Leonard LBN1110X Používateľská príručka

Typ
Používateľská príručka
LBN1110X
Notendaleiðbeiningar
Ofn
EFNISYFIRLIT
Öryggisupplýsingar 2
Öryggisleiðbeiningar 3
Vörulýsing 6
Fyrir fyrstu notkun 6
Dagleg notkun 6
Viðbótarstillingar 7
Góð ráð 7
Umhirða og þrif 11
Bilanaleit 13
Innsetning 14
Tæknilegar upplýsingar 15
Orkunýtni 15
Með fyrirvara á breytingum.
ÖRYGGISUPPLÝSINGAR
Fyrir uppsetningu og notkun heimilistækisins skal lesa
meðfylgjandi leiðbeiningar vandlega. Framleiðandinn ber ekki
ábyrgð á neinum meiðslum eða skemmdum sem leiða af rangri
uppsetningu eða notkun. Geymdu alltaf leiðbeiningarnar á
öruggum stað þar sem auðvelt er að nálgast þær til síðari
notkunar.
Öryggi barna og viðkvæmra einstaklinga
Börn, 8 ára og eldri og fólk með minnkaða líkamlega-, skyn-
eða andlega getu, eða sem skortir reynslu og þekkingu,
mega nota þetta tæki, ef þau eru undir eftirliti eða hafa verið
veittar leiðbeiningar varðandi örugga notkun tækisins og ef
þau skilja hættuna sem því fylgir.
Leyfðu ekki börnum að leika sér með tækið.
Haltu öllum umbúðum frá börnum og fargaðu þeim á
viðeigandi hátt.
Halda skal börnum og gæludýrum fjarri heimilistækinu þegar
það er í gangi eða þegar það kólnar. Aðgengilegir hlutar eru
heitir.
Ef heimilistækið er með barnalæsingu ætti hún að vera
virkjuð.
Börn eiga ekki að hreinsa eða framkvæma notandaviðhald á
heimilistækinu án eftirlits.
Alltaf verður að halda börnum 3 ára og eldri frá þessu
heimilistæki þegar það er í notkun.
2 Leonard
Almennt öryggi
Einungis til þess hæfur aðili má setja upp þetta heimilistæki
og skipta um snúruna.
VIÐVÖRUN: Heimilistækið og aðgengilegir hlutar þess hitna
við notkun. Auðsýna ætti aðgát til að forðast að snerta
hitaelementin. Halda skal börnum yngri en 8 ára frá tækinu
nema þau séu undir stöðugu eftirliti.
Notaðu alltaf ofnhanska til að fjarlægja eða setja inn aukahluti
eða ofnáhöld.
Áður en viðhald hefst skal aftengja tækið frá rafmagni.
Tryggðu að slökkt sé á tækinu áður en þú skiptir um ljósið til
að forðast möguleika á raflosti.
Ekki nota gufuhreinsibúnað til að hreinsa heimilistækið.
Ekki nota sterk tærandi hreinsiefni eða beittar málmsköfur til
að hreinsa glerhurðina þar sem slíkt getur rispað yfirborðið,
sem getur aftur leitt til þess að glerið brotnar.
Ef rafmagnssnúra er skemmd verður framleiðandi,
viðurkennd þjónustumiðstöð eða svipað hæfur aðili að
endurnýja hana til að forðast hættu vegna rafmagns.
ÖRYGGISLEIÐBEININGAR
Uppsetning
AÐVÖRUN! Einungis til þess
hæfur aðili má setja upp þetta
heimilistæki.
Fjarlægðu allar umbúðir.
Ekki setja upp eða nota skemmt
heimilistæki.
Fylgdu leiðbeiningum um uppsetningu
sem fylgja með heimilistækinu.
Alltaf skal sýna aðgát þegar heimilistækið
er fært vegna þess að það er þungt.
Notaðu alltaf öryggishanska og lokaðan
skóbúnað.
Ekki draga heimilistækið á handfanginu.
Haltu lágmarksfjarlægð frá hinum
heimilistækjunum og einingunum.
Gættu þess að heimilistækinu sé komið
fyrir undir og við hliðina á traustum og
stöðugum hlutum.
Hliðar heimilistækisins verða að standa
beinar og við hlið tækja eða eininga sem
hafa sömu hæð.
Tenging við rafmagn
AÐVÖRUN! Eldhætta og hætta
á raflosti.
Allar tengingar við rafmagn skulu
framkvæmdar af rafverktaka með tilskilin
starfsréttindi.
Heimilistækið þarf að vera jarðtengt.
Gakktu úr skugga um að
rafmagnsupplýsingarnar á merkiplötunni
passi við aflgjafann. Ef ekki, skal hafa
samband við rafvirkja.
Notaðu alltaf rétt ísetta innstungu sem
ekki veldur raflosti.
Notaðu ekki fjöltengi eða
framlengingarsnúrur.
Leonard 3
Gakktu úr skugga um að rafmagnsklóin
og snúran verði ekki fyrir skemmdum. Ef
skipta þarf um rafmagnssnúru verður
viðurkennd þjónustumiðstöð okkar að
sjá um það.
Ekki láta rafmagnssnúrurnar komast í
snertingu við hurð tækisins, einkum
þegar hurðin er heit.
Raflostsvörn lifandi og einangraðra hluta
verður að vera fest þannig að ekki sé
hægt að fjarlægja hana án verkfæra.
Aðeins skal tengja rafmagnsklóna við
rafmagnsinnstunguna í lok
uppsetningarinnar. Gakktu úr skugga um
að rafmagnsklóin sé aðgengileg eftir
uppsetningu.
Ef rafmagnsinnstungan er laus, skal ekki
tengja rafmagnsklóna.
Ekki toga í snúruna til að taka tækið úr
sambandi. Taktu alltaf um klóna.
Notaðu aðeins réttan einangrunarbúnað:
Línuvarnarstraumloka, öryggi (öryggi
með skrúfgangi fjarlægð úr höldunni),
lekaliða og spólurofa.
Rafmagnsuppsetningin verður að vera
með einangrunarbúnað sem leyfir þér að
aftengja tækið frá stofnæð á öllum
pólum. Einangrunarbúnaðurinn verður að
hafa að lágmarki 3 mm
snertiopnunarvídd.
Þetta heimilistæki samræmist EBE-
tilskipunum.
Notkun
AÐVÖRUN! Hætta á
líkamstjóni, bruna, raflosti eða
sprengingu.
Þetta heimilistæki er eingöngu ætlað til
heimilisnota.
Breyttu ekki tæknilýsingu fyrir þetta
heimilistæki.
Gættu þess að loftræstiop séu ekki
stífluð.
Láttu heimilistækið ekki vera án eftirlits á
meðan það er í gangi.
Slökktu á heimilistækinu eftir hverja
notkun.
Farðu varlega þegar þú opnar hurð
heimilistækisins á meðan það er í gangi.
Heitt loft getur losnað út.
Notaðu ekki heimilistækið með blautar
hendur eða þegar það er í snertingu við
vatn.
Beittu ekki þrýstingi á opna hurð.
Notaðu ekki heimilistækið sem
vinnusvæði eða geymslusvæði.
Opnaðu hurð heimilistækisins varlega.
Notkun hráefna með alkóhóli getur valdið
blöndu alkóhóls og lofts.
Láttu ekki neista eða opinn eld komast í
sneringu við heimilistækið þegar þú
opnar hurðina.
Settu ekki eldfim efni eða hluti sem eru
blautir af eldfimum efnum nálægt eða á
heimilistækið.
Notaðu ekki örbylgjuaðgerðina til að
forhita ofninn.
AÐVÖRUN! Hætta á skaða á
tækinu.
Til að koma í veg fyrir skemmdir eða
aflitun á glerungnum:
Settu ekki ofnáhöld eða aðra hluti í
heimilistækið beint á botninn.
Settu ekki álpappír beint á botn
heimilistækisins.
Settu ekki vatn beint inn í heitt
heimilistækið.
Láttu ekki raka rétti og rök matvæli
vera inni í heimilistækinu eftir að
matreiðslu er lokið.
Farðu varlega þegar þú fjarlægir
aukahluti eða setur þá upp.
Aflitun á glerungnum hefur engin áhrif á
getu eða frammistöðu heimilistækisins.
Notaðu djúpa skúffu fyrir rakar kökur.
Ávaxtasafi veldur blettum sem geta verið
varanlegir.
Þetta heimilistæki er eingöngu til að
matreiða með. Ekk má nota það í öðrum
tilgangi, til dæmis að hita herbergi.
Alltaf skal elda með ofnhurðina lokaða.
Ef heimilistækið er sett upp á bak við
húsgagnaþil (t.d hurð) skaltu gæta þess
að hurðin sé aldrei lokuð þegar
heimilistækið er í notkun. Hiti og raki
geta byggst upp á bak við lokað
húsgagnaþil og valdið síðari skemmdum
á heimilistækinu, húseiningunni eða
gólfinu. Lokaðu ekki húsgagnaþilinu fyrr
4 Leonard
en heimilistækið hefur kólnað til fulls eftir
notkun.
Umhirða og hreinsun
AÐVÖRUN! Hætta á
líkamstjóni, eldsvoða eða því að
heimilistækið skemmist.
Áður en viðhald fer fram á tækinu skal
slökkva á því og aftengja aðalklóna frá
rafmagnsinnstungunni.
Gættu þess að heimilistækið sé kalt.
Hætta er á að glerplöturnar brotni.
Endurnýjaðu glerplöturnar í ofnhurðinni
strax þegar þær skemmast. Hafðu
samband við viðurkennda
þjónustumiðstöð.
Vertu varkár þegar þú tekur hurðina af
heimilistækinu. Hurðin er þung!
Hreinsaðu heimilistækið reglulega til að
yfirborðsefnin á því endist betur.
Hreinsaðu tækið með rökum og mjúkum
klút. Notaðu aðeins mild þvottaefni. Ekki
nota rispandi efni, stálull, leysiefni eða
málmhluti.
Ef þú notar ofnhreinsi skaltu hlýða
öryggisleiðbeiningunum á umbúðunum.
Ekki skal hreinsa hvataglerunginn (ef við
á) með neins konar hreinsiefni.
Ofnljósið
Sú tegund ljósaperu eða halógenlampa
sem notuð er fyrir þetta tæki er aðeins
ætluð heimilistækjum. Ekki nota það
sem heimilisljós.
AÐVÖRUN! Hætta á raflosti.
Áður en skipt er um ljósið, skal aftengja
heimilistækið frá rafmagnsinntakinu.
Einungis skal nota ljósaperur sem hafa
sömu eiginleika.
Förgun
AÐVÖRUN! Hætta á líkamstjóni
eða köfnun.
Aftengdu tækið frá rafmagni.
Klipptu rafmagnssnúruna af upp við
heimilistækið og fargaðu henni.
Fjarlægðu hurðarlokuna til að koma í veg
fyrir að börn eða gæludýr festist inni í
heimilistækinu.
Þjónusta
Hafðu samband við viðurkennda
þjónustumiðstöð til að gera við
heimilistækið.
Notaðu eingöngu upprunalega varahluti.
Leonard 5
VÖRULÝSING
Almennt yfirlit
6
7
4
3
2
1
8
21 3 4 5
1
Stjórnborð
2
Ljós fyrir hitastig / tákn / vísir
3
Hnappur fyrir hitastigið
4
Hnappur fyrir aðgerðir ofnsins
5
Aflljós / tákn / vísir
6
Loftop fyrir kæliviftuna
7
Ljós
8
Hillustöður
Aukabúnaður
Vírhilla
Fyrir eldunaráhöld, kökuform, steikur.
Bökunarplata úr áli
Fyrir kökur og smákökur.
FYRIR FYRSTU NOTKUN
AÐVÖRUN! Sjá kafla um
Öryggismál.
Fyrsta hreinsun
Fjarlægðu allan aukabúnað úr tækinu.
Sjá kaflann „Umhirða og þrif“.
Hreinsaðu tækið fyrir fyrstu notkun.
Settu aukabúnaðinn aftur í upphaflega
stöðu sína.
Forhitun
Forhitaðu tóman ofninn til að brenna burt þá
fitu sem er eftir.
1. Stilltu aðgerðina og hámarks hitastig.
2. Láttu tækið starfa í eina klukkustund.
Aukahlutir geta orðið heitari en venjulega.
Ofninn getur gefið frá sér lykt og reyk. Þetta
er eðlilegt. Gættu þess að loftflæði í
herberginu sé nægjanlegt.
Láttu ofninn kólna. Vætu mjúkan klút með
volgu vatni og svolitlum mildum
uppþvottalegi og notaðu þetta til að hreinsa
ofnrýmið.
DAGLEG NOTKUN
AÐVÖRUN! Sjá kafla um
Öryggismál.
6 Leonard
Tækið gert virkt og óvirkt
Það fer eftir gerðinni hvort
heimilistækið þitt er með
hnappatákn, vísa eða ljós:
Vísirinn kviknar þegar ofninn
hitnar.
Ljósið kviknar þegar
heimilistækið vinnur.
Táknið sýnir hvort hnappurinn
stjórnar ofnaðgerðum eða
hitastiginu.
1. Snúðu hnúðnum fyrir ofnaðgerðir til að
velja ofnaðgerð.
2. Snúðu hnúðnum fyrir hitastig til að velja
hitastig.
3. Til að slökkva á tækinu, skal snúa
hnúðnum fyrir ofnaðgerðir og hitastig í
stöðuna Slökkt.
Ofnaðgerðir
Ofnaðgerð Notkun
Slökkt-staða Slökkt er á tækinu.
Hefðbundin ma-
treiðsla
Til að baka eða steikja mat á 1 hillustöðu.
Undirhiti Til að baka kökur með stökkum botni og til að sjóða niður
matvæli.
Yfirhiti Til að brúna brauð, kökur og bakkelsi. Til að fullgera eldaða
rétti.
VIÐBÓTARSTILLINGAR
Kælivifta
Þegar tækið gengur kviknar sjálfvirkt á
kæliviftunni til að halda flötum tækisins
svölum. Ef þú slekkur á heimilistækinu
stöðvast kæliviftan.
Öryggishitastillir
Röng notkun tækisins eða bilun í íhlutum
getur orsakað hættulega ofhitnun. Til að
koma í veg fyrir þetta, hefur ofninn
öryggishitastilli sem rýfur
rafmagnstenginguna. Ofninn kveikir
sjálfkrafa á sér aftur þegar hitastigið lækkar.
GÓÐ RÁÐ
AÐVÖRUN! Sjá kafla um
Öryggismál.
Hitastig og bökunartímar í
töflunum eru einungis til
viðmiðunar. Þeir eru háðir
uppskriftunum og gæðum og
magni þess innihaldsefnis sem
er í notkun.
Almennar upplýsingar
Heimilistækið hefur fjórar hillustöður.
Teldu hillustöðurnar að neðan frá botni
tækisins.
Raki getur þéttst í heimilistækinu eða á
glerplötum hurðarinnar. Þetta er eðlilegt.
Haltu þig alltaf frá heimilistækinu þegar
þú opnar hurð þess á meðan þú ert að
elda. Til að minnka rakaþéttinguna skaltu
Leonard 7
láta heimilistækið ganga í 10 mínútur
áður en þú byrjar að elda.
Þurrkaðu burt raka eftir hverja notkun
tækisins.
Ekki setja hlutina beint á botn
heimilistækisins og ekki hylja einingarnar
með álpappír þegar þú eldar. Það getur
breytt árangrinum af bakstrinum og
skemmt glerungshúðina.
Kökur bakaðar
Opnaðu ekki ofnhurðina fyrr en 3/4
baksturstímans eru liðnir.
Ef þú notar tvær bökunarplötur á sama
tíma skaltu hafa eina tóma hæð á milli
þeirra.
Eldun á kjöti og fiski
Notaðu djúpa pönnu fyrir mjög feitan mat
til að koma í veg fyrir að blettir sem geta
verið varanlegir komi í ofninn.
Láttu kjötið standa í um það bil 15
mínútur áður en þú skerð það svo að
vökvinn seytli ekki út.
Til að koma í veg fyrir of mikinn reyk í
ofninum á meðan verið er að steikja skal
bæta svolitlu vatni í ofnskúffuna. Til að
koma í veg fyrir þéttingu reyks skal bæta
við vatni í hvert sinn sem það gufar upp.
Eldunartímar
Eldunartímar fara eftir tegund matvæla,
þéttni þeirra og magni.
Í byrjun skaltu fylgjast með frammistöðunni
þegar þú eldar. Finndu bestu stillingarnar
(hitastillingu, eldunartíma, o.s.frv.) fyrir
eldunaráhöldin þín, uppskriftir og skammta
þegar þú notar þetta tæki.
Bökunar- og steikingartafla
Kökur
Matvæli Hefðbundin matreiðsla Tími (mín) Athugasemdir
Hitastig [°C] Hillustaða
Þeyttar up-
pskriftir
170 2 45 - 60 Í kökuformi
Smjördeigskö-
kudeig
170 2 24 - 34 Í kökuformi
Súrmjólkur-os-
takaka
170 1 60 - 80 Í 26 cm köku-
formi
Eplakaka (Epla-
baka)
170 1 100 - 120 Í tveimur 20 cm
kökuformum á
vírhillu
Fyllt rúllukaka 175 2 60 - 80 Á bökunarplötu
Opin ávaxtaba-
ka
170 2 30 - 40 Í 26 cm köku-
formi
Ávaxtakaka 170 2 60 - 70 Í 26 cm köku-
formi
Svampkaka (Fi-
tulaus svamp-
kaka)
170 2 35 - 45 Í 26 cm köku-
formi
8 Leonard
Matvæli Hefðbundin matreiðsla Tími (mín) Athugasemdir
Hitastig [°C] Hillustaða
Jólakaka / kaka
með ríkulegum
ávöxtum
170 2 50 - 60 Í 20 cm köku-
formi
Plómuterta
1)
170 2 50 - 60 Í brauðformi
Litlar kökur 170 3 20 - 30 Á bökunarplötu
Smákökur
1)
150 3 20 - 30 Á bökunarplötu
Marengskaka 100 3 90 - 120 Á bökunarplötu
Smábrauð
1)
190 3 15 - 20 Á bökunarplötu
Choux
1)
190 3 25 - 35 Á bökunarplötu
Ávaxtabökur á
diski
180 3 45 - 70 Í 20 cm köku-
formi
Viktoríu-samlo-
ka
180 1 eða 2 40 - 55 Vinstri + hægri í
kökuformi 20
cm
1)
Forhita ofninn í 10 mínútur.
Brauð og pítsa
Matvæli
Hefðbundin matreiðsla Tími (mín) Athugasemdir
Hitastig [°C] Hillustaða
Hvítt brauð
1)
190 1 60 - 70 1 - 2 stykki,
500 gr eitt styk-
ki
Rúgbrauð 190 1 30 - 45 Í brauðformi
Rúnnstykki
1)
190 2 25 - 40 6 - 8 rúnnstykki
á bökunarplötu
Pítsa
1)
190 1 20 - 30 Í djúpri ofnskúf-
fu
Skonsur
1)
200 3 10 - 20 Á bökunarplötu
1)
Forhita ofninn í 10 mínútur.
Bökur
Matvæli
Hefðbundin matreiðsla Tími (mín) Athugasemdir
Hitastig [°C] Hillustaða
Pasta-baka 180 2 40 - 50 Í formi
Leonard 9
Matvæli Hefðbundin matreiðsla Tími (mín) Athugasemdir
Hitastig [°C] Hillustaða
Grænmetisbaka 200 2 45 - 60 Í formi
Opnar eggjabö-
kur
190 1 40 - 50 Í formi
Lasagna 200 2 25 - 40 Í formi
Cannelloni 200 2 25 - 40 Í formi
Yorkshire-
búðingur
1)
220 2 20 - 30 6-búðinga form
1)
Forhita ofninn í 10 mínútur.
Kjöt
Matvæli Hefðbundin matreiðsla Tími (mín) Athugasemdir
Hitastig [°C] Hillustaða
Nautakjöt 200 2 50 - 70 Á vírhillu og djú-
pri ofnskúffu
Svínakjöt 180 2 90 - 120 Á vírhillu og djú-
pri ofnskúffu
Kálfakjöt 190 2 90 - 120 Á vírhillu og djú-
pri ofnskúffu
Ensk nautas-
teik, léttsteikt
210 2 44 - 50 Á vírhillu og djú-
pri ofnskúffu
Ensk nautas-
teik, millisteikt
210 2 51 - 55 Á vírhillu og djú-
pri ofnskúffu
Ensk nautas-
teik, gegnsteikt
210 2 55 - 60 Á vírhillu og djú-
pri ofnskúffu
Svínabógur 180 2 120 - 150 Í djúpri ofnskúf-
fu
Svínaskanki 180 2 100 - 120 2 stykki í djúpri
ofnskúffu
Lambakjöt 190 2 110 - 130 Læri
Kjúklingur 200 2 70 - 85 Heill í djúpri ofn-
skúffu
Kalkúnn 180 1 210 - 240 Heill í djúpri ofn-
skúffu
Önd 175 2 120 - 150 Heil í djúpri ofn-
skúffu
10 Leonard
Matvæli Hefðbundin matreiðsla Tími (mín) Athugasemdir
Hitastig [°C] Hillustaða
Gæs 175 1 150 - 200 Heil í djúpri ofn-
skúffu
Kanína 190 2 60 - 80 Skorin í bita
Héri 190 2 150 - 200 Skorinn í bita
Fasani 190 2 90 - 120 Heill í djúpri ofn-
skúffu
Fiskur
Matvæli Hefðbundin matreiðsla Tími (mín) Athugasemdir
Hitastig [°C] Hillustaða
Silungur / kól-
guflekkur
190 2 40 - 55 3 - 4 fiskar
Túnfiskur / lax 190 2 35 - 60 4 - 6 flök
UMHIRÐA OG ÞRIF
AÐVÖRUN! Sjá kafla um
Öryggismál.
Athugasemdir um hreinsun
Hreinsaðu tækið að framan með mjúkum
klút með volgu vatni og hreinsiefni.
Til að hreinsa málmfleti skal nota
venjulegt hreinsiefni.
Hreinsaðu ofninn að innan eftir hverja
notkun. Uppsöfnun fitu og annarra
matarleifa kann að leiða til eldsvoða.
Hreinsaðu langvarandi óhreinindi með
sérstöku ofnahreinsi.
Hreinsaðu alla aukahluti eftir hverja
notkun og láttu þá þorna. Notaðu
mjúkan klút með volgu vatni og
hreinsiefni.
Ef þú ert með fylgihluti sem matur festist
ekki við skal ekki hreinsa þá með
hörðum efnum, hlutum með beittum
brúnum eða í uppþvottavél. Það getur
valdið skemmdum á viðloðunarfríu
húðinni.
Heimilistæki úr ryðfríu stáli eða
áli
Hreinsaðu ofnhurðina aðeins
með blautum svampi. Þurrkaðu
hana með mjúkum klút.
Ekki nota stálull, sýrur eða
svarfefni þar sem þau geta
skemmt yfirborð ofnsins.
Hreinsaðu stjórnborð ofnsins
með sömu varúðarráðstöfunum.
Hurðarþéttingin hreinsuð
Athugaðu reglulega hurðarþéttinguna.
Hurðarþéttingin er umhverfis ramma
ofnrýmisins sjálfs. Ekki nota tækið ef
hurðarþéttingin er skemmd. Hafðu
samband við viðurkennda
þjónustumiðstöð.
Til að hreinsa hurðarþéttinguna vísast til
almennra upplýsinga um hreinsun.
Leonard 11
Ofnhurðin hreinsuð
Ofnhurðin er með tvær glerplötur. Þú getur
fjarlægt ofnhurðina og innri glerplötuna til að
hreinsa hana.
Ofnhurðin getur lokast ef þú
reynir að fjarlægja innri
glerplötuna áður en þú fjarlægir
ofnhurðina.
VARÚÐ! Ekki nota heimilistækið
án innri glerplötunnar.
1. Opnaðu hurðina til fulls og haltu
hurðarlömunum tveimur.
2. Lyftu og snúðu örmunum á lömunum
tveimur.
3. Lokaðu ofnhurðinni hálfa leið að fyrstu
lokunarstöðu. Togaðu síðan fram á við
og fjarlægðu hurðina úr sæti sínu.
4.
Settu hurðina á mjúkan klút á stöðugu
undirlagi.
5. Losaðu læsingarkerfið til að fjarlægja
innri glerplötuna.
6. Snúðu festingunum tveimur um 90° og
fjarlægðu þær úr sætum sínum.
12 Leonard
90°
7. Lyftu fyrst varlega og fjarlægðu síðan
glerplötuna.
1
2
8.
Hreinsaðu glerplötuna með vatni og
sápu. Þurrkaðu glerplötuna varlega.
Þegar hreinsun er lokið skaltu setja
glerplötuna og ofnhurðina í. Framkvæmdu
skrefin hér að ofan í öfugri röð.
Sáldprentunarsvæðið verður að snúa að
innri hlið hurðarinnar. Gakktu úr skugga um
eftir uppsetninguna að yfirborð
glerplöturammans á
sáldprentunarsvæðunum sé ekki gróft
viðkomu.
Gakktu úr skugga um að þú setjir innri
glerplötunar rétt í sætin.
Skipt um ljósið
Settu klút á botn heimilistækisins. Það
kemur í veg fyrir skemmdir á glerhlíf ljóssins
og á ofnrýminu.
AÐVÖRUN! Hætta á raflosti!
Aftengdu öryggið áður en þú
skiptur um peru.
Ofnljósið og glerhlífin geta verið
heit.
1.
Slökktu á heimilistækinu.
2. Taktu öryggin úr öryggjahólfinu eða
slökktu á útsláttarrofanum.
Baklýsingin
1. Snúðu glerhlífinni rangsælis til að
fjarlægja hana.
2. Hreinsaðu glerhlífina.
3. Endurnýjaðu peruna með viðeigandi
hitaþolinni peru sem þolir 300°C.
4. Settu glerhlífina á.
BILANALEIT
AÐVÖRUN! Sjá kafla um
Öryggismál.
Hvað skal gera ef...
Vandamál Hugsanleg ástæða Úrlausn
Ofninn hitnar ekki. Ofninn er afvirkjaður. Kveiktu á ofninum.
Leonard 13
Vandamál Hugsanleg ástæða Úrlausn
Ofninn hitnar ekki. Öryggi hefur slegið út. Gakktu úr skugga um að ör-
yggi sé orsök bilunarinnar. Ef
öryggið slær út aftur og aftur
skal hafa samband við raf-
virkjameistara.
Ljósið virkar ekki. Ljósið er bilað. Endurnýjaðu ljósið.
Gufa og raki sest á matinn og
inn í ofnrýmið.
Þú hafðir réttinn of lengi inni í
ofninum.
Ekki hafa réttina lengur í ofni-
num en 15 - 20 mínútur eftir
að eldunarferli er lokið.
Þjónustugögn
Ef þú getur ekki leyst vandamálið sjálf(ur)
skaltu hafa samband við söluaðila eða
viðurkennda þjónustumiðstöð.
Þau nauðsynlegu gögn sem
þjónustumiðstöðin þarf á að halda eru á
merkiplötunni. Merkiplatan er á fremri
ramma ofnrýmis heimilistækisins. Ekki skal
fjarlægja merkiplötuna úr rými tækisins.
Við mælum með að þú skrifir upplýsingarnar hérna:
Gerð (MOD.) .........................................
Vörunúmer (PNC) .........................................
Raðnúmer (S.N.) .........................................
INNSETNING
AÐVÖRUN! Sjá kafla um
Öryggismál.
Innbygging
589
598
594
114
19
21540
570
558
min. 550
20
600
min. 560
3
9
14 Leonard
min. 550
20
590
min. 560
589
598
594
114
19
21540
570
558
3
9
Heimilistækið fest við skápinn
A
B
Rafmagnsuppsetning
Framleiðandinn er ekki ábyrgur
ef þú fylgir ekki
öryggisvarúðarráðstöfununum í
öryggisköflunum.
Þetta tæki er afhent með rafmagnskló og -
snúru.
Kapall
Kapaltegundir sem viðeigandi eru fyrir
uppsetningu eða endurnýjun: H07 RN-F,
H05 RN-F, H05 RRF, H05 VV-F, H05
V2V2-F (T90), H05 BB-F.
Fyrir þversnið kapalsins vísast til heildarafls
á merkiplötunni og til kapalsins:
Heildarafl (W) Þversnið kapals
(mm²)
að hámarki 1380 3 x 0,75
að hámarki 2300 3 x 1
að hámarki 3680 3 x 1,5
Jarðstrengurinn (grænn / gulur kapall)
verður að vera 2 cm lengri en fasinn og
núllkapallinn (bláir og brúnir kaplar).
TÆKNILEGAR UPPLÝSINGAR
Tæknilegar upplýsingar
Spenna 230 V
Tíðni 50 Hz
ORKUNÝTNI
Upplýsingablað og upplýsingar í samræmi við ESB 65-66/2014
Nafn afhendingaraðila Leonard
Auðkenning gerðar LBN1110X
Leonard 15
Orkunýtnistuðull 105,1
Orkunýtniflokkur A
Orkunotkun með venjulegu álagi, hefðbundin stilling 0,83 kWh/hringur
Fjöldi holrúma 1
Hitagjafi Rafmagn
Magn 56 l
Tegund ofns Innbyggður ofn
Massi 25.0 kg
EN 60350-1 - Rafmagnseldunartæki til
heimilsnota - 1. hluti: Eldavélar, ofnar,
gufuofnar og grill - Aðferðir til að mæla
frammistöðu.
Orkuparnaður
Heimilistækið inniheldur aðgerðir sem hjálpa
þér að spara orku við hversdagslega
matreiðslu.
Almennar vísbendingar
Gættu þess að ofnhurðin sé
almennilega lokuð þegar tækið er í
gangi og haltu henni lokaðri eins
mikið og hægt er meðan á
matreiðslu stendur.
Notaðu málmdiska til að auka
orkusparnaðinn.
Ef hægt er skal setja matinn inn í
ofninn á þess að hita hann.
Þegar eldun tekur lengri tíma en 30
mínútur skaltu lækka ofnhitann eins
mikið og hægt er 3 - 10 mínútum
áður en eldun er lokið, eftir því
hversu langan tíma tekur að elda.
Hitinn inni í ofninum mun halda áfram
að elda.
Notaðu afgangshitann til að hita upp
annan mat.
Halda matnum heitum - ef þú vilt nota
afgangshitann til að halda máltíðinni heitri
skaltu velja lægstu mögulegu
hitastillingu.
UMHVERFISMÁL
Endurvinna þarf öll efni merkt tákninu .
Setjið umbúðirnar í viðeigandi sorpílát til
endurvinnslu. Leggið ykkar að mörkum til
verndar umhverfinu og heilsu manna og
dýra og endurvinnið rusl sem fylgir
raftækjum og raftrænum búnaði. Hendið
ekki heimilistækjum sem merkt eru með
tákninu í venjulegt heimilisrusl. Farið með
vöruna í næstu endurvinnslustöð eða hafið
samband við sveitarfélagið.
16 Leonard
*
Leonard 17
18 Leonard
Leonard 19
892944827-C-182016
  • Page 1 1
  • Page 2 2
  • Page 3 3
  • Page 4 4
  • Page 5 5
  • Page 6 6
  • Page 7 7
  • Page 8 8
  • Page 9 9
  • Page 10 10
  • Page 11 11
  • Page 12 12
  • Page 13 13
  • Page 14 14
  • Page 15 15
  • Page 16 16
  • Page 17 17
  • Page 18 18
  • Page 19 19
  • Page 20 20

Leonard LBN1110X Používateľská príručka

Typ
Používateľská príručka

V iných jazykoch