• Slökktu á heimilistækinu eftir hverja notkun.
• Farðu varlega þegar þú opnar hurð heimilistækisins
á meðan það er í gangi. Heitt loft getur losnað út.
• Notaðu ekki heimilistækið með blautar hendur eða
þegar það er í snertingu við vatn.
• Beittu ekki þrýstingi á opna hurð.
• Notaðu ekki heimilistækið sem vinnusvæði eða
geymslusvæði.
• Opnaðu hurð heimilistækisins varlega. Notkun
hráefna með alkóhóli getur valdið blöndu alkóhóls
og lofts.
• Láttu ekki neista eða opinn eld komast í sneringu við
heimilistækið þegar þú opnar hurðina.
• Settu ekki eldfim efni eða hluti sem eru blautir af
eldfimum efnum nálægt eða á heimilistækið.
• Notaðu ekki örbylgjuaðgerðina til að forhita ofninn.
AÐVÖRUN! Hætta á skaða á tækinu.
• Til að koma í veg fyrir skemmdir eða aflitun á
glerungnum:
– Settu ekki ofnáhöld eða aðra hluti í
heimilistækið beint á botninn.
– Settu ekki álpappír beint á botn
heimilistækisins.
– Settu ekki vatn beint inn í heitt heimilistækið.
– Láttu ekki raka rétti og rök matvæli vera inni í
heimilistækinu eftir að matreiðslu er lokið.
– Farðu varlega þegar þú fjarlægir aukahluti eða
setur þá upp.
• Aflitun á glerungnum hefur engin áhrif á getu eða
frammistöðu heimilistækisins.
• Notaðu djúpa skúffu fyrir rakar kökur. Ávaxtasafi
veldur blettum sem geta verið varanlegir.
• Þetta heimilistæki er eingöngu til að matreiða með.
Ekk má nota það í öðrum tilgangi, til dæmis að hita
herbergi.
• Alltaf skal elda með ofnhurðina lokaða.
• Ef heimilistækið er sett upp á bak við húsgagnaþil
(t.d hurð) skaltu gæta þess að hurðin sé aldrei lokuð
þegar heimilistækið er í notkun. Hiti og raki geta
byggst upp á bak við lokað húsgagnaþil og valdið
síðari skemmdum á heimilistækinu, húseiningunni
eða gólfinu. Lokaðu ekki húsgagnaþilinu fyrr en
heimilistækið hefur kólnað til fulls eftir notkun.
Umhirða og hreinsun
AÐVÖRUN! Hætta á líkamstjóni,
eldsvoða eða því að heimilistækið
skemmist.
• Áður en viðhald fer fram á tækinu skal slökkva á því
og aftengja aðalklóna frá rafmagnsinnstungunni.
• Gættu þess að heimilistækið sé kalt. Hætta er á að
glerplöturnar brotni.
• Endurnýjaðu glerplöturnar í ofnhurðinni strax þegar
þær skemmast. Hafðu samband við viðurkennda
þjónustumiðstöð.
• Vertu varkár þegar þú tekur hurðina af
heimilistækinu. Hurðin er þung!
• Hreinsaðu heimilistækið reglulega til að
yfirborðsefnin á því endist betur.
• Hreinsaðu tækið með rökum og mjúkum klút.
Notaðu aðeins mild þvottaefni. Ekki nota rispandi
efni, stálull, leysiefni eða málmhluti.
• Ef þú notar ofnhreinsi skaltu hlýða
öryggisleiðbeiningunum á umbúðunum.
• Ekki skal hreinsa hvataglerunginn (ef við á) með
neins konar hreinsiefni.
Ofnljósið
• Sú tegund ljósaperu eða halógenlampa sem notuð
er fyrir þetta tæki er aðeins ætluð heimilistækjum.
Ekki nota það sem heimilisljós.
AÐVÖRUN! Hætta á raflosti.
• Áður en skipt er um ljósið, skal aftengja
heimilistækið frá rafmagnsinntakinu.
• Einungis skal nota ljósaperur sem hafa sömu
eiginleika.
Förgun
AÐVÖRUN! Hætta á líkamstjóni eða
köfnun.
• Aftengdu tækið frá rafmagni.
• Klipptu rafmagnssnúruna af upp við heimilistækið og
fargaðu henni.
• Fjarlægðu hurðarlokuna til að koma í veg fyrir að
börn eða gæludýr festist inni í heimilistækinu.
Þjónusta
• Hafðu samband við viðurkennda þjónustumiðstöð til
að gera við heimilistækið.
• Notaðu eingöngu upprunalega varahluti.
4