Aeg-Electrolux L64851 Používateľská príručka

Typ
Používateľská príručka
LAVAMAT 64851
Notendahandbók Þvottavél
132966590_IS.qxd 20/03/2008 9.53 Page 1
Kæri viðskiptavinur.
Þakka þér fyrir að velja eina af okkar hágæða vörum.
Þessi vara sameinar notagildi fallegrar hönnunar og nýjustu tækni.
Þú getur verið viss um að heimilistækin okkar eru hönnuð til að standast hæstu
kröfur í gæðum og notkun. Við setjum markið hátt og samþykkjum einungis það
besta á hverjum tíma.
Að auki muntu komast að því að tekið er tillit til orkusparnaðar- og
umhverfisverndunarsjónarmiða í framleiðslunni.
Til að tryggja hámarks nýtingu og rétta notkun á tækinu biðjum við þig um að
kynna þér vel þessar notendaleiðbeiningar. Geymdu bæklinginn á vísum stað svo
hann sé ávallt til taks ef á þarf að halda og láttu hann fylgja með ef þú selur tækið
eða afhendir það öðrum.
Til hamingju með nýja heimilistækið.
2
Eftirfarandi tákn eru notuð í handbókinni:
Mikilvægar upplýsingar varðandi persónulegt öryggi og hvernig maður kemst hjá því
að valda skemmdum á heimilistækinu
Almennar upplýsingar og góð ráð
Umhverfisupplýsingar
132966590_IS.qxd 20/03/2008 9.53 Page 2
Efnisyfirlit
Leiðbeiningar fyrir notandann 6
Upplýsingar um öryggismál 6
Lýsing 9
Þvottaefnisskúffa 9
Stjórnborð 10
Skjár 11
Gaumljós 12
Fyrsta notkun 13
Persónulegt val 13
Hljóðmerki 13
Barnalæsing 13
Dagleg notkun 14
Setjið þvottinn í vélina 14
Mælið skammt af þvottaefni og mýkingarefni 14
Veljið þvottakerfi með þvottakerfisskífunni 15
Veljið vinduhraða eða HALDA SKOLVATNI valkostinn 15
Aukavalhnappur 15
Veljið aukavalið FORÞVOTTUR 16
Veljið aukavalið BLETTAÞVOTTUR 16
Veljið aukavalið VIÐKVÆMT 16
Veljið aukavalið TÍMI 16
Veljið START/STOPP 17
Veljið TÍMAVAL 17
Veljið AUKASKOLUN 18
Breyta valkosti eða byrja þvottakerfi 18
Rjúfa þvottakerfi 18
Aflýsa þvottakerfi 18
3
Efnisyfirlit
132966590_IS.qxd 20/03/2008 9.53 Page 3
Opna dyrnar eftir að þvottakerfi byrjar 18
Lok þvottakerfis 19
Þvottakerfi 20
Upplýsingar um þvottakerfi 22
Undirbúningur þvottahrings 23
Flokkun á þvotti 23
Hitastig 23
Áður en þvottur er settur í vélina 23
Hámarkshleðsla 24
Þvottahleðsla 24
Fjarlæging bletta 25
Þvottaefni og bætiefni 25
Magn af þvottaefni notað 26
Herslustig vatns 26
Umhirða og hreinsun 27
Kalkhreinsun 27
Eftir hvern þvott 27
Viðhaldsþvottur 27
Þvottur á ytra byrði 27
Þvottaefnisskúffa 27
Þvottatromla 28
Hurðargúmmí 28
Skolvatnsdæla 29
Sía á vatnsinntaki 30
Neyðartæming 30
Frostvarnir 31
Hvað skal gera ef ... 32
Tæknilegar upplýsingar 35
Notkun á orku, vatni og tíma 36
4
Efnisyfirlit
132966590_IS.qxd 20/03/2008 9.53 Page 4
Uppsetning og tenging 37
Umbúðir fjarlægðar 37
Staðsetning og jafnvægisstilling 39
Vatnsinntak 39
Lekavari 40
Frárennsli 40
Tenging við rafmagn 41
Varanleg tenging 41
Umhverfisvernd 42
Efni í umbúðum 42
Gömul þvottavél 42
Vistfræðileg heillaráð 42
5
Efnisyfirlit
132966590_IS.qxd 20/03/2008 9.53 Page 5
6
Leiðbeiningar fyrir notandann
Upplýsingar um öryggismál
Fyrir fyrstu notkun
Öryggi AEG/ELECTROLUX heimilistækja er í samræmi við kröfur í iðnaðinum og
lagaskilyrði um öryggi heimilistækja. Sem framleiðendum finnst okkur hins
vegar við bera skyldu til þess að gefa eftirfarandi öryggisaðvaranir. Þú VERÐUR
að lesa þær vandlega áður en þú setur upp eða notar heimilistækið.
Það er mjög mikilvægt að geyma þessa leiðbeiningabók með heimilistækinu til
upplýsingar í framtíðinni. Ef heimilistækið er selt eða gefið nýjum eiganda, eða
ef flutt er og heimilistækið er skilið eftir, tryggið ávallt að bókin fylgi
heimilistækinu svo að nýi eigandinn læri á hvernig það virkar og þekki
viðeigandi aðvaranir.
Þú VERÐUR að lesa leiðbeiningarnar vandlega áður en þú setur upp eða notar
heimilistækið.
Áður en vélin er notuð í fyrsta sinn skal skoða hvort hún hafi nokkuð orðið fyrir
tjóni við flutning. Aldrei skal tengja vél sem hefur orðið fyrir skemmdum. Hafið
samband við söluaðila ef hlutar vélarinnar eru skemmdir.
Ef heimilistækið er afhent að vetri þegar frost er: Geymið þvottavélina við
stofuhita í 24 klukkustundir áður en hún er notuð í fyrsta skipti.
Almennt öryggi
Það er hættulegt að breyta eiginleikum eða á annað borð reyna að breyta
þessari vöru á nokkurn hátt.
Hurðin getur hitnað þegar þvegið er á háum hita. Ekki snerta hana!
Tryggið að lítil gæludýr klifri ekki inn í tromluna. Skoðið inn í tromluna fyrir
notkun til að fyrirbyggja slíkt.
Hlutir eins og smápeningar, nælur, naglar, skrúfur, steinar eða aðrir harðir,
hvassir hlutir geta valdið miklu tjóni og því má alls ekki setja þá í þvottavélina.
Notið einungis ráðlagðan skammt af þvottaefni og mýkingarefni. Þvotturinn
getur skemmst við yfirfyllingu. Farið eftir ráðlögðum skömmtum frá
framleiðanda.
Þvoið litla hluti eins og sokka, reimar, belti sem má þvo o. s. frv. í þvottapoka
eða koddaveri þar sem slíkir hlutir geta runnið niður á milli belgs og innri
tromlu.
Ekki skal nota þvottavélina til að þvo hluti með spöngum í eða ófaldað eða rifið
efni.
Upplýsingar um öryggismál
132966590_IS.qxd 20/03/2008 9.53 Page 6
7
Takið heimilistækið alltaf úr sambandi og skrúfið fyrir vatnið eftir notkun, þrif
og viðhald.
Reynið ekki undir neinum kringumstæðum að gera við vélina upp á eigin
spýtur. Ef óreyndir aðilar reyna að framkvæma viðgerðir getur það valdið
meiðslum eða alvarlegri bilun. Hafið samband við viðgerðaraðila á staðnum.
Farið alltaf fram á að upprunalegir varahlutir frá framleiðanda séu notaðir.
Uppsetning og tenging
Þegar umbúðirnar eru fjarlægðar, gangið úr skugga um að heimilistækið sé ekki
skemmt. Ef nokkur vafi leikur á því skal ekki nota tækið heldur hafa samband
við viðgerðaraðila.
Fjarlægja verður allar flutningsfestingar og umbúðir fyrir notkun. Alvarlegar
skemmdir geta orðið á eignum og vörunni sjálfri ef ekki er farið eftir þessu. Sjá
viðeigandi kafla í notendahandbókinni.
Þegar búið er að setja upp og tengja heimilistækið, gangið úr skugga um að
það standi ekki eða þrýsti á rafmagnssnúruna, inntaks- eða affallsslönguna.
Ef vélin stendur á teppalögðu gólfi, vinsamlegast stillið fæturna þannig að loft
streymi um neðra byrðið.
Gangið ávallt úr skugga um að hvergi leki vatn úr slöngum og tengingum eftir
uppsetningu.
Ef heimilistækið er í umhverfi sem getur frosið, vinsamlegast lesið kaflann
frosthætta“.
Hvers kyns pípulagningavinna sem þarf við uppsetningu þessa heimilistækis
skal framkvæmd af pípulagningamanni með viðeigandi réttindi eða öðrum
aðila sem hæfur er til verksins.
Hvers kyns rafmagnsvinna sem þarf við uppsetningu þessa heimilistækis skal
framkvæmd af rafvirkja með viðeigandi réttindi eða öðrum aðila sem hæfur er
til verksins.
Notkun
Þetta heimilistæki er ætlað til einka- og heimilisnota. Ekki má nota það til
annars en það var hannað til að gera.
Þvoið einungis þvott sem má setja í þvottavél. Fylgið leiðbeiningum á
þvottamiða fatnaðarins.
Setjið ekki of mikið í vélina. Sjá viðeigandi kafla í notendahandbókinni.
Rennið upp rennilásum, hneppið tölum og tæmið vasa áður en fatnaður er
þveginn. Þvoið ekki slitinn eða rifinn þvott og meðhöndlið bletti, eins og
málningu, blek, ryð og gras á viðeigandi hátt fyrir þvott. Brjóstahaldarar með
spöng mega EKKI fara í þvottavél.
Upplýsingar um öryggismál
132966590_IS.qxd 20/03/2008 9.53 Page 7
Flíkur sem hafa komist í snertingu við rokgjarnar olíuvörur ættu ekki að fara í
þvottavél. Ef rokgjörn hreinsiefni eru notuð skal fjarlægja slík efni úr flíkinni
áður en hún fer í þvottavélina.
Aldrei toga í rafmagnssnúruna til að fjarlægja klóna úr innstungunni; takið
ávallt um klóna sjálfa.
Notið aldrei þvottavél ef rafmagnssnúran, stjórnborðið, vinnuflöturinn eða
undirstaðan eru skemmdar þannig að greiður aðgangur sé að innra byrði
vélarinnar.
Öryggi barna
Þetta heimilistæki er ekki ætlað fólki (að börnum meðtöldum) með skerta
skynjun, skerta andlega getu eða litla reynslu og þekkingu nema viðkomandi sé
undir eftirliti eða leiðsögn persónu, sem ber ábyrgð á öryggi viðkomandi.
Hafa skal eftirlit með að ung börn leiki sér ekki með þetta heimilistæki.
Umbúðirnar (t.d. plastfilma, einangrunarplast) geta verið hættulegar börnum -
hætta á köfnun! Geymið þar sem börn ná ekki til.
Geymið öll þvottaefni á öruggum stað þar sem börn ná ekki til.
Tryggið að börn eða gæludýr klifri ekki
inn í tromluna. Vélin er með
öryggisbúnað til að koma í veg fyrir
þetta. Til að virkja þennan búnað, snúið
hnappnum (án þess að þrýsta á hann)
innan á hurðinni réttsælis þar til grófin
er lárétt. Notið smápening ef þörf krefur.
Til að aflæsa þessum búnaði og gera
mögulegt að loka dyrunum á ný, snúið
hnappnum rangsælis þar til grófin er
lóðrétt.
8
Upplýsingar um öryggismál
132966590_IS.qxd 20/03/2008 9.53 Page 8
Lýsing á vörunni
Nýja heimilistækið þitt stenst allar nútíma kröfur varðandi skilvirka meðferð á
þvotti og sparneytni á vatni, orku og þvottaefnum.
SPAR-loki tryggir að allt þvottaefni sé notað, dregur úr vatnsnotkun og sparar
þannig orku.
Þvottaefnisskúffa
Hólf fyrir þvottaefni sem notað er fyrir forþvott. Þvottaefni fyrir forþvott er
sett í í upphafi þvottakerfisins.
Hólf fyrir duft eða fljótandi þvottaefni fyrir aðalþvott.
Hólf fyrir fljótandi bætiefni (mýkingarefni, sterkju).
Hólf fyrir blettahreinsi sem notaður er í aðalþvotti með aukavalinu
BLETTAÞVOTTUR.
Lýsing á vörunni
9
1
2
3
4
5
6
Þvottaefnishólf
Stjórnborð
Handfang til að opna hurð
Hurðarumgjörð
Skolvatnsdæla
Stillanlegir fætur
132966590_IS.qxd 20/03/2008 9.53 Page 9
10
Stjórnborð
Stjórnborð
Hér eftir verða samsvarandi númer í töflunni notuð um þvottakerfisskífuna, hnappana
og skjáinn.
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
Þvottakerfisskífa
VINDING hnappur
FORÞVOTTUR hnappur
BLETTAÞVOTTUR hnappur
VIÐKVÆMT hnappur
TÍMI hnappur
Skjár
START/STOPP hnappur
TÍMAVAL hnappur
Gaumljós
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10
132966590_IS.qxd 20/03/2008 9.53 Page 10
11
Stjórnborð
Skjár (7)
Lengd valins þvottakerfis:
Eftir að þvottakerfi er valið er lengd þess sýnd í klukkustundum og mínútum (til
dæmis
2.05). Lengd þvottakerfis er reiknuð sjálfkrafa miðað við ráðlagða
hámarkshleðslu fyrir viðkomandi gerð af efni. Eftir að þvottakerfi byrjar er tíminn
uppfærður á mínútu fresti.
Aðvörunarnúmer
Ef upp koma notkunarvandamál birtast hugsanlega aðvörunarnúmer, til dæmis E20
(sjá kaflann «Hvað skal gera ef ...»).
Lok þvottakerfis
Í lok þvottakerfis birtist blikkandi núll 0 á skjánum, gaumljósin HURÐ (10.2) ,
ÞVOTTUR (
10.1) og gaumljósið á hnappi 8 slokkna og hægt er að opna dyrnar.
Rangt val
Ef aukaval, sem er ekki mögulegt með stilltu þvottakerfi, er valið birtast skilaboðin Err
í um 2 sekúndur og gula gaumljósið á hnappi 8 byrjar að blikka.
Tímaval/Þvottaseinkun (7.2)
Valin seinkun (hámark 20 klukkustundir), sem valin er með viðkomandi hnappi, birtist
á skjánum í um það bil 3 sekúndur og síðan birtist lengd valins þvottakerfis.
Táknið
7.2 birtist á skjánum. Seinkunartíminn er uppfærður á klukkustundar fresti.
Þegar 1 klukkustund er eftir er tíminn uppfærður á hverri mínútu.
Barnalæsing (7.3)
7.1
7.3
7.2
7.1
7.3
7.2
132966590_IS.qxd 20/03/2008 9.53 Page 11
Gaumljós (10)
Eftir að þrýst er á hnapp 8, kviknar ÞVOTTUR
gaumljósið (
10.1).
Þegar kveikt er á gaumljósi
10.1 er þvottavélin að
vinna.
Gaumljósið HURÐ (
10.2) gefur til kynna hvort hægt
sé að opna dyrnar:
gaumljós kveikt: ekki er hægt að opna dyrnar.
gaumljós slökkt: hægt er að opna dyrnar.
Þegar tækið framkvæmir aukaskolun kviknar gaumljósið AUKASKOLUN (10.3). Til að
velja aukaskolun, sjá kaflann "Veljið aukaskolun".
12
Stjórnborð
10.1
10.2
10.3
132966590_IS.qxd 20/03/2008 9.53 Page 12
Fyrsta notkun
Tryggið að tengingar við rafmagn og vatn séu í samræmi við leiðbeiningar um
uppsetningu og tengingu.
Fjarlægið einangrunarplastið og annað slíkt efni úr tromlunni.
Hellið 2 lítrum af vatni í aðalþvottahólfið á þvottaefnisskúffunni til að virkja
SPAR-lokann. Látið vélina síðan ganga tóma á bómullarstillingu við 90° eða 95°C
til að fjarlægja hvers kyns leifar úr framleiðsluferlinu úr tromlu og belg.
Hellið 1/2 skammti af þvottaefni í aðalþvottahólfið og setjið vélina í gang.
Persónulegt val
Hljóðmerki
Vélin er með hljóðgjafa sem gefur merki í eftirfarandi tilfellum:
í lok þvottakerfis
ef upp koma notkunarvandamál
Með því að þrýsta á hnappa
3 og 4 samtímis í um 6 sekúndur er slökkt á öllum
hljóðmerkjum (fyrir utan aðvaranir vegna notkunarvandamála). Hljóðmerki eru aftur
virk ef þrýst er á þessa tvo hnappa aftur.
Barnalæsing (7.3)
Þetta tæki gerir notandanum kleift að skilja við það í vinnslu án þess að þurfa að hafa
áhyggjur af að börn geti slasað sig eða valdið tjóni á vélinni.
Þessa læsingu er einnig hægt að nota þegar þvottavélin er ekki í gangi.
Hægt er að nota læsinguna á tvo vegu:
Áður en þrýst er á 8 er ómögulegt að setja vélina í gang.
Eftir að þrýst er á 8 er ómögulegt að breyta nokkru öðru þvottakerfi eða aukavali.
Til að gera þetta val virkt (eða óvirkt), þrýstið samtímis í um 6 sekúndur á hnappa
4 og
5 þar til táknið 7.3 birtist (hverfur) á (af) skjánum.
13
Notkun
132966590_IS.qxd 20/03/2008 9.53 Page 13
14
Notkun
Dagleg notkun
Setjið þvottinn í vélina
1. Opnið dyrnar varlega með því að toga
hurðarhandfangið út á við. Setjið þvottinn í
vélina, einn hlut í einu og hristið úr hverri flík eins
mikið og hægt er.
2. Lokið dyrunum þétt og ákveðið. Það verður að
heyrast smellur til að dyrnar séu alveg lokaðar.
Athugið! Passið að láta þvott ekki klemmast á milli hurðar og
gúmmíþéttingarinnar.
Mælið skammt af þvottaefni og
mýkingarefni
Nýja heimilistækið þitt var hannað til að spara
vatn, orku og þvottaefni.
1. Dragið þvottaefnisskúffuna út þar til hún
stoppar. Mælið magn þvottaefnis, hellið því
í aðalþvottahólfið .
Til að framkvæma aukavalið forþvottur,
hellið þvottaefni í hólfið sem merkt er .
Til að framkvæma aukavalið blettaþvottur,
hellið blettahreinsi í hólfið sem merkt er
með blárri ör .
2. Ef þörf krefur, hellið mýkingarefni í hólfið
merkt (magn má ekki fara upp fyrir
MAX línuna á skúffunni). Lokið skúffunni
varlega.
132966590_IS.qxd 20/03/2008 9.53 Page 14
Veljið þvottakerfi með þvottakerfisskífunni (1)
Hægt er að velja þvottakerfi fyrir hvaða þvott sem er með því að fylgja lýsingu í
þvottakerfistöflunum (sjá «Þvottakerfi»).
Snúið þvottakerfisskífunni á viðkomandi þvottakerfi. Þvottakerfisskífan ákveður
þvottaferlið (t.d. vatnsmagn, tromluhreyfingu, hve oft er skolað) og hitastig vatns eftir
því hvernig þvott á að þvo.
Gaumljós á hnappi
8 byrjar að blikka og skjárinn sýnir lengd valins þvottakerfis.
Þvottakerfisskífan snýst bæði réttsælis og rangsælis. Staða
O er Endurstilling
þvottakerfis/SLÖKKT á vélinni.
Í lok þvottakerfis verður að snúa skífunni í stöðu
O til að slökkva á vélinni.
Lýsing á þvottakerfum á þvottakerfisskífunni er að finna í kaflanum «Þvottakerfi».
Athugið!
Ef skífan er stillt á annað þvottakerfi á meðan vélin er að þvo, blikkar gult gaumljós á
hnappi
8 þrisvar sinnum og skilaboðin Err birtast á skjánum til að tilkynna um rangt
val. Vélin byrjar ekki á nýju þvottakerfi.
Veljið lækkaðan hraða á VINDING eða aukavalið SKOL STOPP (Hnappur 2)
Þegar þvottakerfi hefur verið valið leggur vélin sjálfkrafa til hámarksvinduhraða fyrir
viðkomandi kerfi.
Þrýstið endurtekið á hnapp
2 til að breyta vinduhraða ef óskað er eftir að hann sé
annar en vélin leggur til.
Þá kviknar á viðkomandi ljósi.
SKOL STOPP : Ef þetta er valið tæmist vatnið úr síðasta skoli ekki út til að koma í
veg fyrir að þvottur krumpist. Í lok þvottakerfis sýnir skjárinn blikkandi
0, gaumljósin
10.2 kvikna, gaumljósið á hnappi 8 er slökkt og dyrnar geta ekki opnast til að sýna að
tæma þarf vatnið af vélinni.
Upplýsingar um hvernig á að tæma vatnið af vélinni eru í kaflanum «Í lok
þvottakerfisins».
Aukavalhnappur
Hægt er að blanda saman mismunandi aukavali eftir því hvaða þvottakerfi er valið.
Slíkt aukaval verður að fara fram eftir að þvottakerfi hefur verið valið og áður en þrýst
er á hnapp
8.
Þegar þrýst hefur verið á þessa hnappa kviknar á viðkomandi gaumljósum. Þegar
þrýst er aftur á hnappana slokknar á ljósunum.
Ef valið er rangt blikkar gula ljósið á hnappnum
8 þrisvar sinnum og Err skilaboðin
15
Notkun
132966590_IS.qxd 20/03/2008 9.53 Page 15
16
Notkun
birtast á skjánum í nokkrar sekúndur.
Upplýsingar um hvaða aukaval hvert þvottakerfi býður upp á er að finna í kaflanum
«Þvottakerfi».
Veljið aukavalið FORÞVOTTUR (Hnappur 3)
Stillið þetta aukaval ef óskað er eftir forþvotti við 30°C á undan aðalþvotti.
Forþvotti lýkur með stuttri þeytivindingu í þvottakerfum fyrir bómull og straufrí efni,
en í þvottakerfum fyrir viðkvæm efni er vatnið einungis tæmt af vélinni.
Þá kviknar á viðkomandi ljósi.
Veljið aukavalið BLETTAÞVOTTUR (Hnappur 4)
Stillið á þetta aukaval til að þvo mjög óhreinan eða blettóttan þvott með blettahreinsi
(lengri aðalþvottur með sérstöku blettahreinsunarstigi). Þá kviknar á viðkomandi ljósi.
Þetta aukaval er ekki hægt að stilla við lægri þvottahita en 40°C.
Athugið! Ef nota á blettaþvott þarf að hella blettahreinsi í hólf .
Veljið aukavalið VIÐKVÆMT (Hnappur 5)
Ef þrýst er á þennan hnapp meðhöndlar vélin betur viðkvæman þvott. Vélin bætir einu
skoli við þvottakerfið fyrir bómull og gerviefni.
Mælt er með að nota þetta aukaval á þvott sem er ekki litafastur og er þveginn oft.
Veljið aukavalið TÍMI (Hnappur 6)
Þetta aukaval breytir þvottatímanum sem þvottavélin leggur sjálfkrafa til.
DAGLEGA: Þegar þrýst er á þennan hnapp kviknar viðkomandi gaumljós og
þvottatíminn er styttur fyrir þvott sem þveginn er daglega.
HRAÐÞVOTTUR: Ef þrýst er tvisvar á þennan hnapp logar viðkomandi gaumljós
stöðugt og þvottatíminn er styttur fyrir lítið óhreinan þvott eða þvott sem búið er að
nota eða klæðast í stuttan tíma. Þvottatíminn er talinn niður á skjánum.
132966590_IS.qxd 20/03/2008 9.53 Page 16
17
Notkun
Veljið aukavalið START/STOPP (Hnappur 8)
Til að setja þvottakerfið sem valið var í gang er þrýst á hnapp 8; viðkomandi rautt
gaumljós hættir þá að blikka.
Gaumljósið
10.1 er kveikt til að sýna að vélin sé farin í gang.
Gaumljósið
10.2 er kveikt til að sýna að dyrnar séu læstar.
Til að rjúfa þvottakerfi sem er í gangi, þrýstið á hnapp
8: viðkomandi rautt gaumljós
byrjar þá að blikka.
Til að hefja þvott að nýju frá sama stað í þvottakerfinu, þrýstið á hnapp
8 aftur.
Ef tímaval hefur verið valið byrjar þvottavélin að telja niður. Ef valið er rangt blikkar
gula gaumljósið á hnappi 8 þrisvar sinnum og Err skilaboðin birtast á skjánum
í um 2 sekúndur.
Veljið aukavalið TÍMAVAL (Hnappur 9)
Áður en þvottakerfið er sett af stað, ef óskað er eftir að þvottavélin byrji ekki að
þvo strax, þrýstið endurtekið á hnapp
9 til að velja hvenær vélin á að byrja að þvo.
Valin seinkun (allt að 20 klukkustundir) birtist á skjánum í um það bil 3 sekúndur og
síðan birtist lengd valins þvottakerfis.
Slíkt aukaval verður að fara fram eftir að þvottakerfi hefur verið valið og áður en þrýst
er á hnapp
8.
Með þessum hnappi er hægt að seinka þvotti um 30 mín. - 60 mín. - 90 mín., 2 klst.
og síðan í 1 klst. þrepum upp í hámark 20 klukkustundir.
Ef óskað er eftir að bæta taui í vélina á meðan hún er að bíða eftir að fara í gang er
hægt að þrýsta á hnapp
8 til að virkja hlé-stillingu vélarinnar. Bætið þvottinum í, lokið
dyrunum og þrýstið aftur á hnapp
8.
Að velja þvottaseinkun.
Veljið þvottakerfi og aukaval ef með þarf.
Veljið þvottaseinkun.
Þrýstið á hnapp 8: vélin byrjar að telja niður klukkutímana. Vélin byrjar að þvo
þegar tíminn sem valinn var er liðinn.
Að aflýsa þvottaseinkun
stillið þvottavélina á HLÉ með því að þrýsta á hnapp 8;
þrýstið einu sinni á hnapp 9 þar til táknið 0’ birtist;
þrýstið aftur á hnapp 8 til að hefja þvott að nýju.
Mikilvægt!
Það er bara hægt að breyta valinni seinkun með því að velja þvottakerfið upp á
nýtt.
132966590_IS.qxd 20/03/2008 9.53 Page 17
18
Notkun
Dyrnar eru læstar í gegnum allan seinkunartímann. Til að opna dyrnar þarf fyrst að
stilla þvottavélina á HLÉ með því að þrýsta á hnapp
8. Eftir að dyrunum er lokað,
þrýstið á hnapp
8 aftur.
Ekki er hægt að velja hnapp
9 með kerfinu VATNSLOSUN
.
Veljið aukaskolun
Þetta heimilistæki er hannað til að spara vatn. Hins vegar, fyrir fólk með viðkvæma
húð (ofnæmi fyrir þvottaefnum), getur verið nauðsynlegt að skola þvottinn með
aukaskammti af vatni (aukaskolun).
Þrýstið samtímis á hnappa
2 og 3 í nokkrar sekúndur: Gaumljós 10.3 kviknar.
Til að afturkalla það, þrýstið á sömu hnappa aftur þar til gaumljós
10.3 slokknar.
Breyta valkosti eða byrja þvottakerfi
Hægt er að breyta öllu aukavali áður en þvottakerfi setur það í gang. Áður en nokkur
slík breyting er framkvæmd verður að gera hlé á þvottinum með því að þrýsta á
hnapp
8. Einungis er hægt að breyta þvottakerfi sem er í gangi með því að byrja
það upp á nýtt. Snúið þvottakerfisskífunni á
O
og síðan á nýtt þvottakerfi. Setjið
nýja þvottakerfið af stað með því að þrýsta aftur á hnapp
8. Þvottavatnið í vélinni er
ekki tæmt.
Rjúfa þvottakerfi
Til að rjúfa þvottakerfi sem er í gangi, þrýstið á hnapp 8, viðkomandi ljós byrjar að
blikka. Þrýstið aftur á hnappinn til að hefja þvott að nýju.
Aflýsa þvottakerfi
Snúið þvottakerfisskífunni á
O
til að aflýsa þvottakerfi sem er í gangi. Nú er hægt að
velja nýtt þvottakerfi.
Opna dyrnar eftir að þvottakerfi byrjar
Stillið þvottavélina fyrst á START/STOPP með því að þrýsta á hnapp 8.
Ef ljós 10.2 slokknar er hægt að opna dyrnar.
Ef DYR aflæsast ekki er gaumljós
10.2 kveikt og það þýðir að vélin sé byrjuð að hita
sig og að vatnsborðið sé komið upp fyrir dyrakarminn. Þá er ekki hægt að opna
dyrnar. Ef ekki er hægt að opna dyrnar þegar það er nauðsynlegt, verður að slökkva á
vélinni með því að snúa þvottakerfisskífunni á
O
. Eftir nokkrar mínútur er hægt að
opna dyrnar (fylgist með vatnsborði og hitastigi!).
Eftir að dyrunum er lokað þarf svo að velja þvottakerfi á ný og þrýsta á hnapp
8.
132966590_IS.qxd 20/03/2008 9.53 Page 18
19
Notkun
Lok þvottakerfis
Vélin stoppar sjálfkrafa, gaumljós á hnappi 8, gaumljós 10.1 og 10.2 slokkna og
blikkandi
0 birtist á skjánum.
Ef þvottakerfi eða aukaval sem endar með vatni í vélinni hefur verið valið þá
kviknar gaumljós
10.2, blikkandi 0 birtist á skjánum, gaumljósið á hnappi 8
slokknar og dyrnar haldast læstar til að gefa til kynna að nauðsynlegt sé að tæma
vatnið af vélinni áður en dyrnar eru opnaðar.
Fylgið leiðbeiningunum að neðan til að tæma vatnið af vélinni:
Snúið þvottakerfisskífunni á
O
Veljið kerfið VATNSLOSUN eða VINDING
Lækkið vinduhraðann ef þörf krefur með viðkomandi hnappi
Þrýstið á hnapp 8
Í lok þvottakerfis sýnir skjárinn blikkandi 0. Gaumljós 10.2 slokknar og hægt er
að opna dyrnar.
Snúið þvottakerfisskífunni á
O
til að slökkva á þvottavélinni. Fjarlægið þvottinn úr
tromlunni og athugið vandlega að hún sé tóm. Skrúfið fyrir vatnskranann ef ekki á
að þvo meiri þvott. Skiljið dyrnar eftir opnar til að koma í veg fyrir myglu og
óæskilega lykt.
132966590_IS.qxd 20/03/2008 9.53 Page 19
20
Þvottakerfi
* Aukavalið BLETTAÞVOTTUR er einungis fyrir 40°C þvott eða meira.
** Ef aukavalið HRAÐÞVOTTUR er notað, með því að nota hnappinn TÍMI, þá er mælt með
að lækka hámarkshleðslu á þvotti eins og ráðlagt er. (M. hleðsla = minnkuð
þvottahleðsla). Hins vegar er hægt að fylla vélina eins og venjulega en hún þvær ekki
alveg eins vel.
Þvottakerfi
Þvottakerfi/
Hitastig
Gerð af þvotti Aukaval Lýsing á þvottakerfi
AÐALÞVOTTUR
95°-30°
Hvít og lituð bómull
(venjuleg óhreinindi)
VINDING, SKOL
STOPP, FORÞV.,
BLETTAÞV.*, VIÐKVÆMT,
TÍMI**, AUKASKOLUN
Aðalþvottur
Skol
Löng vinda
Hám. hleðsla kg 7
** M. hleðsla kg 3,5
40-60 BLANDAD
40°
Lituð bómull: Vinnuföt,
sængurföt, lín, nærföt,
handklæði
VINDING, SKOL
STOPP, FORÞV.,
BLETTAAÞV.,
VIÐKVÆMT,
AUKASKOLUN
Aðalþvottur
Skol
Löng vinda
Hám. hleðsla kg 7
STRAULÉTT
40°
Gerviefni sem þarf að þvo
og vinda varlega
VINDING, SKOL
STOPP, FORÞV.,
AUKASKOLUN
Aðalþvottur
Skol
Stutt vinda
Hám. hleðsla kg 3,5
VIÐKVÆMT
40°-30°
Viðkvæm efni: Til dæmis
gluggatjöld
VINDING, SKOL
STOPP, FORÞV.,
BLETTAÞV.*, VIÐKVÆMT,
TÍMI**, AUKASKOLUN
Aðalþvottur
Skol
Stutt vinda
Hám. hleðsla kg 3,5
** M. hleðsla kg 2
STRAUFRÍTT
60°-30°
Gerviefni eða blöndur:
Nærföt, lituð föt,
skyrtur sem hlaupa
ekki, blússur
VINDING, SKOL
STOPP, FORÞV.,
BLETTAÞV.*, VIÐKVÆMT,
TÍMI**, AUKASKOLUN
Aðalþvottur
Skol
Stutt vinda
Hám. hleðsla kg 3,5
** M. hleðsla kg 2
ULL
HANDÞVOTTUR
40°- KALT
Sérstakt kerfi fyrir efni
sem þarf að þvo í
höndunum og sér í lagi
fyrir ullarflíkur með nýju
merkinguna «Hrein ný ull,
hleypur ekki, má þvo í
þvottavél»
VINDING,
SKOL STOPP
Aðalþvottur
Skol
Stutt vinda
Hám. hleðsla kg 2
132966590_IS.qxd 20/03/2008 9.53 Page 20
  • Page 1 1
  • Page 2 2
  • Page 3 3
  • Page 4 4
  • Page 5 5
  • Page 6 6
  • Page 7 7
  • Page 8 8
  • Page 9 9
  • Page 10 10
  • Page 11 11
  • Page 12 12
  • Page 13 13
  • Page 14 14
  • Page 15 15
  • Page 16 16
  • Page 17 17
  • Page 18 18
  • Page 19 19
  • Page 20 20
  • Page 21 21
  • Page 22 22
  • Page 23 23
  • Page 24 24
  • Page 25 25
  • Page 26 26
  • Page 27 27
  • Page 28 28
  • Page 29 29
  • Page 30 30
  • Page 31 31
  • Page 32 32
  • Page 33 33
  • Page 34 34
  • Page 35 35
  • Page 36 36
  • Page 37 37
  • Page 38 38
  • Page 39 39
  • Page 40 40
  • Page 41 41
  • Page 42 42
  • Page 43 43
  • Page 44 44

Aeg-Electrolux L64851 Používateľská príručka

Typ
Používateľská príručka

V iných jazykoch