Leonard LHN1310X Používateľská príručka

Typ
Používateľská príručka
LHN1310X
Notendaleiðbeiningar
Ofn
EFNISYFIRLIT
Öryggisupplýsingar 2
Öryggisleiðbeiningar 3
Vörulýsing 5
Fyrir fyrstu notkun 6
Dagleg notkun 6
Viðbótarstillingar 7
Góð ráð 8
Umhirða og þrif 14
Bilanaleit 17
Innsetning 18
Tæknilegar upplýsingar 19
Orkunýtni 19
Með fyrirvara á breytingum.
ÖRYGGISUPPLÝSINGAR
Fyrir uppsetningu tækisins og notkun þess, skal lesa
meðfylgjandi leiðbeiningar vandlega. Framleiðandinn er ekki
ábyrgur fyrir tjóni ef röng uppsetning eða notkun veldur
líkamstjóni eða skemmdum. Alltaf skal geyma leiðbeiningarnar
með heimilistækinu til síðari notkunar.
Öryggi barna og viðkvæmra einstaklinga
Þetta tæki mega börn nota frá 8 ára aldri og einnig aðilar
með skerta líkamlega hæfni, skynjun eða geðslag eða sem
skortir reynslu eða þekkingu ef viðkomandi hafa fengið
kennslu eða leiðbeiningar um hvernig nota skal tækið á
öruggan hátt og skilja þær hættur sem fylgja notkun þess.
Börn mega ekki leika sér með tækið.
Öllum pakkningum skal halda fjarri börnum.
Halda skal börnum og gæludýrum fjarri tækinu þegar það er
í gangi eða þegar það kólnar. Aðgengilegir hlutar tækisins
eru heitir.
Heimilistækið er með barnalæsingu, við mælum með notkun
hennar.
Börn mega ekki hreinsa eða framkvæma viðhald á tækinu án
þess að vera undir eftirliti.
Halda skal börnum undir 3 ára aldri frá tækinu nema þau séu
undir ströngu eftirliti.
Almennt öryggi
Einungis til þess hæfur aðili má setja upp þetta heimilistæki
og skipta um rafmagnskapal.
2 Leonard
Tækið hitnar að innan þegar það er í gangi. Ekki snerta
hitaelementin sem eru í heimilistækinu. Notaðu alltaf
ofnhanska til að fjarlægja eða til að setja aukahluti eða
eldföst mót í ofninn.
Áður en hafist er handa við viðhald, skal aftengja tækið við
rafmagn.
Tryggja skal að slökkt sé á tækinu áður en skipt er um
ofnljós til að forðast möguleika á raflosti.
Ekki nota gufuhreinsibúnað til að hreinsa heimilistækið.
Ekki nota sterk tærandi hreinsiefni eða skarpar málmskröpur
til að hreinsa glerhurðina þar sem slíkt getur eyðilagt
yfirborðsfleti, sem getur aftur leitt til þess að glerið brotnar.
Ef rafmagnssnúran er skemmd, verður að fá nýja frá
framleiðanda, þjónustuaðila hans eða svipuðum hæfum aðila
til þess að koma í veg fyrir hættu.
Þetta þýðir að þegar verið er að aftengja hana, verður að fara
eftir öllum gildandi reglum um aftenginu víra.
ÖRYGGISLEIÐBEININGAR
Uppsetning
AÐVÖRUN! Einungis til þess
hæfur aðili má setja upp þetta
heimilistæki.
Fjarlægja skal allar umbúðir.
Ekki setja upp eða nota skemmt
heimilistæki.
Fylgja skal uppsetningarleiðbeiningum
sem fylgja með tækinu.
Farðu alltaf varlega þegar þú hreyfir
tækið af því að það er þungt. Alltaf skal
nota öryggishanska.
Ekki toga í handfangið á heimilistækinu
eða draga það á handfanginu.
Eldhússkápurinn og gatið í
eldhúsinnréttingunni verður að hafa rétt
mál og vídd.
Halda skal lágmarksfjarlægð frá hinum
heimilistækjunum og einingunum.
Gættu þess að tækinu sé komið fyrir
undir og við hliðina á traustum og
stöðugum hlutum.
Sumir hlutar tækisins leiða rafstraum.
Skorða skal heimilistækið af með
eldhúsinnréttingunni þannig að ekki sé
hægt að snerta hættulega hluta tækisins.
Hliðar ofnsins verða að standa beinar og
við hlið tækja eða eininga sem hafa
sömu hæð.
Tenging við rafmagn
AÐVÖRUN! Eldhætta og hætta
á raflosti.
Allar tengingar við rafmagn skulu
framkvæmdar af rafverktaka með tilskilin
starfsréttindi.
Heimilistækið þarf að vera jarðtengt.
Gætið þess að rafmagnsupplýsingarnar
á tegundarspjaldinu passi við aflgjafann.
Ef ekki, skal hafa samband við rafvirkja.
Alltaf nota rétt uppsetta innstungu sem
gefur ekki raflost.
Ekki nota fjöltengi eða
framlengingarsnúrur.
Leonard 3
Gætið þess að rafmagnsklóin og snúran
verði ekki fyrir skemmdum. Ef skipta þarf
um rafmagnssnúru verður viðurkennt
þjónustuver okkar að sjá um það.
Ekki láta rafmagnssnúruna komast í
snertingu við dyr tækisins, einkum þegar
dyrnar eru heitar.
Vörn hluta gegn raflosti, verður að vera
fest þannig að ekki sé hægt að fjarlægja
slíkar varnir án verkfæra.
Aðeins skal tengja rafmagnsklóna við
rafmagnsinnstunguna í lok
uppsetningarinnar. Gætið þess að
rafmagnsklóin sé aðgengileg eftir
uppsetningu.
Ef rafmagnsinnstungan er laus, skal ekki
tengja rafmagnsklóna.
Ekki toga í snúruna til að taka tækið úr
sambandi. Takið alltaf um klóna.
Notið aðeins réttan einangrunarbúnað:
línuvarnarstraumloka, öryggi (öryggi með
skrúfgangi fjarlægð úr höldunni), lekaliða
og spólurofa.
Rafmagnsuppsetningin verður að vera
með einangrunarbúnað sem leyfir þér að
aftengja tækið frá stofnæð á öllum
pólum. Einangrunarbúnaðurinn verður að
hafa að lágmarki 3 mm
snertiopnunarvídd.
Þetta heimilistæki samræmist EBE-
tilskipunum.
Notkun
AÐVÖRUN! Hætta á
líkamstjóni, bruna, raflosti eða
sprengingu.
Einungis skal nota þetta heimilistæki
innan veggja heimilisins.
Ekki skal breyta sérhæfingu þessa tækis.
Gættu þess að loftrásartúður og op séu
ekki stífluð.
Ekki skal láta tækið vera eftirlitslaust við
notkun.
Slökktu á tækinu eftir hverja notkun.
Farðu varlega þegar þú opnar ofndyrnar
á meðan ofninn er í gangi. Losnað getur
um heitt loft.
Ekki skal nota heimilistækið með rakar
hendur eða þegar tækið er í snertingu
við vatn.
Ekki beita þrýstingi á opna hurð.
Ekki skal nota heimilistækið sem
vinnusvæði eða geymslusvæði.
Opnið dyrnar varlega. Notkun hráefna
með alkóhóli getur valdið blöndu
alkóhóls og lofts.
Ekki láta neista eða opinn eld komast í
snertingu við tækið þegar þú opnar
hurðina.
Ekki skal setja eldfimar vörur eða hluti
sem eru blautir af eldfimum vökva ofan á
eða nálægt heimilistækinu.
AÐVÖRUN! Hætta á skaða á
tækinu.
Til að koma í veg fyrir skemmdir eða
aflitun á glerungnum:
ekki setja ofnvöru eða aðra hluti í
tækið beint á ofngólfið.
ekki setja álpappír beint á gólf
heimilistækisins.
ekki setja vatn beint inn í heitt tækið.
ekki láta raka rétti og rök matvæli
vera inni í tækinu áfram eftir að
matreiðslu er lokið.
farðu varlega þegar þú fjarlægir
aukahluti eða setur þá upp.
Aflitun á lakkmálningunni hefur engin
áhrif á getu eða frammistöðu tækisins.
Það telst ekki vera galli samkvæmt
lögum um ábyrgð.
Notið djúpa pönnu fyrir rakar kökur.
Ávaxtasafi getur valdið varanlegum
blettum.
Þetta heimilistæki er eingöngu ætlað til
matreiðslu. Það má ekki nota í öðrum
tilgangi, til dæmis til upphitunar á
herbergjum.
Ávallt skal grilla með ofnhurðina lokaða
Umhirða og hreinsun
AÐVÖRUN! Hætta á
líkamstjóni, eldsvoða eða því að
heimilistækið skemmist.
Áður en viðhald fer fram á tækinu skal
slökkva á því og aftengja aðalklóna frá
rafmagnsinnstungunni.
Gættu þess að heimilistækið sé kalt.
Hætta er á að glerþilin brotni.
4 Leonard
Endurnýjaðu glerrúðurnar í ofndyrunum
strax þegar þær skemmast. Hafðu
samband við viðgerðarþjónustuna.
Vertu varkár þegar þú tekur hurðina af
heimilistækinu. Hurðin er þung!
Þrífið heimilistækið reglulega til að
yfirborðsefnin á því endist betur.
Fituleifar eða matarleifar í ofninum geta
orsakað eldsvoða.
Þvoðu tækið með rökum og mjúkum
klút. Notaðu aðeins mild þvottaefni. Ekki
nota rispandi efni, stálull, leysiefni eða
málmhluti.
Ef þú notar ofnhreinsi skaltu hlýða
öryggisleiðbeiningunum á umbúðunum.
Ekki skal hreinsa hvataglerunginn (ef við
á) með neins konar hreinsiefni.
Ofnljósið
Sú tegund ljósaperu eða halógenlampa
sem notuð er fyrir þetta tæki er aðeins
ætluð heimilistækjum. Ekki nota það
sem heimilisljós.
AÐVÖRUN! Hætta á raflosti.
Áður en skipt er um ljósið, skal aftengja
heimilistækið frá rafmagnsinntakinu.
Einungis skal nota ljósaperur sem hafa
sömu eiginleika.
Förgun
AÐVÖRUN! Hætta á líkamstjóni
eða köfnun.
Aftengja skal tækið frá
rafmagnsgjafanum.
Klippa rafmagnssnúruna af og fleygja
henni.
Fjarlægið dyraklemmuna til að koma í
veg fyrir að börn eða dýr geti lokast inni í
tækinu.
VÖRULÝSING
Almennt yfirlit
7
8
9
10
4
3
2
1
11
1 3 4 5 62 2
1
Stjórnborð
2
Hnappar fyrir helluborðið
3
Ljós fyrir hitastig / tákn / vísir
4
Hnappur fyrir hitastigið
5
Hnappur fyrir aðgerðir ofnsins
6
Aflljós / tákn / vísir
7
Loftop fyrir kæliviftuna
8
Hitaelement
9
Ljós
10
Vifta
11
Hillustöður
Aukabúnaður
Vírhilla
Fyrir eldunaráhöld, kökuform, steikur.
Bökunarplata úr áli
Fyrir kökur og smákökur.
Leonard 5
FYRIR FYRSTU NOTKUN
AÐVÖRUN! Sjá kafla um
Öryggismál.
Fyrsta hreinsun
Fjarlægðu allan aukabúnað úr tækinu.
Sjá kaflann „Umhirða og þrif“.
Hreinsaðu tækið fyrir fyrstu notkun.
Settu aukabúnaðinn aftur í upphaflega
stöðu sína.
Forhitun
Forhitaðu tóman ofninn til að brenna burt þá
fitu sem er eftir.
1. Stilltu aðgerðina og hámarks hitastig.
2. Láttu tækið starfa í eina klukkustund.
3. Stilltu aðgerðina og hámarks hitastig.
4. Láttu tækið vinna í 15 mínútur.
Aukahlutir geta orðið heitari en venjulega.
Ofninn getur gefið frá sér lykt og reyk. Þetta
er eðlilegt. Gættu þess að loftflæði í
herberginu sé nægjanlegt.
Láttu ofninn kólna. Vætu mjúkan klút með
volgu vatni og svolitlum mildum
uppþvottalegi og notaðu þetta til að hreinsa
ofnrýmið.
DAGLEG NOTKUN
AÐVÖRUN! Sjá kafla um
Öryggismál.
Tækið gert virkt og óvirkt
Það fer eftir gerðinni hvort
heimilistækið þitt er með
hnappatákn, vísa eða ljós:
Vísirinn kviknar þegar ofninn
hitnar.
Ljósið kviknar þegar
heimilistækið vinnur.
Táknið sýnir hvort hnappurinn
stjórnar einni hellunni,
ofnaðgerðunum eða
hitastiginu.
1. Snúðu hnúðnum fyrir ofnaðgerðir til að
velja ofnaðgerð.
2. Snúðu hnúðnum fyrir hitastig til að velja
hitastig.
3. Til að slökkva á tækinu, skal snúa
hnúðnum fyrir ofnaðgerðir og hitastig í
stöðuna Slökkt.
Ofnaðgerðir
Ofnaðgerð Notkun
Slökkt-staða Slökkt er á tækinu.
Blástursofn Til að steikja eða steikja og baka mat með sama eldunarhi-
tastig, á fleiri en einni hillu, án þess að bragð smitist á milli.
6 Leonard
Ofnaðgerð Notkun
Hefðbundin ma-
treiðsla
Til að baka eða steikja mat á 1 hillustöðu.
Undirhiti Til að baka kökur með stökkum botni og til að sjóða niður
matvæli.
Blástursgrill Til að steikja stærri kjötstykki eða alifuglakjöt með beinum á
einni hillu. Einnig til að gratínera og brúna rétti.
Grillun Til að grilla flöt matvæli og rista brauð.
Afþíða Til að afþíða frosin matvæli.
Hnappar fyrir eldunarhellunar
Þú getur stjórnað helluborðinu með
hnöppunum. Sjá notandahandbók fyrir
helluborðið.
Þú verður að lesa öryggiskaflana
í notandahandbók helluborðsins.
Hitastillingar
Hnappmerki Aðgerð
0 Slökkt-staða
1 - 9 Hitastillingar
Rofi fyrir tvöfalda
hellu
1. Snúðu hnappinum á nauðsynlega
hitastillingu.
2. Til að klára eldunarferlið skal snúa
hnappinum í slökkt-stöðu.
Notkun tvöföldu hellunnar (ef
við á)
Til að kveikja á tvöföldu hellunni
skal snúa hnappinum réttsælis.
Ekki snúa honum framhjá
stoppstöðunni.
1. Snúðu hnappinum réttsælis í stöðu 9.
2. Snúðu hnappinum hægt að tákninu
þar til þú heyrir smell. Það er kveikt á
báðum hellunum.
3.
Til að stilla nauðsynlegar hitastillingar,
sjá „Hitastillingar“.
VIÐBÓTARSTILLINGAR
Kælivifta
Þegar tækið gengur kviknar sjálfvirkt á
kæliviftunni til að halda flötum tækisins
svölum. Ef þú slekkur á tækinu, heldur
kæliviftan áfram að starfa þangað til hitastig
heimilistækisins hefur lækkað.
Öryggishitastillir
Röng notkun tækisins eða bilun í íhlutum
getur orsakað hættulega ofhitnun. Til að
koma í veg fyrir þetta, hefur ofninn
öryggishitastilli sem rýfur
rafmagnstenginguna. Ofninn kveikir
sjálfkrafa á sér aftur þegar hitastigið lækkar.
Leonard 7
GÓÐ RÁÐ
AÐVÖRUN! Sjá kafla um
Öryggismál.
Hitastig og bökunartímar í
töflunum eru einungis til
viðmiðunar. Þeir eru háðir
uppskriftunum og gæðum og
magni þess innihaldsefnis sem
er í notkun.
Almennar upplýsingar
Heimilistækið hefur fjórar hillustöður.
Teldu hillustöðurnar að neðan frá botni
tækisins.
Tækið er með sérstakt kerfi sem setur
loftið í hringrás og endurnýtir stöðugt
gufuna. Með þessu kerfi getur þú eldað í
gufukenndu umhverfi og haldið matnum
mjúkum að innan og stökkum að utan.
Það minnkar eldunartíma og orkunotkun
niður í lágmark.
Raki getur þéttst í heimilistækinu eða á
glerplötum hurðarinnar. Þetta er eðlilegt.
Haltu þig alltaf frá heimilistækinu þegar
þú opnar hurð þess á meðan þú ert að
elda. Til að minnka rakaþéttinguna skaltu
láta heimilistækið ganga í 10 mínútur
áður en þú byrjar að elda.
Þurrkaðu burt raka eftir hverja notkun
tækisins.
Ekki setja hlutina beint á botn
heimilistækisins og ekki hylja einingarnar
með álpappír þegar þú eldar. Það getur
breytt árangrinum af bakstrinum og
skemmt glerungshúðina.
Kökur bakaðar
Opnaðu ekki ofnhurðina fyrr en 3/4
baksturstímans eru liðnir.
Ef þú notar tvær bökunarplötur á sama
tíma skaltu hafa eina tóma hæð á milli
þeirra.
Eldun á kjöti og fiski
Notaðu djúpa pönnu fyrir mjög feitan mat
til að koma í veg fyrir að blettir sem geta
verið varanlegir komi í ofninn.
Láttu kjötið standa í um það bil 15
mínútur áður en þú skerð það svo að
vökvinn seytli ekki út.
Til að koma í veg fyrir of mikinn reyk í
ofninum á meðan verið er að steikja skal
bæta svolitlu vatni í ofnskúffuna. Til að
koma í veg fyrir þéttingu reyks skal bæta
við vatni í hvert sinn sem það gufar upp.
Eldunartímar
Eldunartímar fara eftir tegund matvæla,
þéttni þeirra og magni.
Í byrjun skaltu fylgjast með frammistöðunni
þegar þú eldar. Finndu bestu stillingarnar
(hitastillingu, eldunartíma, o.s.frv.) fyrir
eldunaráhöldin þín, uppskriftir og skammta
þegar þú notar þetta tæki.
Bökunar- og steikingartafla
Kökur
Matvæli Hefðbundin ma-
treiðsla
Blástursofn Tími
(mín)
Athuga-
semdir
Hitastig
[°C]
Hillus-
taða
Hitastig
[°C]
Hillus-
taða
Þeyttar
uppskriftir
170 2 165 2 (1 og 3) 45 - 60 Í kökufor-
mi
8 Leonard
Matvæli Hefðbundin ma-
treiðsla
Blástursofn Tími
(mín)
Athuga-
semdir
Hitastig
[°C]
Hillus-
taða
Hitastig
[°C]
Hillus-
taða
Smjör-
deigsköku-
deig
170 2 160 2 (1 og 3) 20 - 30 Í kökufor-
mi
Súrmjól-
kur-osta-
kaka
170 1 165 2 70 - 80 Í 26 cm
kökuformi
Eplakaka
(Eplaba-
ka)
170 1 160 2 (1 og 3) 80 - 100 Í tveimur
20 cm
kökufor-
mum á
vírhillu
Fyllt rúllu-
kaka
175 2 150 2 60 - 80 Á böku-
narplötu
Opin
ávaxtaba-
ka
170 2 160 2 (1 og 3) 30 - 40 Í 26 cm
kökuformi
Ávaxtaka-
ka
170 2 155 2 50 - 60 Í 26 cm
kökuformi
Svampka-
ka (Fitu-
laus
svampka-
ka)
170 2 160 2 90 - 120 Í 26 cm
kökuformi
Jólakaka /
kaka með
ríkulegum
ávöxtum
170 2 160 2 50 - 60 Í 20 cm
kökuformi
Plómuter-
ta
1)
170 2 165 2 20 - 30 Í
brauðfor-
mi
Litlar kö-
kur
170 3 166 3 (1 og 3) 25 - 35 Á böku-
narplötu
Smákö-
kur
1)
150 3 140 3 (1 og 3) 30 - 35 Á böku-
narplötu
Mareng-
skaka
100 3 115 3 35 - 40 Á böku-
narplötu
Leonard 9
Matvæli Hefðbundin ma-
treiðsla
Blástursofn Tími
(mín)
Athuga-
semdir
Hitastig
[°C]
Hillus-
taða
Hitastig
[°C]
Hillus-
taða
Smáb-
rauð
1)
190 3 180 3 80 - 100 Á böku-
narplötu
Choux
1)
190 3 180 3 (1 og 3) 15 - 20 Á böku-
narplötu
Ávaxtabö-
kur á diski
180 3 170 2 25 - 35 Í 20 cm
kökuformi
Viktoríu-
samloka
180 1 eða 2 170 2 45 - 70 Vinstri +
hægri í
kökuformi
20 cm
Ávaxtaka-
ka með
miklum
ávöxtum
160 1 150 2 110 - 120 Í 24 cm
kökuformi
Viktoríu-
samloka
1)
170 1 160 1 50 - 60 Í 20 cm
kökuformi
1)
Forhita ofninn í 10 mínútur.
Brauð og pítsa
Matvæli
Hefðbundin ma-
treiðsla
Blástursofn Tími
(mín)
Athuga-
semdir
Hitastig
[°C]
Hillus-
taða
Hitastig
[°C]
Hillus-
taða
Hvítt
brauð
1)
190 1 195 1 60 - 70 1 - 2
stykki,
500 gr
hvert
stykki
Rúgbrauð 190 1 190 1 30 - 45 Í
brauðfor-
mi
Rúnnstyk-
ki
1)
190 2 180 2 (1 and
3)
25 - 40 6 - 8 rún-
nstykki á
bökunar-
plötu
Pítsa
1)
190 1 190 1 20 - 30 Í djúpri
ofnskúffu
10 Leonard
Matvæli Hefðbundin ma-
treiðsla
Blástursofn Tími
(mín)
Athuga-
semdir
Hitastig
[°C]
Hillus-
taða
Hitastig
[°C]
Hillus-
taða
Skonsur
1)
200 3 190 2 10 – 20 Á böku-
narplötu
1)
Forhita ofninn í 10 mínútur.
Bökur
Matvæli Hefðbundin ma-
treiðsla
Blástursofn Tími
(mín)
Athuga-
semdir
Hitastig
[°C]
Hillus-
taða
Hitastig
[°C]
Hillus-
taða
Pasta-ba-
ka
180 2 180 2 40 - 50 Í formi
Grænme-
tisbaka
200 2 200 2 45 - 60 Í formi
Opnar
eggjabö-
kur
190 1 190 1 40 - 50 Í formi
Lasagna 200 2 200 2 25 - 40 Í formi
Cannello-
ni
200 2 200 2 25 - 40 Í formi
Yorkshire-
búðin-
gur
1)
220 2 210 2 20 - 30 6-búðin-
ga form
1)
Forhita ofninn í 10 mínútur.
Kjöt
Matvæli
Hefðbundin ma-
treiðsla
Blástursofn Tími
(mín)
Athuga-
semdir
Hitastig
[°C]
Hillus-
taða
Hitastig
[°C]
Hillus-
taða
Nautakjöt 200 2 190 2 50 - 70 Á vírhillu
og djúpri
ofnskúffu
Svínakjöt 180 2 180 2 90 - 120 Á vírhillu
og djúpri
ofnskúffu
Leonard 11
Matvæli Hefðbundin ma-
treiðsla
Blástursofn Tími
(mín)
Athuga-
semdir
Hitastig
[°C]
Hillus-
taða
Hitastig
[°C]
Hillus-
taða
Kálfakjöt 190 2 175 2 90 - 120 Á vírhillu
og djúpri
ofnskúffu
Ensk nau-
tasteik,
léttsteikt
210 2 200 2 44 - 50 Á vírhillu
og djúpri
ofnskúffu
Ensk nau-
tasteik,
millisteikt
210 2 200 2 51 - 55 Á vírhillu
og djúpri
ofnskúffu
Ensk nau-
tasteik,
gegn-
steikt
210 2 200 2 55 - 60 Á vírhillu
og djúpri
ofnskúffu
Svínabó-
gur
180 2 170 2 120 - 150 Í djúpri
ofnskúffu
Svínas-
kanki
180 2 160 2 100 - 120 2 stykki í
djúpri ofn-
skúffu
Lambak-
jöt
190 2 190 2 110 - 130 Læri
Kjúklingur 200 2 200 2 70 - 85 Heill
Kalkúnn 180 1 160 1 210 - 240 Heill
Önd 175 2 160 2 120 - 150 Heil
Gæs 175 1 160 1 150 - 200 Heil
Kanína 190 2 175 2 60 - 80 Skorin í
bita
Héri 190 2 175 2 150 - 200 Skorinn í
bita
Fasani 190 2 175 2 90 - 120 Heill
12 Leonard
Fiskur
Matvæli Hefðbundin ma-
treiðsla
Blástursofn Tími
(mín)
Athuga-
semdir
Hitastig
[°C]
Hillus-
taða
Hitastig
[°C]
Hillus-
taða
Silungur /
kólguflek-
kur
190 2 175 2 (1 og 3) 40 - 55 3 - 4 fis-
kar
Túnfis-
kur / lax
190 2 175 2 (1 og 3) 35 - 60 4 - 6 flök
Að grilla
Forhitaðu tóman ofninn í 10
mínútum fyrir matreiðslu.
Matvæli Magn Hitastig
[°C]
Tími (mín) Hillus-
taða
Stykki (g) Fyrri hlið Seinni
hlið
Nautalund 4 800 250 12 - 15 12 - 14 3
Nautastei-
kur
4 600 250 10 - 12 6 - 8 3
Pylsur 8 - 250 12 - 15 10 - 12 3
Svínakó-
telettur
4 600 250 12 - 16 12 - 14 3
Kjúklingur
(klofinn í
tvennt)
2 1000 250 30 - 35 25 - 30 3
Kebab 4 - 250 10 - 15 10 - 12 3
Kjúklin-
gabringa
4 400 250 12 - 15 12 - 14 3
Hambor-
gari
6 600 250 20 - 30 - 3
Fiskflak 4 400 250 12 - 14 10 - 12 3
Ristaðar
samlokur
4 - 6 - 250 5 - 7 - 3
Ristað
brauð
4 - 6 - 250 2 - 4 2 - 3 3
Leonard 13
Blástursgrill
Notaðu þessa aðgerð við
hámarkshitastig 200°C.
Matvæli Magn Hitastig
[°C]
Tími (mín) Hillus-
taða
Stykki (g) Fyrri hlið Seinni
hlið
Úrbeinaðir
leggir (kal-
kúnn)
1 1000 200 30 - 40 20 - 30 3
Kjúklingur
(klofinn í
tvennt)
2 1000 200 25 - 30 20 - 30 3
Kjúklinga-
leggir
6 - 200 15 - 20 15 - 18 3
Akurhæ-
na
4 500 200 25 - 30 20 - 25 3
Grænme-
tisgratín
- - 200 20 - 25 - 3
Hörpudis-
kur
- - 200 15 - 20 - 3
Makríll 2 - 4 - 200 15 - 20 10 - 15 3
Fisks-
neiðar
4 - 6 800 200 12 - 15 8 - 10 3
UMHIRÐA OG ÞRIF
AÐVÖRUN! Sjá kafla um
Öryggismál.
Athugasemdir um hreinsun
Hreinsaðu tækið að framan með mjúkum
klút með volgu vatni og hreinsiefni.
Til að hreinsa málmfleti skal nota
venjulegt hreinsiefni.
Hreinsaðu ofninn að innan eftir hverja
notkun. Uppsöfnun fitu og annarra
matarleifa kann að leiða til eldsvoða.
Hreinsaðu langvarandi óhreinindi með
sérstöku ofnahreinsi.
Hreinsaðu alla aukahluti eftir hverja
notkun og láttu þá þorna. Notaðu
mjúkan klút með volgu vatni og
hreinsiefni.
Ef þú ert með fylgihluti sem matur festist
ekki við skal ekki hreinsa þá með
hörðum efnum, hlutum með beittum
brúnum eða í uppþvottavél. Það getur
valdið skemmdum á viðloðunarfríu
húðinni.
14 Leonard
Heimilistæki úr ryðfríu stáli eða
áli
Hreinsaðu ofnhurðina aðeins
með blautum svampi. Þurrkaðu
hana með mjúkum klút.
Ekki nota stálull, sýrur eða
svarfefni þar sem þau geta
skemmt yfirborð ofnsins.
Hreinsaðu stjórnborð ofnsins
með sömu varúðarráðstöfunum.
Hurðarþéttingin hreinsuð
Athugaðu reglulega hurðarþéttinguna.
Hurðarþéttingin er umhverfis ramma
ofnrýmisins sjálfs. Ekki nota tækið ef
hurðarþéttingin er skemmd. Hafðu
samband við viðurkennda
þjónustumiðstöð.
Til að hreinsa hurðarþéttinguna vísast til
almennra upplýsinga um hreinsun.
Ofnþak
AÐVÖRUN! Slökktu á
heimilistækinu áður en
hitaelementið er fjarlægt. Gættu
þess að heimilistækið sé kalt.
Það er hætta á bruna.
Þú getur fjarlægt hitaelementið til að
hreinsað ofnþakið á auðveldari hátt.
1. Fjarlægðu skrúfuna sem heldur
hitaelementinu. Í fyrsta skipti skaltu nota
skrúfjárn.
2. Togaðu hitaelementið varlega niður.
3. Hreinsaðu ofnþakið með mjúkum klút
með volgu vatni og hreinsiefni og láttu
það þorna.
Settu hitaelementið upp í öfugri röð.
AÐVÖRUN! Gakktu úr skugga
um að hitaelementið sé rétt sett
upp og geti ekki dottið niður.
Ofnhurðin hreinsuð
Ofnhurðin er með tvær glerplötur. Þú getur
fjarlægt ofnhurðina og innri glerplötuna til að
hreinsa hana.
Ofnhurðin getur lokast ef þú
reynir að fjarlægja innri
glerplötuna áður en þú fjarlægir
ofnhurðina.
VARÚÐ! Ekki nota heimilistækið
án innri glerplötunnar.
1.
Opnaðu hurðina til fulls og haltu
hurðarlömunum tveimur.
2. Lyftu og snúðu örmunum á lömunum
tveimur.
Leonard 15
3.
Lokaðu ofnhurðinni hálfa leið að fyrstu
lokunarstöðu. Togaðu síðan fram á við
og fjarlægðu hurðina úr sæti sínu.
4. Settu hurðina á mjúkan klút á stöðugu
undirlagi.
5. Losaðu læsingarkerfið til að fjarlægja
innri glerplötuna.
6. Snúðu festingunum tveimur um 90° og
fjarlægðu þær úr sætum sínum.
90°
7.
Lyftu fyrst varlega og fjarlægðu síðan
glerplötuna.
1
2
8. Hreinsaðu glerplötuna með vatni og
sápu. Þurrkaðu glerplötuna varlega.
Þegar hreinsun er lokið skaltu setja
glerplötuna og ofnhurðina í. Framkvæmdu
skrefin hér að ofan í öfugri röð.
Sáldprentunarsvæðið verður að snúa að
innri hlið hurðarinnar. Gakktu úr skugga um
eftir uppsetninguna að yfirborð
glerplöturammans á
sáldprentunarsvæðunum sé ekki gróft
viðkomu.
Gakktu úr skugga um að þú setjir innri
glerplötunar rétt í sætin.
16 Leonard
Skipt um ljósið
Settu klút á botn heimilistækisins. Það
kemur í veg fyrir skemmdir á glerhlíf ljóssins
og á ofnrýminu.
AÐVÖRUN! Hætta á raflosti!
Aftengdu öryggið áður en þú
skiptur um peru.
Ofnljósið og glerhlífin geta verið
heit.
1. Slökktu á heimilistækinu.
2. Taktu öryggin úr öryggjahólfinu eða
slökktu á útsláttarrofanum.
Baklýsingin
1. Snúðu glerhlífinni rangsælis til að
fjarlægja hana.
2.
Hreinsaðu glerhlífina.
3.
Endurnýjaðu peruna með viðeigandi
hitaþolinni peru sem þolir 300°C.
4.
Settu glerhlífina á.
BILANALEIT
AÐVÖRUN! Sjá kafla um
Öryggismál.
Hvað skal gera ef...
Vandamál Hugsanleg ástæða Úrlausn
Hellurnar virka ekki. Sjá notkunarleiðbeiningar fyrir innbyggða eldunarflötinn.
Ofninn hitnar ekki. Ofninn er afvirkjaður. Kveiktu á ofninum.
Ofninn hitnar ekki. Öryggi hefur slegið út. Gakktu úr skugga um að ör-
yggi sé orsök bilunarinnar. Ef
öryggið slær út aftur og aftur
skal hafa samband við raf-
virkjameistara.
Ljósið virkar ekki. Ljósið er bilað. Endurnýjaðu ljósið.
Gufa og raki sest á matinn og
inn í ofnrýmið.
Þú hafðir réttinn of lengi inni í
ofninum.
Ekki hafa réttina lengur í ofni-
num en 15 - 20 mínútur eftir
að eldunarferli er lokið.
Þjónustugögn
Ef þú getur ekki leyst vandamálið sjálf(ur)
skaltu hafa samband við söluaðila eða
viðurkennda þjónustumiðstöð.
Þau nauðsynlegu gögn sem
þjónustumiðstöðin þarf á að halda eru á
merkiplötunni. Merkiplatan er á fremri
ramma ofnrýmis heimilistækisins. Ekki skal
fjarlægja merkiplötuna úr rými tækisins.
Leonard 17
Við mælum með að þú skrifir upplýsingarnar hérna:
Gerð (MOD.) .........................................
Vörunúmer (PNC) .........................................
Raðnúmer (S.N.) .........................................
INNSETNING
AÐVÖRUN! Sjá kafla um
Öryggismál.
Byggt undir
VARÚÐ! Aðeins viðurkenndur
og hæfur einstaklingur má sjá
um uppsetningu
heimilistækisins. Ef þú hefur ekki
samband við viðurkenndan eða
hæfan einstakling verður
ábyrgðin ógild ef einhverjar
skemmdir verða.
Áður en heimilistækið er sett upp skaltu
setja viðeigandi helluborð á það samkvæmt
töflunni.
Gerð Hámarksafl
LEM 6000 E 7000 W
LES 6000 F 6000 W
LES 6060 F 7600 W
Raftenging við helluborð
Tengiinnstunga helluborðins er ofan á
ofnskápnum. Helluborðið er með
tengileiðslur fyrir eldunarhellurnar og
jarðtenginguna. Leiðslurnar eru með
ístungutengla. Til að tengja helluborðið við
ofninn skal setja tenglana í réttar innstungur
á ofninum. Hönnun tengla og innstunga
kemur í veg fyrir rangar tengingar.
Innbygging
589
598
594
114
19
21540
570
558
min. 550
20
600
min. 560
3
9
Heimilistækið fest við skápinn
A
B
Rafmagnsuppsetning
Framleiðandinn er ekki ábyrgur
ef þú fylgir ekki
öryggisvarúðarráðstöfununum í
öryggisköflunum.
Þetta tæki er afhent án rafmagnsklóar og -
snúru.
Kapall
Kapaltegundir sem viðeigandi eru fyrir
uppsetningu eða endurnýjun:
18 Leonard
H07 RN-F, H05 RN-F, H05 RRF, H05 VV-F,
H05 V2V2-F (T90), H05 BB-F
Fyrir þversnið kapalsins vísast til heildarafls
á merkiplötunni.
Að tengja tengibrettið
Heimilistækið er með sex skauta tengibretti.
Millitengingarnar (brýrnar) eru stilltar fyrir
notkun á 400 V, þriggja fasa með
núllleiðslu.
1 = 45 mm
2 = 45 mm
3 = 60 mm
4 = 60 mm
= 70 mm
1 2 3 4 5
L 1 – 2 – 3 = fasakaplar
N 4 = núllkapall
= jarðkapall
Ef spenna stofnleiðslu er önnur skal
endurraða millitengingunum á tengibrettinu
(sjá skýringarmynd af tengingum að neðan).
Tengdu jarðkapalinn við skautið. Þegar þú
hefur tengt aðfangakapalinn við tengibrettið
skaltu festa hann með samtengiklemmu.
1 2 3 4 5
1 2 3 4 5
1 2 3 4 5
1 2 3 4 5
230V 3~
230V 1~
400V 2N~
400V 3N~
L1
L1 N
L2
L1 N
N
L2
L3
L1
L2
L3
PE
PE
PE
PE
TÆKNILEGAR UPPLÝSINGAR
Tæknilegar upplýsingar
Spenna 230 / 400 V
Tíðni 50 Hz
ORKUNÝTNI
Upplýsingablað og upplýsingar í samræmi við ESB 65-66/2014
Nafn afhendingaraðila Leonard
Auðkenning gerðar LHN1310X
Orkunýtnistuðull 104.8
Orkunýtniflokkur A
Orkunotkun með venjulegu álagi, hefðbundin stilling 0.83 kWh/hringur
Orkunotkun með venjulegu álagi, viftudrifin stilling 0.81 kWh/hringur
Fjöldi holrúma 1
Leonard 19
Hitagjafi Rafmagn
Magn 53 l
Tegund ofns Undirbyggður ofn
Massi 27.8 kg
EN 60350-1 - Rafmagnseldunartæki til
heimilsnota - 1. hluti: Eldavélar, ofnar,
gufuofnar og grill - Aðferðir til að mæla
frammistöðu.
Orkuparnaður
Heimilistækið inniheldur aðgerðir sem hjálpa
þér að spara orku við hversdagslega
matreiðslu.
Almennar vísbendingar
Gættu þess að ofnhurðin sé
almennilega lokuð þegar tækið er í
gangi og haltu henni lokaðri eins
mikið og hægt er meðan á
matreiðslu stendur.
Notaðu málmdiska til að auka
orkusparnaðinn.
Ef hægt er skal setja matinn inn í
ofninn á þess að hita hann.
Þegar eldun tekur lengri tíma en 30
mínútur skaltu lækka ofnhitann eins
mikið og hægt er 3 - 10 mínútum
áður en eldun er lokið, eftir því
hversu langan tíma tekur að elda.
Hitinn inni í ofninum mun halda áfram
að elda.
Notaðu afgangshitann til að hita upp
annan mat.
Eldun með viftu - þegar hægt er skaltu
nota eldunaraðgerðir með viftu til að
spara orku.
Halda matnum heitum - ef þú vilt nota
afgangshitann til að halda máltíðinni heitri
skaltu velja lægstu mögulegu
hitastillingu.
UMHVERFISMÁL
Endurvinna þarf öll efni merkt tákninu .
Setjið umbúðirnar í viðeigandi sorpílát til
endurvinnslu. Leggið ykkar að mörkum til
verndar umhverfinu og heilsu manna og
dýra og endurvinnið rusl sem fylgir
raftækjum og raftrænum búnaði. Hendið
ekki heimilistækjum sem merkt eru með
tákninu í venjulegt heimilisrusl. Farið með
vöruna í næstu endurvinnslustöð eða hafið
samband við sveitarfélagið.
20 Leonard
*
  • Page 1 1
  • Page 2 2
  • Page 3 3
  • Page 4 4
  • Page 5 5
  • Page 6 6
  • Page 7 7
  • Page 8 8
  • Page 9 9
  • Page 10 10
  • Page 11 11
  • Page 12 12
  • Page 13 13
  • Page 14 14
  • Page 15 15
  • Page 16 16
  • Page 17 17
  • Page 18 18
  • Page 19 19
  • Page 20 20
  • Page 21 21
  • Page 22 22
  • Page 23 23
  • Page 24 24

Leonard LHN1310X Používateľská príručka

Typ
Používateľská príručka

V iných jazykoch