ZANKER KOB10301XB Používateľská príručka

Typ
Používateľská príručka
KOB10301XB
Notenda‐
leiðbeiningar
IS
Ofn
Efnisyfirlit
Öryggisupplýsingar 2
Öryggisleiðbeiningar 3
Vörulýsing 5
Fyrir fyrstu notkun 5
Dagleg notkun 5
Að nota fylgihluti 6
Viðbótarstillingar 6
Góð ráð 7
Umhirða og þrif 10
Bilanaleit 12
Innsetning 12
Tæknigögn 14
Orkunýtni 14
Með fyrirvara á breytingum.
Öryggisupplýsingar
Fyrir uppsetningu og notkun heimilistækisins skal lesa meðfylgjandi
leiðbeiningar vandlega. Framleiðandinn ber ekki ábyrgð á neinum meiðslum
eða skemmdum sem leiða af rangri uppsetningu eða notkun. Geymdu alltaf
leiðbeiningarnar á öruggum stað þar sem auðvelt er að nálgast þær til síðari
notkunar.
Öryggi barna og viðkvæmra einstaklinga
Börn, 8 ára og eldri og fólk með minnkaða líkamlega-, skyn- eða andlega
getu, eða sem skortir reynslu og þekkingu, mega nota þetta tæki, ef þau
eru undir eftirliti eða hafa verið veittar leiðbeiningar varðandi örugga
notkun tækisins og ef þau skilja hættuna sem því fylgir.
Leyfðu ekki börnum að leika sér með tækið.
Haltu öllum umbúðum frá börnum og fargaðu þeim á viðeigandi hátt.
Halda skal börnum og gæludýrum fjarri heimilistækinu þegar það er í
gangi eða þegar það kólnar. Aðgengilegir hlutar eru heitir.
Ef heimilistækið er með barnalæsingu ætti hún að vera virkjuð.
Börn eiga ekki að hreinsa eða framkvæma notandaviðhald á
heimilistækinu án eftirlits.
Alltaf verður að halda börnum 3 ára og eldri frá þessu heimilistæki þegar
það er í notkun.
Almennt öryggi
Einungis til þess hæfur aðili má setja upp þetta heimilistæki og skipta um
snúruna.
VIÐVÖRUN: Heimilistækið og aðgengilegir hlutar þess hitna við notkun.
Auðsýna ætti aðgát til að forðast að snerta hitaelementin. Halda skal
börnum yngri en 8 ára frá tækinu nema þau séu undir stöðugu eftirliti.
2
Notaðu alltaf ofnhanska til að fjarlægja eða setja inn aukahluti eða
ofnáhöld.
Áður en viðhald hefst skal aftengja tækið frá rafmagni.
Tryggðu að slökkt sé á tækinu áður en þú skiptir um ljósið til að forðast
möguleika á raflosti.
Ekki nota gufuhreinsibúnað til að hreinsa heimilistækið.
Ekki nota sterk tærandi hreinsiefni eða beittar málmsköfur til að hreinsa
glerhurðina þar sem slíkt getur rispað yfirborðið, sem getur aftur leitt til
þess að glerið brotnar.
Ef rafmagnssnúra er skemmd verður framleiðandi, viðurkennd
þjónustumiðstöð eða svipað hæfur aðili að endurnýja hana til að forðast
hættu vegna rafmagns.
Öryggisleiðbeiningar
Uppsetning
AÐVÖRUN! Einungis til þess hæfur aðili
má setja upp þetta heimilistæki.
Fjarlægðu allar umbúðir.
Ekki setja upp eða nota skemmt heimilistæki.
Fylgdu leiðbeiningum um uppsetningu sem fylgja
með heimilistækinu.
Alltaf skal sýna aðgát þegar heimilistækið er fært
vegna þess að það er þungt. Notaðu alltaf
öryggishanska og lokaðan skóbúnað.
Ekki draga heimilistækið á handfanginu.
Haltu lágmarksfjarlægð frá hinum heimilistækjunum
og einingunum.
Gættu þess að heimilistækinu sé komið fyrir undir
og við hliðina á traustum og stöðugum hlutum.
Hliðar heimilistækisins verða að standa beinar og
við hlið tækja eða eininga sem hafa sömu hæð.
Tenging við rafmagn
AÐVÖRUN! Eldhætta og hætta á raflosti.
Allar tengingar við rafmagn skulu framkvæmdar af
rafverktaka með tilskilin starfsréttindi.
Heimilistækið þarf að vera jarðtengt.
Gakktu úr skugga um að rafmagnsupplýsingarnar á
merkiplötunni passi við aflgjafann. Ef ekki, skal hafa
samband við rafvirkja.
Notaðu alltaf rétt ísetta innstungu sem ekki veldur
raflosti.
Notaðu ekki fjöltengi eða framlengingarsnúrur.
Gakktu úr skugga um að rafmagnsklóin og snúran
verði ekki fyrir skemmdum. Ef skipta þarf um
rafmagnssnúru verður viðurkennd þjónustumiðstöð
okkar að sjá um það.
Ekki láta rafmagnssnúrurnar komast í snertingu við
hurð tækisins, einkum þegar hurðin er heit.
Raflostsvörn lifandi og einangraðra hluta verður að
vera fest þannig að ekki sé hægt að fjarlægja hana
án verkfæra.
Aðeins skal tengja rafmagnsklóna við
rafmagnsinnstunguna í lok uppsetningarinnar.
Gakktu úr skugga um að rafmagnsklóin sé
aðgengileg eftir uppsetningu.
Ef rafmagnsinnstungan er laus, skal ekki tengja
rafmagnsklóna.
Ekki toga í snúruna til að taka tækið úr sambandi.
Taktu alltaf um klóna.
Notaðu aðeins réttan einangrunarbúnað:
Línuvarnarstraumloka, öryggi (öryggi með
skrúfgangi fjarlægð úr höldunni), lekaliða og
spólurofa.
Rafmagnsuppsetningin verður að vera með
einangrunarbúnað sem leyfir þér að aftengja tækið
frá stofnæð á öllum pólum. Einangrunarbúnaðurinn
verður að hafa að lágmarki 3 mm snertiopnunarvídd.
Þetta heimilistæki samræmist EBE-tilskipunum.
Notkun
AÐVÖRUN! Hætta á líkamstjóni, bruna,
raflosti eða sprengingu.
Þetta heimilistæki er eingöngu ætlað til heimilisnota.
Breyttu ekki tæknilýsingu fyrir þetta heimilistæki.
Gættu þess að loftræstiop séu ekki stífluð.
Láttu heimilistækið ekki vera án eftirlits á meðan það
er í gangi.
3
Slökktu á heimilistækinu eftir hverja notkun.
Farðu varlega þegar þú opnar hurð heimilistækisins
á meðan það er í gangi. Heitt loft getur losnað út.
Notaðu ekki heimilistækið með blautar hendur eða
þegar það er í snertingu við vatn.
Beittu ekki þrýstingi á opna hurð.
Notaðu ekki heimilistækið sem vinnusvæði eða
geymslusvæði.
Opnaðu hurð heimilistækisins varlega. Notkun
hráefna með alkóhóli getur valdið blöndu alkóhóls
og lofts.
Láttu ekki neista eða opinn eld komast í sneringu við
heimilistækið þegar þú opnar hurðina.
Settu ekki eldfim efni eða hluti sem eru blautir af
eldfimum efnum nálægt eða á heimilistækið.
Notaðu ekki örbylgjuaðgerðina til að forhita ofninn.
AÐVÖRUN! Hætta á skaða á tækinu.
Til að koma í veg fyrir skemmdir eða aflitun á
glerungnum:
Settu ekki ofnáhöld eða aðra hluti í
heimilistækið beint á botninn.
Settu ekki álpappír beint á botn
heimilistækisins.
Settu ekki vatn beint inn í heitt heimilistækið.
Láttu ekki raka rétti og rök matvæli vera inni í
heimilistækinu eftir að matreiðslu er lokið.
Farðu varlega þegar þú fjarlægir aukahluti eða
setur þá upp.
Aflitun á glerungnum hefur engin áhrif á getu eða
frammistöðu heimilistækisins.
Notaðu djúpa skúffu fyrir rakar kökur. Ávaxtasafi
veldur blettum sem geta verið varanlegir.
Þetta heimilistæki er eingöngu til að matreiða með.
Ekk má nota það í öðrum tilgangi, til dæmis að hita
herbergi.
Alltaf skal elda með ofnhurðina lokaða.
Ef heimilistækið er sett upp á bak við húsgagnaþil
(t.d hurð) skaltu gæta þess að hurðin sé aldrei lokuð
þegar heimilistækið er í notkun. Hiti og raki geta
byggst upp á bak við lokað húsgagnaþil og valdið
síðari skemmdum á heimilistækinu, húseiningunni
eða gólfinu. Lokaðu ekki húsgagnaþilinu fyrr en
heimilistækið hefur kólnað til fulls eftir notkun.
Umhirða og hreinsun
AÐVÖRUN! Hætta á líkamstjóni,
eldsvoða eða því að heimilistækið
skemmist.
Áður en viðhald fer fram skal slökkva á
heimilistækinu og aftengja rafmagnsklóna frá
rafmagnsinnstungunni.
Gættu þess að heimilistækið sé kalt. Hætta er á að
glerplöturnar brotni.
Endurnýjaðu glerplöturnar í ofnhurðinni strax þegar
þær skemmast. Hafðu samband við viðurkennda
þjónustumiðstöð.
Vertu varkár þegar þú tekur hurðina af
heimilistækinu. Hurðin er þung!
Hreinsaðu heimilistækið reglulega til að
yfirborðsefnin á því endist betur.
Hreinsaðu tækið með rökum og mjúkum klút.
Notaðu aðeins mild þvottaefni. Notaðu ekki neinar
rispandi vörur, stálull, leysiefni eða málmhluti.
Ef þú notar ofnhreinsi skaltu hlýða
öryggisleiðbeiningunum á umbúðunum.
Ekki skal hreinsa hvataglerunginn (ef við á) með
neins konar hreinsiefni.
Ofnljósið
Sú tegund ljósaperu eða halógenlampa sem notuð
er fyrir þetta tæki er aðeins ætluð heimilistækjum.
Ekki nota það sem heimilisljós.
AÐVÖRUN! Hætta á raflosti.
Áður en skipt er um ljósið, skal aftengja
heimilistækið frá rafmagnsinntakinu.
Einungis skal nota ljósaperur sem hafa sömu
eiginleika.
Förgun
AÐVÖRUN! Hætta á líkamstjóni eða
köfnun.
Aftengdu tækið frá rafmagni.
Klipptu rafmagnssnúruna af upp við heimilistækið og
fargaðu henni.
Fjarlægðu hurðarlokuna til að koma í veg fyrir að
börn eða gæludýr festist inni í heimilistækinu.
Þjónusta
Hafðu samband við viðurkennda þjónustumiðstöð til
að gera við heimilistækið.
Notaðu eingöngu upprunalega varahluti.
4
Vörulýsing
Almennt yfirlit
6
7
4
3
2
1
8
21 3 4 5
1
Stjórnborð
2
Hitavísir / tákn
3
Hnúður fyrir hitastigið
4
Hnúður fyrir aðgerðir ofnsins
5
Aflljós / tákn
6
Loftop fyrir kæliviftuna
7
Ljós
8
Hillustöður
Fylgihlutir
Vírhilla
Fyrir eldunaráhöld, kökuform, steikur.
Bökunarplata úr áli
Fyrir kökur og smákökur.
Fyrir fyrstu notkun
AÐVÖRUN! Sjá kafla um Öryggismál.
Fyrsta hreinsun
Fjarlægðu allan aukabúnað úr tækinu.
Sjá kaflann „Umhirða og hreinsun“.
Hreinsaðu tækið og aukabúnaðinn fyrir fyrstu notkun.
Settu aukabúnaðinn aftur í upphaflega stöðu sína.
Forhitun
Forhitaðu tóman ofninn til að brenna burt þá fitu sem er
eftir.
1. Stilltu aðgerðina og hámarkshitastigið.
2. Láttu heimilistækið vinna í eina klukkustund.
Fylgihlutir geta orðið heitari en venjulega. Heimilistækið
getur gefið frá sér lykt og reyk. Þetta er eðlilegt. Gættu
þess að loftflæði í herberginu sé nægjanlegt.
Dagleg notkun
AÐVÖRUN! Sjá kafla um Öryggismál.
Virkjun og afvirkjun heimilistækisins
Það fer eftir gerðinni hvort
heimilistækið þitt er með ljós,
hnappatákn, eða vísa:
Ljósið kviknar þegar heimilistækið
vinnur.
Táknið sýnir hvort hnappurinn
stjórnar ofnaðgerðum eða hitastiginu.
Vísirinn kviknar þegar ofninn hitnar.
5
1. Snúðu hnúðnum fyrir ofnaðgerðir til að velja
ofnaðgerð.
2. Snúðu hnúðnum fyrir hitastig til að velja hitastig.
3. Til að slökkva á tækinu, skal snúa hnúðnum fyrir
ofnaðgerðir og hitastig í stöðuna Slökkt.
Ofnaðgerðir
Ofnaðgerð Notkun
Slökkt-staða Slökkt er á heimilistækinu.
Hefðbundin mat-
reiðsla
Til að baka eða steikja mat á einni hillustöðu.
Undirhiti Til að baka kökur með stökkum botni og til að sjóða niður matvæli.
Yfirhiti Til að brúna brauð, kökur og bakkelsi. Til að fullgera eldaða rétti.
Að nota fylgihluti
AÐVÖRUN! Sjá kafla um Öryggismál.
Aukabúnaðurinn settur í
Vírhilla:
Ýttu hillunni milli stýristanganna á hillustoðinni og gakktu
úr skugga um að fóturinn snúi niður.
Bökunarplata:
Ýttu bökunarplötunni milli stýristanganna á hillustoðinni.
Viðbótarstillingar
Kælivifta
Þegar tækið gengur kviknar sjálfvirkt á kæliviftunni til að
halda flötum tækisins svölum. Ef þú slekkur á
heimilistækinu stöðvast kæliviftan.
Öryggishitastillir
Röng notkun tækisins eða bilun í íhlutum getur orsakað
hættulega ofhitnun. Til að koma í veg fyrir þetta, hefur
ofninn öryggishitastilli sem rýfur rafmagnstenginguna.
Ofninn kveikir sjálfkrafa á sér aftur þegar hitastigið
lækkar.
6
Góð ráð
AÐVÖRUN! Sjá kafla um Öryggismál.
Hitastig og bökunartímar í töflunum eru
einungis til viðmiðunar. Þeir eru háðir
uppskriftunum og gæðum og magni þess
innihaldsefnis sem er í notkun.
Almennar upplýsingar
Heimilistækið hefur fjórar hillustöður. Teldu
hillustöðurnar að neðan frá botni tækisins.
Raki getur þéttst í heimilistækinu eða á glerplötum
hurðarinnar. Þetta er eðlilegt. Haltu þig alltaf frá
heimilistækinu þegar þú opnar hurð þess á meðan
þú ert að elda. Til að minnka rakaþéttinguna skaltu
láta heimilistækið ganga í 10 mínútur áður en þú
byrjar að elda.
Þurrkaðu burt raka eftir hverja notkun tækisins.
Ekki setja hlutina beint á botn heimilistækisins og
ekki hylja einingarnar með álpappír þegar þú eldar.
Það getur breytt árangrinum af bakstrinum og
skemmt glerungshúðina.
Kökur bakaðar
Opnaðu ekki ofnhurðina fyrr en 3/4 baksturstímans
eru liðnir.
Ef þú notar tvær bökunarplötur á sama tíma skaltu
hafa eina tóma hæð á milli þeirra.
Eldun á kjöti og fiski
Notaðu djúpa pönnu fyrir mjög feitan mat til að koma
í veg fyrir að blettir sem geta verið varanlegir komi í
ofninn.
Láttu kjötið standa í um það bil 15 mínútur áður en
þú skerð það svo að vökvinn seytli ekki út.
Til að koma í veg fyrir of mikinn reyk í ofninum á
meðan verið er að steikja skal bæta svolitlu vatni í
ofnskúffuna. Til að koma í veg fyrir þéttingu reyks
skal bæta við vatni í hvert sinn sem það gufar upp.
Eldunartímar
Eldunartímar fara eftir tegund matvæla, þéttni þeirra og
magni.
Í byrjun skaltu fylgjast með frammistöðunni þegar þú
eldar. Finndu bestu stillingarnar (hitastillingu,
eldunartíma, o.s.frv.) fyrir eldunaráhöldin þín, uppskriftir
og skammta þegar þú notar þetta tæki.
Bökunar- og steikingartafla
Kökur
Matvæli Hefðbundin matreiðsla Tími (mín) Athugasemdir
Hitastig (°C) Hillustaða
Þeyttar uppskriftir 170 2 45 - 60 Í kökuformi
Smjördeigskökud-
eig
170 2 24 - 34 Í kökuformi
Súrmjólkur-ostak-
aka
170 1 60 - 80 Í 26 cm kökuformi
Eplakaka (Eplab-
aka)
170 1 100 - 120 Í tveimur 20 cm
kökuformum á vír-
hillu
Fyllt rúllukaka 175 2 60 - 80 Á bökunarplötu
Opin ávaxtabaka 170 2 30 - 40 Í 26 cm kökuformi
Ávaxtakaka 170 2 60 - 70 Í 26 cm kökuformi
7
Matvæli Hefðbundin matreiðsla Tími (mín) Athugasemdir
Hitastig (°C) Hillustaða
Svampkaka (Fitu-
laus svampkaka)
170 2 35 - 45 Í 26 cm kökuformi
Jólakaka / kaka
með ríkulegum
ávöxtum
170 2 50 - 60 Í 20 cm kökuformi
Plómuterta
1)
170 2 50 - 60 Í brauðformi
Litlar kökur 170 3 20 - 30 Á bökunarplötu
Smákökur
1)
150 3 20 - 30 Á bökunarplötu
Marengskaka 100 3 90 - 120 Á bökunarplötu
Smábrauð
1)
190 3 15 - 20 Á bökunarplötu
Choux
1)
190 3 25 - 35 Á bökunarplötu
Ávaxtabökur á diski 180 3 45 - 70 Í 20 cm kökuformi
Viktoríu-samloka 180 1 eða 2 40 - 55 Vinstri + hægri í
kökuformi 20 cm
1) Forhita ofninn í 10 mínútur.
Brauð og pítsa
Matvæli Hefðbundin matreiðsla Tími (mín) Athugasemdir
Hitastig (°C) Hillustaða
Hvítt brauð
1)
190 1 60 - 70 1 - 2 stykki, 500 gr
eitt stykki
Rúgbrauð 190 1 30 - 45 Í brauðformi
Rúnnstykki
1)
190 2 25 - 40 6 - 8 rúnnstykki á
bökunarplötu
Pítsa
1)
190 1 20 - 30 Í djúpri ofnskúffu
Skonsur
1)
200 3 10 - 20 Á bökunarplötu
1) Forhita ofninn í 10 mínútur.
8
Bökur
Matvæli Hefðbundin matreiðsla Tími (mín) Athugasemdir
Hitastig (°C) Hillustaða
Pasta-baka 180 2 40 - 50 Í formi
Grænmetisbaka 200 2 45 - 60 Í formi
Opnar eggjabökur 190 1 40 - 50 Í formi
Lasagna 200 2 25 - 40 Í formi
Cannelloni 200 2 25 - 40 Í formi
Yorkshire-búðing-
ur
1)
220 2 20 - 30 6-búðinga form
1) Forhita ofninn í 10 mínútur.
Kjöt
Matvæli Hefðbundin matreiðsla Tími (mín) Athugasemdir
Hitastig (°C) Hillustaða
Nautakjöt 200 2 50 - 70 Á vírhillu og djúpri
ofnskúffu
Svínakjöt 180 2 90 - 120 Á vírhillu og djúpri
ofnskúffu
Kálfakjöt 190 2 90 - 120 Á vírhillu og djúpri
ofnskúffu
Ensk nautasteik,
léttsteikt
210 2 44 - 50 Á vírhillu og djúpri
ofnskúffu
Ensk nautasteik,
millisteikt
210 2 51 - 55 Á vírhillu og djúpri
ofnskúffu
Ensk nautasteik,
gegnsteikt
210 2 55 - 60 Á vírhillu og djúpri
ofnskúffu
Svínabógur 180 2 120 - 150 Í djúpri ofnskúffu
Svínaskanki 180 2 100 - 120 2 stykki í djúpri
ofnskúffu
Lambakjöt 190 2 110 - 130 Læri
Kjúklingur 200 2 70 - 85 Heill í djúpri ofnsk-
úffu
Kalkúnn 180 1 210 - 240 Heill í djúpri ofnsk-
úffu
9
Matvæli Hefðbundin matreiðsla Tími (mín) Athugasemdir
Hitastig (°C) Hillustaða
Önd 175 2 120 - 150 Heil í djúpri ofnsk-
úffu
Gæs 175 1 150 - 200 Heil í djúpri ofnsk-
úffu
Kanína 190 2 60 - 80 Skorin í bita
Héri 190 2 150 - 200 Skorinn í bita
Fasani 190 2 90 - 120 Heill í djúpri ofnsk-
úffu
Fiskur
Matvæli Hefðbundin matreiðsla Tími (mín) Athugasemdir
Hitastig (°C) Hillustaða
Silungur / kólgu-
flekkur
190 2 40 - 55 3 - 4 fiskar
Túnfiskur / lax 190 2 35 - 60 4 - 6 flök
Umhirða og þrif
AÐVÖRUN! Sjá kafla um Öryggismál.
Athugasemdir um hreinsun
Hreinsaðu tækið að framan með mjúkum klút með
volgu vatni og hreinsiefni.
Til að hreinsa málmfleti skal nota sérstakt
hreinsiefni.
Hreinsaðu ofninn að innan eftir hverja notkun.
Uppsöfnun fitu og annarra matarleifa kann að leiða
til eldsvoða.
Hreinsaðu langvarandi óhreinindi með sérstökum
ofnahreinsi.
Hreinsaðu alla aukahluti eftir hverja notkun og láttu
þá þorna. Notaðu mjúkan klút með volgu vatni og
hreinsiefni.
Ef þú ert með fylgihluti sem matur festist ekki við
skal ekki hreinsa þá með hörðum efnum, hlutum
með beittum brúnum eða í uppþvottavél. Það getur
valdið skemmdum á viðloðunarfríu húðinni.
Heimilistæki úr ryðfríu stáli eða áli
Hreinsaðu ofnhurðina aðeins með rökum
klút eða svampi. Þurrkaðu hana með
mjúkum klút.
Ekki nota stálull, sýrur eða svarfefni þar
sem þau geta skemmt yfirborð ofnsins.
Hreinsaðu stjórnborð ofnsins með sömu
varúðarráðstöfunum.
Hurðarþéttingin hreinsuð
Athugaðu reglulega hurðarþéttinguna.
Hurðarþéttingin er umhverfis ramma ofnrýmisins
sjálfs. Ekki nota tækið ef hurðarþéttingin er skemmd.
Hafðu samband við viðurkennda þjónustumiðstöð.
Til að hreinsa hurðarþéttinguna vísast til almennra
upplýsinga um hreinsun.
Ofnhurðin hreinsuð
Ofnhurðin er með tvær glerplötur. Þú getur fjarlægt
ofnhurðina og innri glerplötuna til að hreinsa hana.
10
Ofnhurðin getur lokast ef þú reynir að
fjarlægja innri glerplötuna áður en þú
fjarlægir ofnhurðina.
VARÚÐ! Ekki nota heimilistækið án innri
glerplötunnar.
1
Opnaðu hurðina til fulls
og haltu hurðarlömunum
tveimur.
1
2
Lyftu og snúðu örmunum
á lömunum tveimur.
2
3
Lokaðu ofnhurðinni hálfa
leið að fyrstu
lokunarstöðu. Togaðu
síðan fram á við og
fjarlægðu hurðina úr sæti
sínu.
3
4
Settu hurðina á mjúkan
klút á stöðugu undirlagi.
4
5
Losaðu læsingarkerfið til
að fjarlægja innri
glerplötuna.
5
90°
6
Snúðu festingunum
tveimur um 90° og
fjarlægðu þær úr sætum
sínum.
6
2
1
7
Lyftu fyrst varlega og
fjarlægðu síðan
glerplötuna.
7
Hreinsaðu glerplötuna með vatni og sápu. Þurrkaðu
glerplötuna varlega.
Þegar hreinsun er lokið skaltu setja glerplötuna og
ofnhurðina í. Framkvæmdu skrefin hér að ofan í öfugri
röð.
Sáldprentunarsvæðið verður að snúa að innri hlið
hurðarinnar. Gakktu úr skugga um eftir uppsetninguna
að yfirborð glerplöturammans á
sáldprentunarsvæðunum sé ekki gróft viðkomu.
Gakktu úr skugga um að þú setjir innri glerplötunar rétt í
sætin.
Skipt um ljósið
Settu klút á botn heimilistækisins. Það kemur í veg fyrir
skemmdir á glerhlíf ljóssins og á ofnrýminu.
AÐVÖRUN! Hætta á raflosti! Aftengdu
öryggið áður en þú skiptur um peru.
Ofnljósið og glerhlífin geta verið heit.
1. Slökktu á heimilistækinu.
2. Taktu öryggin úr öryggjahólfinu eða slökktu á
útsláttarrofanum.
Baklýsingin
1. Snúðu glerhlífinni rangsælis til að fjarlægja hana.
2. Hreinsaðu glerhlífina.
3. Endurnýjaðu peruna með viðeigandi hitaþolinni
peru sem þolir 300 °C.
4. Settu glerhlífina á.
11
Bilanaleit
AÐVÖRUN! Sjá kafla um Öryggismál.
Hvað skal gera ef...
Vandamál Hugsanleg orsök Úrlausn
Ofninn hitnar ekki. Slökkt er á ofninum. Kveiktu á ofninum.
Ofninn hitnar ekki. Öryggi hefur sprungið. Gakktu úr skugga um að öryggi sé
orsök bilunarinnar. Ef öryggið
springur aftur og aftur skal hafa
samband við rafvirkjameistara.
Ljósið virkar ekki. Ljósið er bilað. Endurnýjaðu ljósið.
Gufa og raki sest á matinn og inn í
ofnrýmið.
Þú hafðir réttinn of lengi inni í ofnin-
um.
Ekki hafa réttina lengur í ofninum en
15 - 20 mínútur eftir að eldunarferli
er lokið.
Þjónustugögn
Ef þú getur ekki leyst vandamálið sjálf(ur) skaltu hafa
samband við söluaðila eða viðurkennda
þjónustumiðstöð.
Þau nauðsynlegu gögn sem þjónustumiðstöðin þarf á
að halda eru á merkiplötunni. Merkiplatan er á fremri
ramma ofnrýmis heimilistækisins. Ekki skal fjarlægja
merkiplötuna úr rými tækisins.
Við mælum með að þú skrifir upplýsingarnar hérna:
Gerð (MOD.) .........................................
Vörunúmer (PNC) .........................................
Raðnúmer (S.N.) .........................................
Innsetning
AÐVÖRUN! Sjá kafla um Öryggismál.
12
Innbygging
589
598
594
114
19
21540
570
558
min. 550
20
600
min. 560
3
9
min. 550
20
590
min. 560
589
598
594
114
19
21540
570
558
3
9
Heimilistækið fest við skápinn
A
B
Rafmagnsuppsetning
Framleiðandinn er ekki ábyrgur ef þú
fylgir ekki öryggisvarúðarráðstöfununum
í öryggisköflunum.
Þetta tæki er afhent með rafmagnskló og -snúru.
Kapall
Kapaltegundir sem viðeigandi eru fyrir uppsetningu eða
endurnýjun:
H07 RN-F, H05 RN-F, H05 RRF, H05 VV-F, H05 V2V2-
F (T90), H05 BB-F
Fyrir þversnið kapalsins vísast til heildarafls á
merkiplötunni. Þú getur einnig vísað til töflunnar:
Heildarafl (W) Þversnið kapals (mm²)
að hámarki 1380 3 x 0.75
að hámarki 2300 3 x 1
að hámarki 3680 3 x 1.5
Jarðstrengurinn (grænn / gulur kapall) verður að vera 2
cm lengri en fasinn og núllkapallinn (bláir og brúnir
kaplar).
13
Tæknigögn
Tæknilegar upplýsingar
Spenna 230 V
Tíðni 50 Hz
Orkunýtni
Upplýsingablað og upplýsingar í samræmi við ESB 65-66/2014
Nafn afhendingaraðila Zanker
Auðkenning gerðar KOB10301XB
Orkunýtnistuðull 105,1
Orkunýtniflokkur A
Orkunotkun með venjulegu álagi, hefðbundin stilling 0,83 kWh/hringrás
Fjöldi holrúma 1
Hitagjafi Rafmagn
Magn 56 l
Tegund ofns Innbyggður ofn
Massi 25.0 kg
EN 60350-1 - Rafmagnseldunartæki til heimilisnota - 1.
hluti: Eldavélar, ofnar, gufuofnar og grill - Aðferðir til að
mæla frammistöðu.
Orkusparnaður
Heimilistækið hefur eiginleika sem hjálpa þér að spara
orku við hversdagslega matreiðslu.
Almennar vísbendingar
Gættu þess að ofnhurðin sé almennilega lokuð
þegar tækið er í gangi og haltu henni lokaðri
eins mikið og hægt er meðan á matreiðslu
stendur.
Notaðu málmdiska til að auka orkusparnað.
Ef hægt er skal setja matinn inn í ofninn án
þess að hita hann.
Þegar eldun tekur lengri tíma en 30 mínútur
skaltu lækka ofnhitann eins mikið og hægt er 3
- 10 mínútum áður en eldun er lokið, eftir því
hversu langan tíma tekur að elda. Hitinn inni í
ofninum mun halda áfram að elda.
Notaðu afgangshitann til að hita upp aðra rétti.
Halda matnum heitum - ef þú vilt nota
afgangshitann til að halda máltíð heitri skaltu velja
lægstu mögulegu hitastillingu.
UMHVERFISMÁL
Endurvinna þarf öll efni merkt tákninu . Setjið
umbúðirnar í viðeigandi sorpílát til endurvinnslu. Leggið
ykkar að mörkum til verndar umhverfinu og heilsu
manna og dýra og endurvinnið rusl sem fylgir raftækjum
og raftrænum búnaði. Hendið ekki heimilistækjum sem
merkt eru með tákninu í venjulegt heimilisrusl. Farið
með vöruna í næstu endurvinnslustöð eða hafið
samband við sveitarfélagið.
14
*
15
www.electrolux.com/shop
892944778-C-192016
  • Page 1 1
  • Page 2 2
  • Page 3 3
  • Page 4 4
  • Page 5 5
  • Page 6 6
  • Page 7 7
  • Page 8 8
  • Page 9 9
  • Page 10 10
  • Page 11 11
  • Page 12 12
  • Page 13 13
  • Page 14 14
  • Page 15 15
  • Page 16 16

ZANKER KOB10301XB Používateľská príručka

Typ
Používateľská príručka

V iných jazykoch