• Meðhöndlaðu gluggatjöld varlega.
Fjarlægðu krækjurnar eða settu
gluggatjöldin í þvottanet eða koddaver.
• Þvoðu ekki þvott án falds eða sem hefur
rifnað í heimilistækinu. Notaðu þvottanet
til að þvo lítil og/eða viðkvæm stykki (t.d.
brjóstahaldara með spöng, belti,
sokkabuxur, o.s.frv.).
• Mjög lítill þvottur í vélinni getur valdið
jafnvægisvandamálum við vindingu. Ef
þetta gerist skaltu laga stykkin í
tromlunni til og hefja vindinguna aftur.
Erfiðir blettir
Á suma bletti dugar ekki vatn og þvottaefni.
Við mælum með því eyða þessum blettum
áður en þvotturinn er settur í heimilistækið.
Sérstakir blettaeyðar eru fáanlegir. Notaðu
réttan blettaeyði fyrir þá gerð bletta og
efnis sem um ræðir.
Þvottaefni og íblendiefni
• Aðeins skal nota þvottaefni og
íblendiefni sem eru gerð sérstaklega fyrir
þvottavélar:
– duftþvottaefni fyrir allar tegundir
efna,
– duftþvottaefni fyrir viðkvæm efni
(40°C hámark) og ull,
– fljótandi þvottaefni, helst fyrir þvott á
lágu hitastigi (60°C hámark) fyrir öll
efni, eða sérstök þvottaefni fyrir ull
eingöngu.
• Ekki blanda saman ólíkum gerðum
þvottaefna.
• Til að vernda umhverfið skaltu ekki nota
meira en rétt magn af þvottaefni.
• Fylgja skal leiðbeiningunum sem er að
finna á umbúðum þvottaefnanna.
• Nota skal rétt þvottaefni fyrir gerð og lit
þess efnis sem á að þvo, hitastig
þvottaferilsins og óhreinindastig.
• Ef heimilistækið þitt er ekki með
þvottaefnishólf með flipabúnaði skaltu
setja fljótandi þvottaefni í með
skömmtunarkúlu (fáanleg hjá
framleiðanda þvottaefnisins).
Vistfræðileg heillaráð
• Stilltu kerfi án forþvottar þegar þveginn
er venjulega óhreinn þvottur.
• Byrjaðu alltaf þvottakerfi með fulla vél af
þvotti.
• Ef þörf er á má nota blettaeyði þegar þú
stillir kerfi með lágu hitastigi.
• Til að nota rétt magn af þvottaefni skaltu
kynna þér herslustig vatnsins þar sem þú
býrð
Herslustig vatns
Ef herslustig vatnsins á þínu svæði er hátt
eða meðalhátt, mælum við með að þú notir
vatnsmýkingarefni fyrir þvottavélar. Á
svæðum þar sem herslustig vatns er mjúkt er
ekki nauðsynlegt að nota
vatnsmýkingarefni.
Til að komast að því hvert herslustig vatns
er þar sem þú býrð skaltu hafa samband
við vatnsveituna á staðnum.
Notaðu rétt magn af vatnsmýkingarefni.
Hlýddu leiðbeiningunum sem er að finna á
umbúðum vörunnar.
Umhirða og þrif
AÐVÖRUN! Sjá kafla um
Öryggismál.
Hreinsun að utan
Hreinsaðu heimilistækið eingöngu með
sápu og volgu vatni. Þurrkaðu alla fleti til
fulls.
ÍSLENSKA 18