum eða því
að heimilistækið skemmist.
Einungis skal nota þetta heimilistæki
innan veggja heimilisins.
Farðu eftir öryggisleiðbeiningunum á
umbúðum þvottaefnisins.
Ekki skal setja eldfimar vörur eða hluti
sem eru blautir af eldfimum vökva ofan á
eða nálægt heimilistækinu.
Gættu þess að fjarlægja alla málmhluti
úr þvottinum.
Ekki setja ílát til að safna hugsanlegum
vatnsleka undir tækið. Hafðu samband
við viðurkennda þjónustumiðstöð til að
ganga úr skugga um hvaða aukahluti má
nota.
Ekki snerta glerið í hurðinni á meðan
þvottaferill er í gangi. Glerið getur verið
heitt.
Þjónusta
Hafðu samband við viðurkennda
þjónustumiðstöð til að gera við
heimilistækið.
Notaðu eingöngu upprunalega varahluti.
Förgun
AÐVÖRUN! Hætta á líkamstjóni
eða köfnun.
Aftengja skal tækið frá
rafmagnsgjafanum.
Klippa rafmagnssnúruna af og fleygja
henni.
Fjarlægið dyraklemmuna til að koma í
veg fyrir að börn eða dýr geti lokast inni
í tækinu.
ÍSLENSKA
6
Vörulýsing
Yfirlit yfir heimilistækið
1 2
3
4
5
1
Þvottaefnisskúffa
2
Stjórnborð
3
Handfang til að opna hurð
4
Merkiplata
5
Stillanlegir fætur
Þvottaefnisskúffa
Hólf fyrir duft eða fljótandi þvottaefni sem
er notað í aðalþvotti. Ef verið er að nota
fljótandi þvottaefni, skal hella því í hólfið rétt
áður en kerfið er sett af stað.
Hólf fyrir fljótandi aukefni (mýkingarefni,
sterkja).
Fylgdu ráðleggingum framleiðanda varðandi skammtastærðir og farðu aldrei yfir
«MAX» merkið á þvottaefnisskúffunni. Mýkingarefnum eða sterkju verður að hella
í hólfið áður en þvottur hefst.
VARÚÐ! Ef þú vilt framkvæma forþvott skaltu hella þvottaefninu inn á milli
fatnaðarins í tromlunni.
ÍSLENSKA 7
VARÚÐ! Eftir því hvaða tegund þvottaefnis þú ert að nota (duft eða fljótandi)
skaltu tryggja að blaðkan sem er sett í aðal þvottahólfið sé í óskaðri stöðu.
Barnalæsing
Þetta heimilistæki inniheldur sérstakar aðgerðir til að koma í veg fyrir að börn og gæludýr
festist inni í tromlunni.
Gættu þess að börn eða gæludýr klifri ekki inn í tromluna. Vinsamlegast athugaðu tromluna
áður en hún er notuð.
Til að virkja þennan búnað skaltu snúa
hnappinum (án þess að ýta á hann) innan á
hurðinni réttsælis þar til raufin er lárétt.
Notaðu smápening ef þörf krefur.
Til að afvirkja þennan búnað og gera
mögulegt að loka dyrunum á ný skaltu snúa
hnappinum rangsælis þar til raufin er lóðrétt.
Stjórnborð
Lýsing á stjórnborði
90˚
60˚
40˚
1600
900
700
30˚
30'
21
5678910
43
1
Kerfishnappur
2
Skjár
3
Þvottaseinkunarhnappur
4
Vísir fyrir læsta hurð
5
Byrja/Hlé-hnappur
6
Aukaskolunarhnappur
ÍSLENSKA 8
7
Skyndiþvottarhnappur
8
Hnappurinn Halda skolvatni
9
Vindingarminnkun
10
Hitastigshnappur
Kerfishnappur Það gerir þér kleift að kveikja/slökkva á heimilistækinu og/eða
velja þvottakerfi.
Skjár
BA
Skjárinn sýnir eftirfarandi upplýsingar:
A - Barnalæsing
Þessi búnaður gerir þér kleift að fara frá heimilistækinu á
meðan það er í gangi.
B – Tölustafur:
Lengd valins þvottakerfis. Eftir að þvottakerfi er valið er
lengd þess sýnd í klukkustundum og mínútum (til dæmis
2.05). Lengt þvottakerfis er reiknuð sjálfkrafa miðað við
ráðlagða hámarkshleðslu fyrir viðkomandi gerð af efni.
Eftir að þvottakerfi byrjar er tíminn sem eftir er uppfærður
á mínútu fresti.
Þvottaseinkun. Hin valda seinkun birtist á skjánum í nokk-
rar sekúndur, síðan birtist aftur lengd hins valda þvotta-
kerfis. Tímalengd seinkunar styttist um eina einingu á
hverri klukkustund og þegar 1 klukkustund er eftir styttist
tíminn hverja mínútu.
Aðvörunarkóðar. Ef upp koma notkunarvandamál birtast
hugsanlega aðvörunarnúmer, til dæmis (sjá efnisgreinina
«Bilanaleit»).
Rangt val á valkosti. Ef valkostur sem ekki er samhægur
við stillt þvottakerfi er valinn birtast skilaboðin neðst
á skjánum í nokkrar sekúndur. Rauði vísirinn sem in-
nbyggður er í hnapp byrjar að leiftra
Lok þvottakerfis. :Þegar þvottakerfinu er lokið birtist leif-
trandi núll
, vísirinn og vísirinn á hnappi slokkna.
Hægt er að opna hurðina.
Þvottaseinkunarhnap-
pur
Með þessum hnappi er hægt að seinka þvotti um 30 mín. - 60
mín. - 90 mín., 2 klst. og síðan í 1 klst. þrepum upp í hámark 20
klukkustundir.
ÍSLENSKA 9
Vísir fyrir læsta hurð Vísirinn kviknar þegar þvottakerfið byrjar og gefur til kynna
hvort hægt sé að opna hurðina:
vísir logar: Ekki er hægt að opna hurðina. Heimilistækið star-
far eða hefur hætt að starfa með vatn ennþá í belgnum.
vísir slökktur: Hægt er að opna hurðina. Þvottakerfinu er lokið
eða vatnið hefur verið tæmt úr vélinni.
vísir leiftrar: Hurðin opnast eftir örfáar mínútur.
Byrja/Hlé hnappur Þessi hnappur gerir þér kleift að ræsa eða rjúfa valin þvottakerfi.
Aukaskolunarhnappur Þetta heimilistæki er hannað til að spara orku. Ef nauðsynlegt er
að skola þvottinn með aukamagni af vatni (aukaskolun), veldu
þá þennan valkost. Nokkrar viðbótarskolanir eru þá gerðar.
Mælt er með þessum valkosti fyrir fólk sem er með ofnæmi fyrir
þvottaefni, og á svæðum þar sem vatnið er mjög mjúkt.
Skyndiþvottarhnappur Þegar ýtt er á þennan hnapp framkvæmir heimilistækið stutta
hringrás fyrir lítið óhreina hluti eða fyrir þvott sem aðeins þarf að
fríska upp á. Við mælum með að minni þvottur sé settur í vélina.
Viðeigandi vísir kviknar.
Halda skolvatni Ef þetta er valið tæmist vatnið úr síðasta skoli ekki út, til að koma
í veg fyrir að þvottur krumpist. Áður en hurðin er opnuð er
nauðsynlegt að tæma allt vatn úr vélinni. Áður en hurðin er op-
nuð er nauðsynlegt að tæma allt vatn úr vélinni. Þó að þvotta-
kerfinu ljúki snýst tromlan með reglulegu millibili til að hindra að
þvotturinn krumpist.
Til að tæma út vatnið skaltu vinsamlegast lesa efnisgreinina «Við
lok þvottakerfis».
Vindingarminnkunarh-
nappur
Með því að ýta á þennan hnapp getur þú breytt hraða vindin-
gar innan valins þvottakerfis.
Hitastigshnappur Með þessum hnappi geturðu hækkað eða lækkað þvottahitasti-
gið. Í stöðunni þvær vélin einn þvottaferil með köldu vatni.
Fyrir fyrstu notkun
1. Tryggðu að tengingar við rafmagn og
vatn séu í samræmi við leiðbeiningar um
uppsetningu.
2. Taktu allt tau úr tromlunni.
ÍSLENSKA 10
Stillingar
Hljóðmerki
Heimilistækið er með hljóðgjafa sem gefur
merki í eftirfarandi tilfellum:
Í lok kerfis;
ef bilun á sér stað.
Með því að ýta á hnappa og í einu í
um 6 sekúndur er slökkt á hljóðmerkinu
(nema ef bilun hefur átt sér stað).
Hljóðmerki eru aftur virk ef þrýst er á þessa
tvo hnappa aftur
Barnalæsing
Þetta tæki gerir notandanum kleift að skilja
við það í vinnslu án þess að þurfa að hafa
áhyggjur af að börn geti slasað sig eða
valdið tjóni á heimilistækinu. Þessi aðgerð
helst einnig virkjuð þegar heimilstækið er
ekki í gangi.
Hægt er að stilla þennan valkost á tvo
vegu:
Áður en þrýst er á hnapp : Er
ómögulegt að setja heimilistækið í gang.
Eftir að ýtt er á hnapp : Er ómögulegt
að breyta nokkru öðru þvottakerfi eða
valkosti.
Til að gera þennan valkost virkan eða
óvirkan skal ýta samtímis í um 6 sekúndur á
hnappa og þangað til táknið birtist
eða hverfur af skjánum.
Dagleg notkun
Opnaðu hurðina
Opnaðu hurðina varlega með því að toga
hurðarhandfangið út á við.
Settu þvottinn í vélina
Settu þvottinn í vélina,
einn hlut í einu og
hristu úr hverri flík
eins mikið og hægt er.
Með því að ýta á
hurðarkarminn skal
loka dyrunum
vandlega.
Mældu þvottaefni og mýkingarefni
Fyrst skal athuga stöðu blöðkunnar:
UPP - Staða blöðku
ef verið er að nota
DUFT-þvottaefni
NIÐUR - Staða
blöðku ef verið er að
nota FLJÓTANDI-
þvottaefni í
aðalþvott
PUSH
REMOVE
TO CLEAN
PUSH
REMOVE
TO CLEAN
Ef blaðkan er ekki í óskaðri stöðu:
ÍSLENSKA 11
Taktu skúffuna út. Þrýstu brún skúffunnar
út eins og sýnt er með örinni (ÞRÝSTA) til
að auðvelda brottnám skúffunnar.
Blaðkan snýr niður og þú vilt nota
þvottaefnisduft:
PUSH
REMOVE
TO CLEAN
Snúðu blöðkunni
upp á við. Tryggðu
að blaðkan smelli
algjörlega á sinn
stað.
Dragðu skúffuna
varlega til baka.
Mældu og fylltu á
þvottaefni.
Helltu
þvottaefnisduftinu
niður í hólfið fyrir
aðalþvottinn .
Blaðkan snýr upp og þú vilt nota fljótandi
þvottaefni:
PUSH
REMOVE
TO CLEAN
Snúðu blöðkunni
niður á við.
Dragðu skúffuna
varlega til baka.
Mældu og fylltu á fljótandi þvottaefni.
Hvað varðar magn þvottaefnis
skaltu alltaf athuga hvað er
skráð á umbúðir vörunnar og
tryggja að hægt sé að hella
þvottaefninu í skúffuna.
Helltu fljótandi þvottaefni í hólfið án
þess að fara yfir þau mörk sem eru gefin til
kynna með blöðkunni. Setja verður
þvottaefnið í viðeigandi hólf á
þvottaefnisskúffunni áður en þvottur hefst.
AÐVÖRUN! Ekki nota blöðkuna í
stöðunni NIÐUR ásamt:
Þvottaefnisgeli eða þykku
þvottaefni.
Þvottaefnisdufti.
Með þvottakerfum sem eru
með forþvott.
Notaðu ekki fljótandi
þvottaefni ef þvottakerfið fer
ekki strax af stað.
Í öllum tilvikum hér að ofan skal
nota blöðkuna í stöðunni „UPP“.
Helltu mýkingarefni
eða öðrum aukefnum
í hólfið sem er merkt
(ekki fara yfir
merkið «MAX» í
skúffunni).
Setja verður öll aukefni í viðeigandi hólf í
þvottaefnisskúffunni rétt áður en
þvottakerfið hefst.
Veldu óskað kerfi með því að snúa
þvottakerfisvalskífunni
Nú er kveikt á heimilistækinu. Vísirinn á
hnappi byrjar að leiftra.
Í lok þvottakerfis verður að snúa valskífunni í
stöðuna til að slökkva á heimilistækinu.
ÍSLENSKA
12
Til að fá lýsingu á hverju
þvottaferli, samhæfni milli
þvottakerfa og valkosta, skal
skoða kaflann «Þvottakerfi».
AÐVÖRUN! Ef þú snýrð
þvottakerfisvalskífunni yfir á
annað kerfi á meðan
heimilistækið er í gangi leiftrar
rauði vísirinn á hnappi 3var
sinnum og skilaboðin
birtast á skjánum til að láta vita
að valið hafi verið rangt.
Heimilistækið byrjar ekki á nýju
þvottakerfi.
Stilltu hitastigið með því að ýta á hnapp
Þegar kerfi er valið leggur heimilistækið
sjálfkrafa til sjálfgefið hitastig. Ýttu á hnapp
aftur og aftur til að hækka eða lækka
hitastigið, ef þú vilt að þvotturinn sé
þveginn á öðru hitastigi.
Ef þú velur stöðuna
framkvæmir
heimilistækið þvott með köldu vatni.
Viðeigandi vísir kviknar.
Minnkaðu vinduhraðann með því að ýta á
hnapp
Þegar kerfi hefur verið valið leggur vélin
sjálfkrafa til hámarksvinduhraða fyrir
viðkomandi kerfi.
Ýttu á hnapp aftur og aftur til að breyta
vinduhraðanum, ef þú vilt að þvotturinn sé
undinn á öðrum hraða. Viðeigandi vísir
kviknar.
Veldu tiltæka valkosti með því að ýta á
hnappa , og
Hægt er að sameina mismunandi aðgerðir
eftir því hvaða þvottakerfi er valið. Þá
verður að velja eftir að þvottakerfi hefur
verið valið og áður en kerfið er sett af stað.
Þegar ýtt er á þessa hnappa kviknar á
viðkomandi vísum. Þegar ýtt er aftur á þá
slokknar á vísunum.
Ef rangur valkostur er valinn leiftrar rauði
vísirinn í hnappi
3var sinnum og
skilaboðin Err birtast á skjánum.
Hvað varðar samhæfni milli
þvottakerfa og valkosta, sjá
kaflann «Þvottakerfi».
Veldu þvottaseinkun með því að ýta á
hnappinn
Áður en þú setur þvottakerfið af stað, ef þú
vilt seinka ræsingu, skaltu ýta endurtekið á
hnapp
til að velja óskaða seinkun.
Valin seinkun birtist á skjánum í nokkrar
sekúndur og síðan birtist lengd valins
þvottakerfis aftur.
Þú verður að velja þennan valkost eftir að
þvottakerfi hefur verið stillt og áður en
kerfið er ræst.
Hægt er að afturkalla eða breyta
þvottaseinkun hvenær sem er, áður en ýtt er
á hnapp
.
Að velja þvottaseinkun:
1. Veldu kerfið og óskaða valkosti.
2. Veldu þvottaseinkun með því að ýta á
hnappinn
.
3. Ýttu á hnapp :
Heimilistækið hefur klukkustundar-
niðurtalningu sína.
Kerfið byrjar þegar tíminn sem valinn
var er liðinn.
ÍSLENSKA
13
Hætt við þvottaseinkun eftir að hafa sett
kerfið af stað:
1. Stilltu heimilistækið á HLÉ með því að
ýta á hnapp .
2. Ýttu einu sinni á hnapp
. Á skjánum
birtist .
3. Ýttu aftur á hnapp til að setja
þvottakerfið í gang.
Ekki er hægt að velja
Þvottaseinkunn með kerfinu
TÆMA.
Aðeins er hægt að breyta valinni
seinkun með því að velja
þvottakerfið upp á nýtt. Hurðin er
læst í gegnum allan
seinkunartímann. Ef þú þarft að
opna hurðina verður þú að stilla
heimilistækið á HLÉ og bíða
síðan í nokkrar mínútur áður en
þú opnar hurðina. Eftir að
hurðinni er lokað skal ýta aftur á
hnapp
.
Settu kerfið af stað með því að ýta á
hnappinn
Til að setja þvottakerfið sem valið var í
gang er ýtt á hnapp , viðkomandi grænn
vísir hættir þá að leiftra. Vísirinn kviknar
til að gefa til kynna að hurðin sé læst vegna
þess að heimilistækið byrjar að vinna.
Til að rjúfa kerfi sem er í gangi skal ýta á
hnapp : samsvarandi grænn vísir byrjar
að leiftra.
Ef þú hefur valið þvottaseinkun byrjar
heimilistækið niðurtalninguna.
Ef rangur valkostur er valinn birtast
skilaboðin
á skjánum í nokkrar
sekúndur og rauði vísirinn á hnappi
leiftrar 3var sinnum.
Valkosti eða þvottakerfi sem er í gangi
breytt
Hægt er að breyta sumum valkostum áður
en þvottakerfi setur þá í gang. Áður en
nokkur slík breyting er gerð verður að gera
HLÉ á vinnslu með því að ýta á hnapp
.
Einungis er hægt að breyta þvottakerfi sem
er í gangi með því að byrja það upp á nýtt.
Snúðu þvottakerfisskífunni á og síðan á
nýtt þvottakerfi. Settu nýja þvottakerfið af
stað með því að ýta aftur á hnappinn
.
Þvottavatnið í vélinni er ekki tæmt.
Þvottakerfi rofið
Til að rjúfa þvottakerfi sem er í gangi skaltu
ýta á hnapp og þá byrjar samsvarandi
grænn vísir að leiftra.
Ýttu á hnappinn
til að setja þvottakerfið
aftur í gang.
Hætt við þvottakerfi
Snúðu þvottakerfisskífunni á til að hætta
við þvottakerfi sem er í gangi.
Nú er hægt að velja nýtt þvottakerfi.
Að opna hurðina
Eftir að kerfið hefur verið ræst er hurðin
læst. Ef, af einhverjum ástæðum þú þarft að
opna hana, skaltu fyrst stilla heimilistækið á
HLÉ með því að ýta á hnappinn . Eftir
nokkrar mínútur verður mögulegt að opna
hurðina.
Ef hurðin er áfram læst, þýðir það að tækið
er þegar að hitna eða þá að vatnsstaðan
er of há. Í öllu falli skaltu ekki reyna að
þvinga hurðina!
Ef þú getur ekki opnað hurðina en þarft
þess samt, verður þú að slökkva á
heimilistækinu með því að snúa valskífunni á
ÍSLENSKA
14
. Eftir nokkrar mínútur er hægt að opna
hurðina (fylgstu með vatnsborði og
hitastigi!)
Eftir að hurðinni er lokað þarf svo að velja
kerfi og valkosti á ný og ýta á hnapp .
Við lok þvottakerfis
Heimilistækið stoppar sjálfkrafa. Einhver
hljóðmerki hljóma og birtist leiftrandi á
skjánum. Vísirinn á hnappinum
og eftir
nokkrar mínútur slokkanr vísirinn . Hægt
er að opna hurðina.
Ef þvottakerfi eða valkostur sem endar með
vatn í belgnum hefur verið valið helst
vísirinn logandi. Hurðin er læst til að
gefa til kynna að tæma þurfi vatnið áður en
hurðin er opnuð.
Meðan á því stendur heldur tromlan áfram
að snúast með reglulegu millibili þar til hún
tæmist.
1. Snúðu þvottakerfisskífunni á .
2. Veldu tæmingu eða vindingarkerfi.
3. Minnkaðu vindingarhraðann ef þörf
krefur með því að ýta á hnapp .
4. Ýttu á hnapp
.
Við lok kerfisins er hurðin losuð þannig að
hægt er að opna hana. Snúðu
þvottakerfisskífunni á til að slökkva á
heimilistækinu.
Fjarlægðu þvottinn úr tromlunni og
athugaðu vandlega að hún sé tóm.
Skrúfaðu fyrir vatnskranann ef ekki á að
þvo meiri þvott. Skildu hurðina eftir opna til
að koma í veg fyrir myglu og óæskilega lykt.
Biðstaða
Nokkrum mínútum eftir að þvottakerfi
klárast fer orkusparnaðarkerfið í gang.
Birtustig skjásins minnkar. Með því að ýta á
einhvern hnapp á heimilistækinu fer það úr
orkusparnaðastillingunni.
Þvottastillingar
Vinsamlegast skoðaðu alltaf þvottamiðann á flíkinni og veldu þvottakerfi
samkvæmt því sem þar stendur.
ÍSLENSKA 15
Þvottakerfi
Hitastig
Tegund
þvottar
Hringrás
Lýsing
Hámarkshleðsla
M. hleðsla
1)
Tiltækir
valmöguleikar
Þvottaefnis-
hólf
BÓMULL
90° - 60° - 40° - 30° -
(Kalt)
Hvít bómull
(venjuleg mi-
kil óhreinindi).
Aðalþvottur
Skolar
Hámarks loka-
vinding við 1600
s/mín
7
3.5
1)
+
BÓMULL + FORÞVOT-
TUR
90° - 60° - 40° - 30° -
(Kalt)
Hvít og lituð
bómull (mikil
óhreinindi -
venjuleg óh-
reinindi).
Forþvottur
Aðalþvottur
Skolar
Hámarks loka-
vinding við 1600
s/mín
7
3.5
1)
BÓMULL VISTVÆNT
2)
60° - 40°
Sparneytinn
þvottur á hví-
tri og litafastri
bómull, lítið-
mjög óhrei-
num hlutum,
skyrtum, nær-
fötum.
Aðalþvottur
Skolar
Hámarks loka-
vinding við 1600
s/mín
7
GERVIEFNI
60° - 40° - 30° -
(Kalt)
Gerviefni eða
blöndur: nær-
föt, lituð föt,
skyrtur sem
hlaupa ekki,
blússur.
Aðalþvottur
Skolar
Hámarks loka-
vinding við 900
s/mín
3.5
1.5
1)
VIÐKVÆMT
40° - 30° - (Kalt)
Viðkvæm ef-
ni: Til dæmis
gluggatjöld.
Aðalþvottur
Skolar
Hámarks loka-
vinding við 700
s/mín
3.5
1.5
1)
ÍSLENSKA 16
Þvottakerfi
Hitastig
Tegund
þvottar
Hringrás
Lýsing
Hámarkshleðsla
M. hleðsla
1)
Tiltækir
valmöguleikar
Þvottaefnis-
hólf
HANDÞVOTTUR - ULL
40° - 30°- (Kalt)
Sérstakt kerfi
fyrir ullarflíkur
og viðkvæ-
man klæðnað
sem bera
merkingarnar
«Hrein ný ull,
hleypur ekki,
má þvo í
þvottavél»
and
«handþvot-
tur».
Aðalþvottur
Skolar
Hámarks loka-
vinding við 900
s/mín
2
SKOL
Kalt
Stök skolun
og vinding til
að stífa eða
mýkja
handþvegnar
flíkur.
Skol
Hám. lokavind-
ing á 1600
s/mín
3)
7
TÆMING
Til að tæma
síðasta skol-
vatnið í þvot-
takerfum með
valkostinn
Halda skol-
vatni valinn.
Tæming á vatni
7
ÍSLENSKA 17
Þvottakerfi
Hitastig
Tegund
þvottar
Hringrás
Lýsing
Hámarkshleðsla
M. hleðsla
1)
Tiltækir
valmöguleikar
Þvottaefnis-
hólf
VINDING
Sérstök vinda
fyrir
handþvegnar
flíkur og á ef-
tir þvottaferli
með valkos-
tinn Halda
skolvatni va-
linn. Hægt er
að velja vin-
duhraðann
með viðko-
mandi hnappi
til að laga sig
að því efni
sem á að vin-
da.
Hámarks loka-
vinding við 1600
s/mín
7
MIX 20°
4)
20°
Sérstakt kerfi
fyrir fatnað úr
bómull, ger-
viefnum og
blönduðum
efnum sem er
lítið óhreinn.
Stilltu á þetta
kerfi til að
minnka orku-
notkun
5)
Aðalþvottur
Skolar
Hámarks loka-
vinding við 900
s/mín
3
ÍSLENSKA 18
Þvottakerfi
Hitastig
Tegund
þvottar
Hringrás
Lýsing
Hámarkshleðsla
M. hleðsla
1)
Tiltækir
valmöguleikar
Þvottaefnis-
hólf
AUÐVELT AÐ STRAU-
JA
60° - 40° - 30° -
(Kalt)
Gerviefni:
Þegar þú ve-
lur þetta
þvottakerfi
þvær vélin og
vindur varle-
ga til að
forðast krum-
pur. Þannig
er auðvel-
dara að
strauja. Vélin
skolar líka of-
tar.
Aðalþvottur
Skolar
Hámarks loka-
vinding við 900
s/mín
1
5 SKYRTUR
30°
Gerviefni og
blönduð efni.
Hentar fyrir 5
- 6 lítið óhrei-
nar skyrtur.
Aðalþvottur
Hámarks loka-
vinding við 900
s/mín
2
STUTT KERFI
30°
Gerviefni og
viðkvæm efni.
Lítið óhrein
föt eða föt
sem einungis
þarf að fríska
upp á.
Aðalþvottur
Skolar
Hámarks loka-
vinding við 700
s/mín
2
ÍSLENSKA 19
Þvottakerfi
Hitastig
Tegund
þvottar
Hringrás
Lýsing
Hámarkshleðsla
M. hleðsla
1)
Tiltækir
valmöguleikar
Þvottaefnis-
hólf
GALLABUXUR
60° - 40° - 30° -
(Kalt)
Buxur, skyrtur
eða jakkar úr
gallaefni og
peysur sem
eru unnar úr
hátæknief-
num. Valkos-
turinn Aukas-
kol virkjast
sjálfkrafa.
Aðalþvottur
Skolar
Hámarks loka-
vinding við 900
s/mín
3.5
KVEIKT/SLÖKKT
Staða til að slökkva á heimilistækinu eða/og endurstilla kerfi.
1)
Ef þú velur kostinn SKYNDIÞVOTTUR mælum við með að minnka hámarkshleðslu á þvotti eins og ráðlagt er. (M.
hleðsla = minnkuð hleðsla). Hins vegar er hægt að fylla vélina eins og venjulega en hún þvær ekki alveg eins vel.
2)
Staðlaðir þvottaferlar fyrir Energy Label orkuneyslutölur. Samkvæmt reglugerð 1061/2010, eru þessi þvottakerfi
«Staðlað 60°C bómullarþvottakerfi» og «Staðlað 40°C bómullarþvottakerfi». Þau eru skilvirkustu kerfin hvað varðar
samsetningu orkunotkunar og vatnsnotkunar, til að þvo venjulega óhreinan bómullarþvott.
Vatnshitastig þvottakerfisins getur verið frábrugðið skráðu hitastigi fyrir valið þvottakerfi.
3)
Fyrir gerviefni og viðkvæman fatnað mælum við með að þú minnkir vindingarhraðann.
4)
Tækið setur í gang stutt upphitunarkerfi ef hitastig vatnsins er undir 20°C. Tækið getur sýnt stillingu hitastigs sem
„kalt“.
5)
Gættu þess að þvottaefnið sé fyrir lítinn hita til að ná góðum árangri við þvottinn.
Orkunotkun
Upplýsingarnar í þessari töflu eru til viðmiðunar. Mismunandi ástæður geta
orðið til þess breyta upplýsingunum: magn og gerð þvotts, hitastig vatnsins
og umhverfishitastig.
ÍSLENSKA 20
  • Page 1 1
  • Page 2 2
  • Page 3 3
  • Page 4 4
  • Page 5 5
  • Page 6 6
  • Page 7 7
  • Page 8 8
  • Page 9 9
  • Page 10 10
  • Page 11 11
  • Page 12 12
  • Page 13 13
  • Page 14 14
  • Page 15 15
  • Page 16 16
  • Page 17 17
  • Page 18 18
  • Page 19 19
  • Page 20 20
  • Page 21 21
  • Page 22 22
  • Page 23 23
  • Page 24 24
  • Page 25 25
  • Page 26 26
  • Page 27 27
  • Page 28 28
  • Page 29 29
  • Page 30 30
  • Page 31 31
  • Page 32 32
  • Page 33 33
  • Page 34 34
  • Page 35 35
  • Page 36 36

IKEA RENLIGFWM7 Používateľská príručka

Typ
Používateľská príručka

V iných jazykoch