Widex MAGNIFY MBB2 M44 Užívateľská príručka

Typ
Užívateľská príručka
NOTKUNARLEIÐBEININGAR
WIDEX MAGNIFY™ VÖRULÍNAN
MBB2-tæki
BTE
(Heyrnartæki bak við eyra)
HEYRNARTÆKIÐ ÞITT
(Heyrnarsérfræðingur fyllir út þennan hluta)
Þetta er listi yfir kerfin sem í boði eru fyrir heyrnartækið þitt. Frekari upplýs-
ingar um notkun þessara kerfa má sjá í „Kerfi“ undir „Sérstillingar“.
Kerfi heyrnartækisins:
KERFI AUKINN HEYRANLEIKI
Almennt
Hljóðlátt umhverfi
Bakgrunnssuð / Hávært umhverfi
Samgöngur
Borgarumhverfi
Áhrif
Samkvæmi
Samkomur
nlist
SÉRSTÖK KERFI AUKINN HEYRANLEIKI
Zen / Slökun
2
SÉRSTÖK KERFI AUKINN HEYRANLEIKI
mi
SMARTTOGGLE-KERFI AUKINN HEYRANLEIKI
Zen+ / Slökun+
Heiti kerfanna í töflunni eru sjálfgefin. Ef þú hefur valið að nota einhver af
hinum heitunum sem eru í boði skaltu skrifa nýju heitin í töfluna. Þannig
veistu alltaf hvaða kerfi þú ertnota í heyrnartækjunum.
Lestu leiðbeiningarnar
Lestu þennan bækling og bæklinginn „Eyrnatól fyrir Widex-heyrnartæki
vandlega áður en þú byrjar að nota heyrnartækið.
Straumspilun hljóðs og þráðlaus stýring
Þetta heyrnartæki býður upp á beina þráðlausa stýringu og straumspilun
hljóðs úr snjallsímum og öðrum tækjum. Til að fá frekari aðstoð eða upplýs-
ingar skaltu hafa samband við heyrnarsérfræðinginn þinn eða fara á:
https://global.widex.com.
Þetta heyrnartæki virkar þráðlaust með TONELINK-snjallforritinu. Við berum
enga ábyrgð ef heyrnartækið er notað með forriti þriðja aðila eða ef TONEL-
INK-snjallforritið er notað með óstuddum tækjum.
3
CONTENTS
MIKILVÆGAR ÖRYGGISUPPLÝSINGAR.......................................................6
HEYRNARTÆKIÐ ÞITT................................................................................9
Velkomin(n)..................................................................................................... 9
Heyrnartækið þitt í hnotskurn....................................................................9
NOTKUNARSKILYRÐI............................................................................... 10
Ábendingar um notkun.................................................................................10
Fyrirhuguð notkun.........................................................................................10
Notkunarskilyrði.............................................................................................. 11
Geymslu- og flutningsskilyrði........................................................................11
DAGLEG NOTKUN..................................................................................... 13
Kveikt og slökkt á heyrnartækinu.................................................................13
Heyrnartækið sett í eyrað og fjarlægt......................................................... 13
Að greina hægri frá vinstri............................................................................14
RAFHLAÐAN.............................................................................................15
Hleðsla rafhlöðu fellur................................................................................15
Skipt um rafhlöðu....................................................................................... 15
SÉRSTILLING.............................................................................................17
Kerfi..................................................................................................................17
Zen-kerfið....................................................................................................19
Hljóðmerki.......................................................................................................19
4
Tenging við gagnstætt heyrnartæki tapaðist ........................................19
Stillingar kerfa og hljóðs...............................................................................20
HREINSUN................................................................................................22
Verkfæri.......................................................................................................... 22
Hvernig á að þrífa heyrnartækið..................................................................22
AUKABÚNAÐUR.......................................................................................24
ÚRRÆÐALEIT...........................................................................................25
UPPLÝSINGAR VARÐANDI REGLUVERK...................................................27
FCC- og ISED-yfirlýsingar.............................................................................27
Tilskipanir Evrópusambandsins...................................................................29
Tilskipun 2014/53/ESB..............................................................................29
Upplýsingar um förgun.............................................................................30
TÁKN........................................................................................................ 31
5
MIKILVÆGAR ÖRYGGISUPPLÝSINGAR
Lestu þessar síður vandlega áður en þú byrjar að nota heyrnartækið.
Heyrnartæki og rafhlöður geta verið hættuleg ef þau eru innbyrt eða
notuð á rangan hátt. Séu þau innbyrt eða notuð á rangan hátt geta þau
valdið alvarlegum meiðslum eða jafnvel dauða. Ef þau hafa verið inn-
byrt skal hringja tafarlaust í 112 eða í Eitrunarmiðstöð Landsspítalans í
síma 543 2222.
Taktu heyrnartækin úr eyrunum þegar þú ert ekki að nota þau. Þetta
hjálpar til við að lofta um hlustina og koma í veg fyrir eyrnabólgu.
Hafðu strax samband við lækni eða heyrnarsérfræðinginn þinn ef þig
grunar að þú gætir verið með eyrnabólgu eða þú sýnir ofnæmisviðbrögð.
Hafðu samband við heyrnarsérfræðinginn ef heyrnartækið er óþægilegt
eða passar illa og veldur ertingu, roða eða álíka kvillum.
Fjarlægðu heyrnartækin fyrir sturtu, sund eða áður en þú notar hárblás-
ara.
Ekki hafa heyrnartækin í eyrunum þegar þú setur á þig ilmvatn, úða, gel
eða krem.
Ekki þurrka heyrnartækið í örbylgjuofni – það mun skemma heyrnartæk-
ið.
Aldrei nota heyrnartæki annarra og ekki leyfa öðrum að nota þín því
það gæti skemmt heyrn þína.
Aldrei nota heyrnartækin í umhverfi þar sem eldfimar lofttegundir kunna
að leynast, t.d. í námum o.s.frv.
6
Geymdu heyrnartæki, íhluti þeirra, aukabúnað og rafhlöður þar sem
börn og einstaklingar með þroskahömlun ná ekki til.
Reyndu aldrei að opna eða gera við heyrnartækið upp á eigin spýtur. Haf-
ðu samband við heyrnarsérfræðinginn þinn ef þú þarftláta gera við
heyrnartækið.
Heyrnartækin þín innihalda fjarskiptatækni. Veittu umhverfinu sem þú
notar þau í athygli. Ef einhverjar takmarkanir um notkun eiga við þarftu
að gera ráðstafanir til að fylgja þeim.
Tækið þitt var hannað í samræmi við alþjóðlega staðla um rafsegulsviðs-
samhæfi. Samt sem áður er ekki hægt að útiloka að það geti valdið trufl-
unum á öðrum rafbúnaði. Ef þú finnur fyrir truflunum skaltu halda þig frá
öðrum rafbúnaði.
Heyrnartækið þitt er mjög öflugt og það getur spilað hljóð sem fara yfir
132 dB. Þú getur því átt á hættuskaða þá heyrn sem eftir er.
Láttu ekki heyrnartækin komast í snertingu við mikinn hita eða raka og
þurrkaðu þau strax ef þau blotna eða ef þú svitnar mikið.
Hafðu í hugastraumspilun hljóðs í heyrnartækjunum þínum á háum
hljóðstyrk getur komið í veg fyrir að þú heyrir mikilvæg hljóð eins og við-
varanir og umferðarhljóð. Við slíkar aðstæður skaltu gæta þess að hafa
hljóðstyrk straumspilaða hljóðsins rétt stilltan.
Heyrnartækin ætti að geyma og flytja við hitastig á milli -20 °C og +55 °C og
10%–95% rakastig.
Heyrnartækin eru hönnuð til notkunar við hita-, raka- og loftþrýstingsstig
sem nemur 0 °C til 50 °C, 10%–95% rakastig og 750 til 1060 mbör.
7
Tækni- og viðbótarupplýsingar um heyrnartækin þín erfinna á https://
global.widex.com.
8
HEYRNARTÆKIÐ ÞITT
Velkomin(n)
Til hamingju með nýja heyrnartækið þitt.
Notaðu heyrnartækið reglulega, jafnvel þótt það taki nokkurn tíma að venj-
ast því. Óreglulegir notendur njóta yfirleitt ekki alls ávinnings sem heyrnar-
tæki hafa upp á að bjóða.
Heyrnartækið þitt og aukabúnaður þess lítur hugsanlega ekki alveg eins út
og myndirnar í þessum bæklingi sýna. Við áskiljum okkur rétt tilgera
hverjar þær breytingar sem við teljum nauðsynlegar.
Heyrnartækið þitt í hnotskurn
1
2
3
4
5
1. Eyrnatól
2. Op hljóðnema
3. Þrýstihnappur
4. Rafhlöðulok með naglagripi
5. Auðkenni fyrir vinstra/hægra
heyrnartæki. Vinstra heyrnartækið er
merkt með bláum lit og hægra heyrn-
artækið með rauðum lit.
9
NOTKUNARSKILYRÐI
Ábendingar um notkun
Heyrnartækin eru ætluð einstaklingum eldri en 36 mánaða þar sem heyrnar-
tap þeirra er á bilinu vægt heyrnartap (0 dB HL) til alvarlegs heyrnartaps
(95 dB HL) og henta fyrir allar gerðir heyrnarskerðingar.
Heyrnarsérfræðingar sem eru þjálfaðir í heyrnarmeðferðum (heyrnarfræð-
ingar, heyrnartækjasérfræðingar, háls-, nef- og eyrnasérfræðingar) skulu sjá
um að stilla þau.
Fyrirhuguð notkun
Heyrnartækin eru ætluð sem hljóðmögnunartæki með loftleiðni til notkunar
í daglegu hljóðumhverfi. Hugsanlega eru heyrnartækin með Zen-kerfi sem
ætlað erveita slakandi hljóðbakgrunn (þ.e. tónlist/suð) fyrir fullorðna
notendur sem óska eftir slíkum bakgrunnshljóðum í þögn.
10
Notkunarskilyrði
Heyrnartækið þitt var hannað tilstarfa við daglegar aðstæður og það
virkar við umhverfisaðstæður sem þér finnast þægilegar. Þú getur not
heyrnartækið í flugi en þú ættirfjarlægja það áður en þú ferð í sturtu eða
sund.
Sérstök notkunarskilyrði fyrir heyrnartækið:
Lágmark Hámark
Hitastig 0 °C 50 °C
Rakastig 10% 95%
Loftþrýstingur 750 mbör 1060 mbör
Geymslu- og flutningsskilyrði
Heyrnartækið þitt er viðkvæmt fyrir erfiðum skilyrðum eins og miklum hita.
Ekki ætti að geyma eða flytja það í beinu sólarljósi og aðeins í samræmi við
eftirfarandi skilyrði.
Sérstök geymslu- og flutningsskilyrði:
Lágmark mark
Hitastig -20 °C 55 °C
11
Lágmark Hámark
Rakastig 10% 95%
Tækni- og viðbótarupplýsingar um heyrnartækin þín erfinna á https://
global.widex.com.
12
DAGLEG NOTKUN
Kveikt og slökkt á heyrnartækinu
Lokaðu rafhlöðuhólfinu til að kveikja á heyrnartækinu.
Heyrnartækið mun spila hljóðmerki til að gefa til kynna
að kveikt sé á því, nema ef heyrnarsérfræðingurinn
hefur gert þennan eiginleika óvirkan.
Togaðu rafhlöðulokið niður til að slökkva á heyrnar-
tækinu.
NOTE
Mundu að slökkva á heyrnartækinu þegar það er ekki í notkun.
Heyrnartækið sett í eyrað og fjarlægt
Heyrnartækið sett í eyrað
1
2
1. Settu eyrnatólið í eyrað á meðan þú heldur í neðri hluta
slöngunnar/eyrnavírsins. Gagnlegt getur verið að toga
eyrað upp og aftur á sama tíma.
2. Settu síðan heyrnartækið bak við eyrað. Heyrnartækið
ættihvíla þægilega á eyranu nálægt höfðinu.
13
Heyrnartækið getur verið búið ýmsum gerðum af eyrnatólum. Frekari upp-
lýsingar um eyrnatólið er að finna í handbókinni fyrir eyrnatól.
Heyrnartækið fjarlægt Byrjaðu á því að losa heyrnartækið sem er bak við
eyrað.
Taktu síðan eyrnatólið varlega út úr hlustinni á
meðan þú heldur í neðri hluta slöngunnar/eyrnavír-
sins.
Að greina hægri frá vinstri
Heyrnartæki ætlað hægra eyra er með RAUTT merki.Heyrnartæki fyrir vins-
tra eyra er með BLÁTT merki.
14
RAFHLAÐAN
Notaðu sink-loft-rafhlöðu af gerð 312 fyrir heyrnartækið þitt.
Notaðu alltaf nýja rafhlöðu af nákvæmlega sömu gerð og heyrnarsérfræð-
ingurinn þinn mælir með.
NOTE
Tryggðu að rafhlaðanalveg hrein áður en þú setur hana í heyrnartækið. Ann-
ars er ekki vístheyrnartækið virki sem skyldi.
Reyndu aldrei að hlaða sink-loft-rafhlöðu heyrnartækisins þar sem hún
getur sprungið.
Skildu aldrei tóma rafhlöðu eftir í heyrnartækjunum þegar þau eru
geymd. Hún gæti lekið og skemmt heyrnartækið.
Fargaðu notuðum rafhlöðum eins og tilgreint er á umbúðunum og fylgstu
með fyrningardagsetningunni.
Hleðsla rafhlöðu fellur
WHeyrnartækin gefa frá sér hljóðmerki þegar rahlaðan tæmist. Þó er mögu-
legtekki heyrist aðvörunartónn. Því mælum við með því að hafa ávallt
aukarafhlöður með sér.
Skipt um rafhlöðu
Gerðu eftirfarandi til að skipta um rafhlöðu:
Taktu límflipann af nýju rafhlöðunni og gættu þess
að ekkert lím sé eftir á henni. Láttu rafhlöðuna
„anda“ í 60 sekúndur.
15
Notaðu naglagripið til að opna rafhlöðuhólfið varlega
og fjarlægja gömlu rafhlöðuna.
Settu svo nýju rafhlöðuna í hólfið eins og sýnt er.
Lokaðu hólfinu. Ef það lokast ekki auðveldlega hefur
rafhlaðan ekki verið sett rétt í.
Taktu rafhlöðuna úr heyrnartækinu ef þú ætlar ekki
að nota það í nokkra daga.
NOTE
Forðastumissa heyrnartækið, haltu því yfir mjúku yfirborði á meðan þú skipt-
ir um rafhlöðu.
16
SÉRSTILLING
Kerfi
Þetta er yfirlit yfir kerfi sem þú getur valið úr. Fáðu leiðbeiningar hjá heyrn-
arsérfræðingnum.
KERFI NOTKUN
Almennt Sjálfvirkt kerfi með áherslu á besta hljóð við all-
ar aðstæður
Hljóðlátt umhverfi Sérstakt kerfi fyrir hlustun í hljóðlátu umhverfi
Bakgrunnssuð / Hávært
umhverfi Sérstakt kerfi fyrir hlustun í háværu umhverfi
Samgöngur Fyrir hlustun í aðstæðum þar sem hávaði frá
bílum, lestum o.s.frv. er til staðar
Áhrif Notaðu þetta kerfi ef þú kýst skýrt og skarpt
hljóð
Borgarumhverfi Fyrir hlustun í aðstæðum með breytilegu hljóð-
stigi (í matvöruverslunum, á háværum vinnu-
stöðum eða við álíka aðstæður)
Samkvæmi Fyrir hlustun í aðstæðum þar sem margir eru
að tala í einu
Samkomur Notaðu þetta kerfi ef þú ert á lítilli samkomu,
t.d. við kvöldverð með fjölskyldunni
17
KERFI NOTKUN
Tónlist Til að hlusta á tónlist
SÉRSTÖK KERFI NOTKUN
Zen / Slökun Spilar tóna eða suð sem afslappandi bak-
grunnshljóð
Sími Þetta kerfi er hannað til að hlusta á símtöl
SMARTTOGGLE-KERFI NOTKUN
Zen+ Þetta kerfi er svipað og Zen en gerir þér kleift
að hlusta á mismunandi tóna eða suð
Heiti kerfanna á listanum eru sjálfgefin. Heyrnarsérfræðingurinn þinn getur
einnig valið annað heiti á kerfið af forvöldum lista. Þá er mun auðveldara
fyrir þig að velja rétt kerfi fyrir hver hlustunarskilyrði.
Heyrnarsérfræðingurinn getur virkjað eiginleikann fyrir aukinn heyranleika,
allt eftir því hvert heyrnartap þitt er. Spurðu heyrnarsérfræðinginn hvort þ
myndi gagnast þér.
Ef þarfir þínar og óskir breytast með tímanum getur heyrnarsérfræðingurinn
auðveldlega breytt valinu á kerfinu.
18
Zen-kerf
Heyrnartækið þitt gæti verið búið einstöku valfrjálsu hlustunarkerfi sem nefnist
Zen. Það býr til tóna (og stundum suð) í bakgrunninum.
Ef hljóð lækka eða þol þitt fyrir hljóðum minnkar, tal verður óskýrara eða
eyrnasuð eykst skaltu hafa samband við heyrnarsérfræðinginn þinn.
Notkun á Zen-kerfinu getur komið í veg fyrirþú heyrir hversdagsleg
hljóð, þ.m.t. tal. Ekki ættinota það þegar mikilvægt er að geta heyrt
slík hljóð. Stilltu heyrnartækið á kerfi annað en Zen við þessar aðstæður.
NOTE
Þú getur einnig notað snjallforritið tilskipta um kerfi og stilla hljóðið í heyrn-
artækjunum.
Hljóðmerki
Heyrnartækið þitt spilar hljóð til að láta þig vita að vissir eiginleikar hafi verið
virkjaðir eða að þú hafir skipt um kerfi. Þessi hljóð geta verið töluð skilaboð
eða tónar.
Biddu heyrnarsérfræðinginn þinn um að slökkva á þessum hljóðum ef þú
þarft ekki á þeim að halda.
Tenging við gagnstætt heyrnartæki tapaðist
(Aðeins í boði á völdum gerðum)
Heyrnarsérfræðingurinn þinn getur virkjað eiginleika í heyrnartækinu sem
varar þig við þegar það missir tenginguna við heyrnartækið í gagnstæðu
eyra. Þú færð töluð skilaboð í eyrað.
19
Stillingar kerfa og hljóðs
Ef þú ert með tvö heyrnartæki getur heyrnarsérfræðingurinn þinn forritað
þrýstihnappinn á ýmsa vegu:
Sem kerfishnapp:
Þá þarf aðeins að pikka á hnappinn til að skipta milli kerfa. Til að opna og
loka SmartToggle-kerfum skal ýta á þrýstihnappinn og halda honum inni
lengur en eina sekúndu (þessi stilling er valkvæð). Þegar þú hefur opnað
SmartToggle-kerfi getur þú skipt á milli hinna ýmsu Zen-stillinga sem eru
forvaldar með því að pikka nokkrum sinnum snöggt á hnappinn.
Sem hljóðstillingarhnapp:
Pikkaðu á hnappinn á hægra heyrnartækinu ef þú vilt aukinn heyranleika og
hækkaðan hljóðstyrk. Ef þú þarftminnka hljóðstyrkinn eða ef þú vilt meiri
þægindi skaltu pikka á hnappinn á vinstra heyrnartækinu.
Ef þú heldur hnappinum á öðru hvoru heyrnartækjanna lengi inni tekur þú
hljóðið af (þessi stilling er valkvæð).
Sem samsettur kerfis- og hljóðstillingarhnappur:
Ef þú kýst að nota þennan valkost skaltu pikka á hnappinn á hægra heyrnar-
tækinu ef þú vilt aukinn heyranleika og hækkaðan hljóðstyrk. Ef þú þarft
minnka hljóðstyrkinn eða ef þú vilt meiri þægindi þarftu aðeins á pikka á
hnappinn á vinstra heyrnartækinu. Ef þú ýtir á hnappinn á öðru hvoru
heyrnartækjanna og heldur honum lengi inni skiptir þú á milli kerfa.
Ef þú notar aðeins eitt heyrnartæki þarftu að pikka snöggt á hnappinn til að
skipta milli kerfa og ýta lengur tilopna SmartToggle-kerfi.
20
  • Page 1 1
  • Page 2 2
  • Page 3 3
  • Page 4 4
  • Page 5 5
  • Page 6 6
  • Page 7 7
  • Page 8 8
  • Page 9 9
  • Page 10 10
  • Page 11 11
  • Page 12 12
  • Page 13 13
  • Page 14 14
  • Page 15 15
  • Page 16 16
  • Page 17 17
  • Page 18 18
  • Page 19 19
  • Page 20 20
  • Page 21 21
  • Page 22 22
  • Page 23 23
  • Page 24 24
  • Page 25 25
  • Page 26 26
  • Page 27 27
  • Page 28 28
  • Page 29 29
  • Page 30 30
  • Page 31 31
  • Page 32 32
  • Page 33 33
  • Page 34 34
  • Page 35 35
  • Page 36 36

Widex MAGNIFY MBB2 M44 Užívateľská príručka

Typ
Užívateľská príručka

V iných jazykoch