ZANKER KOB20601XB Používateľská príručka

Typ
Používateľská príručka
KOB20601XB
Notenda‐
leiðbeiningar
IS
Ofn
Efnisyfirlit
Öryggisupplýsingar 2
Öryggisleiðbeiningar 3
Vörulýsing 5
Fyrir fyrstu notkun 5
Dagleg notkun 5
Viðbótarstillingar 6
Góð ráð
6
Umhirða og þrif 12
Bilanaleit 14
Innsetning 15
Tæknilegar upplýsingar 15
Orkunýtni 16
Með fyrirvara á breytingum.
Öryggisupplýsingar
Fyrir uppsetningu tækisins og notkun þess, skal lesa meðfylgjandi
leiðbeiningar vandlega. Framleiðandinn er ekki ábyrgur fyrir tjóni ef röng
uppsetning eða notkun veldur líkamstjóni eða skemmdum. Alltaf skal geyma
leiðbeiningarnar með heimilistækinu til síðari notkunar.
Öryggi barna og viðkvæmra einstaklinga
Þetta tæki mega börn nota frá 8 ára aldri og einnig aðilar með skerta
líkamlega hæfni, skynjun eða geðslag eða sem skortir reynslu eða
þekkingu ef viðkomandi hafa fengið kennslu eða leiðbeiningar um hvernig
nota skal tækið á öruggan hátt og skilja þær hættur sem fylgja notkun
þess.
Börn mega ekki leika sér með tækið.
Öllum pakkningum skal halda fjarri börnum.
Halda skal börnum og gæludýrum fjarri tækinu þegar það er í gangi eða
þegar það kólnar. Aðgengilegir hlutar tækisins eru heitir.
Heimilistækið er með barnalæsingu, við mælum með notkun hennar.
Börn mega ekki hreinsa eða framkvæma viðhald á tækinu án þess að
vera undir eftirliti.
Halda skal börnum undir 3 ára aldri frá tækinu nema þau séu undir
ströngu eftirliti.
Almennt öryggi
Einungis til þess hæfur aðili má setja upp þetta heimilistæki og skipta um
rafmagnskapal.
Tækið hitnar að innan þegar það er í gangi. Ekki snerta hitaelementin sem
eru í heimilistækinu. Notaðu alltaf ofnhanska til að fjarlægja eða til að setja
aukahluti eða eldföst mót í ofninn.
Áður en viðhald hefst skal aftengja tækið frá rafmagni.
2
Tryggja skal að slökkt sé á tækinu áður en skipt er um ofnljós til að forðast
möguleika á raflosti.
Ekki nota gufuhreinsibúnað til að hreinsa heimilistækið.
Ekki nota sterk tærandi hreinsiefni eða skarpar málmskröpur til að hreinsa
glerhurðina þar sem slíkt getur eyðilagt yfirborðsfleti, sem getur aftur leitt
til þess að glerið brotnar.
Ef rafmagnssnúran er skemmd, verður að fá nýja frá framleiðanda,
þjónustuaðila hans eða svipuðum hæfum aðila til þess að koma í veg fyrir
hættu.
Öryggisleiðbeiningar
Uppsetning
AÐVÖRUN! Einungis til þess hæfur aðili
má setja upp þetta heimilistæki.
Fjarlægja skal allar umbúðir.
Ekki setja upp eða nota skemmt heimilistæki.
Fylgja skal uppsetningarleiðbeiningum sem fylgja
með tækinu.
Farðu alltaf varlega þegar þú hreyfir tækið af því að
það er þungt. Alltaf skal nota öryggishanska.
Ekki toga í handfangið á heimilistækinu eða draga
það á handfanginu.
Halda skal lágmarksfjarlægð frá hinum
heimilistækjunum og einingunum.
Gættu þess að tækinu sé komið fyrir undir og við
hliðina á traustum og stöðugum hlutum.
Hliðar ofnsins verða að standa beinar og við hlið
tækja eða eininga sem hafa sömu hæð.
Tenging við rafmagn
AÐVÖRUN! Eldhætta og hætta á raflosti.
Allar tengingar við rafmagn skulu framkvæmdar af
rafverktaka með tilskilin starfsréttindi.
Heimilistækið þarf að vera jarðtengt.
Gætið þess að rafmagnsupplýsingarnar á
tegundarspjaldinu passi við aflgjafann. Ef ekki, skal
hafa samband við rafvirkja.
Alltaf nota rétt uppsetta innstungu sem gefur ekki
raflost.
Ekki nota fjöltengi eða framlengingarsnúrur.
Gætið þess að rafmagnsklóin og snúran verði ekki
fyrir skemmdum. Ef skipta þarf um rafmagnssnúru
verður viðurkennt þjónustuver okkar að sjá um það.
Ekki láta rafmagnssnúruna komast í snertingu við
dyr tækisins, einkum þegar dyrnar eru heitar.
Vörn hluta gegn raflosti, verður að vera fest þannig
að ekki sé hægt að fjarlægja slíkar varnir án
verkfæra.
Aðeins skal tengja rafmagnsklóna við
rafmagnsinnstunguna í lok uppsetningarinnar.
Gætið þess að rafmagnsklóin sé aðgengileg eftir
uppsetningu.
Ef rafmagnsinnstungan er laus, skal ekki tengja
rafmagnsklóna.
Ekki toga í snúruna til að taka tækið úr sambandi.
Takið alltaf um klóna.
Notið aðeins réttan einangrunarbúnað:
línuvarnarstraumloka, öryggi (öryggi með skrúfgangi
fjarlægð úr höldunni), lekaliða og spólurofa.
Rafmagnsuppsetningin verður að vera með
einangrunarbúnað sem leyfir þér að aftengja tækið
frá stofnæð á öllum pólum. Einangrunarbúnaðurinn
verður að hafa að lágmarki 3 mm snertiopnunarvídd.
Þetta heimilistæki samræmist EBE-tilskipunum.
Notkun
AÐVÖRUN! Hætta á líkamstjóni, bruna,
raflosti eða sprengingu.
Einungis skal nota þetta heimilistæki innan veggja
heimilisins.
Ekki skal breyta sérhæfingu þessa tækis.
Gættu þess að loftrásartúður og op séu ekki stífluð.
Ekki skal láta tækið vera eftirlitslaust við notkun.
Slökktu á tækinu eftir hverja notkun.
Farðu varlega þegar þú opnar ofndyrnar á meðan
ofninn er í gangi. Losnað getur um heitt loft.
Ekki skal nota heimilistækið með rakar hendur eða
þegar tækið er í snertingu við vatn.
Ekki beita þrýstingi á opna hurð.
Ekki skal nota heimilistækið sem vinnusvæði eða
geymslusvæði.
3
Opnið dyrnar varlega. Notkun hráefna með alkóhóli
getur valdið blöndu alkóhóls og lofts.
Ekki láta neista eða opinn eld komast í snertingu við
tækið þegar þú opnar hurðina.
Ekki skal setja eldfimar vörur eða hluti sem eru
blautir af eldfimum vökva ofan á eða nálægt
heimilistækinu.
AÐVÖRUN! Hætta á skaða á tækinu.
Til að koma í veg fyrir skemmdir eða aflitun á
glerungnum:
ekki setja ofnvöru eða aðra hluti í tækið beint á
ofngólfið.
ekki setja álpappír beint á gólf heimilistækisins.
ekki setja vatn beint inn í heitt tækið.
ekki láta raka rétti og rök matvæli vera inni í
tækinu áfram eftir að matreiðslu er lokið.
farðu varlega þegar þú fjarlægir aukahluti eða
setur þá upp.
Aflitun á lakkmálningunni hefur engin áhrif á getu
eða frammistöðu tækisins. Það telst ekki vera galli
samkvæmt lögum um ábyrgð.
Notið djúpa pönnu fyrir rakar kökur. Ávaxtasafi getur
valdið varanlegum blettum.
Þetta heimilistæki er eingöngu ætlað til matreiðslu.
Það má ekki nota í öðrum tilgangi, til dæmis til
upphitunar á herbergjum.
Ávallt skal grilla með ofnhurðina lokaða
Ef heimilistækið er sett upp á bak við húsgagnaþil
(t.d hurð) skaltu gæta þess að hurðin sé aldrei lokuð
þegar heimilistækið er í notkun. Hiti og raki geta
byggst upp á bak við lokað húsgagnaþil og valdið
síðari skemmdum á heimilistækinu, húseiningunni
eða gólfinu. Lokaðu ekki húsgagnaþilinu fyrr en
heimilistækið hefur kólnað til fulls eftir notkun.
Umhirða og hreinsun
AÐVÖRUN! Hætta á líkamstjóni,
eldsvoða eða því að heimilistækið
skemmist.
Áður en viðhald fer fram á tækinu skal slökkva á því
og aftengja aðalklóna frá rafmagnsinnstungunni.
Gættu þess að heimilistækið sé kalt. Hætta er á að
glerplöturnar brotni.
Endurnýjaðu glerplöturnar í ofnhurðinni strax þegar
þær skemmast. Hafðu samband við viðurkennda
þjónustumiðstöð.
Vertu varkár þegar þú tekur hurðina af
heimilistækinu. Hurðin er þung!
Þrífið heimilistækið reglulega til að yfirborðsefnin á
því endist betur.
Fituleifar eða matarleifar í ofninum geta orsakað
eldsvoða.
Þvoðu tækið með rökum og mjúkum klút. Notaðu
aðeins mild þvottaefni. Ekki nota rispandi efni,
stálull, leysiefni eða málmhluti.
Ef þú notar ofnhreinsi skaltu hlýða
öryggisleiðbeiningunum á umbúðunum.
Ekki skal hreinsa hvataglerunginn (ef við á) með
neins konar hreinsiefni.
Ofnljósið
Sú tegund ljósaperu eða halógenlampa sem notuð
er fyrir þetta tæki er aðeins ætluð heimilistækjum.
Ekki nota það sem heimilisljós.
AÐVÖRUN! Hætta á raflosti.
Áður en skipt er um ljósið, skal aftengja
heimilistækið frá rafmagnsinntakinu.
Einungis skal nota ljósaperur sem hafa sömu
eiginleika.
Förgun
AÐVÖRUN! Hætta á líkamstjóni eða
köfnun.
Aftengja skal tækið frá rafmagnsgjafanum.
Klippa rafmagnssnúruna af og fleygja henni.
Fjarlægið dyraklemmuna til að koma í veg fyrir að
börn eða dýr geti lokast inni í tækinu.
Þjónusta
Hafðu samband við viðurkennda þjónustumiðstöð til
að gera við heimilistækið.
Notaðu eingöngu upprunalega varahluti.
4
Vörulýsing
Almennt yfirlit
6
7
8
9
4
3
2
1
10
21 3 4 5
1
Stjórnborð
2
Ljós fyrir hitastig / tákn / vísir
3
Hnappur fyrir hitastigið
4
Hnappur fyrir aðgerðir ofnsins
5
Aflljós / tákn / vísir
6
Loftop fyrir kæliviftuna
7
Hitaelement
8
Ljós
9
Vifta
10
Hillustöður
Aukabúnaður
Vírhilla
Fyrir eldunaráhöld, kökuform, steikur.
Bökunarplata úr áli
Fyrir kökur og smákökur.
Fyrir fyrstu notkun
AÐVÖRUN! Sjá kafla um Öryggismál.
Fyrsta hreinsun
Fjarlægðu allan aukabúnað úr tækinu.
Sjá kaflann „Umhirða og hreinsun“.
Hreinsaðu tækið fyrir fyrstu notkun.
Settu aukabúnaðinn aftur í upphaflega stöðu sína.
Forhitun
Forhitaðu tóman ofninn til að brenna burt þá fitu sem er
eftir.
1. Stilltu aðgerðina og hámarks hitastig.
2. Láttu tækið vinna í eina klukkustund.
3. Stilltu aðgerðina og hámarks hitastig.
4. Láttu tækið vinna í 15 mínútur.
Aukahlutir geta orðið heitari en venjulega. Ofninn getur
gefið frá sér lykt og reyk. Þetta er eðlilegt. Gættu þess
að loftflæði í herberginu sé nægjanlegt.
Dagleg notkun
AÐVÖRUN! Sjá kafla um Öryggismál.
5
Tækið gert virkt og óvirkt
Það fer eftir gerðinni hvort
heimilistækið þitt er með hnappatákn,
vísa eða ljós:
Vísirinn kviknar þegar ofninn hitnar.
Ljósið kviknar þegar heimilistækið
vinnur.
Táknið sýnir hvort hnappurinn
stjórnar ofnaðgerðum eða hitastiginu.
1. Snúðu hnúðnum fyrir ofnaðgerðir til að velja
ofnaðgerð.
2. Snúðu hnúðnum fyrir hitastig til að velja hitastig.
3. Til að slökkva á tækinu, skal snúa hnúðnum fyrir
ofnaðgerðir og hitastig í stöðuna Slökkt.
Ofnaðgerðir
Ofnaðgerð Notkun
Slökkt-staða Slökkt er á tækinu.
Blástursofn Til að steikja eða steikja og baka mat með sama eldunarhitastig, á fleiri
en einni hillu, án þess að bragð smitist á milli.
Hefðbundin ma-
treiðsla
Til að baka eða steikja mat á 1 hillustöðu.
Undirhiti Til að baka kökur með stökkum botni og til að sjóða niður matvæli.
Blástursgrill Til að steikja stærri kjötstykki eða alifuglakjöt með beinum á einni hillu.
Einnig til að gratínera og brúna rétti.
Grillun Til að grilla flöt matvæli og rista brauð.
Afþíða Til að afþíða frosin matvæli.
Viðbótarstillingar
Kælivifta
Þegar tækið gengur kviknar sjálfvirkt á kæliviftunni til að
halda flötum tækisins svölum. Ef þú slekkur á tækinu,
heldur kæliviftan áfram að starfa þangað til hitastig
heimilistækisins hefur lækkað.
Öryggishitastillir
Röng notkun tækisins eða bilun í íhlutum getur orsakað
hættulega ofhitnun. Til að koma í veg fyrir þetta, hefur
ofninn öryggishitastilli sem rýfur rafmagnstenginguna.
Ofninn kveikir sjálfkrafa á sér aftur þegar hitastigið
lækkar.
Góð ráð
AÐVÖRUN! Sjá kafla um Öryggismál. Hitastig og bökunartímar í töflunum eru
einungis til viðmiðunar. Þeir eru háðir
uppskriftunum og gæðum og magni þess
innihaldsefnis sem er í notkun.
6
Almennar upplýsingar
Heimilistækið hefur fjórar hillustöður. Teldu
hillustöðurnar að neðan frá botni tækisins.
Tækið er með sérstakt kerfi sem setur loftið í
hringrás og endurnýtir stöðugt gufuna. Með þessu
kerfi getur þú eldað í gufukenndu umhverfi og haldið
matnum mjúkum að innan og stökkum að utan. Það
minnkar eldunartíma og orkunotkun niður í lágmark.
Raki getur þéttst í heimilistækinu eða á glerplötum
hurðarinnar. Þetta er eðlilegt. Haltu þig alltaf frá
heimilistækinu þegar þú opnar hurð þess á meðan
þú ert að elda. Til að minnka rakaþéttinguna skaltu
láta heimilistækið ganga í 10 mínútur áður en þú
byrjar að elda.
Þurrkaðu burt raka eftir hverja notkun tækisins.
Ekki setja hlutina beint á botn heimilistækisins og
ekki hylja einingarnar með álpappír þegar þú eldar.
Það getur breytt árangrinum af bakstrinum og
skemmt glerungshúðina.
Kökur bakaðar
Opnaðu ekki ofnhurðina fyrr en 3/4 baksturstímans
eru liðnir.
Ef þú notar tvær bökunarplötur á sama tíma skaltu
hafa eina tóma hæð á milli þeirra.
Eldun á kjöti og fiski
Notaðu djúpa pönnu fyrir mjög feitan mat til að koma
í veg fyrir að blettir sem geta verið varanlegir komi í
ofninn.
Láttu kjötið standa í um það bil 15 mínútur áður en
þú skerð það svo að vökvinn seytli ekki út.
Til að koma í veg fyrir of mikinn reyk í ofninum á
meðan verið er að steikja skal bæta svolitlu vatni í
ofnskúffuna. Til að koma í veg fyrir þéttingu reyks
skal bæta við vatni í hvert sinn sem það gufar upp.
Eldunartímar
Eldunartímar fara eftir tegund matvæla, þéttni þeirra og
magni.
Í byrjun skaltu fylgjast með frammistöðunni þegar þú
eldar. Finndu bestu stillingarnar (hitastillingu,
eldunartíma, o.s.frv.) fyrir eldunaráhöldin þín, uppskriftir
og skammta þegar þú notar þetta tæki.
Bökunar- og steikingartafla
Kökur
Matvæli Hefðbundin matreiðsla Blástursofn Tími (mín) Athugasem-
dir
Hitastig (°C) Hillustaða Hitastig (°C) Hillustaða
Þeyttar up-
pskriftir
170 2 165 2 (1 og 3) 45 - 60 Í kökuformi
Smjördeig-
skökudeig
170 2 160 2 (1 og 3) 20 - 30 Í kökuformi
Súrmjólkur-
ostakaka
170 1 165 2 70 - 80 Í 26 cm kö-
kuformi
Eplakaka
(Eplabaka)
170 1 160 2 (1 og 3) 80 - 100 Í tveimur 20
cm kökufor-
mum á vír-
hillu
Fyllt rúlluka-
ka
175 2 150 2 60 - 80 Á bökunar-
plötu
Opin ávax-
tabaka
170 2 160 2 (1 og 3) 30 - 40 Í 26 cm kö-
kuformi
Ávaxtakaka 170 2 155 2 50 - 60 Í 26 cm kö-
kuformi
7
Matvæli Hefðbundin matreiðsla Blástursofn Tími (mín) Athugasem-
dir
Hitastig (°C) Hillustaða Hitastig (°C) Hillustaða
Svampkaka
(Fitulaus
svampkaka)
170 2 160 2 90 - 120 Í 26 cm kö-
kuformi
Jólakaka /
kaka með rí-
kulegum
ávöxtum
170 2 160 2 50 - 60 Í 20 cm kö-
kuformi
Plómuter-
ta
1)
170 2 165 2 20 - 30 Í brauðformi
Litlar kökur 170 3 166 3 (1 og 3) 25 - 35 Á bökunar-
plötu
Smákökur
1)
150 3 140 3 (1 og 3) 30 - 35 Á bökunar-
plötu
Marengska-
ka
100 3 115 3 35 - 40 Á bökunar-
plötu
Smábrauð
1)
190 3 180 3 80 - 100 Á bökunar-
plötu
Choux
1)
190 3 180 3 (1 og 3) 15 - 20 Á bökunar-
plötu
Ávaxtabökur
á diski
180 3 170 2 25 - 35 Í 20 cm kö-
kuformi
Viktoríu-
samloka
180 1 eða 2 170 2 45 - 70 Vinstri +
hægri í kö-
kuformi 20
cm
Ávaxtakaka
með miklum
ávöxtum
160 1 150 2 110 - 120 Í 24 cm kö-
kuformi
Viktoríu-
samloka
1)
170 1 160 1 50 - 60 Í 20 cm kö-
kuformi
1) Forhita ofninn í 10 mínútur.
8
Brauð og pítsa
Matvæli Hefðbundin matreiðsla Blástursofn Tími (mín) Athugasem-
dir
Hitastig (°C) Hillustaða Hitastig (°C) Hillustaða
Hvítt
brauð
1)
190 1 195 1 60 - 70 1 - 2 stykki,
500 gr hvert
stykki
Rúgbrauð 190 1 190 1 30 - 45 Í brauðformi
Rúnnstyk-
ki
1)
190 2 180 2 (1 and 3) 25 - 40 6 - 8 rún-
nstykki á
bökunarplö-
tu
Pítsa
1)
190 1 190 1 20 - 30 Í djúpri ofn-
skúffu
Skonsur
1)
200 3 190 2 10 – 20 Á bökunar-
plötu
1) Forhita ofninn í 10 mínútur.
Bökur
Matvæli Hefðbundin matreiðsla Blástursofn Tími (mín) Athugasem-
dir
Hitastig (°C) Hillustaða Hitastig (°C) Hillustaða
Pasta-baka 180 2 180 2 40 - 50 Í formi
Grænmetis-
baka
200 2 200 2 45 - 60 Í formi
Opnar egg-
jabökur
190 1 190 1 40 - 50 Í formi
Lasagna 200 2 200 2 25 - 40 Í formi
Cannelloni 200 2 200 2 25 - 40 Í formi
Yorkshire-
búðingur
1)
220 2 210 2 20 - 30 6-búðinga
form
1) Forhita ofninn í 10 mínútur.
Kjöt
Matvæli Hefðbundin matreiðsla Blástursofn Tími (mín) Athugasem-
dir
Hitastig (°C) Hillustaða Hitastig (°C) Hillustaða
Nautakjöt 200 2 190 2 50 - 70 Á vírhillu og
djúpri ofn-
skúffu
9
Matvæli Hefðbundin matreiðsla Blástursofn Tími (mín) Athugasem-
dir
Hitastig (°C) Hillustaða Hitastig (°C) Hillustaða
Svínakjöt 180 2 180 2 90 - 120 Á vírhillu og
djúpri ofn-
skúffu
Kálfakjöt 190 2 175 2 90 - 120 Á vírhillu og
djúpri ofn-
skúffu
Ensk nau-
tasteik, létt-
steikt
210 2 200 2 44 - 50 Á vírhillu og
djúpri ofn-
skúffu
Ensk nau-
tasteik, milli-
steikt
210 2 200 2 51 - 55 Á vírhillu og
djúpri ofn-
skúffu
Ensk nau-
tasteik,
gegnsteikt
210 2 200 2 55 - 60 Á vírhillu og
djúpri ofn-
skúffu
Svínabógur 180 2 170 2 120 - 150 Í djúpri ofn-
skúffu
Svínaskanki 180 2 160 2 100 - 120 2 stykki í
djúpri ofn-
skúffu
Lambakjöt 190 2 190 2 110 - 130 Læri
Kjúklingur 200 2 200 2 70 - 85 Heill
Kalkúnn 180 1 160 1 210 - 240 Heill
Önd 175 2 160 2 120 - 150 Heil
Gæs 175 1 160 1 150 - 200 Heil
Kanína 190 2 175 2 60 - 80 Skorin í bita
Héri 190 2 175 2 150 - 200 Skorinn í bi-
ta
Fasani 190 2 175 2 90 - 120 Heill
Fiskur
Matvæli Hefðbundin matreiðsla Blástursofn Tími (mín) Athugasem-
dir
Hitastig (°C) Hillustaða Hitastig (°C) Hillustaða
Silungur /
kólguflekkur
190 2 175 2 (1 og 3) 40 - 55 3 - 4 fiskar
10
Matvæli Hefðbundin matreiðsla Blástursofn Tími (mín) Athugasem-
dir
Hitastig (°C) Hillustaða Hitastig (°C) Hillustaða
Túnfiskur /
lax
190 2 175 2 (1 og 3) 35 - 60 4 - 6 flök
Að grilla
Forhitaðu tóman ofninn í 10 mínútum
fyrir matreiðslu.
Matvæli Magn Hitastig (°C) Tími (mín) Hillustaða
Stykki (g) Fyrri hlið Seinni hlið
Nautalund 4 800 250 12 - 15 12 - 14 3
Nautasteikur 4 600 250 10 - 12 6 - 8 3
Pylsur 8 - 250 12 - 15 10 - 12 3
Svínakóte-
lettur
4 600 250 12 - 16 12 - 14 3
Kjúklingur
(klofinn í
tvennt)
2 1000 250 30 - 35 25 - 30 3
Kebab 4 - 250 10 - 15 10 - 12 3
Kjúklingab-
ringa
4 400 250 12 - 15 12 - 14 3
Hamborgari 6 600 250 20 - 30 - 3
Fiskflak 4 400 250 12 - 14 10 - 12 3
Ristaðar
samlokur
4 - 6 - 250 5 - 7 - 3
Ristað
brauð
4 - 6 - 250 2 - 4 2 - 3 3
Blástursgrill
Notaðu þessa aðgerð við
hámarkshitastig 200°C.
11
Matvæli Magn Hitastig (°C) Tími (mín) Hillustaða
Stykki (g) Fyrri hlið Seinni hlið
Úrbeinaðir
leggir (kal-
kúnn)
1 1000 200 30 - 40 20 - 30 3
Kjúklingur
(klofinn í
tvennt)
2 1000 200 25 - 30 20 - 30 3
Kjúklinga-
leggir
6 - 200 15 - 20 15 - 18 3
Akurhæna 4 500 200 25 - 30 20 - 25 3
Grænmetis-
gratín
- - 200 20 - 25 - 3
Hörpudiskur - - 200 15 - 20 - 3
Makríll 2 - 4 - 200 15 - 20 10 - 15 3
Fisksneiðar 4 - 6 800 200 12 - 15 8 - 10 3
Umhirða og þrif
AÐVÖRUN! Sjá kafla um Öryggismál.
Athugasemdir um hreinsun
Hreinsaðu tækið að framan með mjúkum klút með
volgu vatni og hreinsiefni.
Til að hreinsa málmfleti skal nota venjulegt
hreinsiefni.
Hreinsaðu ofninn að innan eftir hverja notkun.
Uppsöfnun fitu og annarra matarleifa kann að leiða
til eldsvoða.
Hreinsaðu langvarandi óhreinindi með sérstöku
ofnahreinsi.
Hreinsaðu alla aukahluti eftir hverja notkun og láttu
þá þorna. Notaðu mjúkan klút með volgu vatni og
hreinsiefni.
Ef þú ert með fylgihluti sem matur festist ekki við
skal ekki hreinsa þá með hörðum efnum, hlutum
með beittum brúnum eða í uppþvottavél. Það getur
valdið skemmdum á viðloðunarfríu húðinni.
Heimilistæki úr ryðfríu stáli eða áli
Hreinsaðu ofnhurðina aðeins með
blautum svampi. Þurrkaðu hana með
mjúkum klút.
Ekki nota stálull, sýrur eða svarfefni þar
sem þau geta skemmt yfirborð ofnsins.
Hreinsaðu stjórnborð ofnsins með sömu
varúðarráðstöfunum.
Hurðarþéttingin hreinsuð
Athugaðu reglulega hurðarþéttinguna.
Hurðarþéttingin er umhverfis ramma ofnrýmisins
sjálfs. Ekki nota tækið ef hurðarþéttingin er skemmd.
Hafðu samband við viðurkennda þjónustumiðstöð.
Til að hreinsa hurðarþéttinguna vísast til almennra
upplýsinga um hreinsun.
Ofnþak
AÐVÖRUN! Slökktu á heimilistækinu
áður en hitaelementið er fjarlægt. Gættu
þess að heimilistækið sé kalt. Það er
hætta á bruna.
12
Þú getur fjarlægt hitaelementið til að hreinsað ofnþakið
á auðveldari hátt.
1. Fjarlægðu skrúfuna sem heldur hitaelementinu. Í
fyrsta skipti skaltu nota skrúfjárn.
2. Togaðu hitaelementið varlega niður.
3. Hreinsaðu ofnþakið með mjúkum klút með volgu
vatni og hreinsiefni og láttu það þorna.
Settu hitaelementið upp í öfugri röð.
AÐVÖRUN! Gakktu úr skugga um að
hitaelementið sé rétt sett upp og geti ekki
dottið niður.
Ofnhurðin hreinsuð
Ofnhurðin er með tvær glerplötur. Þú getur fjarlægt
ofnhurðina og innri glerplötuna til að hreinsa hana.
Ofnhurðin getur lokast ef þú reynir að
fjarlægja innri glerplötuna áður en þú
fjarlægir ofnhurðina.
VARÚÐ! Ekki nota heimilistækið án innri
glerplötunnar.
1
Opnaðu hurðina til fulls
og haltu hurðarlömunum
tveimur.
1
2
Lyftu og snúðu örmunum
á lömunum tveimur.
2
3
Lokaðu ofnhurðinni hálfa
leið að fyrstu
lokunarstöðu. Togaðu
síðan fram á við og
fjarlægðu hurðina úr sæti
sínu.
3
4
Settu hurðina á mjúkan
klút á stöðugu undirlagi.
4
5
Losaðu læsingarkerfið til
að fjarlægja innri
glerplötuna.
5
90°
6
Snúðu festingunum
tveimur um 90° og
fjarlægðu þær úr sætum
sínum.
6
2
1
7
Lyftu fyrst varlega og
fjarlægðu síðan
glerplötuna.
7
Hreinsaðu glerplötuna með vatni og sápu. Þurrkaðu
glerplötuna varlega.
Þegar hreinsun er lokið skaltu setja glerplötuna og
ofnhurðina í. Framkvæmdu skrefin hér að ofan í öfugri
röð.
Sáldprentunarsvæðið verður að snúa að innri hlið
hurðarinnar. Gakktu úr skugga um eftir uppsetninguna
að yfirborð glerplöturammans á
sáldprentunarsvæðunum sé ekki gróft viðkomu.
Gakktu úr skugga um að þú setjir innri glerplötunar rétt í
sætin.
13
Skipt um ljósið
Settu klút á botn heimilistækisins. Það kemur í veg fyrir
skemmdir á glerhlíf ljóssins og á ofnrýminu.
AÐVÖRUN! Hætta á raflosti! Aftengdu
öryggið áður en þú skiptur um peru.
Ofnljósið og glerhlífin geta verið heit.
1. Slökktu á heimilistækinu.
2. Taktu öryggin úr öryggjahólfinu eða slökktu á
útsláttarrofanum.
Baklýsingin
1. Snúðu glerhlífinni rangsælis til að fjarlægja hana.
2. Hreinsaðu glerhlífina.
3. Endurnýjaðu peruna með viðeigandi hitaþolinni
peru sem þolir 300°C.
4. Settu glerhlífina á.
Bilanaleit
AÐVÖRUN! Sjá kafla um Öryggismál.
Hvað skal gera ef...
Vandamál Hugsanleg orsök Úrlausn
Ofninn hitnar ekki. Ofninn er afvirkjaður. Kveiktu á ofninum.
Ofninn hitnar ekki. Öryggi hefur slegið út. Gakktu úr skugga um að öryggi sé
orsök bilunarinnar. Ef öryggið slær
út aftur og aftur skal hafa samband
við rafvirkjameistara.
Ljósið virkar ekki. Ljósið er bilað. Endurnýjaðu ljósið.
Gufa og raki sest á matinn og inn í
ofnrýmið.
Þú hafðir réttinn of lengi inni í ofni-
num.
Ekki hafa réttina lengur í ofninum en
15 - 20 mínútur eftir að eldunarferli
er lokið.
Þjónustugögn
Ef þú getur ekki leyst vandamálið sjálf(ur) skaltu hafa
samband við söluaðila eða viðurkennda
þjónustumiðstöð.
Þau nauðsynlegu gögn sem þjónustumiðstöðin þarf á
að halda eru á merkiplötunni. Merkiplatan er á fremri
ramma ofnrýmis heimilistækisins. Ekki skal fjarlægja
merkiplötuna úr rými tækisins.
Við mælum með að þú skrifir upplýsingarnar hérna:
Gerð (MOD.) .........................................
Vörunúmer (PNC) .........................................
Raðnúmer (S.N.) .........................................
14
Innsetning
AÐVÖRUN! Sjá kafla um Öryggismál.
Innbygging
589
598
594
114
19
21540
570
558
min. 550
20
600
min. 560
3
9
min. 550
20
590
min. 560
589
598
594
114
19
21540
570
558
3
9
Heimilistækið fest við skápinn
A
B
Rafmagnsuppsetning
Framleiðandinn er ekki ábyrgur ef þú
fylgir ekki öryggisvarúðarráðstöfununum
í öryggisköflunum.
Þetta tæki er afhent með rafmagnskló og -snúru.
Kapall
Kapaltegundir sem viðeigandi eru fyrir uppsetningu eða
endurnýjun:
H07 RN-F, H05 RN-F, H05 RRF, H05 VV-F, H05 V2V2-
F (T90), H05 BB-F
Fyrir þversnið kapalsins vísast til heildarafls á
merkiplötunni og til kapalsins:
Heildarafl (W) Þversnið kapals (mm²)
að hámarki 1380 3 x 0,75
að hámarki 2300 3 x 1
að hámarki 3680 3 x 1,5
Jarðstrengurinn (grænn / gulur kapall) verður að vera 2
cm lengri en fasinn og núllkapallinn (bláir og brúnir
kaplar).
Tæknilegar upplýsingar
Tæknilegar upplýsingar
Spenna 230 V
Tíðni 50 Hz
15
Orkunýtni
Upplýsingablað og upplýsingar í samræmi við ESB 65-66/2014
Nafn afhendingaraðila Zanker
Auðkenning gerðar KOB20601XB
Orkunýtnistuðull 105.2
Orkunýtniflokkur A
Orkunotkun með venjulegu álagi, hefðbundin stilling 0.83 kWh/hringrás
Orkunotkun með venjulegu álagi, viftudrifin stilling 0.81 kWh/hringrás
Fjöldi holrúma 1
Hitagjafi Rafmagn
Magn 53 l
Tegund ofns Innbyggður ofn
Massi 27.5 kg
EN 60350-1 - Rafmagnseldunartæki til heimilsnota - 1.
hluti: Eldavélar, ofnar, gufuofnar og grill - Aðferðir til að
mæla frammistöðu.
Orkusparnaður
Heimilistækið inniheldur aðgerðir sem hjálpa þér að
spara orku við hversdagslega matreiðslu.
Almennar vísbendingar
Gættu þess að ofnhurðin sé almennilega lokuð
þegar tækið er í gangi og haltu henni lokaðri
eins mikið og hægt er meðan á matreiðslu
stendur.
Notaðu málmdiska til að auka orkusparnaðinn.
Ef hægt er skal setja matinn inn í ofninn án
þess að hita hann.
Þegar eldun tekur lengri tíma en 30 mínútur
skaltu lækka ofnhitann eins mikið og hægt er 3
- 10 mínútum áður en eldun er lokið, eftir því
hversu langan tíma tekur að elda. Hitinn inni í
ofninum mun halda áfram að elda.
Notaðu afgangshitann til að hita upp annan
mat.
Eldun með viftu - þegar hægt er skaltu nota
eldunaraðgerðir með viftu til að spara orku.
Halda matnum heitum - ef þú vilt nota
afgangshitann til að halda máltíðinni heitri skaltu
velja lægstu mögulegu hitastillingu.
UMHVERFISMÁL
Endurvinna þarf öll efni merkt tákninu . Setjið
umbúðirnar í viðeigandi sorpílát til endurvinnslu. Leggið
ykkar að mörkum til verndar umhverfinu og heilsu
manna og dýra og endurvinnið rusl sem fylgir raftækjum
og raftrænum búnaði. Hendið ekki heimilistækjum sem
merkt eru með tákninu í venjulegt heimilisrusl. Farið
með vöruna í næstu endurvinnslustöð eða hafið
samband við sveitarfélagið.
16
*
17
18
19
www.electrolux.com/shop
892944795-A-442014
  • Page 1 1
  • Page 2 2
  • Page 3 3
  • Page 4 4
  • Page 5 5
  • Page 6 6
  • Page 7 7
  • Page 8 8
  • Page 9 9
  • Page 10 10
  • Page 11 11
  • Page 12 12
  • Page 13 13
  • Page 14 14
  • Page 15 15
  • Page 16 16
  • Page 17 17
  • Page 18 18
  • Page 19 19
  • Page 20 20

ZANKER KOB20601XB Používateľská príručka

Typ
Používateľská príručka

V iných jazykoch