Widex MOMENT MRR4D 220 Užívateľská príručka

Typ
Užívateľská príručka
NOTKUNARLEIÐBEININGAR
WIDEX MOMENT™ VÖRULÍNAN
MRR4D-tæki
RIC/RITE
(Hátalari í hlust/hátalari í eyra)
HEYRNARTÆKIÐ ÞITT
(Heyrnarsérfræðingur fyllir út þennan hluta)
Þetta er listi yfir kerfin sem í boði eru fyrir heyrnartækið þitt.
Frekari upplýsingar um notkun þessara kerfa má sjá í „Sérstilling“.
Kerfi heyrnartækisins:
KERFI AUKINN HEYRANLEIKI
Almennt
PureSound
Hljóðlátt umhverfi
Bakgrunnssuð / Hávært umhverfi
Samgöngur
Borgarumhverfi
Áhrif
Samkvæmi
Samkomur
nlist
2
SÉRSTÖK KERFI AUKINN HEYRANLEIKI
Zen/Relax
mi
SMARTTOGGLE-KERFI AUKINN HEYRANLEIKI
Zen+/Relax+
Heiti kerfanna í töflunni eru sjálfgefin. Ef þú hefur valið að nota einhver af
hinum heitunum sem eru í boði skaltu skrifa nýju heitin í töfluna. Þannig
veistu alltaf hvaða kerfi þú ertnota í heyrnartækjunum.
Lestu leiðbeiningarnar
Lestu notkunarleiðbeiningarnar í þessum bæklingi og bæklingnum „Eyrnatól
fyrir Widex-heyrnartæki“ vandlega áður en þú byrjar að nota heyrnartækið.
Þú ættir einnig að lesa notkunarleiðbeiningarnar fyrir hleðslutækið.
Straumspilun hljóðs og þráðlaus stýring
Heyrnartækið býður upp á straumspilun hljóðs og beina þráðlausa stýringu
úr snjallsímum og öðrum tækjum um DEX. Til að fá frekari aðstoð eða
upplýsingar skaltu hafa samband við heyrnarsérfræðinginn þinn eða fara á:
www.widex.com.
Heyrnartækið virkar þráðlaust með MOMENT-snjallforritinu. Við berum enga
ábyrgð ef heyrnartækið er notað með snjallforriti þriðja aðila eða ef snjall-
forritið er notað með öðru tæki. Lestu meira um snjallforritið í bæklingnum.
3
EFNISYFIRLIT
MIKILVÆGAR ÖRYGGISUPPLÝSINGAR.......................................................6
HEYRNARTÆKIÐ ÞITT................................................................................8
Velkomin(n)......................................................................................................8
Heyrnartækið í hnotskurn........................................................................... 8
NOTKUNARSKILYRÐI................................................................................10
Ábendingar um notkun................................................................................. 10
Heyrnartæki með hleðslurafhlöðum........................................................10
Fyrirhuguð notkun......................................................................................... 10
Hleðsla.............................................................................................................. 11
Notkunartími og hleðslutími..........................................................................11
Notkunar- og hleðsluskilyrði.........................................................................13
Geymslu- og flutningsskilyrði.......................................................................14
DAGLEG NOTKUN.....................................................................................16
Kveikt og slökkt á heyrnartækinu................................................................ 16
Heyrnartækið sett í eyrað og fjarlægt..........................................................17
SÉRSTILLING.............................................................................................18
Kerfi..................................................................................................................18
Zen-kerfið...................................................................................................20
Hljóðmerki......................................................................................................20
Tenging við gagnstætt heyrnartæki tapaðist ........................................22
4
Hljóð- og kerfisstillingar................................................................................22
Notkun snjallsíma með heyrnartækinu.......................................................25
PÖRUN VIÐ SNJALLSÍMA......................................................................... 26
Tenging við snjallsíma um Bluetooth .....................................................26
Hvernig á að tengja heyrnartækið við snjallforritið...............................26
Hvernig á að slökkva á Bluetooth-tengingunni..................................... 26
Samhæfi við snjallsíma................................................................................. 27
HREINSUN................................................................................................28
Verkfæri.......................................................................................................... 28
Merghlíf...........................................................................................................29
Widex CHARGE n CLEAN............................................................................. 29
AUKABÚNAÐUR...................................................................................... 30
ÚRRÆÐALEIT...........................................................................................32
FERÐAST MEÐ FLUGVÉL...........................................................................35
UPPLÝSINGAR VARÐANDI REGLUVERK...................................................36
Tilskipanir Evrópusambandsins...................................................................36
Tilskipun 2014/53/ESB..............................................................................36
Upplýsingar um förgun.............................................................................36
FCC- og ISED-yfirlýsingar.............................................................................37
TÁKN....................................................................................................... 40
5
MIKILVÆGAR ÖRYGGISUPPLÝSINGAR
Lestu þessar síður vandlega áður en þú byrjar að nota heyrnartækið.
Heyrnartæki og rafhlöður geta verið hættuleg ef þau eru innbyrt eða
notuð á rangan hátt. Séu þau innbyrt eða notuð á rangan hátt geta
þau valdið alvarlegum meiðslum eða jafnvel dauða. Ef þau hafa verið
innbyrt skal hringja tafarlaust í 112 eða Eitrunarmiðstöð Landspítalans í
síma 543 2222.
Taktu heyrnartækin úr eyrunum þegar þú ert ekki að nota þau. Þetta
hjálpar til við að lofta um hlustina og koma í veg fyrir eyrnabólgu.
Hafðu strax samband við lækni eða heyrnarsérfræðinginn þinn ef þig
grunar að þú gætir verið með eyrnabólgu eða þú sýnir ofnæmisviðbrögð.
Hafðu samband við heyrnarsérfræðinginn ef heyrnartækið er óþægilegt
eða passar illa og veldur ertingu, roða eða álíka kvillum.
Fjarlægðu heyrnartækin fyrir sturtu, sund eða áður en þú notar hárblás-
ara.
Ekki hafa heyrnartækin í eyrunum þegar þú setur á þig ilmvatn, úða, gel
eða krem.
Ekki þurrka heyrnartækið í örbylgjuofni – það mun skemmast.
Aldrei nota heyrnartæki annarra og ekki leyfa öðrum að nota þín því
það gæti skemmt heyrn þína.
Aldrei nota heyrnartækin í umhverfi þar sem eldfimar loftegundir kunna
að leynast, t.d. í námum.
6
Geymdu heyrnartæki, íhluti þeirra, aukabúnað og rafhlöður þar sem
börn og einstaklingar með skertan vitsmunaþroskaekki til.
Reyndu aldrei að opna eða gera við heyrnartækið upp á eigin spýtur.
Hafðu samband við heyrnarsérfræðinginn þinn ef þú þarft að láta laga
heyrnartækið.
Heyrnartækin þín innihalda fjarskiptatækni. Veittu umhverfinu sem þú
notar þau í athygli. Ef einhverjar takmarkanir um notkun eiga við verð-
urðugera ráðstafanir tilfylgja þeim.
Tækið þitt var hannað til að uppfylla alþjóðlega staðla um rafsegulsviðs-
samhæfi. Samt sem áður er enn möguleiki að það geti valdið truflunum á
öðrum rafbúnaði. Ef þú finnur fyrir truflunum skaltu halda þig frá öðrum
rafbúnaði.
Hafðu í hugastraumspilun hljóðs í heyrnartækjunum þínum á háum
hljóðstyrk getur komið í veg fyrir að þú heyrir mikilvæg hljóð eins og
viðvaranir og umferðarhljóð. Við slíkar aðstæður skaltu gæta þess að
hafa hljóðstyrk straumspilaða hljóðsins rétt stilltan.
Láttu ekki heyrnartækin komast í snertingu við mikinn hita eða raka og
þurrkaðu þau strax ef þau blotna eða ef þú svitnar mikið.
Ekki nota neina vökva eða sótthreinsiefni til að hreinsa heyrnartækið.
Hreinsaðu og skoðaðu heyrnartækið á hverjum degi eftir notkun til að
ganga úr skugga um að það sé ekki brotið. Ef heyrnartækið skemmist á
meðan þú ert með það í eyranu og lítil brot verða eftir í hlustinni skaltu
leita til læknis. Ekki reynafjarlægja brotin upp á eigin spýtur.
7
HEYRNARTÆKIÐ ÞITT
Velkomin(n)
Til hamingju með nýja heyrnartækið þitt.
Þetta heyrnartæki er knúið af litíum-jóna-hleðslurafhlöðu og verður að nota
með hleðslutæki af gerðinni WPT103 eða WPC101. Rafhlaðan er innbyggð
svo ekki er hægtskipta henni út.
Við mælum með því að þú notir heyrnartækið reglulega, jafnvel þótt þ
taki nokkurn tíma að venjast því. Þeir sem nota heyrnartæki ekki reglulega
njóta yfirleitt ekki alls ávinnings sem heyrnartæki hafa upp á að bjóða.
ATHUGIÐ
Heyrnartækið þitt og aukabúnaður þess lítur hugsanlega ekki alveg eins út og
myndirnar í þessum bæklingi sýna. Við áskiljum okkur rétt til að gera hverjar
þær breytingar sem við teljum nauðsynlegar.
Heyrnartækið í hnotskurn
Heyrnartækið þitt er sýnt hér að neðan – á fyrstu myndinni með eyrnatólinu.
Eyrnatólið samanstendur af eyrnavír með hátalara og eyrnatappa, en það er
sá hluti heyrnartækisins sem þú ert með í eyranu.
8
3
1
2
1. Þrýstihnappur til að kveikja/slökkva
2. Eyrnavír með hátalara
3. Hljóðnemanet
1
2
3
1. Tenging eyrnavírs
2. Auðkenni fyrir hægra/vinstra heyrn-
artæki
3. Auðkennisplata (gerð og raðnúmer)
Liturinn á auðkenninu fyrir hægra/vinstra heyrnartækið segir þér hvernig þú
getur þekkt vinstra tækið frá því hægra. Heyrnartækið fyrir vinstra eyrað er
með bláu merki. Heyrnartækið fyrir hægra eyrað er með rauðu merki.
Frekari upplýsingar um eyrnatólið erfinna í handbók eyrnatólsins.
9
NOTKUNARSKILYRÐI
Ábendingar um notkun
Heyrnartækin eru ætluð einstaklingum eldri en 36 mánaða þar sem heyrn-
artap þeirra er á bilinu vægt heyrnartap (0 dB HL) til mjög alvarlegs
heyrnartaps (115 dB HL) og henta fyrir allar gerðir heyrnarskerðingar.
Heyrnarsérfræðingar sem eru þjálfaðir í heyrnarmeðferðum (heyrnarfræð-
ingar, heyrnartækjasérfræðingar, háls- og eyrnasérfræðingar) skulu sjá um
að stilla þau.
Heyrnartæki með hleðslurafhlöðum
Börn yngri en 36 mánaða og einstaklingar með skertan vitsmunaþroska
ættu EKKI að nota heyrnartæki með hleðslurafhlöðum.
Fyrirhuguð notkun
Heyrnartækin eru ætluð sem hljóðmögnunartæki með loftleiðni til notkunar
í daglegu hljóðumhverfi. Hugsanlega eru heyrnartækin með Zen-kerfi sem
ætlað erveita slakandi hljóðbakgrunn (þ.e. tónlist/suð) fyrir fullorðna
notendur sem óska eftir slíkum bakgrunnshljóðum í þögn.
10
Hleðsla
Við mælum með því að heyrnartækið sé hlaðið daglega. Þessi mynd sýnir
hleðslutækið þitt í hnotskurn:
1
12
2
3
1. Hleðsluraufar
2. Gaumljós
3. Micro USB-tengi
Frekari upplýsingar um hvernig áhlaða heyrnartækið er að finna í
notkunarleiðbeiningunum fyrir hleðslutækið.
Notkunartími og hleðslutími
Ef þú hleður heyrnartækið í hálfa klukkustund geturðu notað það í u.þ.b.
fjórar klukkustundir. Það tekur u.þ.b. fjórar klukkustundir að hlaða heyrnar-
tækið að fullu.
Þegar heyrnartækið er fullhlaðið geturðu notað það íminnsta kosti
sextán klukkustundir við venjuleg hlustunarskilyrði áður en hlaða þarf þ
að nýju.
11
4 klukkustundir 16 klukkustundir
Þegar viðvörunin um lága hleðslu á rafhlöðunni hljómar geturðu notað
tækið í u.þ.b. 3–4 klukkustundir við venjulega notkun. Heyrnartækið slekkur
á sér þegar mjög lítil hleðsla er á rafhlöðunni.
Heyrnartap, hljóðumhverfi og straumspilun eru þættir sem hafa áhrif á
áætlaðan notkunartíma. Ef þú t.d. notar straumspilunarþjónustuna styttist
notkunartími heyrnartækisins.
12
Notkunar- og hleðsluskilyrði
Heyrnartækið þitt var hannað tilstarfa við daglegar aðstæður og það
virkar við umhverfisaðstæður sem þér finnast þægilegar. Þú getur not
heyrnartækið í flugi en þú ættirfjarlægja það áður en þú ferð í sturtu eða
sund eða ferð að sofa.
Notkunarskilyrði
Lágmark Hámark
Hitastig 0°C 40°C
Rakastig 10% 95%
Loftþrýstingur 750 mbör 1060 mbör
Hleðsluskilyrði
Lágmark mark
Hitastig 0°C 30°C
Rakastig 10% 95%
13
Langtímageymsla þegar tækið er ekki í notkun
Ef þú ætlar ekkinota heyrnartækið í lengri tíma skaltu hlaða það
fullu og geyma það í hulstrinu sem þú fékkst með heyrnartækinu. Mundu að
slökkva á heyrnartækinu fyrir geymslu.
Á sex mánaða fresti þarfhlaða heyrnartækið til að forðast óendurkræfa
afhleðslu rafhlöðunnar. Ekki er hægthlaða rafhlöðu sem hefur afhlaðist
of mikið og því þarfskipta um hana. Við mælum hins vegar með því
tækið sé hlaðið oftar en á sex mánaða fresti.
Geymslu- og flutningsskilyrði
Heyrnartækið þitt er viðkvæmt fyrir erfiðum skilyrðum eins og miklum hita.
Ekki ætti að geyma eða flytja það í beinu sólarljósi og aðeins í samræmi við
eftirfarandi skilyrði.
Geymsluskilyrði
Lágmark Hámark
Hitastig 10°C 40°C*
Rakastig 20% 80%
*Ráðlagt hitastig er 10°C til 25°C.
Flutningsskilyrði
Lágmark mark
Hitastig -20°C 55°C
14
Lágmark Hámark
Rakastig 10% 95%
Tækni- og viðbótarupplýsingar um heyrnartækin þín erfinna á
www.widex.com.
15
DAGLEG NOTKUN
Kveikt og slökkt á heyrnartækinu
Hægt er að kveikja á heyrnartækinu á tvo vegu:
1. Ýttu á þrýstihnappinn og haltu honum niðri í nokkrar sekúndur. Eftir
nokkrar sekúndur mun heyrnartækið spila hljóðmerki til að gefa til
kynna að kveikt sé á því nema þú hafir í samráði við heyrnarsérfræðing-
inn gert þessa aðgerð óvirka.
2. Taktu heyrnartækið úr hleðslutækinu og það kviknar sjálfkrafa á því
eftir nokkrar sekúndur. Heyrnartækið mun spila hljóðmerki til að gefa til
kynna að kveikt sé á því.
Hægt er að slökkva á heyrnartækinu á tvo vegu:
1. Settu heyrnartækið í hleðslutækið og hleðsla hefst.
2. Ýttu á þrýstihnappinn og haltu honum niðri í nokkrar sekúndur. Lokat-
ónn mun hljóma.
16
Heyrnartækið sett í eyrað og fjarlægt
1
2
1. Settu eyrnatólið í eyrað á meðan þú heldur í neðri
hluta eyrnavírsins. Gagnlegt getur veriðtoga eyr-
að upp og aftur á sama tíma.
2. Settu síðan heyrnartækið bak við eyrað. Heyrnartæk-
ið ætti að hvíla þægilega á eyranu nálægt höfðinu.
Byrjaðu á því að losa heyrnartækið sem er bak
við eyrað. Taktu síðan eyrnatólið varlega út
úr hlustinni á meðan þú heldur í neðri hluta
eyrnavírsins.
Heyrnartækið getur verið búið ýmsum gerðum af eyrnatólum. Frekari upp-
lýsingar um eyrnatólið er að finna í handbókinni fyrir eyrnatól.
17
SÉRSTILLING
Kerfi
Þetta er yfirlit yfir kerfi sem þú getur valið úr. Fáðu leiðbeiningar hjá
heyrnarsérfræðingnum.
KERFI NOTKUN
Almennt Sjálfvirkt kerfi með áherslu á besta hljóð v
allar aðstæður
PureSound Sjálfvirkt kerfi með áherslu á náttúrulegt og
þægilegt hljóð við allar aðstæður
Hljóðlátt umhverfi Sérstakt kerfi fyrir hlustun í hljóðlátu umhverfi
Bakgrunnssuð / Hávært
umhverfi Sérstakt kerfi fyrir hlustun í háværu umhverfi
Samgöngur Fyrir hlustun í aðstæðum þar sem hávaði frá
bílum, lestum o.s.frv. er til staðar
Áhrif Notaðu þetta kerfi ef þú kýst skýrt og skarpt
hljóð
Borgarumhverfi Fyrir hlustun í aðstæðum með breytilegu hljóð-
stigi (í matvöruverslunum, á háværum vinnu-
stöðum eða við álíka aðstæður)
18
KERFI NOTKUN
Samkvæmi Fyrir hlustun í aðstæðum þar sem margir eru
að tala í einu
Samkomur Notaðu þetta kerfi ef þú ert á lítilli samkomu,
t.d. við kvöldverð með fjölskyldunni
Tónlist Til að hlusta á tónlist
SÉRSTÖK KERFI NOTKUN
Zen/Relax Spilar tóna eða suð sem afslappandi bak-
grunnshljóð. Frekari upplýsingar er að finna í
„Zen-kerfið“
Sími Þetta kerfi er hannað til að hlusta á símtöl
SMARTTOGGLE-
KERFI NOTKUN
Zen+/Relax+ Þetta kerfi er svipað og Zen en gerir þér kleift
að hlusta á mismunandi tóna eða suð með
fjarstýringu (RC-DEX eða forrit)
Heiti kerfanna á listanum eru sjálfgefin. Heyrnarsérfræðingurinn þinn getur
einnig valið annað heiti á kerfið af forvöldum lista. Þá er mun auðveldara
fyrir þig að velja rétt kerfi fyrir hver hlustunarskilyrði.
19
Heyrnarsérfræðingurinn getur virkjað eiginleikann fyrir aukinn heyranleika,
allt eftir því hvert heyrnartap þitt er. Spurðu heyrnarsérfræðinginn hvort þ
myndi gagnast þér.
Ef þarfir þínar og óskir breytast með tímanum getur heyrnarsérfræðingurinn
auðveldlega breytt valinu á kerfinu.
Zen-kerf
Heyrnartækið þitt gæti verið búið einstöku valfrjálsu hlustunarkerfi sem nefnist
Zen. Það býr til tóna (og stundum suð) í bakgrunninum.
Ef hljóð lækka eða þol þitt fyrir hljóðum minnkar, tal verður óskýrara eða
eyrnasuð eykst skaltu hafa samband við heyrnarsérfræðinginn þinn.
Notkun á Zen-kerfinu getur komið í veg fyrirþú heyrir hversdagsleg
hljóð, þ.m.t. tal. Ekki ættinota það þegar mikilvægt er að geta heyrt
slík hljóð. Stilltu heyrnartækið á kerfi annað en Zen við þessar aðstæður.
Hljóðmerki
Biddu heyrnarsérfræðinginn þinn um að slökkva á þessum hljóðmerkjum ef
þú þarft ekki á þeimhalda.
Hljóðmerki kerfis
Heyrnartækið þitt spilar hljóð, SmartSpeak (talskilaboð), til að láta þig vita
hvaða kerfi þú virkjaðir eðaþú hafir skipt um kerfi.
20
  • Page 1 1
  • Page 2 2
  • Page 3 3
  • Page 4 4
  • Page 5 5
  • Page 6 6
  • Page 7 7
  • Page 8 8
  • Page 9 9
  • Page 10 10
  • Page 11 11
  • Page 12 12
  • Page 13 13
  • Page 14 14
  • Page 15 15
  • Page 16 16
  • Page 17 17
  • Page 18 18
  • Page 19 19
  • Page 20 20
  • Page 21 21
  • Page 22 22
  • Page 23 23
  • Page 24 24
  • Page 25 25
  • Page 26 26
  • Page 27 27
  • Page 28 28
  • Page 29 29
  • Page 30 30
  • Page 31 31
  • Page 32 32
  • Page 33 33
  • Page 34 34
  • Page 35 35
  • Page 36 36
  • Page 37 37
  • Page 38 38
  • Page 39 39
  • Page 40 40
  • Page 41 41
  • Page 42 42
  • Page 43 43
  • Page 44 44

Widex MOMENT MRR4D 220 Užívateľská príručka

Typ
Užívateľská príručka

V iných jazykoch