Aeg-Electrolux T58840R Používateľská príručka

Kategória
Elektrické sušičky bielizne
Typ
Používateľská príručka
LAVATHERM 58840R
Notendaleiðbeiningar Barkalaus þurrkari með
þurrkunargrind
Kæri viðskiptavinur.
Þakka þér fyrir að velja eina af okkar hágæða vörum.
Þessi vara sameinar notagildi fallegrar hönnunar og nýjustu tækni.
Þú getur verið viss um að heimilistækin okkar eru hönnuð til að standast hæstu
kröfur í gæðum og notkun. Við setjum markið hátt og samþykkjum einungis það
besta á hverjum tíma.
Að auki muntu komast að því að tekið er tillit til orkusparnaðar- og
umhverfisverndunarsjónarmiða í framleiðslunni.
Til að tryggja hámarks nýtingu og rétta notkun á tækinu biðjum við þig um að
kynna þér vel þessar notendaleiðbeiningar. Geymdu bæklinginn á vísum stað svo
hann ávallt til taks ef á þarf að halda ogttu hann fylgja með ef þú selurkið
eða afhendir það öðrum.
Til hamingju með nýja heimilistækið.
Eftirfarandi tákn eru notuð í þessari handbók:
Mikilvægar upplýsingar varðar persónulegt öryggi og upplýsingar um hvernig
forðast megi að skemma tækið.
Almennar upplýsingar og ábendingar
Umhverfisupplýsingar
2
Efnisyfirlit
Notkunarleiðbeiningar 5
Mikilvægar upplýsingar um öryggismál 5
Lýsing 8
Stjórnborð 9
Skjár 9
Fyrir fyrstu notkun 9
Flokkun og undirbúningur þvottar 10
Yfirlit yfir þurrkkerfi 11
Dagleg notkun 14
Kveikt á þurrkara / ljós kveikt 14
Dyr opnaðar / hleðsla á þvotti 14
Val á kerfi 14
Stilling á þurrkunarstigi 15
Stilling á kerfi miðað við vinduhraða 15
Aukaval 16
FÍNGERT 16
LÖNG KRUMPUVÖRN 17
VIÐKVÆMT 17
HLJÓÐMERKI 17
Tími 18
Stilling á tímavali 18
Stilling á barnalæsingu 18
Þurrkkerfi sett í gang 19
Breyting á kerfi 19
Að setja inn í eða taka út úr þurrkaranum áður en kerfi lýkur 19
Þurrkun lokið / þvottur fjarlægður 20
Þurrkunargrind 21
Umhirða og hreinsun 23
Hreinsun á lósigti 23
Hreinsun á hurðarþéttingu 25
Vatnstankur tæmdur 25
Efnisyfirlit
3
136901921-00-25092008
Hreinsun á varmaskipti 26
Tromlan hreinsuð 27
Hreinsun á stjórnborði og öðru ytra byrði 28
Hvað skal gera ef ... 29
Eigin villugreining 29
Skipt um peru fyrir innri lýsingu 30
Stillingar á tæki 32
Tæknilegar upplýsingar 33
Orkunotkun 34
Ábendingar fyrir prófunarstofnanir 34
Uppsetning 35
Staðsetning tækis 35
Fjarlæging flutningsbúnaðar og umbúða 36
Umbúðir fjarlægðar af þurrkunargrind 36
Tenging við rafmagn 37
Hurðaropnun snúið 37
Sérstakir aukahlutir 39
Umhverfismál 39
Efni í umbúðum 40
Gömul heimilistæki 40
Umhverfisráð 40
Þjónusta 40
Ábyrgðarskilmálar 42
Þjónustumiðstöðvar viðskiptavina 43
www.electrolux.com 43
Með fyrirvara á breytingum
4
Efnisyfirlit
Notkunarleiðbeiningar
Mikilvægar upplýsingar um öryggismál
Lesið þessa notendahandbók vandlega áður en heimilistækið er sett upp og
notað í fyrsta skipti, þar á meðal öll heillaráð og aðvaranir, til að tryggja
öryggi og rétta notkun. Til að koma í veg fyrir óþarfa mistök og slys er mik-
ilvægt að tryggja að allir sem nota heimilistækið hafi kynnt sér notkun og
öryggisatriði þess. Geymið þessar leiðbeiningar og tryggið að þær fylgi
heimilistækinu ef það er fært eða selt svo að allir notendur þess geti kynnt
sér notkun og öryggisatriði þess til fullnustu.
Almennt öryggi
Það er hættulegt að breyta eiginleikum eða á annað borð reyna að breyta þessari
vöru á nokkurn hátt.
Þetta heimilistæki er ekki ætlað fólki (að börnum meðtöldum) með skerta skynj-
un, skerta andlega getu eða litla reynslu og þekkingu nema viðkomandi sé undir
eftirliti eða leiðsögn persónu, sem ber ábyrgð á öryggi viðkomandi.
Tryggið að lítil gæludýr klifri ekki inn í tromluna. Skoðið inn í tromluna fyrir
notkun til að fyrirbyggja slíkt.
Hlutir eins og smápeningar, nælur, naglar, skrúfur, steinar eða aðrir harðir,
hvassir hlutir geta valdið miklu tjóni og því má alls ekki setja þá í vélina.
Til að forðast eldhættu við of mikla þurrkun skal ekki nota heimilistækið til
þurrka eftirfarandi: Púða, teppi og svipaða hluti (sem safna í sig hita).
Hluti eins og svampgúmmí (latexkvoðu), sturtuhettur, vatnsheldar textílvörur,
efni með gúmmíundirlagi og föt eða kodda með svampgúmmípúðum á ekki að
setja í þurrkarann.
Takið heimilistækið alltaf úr sambandi eftir notkun, þrif og viðhald.
Reynið ekki undir neinum kringumstæðum að gera við vélina upp á eigin spýtur.
Ef óreyndir aðilar reyna að framkvæma viðgerðir getur það valdið meiðslum eða
alvarlegri bilun. Hafið samband við viðgerðaraðila á staðnum. Farið alltaf fram
á að upprunalegir varahlutir frá framleiðanda séu notaðir.
Hluti sem hafa fengið á sig bletti frá matarolíu, asetóni, bensíni, steinolíu, bletta-
hreinsiefnum, terpentínu, vaxi og vaxhreinsiefnum verður að þvo fyrst í heitu
vatni með aukaskammti af þvottaefni áður en þeir mega fara í þurrkara.
Mikilvægar upplýsingar um öryggismál
5
Sprengihætta: Aldrei skal setja hluti í þurrkarann sem hafa komist í snertingu
við eldfim leysiefni (bensín, spritt, fatahreinsunarvökva eða skyld efni). Þar sem
þessi efni eru rokgjörn geta þau valdið sprengingu. Þurrkarinn er einungis fyrir
vatnsþveginn þvott.
Eldhætta: Hlutir sem hafa fengið á sig bletti frá jurta- eða matarolíu eru eldfimir
og því skal ekki setja þá í þurrkarann.
Ef blettahreinsir var notaður á þvottinn verður að framkvæma aukaskolun í
þvottavélinni áður en þvottur er settur í þurrkarann.
Tryggið að gaskveikjarar eða eldspýtur gleymist ekki í vösum á þvotti sem settur
er í heimilistækið.
AÐVÖRUN
Aldrei stoppa þurrkarann áður en hann er búinn að þurrka nema þvottur sé
fjarlægður hratt og dreift úr honum svo hann kólni fljótt niður. Eldhætta!
Hætta á raflosti! Ekki skal þvo heimilistækið með því að sprauta á það vatni.
Uppsetning
Þetta heimilistæki er þungt. Aðgát skal viðhöfð ef þarf að færa það.
Þegar umbúðirnar eru fjarlægðar, gangið úr skugga um að heimilistækið sé ekki
skemmt. Ef nokkur vafi leikur á því skal ekki nota tækið heldur hafa samband við
viðgerðaraðila.
Fjarlægja verður allar flutningsfestingar og umbúðir fyrir notkun. Alvarlegar
skemmdir geta orðið á eignum og vörunni sjálfri ef ekki er farið eftir þessu. Sjá
viðeigandi kafla í notendahandbókinni.
Lokastigið í þurrkuninni er hitalaust (kæling) til að tryggja að þvotturinn kólni
niður í rétt hitastig og skemmist ekki.
Hvers kyns rafmagnsvinna sem þarf við uppsetningu þessa heimilistækis skal
framkvæmd af rafvirkja með viðeigandi réttindi eða öðrum aðila sem hæfur er
til verksins.
Gæta skal þess að heimilistækið standi ekki á rafmagnssnúrunni.
Ef vélin stendur á teppalögðu gólfi, vinsamlegast stillið fæturna þannig að loft
streymi um neðra byrðið.
Þegar búið er að setja upp og tengja heimilistækið, gangið úr skugga um að það
standi ekki eða þrýsti á rafmagnssnúruna.
Ef þurrkarinn stendur ofan á þvottavél er nauðsynlegt að nota til þess gerðar
festingar (aukabúnaður).
6
Mikilvægar upplýsingar um öryggismál
Notkun
Þetta heimilistæki er ætlað til einka- og heimilisnota. Ekki má nota það til annars
en það var hannað til að gera.
Þurrkið einungis þvott sem má setja í þurrkara. Fylgið leiðbeiningum á þvotta-
miða fatnaðarins.
Setjið ekki óþveginn þvott í þurrkarann.
Setjið ekki of mikið í vélina. Sjá viðeigandi kafla í notendahandbókinni.
Ekki skal setja rennandi blaut föt í þurrkarann.
Flíkur sem hafa komist í snertingu við rokgjarnar olíuvörur ættu ekki að fara í
þurrkara. Ef rokgjörn hreinsiefni eru notuð skal fjarlægja slík efni úr flíkinni áður
en hún fer í þvottavélina.
Aldrei toga um rafmagnssnúruna til að fjarlægja klóna úr innstungunni; takið
ávallt beint um klóna sjálfa.
Notið aldrei þurrkara ef rafmagnssnúran, stjórnborðið, vinnuflöturinn eða
undirstaðan eru skemmd þannig að greiður aðgangur sé að innra byrði tækisins.
Fylgja skal leiðbeiningum við notkun mýkingarefna og annarra skyldra efna.
Varúð - heitur flötur : Snertið ekki hlífina á hurðarljósinu þegar það er kveikt.
1)
Öryggi barna
Ung börn og veikburða einstaklingar mega ekki nota tækið án eftirlits.
Hafa skal eftirlit með að börn leiki sér ekki með þetta heimilistæki.
Umbúðirnar (t. d. plastfilma, einangrunarplast) geta verið hættulegar börnum -
hætta á köfnun! Geymið þar sem börn ná ekki til.
Geymið öll þvottaefni á öruggum stað þar sem börn ná ekki til.
Tryggið að börn eða gæludýr klifri ekki inn í tromluna.
1) Einungis þurrkarar með innra tromluljósi.
Mikilvægar upplýsingar um öryggismál
7
Lýsing
1 Stjórnborð
2 Skúffa með þéttivatnstanki
3 Fínsigti (lósigti)
4 Ljós innan í tromlu
5 Grófsigti (lósigti)
6 Þurrkunargrind
7 Hleðsluhurð (flytjanlegar hjarir)
8 Örsía (lósigti)
9 Tegundarspjald
10 Hnappur til að opna dyr fyrir varmaskipti
11 Varmaskiptir, hulinn af botnhurð
12 Loftrásir
13 Skrúfaðir fætur (með þyngdarstillingu)
2
4
6
8
9
11
1
3
5
7
10
12
13
8
Lýsing
Stjórnborð
1
2 3
4
5
6
1 Stilliskífa og SLÖKKT hnappur
2 Valhnappar
3 START/STOPP hnappur
4 TÍMAVAL hnappur
5 Gaumljós
6 Skjár
Skjár
1 Afgangstími/ Villuboð
2 Þurrkunarstaða
3 Valkostir
4 Aðvaranir
5 Snúningshraði
6 Þurrkstig
Fyrir fyrstu notkun
Fjarlægið hvers kyns leifar úr framleiðsluferlinu með því að strjúka af tromlu þurrk-
arans með rakri tusku eða stillið á stutta þurrkun (30 MÍN) með rakar tuskur í
þurrkaranum.
1
3
5
6
2
4
Stjórnborð
9
Flokkun og undirbúningur þvottar
Flokkun á þvotti
Flokkun eftir efni:
Bómull/lín fyrir þurrkkerfisflokkinn BÓMULL.
Blöndur og gerviefni fyrir þurrkkerfisflokkinn STRAUFRÍTT.
Flokkun eftir meðferðarmerkingu. Meðferðarmerkingar þýða:
Almennt hægt að
setja í þurrkara
Þurrkist við venjuleg-
an hita
Þurrkist við lágan hita
(nota aukavalið VIÐ-
KVÆMT)
Þurrkun í þurrkaran-
um ekki möguleg
Ekki setja blautan þvott í tækið ef meðferðarmerking segir að flíkin megi ekki fara
í þurrkara.
Hægt er að setja þvott í þurrkarann ef merking á honum gefur til kynna að slíkt
megi.
Ekki þurrka ný, lituð textílefni ásamt ljósum þvotti. Litir í textílefninu geta runnið
til.
Ekki þurrka bómullarpeysur og prjónafatnað með stillt á MJÖG ÞURRT. Fatnað-
urinn getur hlaupið!
Ull og efni með ullaráferð er hægt að þurrka með því að stilla á ULLARGRIND.
Þeytivindið ullarflíkurnar eins vel og hægt er fyrir þurrkun (hám. 1200 snún. á
mín). Einungis skal þurrka þær ullarflíkur saman sem eru svipaðar eða eins hvað
varðar efni, lit og þyngd. Þurrkið þungan ullarþvott sér.
Undirbúningur þvottar
Til að forðast að þvottur flækist saman: Festið rennilása, lausa borða og bönd
(t.d. á svuntum) og hneppið koddaverum saman.
Tæmið úr vösum. Fjarlægið málmhluti (pappírsklemmur, nælur o.s.frv.).
Snúið fóðruðum flíkum á rönguna (t.d. þarf bómullarfóður í hettuúlpum að snúa
út). Þá þorna þær betur.
10
Flokkun og undirbúningur þvottar
Yfirlit yfir þurrkkerfi
Þurrkkerfi
hám. hleðsla (þyngd á þurrum þvotti)
Viðbótarstillingar/aukaval
Notkun/eiginleikar
Meðferðarmerking
ÞURRKUNARSTIG
Snún.á mín.
FÍNGERT
1)
LÖNG KRUMPUVÖRN
VIÐKVÆMT
1)
HLJÓÐMERKI
TÍMI
TÍMAVAL
BÓMULL
MIKIL
ÞURRKUN
7 kg -
Full þurrkun á þykkum/margra laga
efnum, til dæmis handklæðum og
baðsloppum.
BÓMULL
MJÖG MIK-
IL ÞURRK-
UN
7 kg -
Full þurrkun á þykkum efnum, t.d.
frotteefnum og handklæðum.
BÓMULL
VEL ÞURRT
2)
7 kg -
Full þurrkun á jafnþykkum efnum, til
dæmis ýmsum gerðum handklæða og
prjónafatnaðar.
BÓMULL
FYRIR
STRAU-
JÁRN
2)
7 kg -
Fyrir þunn efni sem á að strauja, til
dæmis prjónafatnað, bómullarskyrt-
ur.
STRAUFRÍTT
MIKIL
ÞURRKUN
3 kg -
Full þurrkun á þykkum eða margra
laga efnum, til dæmis peysum, rúm-
fatnaði, borðdúkum.
3)
STRAUFRÍTT
VEL ÞURRT
2)
3 kg -
Fyrir þunn efni sem á ekki að strauja,
til dæmis straufríar skyrtur, borðdúka,
barnaföt, sokka, nærföt með spöng
eða vírum.
3)
STRAUFRÍTT
FYRIR
STRAU-
JÁRN
3 kg -
Fyrir þunn efni sem á að strauja, til
dæmis prjónafatnað, bómullarskyrt-
ur.
3)
Yfirlit yfir þurrkkerfi
11
Þurrkkerfi
hám. hleðsla (þyngd á þurrum þvotti)
Viðbótarstillingar/aukaval
Notkun/eiginleikar
Meðferðarmerking
ÞURRKUNARSTIG
Snún.á mín.
FÍNGERT
1)
LÖNG KRUMPUVÖRN
VIÐKVÆMT
1)
HLJÓÐMERKI
TÍMI
TÍMAVAL
TÍMI 7 kg - - - Fyrir frekari þurrkun á stökum flíkum.
VIÐRAÐ 1 kg - - - -
Til að viðra eða þrífa varlega textílefni
með fáanlegum fatahreinsunarvör-
um.
ÖRTREFJAR 1 kg
4)
- -
Fyrir þunn efni, pólýster og pólýamíð
sem ekki eru straujuð.
BLANDAÐ 3 kg
4)
- -
Til að þurrka bómull og gerviefni,
þurrkar á lágum hita.
RÚMFÖT 3 kg - -
Rúmföt (einföld og tvöföld lök,
koddaver, rúmteppi, sængurver).
VISCOSE 1 kg
4)
- -
Fyrir þunn efni, viscose og pólýester
sem eru ekki straujuð.
GALLABUX-
UR
7 kg -
Fyrir fatnað eins og gallabuxur,
íþróttapeysur o.s.frv. þar sem efnið er
af mismunandi þykktum (til dæmis í
kraga, ermum og saumum).
SPORT-
KLÆÐI
LÉTT
2 kg
4)
- -
Fyrir íþróttaföt, þunn efni, pólýester
sem ekki á að strauja.
SKYRTUR
1,5
kg
(eða
7
4)
- -
Sérstakt þurrkkerfi sem dregur úr
krumpum fyrir straufrí efni eins og
skyrtur og blússur; fyrir auðvelda
straujun. Árangurinn fer eftir efni og
áferð. Setjið tau í þurrkarann strax
12
Yfirlit yfir þurrkkerfi
Þurrkkerfi
hám. hleðsla (þyngd á þurrum þvotti)
Viðbótarstillingar/aukaval
Notkun/eiginleikar
Meðferðarmerking
ÞURRKUNARSTIG
Snún.á mín.
FÍNGERT
1)
LÖNG KRUMPUVÖRN
VIÐKVÆMT
1)
HLJÓÐMERKI
TÍMI
TÍMAVAL
skyrt
ur)
eftir þeytivindingu; þegar flíkin er
þurr, hengið hana strax á herðatré.
STRAULÉTT
PLÚS
1 kg
(eða
5
skyrt
ur)
4)
- -
Sérstakt þurrkkerfi sem dregur úr
krumpum fyrir straufrí efni eins og
skyrtur og blússur; fyrir auðvelda
straujun. Árangurinn fer eftir efni og
áferð. Setjið tau í þurrkarann strax
eftir þeytivindingu; þegar flíkin er
þurr, hengið hana strax á herðatré.
SKÓGRIND 1 kg - -
4)
- -
Til að þurrka varlega eitt par af skóm
sem voru þvegnir með 1000 snún
mín. þeytivindingu. Lengd á þurrk-
kerfum: Milli 30 og 180 mínútur.
ULLAR-
GRIND
1 kg - -
4)
- -
Til að þurrka ullarefni eftir þvott, með
heitu lofti við lágmarkshleðslu (Fylgið
leiðbeiningunum í kaflanum "Flokkun
og undirbúningur þvottar"). Athugið:
Fjarlægið efni strax eftir þurrkun, þar
sem engin krumpuvörn fylgir á eftir.
Lengd á þurrkkerfum: Milli 30 og 180
mínútur.
1) Ekki er hægt að velja FÍNGERT OG VIÐKVÆMT saman
2) Í samræmi við IEC61121
3) Veljið aukavalið FÍNGERT
4) Fastastilling
Yfirlit yfir þurrkkerfi
13
Dagleg notkun
Kveikt á þurrkara / ljós kveikt
Stillið skífuna á þurrkkerfi eða snúið henni á LJÓS. Nú er kveikt á þurrkaranum.
Þegar hleðsludyrnar opnast lýsist tromlan upp.
Dyr opnaðar / hleðsla á þvotti
1. Opnið dyrnar:
Þrýstið þétt á hurðina (þrýstipunktur)
2. Setjið þvottinn inn (ekki troða í þurrk-
arann).
VARÚÐ
Látið þvott ekki klemmast milli hurðar og
gúmmíþéttingarinnar.
3. Lokið dyrunum tryggilega. Heyrast
þarf í dyralásnum smella í lás.
Val á kerfi
Veljið þurrkkerfi með skífunni. Áætluð lengd á þurrkkerfi (afgangstíma) birtist á
LCD-skjánum á forminu k:mm (klukkustundir:mínútur).
Þessi tími er uppfærður á mínútu fresti við þurrkun; undir 1 klukkustund er fyrra
núllið ekki sýnt (dæmi "59", "5", "0");
14
Dagleg notkun
Stilling á þurrkunarstigi
Ef þvottur kemur of rakur úr þurrkaranum eftir venjulegt þurrkkerfi er hægt að
auka þurrkun með stillingunni ÞURRKUNARSTIG. Þurrkun eykst eftir því sem still-
ingin færist frá MIN til MAX.
Þrýstið endurtekið á hnappinn ÞURRKUNAR-
STIG þar til æskilegri þurrkun er náð ( MIN,
MED eða MAX) er sýnt á skjánum. Þegar
breyting á rakastigi er ekki fyrirsjáanleg á við-
komandi kerfi sést textinn AUTO.
Stilling á kerfi miðað við vinduhraða
Ef þvottur var á þeytivindukerfi í þvottavélinni er hægt að stilla þurrkarann miðað
við vinduhraða sem notaður var. Því hærri sem vinduhraðinn var, því styttri verður
þurrkunin.
Þrýstið endurtekið á hnappinn RPM (Snún. á mín.) þar til réttur vinduhraði er
sýndur. Engin tala sést ef enginn vinduhraði var valinn.
Viss þurrkkerfi gefa ekki færi á að stilla vindu-
hraða (kerfi þar sem tíminn er stilltur fyrir-
fram) og skjárinn sýnir þá þrjú bandstrik. Val-
kostir:
Dagleg notkun
15
Aukaval
Aukaval fyrir þurrkkerfi er FÍNGERT, LÖNG KRUMPUVÖRN, VIÐKVÆMT og HLJÓÐ-
MERKI
1. Veljið þurrkkerfi með því að snúa skífunni.
2. Aukaval er stillt með því að þrýsta á hnappinn AUKAVAL. Aukavalsmöguleikar
sjást sem tákn á skjánum:
FÍNGERT LÖNG KRUMPU-
VÖRN
VIÐKVÆMT HLJÓÐMERKI
Táknið FÍNGERT blikkar. Blikkandi tákn þýðir: Valið en ekki virkt. Þrýstið á
STAÐFESTA hnappinn til að velja AUKAVAL. Valið aukaval er sýnt sem blikkandi
tákn með bandstriki fyrir neðan.
3. Þrýstið á hnappinn AUKAVAL endurtekið og síðan á STAÐFESTA hnappinn til
að staðfesta valið. Valið aukaval er alltaf sýnt sem blikkandi tákn með bandstriki
fyrir neðan.
4. Aukavali er lokið þegar farið er í gegnum alla valkosti eða hætt er við að velja.
Einungis er kveikt á völdum aukavalstáknum.
Sumt aukaval er ekki hægt að velja saman eins og FÍNGERT og VIÐKVÆMT. Sumt
er ekki hægt að velja í vissum kerfum
Fylgið sömu skrefum til að slökkva á aukavali. Aukavalstáknið ætti að hverfa.
FÍNGERT
Til að þurrka mjög varlega viðkvæm efni með
meðferðarmerkingunni
og fyrir hitanæm
textílefni (til dæmis akrýl og viscose). Þurrkun
fer fram við lægri hita.
FÍNGERT hentar einungis þvottahleðslu undir
3 kg.
Þegar aukavalið er virkt er kveikt á tákninu
FÍNGERT
.
16
Dagleg notkun
LÖNG KRUMPUVÖRN
Lengir krumpuvörn (30 mínútur) í lok þurrk-
unar um 60 mínútur. Tromlan snýst við og við
á þessari stillingu. Það heldur þvottinum laus-
um og kemur í veg fyrir að hann krumpist.
Þetta stig er alls 90 mítur. Hægt er að taka
þvottinn út hvenær sem er á meðan krumpu-
vörn stendur.
Þegar aukavalið er virkt er kveikt á tákninu
LÖNG KRUMPUVÖRN
.
VIÐKVÆMT
Til að þurrka varlega efni sem mikið eru notuð.
Kerfið byrjar á fullum hita en lækkar sig eftir
því sem á líður til að fara vel með þvottinn.
Þegar aukavalið er virkt er kveikt á tákninu
VIÐKVÆMT
.
HLJÓÐMERKI
HLJÓÐMERKI á tækinu er ekki virkt þegar tæk-
ið kemur til neytanda.
Veljið aukavalið HLJÓÐMERKI til að velja það.
Þegar aukavalið er virkt er kveikt á tákninu
HLJÓÐMERKI
.
Þurrkarinn gefur frá sér tón eða laglínu:
í lok kerfis
í byrjun og lok krumpuvarnar
ef kerfi er rofið með aðvörun
aðvörunarhljóðmerki
Dagleg notkun
17
Tími
Til að velja kerfislengd eftir að þurrkkerfið
TÍMI hefur verið valið. Hægt er að velja lengd
kerfis frá 10 mínútum upp í 3 klukkustundir í
10 mínútna þrepum.
1. Snúið skífunni á þurrkkerfið TÍMI. Blikk-
andi 10' fyrir ofan hnappinn TÍMI logar.
2. Þrýstið endurtekið á hnappinn TÍMI þar til
réttur tími er sýndur á skjánum, til dæmis
20 fyrir 20 mínútna kerfi.
Ef lengd kerfis er ekki valin er tíminn stilltur sjálfkrafa á 10 mínútur.
Stilling á tímavali
Með hnappinum TÍMAVAL er hægt
seinka upphafi kerfis um allt frá 30 mín-
útum (30') upp í hámark 20 tíma (20h).
1. Veljið kerfi og aukaval.
2. Þrýstið á hnappinn TÍMAVAL eins oft og
þörf krefur þar til réttur tími er sýndur á skjánum, til dæmis 12h ef hefja á
þurrkun eftir 12 klukkustundir.
Ef skjárinn sýnir 20h og þrýst er aftur á hnappinn er tímavali aflýst. Skjárinn
sýnir 0' og síðan lengd valins kerfis.
3. Virkið tímaval svo með því að þrýsta á START/STOPP hnappinn. Tími þangað til
þurrkun hefst er sýndur stöðugt (til dæmis 15h, 14h, 13h, … 30' o.s.frv.).
Stilling á barnalæsingu
Barnalæsingu er hægt að stilla til að koma í veg fyrir að kerfi sé óvart sett af stað
eða rofið í miðjum klíðum. Barnalæsingin læsir öllum hnöppum og stilliskífunni.
Hægt er að kveikja og slökkva á barnalæsingunni með því að halda niðri hnöpp-
unum AUKAVAL og STAÐFESTA samtímis í 5 sekúndur.
Áður en kerfi fer af stað: Ekki er hægt að nota þurrkarann
Eftir að kerfi fer af stað: Ekki er hægt að breyta kerfi sem er í gangi
18
Dagleg notkun
Táknið birtist á skjánum til að gefa til kynna að barnalæsingin sé virk.
Barnalæsingin helst virk þótt þurrkkerfið sé búið.
Ef velja á nýtt kerfi þarf fyrst að taka barnalæsinguna af.
Þurrkkerfi sett í gang
Þrýstið á START/STOPP hnappinn. Kerfið fer af
stað.
Kerfið og framvinda þess sést á LCD-skjánum
með viðeigandi táknum. Frá vinstri til hægri,
frá FYRIR STRAUJÁRN
til KRUMPUVARNAR
, fer táknið eftir því hvaða þurrkkerfi var
valið. Ef kerfið VEL ÞURRT er valið sjást t.d.
eftirfarandi tákn:
. Framvinda
kerfis er sýnd með blikkandi bandstriki undir viðeigandi tákni. Þegar viðeigandi
þurrkstigi lýkur sést bandstrikið stöðugt og óblikkandi undir tákninu og annað
bandstrik byrjar að blikka undir næsta framvindutákni.
Breyting á kerfi
Til að breyta kerfi sem valið var af misgáningi, eftir að viðkomandi kerfi er komið í
gang, skal fyrst snúa stilliskífunni á SLÖKKT og stilla svo kerfi að nýju.
Ekki er hægt að breyta kerfi sem er komið í gang nema slökkva á því fyrst. Ef reynt
er að skipta um þurrkkerfi þrátt fyrir það með því að snúa skífunni, þá byrja viðhalds-
og framvindutákn að blikka. Ef þrýst er á aukavalshnapp (fyrir utan hnappinn
HLJÓÐMERKI) birtist Err á skjánum. Þetta hefur hins vegar engin áhrif á þurrkkerfið
sem er í gangi (verndun á þvotti).
Að setja inn í eða taka út úr þurrkaranum áður en kerfi lýkur
1. Opnið dyrnar.
AÐVÖRUN
Þvottur og tromla geta verið heit. Hætta á brunasárum!
2. Takið flíkur úr eða bætið í þurrkarann.
3. Lokið dyrunum tryggilega. Heyrast þarf í dyralásnum smella í lás.
4. Þrýstið á hnappinn START/STOPP til að halda áfram þurrkun.
Dagleg notkun
19
Þurrkun lokið / þvottur fjarlægður
Þegar þurrkun er lokið blikkar " 0" á skjánum og bandstrik birtist undir krumpu-
varnartákninu
. Ef þrýst var á hnappinn HLJÓÐMERKI heyrist hljóðmerki með
reglulegu millibili í um eina mínútu.
Á eftir þurrkkerfum (fyrir utan þurrkkerfin SKÓGRIND og ULLARGRIND) fer sjálf-
krafa krumpuvörn af stað sem varir í um 30 mínútur. Tromlan snýst við og við á
þessari stillingu. Það heldur þvottinum lausum og kemur í veg fyrir að hann krump-
ist. Hægt er að taka þvottinn út hvenær sem er á meðan krumpuvörn stendur. (Taka
skal þvottinn út í lok krumpuvarnar í síðasta lagi, til að koma í veg fyrir krumpu-
myndun.) Ef aukavalið LÖNG KRUMPUVÖRN
er valið er krumpuvarnarkerfið
lengt um 60 mínútur.
1. Opnið dyrnar.
2. Áður en þvottur er tekinn úr þurrkaranum skal fjarlægja ló úr örsíunni. Best er
að nota raka hönd til þess. (Sjá kaflann "Umhirða og hreinsun".)
3. Takið þvottinn út.
4. Snúið stilliskífunni á SLÖKKT.
Eftir hverja þurrkun:
- Hreinsið bæði örsíuna og fínsigtið
- Tæmið vatnsgeyminn
(Sjá kaflann "Umhirða og hreinsun".)
5. Lokið dyrunum.
20
Dagleg notkun
  • Page 1 1
  • Page 2 2
  • Page 3 3
  • Page 4 4
  • Page 5 5
  • Page 6 6
  • Page 7 7
  • Page 8 8
  • Page 9 9
  • Page 10 10
  • Page 11 11
  • Page 12 12
  • Page 13 13
  • Page 14 14
  • Page 15 15
  • Page 16 16
  • Page 17 17
  • Page 18 18
  • Page 19 19
  • Page 20 20
  • Page 21 21
  • Page 22 22
  • Page 23 23
  • Page 24 24
  • Page 25 25
  • Page 26 26
  • Page 27 27
  • Page 28 28
  • Page 29 29
  • Page 30 30
  • Page 31 31
  • Page 32 32
  • Page 33 33
  • Page 34 34
  • Page 35 35
  • Page 36 36
  • Page 37 37
  • Page 38 38
  • Page 39 39
  • Page 40 40
  • Page 41 41
  • Page 42 42
  • Page 43 43
  • Page 44 44
  • Page 45 45
  • Page 46 46
  • Page 47 47
  • Page 48 48

Aeg-Electrolux T58840R Používateľská príručka

Kategória
Elektrické sušičky bielizne
Typ
Používateľská príručka

V iných jazykoch