IKEA ISANDE Používateľská príručka

Typ
Používateľská príručka
ISANDE
IS
ÍSLENSKA
Á öftustu síðu þessarar handbók er skrá yfir alla veitendur
eftirsöluþjónustu sem útnefndir hafa verið af IKEA og viðeigandi
símanúmer í hverju landi.
ÍSLENSKA
4
Efnisyfirlit
Öryggisupplýsingar 4
Öryggisleiðbeiningar 5
Innsetning 7
Vörulýsing 9
Notkun 10
Dagleg notkun 13
Góð ráð 16
Umhirða og þrif 17
Bilanaleit 19
Tæknigögn 22
Umhverfismál 23
IKEA-ÁBYRGÐ 23
Með fyrirvara á breytingum.
Öryggisupplýsingar
Fyrir uppsetningu og notkun heimilistækisins skal lesa
meðfylgjandi leiðbeiningar vandlega. Framleiðandinn ber ekki
ábyrgð á neinum meiðslum eða skemmdum sem leiða af rangri
uppsetningu eða notkun. Geymdu alltaf leiðbeiningarnar á
öruggum stað þar sem auðvelt er að nálgast þær til síðari
notkunar.
Öryggi barna og viðkvæmra einstaklinga
Börn, 8 ára og eldri og fólk með minnkaða líkamlega-, skyn-
eða andlega getu, eða sem skortir reynslu og þekkingu,
mega nota þetta tæki, ef þau eru undir eftirliti eða hafa verið
veittar leiðbeiningar varðandi örugga notkun tækisins og ef
þau skilja hættuna sem því fylgir.
Börn á milli 3 og 8 ára gömul og fólk með miklar og flóknar
fatlanir mega nota þetta heimilistæki ef þau hafa fengið
almennilegar leiðbeiningar.
Halda skal börnum yngri en 3 ára frá tækinu nema þau séu
undir stöðugu eftirliti.
Leyfðu ekki börnum að leika sér með tækið.
Börn eiga ekki að hreinsa eða framkvæma notandaviðhald á
heimilistækinu án eftirlits.
Haltu öllum umbúðum frá börnum og fargaðu þeim á
viðeigandi hátt.
ÍSLENSKA
4
Almennt öryggi
Þetta heimilistæki er ætlað til notkunar á heimili og við
svipaðar aðstæður og:
Á bóndabýlum; starfsmannaeldhúsum í verslun, á
skrifstofum og á öðrum vinnustöðum
Af viðskiptavinum á hótelum, mótelum, gistiheimilum og á
öðrum íbúðarstöðum
VIÐVÖRUN: Gættu þess að engar fyrirstöður séu í
loftræstiopum, hvorki í umlykju heimilistækisins né
innbyggðum hlutum þess.
VIÐVÖRUN: Ekki nota vélknúin búnað eða aðrar leiðir til þess
að hraða affrystingartímanum, önnur en þau sem
framleiðandi mælir með.
VIÐVÖRUN: Ekki skadda kælirásina.
VIÐVÖRUN: Ekki nota rafmagnstæki í matvælageymsluhólfi
tækisins nema framleiðandi mæli með slíkum gerðum.
Notaðu ekki vatnsúða og gufu til að hreinsa heimilistækið.
Hreinsaðu tækið með rökum og mjúkum klút. Notaðu aðeins
mild þvottaefni. Notaðu ekki rispandi efni, stálull, leysiefni
eða málmhluti.
Ekki geyma sprengifim efni, svo sem loftúðabrúsa með
eldfimum efnum í tækinu.
Ef rafmagnssnúran er skemmd verður að fá nýja frá
framleiðanda, viðurkenndri þjónustumiðstöð eða svipað
hæfum aðila til þess að koma í veg fyrir hættu.
Öryggisleiðbeiningar
Uppsetning
AÐVÖRUN! Einungis löggildur
aðili má setja upp þetta
heimilistæki.
Fjarlægðu allar umbúðir og
flutningsboltana.
Ekki skal setja upp eða nota skemmt
heimilistæki.
Fylgdu leiðbeiningum um uppsetningu
sem fylgja með heimilistækinu.
Alltaf skal sýna aðgát þegar
heimilistækið er fært vegna þess að það
er þungt. Notaðu alltaf öryggishanska og
lokaðan skóbúnað.
ÍSLENSKA 5
Gakktu úr skugga um að loft geti leikið
um heimilistækið.
Við fyrstu uppsetningu eða eftir að
hurðinni hefur verið snúið skal bíða í að
minnsta kosti 4 klukkustundir áður en
heimilistækið er tengt við rafmagn. Þetta
er til að leyfa olíunni að renna aftur í
þjöppuna.
Áður en þú framkvæmir einhverjar
aðgerðir á heimilistækinu (t.d. snýrð við
hurðinni) skaltu taka klóna úr
rafmagnsinnstungunni.
Ekki setja heimilistækið upp nálægt
ofnum eða eldavélum, ofnum eða
helluborðum.
Ekki hafa heimilistækið berskjaldað
gagnvart rigningu.
Ekki setja heimilistækið upp þar sem sól
skín beint á það.
Ekki setja þetta heimilistæki upp á
svæðum þar sem er of mikill raki eða of
kalt.
Þegar þú færir heimilistækið skaltu lyfta
því á brúninni að framan til þess að
forðast að rispa gólfið.
Heimilistækið inniheldur poka af
þurrkefni. Þetta er ekki leikfang. Þetta er
ekki matvara. Vinsamlegast fargaðu því
samstundis.
Tenging við rafmagn
AÐVÖRUN! Hætta á eldi og
raflosti.
AÐVÖRUN! Þegar heimilistækið
er staðsett skaltu tryggja að
rafmagnssnúran sé hvorki
klemmd né skemmd.
AÐVÖRUN! Notaðu ekki fjöltengi
eða framlengingarsnúrur.
Heimilistækið verður að vera jarðtengt.
Gakktu úr skugga um að færibreyturnar
á merkiplötunni séu samhæfar við
rafmagnsflokkun aðalæðar aflgjafa.
Notaðu alltaf rétt ísetta innstungu sem
ekki veldur raflosti.
Gættu þess að valda ekki skaða á
rafmagnsíhlutum (t.d. rafmagnskló,
rafmagnssnúru, þjöppu). Hafðu samband
við viðurkennda þjónustumiðstöð eða
rafvirkja til þess að skipta um
rafmagnsíhluti.
Rafmagnssnúran þarf að vera fyrir
neðan rafmagnsklóna.
Aðeins skal tengja rafmagnsklóna við
rafmagnsinnstunguna í lok
uppsetningarinnar. Gakktu úr skugga um
að rafmagnsklóin sé aðgengileg eftir
uppsetningu.
Ekki toga í snúruna til að taka tækið úr
sambandi. Taktu alltaf um klóna.
Notkun
AÐVÖRUN! Hætta á meiðslum,
bruna, raflosti eða eldsvoða.
Breyttu ekki tæknilýsingu fyrir þetta
heimilistæki.
Ekki setja rafmagnstæki (t.d. ísvélar) í
heimilistækið nema framleiðandi þeirra
segi þau henta til slíks.
Gætið þess að valda ekki skaða á
kælirásinni. Hún inniheldur ísóbútan
(R600a), náttúrulegt gas, sem er mjög
umhverfisvænt. Gasið er eldfimt.
Ef kælirásin skemmist skal gæta þess að
engir logar eða leiðir til kveikingar séu í
herberginu. Loftræstu herbergið.
Ekki láta heita hluti snerta plasthluti
tækisins.
Ekki setja gosdrykki í frystihólfið. Það
mun skapa þrýsting á drykkjarílátið.
Ekki geyma eldfimar gastegundir og
vökva í tækinu.
Settu ekki eldfim efni eða hluti sem eru
blautir af eldfimum efnum í, nálægt eða
á heimilistækið.
Ekki snerta þjöppuna eða þéttinn. Þau
eru heit.
Ekki fjarlægja eða snerta hluti úr
frystihólfinu ef þú ert með blautar eða
rakar hendur.
Ekki frysta aftur matvæli sem hafa verið
þídd.
ÍSLENSKA
6
Fylgið geymsluleiðbeiningum á
umbúðum frystra matvæla.
Innri lýsing
AÐVÖRUN! Hætta á raflosti.
Sú tegund ljóss sem notuð er fyrir þetta
tæki er aðeins ætluð heimilistækjum. Ekki
nota það sem heimilisljós.
Umhirða og þrif
AÐVÖRUN! Hætta á meiðslum
eða skemmdum á heimilistækinu.
Áður en viðhald fer fram á tækinu skal
slökkva á því og aftengja aðalklóna frá
rafmagnsinnstungunni.
Þetta tæki inniheldur kolvatnsefni í
kælieiningunni. Aðeins hæfir aðilar mega
sinna viðhaldi og endurhleðslu á
einingunni.
Skoðið frárennsli tækisins reglulega og
hreinsið það ef þörf krefur. Ef frárennslið
er stíflað mun affryst vatn safnast fyrir í
botni heimilistækisins.
Þjónusta
Hafðu samband við viðurkennda
þjónustumiðstöð til að gera við
heimilistækið.
Notaðu eingöngu upprunalega varahluti.
Förgun
AÐVÖRUN! Hætta á meiðslum
eða köfnun.
Aftengið heimilistækið frá
rafmagnsgjafanum.
Klippa rafmagnssnúruna af og fleygið
henni.
Fjarlægið hurðina til að koma í veg fyrir
að börn eða dýr geti lokast inni í tækinu.
Kælirásin og einangrunarefnið á tækinu
eru ósónvæn.
Einangrunarfroðan inniheldur eldfimar
lofttegundir. Hafið samband við
sveitarfélagið til að fá upplýsingar um
hvernig á að farga heimilistækinu á
réttan hátt.
Ekki valda skaða á hluta
kælieiningarinnar sem er nálægt
hitaskiptinum.
Innsetning
AÐVÖRUN! Sjá kafla um
Öryggismál.
Staðsetning
Farið eftir
samsetningarleiðbeiningunum
við innsetningu.
Til að tryggja að heimilistækið starfi sem
best skal setja það upp í góðri fjarlægð frá
hitagjöfum eins og ofnum, vatnshiturum,
beinu sólarljósi o.s.frv.. Gætið þess að loft
streymi greiðlega um bakhlið skápsins.
Staðsetning
Komdu þessu heimilistæki fyrir á vel
loftræstum stað innandyra þar sem hitastig
umhverfisins samsvarar loftslagsflokknum
sem gefinn er upp á merkiplötu
heimilistækisins:
ÍSLENSKA 7
Loftslags-
flokkur
Umhverfishitastig
SN +10°C til + 32°C
N +16°C til + 32°C
ST +16°C til + 38°C
T +16°C til + 43°C
Vandamál varðandi virkni
búnaðarins geta komið upp hjá
sumum tegundum þegar verið er
vinna utan við þetta svið.
Einungis er hægt að tryggja rétta
virkni ef rétt hitastig er viðhaft. Ef
þú hefur einhverjar efasemdir
varðandi uppsetningu
heimilistækisins skaltu
vinsamlegast leita til söluaðilans,
til viðskiptavinaþjónustu okkar,
eða til næstu viðurkenndu
þjónustumiðstöðvar.
Rafmagnstenging
Áður en stungið er í samband þarf að
fullvissa sig um að rafspennan og raftíðnin
sem sýnd er á tegundarspjaldinu samræmist
aflgjafa heimilisins.
Heimilistækið þarf að vera jarðtengt. Þess
vegna er kló aflgjafasnúrunnar útbúin með
sérstöku tengi. Ef rafmagnsinnstungan á
heimilinu er ekki jarðtengd skal setja
heimilistækið í annað jarðsamband eftir
gildandi reglugerðum, í samráði við
löggiltan rafvirkja.
Framleiðandinn afsalar sig allri ábyrgð ef
ofangreindum öryggisleiðbeiningum er ekki
fylgt.
Þetta heimilistæki samræmist EBE-
tilskipunum.
ÍSLENSKA 8
Vörulýsing
11
10
9
8
7
5
6
21 3
4
1
Viftukæling með ljósdíóðuljósi
2
Stjórnborð
3
Flöskurekki
4
Mjólkurvöruhólf með loki
5
Hurðarsvalir
6
Grænmetisskúffur
7
Flöskusvalir með haldara
8
Frystiskúffur
9
Skúffa frystis
10
Merkiplata
11
Glerhillur
Svæðið með minnstum kulda
Miðlungskalt svæði
Kaldasta svæðið
ÍSLENSKA 9
Notkun
Stjórnborð
1
78
4
3 2
5
6
1
Skjár
2
Hnappurinn Frystir heitari
3
Hnappurinn Frystir kaldari
4
OK-hnappur
5
Aðgerð-hnappur
6
Hnappurinn Kælir heitari
7
Hnappurinn Kælir kaldari
8
ON/OFF-hnappur
Skjár
Off
min
A B C D E F G
I HJKL
A. Vísir fyrir kælihólf
B. Hitastigsvísir kælis og tímastillisvísir
C. Off-vísir kælis
D. Vísir fyrir Innkaup-aðgerð
E. Vísir fyrir Sumarfrí-aðgerð
F. Vísir fyrir Hraðfrysting-aðgerð
G. Hitastigsvísir frystis
H. Vísir fyrir frystihólf
I. Viðvörunarvísir
J. Vísir fyrir Barnalæsingaraðgerð
K. Vísir fyrir Flöskukæling-aðgerð
L. Vísir fyrir Viftukæling-aðgerð
Kveikt á
Tengdu klóna við rafmagnsinnstunguna
1. Ýttu á
8
ON/OFF-hnappinn ef slökkt er
á skjánum.
Hitastigsvísarnir sýna sjálfgefið hitastig.
2. Hljóðviðvörun kann að hefjast eftir
nokkrar sekúndur.
Til að endurstilla viðvörunina sjá
„Viðvörun um hátt hitastig“.
Ef "DEMO" birtist á skjánum er
heimilistækið í kynningarstillingu. Sjá
„Bilanaleit...“.
Til að velja annað innstillt
hitastig, sjá „Hitastýring“.
ÍSLENSKA 10
Slökkt á
Ýttu á
8
ON/OFF-hnappinn í 3 sekúndur.
Það slokknar á skjánum.
Heimilistækið er tekið úr sambandi með því
að taka klóna úr rafmagnsinnstungunni.
Að kveikja á kælinum
1. Ýttu á einn af hitastigshnöppum kælisins.
Eða:
1. Ýttu á hnappinn
5
Aðgerð þar til Off-
táknmynd fyrir kælinn leiftrar.
2. Ýttu á
4
OK-hnappinn til að staðfesta.
3. Vísir fyrir kæli Off slokknar.
Til að velja annað innstillt hitastig, sjá
„Hitastýring“.
Að slökkva á kælinum
1. Ýttu á hnappinn
5
Aðgerð þar til Off-
táknmynd fyrir kælinn birtist.
Off-vísir kælis og vísir fyrir kælihólf leiftra.
2. Ýttu á
4
OK-hnappinn til að staðfesta.
Vísirinn Off fyrir kælinn birtist.
Hitastjórnun
1. Innstillt hitastig kælisins má stilla með því
að ýta á hitastigshnappana.
Sjálfgefið hitastig:
+5°C fyrir kælinn
Hitastigsvísirinn sýnir innstillt hitastig.
Hitastigið í kælihólfinu getur verið breytilegt
á milli +2°C og +8°C.
2. Stilla má innstillt hitastig frystisins með
því að ýta á hitastigshnappana.
Sjálfgefið hitastig:
-18°C fyrir frystinn
Hitastigsvísirinn sýnir innstillt hitastig.
Hitastigið í frystihólfinu getur verið
breytilegt á milli -15°C og -24°C.
Innstillt hitastig næst innan
sólarhrings. Eftir rafmagnsleysi
helst innstillt hitastig vistað.
Aðgerðavalmynd
Í hvert sinn sem ýtt er á hnappinn
5
Aðgerð er hægt að virkja eftirfarandi
aðgerðir:
Innkaup-aðgerð
Sumarfrí-aðgerð
Hraðfrysting-aðgerð
Barnalæsingaraðgerð
Flöskukæling-aðgerð
Viftukæling-aðgerð
Ekkert tákn: Venjuleg notkun
Þú getur kveikt á aðgerð hvenær
sem er og slökkt á henni með því
að ýta nokkrum sinnum á
hnappinn
5
Aðgerð þar til
engin táknmynd birtist.
Innkaup-aðgerð
Ef þú þarft að setja inn mikið magn af mat í
einu, til dæmis eftir matarinnkaup, stingum
við upp á að þú virkir Innkaup-aðgerðina til
að kæla vörurnar hraðar og til að hindra að
maturinn sem fyrir er í ísskápnum hitni.
Innkaup-aðgerðin slekkur
sjálfkrafa á sér eftir um það bil 6
klukkustundir.
1. Ýttu á
5
Aðgerð-hnappinn þar til
táknmyndin Innkaup birtist.
Innkaup-vísirinn leiftrar.
2. Ýttu á hnappinn
4
OK til að staðfesta.
Innkaup-vísirinn er sýndur.
Til þess að slökkva á aðgerðinni áður en
henni lýkur sjálfvirkt skaltu endurtaka ferlið
þar til vísir fyrir Innkaup hverfur.
Aðgerðin slokknar þegar valið er
annað hitastig fyrir kælinn.
ÍSLENSKA 11
Sumarfrí-aðgerð
Þessi aðgerð gerir þér kleift að halda
kæliskápnum lokuðum og tómum í löngum
sumarfríum án þess að slæmur fnykur
myndist.
Kælihólfið verður að vera tómt
með kveikt á Sumarfrí-
aðgerðinni.
1. Ýttu á
5
Aðgerð-hnappinn þar til
táknmyndin Sumarfrí birtist.
Sumarfrí-vísirinn leiftrar. Hitavísir kælisins
sýnir innstillt hitastig.
2. Ýttu á hnappinn
4
OK til að staðfesta.
Sumarfrí-vísirinn er sýndur.
Til að slökkva á aðgerðinni skal endurtaka
ferlið þar til vísirinn fyrir Sumarfrí hverfur.
Aðgerðin slokknar þegar valið er
annað hitastig fyrir kælinn.
Hraðfrysting-aðgerð
Til að frysta fersk matvæli þarft þú að virkja
Hraðfrysting-aðgerðina.
Hraðfrysting-aðgerðin slekkur
sjálfkrafa á sér eftir 52
klukkustundir.
1. Ýttu á
5
Aðgerð-hnappinn þar til
táknmyndin Hraðfrysting birtist.
Hraðfrysting-vísirinn leiftrar.
2. Ýttu á hnappinn
4
OK til að staðfesta.
Hraðfrysting-vísirinn er sýndur.
Til að slökkva á aðgerðinni skal endurtaka
ferlið þar til vísirinn fyrir Hraðfrysting
hverfur.
Ef annað innstillt hitastig frystis er
valið slokknar á aðgerðinni.
Barnalæsingaraðgerð
Virkjaðu barnalæsingaraðgerðina til að
læsa hnöppunum gegn óviljandi notkun.
1.
Ýttu á
5
Aðgerð-hnappinn þar til
táknmyndin Barnalæsing birtist.
Barnalæsingarvísirinn leiftrar.
2. Ýttu á hnappinn
4
OK til að staðfesta.
Barnalæsingarvísirinn er sýndur.
Til að afvirkja barnalæsingaraðgerðina
skaltu endurtaka verklagið þar til
barnalæsingarvísirinn hverfur.
Flöskukæling-aðgerð
Hægt er að nota Flöskukæling-aðgerðina til
að stilla hljóðaðvörun á óskuðum tíma; hún
er gagnleg til að kæla niður blöndu í
ákveðið tímabil eða sem áminning þegar
drykkjarflöskur eru hraðkældar.
1. Ýttu á
5
Aðgerð-hnappinn þar til
táknmyndin Flöskukæling birtist.
Tímastillirinn sýnir innstillt tímagildi (30
mínútur).
2. Ýttu á
2
,
3
hitastigshnappana til að
breyta stilltu gildi tímamælisins frá 1 til
90 mínútur. Ýttu á hnappinn
4
OK til
að staðfesta.
Tímastillisvísirinn (min). er sýndur.
Þegar niðurtalningu lýkur leiftrar
Flöskukæling táknið og hljóðaðvörun
heyrist. Þá skal fjarlægja þær vörur sem
voru settar í heimilistækið til kælingar og ýta
á hnappinn
5
Aðgerð til að slökkva á
hljóðinu og stöðva aðgerðina.
Til að breyta tímanum á meðan á
niðurtalningu stendur eða í lokin skal ýta á
einn af hitastigshnöppunum
2
,
3
.
Til að gera aðgerðina óvirka hvenær sem er
í niðurtalningu skal endurtaka ferlið þar til
vísirinn Flöskukæling hverfur.
Viftukæling-aðgerð
Kæliskápshólfið er búið viftu sem gerir kleift
að kæla matinn hratt og heldur jafnara
hitastigi í hólfinu.
ÍSLENSKA
12
1. Ýttu á
5
Aðgerð-hnappinn þar til vísir
fyrir Viftukæling birtist.
Vísirinn fyrir Viftukæling leiftrar í nokkrar
sekúndur.
2. Ýttu á hnappinn
4
OK til að staðfesta.
Viftukæling-vísirinn er sýndur.
Til að slökkva á þessari aðgerð skaltu
endurtaka ferlið þar til vísirinn fyrir
Viftukæling hverfur.
Viðvörun um háan hita
Hækkun á hitastigi í frystihólfinu (til dæmis
vegna þess að rafmagn hefur farið af eða
dyr eru opnar) er gefin til kynna með
hljóðviðvörun, leiftrandi viðvörunarvísi og
hitavísi frystis.
Ýttu á hvaða hnapp sem er til að endurstilla
viðvörunina og slökkva á hljóðmerkinu.
Hitastigsvísir frystis sýnir hæsta hitastigið
sem náðist í nokkrar sekúndur. Því næst
sýnir hann aftur innstillta hitastigið.
Viðvörunarvísirinn heldur áfram að blikka
þar til eðlilegu ástandi hefur verið komið á,
síðan slokknar á honum.
Aðvörun um opna hurð
Ef hurðin er skilin eftir opin í um það bil 5
mínútur byrjar hljóðviðvörunin og
viðvörunarvísir leiftrar.
Viðvörunin stöðvast eftir að dyrunum er
lokað. Meðan á viðvöruninni stendur er
hægt að þagga niður í hljóðmerkinu með
því að ýta á einhvern hnapp.
Dagleg notkun
AÐVÖRUN! Sjá kafla um
Öryggismál.
Fylgihlutir
Eggjabakki
x1
Ísbakkar
x2
Frystihólfsblokkir
Vísir fyrir hitastig
ÍSLENSKA 13
Þetta heimilistæki er selt í
Frakklandi.
Samkvæmt reglugerðum sem
gilda í þessu landi þarf að fylgja
með því sérstakur búnaður (sjá
mynd) sem koma á fyrir í neðra
hólfi ísskápsins sem sýnir hvar
kaldasta svæði hans er.
Færanlegar hillur
Í hliðum ísskápsins eru margar höldur
þannig að hægt er að koma hillunum, sem
eru úr öryggisgleri, fyrir hvar sem óskað er.
VARÚÐ! Ekki færa glerhilluna
fyrir ofan grænmetisskúffuna, svo
að rétt loftstreymi haldist.
Flöskurekki
Settu flöskurnar (með stútinn vísandi fram) í
forstillta flöskurekkann.
Ef rekkinn er í láréttri stöðu skal
aðeins setja lokaðar flöskur í
hann.
Hægt er að halla þessum flöskurekka til að
geyma óinnsiglaðar flöskur. Til að ná þeirri
niðurstöðu skal setja framkróka rekkans
einni stöðu hærra en afturkrókana.
Hurðasvalir staðsettar
Til að hægt sé að geyma matarpakka af
ýmsum stærðum er hægt að hafa
hurðasvalirnar í mismunandi hæð.
Til að gera þessar stillingar skaltu gera sem
hér segir: Togaðu svalirnar smám saman
upp þar til þær eru lausar og settu þær í þá
stöðu sem óskað er.
ÍSLENSKA
14
Grænmetisskúffur
Ávexti og grænmeti ætti að setja í þessar
skúffur (sjá myndina).
Viftukæling
Þessi búnaður virkjar sig sjálfur ef þörf
krefur, til dæmis þegar leiðrétta þarf
hitastigið fljótt eftir að hurðin er opnuð eða
þegar umhverfishitastig er hátt.
Viftan gengur aðeins þegar
dyrnar eru lokaðar.
Viftan virkjar sig sjálf við eftirfarandi
aðstæður:
Þegar Innkaup-aðgerðin er virkjuð -
viftan gengur allan tímann á meðan
Innkaup-aðgerðin er í gangi
Þegar umhverfishitastig fer umfram 32°C
Þegar opnun hurðar setur hitastigið í
kælihólfinu í ójafnvægi
Ef aðgerðin er virkjuð sjálfvirkt er
vísirinn fyrir Viftukæling ekki
sýndur.
Ef aðgerðin er virkjuð sjálfvirkt
getur þú ekki slökkt á henni.
Viftan afvirkjar sig sjálf.
Til að kveikja handvirkt á tækinu vísast til
„Viftukæling-aðgerð“.
Frysting ferskra matvæla
Frystihólfið hentar til frystingar á ferskum
matvælum og geymslu á frystum og
djúpfrystum mat um lengri tíma.
Til að frysta fersk matvæli skal virkja
Hraðfrysting-aðgerðina minnst 24
klukkustundum áður en maturinn sem á að
frysta er settur í frystihólfið.
Settu ferska matinn sem á að frysta í efsta
hólfið.
Hámarksmagn matvæla sem hægt er að
frysta á 24 klukkustundum er tilgreint á
tegundarspjaldinu, merkingu sem staðsett
er innan á kæliskápnum.
Frystingarferlið tekur sólarhring: Á þessu
tímabili má ekki bæta við meiri mat sem á
að frysta.
Eftir 24 klukkustundir, þegar frystingarferlinu
er lokið, skal afvirkja Hraðfrysting-
aðgerðina (sjá „Hraðfrysting-aðgerð“).
Frystingardagatal
3-6
1-2
10-12
3-4
10-12
3-6
10-12
3-6
10-12
3-6
ÍSLENSKA 15
Táknin sýna ýmsar gerðir frosinna matvæla.
Tölurnar sýna geymslutíma í mánuðum fyrir
viðeigandi gerðir frystivöru. Það fer eftir
gæðum matvörunnar og meðferð hennar
fyrir frystingu hvort lengra eða styttra
geymsluþolið sem gefið er upp er gildir.
Geymsla frystra matvæla
Þegar heimilistækið er fyrst ræst eða sett í
gang á ný eftir notkunarhlé skal láta það
ganga í minnst 12 klukkustundir með
Hraðfrysting-aðgerðina áður en matvælin
eru sett í hólfið.
Ef þiðnun verður fyrir slysni, til
dæmis af því að rafmagnið fer af
og rafmagnsleysið hefur varað
lengur en gildið sem sýnt er í
tæknieiginleikatöflunni undir
„hækkunartíma“, þarf að neyta
þídda matarins fljótt eða elda
hann strax og frysta hann svo
aftur (eftir kælingu).
Afþíðing
Djúpfryst eða fryst matvara, fyrir notkun, er
hægt að afþíða í ísskápnum eða við
stofuhita, eftir því hversu fljótt matvaran
þarf að afþiðna.
Litla bita af mat má jafnvel sjóða þegar
þeir eru enn frosnir, beint úr frystinum. í
þessu tilviki tekur suðan lengri tíma.
Ísmolaframleiðsla
Með þessu heimilistæki fylgir bakki til
ísmolagerðar.
1. Fylltu bakkann af vatni.
2. Settu bakkann í frystihólfið
VARÚÐ! Notaðu ekki
málmverkfæri til að fjarlæga
bakkann úr frystinum.
VARÚÐ! Snertu ekki
heimilistækið með blautum
höndum, þar sem þær gætu fest
við innra yfirborðið.
Frystikubbar
Tveir frystikubbar fylgja með frystinum. Þeir
lengja tímann sem maturinn helst
varðveittur ef rafmagnsleysi eða bilun á sér
stað.
VARÚÐ! Opnaðu ekki eða
drekktu innihaldið í
frystikubbunum.
Góð ráð
Eðlileg vinnsluhljóð
Eftirfarandi hljóð eru venjuleg við notkun:
Dauft gjálfandi og vellandi hljóð frá
spólunum heyrast þegar kæliefninu er
dælt.
Suðandi og titrandi hljóð frá þjöppunni
þegar kæliefninu er dælt.
Skyndilegt smelluhljóð innan úr tækinu af
völdum hitabólgnunar (eðlilegt og
hættulaust náttúrulegt fyrirbæri).
Dauft smelluhljóð frá hitastillingum þegar
kveiknar eða slökknar á þjöppunni.
Ábendingar um orkusparnað
Ekki opna dyrnar oft eða hafa þær
opnar lengur en brýn nauðsyn krefur.
Ekki fjarlægja frystikubba úr
frystikörfunni.
Ábendingar um kælingu á ferskum
matvælum
Ekki geyma heitan mat eða vökvar sem
uppgufun er af í kæliskápnum.
ÍSLENSKA 16
Breiddu yfir eða pakkaðu inn matnum,
sérstaklega ef hann er bragðsterkur.
Matnum er komið þannig fyrir að loft geti
leikið óhindrað um hann.
Ábendingar um kælingu
Gagnlegar ábendingar:
Kjöt (allar gerðir) : Pakka inn í hentugar
umbúðir og setja á glerhilluna fyrir ofan
grænmetisskúffuna. Kjöt skal ekki geyma
lengur en 1-2 daga.
Eldaður matur, kaldir réttir: Breiða yfir og
setja í hillu.
Ávextir og grænmeti: Hreinsa vandlega
og setja í sérstaka skúffu. Banana,
kartöflur, lauk og hvítlauk má ekki geyma
í kæliskápnum án umbúða.
Smjör og ostur: Setja í sérstakar
loftþéttar umbúðir eða pakka inn í
álpappír eða pólýþen-poka til að útiloka
eins mikið loft og hægt er.
Flöskur: Loka með loki og setja í
flöskuhilluna í hurðinni, eða (ef til staðar)
í flöskurekkann.
Ábendingar varðandi frystingu
Aðeins skal frysta ferskar og vel
hreinsaðar gæðamatvörur.
Til að fá skilvirkari frystingu og þíðingu
skaltu skipta matvælunum í minni
skammta.
Pakkaðu matvælunum í álpappír eða
plast. Gakktu úr skugga um að pakkarnir
séu loftþéttir.
Til að forðast hækkun hitastigs þegar
frosinna matvæla skal ekki setja fersk,
ófrosin matvæli beint við hlið þeirra.
Magur matur geymist betur og lengur en
feitur. Salt minnkar geymsluþol matvæla.
Ekki borða ísmola, vatnsís eða íspinna
strax eftir að þeir hafa verið teknir úr
frysti. Hætta er á kali.
Ráðlegt er að sýna frystidagsetninguna
á hverjum pakka til að hægt sé að
fylgjast með geymslutímanum.
Vísbendingar fyrir geymslu frystra
matvæla
Gættu þess að frystar matvörur úr búð
hafi verið geymdar á fullnægjandi hátt
hjá smásalanum.
Gættu þess að fryst matvara sé flutt úr
matvörubúðinni og í frystinn á sem
skemmstum tíma.
Eftir þiðnun skemmist matur fljótt og ekki
er hægt að frysta hann aftur.
Ekki geyma matvöru lengur en
framleiðandi vörunnar mælir með.
Geymdu ekki glerílát með vökva í
frystihólfinu vegna þess að þau geta
brotnað.
Umhirða og þrif
AÐVÖRUN! Sjá kafla um
Öryggismál.
Almennar viðvaranir
VARÚÐ! Takið heimilistækið úr
sambandi áður en það gengst
undir viðhald.
Í kælieiningu þessa heimilistækis
eru vetniskolefni; því mega
aðeins löggildir tæknimenn
framkvæma viðhald og
endurhleðslu á því.
Aukahluti og íhluti
heimilistækisins er ekki hægt að
þvo í uppþvottavél.
ÍSLENSKA 17
Innra rýmið hreinsað
Áður en heimilistækið er notað í fyrsta sinn
skal þvo innra rýmið og alla fylgihluti inni í
því með volgu sápuvatni og mildri sápu til
þess að fjarlægja lyktina sem er alltaf af
glænýrri vöru og þurrka svo vandlega.
VARÚÐ! Ekki nota þvottaefni,
slípiduft, klór eða hreinsiefni á
olíugrunni, þar sem það skemmir
áferðina.
Reglubundin hreinsun
VARÚÐ! Ekki toga í, færa til, eða
skemma nein rör og/eða snúrur
inni í heimilistækinu.
VARÚÐ! Ekki skemma kælikerfið.
Hreinsa þarf búnaðinn reglulega:
1. Hreinsaðu innra rýmið og fylgihlutina
með volgu vatni og hlutlausri sápu.
2. Skoðaðu reglulega hurðarþéttingar og
strjúktu af þeim óhreinindi svo að þær
séu hreinar og lausar við rusl.
3. Skolaðu og þurrkaðu vandlega.
4. Ef hægt er skal hreinsa þéttinn og
þjöppuna aftan á heimilistækinu með
bursta.
Það bætir afköst heimilistækisins og
sparar rafmagn.
Kæliskápurinn þíddur
Frost eyðist sjálfkrafa af eimi
kæliskápshólfsins í hvert sinn sem
mótorþjappan stöðvast, meðan á venjulegri
notkun stendur. Þídda vatnið rennur út í
gegnum niðurfall inn í sérstakt hólf aftan á
heimilistækinu, yfir mótorþjöppunni, þar sem
það gufar upp.
Mikilvægt er að hreinsa öðru hvoru
frárennslisop þídda vatnsins í miðri rennu
kæliskápshólfsins svo að vatnið flæði ekki út
fyrir og leki á matinn í skápnum.
Frystirinn þíddur
Frystihólfið er hrímfrítt. Það þýðir að ekkert
hrím safnast upp þegar það er í notkun,
hvorki á innri veggjum né á matvælunum.
Tímabil þegar ekki í notkun
Gerðu eftirfarandi ráðstafanir þegar
heimilistækið er ekki í notkun um lengri tíma:
1. Aftengdu heimilistækið frá
rafmagnsgjafa.
2. Fjarlægðu allan mat.
3. Hreinsaðu heimilistækið og allan
aukabúnað.
4. Skildu hurð/hurðir eftir opnar til að
koma í veg fyrir ógeðfellda lykt.
VARÚÐ! Ef þú vilt hafa
heimilistækið í gangi skaltu biðja
einhvern um að líta eftir því af og
til svo að maturinn sem í því er
skemmist ekki ef rafmagnið fer.
Við mælum með að Vacation-
aðgerð sé virkjuð.
ÍSLENSKA 18
Bilanaleit
AÐVÖRUN! Sjá kafla um
Öryggismál.
Hvað skal gera ef...
Vandamál Hugsanleg orsök Lausn
Heimilistækið vinnur ekki. Slökkt er á heimilistækinu. Kveiktu á heimilistækinu.
Heimilistækið vinnur ekki. Rafmagnsklóin er ekki rétt
tengd við rafmagnsinn-
stunguna.
Tengdu rafmagnsklóna rétt við
rafmagnsinnstunguna.
Heimilistækið vinnur ekki. Enginn spenna er á inn-
stungunni.
Tengdu annað raftæki við inn-
stunguna. Hafðu samband við
löggildan rafvirkja.
Heimilistækið er hávað-
asamt.
Heimilistækið fær ekki al-
mennilegan stuðning.
Athugaðu hvort heimilistækið
stendur stöðugt.
Heyranleg eða sjónræn að-
vörun er í gangi.
Nýlega hefur verið kveikt á
skápnum eða hitastigið er
enn of hátt.
Sjá „Aðvörun um hátt hitastig“.
Heyranleg eða sjónræn að-
vörun er í gangi.
Hurðin er skilin eftir opin. Lokaðu hurðinni. Sjá „Aðvörun
um að hurð sé opin“.
Heyranleg eða sjónræn að-
vörun er í gangi.
Hitastigið í heimilistækinu
er of hátt.
Hafðu samband við hæfan
rafvirkja eða næstu viður-
kenndu þjónustumiðstöð.
Ferhyrnt eða ferningslaga
merki er sýnt í stað talna á
skjánum fyrir hitastig.
Hitaskynjaravandamál. Hafðu samband við næstu við-
urkenndu þjónustumiðstöð
(kælikerfið mun halda áfram
að halda matvælum köldum
en stilling á hitastigi er ekki
möguleg).
Ljósið virkar ekki. Ljósið er í biðstillingu. Lokaðu hurðinni og opnaðu
hana aftur.
Ljósið virkar ekki. Ljósið er bilað. Hafðu samband við næstu við-
urkenndu þjónustumiðstöð.
Þjappan er stöðugt í gangi. Hitastig er rangt stillt. Sjá kaflann „Notkun“.
ÍSLENSKA 19
Vandamál Hugsanleg orsök Lausn
Þjappan er stöðugt í gangi. Margar matvörur voru
settar inn á sama tíma.
Bíddu í nokkrar klukkustundir
og athugaðu svo hitastigið af-
tur.
Þjappan er stöðugt í gangi. Hitinn í herberginu er of
hár.
Sjá töfluna yfir loftslagsflokkinn
á merkiplötunni.
Þjappan er stöðugt í gangi. Matvæli sem sett voru í
heimilistækið voru of heit.
Leyfðu matvælum að kólna að
stofuhita áður en þau eru
geymd.
Þjappan er stöðugt í gangi. Hurðin er ekki rétt lokuð. Sjá „Hurðinni lokað“.
Þjappan er stöðugt í gangi. Kveikt er á Hraðfrysting-
aðgerðinni.
Sjá „Hraðfrysting-aðgerðin“ .
Þjappan er stöðugt í gangi. Kveikt er á Innkaup-að-
gerðinni.
Sjá „Innkaup-aðgerðin“ .
Þjappan fer ekki strax í gang
eftir að Hraðfrysting-að-
gerðin er ræst, eða eftir að
hitastigi er breytt.
Þetta er eðlilegt, engin
villa hefur komið upp.
Þjappan fer í gang eftir smát-
íma.
Þjappan fer ekki strax í gang
eftir að Innkaup-aðgerðin er
ræst, eða eftir að hitastigi er
breytt.
Þetta er eðlilegt, engin
villa hefur komið upp.
Þjappan fer í gang eftir smát-
íma.
Vatn rennur inni í kæliskápn-
um.
Matvara hindrar að vatn
renni í vatnssafnarann.
Gættu þess að engin matvara
snerti bakplötuna.
Vatn rennur niður á gólf. Affallið fyrir bráðnandi
vatn er ekki tengt við upp-
gufunarbakkann fyrir ofan
þjöppuna.
Festu affall fyrir bráðnandi
vatn við uppgufunarbakkann.
Ekki er hægt að stilla hita-
stig.
Kveikt er á Innkaup-að-
gerðinni.
Slökktu handvirkt á Innkaup-
aðgerðinni eða bíddu þar til
aðgerðin afvirkjast sjálfvirkt til
þess að stilla hitastigið. Sjá
„Innkaup-aðgerðin“ .
ÍSLENSKA 20
  • Page 1 1
  • Page 2 2
  • Page 3 3
  • Page 4 4
  • Page 5 5
  • Page 6 6
  • Page 7 7
  • Page 8 8
  • Page 9 9
  • Page 10 10
  • Page 11 11
  • Page 12 12
  • Page 13 13
  • Page 14 14
  • Page 15 15
  • Page 16 16
  • Page 17 17
  • Page 18 18
  • Page 19 19
  • Page 20 20
  • Page 21 21
  • Page 22 22
  • Page 23 23
  • Page 24 24
  • Page 25 25
  • Page 26 26
  • Page 27 27
  • Page 28 28

IKEA ISANDE Používateľská príručka

Typ
Používateľská príručka

V iných jazykoch