IKEA UC FZ 80 Užívateľská príručka

Typ
Užívateľská príručka
GENOMFRYSA
IS
ÍSLENSKA 4
ÍSLENSKA 4
Öryggisupplýsingar 4
Lýsingvörunnar 8
Stjórntæki 8
Fyrstanotkun 9
Daglegnotkun 9
Haldgóðráðogvísbendingar 10
Þrifogviðhald 11
Hvaðáaðgeraef... 12
Tækniupplýsingar 13
Umhverssjónarmið 14
IKEAÁBYRGÐ 14
Efnisyrlit
AÐVÖRUN: Til að draga
úr áhættu á eldsvoða,
raosti eða líkamstjóni við
notkun á kæliskápnum þarf
að gera þessar einföldu
varúðarráðstafanir:
- til að komast hjá hættum
vegna óstöðugleika þarf
staðsetja eða festa tækið í
samræmi við leiðbeiningar
framleiðanda.
- Þetta tæki er gert fyrir notkun
á heimilum og við svipaðar
aðstæður svo sem í tengslum
við
- mataraðstöðu starfsfólks
í verslunum, skrifstofum og
öðrum vinnustöðum;
- bændabýli og notkun gesta
á hótelum, vegahótelum og
öðrum gististöðum;
- gistingu með morgunverði;
- veisluþjónustu og svipaða
notkun, aðra en smásölu.
- Þetta tæki inniheldur
ekki klórúorkolefni.
Kælirásin inniheldur R600a
(kolvatnsefni).
- Raftæki með ísóbútan
(R600a): ísóbútan er
náttúruleg gastegund án
umhversáhrifa en er eldmt.
Þess vegna þarf að gæta þess
að leiðslur kælimiðilsins verði
ekki fyrir skemmdum.
Sýnið sérstaka aðgát ef
kælirásin tæmist vegna
skemmda á leiðslunum.
- C-pentan er notað sem
þanefni í einangrunarfroðunni
og er eldm gastegund. Sýnið
sérstaka aðgát við förgun.
- Gætið þess að skemma ekki
leiðslur í kælirás tækisins.
- Ekki skal geyma sprengima
hluti eins og úðabrúsa með
eldmu drifefni í þessu tæki.
- Gætið þess að engar
hindranir séu fyrir
loftræstingaropum tækisins.
- Reynið ekki að ýta fyrir
affrystingu og framkvæma
hana á annan hátt en lýst er í
notendahandbókinni.
- Setjið ekki raftæki inn í hólf
tækisins ef þau eru ekki
sérstaklega viðurkennd af
framleiðanda.
Öryggisupplýsingar
ÍSLENSKA 5
- Börn 8 ára og eldri mega
nota þetta tæki, svo og aðilar
sem hafa skerta líkamlega,
skynræna eða andlega
hæfni eða skortir reynslu
og þekkingu, ha þau notið
aðstoðar eða leiðbeiningar
varðandi notkun raftækisins
á öruggan hátt og gera sér
grein fyrir hættunum sem því
geta fylgt. Börn mega ekki
sinna þrifum og viðhaldi á
tækinu án eftirlits.
- Til að forðast hættuna á að
börn lokist inni og kafni skal
ekki leyfa þeim að leika sér
inni í tækinu.
- Gætið þess að kæliskápurinn
skemmi ekki rafmagnssnúruna.
- Togið ekki í rafmagnssnúruna.
- Notið ekki fjöltengi né
framlengingarsnúrur.
- Stingið tækinu í samband við
jarðtengda innstungu: tækið
skal vera jarðtengt.
- Tækið verður að vera aftengt
frá rafmagni meðan á viðhaldi
stendur og þegar skipt er um
hluti í því
- Það verður að vera hægt að
aftengja tækið frá rafmagni
með því að taka kló þess
úr sambandi ef innstungan
er aðgengileg eða með
aðgengilegum rofa sem settur
er í ofan við innstunguna í
samræmi við öryggisreglur
landsins.
- Tvo menn þarf til að
meðhöndla tækið og setja
það upp.
- Uppsetning og viðhald
tækisins svo og útskipti á
rafmagnskapli þess þarf
að vera framkvæmd af
framleiðanda þess eða hæfum
tæknimanni í samræmi við
leiðbeiningar framleiðanda
og samkvæmt öryggisreglum
sem eru í gildi á hverjum stað.
Til að koma í veg fyrir hættur
skal ekki gera við eða skipta
um neinn hlut raftækisins, svo
sem rafmagnskapal þess,
nema það sé sérstaklega tekið
fram í notendahandbókinni.
ÍSLENSKA 6
Fyrirnotkunífyrstasinn
Til að tryggja bestu not af tækinu þarf að
lesa þessa notendahandbók vandlega en í
henni er að nna lýsingu á tækinu og ýmis
gagnleg ráð.
Geymið þessar leiðbeiningar til síðari nota.
1. Eftir að umbúðir hafa verið teknar af
tækinu þarf að aðgæta hvort það ha
orðið fyrir skemmdum og að hurðin lokist
vandlega.
Tilkynna verður allar bilanir til
þjónustuvers IKEA eins jótt og hægt er.
2. Bíðið í minnsta kosti tvær klukkustundir
áður en tækið er sett í samband til að
tryggja að kælivökvarásin star eðlilega.
3. Þríð tækið að innan áður en það er
tekið í notkun.
Varúðarráðstafanirogalmennráð
Uppsetningogtengingar
Gætið þess að skemma ekki gólð (t.d.
parketgólf) þegar tækið er hreyft til.
Gangið úr skugga um að tækið sé ekki í
grennd við hitagjafa.
Setja þarf tækið upp og rétta það af á
gól sem er nægilega styrkt til að taka
þunga þess og á stað sem hentar stærð
þess og notkun.
Tækið er hannað fyrir notkun á stöðum
þar sem hitastigið er á eftirfarandi bili í
samræmi við loftslagsokkinn sem genn
er upp á merkiplötunni. Verið getur að
tækið star ekki rétt ef það er látið vera
í langan tíma við hitastig sem liggur utan
við tilgreint hitasvið.
Loftslagsokkur UmhvershitiT.(°C)
SN frá 10 til 32
N frá 16 til 32
ST frá 16 til 38
T frá 16 til 43
Gætið þess að spennan sem gen er á
merkiplötunni sé sú sama og á heimilinu.
Öryggi
Ekki skal geyma bensín, eldma vökva
eða gastegundir í grennd við tækið né
önnur raftæki. Gufurnar gætu valdið
eldsvoða eða sprengingu.
Ekki skal gleypa innihald íspokanna
(sem ekki er eitrað) (á við um sumar
gerðir).
Borðið ekki ísmola eða íspinna strax eftir
að þeir eru teknir úr frystinum því það
getur valdið kalsárum.
Notkun
Takið tækið úr sambandi eða aftengið
það frá rafmagni áður en viðhald eða
viðgerðir fara fram á því.
Eingöngu skal nota kælinn til að geyma
ferskar fæðutegundir og frystinn aðeins
til að geyma fryst matvæli, frysta fersk
matvæli og frysta ísmola.
Geymið ekki glerílát með vökva í
frystinum því þau gætu brotnað.
Forðist að geyma matvæli án umbúða í
beinni snertingu við innra borð kælisins
eða frystisins.
Ljósaperan inni í tækinu er sérstaklega
hönnuð fyrir heimilistæki og hentar
ekki fyrir almenna herbergislýsingu á
heimilinu (reglugerð EB 244/2009).
Framleiðandinn hafnar hvers konar
bótaábyrgð vegna slysa á mönnum
eða dýrum eða skemmda á eignum
ef ofangreindum leiðbeiningum og
varúðarráðstöfunum er ekki sinnt.
Góðráðumorkusparnað
Komið tækinu fyrir í þurru, vel loftræstu
herbergi langt frá hitagjöfum (t.d. ofni,
eldavél o.s.frv.) og á stað sem sólin skín
ekki beint á. Notið einangrunarplötu ef
með þarf.
Til að tryggja fullnægjandi loftræstingu
þarf að fara eftir leiðbeiningum um
uppsetningu.
ÍSLENSKA 7
Ef loftræsting er ekki fullnægjandi aftan
við tækið eykst orkunotkun þess og
afköst þess við kælingu minnka.
Hitastigið innan í tækinu gæti orðið fyrir
áhrifum af umhvershita, hve oft hurðin
er opnuð og einnig eftir staðsetningu
tækisins. Stilla þarf hitastillinn í samræmi
við þessi atriði.
Látið heit matvæli og drykki kólna áður
en þeir eru settir inn í tækið.
Setjið ekki matvæli í skápinn þannig að
þau geti hindrað viftuna (ef hún er til
staðar).
Eftir að matvæli hafa verið sett inn
í skápinn þarf að gæta þess að
hurðir hans lokist vandlega, einkum á
frystinum.
Reynið að opna hurðirnar sem minnst.
Til að þíða frosin matvæli eru þau sett
í kælinn. Lágur hiti frosinna matvæla
kælir niður þau matvæli sem eru fyrir í
kælinum.
Staðsetning á hillum í kælinum hefur
engin áhrif á hagkvæma orkunotkun.
Setjið matvæli í hillurnar þannig að
viðunandi loftræsting sé til staðar
(matvælin ættu ekki að snertast og hað
bil á milli þeirra og baksins).
Hægt er að auka geymslurými frosinna
matvæla með því að fjarlægja körfur og
viðhalda sambærilegri orkunotkun.
Skipta verður um skemmd þétti án tafar.
ÍSLENSKA 8
Lýsingátækinu
Lesiðnotendahandbókinavandlegaáður
entækiðertekiðínotkun.
1
2
2
3
4
Fylgihlutir
Frystiblokk
1x
Ísmolabakki
1x
Ísskafa
1x
Stjórntæki
A
RAUTT LED-ljós: gefur til kynna að
hitastig í frystinum sé of hátt (sjá "hvað á
að gera ef...")
B
GRÆNT LED-ljós gefur til kynna að
KVEIKT sé á tækinu
C
Hurðarro
Ca
Hurðarro til að endurstilla hljóðmerki
D
Hitastillir.
Mikilvægt:
Til að stilla á lægra hitastig er hitastillinum
snúið réttsælis (til hægri).
Til að slökkva á frystinum er hitastillinum
snúið rangsælis (til vinstri).
Hitastillir á : slökkt er á frystinum
Hitastillir á 1:minnstikuldi hitastig að
innan
Hitastillir á 2/3:meðalkuldi hitastig að
innan
Hitastillir á 4:mestikuldi hitastig að innan.
Mæltermeðmeðalstillinguhitastillisins,
2/3.
1
Stjórnborð
2
Frystiskúffur (frysting)
3
Frystiskúffa
4
Merkiplata
Frystir
(merkt með tákninu til að geyma fersk
og frosin matvæli og til að búa til ísmola)
Einkennitækisins,tæknilegarupplýsingar
ogmyndirgetaveriðbreytilegareftir
gerðum.
OFF
A B C D
ÍSLENSKA 9
Daglegnotkun
Notkunfrystisins
Hægt er að nota frystinn til að geyma fryst
matvæli og til að frysta fersk matvæli. Það
magn ferskra matvæla (í kg) sem hægt
er að frysta á einum sólarhring er sýnt á
merkiplötunni. Frystirinn getur starfað í
umhvershita á bilinu +10°C og+32°C. Bestu
afköstin nást við hitastig á bilinu +16°C og
+32°C.
Frystirinnsetturísambandífyrstasinn
Engin þörf er á að stilla
frystingarhitastigið á hitastillinum því
tækið er forstillt frá verksmiðju.
Stingið tækinu í samband. Græna LED-
ljósið (sem sýnir að KVEIKT sé á tækinu)
og rauða LED-ljósið lýsa og á sumum
gerðum heyrist einnig hljóðmerki (ef það
er til staðar) eftir 1 mínútu sem gefur til
kynna að frystirinn ha ekki enn náð
nægilega lágu hitastig til að geyma
matvæli.
Hægt er að þagga niður í hljóðmerkinu
með því að ýta á hurðarrofann.
Hitastillirinnstilltur
Veljið hitastig fyrir frystinn með
hitastillihnappnum:
1 = Minnsta frystigeta
4= Mesta frystigeta
Umhvershiti, hve oft hurðin er opin og
magn matvælanna sem frysta á getur haft
áhrif á stillingu á hitastigi frystisins.
Við mælum þess vegna með því að byrja á
miðlungs stillingunni 2-3.
VirkniLED-ljósa
Græna LED-ljósið gefur til kynna hvort
KVEIKT sé á tækinu.
Rauða LED-ljósið sýnir að hitastigið inni í
frystinum hentar ekki fyrir geymslu frystra
matvæla.
Aðvörunumopnahurð
Ef hurðin er skilin eftir opin í meira en 1
mínútu heyrist hljóðmerkið. Lokið hurðinni
eða ýtið á hnapp C í nokkrar sekúndur.
Frysting
Það magn ferskra matvæla sem mælt er
með að frysta er geð upp á merkiplötunni
innan í tækinu. Þegar matvæli eru sett í
frystinn kann rauða LED-ljósið að loga þar
til æskilegu hitastigi er náð.
Vísbendingarumfrystinguoggeymsluá
ferskummatvælum
Fyrir frystingu er best að búa um og
innsigla fersk matvæli í: álpappír,
plastþynnu, matarlmu, plast-ílátum
með loki og öðrum ílátum ef þau henta
annars til að frysta i matvæli.
Matvæli (nema kjöt, sjá að neðan)
þurfa að vera fersk, þroskuð og af bestu
gæðum til að fá frystivörur af bestu
gæðum.
Best er að frysta ferskt grænmeti
og ávexti strax eftir uppskeru til að
viðhalda upphaegu næringargildi
þeirra, áferð, lit og bragði.
Sumar kjöttegundir, einkum villibráð, þarf að
láta hanga áður en þær eru frystar.
Notkunífyrstasinn
Tengið tækið við rafmagn. Hagstæðasta
hitastigið fyrir geymslu matvæla hefur verið
stillt frá verksmiðju (2-3/MEÐALHITI).
Athugasemd: Eftir að kveikt hefur verið á
tækinu þarf að bíða í 2 til 3 klukkustundir
þar til hentugu hitastigi er náð fyrir venjulegt
álag á tækið.
ÍSLENSKA 10
Athugasemd:
Látið alltaf heit matvæli kólna áður en
þau eru sett í frystinn.
Notið strax þau matvæli sem hafa verið
þídd að hluta. Frystið ekki aftur nema
matvælin séu elduð eftir að þau hafa
þiðnað. Þegar búið er að elda þíð
matvæli má frysta þau á ný.
Frystingoggeymslaáferskummatvælum
Setjið matvæli sem frysta á í tvær efstu
körfurnar.
Ef frystirinn er notaður án grindar þarf
að setja íspoka ofan við matvælin sem
frysta á fremst í efstu skúffuna.
Körfurnarteknarúr
Dragið körfurnar út eins langt og þær
komast og lyftið síðan aðeins og fjarlægið.
Dragið neðri körfuna alveg út og snúið
henni örlítið til að losa hana.
Athugasemd: Einnig er hægt að nota
frystinn án þess að efri skúffurnar séu í til að
nýta rýmið. Til að hægt sé að nota frystinn á
réttan hátt skal ekki taka neðstu skúffuna úr.
Eftir að matvælin hafa verið sett í grindurnar
þarf að gæta þess að loka hurð frystisins
vandlega.
Aðbúatilísmola
Fyllið bakkann að 2/3 með vatni og setjið
í frystinn. Notið ekki beitta eða oddhvassa
hluti til að losa bakkann.
Haldgóðráðogvísbendingar
Vísbendingarumorkusparnað
Opnið ekki hurðina oft eða skiljið hana
eftir opna lengur en nauðsynlegt er.
Stilli ekki á lægra hitastig en nauðsynlegt
er.
Gætið þess að nægileg loftræsting og
útloftun sé til staðar neðst á tækinu og
við afturvegg þess. Hindrið aldrei loftop.
Setjið ekki heit matvæli í tækið. Látið
matvælin kólna fyrst.
Vísbendingarumfrystingu
Hér eru nokkrar vísbendingar til að nýta
frystinguna sem best:
Það magn ferskra matvæla sem hægt er
að frysta á einum sólarhring er sýnt á
merkiplötunni.
Frysting tekur einn sólarhring. Ekki
ætti að bæta við eiri matvælum á því
tímabili.
Frystið aðeins matvæli sem eru af bestu
gæðum, fersk og vel hreinsuð.
Skiptið matvælum í minni skammta til að
þeir frjósi hratt og vandlega og til þess
að aðeins þur að þíða það magn sem
nauðsynlegt er.
Búið um matvæli í álpappír eða
plastþynnu og gangið úr skugga um að
pakkarnir séu loftþéttir.
Látið ekki fersk, ófryst matvæli snerta
matvæli sem eru þegar frosin og þannig
hækka hitastigið í þeim frosnu.
Mögur matvæli geymast betur en feitari,
salt dregur úr geymsluþoli matvæla.
Ef krapís er borðaður strax og hann
er tekinn úr kælinum gæti hann valdið
frostbruna á húð.
Rétt er að sýna dagsetningu frystingar
á hverjum pakka til að hafa eftirlit með
geymslutímanum.
ÍSLENSKA 11
Þrifogviðhald
Affrystingfrystisins
Nauðsynlegt er að affrysta frystinn einu sinni
eða tvisvar á ári eða ef of mikill klaki hefur
myndast (3 mm að þykkt).
Klakamyndun er eðlileg. Magn og hraði
klakamyndunar fer eftir aðstæðum í rýminu
og hve oft hurðin er opnuð.
Frystirinn er affrystur með því að taka hann
úr sambandi og taka öll matvæli úr honum.
Látið hurð frystisins vera opna til að klakinn
nái að bráðna.
Þríð frystinn að innan. Hreinsið og þurrkið
vandlega. Kveikið aftur á frystinum og setjið
matvælin í hann á ný.
Efekkiáaðnotatækið
Takið tækið úr sambandi við rafmagn,
fjarlægið öll matvæli úr því, affrystið það og
þríð. Látið hurðirnar vera örlítið opnar til
að leyfa lofti að streyma inn um hóln. Þetta
kemur í veg fyrir að mygla og óæskileg lykt
myndist.
Efrafmagniðferaf
Látið hurðir kæliskápsins vera lokaðar.
Þannig haldast matvælin köld eins lengi og
hægt er. Frystið ekki aftur matvæli sem hafa
verið þídd að hluta, neytið þeirra innan
sólarhrings.
Vísbendingarumgeymslufrosinna
matvæla
Til að ná fram bestu nýtingu á þessu tæki
ætti að:
Ganga úr skugga um að matvæli fryst
af framleiðanda ha verið geymd á
fullnægjandi hátt hjá smásalanum.
Gætið þess að ytja fryst matvæli úr
verslun í frystihólf á sem skemmstum
tíma.
Opnið ekki hurðina oft eða skiljið hana
eftir opna lengur en nauðsynlegt er.
Þegar matvæli hafa verið þídd spillast
þau jótt og ekki er hægt að frysta þau
aftur.
Farið ekki fram yr geymslutímann
sem genn er upp af framleiðanda
matvælanna.
ÍSLENSKA 12
Vandamál Hugsanlegarorsakir: Lausnir:
Slökkt er á stjórnborðinu
og/eða tækið virkar ekki
Það getur verið vandamál
með rafmagn til tækisins.
Athugið hvort:
• rafmagnsbilun ha orðið
• rafmagnsklóin sé tryggilega
sett í innstunguna og tvívirki
ronn, ef hann er til staðar,
er stilltur rétt (kveikt á
honum)
• öryggisbúnaður rafkersins
sem settur er upp á heimilinu
virkar fullkomlega
• rafmagnskapallinn sé ekki
skemmdur
Hitastigið inni í hólfunum
er ekki nægilega lágt.
Þetta getur átt sér ýmsar
orsakir (sjá "Lausnir").
Gætið þess að:
• Hurðirnar séu tryggilega
lokaðar
• Tækið sé ekki í grennd við
hitagjafa
• stillt sé á rétt hitastig
• Engin hindrun sé á
hringrás lofts gegnum
loftræstiraufarnar neðst á
tækinu
Vatn safnast saman á
botni frystisins.
Athugið hvort tækið sé í
sambandi og star rétt.
Athugið hvort urðirnar séu
tryggilega lokaðar.
Hreinsið og affrystið
niðurfallið (sjá "Þrif og
viðhald").
Frambrún tækisins er heit
næst þéttikantinum.
Þetta er ekki vandamál.
Þetta er hluti af hönnuninni
til að koma í veg fyrir
rakaþéttingu.
Engin úrræði eru nauðsynleg.
Aðeins ef tækið er með
stjórnborð. Ef rauða
viðvörunarljósið fyrir
hitastig lýsir og hljóðmerki
heyrist (fer eftir gerð)
Aðvörun um hitastig í frysti.
Aðvörun um hitastig gefur til
kynna að hitastig frystisins sé
ekki upp á það besta. Þetta
getur átt sér stað við fyrstu
notkun, eftir affrystingu eða
þrif, þegar verið er að frysta
mikið magn af matvælum
eða þegar hurð frystisins
lokast ekki alveg.
Hægt er að þagga niður í
hljóðmerkinu með því að
ýta á hurðarrofann. Þegar
hentugasta hitastiginu er
náð slokknar sjálfkrafa á
aðvörunarljósinu fyrir hitastig.
Ef aðvörunarljósið logar
áfram þarf að hafa samband
við þjónustuver.
Hvaðáaðgeraef...
Athugasemd:
Það er eðlilegt að kæliker ge frá sér ýmis hljóð svo sem gutlhljóð eða suð.
ÍSLENSKA 13
Áðurenhaftersambandvið
þjónustuaðila:
Kveikið aftur á tækinu til að athuga hvort
vandamálið sé horð. Ef svo er ekki skal
slökkva aftur á tækinu og endurtaka eftir
eina klukkustund.
Ef tækið vinnur enn ekki rétt eftir að
búið er að framkvæma þær athuganir
sem tilgreindar eru í kaanum um
bilanagreiningu og kveikja aftur á tækinu
þarf að hafa samband við þjónustuaðila
og útskýra fyrir þeim vandamálið og gefa
eftirfarandi upplýsingar:
• gerð bilunarinnar;
• tegund tækisins;
• gerð og raðnúmer tækisins
(sést á merkiplötunni);
• þjónustunúmer (númerið sem er á eftir
orðinu SERVICE á merkiplötunni innan í
tækinu).
Tækniupplýsingar
Málstærðir GENOMFRYSA
Hæð (minnsta-mesta) 819-899
Breidd 597
Dýpt 545
Rúmmál(l)
Kæliskápur -
Frystiskápur 91
Affrystingarker
Kæliskápur -
Frystir Handvirkur
Stjörnugjöf 4
Ræsitími(klst.) 27
Frystigeta(kg.ásólarhring) 10
Orkunotkun(kwh/ásólarhring) 0,506
Hávaðastig(dBa) 38
Orkuokkur A+
Þessar tækniupplýsingar er að nna
á merkiplötunni innan í tækinu og á
orkuspjaldinu.
ÍSLENSKA 14
Umhverssjónarmið
1.Umbúðir
Umbúðaefnið er 100% endurvinnanlegt
og er merkt með endurvinnslutákninu.
Við förgun skal fara að í samræmi
við staðbundnar reglugerðir. Geymið
umbúðaefni (plastpoka, hluti úr frauðplasti
o.s.frv.) þar sem börn ná ekki til því hætta
getur stafað af þeim.
2.Úrelding/förgun
Þetta tæki er framleitt úr endurvinnanlegum
eða endurnýtanlegum efnum.
- Þetta tæki er merkt í samræmi við tilskipun
Evrópusambandsins um rafrænan úrgang
2002/96/EB, (WEEE). Með því að tryggja
förgun þessa tækis á réttan hátt stuðið
þið að hugsanlega neikvæðum áhrifum á
umhverð og heilsu manna.
Táknið á tækinu eða á meðfylgjandi
gögnum þess gefur til kynna að það
skuli meðhöndlað sem heimilisúrgangur
en nauðsynlegt er að fara með það á
viðeigandi söfnunarstöð fyrir endurvinnslu á
rafmagns- og rafeindabúnaði.
Við úreldingu tækisins þarf að klippa
rafmagnskapalinn og fjarlægja hurðir og
hillur þannig að börn geti ekki klifrað inn í
það og lokast inni.
Úreldið tækið í samræmi við staðbundnar
reglugerðir um förgun úrgangs og farið með
það á sérstaka söfnunarstöð; látið tækið
ekki vera án eftirlits jafnvel aðeins í nokkra
daga vegna þess hve hættulegt það getur
verið börnum.
Nánari upplýsingar um meðferð,
endurnýtingu og endurvinnslu á
heimilisraftækjum fást með því að hafa
samband við lögbært staðaryrvald,
viðtökuþjónustu fyrir heimilisúrgang eða
verslunina þar sem tækið var keypt.
Gerðarsamræmisyrlýsing
Þetta tæki er hannað til að varðveita
matvæli og er framleitt í samræmi við
reglugerð (CE) nr.1935/2004.
n
Þetta raftæki hefur verið hannað,
framleitt og markaðssett í samræmi við:
- öryggismarkmið lágspennutilskipunar
2006/95/CE (sem kemur í stað 73/23/
CEE og síðari breytinga);
-framleiðslukröfur EMC tilskipunar
2004/108/EC.
IKEAÁBYR
HvelengigildirIKEAábyrgðin?
Ábyrgðin gildir í mm (5) ár frá þeim degi
sem kaupin á tækinu eru gerð hjá IKEA.
Á tækjum sem bera vöruheitið LAGAN
gildir ábyrgðin í tvö (2) ár. Upprunalegrar
sölukvittunar er krast til staðfestingar á
kaupum. Ef unnin eru þjónustuverk sem
falla undir ábyrgðina framlengir það ekki
ábyrgðartíma tækisins.
Hvaðatækifallaekkiundirskilmálamm
(5)áraábyrgðarIKEA?
Vörulína sem ber vöruheitið LAGAN og öll
tæki sem keypt voru hjá IKEA fyrir 1. ágúst
2007.
Hvermunframkvæmaþjónustuna?
IKEA þjónustuaðili mun veita þjónustu í eigin
þjónustuaðstöðu eða í gegnum viðurkennt
ker þjónustuaðila.
Hvaðfellurundirþessaábyrgð?
Ábyrgðin nær yr bilun á tæki sem til
komin er vegna galla í samsetningu eða
efnisgalla sem koma fram eftir kaupdag
frá IKEA. Ábyrgðin gildir einungis ef um
ÍSLENSKA 15
heimilisnotkun er að ræða. Undantekningar
eru tilgreindar undir kaanum „Hvað fellur
ekki undir þessa IKEA ábyrgð?" Innan
þess tíma sem ábyrgðin tekur til fellur allur
kostnaður, s.s. viðgerðir, varahlutir, vinnu-
og ferðakostnaður á þjónustuaðilann,
að því tilskildu að tækið sé aðgengilegt
til viðgerðar án sérstakra útgjalda. Um
þessa skilmála gilda viðmiðunarreglur
Evrópusambandsins (Nr. 99/44/ESB) svo og
staðbundnar reglur. Allir hlutir sem teknir eru
úr tækjum og skipt er um eru eign IKEA.
HvaðgerirIKEAtilaðbætaúr
vandamálinu?
Þjónustuaðili á vegum IKEA skoðar tækið
og ákvarðar hvort það fellur undir ákvæði
ábyrgðarinnar. Ef það fellur undir ákvæði
hennar mun þjónustuaðili á vegum IKEA,
eða viðurkenndur samstarfsaðili hans,
samkvæmt ákvörðun hans eingöngu,
sinna viðgerð eða skipta tækinu út með
samskonar eða svipaðri vöru.
HvaðfellurekkiundirþessaIKEAábyrgð?
Eðlilegt slit vegna notkunar.
Skemmdir sem eru af völdum ásetnings
eða hirðuleysis, skemmdir sem verða
vegna þess að ekki er farið eftir
notkunarleiðbeiningum, skemmdir
vegna rangrar uppsetningar eða
tengingar við ranga spennu, skemmdir
vegna rafefnafræðilegra efnahvarfa,
ryðs, tæringar, vatnsskemmda svo sem
ofmettunar kalks í vatni en takmarkast
ekki þar við svo og skemmdir vegna
óeðlilegra umhversáhrifa.
Rekstrarvörur svo sem rafhlöður og
perur.
Aukahlutir og skrautmunir sem hafa ekki
áhrif á eðlilega notkun tækisins svo og
rispur og hugsanlegur litamismunur.
Óhöpp sem verða vegna aðskotahluta
eða efna sem notuð eru við hreinsun og
losun á stíum úr síum, frárennsliskerfum
eða sápuskúffum.
Skemmdir á eftirfarandi hlutum:
postulíni, aukahlutum, leirvöru-
og hnífaparakörfum, að- og
frárennslisrörum, þéttingum, perum og
Ijósakúplum, skermum, höldum, hlífum og
hlutum af hlífum. Þetta á við nema hægt
sé að sanna að þessar skemmdir séu
vegna framleiðslugalla.
Tilfelli þar sem enginn galli nnst meðan
á heimsókn tæknimanns stendur.
Viðgerðir sem ekki eru framkvæmdar
af tilnefndum þjónustuaðilum og/
eða viðurkenndum samningsbundnum
þjónustuaðila eða ef upprunalegir
varahlutir hafa ekki verið notaðir.
Viðgerðir sem framkvæmdar eru vegna
rangrar ísetningar eða samrýmist ekki
tæknilýsingu.
Notkun tækis utan heimilis, t.d. í
atvinnuskyni.
Skemmdir í utningi. Ef viðskiptavinur
ytur vöruna heim til sín eða á annað
heimilisfang, er IKEA ekki ábyrgt fyrir
neins konar skemmdum sem geta
orðið á meðan á utningi stendur. Ef
IKEA afhendir vöruna hins vegar á
heimilisfang viðskiptavinarins mun IKEA
bæta skemmdir sem hafa orðið á meðan
á afhendingu vörunnar stóð.
Kostnaður vegna fyrstu uppsetningar
IKEA tækisins. Ef tilefndur þjónustuaðili
IKEA eða viðurkenndur samningsaðili
þess gerir hins vegar við eða skiptir um
tækið samkvæmt ábyrgðarskilmálunum
mun þjónustuaðilinn eða hinn
viðurkenndi samningsaðili setja tækið
sem gert var við aftur upp eða setja upp
nýtt tæki ef með þarf.
Þessar takmarkanir eiga þó ekki við um
gallalaust verk sem unnið er af þjálfuðum
sérfræðingi sem notar upprunalega
varahluti frá okkur til að aðlaga tækið að
tæknilýsingu annars ESB-ríkis.
Beitinglandslaga
IKEA ábyrgðin veitir kaupanda lögbundinn
rétt sem nær til allra krafna samkvæmt í
ÍSLENSKA 16
landslögum eða gengur lengra en þau.
Þessir skilmálar takmarka þó ekki á neinn
hátt rétt neytandans sem kveðið er á um í
landslögum.
Gildissvæði
Vegna tækja sem keypt eru í einu ESB-
landi og utt yr í annað ESB-land
verður þjónusta veitt í samræmi við
ábyrgðarskilyrði sem teljast eðlileg í nýja
landinu.
Skuldbinding til að veita þjónustu innan
ramma ábyrgðarinnar er aðeins fyrir
hendi ef tækið samrýmist og er sett upp
samkvæmt:
- tæknilýsingu landsins þar sem
ábyrgðarkrafan er sett fram;
- leiðbeiningum um samsetningu og
öryggishandbók tækisins.
ÁbyrgeftirþjónustafyrirIKEAtæki
Hað samand við viðurkenndan
eftirþjónustuaðila til að:
leggja fram þjónustubeiðni samkvæmt
ábyrgð þessari;
fá nánari skýringar á uppsetningu á IKEA
tækinu í sérstakri IKEA eldhúsinnréttingu;
fá skýringar á aðgerðum IKEA tækja.
Til að tryggja bestu mögulegu þjónustu
þarf að lesa þessar leiðbeiningar um
samsetningu og/eða notendahandbókina
áður en haft er samband við
þjónustuaðilann.
Hvernigerhaftsambandviðokkuref
þjónustaernauðsynleg
Á síðustu síðu þessarar
handbókar er heildarlisti
yr alla viðurkennda
þjónustuaðila IKEA og
símanúmer þeirra hvers í
sínu landi.
Tilaðveitasemskjótastaþjónustu
mælumviðmeðþvíaðnotasérstök
símanúmersemtiltekineruí
þessarihandbók.Notiðalltafþau
númersemvísaðertilísérstökum
notendaleiðbeiningumfyrirþaðtæki
semaðstoðerþörffyrir.
EinnigþarfalltafaðvísatilIKEA
hlutarnúmersins(8-stafatalnakóða)
og12-stafaþjónustunúmerssemerá
merkiplötutækisins.
GEYMIÐSÖLUKVITTUNINA!
Hún er sönnun fyrir kaupunum og er
nauðsynleg þegar sótt er um ábyrgð.
Sölukvittunin gefur einnig upp IKEA
heiti og hlutarnúmer vörunnar (8-stafa
talnakóða) fyrir hvert tæki sem þið
hað keypt.
Erþörfáfrekariaðstoð?
Hað samband við næstu IKEA verslun
eða hringið í þjónustuver ef þið hað eiri
spurningar sem tengjast ekki eftirþjónustu
tækja ykkar. Við mælum með því að þið
lesið gögnin sem fylgja tækinu vandlega
áður en haft er samband við okkur.
17
BELGIË-BELGIQUE-BELGIEN
Telefoon/Numéro de téléphone/Telefon-Nummer:
026200311
Tarief/Tarif/Tarif: Lokaal tarief/Prix d’un appel local/Ortstarif
Openingstijd: Maandag - Vrijdag 8.00 - 20.00
Heures d’ouverture: Lundi - Vendredi 8.00 - 20.00
Öffnungszeiten: Montag - Freitag 8.00 - 20.00
БЪЛГАРИЯ
Телефонен номер:
02 4003536
Тарифа: Локална тарифа
Работно време: понеделник - петък 8.00 - 20.00
ČESKÁREPUBLIKA
Telefonní číslo:
225376400
Sazba: Místní sazba
Pracovní doba: Pondělí - Pátek 8.00 - 20.00
DANMARK
Telefonnummer:
70150909
Takst: Lokal takst
Åbningstid: Mandag - fredag 9.00 - 21.00
Lørdag 9.00 - 18.00
(Åbent udvalgte søndage, se IKEA.dk)
DEUTSCHLAND
Telefon-Nummer:
06929993602
Tarif: Ortstarif
Öffnungszeiten: Montag - Freitag 8.00 - 20.00
ΕΛΛΑΔΑ
Τηλεφωνικός αριθμός:
2109696497
Χρέωση: Τοπική χρέωση
Ώρες λειτουργίας: Δευτέρα - Παρασκευή 8.00 - 20.00
ESPAÑA
Teléfono:
913754126
Tarifa: Tarifa local
Horario: Lunes - Viernes 8.00 - 20.00
(España Continental)
FRANCE
Numéro de téléphone:
0170480513
Tarif: Prix d’un appel local
Heures d’ouverture: Lundi - Vendredi 9.00 - 21.00
HRVATSKA
Broj telefona:
0800 3636
Tarifa: Lokalna tarifa
Radno vrijeme: Ponedjeljak - Petak 8.00 - 20.00
ÍSLAND
Símanúmer:
5852409
Kostnaður við símtal: Almennt mínútuverð
Opnunartími: Mánudaga - Föstudaga 9.00 - 17.00
ITALIA
Telefono:
0238591334
Tariffa: Tariffa locale
Orari d’apertura: Lunedì - Vener 8.00 - 20.00
LIETUVIŲ
Telefono numeris: (0) 520 511 35
Skambučio kaina: Vietos mokestis
Darbo laikas: Nuo pirmadienio iki
penktadienio 8.00 - 20.00
MAGYARORSZÁG
Telefon szám:
(06-1)-3285308
Tarifa: Helyi tarifa
Nyitvatartási idő: Hétfőtől Péntekig 8.00 - 20.00
NEDERLAND
Telefoon:
09002354532
en/of 0900 BEL IKEA
Tarief: 15 cent/min., starttarief 4.54 cent
en gebruikelijke belkosten
Openingstijd: Maandag t/m - Vrijdag 8.00 - 20.00
Zaterdag 9.00 - 20.00
Zondag gesloten
NORGE
Telefon nummer:
23500112
Takst: Lokal takst
Åpningstider: Mandag - fredag 8.00 - 20.00
ÖSTERREICH
Telefon-Nummer:
013602771461
Tarif: Ortstarif
Öffnungszeiten: Montag - Freitag 8.00 - 20.00
POLSKA
Numer telefonu:
225844203
Stawka:
Koszt połączenia według taryfy operatora
Godziny otwarcia: Poniedziałek - Piątek 8.00-20.00
PORTUGAL
Telefone:
213164011
Tarifa: Tarifa local
Horário: Segunda - Sexta 9.00 - 21.00
REPUBLICOFIRELAND
Phone number:
016590276
Rate: Local rate
Opening hours: Monday - Friday 8.00 - 20.00
ROMÂNIA
Număr de telefon:
021 2044888
Tarif: Tarif local
Orar: Luni - Vineri 8.00 - 20.00
РОССИЯ
Телефонный номер:
84957059426
Стоимость звонка: Местная стоимость звонка
Время работы: Понедельник - Пятница 9.00 - 21.00
(Московское время)
SCHWEIZ-SUISSE-SVIZZERA
Telefon-Nummer/Numéro de téléphone/Telefono:
0225675345
Tarif/Tarif/Tariffa: Ortstarif/Prix d’un appel local/Tariffa locale
Öffnungszeiten: Montag - Freitag 8.00 - 20.00
Heures d’ouverture: Lundi - Vendredi 8.00 - 20.00
Orario d’apertura: Lunedì - Venerdì 8.00 - 20.00
SLOVENSKO
Telefónne číslo:
(02) 50102658
Cena za hovor: Cena za miestny hovor
Pracovná doba: Pondelok až piatok 8.00 - 20.00
SRBIJA
http://www.ikea.com
SUOMI
Puhelinnumero:
0981710374
Hinta: Yksikköhinta
Aukioloaika: Maanantaista perjantaihin 8.00 - 20.00
SVERIGE
Telefon nummer:
0775-700 500
Taxa: Lokal samtal
Öppet tider: Måndag - Fredag 8.30 - 20.00
Lördag - Söndag 9.30 - 18.00
UNITEDKINGDOM
Phone number:
02076601517
Rate: Local rate
Opening hours: Monday - Friday 9.00 - 21.00
5
0
1
9 60
8 0
2
3
6
9/A_IS
© Inter IKEA Systems B.V. 2014 AA-1071986-2
18535
  • Page 1 1
  • Page 2 2
  • Page 3 3
  • Page 4 4
  • Page 5 5
  • Page 6 6
  • Page 7 7
  • Page 8 8
  • Page 9 9
  • Page 10 10
  • Page 11 11
  • Page 12 12
  • Page 13 13
  • Page 14 14
  • Page 15 15
  • Page 16 16
  • Page 17 17
  • Page 18 18
  • Page 19 19
  • Page 20 20

IKEA UC FZ 80 Užívateľská príručka

Typ
Užívateľská príručka

V iných jazykoch