4
SMARTMIG 110
IS
Allir suðumenn ættu að lágmarka útsetningu sína fyrir rafsegulsviðum frá ljósbogasuðutækjum samkvæmt eftirfarandi
verkferli:
• Festa rafskautshöldu og jarðkapal saman, gjarnan með límbandi;
• Haltu efri hluti líkamans og höfði sem lengst frá suðustaðnum;
• Gættu þess að kaplar, brennarinn eða jarðklemman vefjist ekki um líkama þinn;
• Stattu aldrei á milli jarð- og brennarakapals. Kaplarnir ættu ávallt að liggja sömu megin;
• Tengdu jarðtöngina við vinnustykkið sem næst suðustaðnum;
• Stundaðu aldrei suðuvinnu við hliðina á suðuagjafanum;
• Ekki sjóða meðan verið er að ytja agjafann eða vírmatarann.
Fólk sem notar hjartagangráð eða heyrnartæki ætti að ráðfæra sig við lækni áður en það hefur störf
nálægt vélinni.
Notkun á tækinu getur haft áhrif á vinnslu lækningaraftækja, tölva og annarra tækja.
ÁBENDING UM SKOÐUN Á SUÐUSTAÐNUM OG SUÐUKERFINU
Almennt
Notandinn ber ábyrgð á að suðutækið og fylgihlutir séu notaðir rétt í samræmi við fyrirmæli framleiðandans. Notandinn
ber ábyrgð á að eyða eða lágmarka þær rafsegultruanir sem upp koma, mögulega með aðstoð framleiðandans. Rétt
jarðtenging suðustaðarins, þ.m.t. allra tækja, er oft gagnleg. Í vissum tilvikum getur þurft að rafsegulskerma suðustrauminn.
Það er í öllu falli nauðsynlegt að sjá til þess að rafsegultruanir séu óverulegar.
Skoðun á suðustaðnum
Áður en ljósbogasuðubúnaði er komið upp ber að kanna hvort rafsegulvandamál séu í umhvernu. Við mat á hugsanlegum
rafsegulvandamálum í umhvernu ber að taka tillit til eftirfarandi:
a) raf-, stýri-, merkja- og fjarskiptaleiðslna;
b) útvarps- og sjónvarpstækja;
c) tölva og annarra stýritækja;
d) öryggisbúnaðar, t.d. til verndar iðnaðarefna;
e) heilsu nærstaddra, einkum ef þeir nota hjartagangráð eða heyrnartæki;
f) kvörðunar- og mælibúnaðar;
g) þols annarra nálægra tækja gagnvart truunum;
Notandinn þarf að athuga hvort hægt er að nota önnur vinnsluefni í umhvernu. Því kann að vera þörf á frekari
varnaraðgerðum;
h) á hvaða tíma dags þarf að framkvæma suðuvinnuna.
Það ræðst af stærð og lögun byggingarinnar og annarri starfsemi í henni hversu stórt umhver ber að taka með í
reikninginn. Það getur verið rétt að skilgreina umhverð þannig að það nái út fyrir mörk suðubúnaðarins.
Skoðun á suðutækinu
Auk þess að athuga suðustaðinn má leysa frekari vandamál með því að skoða suðutækið. Framkvæma ber skoðunina í
samræmi við 10. gr. IEC/CISPR 11:2009. Einnig má staðfesta áhrif mildunaraðgerða með því að framkvæma mælingar
á staðnum.
ÁBENDINGAR UM AÐFERÐIR TIL AÐ MINNKA RAFSEGULSVIÐ
a. Opinbera rafveitukerð: Ráðlagt er að setja ljósbogasuðutækið í samband við opinbera rafveitukerð í samræmi við
ábendingar framleiðandans. Ef víxlverkunartruanir eiga sér stað kann að vera þörf á frekari aðgerðum (t.d. inntakssíu).
Mögulega þarf að skerma rafmagnskapalinn með málmröri. Sé kapalrúlla notuð, ber að rúlla kaplinum alveg af henni.
Mögulega þarf að skerma annan búnað í nágrenninu eða allan suðubúnaðinn.
b. Viðhald tækisins og fylgihluta: Ráðlagt er að setja ljósbogasuðutækið í samband við opinbera rafveitukerð í
samræmi við ábendingar framleiðandans. Meðan tækið er í notkun ber að loka og læsa öllum þjónustudyrum og hlífum
og öðrum aðgangsleiðum. Ekki má breyta suðutækinu eða fylgihlutum á nokkurn hátt að undanskildum þeim breytingum
og stillingum sem fram koma í leiðarvísi framleiðanda tækisins. Sérstaklega er mikilvægt að farið sé eftir leiðarvísi
framleiðanda tækisins við stillingar og viðhald ljósbogakveiki- og stöðgunarbúnaðar.
c. Suðukaplar: Suðukaplar ættu að vera sem stystir og liggja þétt saman á gólnu.
d. Spennujöfnun: Spennujöfnun þarf að taka mið af öllum málmhlutum á suðustaðnum. Það er eftir sem áður hætta á
raosti ef rafskaut og málmhlutir eru snertir samtímis. Notandinn verður að einangra sig frá málmhlutum.
e. Jarðtenging vinnustykkisins: Í vissum tilvikum má draga úr truunum með því að jarðtengja vinnustykkið. Forðast ber
að jarðtengja vinnustykki ef það eykur hættu á að notandi meiðist eða að önnur rafvirk efni skemmist. Jarðtengja má
hvort heldur er beint eða í gegnum þétti. Velja ber þéttinn í samræmi við viðeigandi landsstaðla.
f. Vörn og aðgreining: Það kann að draga úr truunum að skerma annan nálægan búnað eða allan suðubúnaðinn.
Fyrir sérstaka notkun kemur til greina að skerma allt suðusvæðið.