Widex MAGNIFY M-IM M33 Užívateľská príručka

Typ
Užívateľská príručka
NOTKUNARLEIÐBEININGAR
WIDEX MAGNIFY™ VÖRULÍNAN
M-IM/M-IP tæki
ITE
(inni í eyra)
HEYRNARTÆKIÐ ÞITT
(Heyrnarsérfræðingur fyllir út þennan hluta)
Loftop Ekkert loftop
Útdráttarsnúra Hljóðstyrksstýring Þrýstihnappur
Þetta er listi yfir kerfin sem í boði eru fyrir heyrnartækið þitt. Frekari upplýs-
ingar um notkun þessara kerfa má sjá í „Sérstillingar“.
Kerfi heyrnartækisins:
KERFI AUKINN HEYRANLEIKI
Almennt
Hljóðlátt umhverfi
Bakgrunnssuð / Hávært umhverfi
Samgöngur
Borgarumhverfi
Áhrif
Samkvæmi
Samkomur
nlist
SÉRSTÖK KERFI AUKINN HEYRANLEIKI
Zen / Slökun
2
SÉRSTÖK KERFI AUKINN HEYRANLEIKI
mi
SMARTTOGGLE-KERFI AUKINN HEYRANLEIKI
Zen+ / Slökun+
mi+
Heiti kerfanna í töflunni eru sjálfgefin. Ef þú hefur valið að nota einhver af
hinum heitunum sem eru í boði skaltu skrifa nýju heitin í töfluna. Þannig
veistu alltaf hvaða kerfi þú ertnota í heyrnartækjunum.
NOTE
Lestu þennan bækling vandlega áður en þú byrjar að nota heyrnartækið.
Straumspilun hljóðs og þráðlaus stýring
Þetta heyrnartæki býður upp á straumspilun hljóðs og beina þráðlausa stýr-
ingu úr snjallsímum og öðrum tækjum um DEX. Til að fá frekari aðstoð eða
upplýsingar skaltu hafa samband við heyrnarsérfræðinginn þinn eða fara á:
https://global.widex.com.
Þetta heyrnartæki virkar þráðlaust með TONELINK-snjallforritinu. Við berum
enga ábyrgð ef heyrnartækið er notað með snjallforriti þriðja aðila eða ef
TONELINK-snjallforritið er notað með öðru tæki.
3
CONTENTS
MIKILVÆGAR ÖRYGGISUPPLÝSINGAR.......................................................6
HEYRNARTÆKIÐ ÞITT................................................................................8
Velkomin(n)......................................................................................................8
Heyrnartækið þitt í hnotskurn....................................................................8
NOTKUNARSKILYRÐI............................................................................... 10
Ábendingar um notkun.................................................................................10
Fyrirhuguð notkun.........................................................................................10
Notkunarskilyrði.............................................................................................. 11
Geymslu- og flutningsskilyrði........................................................................11
DAGLEG NOTKUN..................................................................................... 13
Kveikt og slökkt á heyrnartækinu.................................................................13
Heyrnartækið sett í eyrað og fjarlægt......................................................... 13
RAFHLAÐAN.............................................................................................15
Hleðsla rafhlöðu fellur................................................................................15
Skipt um rafhlöðu....................................................................................... 15
SÉRSTILLING.............................................................................................17
Kerfi..................................................................................................................17
Zen-kerfið....................................................................................................19
Hljóðmerki.......................................................................................................19
Tenging við gagnstætt heyrnartæki tapaðist ........................................19
4
Stillingar kerfa og hljóðs...............................................................................20
HEYRNARTÆKIÐ ÞITT PARAÐ VIÐ SNJALLSÍMA...................................... 23
HREINSUN................................................................................................24
Verkfæri..........................................................................................................24
Hvernig á að þrífa heyrnartækið................................................................. 24
Skipt um hljóðnemasíur................................................................................26
Merghlífin........................................................................................................28
AUKABÚNAÐUR....................................................................................... 31
ÚRRÆÐALEIT...........................................................................................32
UPPLÝSINGAR VARÐANDI REGLUVERK...................................................35
FCC- og ISED-yfirlýsingar.............................................................................35
Tilskipanir Evrópusambandsins................................................................... 37
Tilskipun 2014/53/ESB.............................................................................. 37
Upplýsingar um förgun............................................................................. 38
TÁKN....................................................................................................... 39
5
MIKILVÆGAR ÖRYGGISUPPLÝSINGAR
Lestu þessar síður vandlega áður en þú byrjar að nota heyrnartækið.
Heyrnartæki og rafhlöður geta verið hættuleg ef þau eru innbyrt eða
notuð á rangan hátt. Séu þau innbyrt eða notuð á rangan hátt geta þau
valdið alvarlegum meiðslum eða jafnvel dauða. Ef heyrnartækin hafa
verið innbyrt skal hringja tafarlaust í 112 eða í Eitrunarmiðstöð Lands-
spítalans í síma 543 2222.
Taktu heyrnartækin úr eyrunum þegar þú ert ekki að nota þau. Þetta
hjálpar til við að lofta um hlustina og koma í veg fyrir eyrnabólgu.
Hafðu strax samband við lækni eða heyrnarsérfræðinginn þinn ef þig
grunar að þú gætir verið með eyrnabólgu eða þú sýnir ofnæmisviðbrögð.
Hafðu samband við heyrnarsérfræðinginn ef heyrnartækið er óþægilegt
eða passar illa og veldur ertingu, roða eða álíka kvillum.
Fjarlægðu heyrnartækin fyrir sturtu, sund eða áður en þú notar hárblás-
ara.
Ekki hafa heyrnartækin í eyrunum þegar þú setur á þig ilmvatn, úða, gel
eða krem.
Ekki þurrka heyrnartækið í örbylgjuofni – það mun skemma heyrnartæk-
ið.
Aldrei nota heyrnartæki annarra og ekki leyfa öðrum að nota þín því
það gæti skemmt heyrn þína.
Aldrei nota heyrnartækin í umhverfi þar sem eldfimar lofttegundir kunna
að leynast, t.d. í námum o.s.frv.
6
Geymdu heyrnartæki, íhluti þeirra, aukabúnað og rafhlöður þar sem
börn og einstaklingar með þroskahömlun ná ekki til.
Reyndu aldrei að opna eða gera við heyrnartækið upp á eigin spýtur. Haf-
ðu samband við heyrnarsérfræðinginn þinn ef þú þarftláta gera við
heyrnartækið.
Heyrnartækin þín innihalda fjarskiptatækni. Veittu umhverfinu sem þú
notar þau í athygli. Ef einhverjar takmarkanir um notkun eiga við þarftu
að gera ráðstafanir til að fylgja þeim.
Tækið þitt var hannað í samræmi við alþjóðlega staðla um rafsegulsviðs-
samhæfi. Samt sem áður er ekki hægt að útiloka að það geti valdið trufl-
unum á öðrum rafbúnaði. Ef þú finnur fyrir truflunum skaltu halda þig frá
öðrum rafbúnaði.
Láttu ekki heyrnartækin komast í snertingu við mikinn hita eða raka og
þurrkaðu þau strax ef þau blotna eða ef þú svitnar mikið.
7
HEYRNARTÆKIÐ ÞITT
Velkomin(n)
Til hamingju með nýja heyrnartækið þitt.
Notaðu heyrnartækið reglulega, jafnvel þótt það taki nokkurn tíma að venj-
ast því. Óreglulegir notendur njóta yfirleitt ekki alls ávinnings sem heyrnar-
tæki hafa upp á að bjóða.
Heyrnartækið þitt og aukabúnaður þess lítur hugsanlega ekki alveg eins út
og myndirnar í þessum bæklingi sýna. Við áskiljum okkur rétt tilgera
hverjar þær breytingar sem við teljum nauðsynlegar.
Heyrnartækið þitt í hnotskurn
1
6
3
2
4
5
1. Op hljóðnema
2. Þrýstihnappur (valfrjálst)
3. Hljóðstyrksstýring (valfrjáls)
4. Loftop (valfrjálst)
5. Útdráttarsnúra (valfrjáls)
6. Rafhlöðuhólf
7
8
9
10
7. Hljóðúttak
8. Merghlíf
9. Loftop (valfrjálst)
10. Auðkenni fyrir hægra/vinstra heyrnartæki
8
Liturinn á auðkenninu fyrir hægra/vinstra heyrnartækið segir þér hvernig þú
getur þekkt vinstra tækið frá því hægra. Heyrnartækið fyrir vinstra eyrað er
með bláu merki. Heyrnartækið fyrir hægra eyrað er með rauðu merki.
9
NOTKUNARSKILYRÐI
Ábendingar um notkun
Heyrnartækin eru ætluð einstaklingum eldri en 36 mánaða þar sem heyrnar-
tap þeirra er á bilinu vægt heyrnartap (10 dB HL) til alvarlegs heyrnartaps
(90 HL) og henta fyrir allar gerðir heyrnarskerðingar.
Heyrnarsérfræðingar sem eru þjálfaðir í heyrnarmeðferðum (heyrnarfræð-
ingar, heyrnartækjasérfræðingar, háls-, nef- og eyrnasérfræðingar) skulu sjá
um að stilla þau.
Fyrirhuguð notkun
Heyrnartækin eru ætluð sem hljóðmögnunartæki með loftleiðni til notkunar
í daglegu hljóðumhverfi. Hugsanlega eru heyrnartækin með Zen-kerfi sem
ætlað erveita slakandi hljóðbakgrunn (þ.e. tónlist/suð) fyrir fullorðna
notendur sem óska eftir slíkum bakgrunnshljóðum í þögn.
10
Notkunarskilyrði
Heyrnartækið þitt var hannað tilstarfa við daglegar aðstæður og það
virkar við umhverfisaðstæður sem þér finnast þægilegar. Þú getur not
heyrnartækið í flugi en þú ættirfjarlægja það áður en þú ferð í sturtu eða
sund.
Sérstök notkunarskilyrði fyrir heyrnartækið:
Lágmark Hámark
Hitastig 0 °C 50 °C
Rakastig 10% 95%
Loftþrýstingur 750 mbör 1060 mbör
Geymslu- og flutningsskilyrði
Heyrnartækið þitt er viðkvæmt fyrir erfiðum skilyrðum eins og miklum hita.
Ekki ætti að geyma eða flytja það í beinu sólarljósi og aðeins í samræmi við
eftirfarandi skilyrði.
Sérstök geymslu- og flutningsskilyrði:
Lágmark mark
Hitastig -20 °C 55 °C
11
Lágmark Hámark
Rakastig 10% 95%
Tækni- og viðbótarupplýsingar um heyrnartækin þín erfinna á https://
global.widex.com.
12
DAGLEG NOTKUN
Kveikt og slökkt á heyrnartækinu
Lokaðu rafhlöðuhólfinu til að kveikja á heyrnartæk-
inu. Heyrnartækið mun spila hljóðmerki til að gefa til
kynna að kveikt sé á því, nema ef heyrnarsérfræðing-
urinn hefur gert þennan eiginleika óvirkan.
Opnaðu rafhlöðuhólfið til að slökkva á heyrnartækinu.
NOTE
Þú getur líka lokað lófanum utan um heyrnartækið tilstaðfesta að kveikt sé á
því. Ef kveikt er á því heyrist blísturshljóð. Munduslökkva á heyrnartækinu
þegar það er ekki í notkun.
Heyrnartækið sett í eyrað og fjarlægt
Lokaðu rafhlöðuhólfinu alveg. Haltu heyrnartækinu milli
þumal- og vísifingurs og settu það hægt inn í eyrað þar
til þú finnur fyrir mótstöðu.
Notaðu svo vísifingurinn tilýta heyrnartækinu var-
lega inn í eyrað þar til það situr þægilega.
Það gæti hjálpað tiltoga eyrað upp og aftur á meðan
þú setur heyrnartækið inn.
13
Heyrnartækið fjarlægt
Haltu heyrnartækinu milli þumal- og vísifingurs og tog-
aðu það gætilega út.
NOTE
Ef þér finnst erfitttaka heyrnartækið úr skaltu hreyfa það gætilega til hlið-
anna.
14
RAFHLAÐAN
Notaðu sink-loft-rafhlöðu af gerð 312 fyrir heyrnartækið þitt.
Notaðu alltaf nýja rafhlöðu af nákvæmlega sömu gerð og heyrnarsérfræð-
ingurinn þinn mælir með.
NOTE
Tryggðu að rafhlaðanalveg hrein áður en þú setur hana í heyrnartækið. Ann-
ars er ekki vístheyrnartækið virki sem skyldi.
Reyndu aldrei að hlaða sink-loft-rafhlöðu heyrnartækisins þar sem hún
getur sprungið.
Skildu aldrei tóma rafhlöðu eftir í heyrnartækjunum þegar þau eru
geymd. Hún gæti lekið og skemmt heyrnartækið.
Fargaðu notuðum rafhlöðum eins og tilgreint er á umbúðunum og fylgstu
með fyrningardagsetningunni.
Hleðsla rafhlöðu fellur
WHeyrnartækin gefa frá sér hljóðmerki þegar rahlaðan tæmist. Þó er mögu-
legtekki heyrist aðvörunartónn. Því mælum við með því að hafa ávallt
aukarafhlöður með sér.
Skipt um rafhlöðu
Gerðu eftirfarandi til að skipta um rafhlöðu:
Taktu límflipann af nýju rafhlöðunni og gættu þess
að ekkert lím sé eftir á henni. Láttu rafhlöðuna
„anda“ í 60 sekúndur.
15
Notaðu naglagripið til að opna rafhlöðuhólfið var-
lega og fjarlægja gömlu rafhlöðuna. Settu nýju raf-
hlöðuna í hólfið þannig að „+“-táknið á henni vísi í
sömu átt og „+“-táknið á loki rafhlöðuhólfsins, sjá
mynd.
Lokaðu rafhlöðuhólfinu. Ef það lokast ekki auðveld-
lega hefur rafhlaðan ekki verið sett rétt í.
Hafðu rafhlöðuhólfið opið ef þú ætlar ekki að nota
heyrnartækið í nokkra daga.
NOTE
Forðastumissa heyrnartækið, haltu því yfir mjúku yfirborði á meðan þú skipt-
ir um rafhlöðu.
16
SÉRSTILLING
Kerfi
Þetta er yfirlit yfir kerfi sem þú getur valið úr. Fáðu leiðbeiningar hjá heyrn-
arsérfræðingnum.
KERFI NOTKUN
Almenn Til daglegra nota
Hljóðlátt umhverfi Sérstakt kerfi fyrir hlustun í hljóðlátu um-
hverfi
Bakgrunnssuð / Hávært um-
hverfi Sérstakt kerfi fyrir hlustun í háværu umhverfi
Samgöngur Fyrir hlustun í aðstæðum þar sem hávaði frá
bílum, lestum o.s.frv. er til staðar
Áhrif Notaðu þetta kerfi ef þú kýst skýrt og skarpt
hljóð
Borgarumhverfi Fyrir hlustun í aðstæðum með breytilegu
hljóðstigi (í matvöruverslunum, á háværum
vinnustöðum eða við álíka aðstæður)
Samkvæmi Fyrir hlustun í aðstæðum þar sem margir eru
að tala í einu
17
KERFI NOTKUN
Samkomur Notaðu þetta kerfi ef þú ert á lítilli samkomu,
t.d. við kvöldverð með fjölskyldunni
Tónlist Til að hlusta á tónlist
SÉRSTÖK KERFI NOTKUN
Zen / Slökun Spilar tóna eða suð sem afslappandi bak-
grunnshljóð
Sími Þetta kerfi er hannað til að hlusta á símtöl
SMARTTOGGLE-KERFI NOTKUN
Zen+ Þetta kerfi er svipað og Zen en gerir þér
kleift að hlusta á mismunandi tóna eða s
Sími+ Þetta kerfi gerir þér kleift að hlusta á hljóð
úr símanum og útiloka umhverfishljóð. Ann-
að heyrnartækjanna sendir símtalið til hins
heyrnartækisins, tilþú getir hlustað í
báðum eyrum
NOTE
Heiti kerfanna á listanum eru sjálfgefin. Heyrnarsérfræðingurinn þinn getur einn-
ig valið annað heiti á kerfið af forvöldum lista. Þá er mun auðveldara fyrir þig
velja rétt kerfi fyrir hver hlustunarskilyrði.
18
NOTE
Aðeins er hægt að nota eitt SmartToggle-kerfi í heyrnartækinu.
Heyrnarsérfræðingurinn getur virkjað eiginleikann fyrir aukinn heyranleika, allt
eftir því hvert heyrnartap þitt er. Spurðu heyrnarsérfræðinginn hvort það myndi
gagnast þér. Ef þarfir þínar og óskir breytast með tímanum getur heyrnarsér-
fræðingurinn auðveldlega breytt valinu á kerfinu.
Zen-kerf
Heyrnartækið þitt gæti verið búið einstöku valfrjálsu hlustunarkerfi sem nefnist
Zen. Það býr til tóna (og stundum suð) í bakgrunninum.
Ef hljóð lækka eða þol þitt fyrir hljóðum minnkar, tal verður óskýrara eða
eyrnasuð eykst skaltu hafa samband við heyrnarsérfræðinginn þinn.
Notkun á Zen-kerfinu getur komið í veg fyrirþú heyrir hversdagsleg
hljóð, þ.m.t. tal. Ekki ættinota það þegar mikilvægt er að geta heyrt
slík hljóð. Stilltu heyrnartækið á kerfi annað en Zen við þessar aðstæður.
Hljóðmerki
Heyrnartækið þitt spilar hljóð til að láta þig vita að vissir eiginleikar hafi verið
virkjaðir eða að þú hafir skipt um kerfi. Þessi hljóð geta verið töluð skilaboð
eða tónar.
Biddu heyrnarsérfræðinginn þinn um að slökkva á þessum hljóðum ef þú
þarft ekki á þeim að halda.
Tenging við gagnstætt heyrnartæki tapaðist
(Aðeins í boði á völdum gerðum)
19
Heyrnarsérfræðingurinn þinn getur virkjað eiginleika í heyrnartækinu sem
varar þig við þegar það missir tenginguna við heyrnartækið í gagnstæðu
eyra. Þú færð töluð skilaboð í eyrað.
Stillingar kerfa og hljóðs
Hljóðstyrkur stilltur með hljóðstyrksstillingunni
Heyrnartækið stillir sjálfkrafa hljóðstyrkinn í samræmi við hljóðumhverfi þitt
en þú getur líka stillt það handvirkt eftir þínum þörfum og óskum. Það er
gert með þvísnúa hljóðstyrksstillingunni í átt að framhliðinni til að auka
hljóðstyrkinn og snúa henni í átt að bakhliðinni tildraga úr honum.
Í hvert sinn sem þú stillir hljóðstyrkinn heyrist hljóðmerki, nema ef heyrnar-
sérfræðingurinn hefur gert þennan eiginleika óvirkan. Þú heyrir stöðugan
tón þegar þú nærð lágmarks- eða hámarksstillingu.
NOTE
Heyrnartækið spilar einnig hljóð þegar þú nærð sjálfgefna hljóðstyrknum sem
heyrnarsérfræðingurinn hefur stillt fyrir þig. Þannig er auðveltfara aftur í
bestu stillinguna sem hentar fyrir flest hlustunarskilyrði.
Þú getur líka slökkt á hljóðinu í heyrnartækinu ef þörf krefur. Gerðu eftir-
farandi:
Haltu áfram að snúa hljóðstyrksstýringunni í áttbakhliðinni þar til þú
heyrir stöðugt hljóð
Til að kveikja aftur á hljóðinu:
Snúðu hljóðstyrksstillingunni í átt að framhliðinni eða
skiptu um kerfi
20
  • Page 1 1
  • Page 2 2
  • Page 3 3
  • Page 4 4
  • Page 5 5
  • Page 6 6
  • Page 7 7
  • Page 8 8
  • Page 9 9
  • Page 10 10
  • Page 11 11
  • Page 12 12
  • Page 13 13
  • Page 14 14
  • Page 15 15
  • Page 16 16
  • Page 17 17
  • Page 18 18
  • Page 19 19
  • Page 20 20
  • Page 21 21
  • Page 22 22
  • Page 23 23
  • Page 24 24
  • Page 25 25
  • Page 26 26
  • Page 27 27
  • Page 28 28
  • Page 29 29
  • Page 30 30
  • Page 31 31
  • Page 32 32
  • Page 33 33
  • Page 34 34
  • Page 35 35
  • Page 36 36
  • Page 37 37
  • Page 38 38
  • Page 39 39
  • Page 40 40
  • Page 41 41
  • Page 42 42
  • Page 43 43
  • Page 44 44

Widex MAGNIFY M-IM M33 Užívateľská príručka

Typ
Užívateľská príručka

V iných jazykoch