IKEA KYLANDE Používateľská príručka

Typ
Používateľská príručka
KYLANDE
IS
ÍSLENSKA
Á öftustu síðu þessarar handbók er skrá yfir alla veitendur
eftirsöluþjónustu sem útnefndir hafa verið af IKEA og viðeigandi
símanúmer í hverju landi.
ÍSLENSKA
4
Efnisyfirlit
Öryggisupplýsingar 4
Öryggisleiðbeiningar 5
Innsetning 7
Vörulýsing 8
Notkun 9
Dagleg notkun 12
Góð ráð 14
Umhirða og þrif 14
Bilanaleit 16
Tæknigögn 19
Umhverfismál 20
IKEA-ÁBYRGÐ 20
Með fyrirvara á breytingum.
Öryggisupplýsingar
Fyrir uppsetningu og notkun heimilistækisins skal lesa
meðfylgjandi leiðbeiningar vandlega. Framleiðandinn ber ekki
ábyrgð á neinum meiðslum eða skemmdum sem leiða af rangri
uppsetningu eða notkun. Geymdu alltaf leiðbeiningarnar á
öruggum stað þar sem auðvelt er að nálgast þær til síðari
notkunar.
Öryggi barna og viðkvæmra einstaklinga
Börn, 8 ára og eldri og fólk með minnkaða líkamlega-, skyn-
eða andlega getu, eða sem skortir reynslu og þekkingu,
mega nota þetta tæki, ef þau eru undir eftirliti eða hafa verið
veittar leiðbeiningar varðandi örugga notkun tækisins og ef
þau skilja hættuna sem því fylgir.
Börn á milli 3 og 8 ára gömul og fólk með miklar og flóknar
fatlanir mega nota þetta heimilistæki ef þau hafa fengið
almennilegar leiðbeiningar.
Halda skal börnum yngri en 3 ára frá tækinu nema þau séu
undir stöðugu eftirliti.
Leyfðu ekki börnum að leika sér með tækið.
Börn eiga ekki að hreinsa eða framkvæma notandaviðhald á
heimilistækinu án eftirlits.
Haltu öllum umbúðum frá börnum og fargaðu þeim á
viðeigandi hátt.
ÍSLENSKA
4
Almennt öryggi
Þetta heimilistæki er ætlað til notkunar á heimili og við
svipaðar aðstæður og:
Á bóndabýlum; starfsmannaeldhúsum í verslun, á
skrifstofum og á öðrum vinnustöðum
Af viðskiptavinum á hótelum, mótelum, gistiheimilum og á
öðrum íbúðarstöðum
Gættu þess að engar fyrirstöður séu í loftræstiopum, hvorki í
umlykju heimilistækisins né innbyggðum hlutum þess.
Ekki nota vélknúin búnað eða aðrar leiðir til þess að hraða
affrystingartímanum, önnur en þau sem framleiðandi mælir
með.
Ekki skadda kælirásina.
Ekki nota rafmagnstæki í matvælageymsluhólfi tækisins nema
framleiðandi mæli með slíkum gerðum.
Ekki nota vatnsúða og gufu til að hreinsa heimilistækið.
Þvoðu tækið með rökum og mjúkum klút. Notaðu aðeins mild
þvottaefni. Ekki nota rispandi efni, stálull, leysiefni eða
málmhluti.
Ekki geyma sprengifim efni, svo sem loftúðabrúsa með
eldfimum efnum í tækinu.
Ef rafmagnssnúran er skemmd, verður að fá nýja frá
framleiðanda, viðurkenndri þjónustumiðstöð eða svipað
hæfum aðila til þess að koma í veg fyrir hættu.
Öryggisleiðbeiningar
Uppsetning
AÐVÖRUN! Einungis löggildur
aðili má setja upp þetta
heimilistæki.
Fjarlægðu allar umbúðir og
flutningsboltana.
Ekki setja upp eða nota skemmt
heimilistæki.
Fylgdu leiðbeiningum um uppsetningu
sem fylgja með heimilistækinu.
Alltaf skal sýna aðgát þegar
heimilistækið er fært vegna þess að það
er þungt. Notaðu alltaf öryggishanska og
lokaðan skóbúnað.
Gakktu úr skugga um að loft geti leikið
um heimilistækið.
Við fyrstu uppsetningu eða eftir að
hurðinni hefur verið snúið skal bíða í að
ÍSLENSKA 5
minnsta kosti 4 klukkustundir áður en
heimilistækið er tengt við rafmagn. Þetta
er til að leyfa olíunni að renna aftur í
þjöppuna.
Áður en þú framkvæmir einhverjar
aðgerðir á heimilistækinu (t.d. snýrð við
hurðinni) skaltu taka klóna úr
rafmagnsinnstungunni.
Ekki setja heimilistækið upp nálægt
ofnum eða eldavélum, ofnum eða
helluborðum.
Ekki setja heimilistækið upp þar sem sól
skín beint á það.
Ekki setja þetta heimilistæki upp á
svæðum þar sem er of mikill raki eða of
kalt.
Þegar þú færir heimilistækið skaltu lyfta
því á brúninni að framan til þess að
forðast að rispa gólfið.
Tenging við rafmagn
AÐVÖRUN! Hætta á eldi og
raflosti.
Heimilistækið verður að vera jarðtengt.
Gakktu úr skugga um að færibreyturnar
á merkiplötunni séu samhæfar við
rafmagnsflokkun aðalæðar aflgjafa.
Notaðu alltaf rétt ísetta innstungu sem
ekki veldur raflosti.
Notaðu ekki fjöltengi eða
framlengingarsnúrur.
Gættu þess að valda ekki skaða á
rafmagnsíhlutum (t.d. rafmagnskló,
rafmagnssnúru, þjöppu). Hafðu samband
við viðurkennda þjónustumiðstöð eða
rafvirkja til þess að skipta um
rafmagnsíhluti.
Rafmagnssnúran þarf að vera fyrir
neðan rafmagnsklóna.
Aðeins skal tengja rafmagnsklóna við
rafmagnsinnstunguna í lok
uppsetningarinnar. Gakktu úr skugga um
að rafmagnsklóin sé aðgengileg eftir
uppsetningu.
Ekki toga í snúruna til að taka tækið úr
sambandi. Taktu alltaf um klóna.
Notkun
AÐVÖRUN! Hætta á meiðslum,
bruna, raflosti eða eldsvoða.
Breyttu ekki tæknilýsingu fyrir þetta
heimilistæki.
Ekki setja rafmagnstæki (t.d. ísvélar) í
heimilistækið nema framleiðandi þeirra
segi þau henta til slíks.
Gætið þess að valda ekki skaða á
kælirásinni. Hún inniheldur ísóbútan
(R600a), náttúrulegt gas, sem er mjög
umhverfisvænt. Gasið er eldfimt.
Ef kælirásin skemmist skal gæta þess að
engir logar eða leiðir til kveikingar séu í
herberginu. Loftræstu herbergið.
Ekki láta heita hluti snerta plasthluti
tækisins.
Ekki geyma eldfimar gastegundir og
vökva í tækinu.
Settu ekki eldfim efni eða hluti sem eru
blautir af eldfimum efnum í, nálægt eða
á heimilistækið.
Ekki snerta þjöppuna eða þéttinn. Þau
eru heit.
Innri lýsing
AÐVÖRUN! Hætta á raflosti.
Sú tegund ljóss sem notuð er fyrir þetta
tæki er aðeins ætluð heimilistækjum. Ekki
nota það sem heimilisljós.
Umhirða og þrif
AÐVÖRUN! Hætta á meiðslum
eða skemmdum á heimilistækinu.
Áður en viðhald fer fram á tækinu skal
slökkva á því og aftengja aðalklóna frá
rafmagnsinnstungunni.
Þetta tæki inniheldur kolvatnsefni í
kælieiningunni. Aðeins hæfir aðilar mega
sinna viðhaldi og endurhleðslu á
einingunni.
Skoðið frárennsli tækisins reglulega og
hreinsið það ef þörf krefur. Ef frárennslið
ÍSLENSKA
6
er stíflað mun affryst vatn safnast fyrir í
botni heimilistækisins.
Þjónusta
Hafðu samband við viðurkennda
þjónustumiðstöð til að gera við
heimilistækið.
Notaðu eingöngu upprunalega varahluti.
Förgun
AÐVÖRUN! Hætta á meiðslum
eða köfnun.
Aftengið heimilistækið frá
rafmagnsgjafanum.
Klippa rafmagnssnúruna af og fleygið
henni.
Fjarlægið hurðina til að koma í veg fyrir
að börn eða dýr geti lokast inni í tækinu.
Kælirásin og einangrunarefnið á tækinu
eru ósónvæn.
Einangrunarfroðan inniheldur eldfimar
lofttegundir. Hafið samband við
sveitarfélagið til að fá upplýsingar um
hvernig á að farga heimilistækinu á
réttan hátt.
Ekki valda skaða á hluta
kælieiningarinnar sem er nálægt
hitaskiptinum.
Innsetning
AÐVÖRUN! Sjá kafla um
Öryggismál.
Staðsetning
Komdu þessu heimilistæki fyrir á vel
loftræstum stað innandyra þar sem hitastig
umhverfisins samsvarar loftslagsflokknum
sem gefinn er upp á merkiplötu
heimilistækisins:
Loftslags-
flokkur
Umhverfishitastig
SN +10°C til + 32°C
N +16°C til + 32°C
ST +16°C til + 38°C
T +16°C til + 43°C
Vandamál varðandi virkni
búnaðarins geta komið upp hjá
sumum tegundum þegar verið er
vinna utan við þetta svið.
Einungis er hægt að tryggja rétta
virkni ef rétt hitastig er viðhaft. Ef
þú hefur einhverjar efasemdir
varðandi uppsetningu
heimilistækisins skaltu
vinsamlegast leita til söluaðilans,
til viðskiptavinaþjónustu okkar,
eða til næstu viðurkenndu
þjónustumiðstöðvar.
Staðsetning
Til að tryggja að heimilistækið starfi sem
best skal setja það upp í góðri fjarlægð frá
hitagjöfum eins og ofnum, vatnshiturum,
beinu sólarljósi o.s.frv. Gætið þess að loft
streymi greiðlega um bakhlið skápsins.
Rafmagnstenging
Áður en stungið er í samband þarf að
fullvissa sig um að rafspennan og raftíðnin
sem sýnd er á tegundarspjaldinu samræmist
aflgjafa heimilisins.
ÍSLENSKA
7
Heimilistækið þarf að vera jarðtengt. Þess
vegna er kló aflgjafasnúrunnar útbúin með
sérstöku tengi. Ef rafmagnsinnstungan á
heimilinu er ekki jarðtengd skal setja
heimilistækið í annað jarðsamband eftir
gildandi reglugerðum, í samráði við
löggiltan rafvirkja.
Framleiðandinn afsalar sig allri ábyrgð ef
ofangreindum öryggisleiðbeiningum er ekki
fylgt.
Þetta heimilistæki samræmist EBE-
tilskipunum.
Vörulýsing
Yfirlit yfir vöruna
1 2
7
8
9
9
11
3
5
6
4
10
1
Stjórnborð
2
Ljósdíóðuljós
3
Smjörhilla
4
Hilla í hurð
5
Flöskuhillur
6
Hilla fyrir snarl
7
Merkiplata
8
Grænmetisskúffur
9
Flöskurekki
10
Glerhillur
11
Viftukæling
ÍSLENSKA 8
Notkun
Stjórnborð
1
45 23
1
Skjár
2
Hnappur fyrir lægra hitastig
3
Hnappur fyrir hærra hitastig
4
Hamur-hnappur
5
ON/OFF-hnappur
Mögulegt er að auka hljóðstyrk forstilltra
hljóða í hnöppum með því að ýta samtímis
á
4
Hamur-hnappinn og hnapp
2
fyrir
lægra hitastig í nokkrar sekúndur. Hægt er
að snúa breytingunni við.
Skjár
BA EDC F G
I H
A. Súluvísar
B. Vísir fyrir hitastig
C. OFF-vísir
D. Vísir fyrir Sumarfrí-aðgerð
E. Vísir fyrir Spar-aðgerð
F. Vísir fyrir Innkaup-aðgerð
G. Viðvörunarvísir
H. Viftukæling-vísir
I. Vísir fyrir DEMO -ham
ÍSLENSKA 9
Eftir að hafa valið
4
Hamur eða
einn af hitastigshnöppunum
2
,
3
hefst kynningarmyndin .
Eftir val á hitastigi leiftrar
kynningarmyndin í nokkrar
mínútur.
Kveikt á
1. Tengdu klóna við rafmagnsinnstunguna.
2. Ýttu á
5
ON/OFF-hnappinn ef slökkt er
á skjánum.
3. Ef DEMO birtist á skjánum er
heimilistækið í kynningarham. Þessi
hamur er notaður af söluaðilanum til að
kynna notagildi heimilistækisins. Sjá
kaflann „Bilanaleit“ til að afvirkja
DEMO-haminn.
Hitavísirinn sýnir sjálfgefið innstillt hitastig.
Til að velja annað innstillt
hitastig, sjá „Hitastýring“.
Slökkt á
Ýttu á
5
ON/OFF-hnappinn í 3 sekúndur.
Það slokknar á skjánum.
Til að aftengja heimilistækið frá aflgjafanum
skaltu aftengja rafmagnsklóna frá
innstungunni.
Súluvísar
Súlurnar leiðbeina þér við samskipti við
eininguna og gefa til kynna á hvaða stigi
einingin er að starfa. Súlurnar sýna:
Það hitastig sem óskað er eftir á
kvarðanum
Hvort innstillt hitastig er hærra eða lægra
en fyrra hitastig (hreyfimynd með auknu
eða minnkandi)
Hitastjórnun
Stilltu hitastig kælisins með því að ýta á
hitastigshnappana
2
,
3
.
Sjálfgefið hitastig er +4°C fyrir kælinn.
Hitastigsvísirinn sýnir innstillt hitastig.
Innstillt hitastig næst innan
sólarhrings.
Eftir rafmagnsleysi helst innstillt
hitastig vistað.
Viftukæling-aðgerð
Viftan gengur aðeins þegar
dyrnar eru lokaðar.
Til að kveikja á aðgerðinni handvirkt:
1. Ýttu á
4
Hamur-hnappinn þar til vísir
fyrir Viftukæling birtist.
Viftan vinnur stöðugt þar til þú afvirkjar
þessa aðgerð.
Til að slökkva á aðgerðinni:
1. Ýttu á
4
Hamur-hnappinn til að velja
aðra aðgerð eða þar til engar
aðgerðatáknmyndir eru sýnilegar á
skjánum.
Viftan virkjar sig sjálf við eftirfarandi
aðstæður:
Þegar Innkaup-aðgerðin er virkjuð -
viftan gengur allan tímann á meðan
Innkaup-aðgerðin er í gangi
Þegar umhverfishitastig fer umfram 32°C
Þegar opnun hurðar setur hitastigið í
kæliskápshólfinu í ójafnvægi.
Ef aðgerðin er virkjuð sjálfvirkt er
vísirinn fyrir Viftukæling ekki
sýndur.
Ef aðgerðin er virkjuð sjálfvirkt
getur þú ekki slökkt á henni.
Viftan afvirkjar sig sjálf.
Sparaðgerð
Veldu þessa aðgerð fyrir hagstæðustu
geymslu matvæla.
1. Til að kveikja á aðgerðinni:
a. Ýttu á
4
Hamur-hnappinn þar til
vísir fyrir Sparaðgerð birtist.
ÍSLENSKA
10
Hitastigsvísirinn sýnir hitann sem stillt er á:
fyrir kælinn: +4°C.
2. Til að slökkva á aðgerðinni:
a. Ýttu á
4
Hamur til að velja aðra
aðgerð eða þar til engar
aðgerðatáknmyndir eru sýnilegar á
skjánum.
Það slokknar á aðgerðinni
með því að velja annað
hitastig.
Sumarfrí-aðgerð
Þessi aðgerð gerir þér kleift að halda
kæliskápnum lokuðum og tómum í löngum
sumarfríum án þess að slæmur fnykur
myndist.
Fjarlægðu öll matvæli úr
kælihólfinu áður en þú kveikir á
Sumarfrí.
1. Til að kveikja á aðgerðinni skaltu ýta á
4
Hamur þar til vísir fyrir Sumarfrí
birtist.
Hitastigsvísirinn sýnir innstillt hitastig.
2. Til að afvirkja aðgerðina skaltu ýta á
4
Hamur til að velja aðra aðgerð eða þar
til engin aðgerðatáknmynd er sýnileg á
skjánum.
Vísir fyrir Sumarfrí-aðgerð slokknar.
Aðgerðin slokknar þegar valið er
annað hitastig fyrir kælinn.
Innkaup-aðgerð
Ef þú þarft að setja mikið magn af volgum
mat í kælinn, til dæmis eftir matarinnkaup,
mælum við með því að þú kveikir á Innkaup
til að kæla vörurnar hraðar og hindra að
maturinn sem fyrir er í kæliskápnum hitni.
Til að kveikja á aðgerðinni:
1. Ýttu á
4
Hamur-hnappinn þar til vísir
fyrir Innkaup birtist.
Innkaup slekkur sjálfkrafa á sér eftir um
það bil 6 klukkustundir.
Þegar kveikt er á Innkaup er
viftan einnig virkjuð.
Til að slökkva á aðgerðinni áður en hún
slokknar sjálfkrafa:
1. Ýttu á
4
Hamur-hnappinn til að velja
aðra aðgerð eða þar til engar
aðgerðatáknmyndir eru sýnilegar á
skjánum.
Aðgerðin slokknar þegar valið er
annað hitastig fyrir kælinn.
Aðvörun um opna hurð
Ef hurðin er skilin eftir opin í um það bil 5
mínútur byrjar hljóðviðvörunin og
viðvörunarvísir leiftrar.
Viðvörunin stöðvast eftir að dyrunum er
lokað. Meðan á viðvöruninni stendur er
hægt að þagga niður í hljóðmerkinu með
því að ýta á einhvern hnapp.
ÍSLENSKA
11
Dagleg notkun
Fylgihlutir
Eggjabakki
x1
Rörahreinsir
x1
VARÚÐ! Hentu ekki hreinsinum.
Sjá skjalið með
samsetningarleiðbeiningunum
um hvernig setja eigi hreinsinn
inn í heimilistækið.
Geymsla matvæla í kælihólfinu
Breiddu yfir eða pakkaðu inn matnum,
sérstaklega ef hann er bragðsterkur.
Staðsettu matinn þannig að loft geti leikið
óhindrað um hann.
Viftukæling
Kæliskápshólfið er með búnað sem gerir
kleift að kæla matinn hratt og halda jafnara
hitastigi í hólfinu.
Sjá „Viftukæling-aðgerð“ varðandi
upplýsingar um hvernig viftan virkar.
Hurðasvalir staðsettar
Til að hægt sé að geyma matarumbúðir af
ýmsum stærðum er hægt að hafa
hurðasvalirnar í mismunandi hæð.
Hæð hillnanna er stillt svona: togið brúnina
upp þar til hún er laus og setjið hana í þá
stöðu sem óskað er.
ÍSLENSKA
12
Færanlegar hillur
Í hliðum ísskápsins eru margar höldur
þannig að hægt er að koma hillunum, sem
eru úr öryggisgleri, fyrir hvar sem óskað er.
VARÚÐ! Ekki færa glerhilluna
fyrir ofan grænmetisskúffuna, svo
að rétt loftstreymi haldist.
Til að fjarlægja glerhillu úr kæliskápnum:
1. Haltu framhluta hillunnar með annarri
hendi og þrýstu með hinni á afturhluta
hillunnar þar til hún losnar.
2. Togaðu hilluna út úr heimilistækinu.
Flöskurekki
Settu flöskurnar (með stútinn vísandi fram) í
forstillta flöskurekkann.
Ef rekkinn er í láréttri stöðu skal
aðeins setja lokaðar flöskur í
hann.
Hægt er að halla þessum flöskurekka til að
geyma óinnsiglaðar flöskur. Til að ná þeirri
niðurstöðu skal setja framkróka rekkans
einni stöðu hærra en afturkrókana.
Grænmetisskúffa
Skúffan er hentug til að geyma ávexti og
grænmeti.
Það er skiptiþil inn í skúffunni sem hægt er
að setja á mismunandi staði svo að skipting
skúffunar henti hverjum og einum best.
Það er rimlagrind í botni skúffunnar til þess
að aðskilja ávexti og grænmeti frá raka
sem kann að myndast á botninum.
Hægt er að fjarlægja alla hluta inni í
skúffunni þegar þarf að þrífa hana.
ÍSLENSKA
13
Vísir fyrir hitastig
Þetta heimilistæki er selt í
Frakklandi.
Samkvæmt reglugerðum sem
gilda í þessu landi þarf að fylgja
með því sérstakur búnaður (sjá
mynd) sem koma á fyrir í neðra
hólfi kæliskápsins sem sýnir hvar
kaldasta svæði hans er.
Góð ráð
Eðlileg vinnsluhljóð
Eftirfarandi hljóð eru venjuleg við notkun:
Dauft gjálfandi og vellandi hljóð frá
spólunum heyrast þegar kæliefninu er
dælt.
Suðandi og titrandi hljóð frá þjöppunni
þegar kæliefninu er dælt.
Skyndilegt smelluhljóð innan úr tækinu af
völdum hitabólgnunar (eðlilegt og
hættulaust náttúrulegt fyrirbæri).
Dauft smelluhljóð frá hitastillingum þegar
kveiknar eða slökknar á þjöppunni.
Ábendingar um orkusparnað
Ekki opna dyrnar oft eða hafa þær
opnar lengur en brýn nauðsyn krefur.
Ábendingar um kælingu á ferskum
matvælum
Ekki geyma heitan mat eða vökvar sem
uppgufun er af í kæliskápnum.
Breiddu yfir eða pakkaðu inn matnum,
sérstaklega ef hann er bragðsterkur.
Matnum er komið þannig fyrir að loft geti
leikið óhindrað um hann.
Ábendingar um kælingu
Gagnlegar ábendingar:
Kjöt (allar gerðir) : Pakka inn í hentugar
umbúðir og setja á glerhilluna fyrir ofan
grænmetisskúffuna. Kjöt skal ekki geyma
lengur en 1-2 daga.
Eldaður matur, kaldir réttir: Breiða yfir og
setja í hillu.
Ávextir og grænmeti: Hreinsa vandlega
og setja í sérstaka skúffu. Banana,
kartöflur, lauk og hvítlauk má ekki geyma
í kæliskápnum án umbúða.
Smjör og ostur: Setja í sérstakar
loftþéttar umbúðir eða pakka inn í
álpappír eða pólýþen-poka til að útiloka
eins mikið loft og hægt er.
Flöskur: Loka með loki og setja í
flöskuhilluna í hurðinni, eða (ef til staðar)
í flöskurekkann.
Umhirða og þrif
AÐVÖRUN! Sjá kafla um
Öryggismál.
ÍSLENSKA 14
Almennar viðvaranir
VARÚÐ! Takið heimilistækið úr
sambandi áður en það gengst
undir viðhald.
Í kælieiningu þessa heimilistækis
eru vetniskolefni; því mega
aðeins löggildir tæknimenn
framkvæma viðhald og
endurhleðslu á því.
Aukahluti og íhluti
heimilistækisins er ekki hægt að
þvo í uppþvottavél.
Innra rýmið þrifið
Áður en heimilistækið er notað í fyrsta sinn
skal þvo innra rýmið og alla fylgihluti inni í
því með sápuvatni og mildri sápu til þess að
fjarlægja lyktina sem er alltaf af glænýrri
vöru, og þerra vandlega.
VARÚÐ! Ekki nota þvottaefni
eða slípiduft, þar sem það
skemmir yfirborðið.
Upphafsorka á
VARÚÐ! Áður en
rafmagnssúrunni er stungið í
samband og kveikt á skápnum í
fyrsta skipti, skal leyfa
búnaðinum að standa uppréttum
í a.m.k. 4 klst. Þetta tryggir að
olían hefur nægilegan tíma til að
fara aftur í þjöppuna. Að öðru
leyti getur þjappan eða
rafmagnsíhlutir orðið fyrir
skemmdum.
Regluleg hreinsun
VARÚÐ! Ekki toga í, færa til eða
skemma nein rör og/eða snúrur
inni í skápnum.
VARÚÐ! Ekki skemmaa
kælikerfið.
VARÚÐ! Þegar skápurinn er
færður til skal lyfta honum með
brúninni að framan til þess að
forðast að rispa gólfið.
Hreinsa þarf búnaðinn reglulega:
1. Hreinsaðu innra rýmið og fylgihlutina
með volgu vatni og mildri sápu.
2. Skoðaðu reglulega hurðarþéttingar og
strjúktu af þeim óhreinindi svo að þær
séu hreinar og lausar við smáagnir.
3. Skolaðu og þurrkaðu vandlega.
4. Ef hægt er, skal hreinsið þéttinn og
þjöppuna aftan á heimilistækinu með
bursta.
Sú aðgerð bætir afköst heimilistækisins
og sparar orkunotkun.
Tímabil þegar ekki í notkun
Gerðu eftirfarandi ráðstafanir þegar
heimilistækið er ekki í notkun um lengri tíma:
1. Aftengdu heimilistækið frá
rafmagnsgjafa.
2. Fjarlægðu allan mat.
3. Hreinsaðu heimilistækið og allan
aukabúnað.
4. Skildu hurð/hurðir eftir opnar til að
koma í veg fyrir ógeðfellda lykt.
VARÚÐ! Ef þú vilt hafa
heimilistækið í gangi skaltu biðja
einhvern um að líta eftir því af og
til svo að maturinn sem í því er
skemmist ekki ef rafmagnið fer.
Við mælum með að Sumarfrí-
aðgerð sé virkjuð.
ÍSLENSKA 15
Kæliskápurinn þíddur
Frost eyðist sjálfkrafa af eimi
kæliskápshólfsins í hvert sinn sem
mótorþjappan stöðvast, meðan á venjulegri
notkun stendur. Þídda vatnið rennur út í
gegnum niðurfall inn í sérstakt hólf aftan á
heimilistækinu, yfir mótorþjöppunni, þar sem
það gufar upp.
Mikilvægt er að hreinsa öðru hvoru
frárennslisop þídda vatnsins í miðri rennu
kæliskápshólfsins svo að vatnið flæði ekki út
fyrir og leki á matinn í skápnum.
Í þessum tilgangi skaltu nota rörhreinsinn
sem fylgir með í aukabúnaðarpokanum.
Bilanaleit
AÐVÖRUN! Sjá kafla um
Öryggismál.
Hvað skal gera ef...
Vandamál Hugsanleg orsök Lausn
Heimilistækið vinnur ekki. Slökkt er á heimilistækinu. Kveiktu á heimilistækinu.
Heimilistækið vinnur ekki. Rafmagnsklóin er ekki rétt
tengd við rafmagnsinn-
stunguna.
Tengdu rafmagnsklóna rétt við
rafmagnsinnstunguna.
Heimilistækið vinnur ekki. Enginn spenna er á inn-
stungunni.
Tengdu annað raftæki við inn-
stunguna. Hafðu samband við
löggildan rafvirkja.
Heimilistækið er hávað-
asamt.
Heimilistækið fær ekki al-
mennilegan stuðning.
Athugaðu hvort heimilistækið
stendur stöðugt.
Heyranleg eða sjónræn að-
vörun er í gangi.
Hurðin er skilin eftir opin. Lokaðu hurðinni. Sjá „Aðvörun
um að hurð sé opin“.
Heyranleg eða sjónræn að-
vörun er í gangi.
Hitastigið í heimilistækinu
er of hátt.
Hafðu samband við hæfan
rafvirkja eða næstu viður-
kenndu þjónustumiðstöð.
ÍSLENSKA 16
Vandamál Hugsanleg orsök Lausn
Ferhyrnt eða ferningslaga
merki er sýnt í stað talna á
skjánum fyrir hitastig.
Hitaskynjaravandamál. Hafðu samband við næstu við-
urkenndu þjónustumiðstöð
(kælikerfið mun halda áfram
að halda matvælum köldum
en stilling á hitastigi er ekki
möguleg).
Ljósið virkar ekki. Ljósið er í biðstillingu. Lokaðu hurðinni og opnaðu
hana aftur.
Ljósið virkar ekki. Ljósið er bilað. Hafðu samband við næstu við-
urkenndu þjónustumiðstöð.
Þjappan er stöðugt í gangi. Hitastig er rangt stillt. Sjá kaflann „Notkun“.
Þjappan er stöðugt í gangi. Margar matvörur voru
settar inn á sama tíma.
Bíddu í nokkrar klukkustundir
og athugaðu svo hitastigið af-
tur.
Þjappan er stöðugt í gangi. Hitinn í herberginu er of
hár.
Sjá töfluna yfir loftslagsflokkinn
á merkiplötunni.
Þjappan er stöðugt í gangi. Matvæli sem sett voru í
heimilistækið voru of heit.
Leyfðu matvælum að kólna að
stofuhita áður en þau eru
geymd.
Þjappan er stöðugt í gangi. Hurðin er ekki rétt lokuð. Sjá „Hurðinni lokað“.
Þjappan er stöðugt í gangi. Kveikt er á Innkaup-að-
gerðinni.
Sjá „Innkaup-aðgerðin“ .
Þjappan fer ekki strax í gang
eftir að Innkaup-aðgerðin er
ræst, eða eftir að hitastigi er
breytt.
Þetta er eðlilegt, engin
villa hefur komið upp.
Þjappan fer í gang eftir smát-
íma.
Vatn rennur inni í kæliskápn-
um.
Vatnsaffallið er stíflað. Hreinsaðu vatnsaffallið.
Vatn rennur inni í kæliskápn-
um.
Matvara hindrar að vatn
renni í vatnssafnarann.
Gættu þess að engin matvara
snerti bakplötuna.
Vatn rennur niður á gólf. Affallið fyrir bráðnandi
vatn er ekki tengt við upp-
gufunarbakkann fyrir ofan
þjöppuna.
Festu affall fyrir bráðnandi
vatn við uppgufunarbakkann.
ÍSLENSKA 17
Vandamál Hugsanleg orsök Lausn
Ekki er hægt að stilla hita-
stig.
Kveikt er á Innkaup-að-
gerðinni.
Slökktu handvirkt á Innkaup-
aðgerðinni eða bíddu þar til
aðgerðin afvirkjast sjálfvirkt til
þess að stilla hitastigið. Sjá
„Innkaup-aðgerðin“ .
DEMO birtist á skjánum. Heimilistækið er í kynning-
arstillingu.
Haltu Hamur inni í um það bil
10 sekúndur þar til að langt
hljóð heyrist og skjárinn slekk-
ur á sér í skamma stund.
Hitastigið í heimilistækinu er
of lágt/of hátt.
Hitastillirinn er ekki rétt
stilltur.
Stilltu á hærra/lægra hitastig.
Hitastigið í heimilistækinu er
of lágt/of hátt.
Hurðin er ekki rétt lokuð. Sjá „Hurðinni lokað“.
Hitastigið í heimilistækinu er
of lágt/of hátt.
Hitastig matvörunnar er of
hátt.
Láttu hitastig matvörunnar
fara niður í stofuhita áður en
hún er sett í kælingu.
Hitastigið í heimilistækinu er
of lágt/of hátt.
Margar matvörur voru
settar inn á sama tíma.
Settu minna af matvöru inn í
einu.
Hitastigið í heimilistækinu er
of lágt/of hátt.
Hurðin hefur verið opnuð
of oft.
Opnaðu hurðina aðeins þegar
þörf krefur.
Hitastigið í heimilistækinu er
of lágt/of hátt.
Kveikt er á Innkaup-að-
gerðinni.
Sjá „Innkaup-aðgerðin“ .
Hitastigið í heimilistækinu er
of lágt/of hátt.
Það er ekkert kalt loft-
streymi í heimilistækinu.
Gættu þess að kalt loftstreymi
sé í heimilistækinu.
Of mikið vatn þéttist á aftur-
vegg kæliskápsins.
Hurðin var opnuð of oft. Opnaðu hurðina aðeins þegar
nauðsynlegt er.
Of mikið vatn þéttist á aftur-
vegg kæliskápsins.
Hurðinni var ekki lokað til
fulls.
Gakktu úr skugga um að hurð-
inni sé lokað til fulls.
Of mikið vatn þéttist á aftur-
vegg kæliskápsins.
Geymdum mat var ekki
pakkað.
Pakkaðu mat í hentugar
pakkningar áður en þú setur
hann í heimilistækið.
Hurð opnast ekki auðveld-
lega.
Þú reyndir að opna hurð-
ina aftur strax eftir að þú
lokaðir henni.
Bíddu í nokkrar sekúndur á
milli þess að loka og opna
hurðina aftur.
ÍSLENSKA 18
Ef heimilistækið þitt starfar enn
ekki rétt eftir að þú hefur gert
eftirfarandi athuganir skaltu hafa
samband við viðurkennda
þjónustumiðstöð. Þú finnur listann
aftast í þessari handbók.
Hurðinni lokað
1. Hreinsaðu hurðarþéttingarnar.
2. Stilltu hurðina ef þörf krefur. Fylgdu
samsetningarleiðbeiningunum.
3. Skiptu um ónýtar hurðarþéttingar ef
með þarf. Hafðu samband við
viðurkennda þjónustumiðstöð.
Skipt um ljósið
Inni í heimilistækinu er ljósdíóðuljós með
langan endingartíma.
Aðeins viðgerðarþjónustur okkar mega
skipta um ljósið. Hafðu samband við
viðurkenndu þjónustumiðstöðina.
Tæknigögn
Vöruflokkur
Tegund heimilistækis Kæliskápur
Tegund uppsetningar Frístandandi
Mál og stærð vörunnar
Hæð 1854 mm
Breidd 595 mm
Dýpt 668 mm
Nettó rúmmál
Kælir 387 lítrar
Afþíðingarkerfi
Kælir sjálfvirkt
Orkunotkun 0,318 kWh/sólarhring
Hávaðastig 39 dB(A)
Orkuflokkur A++
Spenna 230 - 240 V
Tíðni 50 Hz
Tæknilegar upplýsingar eru á merkiplötunni
innan á vinstri hlið heimilistækisins og á
miða með upplýsingum um orkunotkun.
ÍSLENSKA 19
Umhverfismál
Endurvinna þarf öll efni merkt tákninu .
Setjið umbúðirnar í viðeigandi sorpílát til
endurvinnslu. Leggið ykkar að mörkum til
verndar umhverfinu og heilsu manna og
dýra og endurvinnið rusl sem fylgir
raftækjum og raftrænum búnaði. Hendið
ekki heimilistækjum sem merkt eru með
tákninu
í venjulegt heimilisrusl. Farið með
vöruna í næstu endurvinnslustöð eða hafið
samband við sveitarfélagið.
IKEA-ÁBYRGÐ
Hvað gildir IKEA-ábyrgðin lengi?
Ábyrgðin er í gildi í 5 ár frá kaupdegi
vörunnar í IKEA. Framvísa þarf upprunalegu
sölukvittuninni til sönnunar á kaupunum. Ef
gert er við heimilistækið á meðan það er í
ábyrgð, framlengir það ekki ábyrgðartíma
tækisins,
Hver sér um þjónustuna?
Þjónustuaðili IKEA veitir þjónustuna í
gegnum eigin viðgerðarþjónustu eða
samþykkta samstarfsviðgerðarþjónustu.
Hvað nær þessi ábyrgð yfir?
Ábyrgðin nær yfir bilanir á heimilistækinu,
sem orsakast af göllum í smíði þess eða
efniviði frá þeim degi sem það var keypt
hjá IKEA. Þess ábyrgð gildir eingöngu fyrir
heimilisnotkun. Undantekningarnar eru
taldar upp undir fyrirsögninni "Hvað nær
þessi ábyrgð ekki yfir?" Innan
ábyrgðartímans nær ábyrgðin yfir kostnað
af viðgerð vegna bilunar, þ.e. viðgerðir,
varahluti, vinnu og ferðir, að því tilskildu að
heimilistækið sé aðgengilegt til að gera við
án sérstakra útgjalda. Um þessa skilmála
gilda viðmiðunarreglur ESB (Nr. 99/44/EG)
og reglugerðir hlutaðeigandi lands. Íhlutir
sem teknir eru úr þegar skipt er um íhluti
verða eign IKEA.
Hvað gerir IKEA til að leysa vandamálið?
Þjónustuaðili, skipaður af IKEA, mun skoða
vöruna og taka einn ákvörðun um það hvort
þessi ábyrgð nái yfir hana. Ef ábyrgðin telst
ná yfir heimilistækið mun þjónustuaðili IKEA
eða samþykkt samstarfsfyrirtæki annað
hvort gera við gölluðu vöruna eða skipta
henni fyrir sömu eða sambærilega vöru, og
ÍSLENSKA 20
  • Page 1 1
  • Page 2 2
  • Page 3 3
  • Page 4 4
  • Page 5 5
  • Page 6 6
  • Page 7 7
  • Page 8 8
  • Page 9 9
  • Page 10 10
  • Page 11 11
  • Page 12 12
  • Page 13 13
  • Page 14 14
  • Page 15 15
  • Page 16 16
  • Page 17 17
  • Page 18 18
  • Page 19 19
  • Page 20 20
  • Page 21 21
  • Page 22 22
  • Page 23 23
  • Page 24 24

IKEA KYLANDE Používateľská príručka

Typ
Používateľská príručka

V iných jazykoch