Aeg-Electrolux T65270AC Používateľská príručka

Typ
Používateľská príručka
LAVATHERM 65270AC IS Notendaleiðbeiningar
EFNISYFIRLIT
1. ÖRYGGISLEIÐBEININGAR . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 3
2. VÖRULÝSING . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 5
3. FYLGIHLUTIR . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 6
4. STJÓRNBORÐ . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 7
5. FYRIR FYRSTU NOTKUN . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 7
6. STILLINGAR . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 7
7. NOTKUN HEIMILISTÆKISINS . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 9
8. GÓÐ RÁÐ . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 11
9. MEÐFERÐ OG ÞRIF . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 12
10. AÐ LEYSA VANDMÁL . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 17
11. TÆKNILEGAR UPPLÝSINGAR . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 18
12. INNSETNING . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 19
13. ÁBYRGÐARSKILMÁLAR . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 21
14. ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐVAR VIÐSKIPTAVINA . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 21
SVO AÐ VARAN NÝTIST ÞÉR SEM BEST
Takk fyrir að velja þessa vöru frá AEG. Hún var hönnuð til þess að starfa óaðfinnanlega í fjölda
ára, með nýjustu tækni sem léttir þér lífið – tæknieiginleikum sem þú finnur ef til vill ekki í
venjulegum heimilistækjum. Vinsamlegast taktu þér nokkrar mínútur í að lesa þessar
upplýsingar svo að þú fáir sem mest út úr vörunni.
Heimsæktu vefsíðu okkar á slóðinni:
Fáðu leiðbeiningar um notkun, bæklinga, svör við vandamálum og
þjónustuupplýsingar.
www.aeg.com
Skráðu vöru þína til að fá enn betri þjónustu:
www.aeg.com/productregistration
Keyptu aukahluti, íhluti og upprunalega varahluti fyrir heimilistæki þitt:
www.aeg.com/shop
AÐSTOÐ OG ÞJÓNUSTA VIÐ VIÐSKIPTAVINI
Við mælum með notkun upprunalegra varahluta.
Þegar þú hefur samband við þjónustuaðila okkar, gættu þess að hafa eftirfarandi upplýsingar á
reiðum höndum.
Upplýsingarnar eru til staðar á stigaplötu tækisins. Árgerð, framleiðslukóti (PNC), Raðnúmer.
Viðvörun/Varúðar- og öryggisupplýsingar
Almennar upplýsingar og ábendingar
Umhverfisupplýsingar
Með fyrirvara á breytingum.
2
www.aeg.com
1.
ÖRYGGISLEIÐBEININGAR
Lesið þessa notendahandbók vandlega
áður en heimilistækið er sett upp og
notað í fyrsta skipti, þar á meðal öll
heillaráð og aðvaranir, til að tryggja
öryggi og rétta notkun. Til að koma í
veg fyrir óþarfa mistök og slys er mik-
ilvægt að tryggja að allir sem nota
heimilistækið hafi kynnt sér notkun og
öryggisatriði þess. Geymið þessar leið-
beiningar og tryggið að þær fylgi
heimilistækinu ef það er fært eða selt
svo að allir notendur þess geti kynnt
sér notkun og öryggisatriði þess til
fullnustu.
- Lesið leiðbeiningahandbókina
áður en heimilistækið er notað.
1.1 Almennt öryggi
Það er hættulegt að breyta eiginleik-
um eða á annað borð reyna að breyta
þessari vöru á nokkurn hátt
Þetta heimilistæki er ekki ætlað fólki
(að börnum meðtöldum) með skerta
skynjun, skerta andlega getu eða litla
reynslu og þekkingu nema viðkomandi
sé undir eftirliti eða leiðsögn persónu,
sem ber ábyrgð á öryggi viðkomandi
Tryggið að lítil börn og gæludýr klifri
ekki inn í tromluna. Skoðið inn í troml-
una fyrir notkun til að fyrirbyggja slíkt.
Hlutir eins og smápeningar, nælur,
naglar, skrúfur, steinar eða aðrir harðir,
hvassir hlutir geta valdið miklu tjóni og
því má alls ekki setja þá í vélina.
Hluti eins og svampgúmmí (latex-
kvoðu), sturtuhettur, vatnsheldar textíl-
vörur (ef það er ekki til staðar neitt sér-
stakt þurrkkerfi), efni með gúmmíund-
irlagi og föt eða kodda með svamp-
gúmmípúðum á ekki að setja í þurrkar-
ann.
Gætið þess að rafmagnsklóin sé að-
gengileg eftir uppsetningu.
Takið heimilistækið alltaf úr sambandi
eftir notkun, þrif og viðhald.
Reynið ekki undir neinum kringum-
stæðum að gera við vélina upp á eigin
spýtur. Ef óreyndir aðilar reyna
framkvæma viðgerðir getur það valdið
meiðslum eða alvarlegri bilun. Hafið
samband við viðgerðaraðila á staðn-
um. Farið alltaf fram á að upprunalegir
varahlutir frá framleiðanda séu notaðir.
Hluti sem hafa fengið á sig bletti frá
matarolíu, asetóni, bensíni, steinolíu,
blettahreinsiefnum, terpentínu, vaxi og
vaxhreinsiefnum verður að þvo fyrst í
heitu vatni með aukaskammti af
þvottaefni áður en þeir mega fara í
þurrkara.
Sprengihætta: Aldrei skal setja hluti í
þurrkarann sem hafa komist í snertingu
við eldfim leysiefni (bensín, spritt, fata-
hreinsunarvökva eða skyld efni). Þar
sem þessi efni eru rokgjörn geta þau
valdið sprengingu. Þurrkarinn er ein-
ungis fyrir vatnsþveginn þvott.
Eldhætta: hlutir sem hafa fengið á sig
bletti frá jurta- eða matarolíu eru eld-
fimir og því skal ekki setja þá í þurrkar-
ann.
Ef blettahreinsir var notaður á þvottinn
verður að framkvæma aukaskolun í
þvottavélinni áður en þvottur er settur
í þurrkarann.
Tryggið að gaskveikjarar eða eldspýtur
gleymist ekki í vösum á þvotti þar sem
þau kynnu að vera sett inn í heimilis-
tækið
Vatn þéttisins er ekki hæft til drykkjar
eða til þess að laga mat. Það getur
valdið heilsufarsvandamálum hjá fólki
og gæludýrum.
Ekki sitja eða halla þér að hleðsludyr-
unum. Tækið getur farið á hliðina.
AÐVÖRUN
Eldhætta! Til að forðast
sjálfsíkveikju skal ekki stöðva
þurrkarann áður en þurrk-
hringrás lýkur, nema öll föt
séu fjarlægð strax út úr
þurrkaranum og þau viðruð
þannig að hitinn hverfi burt.
Ekki má láta ló og skaf safn-
ast saman í kringum þurrkar-
ann.
Hætta á raflosti Ekki skal þvo heimilis-
tækið með því að sprauta á það vatni.
Lokastigið í þurrkuninni er hitalaust
(kæling) til að tryggja að þvotturinn
ÍSLENSKA 3
kólni niður í rétt hitastig og skemmist
ekki.
Ekki skal nota þurrkarann ef iðnaðar-
efni hafa verið notuð til hreinsunar -
þ.e. ef fötin hafa farið í hreinsun.
Tryggðu að góð loftræsting sé til stað-
ar í rýminu þar sem þurrkarinn er settur
upp, til að forðast bakflæði lofttegun-
da inn í herbergið frá heimilistækjum
sem nota annað eldsneyti, þ.m.t. frá
opnum eldi.
1.2 Uppsetning
Þetta heimilistæki er þungt. Vertu
varkár þegar þú færir tækið.
Þegar umbúðirnar eru fjarlægðar,
gangið úr skugga um að heimilistækið
sé ekki skemmt. Ef nokkur vafi leikur á
því skal ekki nota tækið heldur hafa
samband við viðgerðaraðila.
Allar umbúðir verður að fjarlægja fyrir
notkun. Hættulegar skemmdir geta
orðið á eignum og vörunni sjálfri ef
ekki er farið eftir þessu. Sjá viðeigandi
kafla í notendahandbókinni.
Hvers kyns rafmagnsvinna sem þarf við
uppsetningu þessa heimilistækis verð-
ur að vera framkvæmd af rafvirkja m
viðeigandi réttindi eða öðrum aðila
sem hæfur er til verksins.
Setja verður bakhlið tækisins upp við
vegginn
Ef tækinu er stillt upp á teppi eða sam-
svarandi, skal stilla fæturna. Loft verður
að flæða frjálst undir tækið.
Eftir uppsetningu tækisins, skal athuga
að það þrengi ekki að eða standi á raf-
magnstengikaplinum.
Ef þurrkarinn stendur ofan á þvottavél
er nauðsynlegt að nota til þess gerðar
festingar (aukabúnaður) - sjá kafla:
"FYLGIHLUTIR").
1.3 Notkun
Þetta heimilistæki er eingöngu ætlað
til heimilisnota. Það má ekki nota það í
öðrum tilgangi .
Einungis skal þurrka dúka og efni sem
er leyfilegt að þurrka í þurrkara. Fylgið
leiðbeiningum á þvottamiða fatnaðar-
ins.
Setjið ekki óþveginn þvott í þurrkar-
ann.
Hlaðið ekki meiri fötum í þurrkarann
en mælt er með. Fylgið leiðbeiningum
um hámarkshleðslu. Sjá viðeigandi ka-
fla í notendahandbókinni.
Ekki skal setja rennandi blaut föt í
þurrkarann.
Flíkur sem hafa komist í snertingu við
rokgjarnar olíuvörur ættu ekki að fara í
þurrkara. Ef rokgjörn hreinsiefni eru
notuð skal fjarlægja slík efni úr flíkinni
áður en hún fer í þurrkarann.
Notið aldrei þurrkara ef rafmagnssnúr-
an, stjórnborðið, vinnuflöturinn eða
undirstaðan eru skemmd þannig að
greiður aðgangur sé að innra byrði
tækisins:
Mýkingarefni eða samsvarandi vörur
verður að nota eins og er tilgreint af
framleiðanda mýkingarefnisins.
Eldhætta! Ekki reyna að þurrka
skemmda hluti sem eru fóðraðir eða
fylltir (kodda, jakka, sængur, o.s.frv.).
Fóðringin eða fyllingin getur farið út
og valdið eldsvoða.
1.4 Öryggi barna
Ung börn og veikburða einstaklingar
mega ekki nota tækið án eftirlits.
Börn bera oft ekki kennsl á hættuna
sem tengist rafmagnstækjum. Hafa
skal eftirlit með að börn leiki sér ekki
með þetta heimilistæki.
AÐVÖRUN
Hætta á köfnun! Umbúðirnar
(t. d. plastfilma, einangrunarpl-
ast) geta verið hættulegar
börnum - geyma skal þær þar
sem börn ná ekki til.
Geymið öll þvottaefni á öruggum stað
þar sem börn ná ekki til.
Tryggið að börn eða gæludýr klifri ekki
inn í tromluna.
1.5 Fargið tækinu
Aftengið klóna frá rafmagnsinnstung-
unni.
Klippa rafmagnssnúruna af og fleygja
henni.
Fleygja hurðarlokunni. Það kemur í
veg fyrir að börn eða gæludýr geti lok-
ast inni tækinu. Hætta er á köfnun.
4
www.aeg.com
2. VÖRULÝSING
1
3
2
5
6
7
8
9
10
4
11
1
Stjórnborð
2
Hleðsludyr (flytjanlegar hjarir)
3
Loftraufar
4
Stillanlegir fætur
5
Dyr þéttis
6
Þekja þéttis
7
Láspinnar
8
Tegundarspjald
9
Rennihnappur til að opna dyrnar á
þéttinum
10
Sía
11
Vatnsgeymir
ÍSLENSKA 5
3. FYLGIHLUTIR
3.1 Hleðslu hjálpartæki
Vöruheiti: SKP11
Fáanlegir hjá næsta söluaðila. Hleðslu
hjálpartæki er einungis hægt að nota
með þeim þvottavélum sem eru til-
greindar í bæklingnum. Sjá meðfylgjandi
bækling.
Lesið vandlega leiðbeiningar með vör-
unni.
3.2 Tæmingar hjálpartæki
Vöruheiti: DK11.
Fæst hjá löggiltum umboðsmanni (er
hægt að tengja við sumar tegundir
þurrkara)
Uppsetningartæki til að tæma ílát af
þéttivatni í bað, niðurfall o.s.frv. Eftir
uppsetningu tæmist vatnsílátið alltaf
sjálfkrafa. Vatnsílátið verður þá að vera
kyrrt í tækinu.
Uppsett slanga verður að vera a.m.k. í 50
cm hæð upp í 1 m hæð yfir gólffletinum.
Ekki má setja slönguna í hring. Ef mögu-
legt er skal hafa slönguna eins stutta og
hægt er.
Lesið vandlega leiðbeiningar með vör-
unni.
3.3 Stallur undir tækið með
skúffum
Vöruheiti: PDSTP10.
Fáanlegir hjá næsta söluaðila.
Til að setja tækið í hærri stöðu þannig að
auðvelt sé að hlaða þvottinum í tækið og
taka hann úr því.
Nota má skúffuna fyrir geymslu þvottar
þ.e. : fyrir handklæði, hreinsivörur og flei-
ra.
Lesið vandlega leiðbeiningar með fylgi-
hlutnum.
6
www.aeg.com
4. STJÓRNBORÐ
1 2 3 4 5 6 7 8 9
1
Stilliskífa
2
Kveikt/Slökkt -hnappurinn
3
Viðkvæmt -hnappurinn
4
Hljóðmerki -hnappurinn
5
Krumpuvörn -hnappurinn
6
Tímaval -hnappurinn
7
Skjárinn
8
Start/Hlé -hnappurinn
9
Gaumljósin: tæmið vatnsgeyminn,
þrífið síuna, þrífið þéttinn
5. FYRIR FYRSTU NOTKUN
Hreinsið tromlu þurrkarans með rökum
klút eða keyrið stutt þurrkkerfi (þ.e. 30
mínútna þurrkkerfi) með nokkrum rökum
klútum í þurrkaranum.
6. STILLINGAR
Stillingar
Hleðsla
1)
Eiginleikar
Tiltækar
aðgerðir
Verk-
smiðju-
merkt
Bómull
Mjög þurrt 7 kg
Þurrkun bómullarfatnaðar.
Þurrkstig: mjög þurrt.
allt
Meðal
þurrt
2)
7 kg
Þurrkun bómullarfatnaðar.
Þurrkstig: meðal þurrt.
allt
Fyrir strau-
járn
2)
7 kg
Þurrkun bómullarfatnaðar.
Þurrkstig: hentugt fyrir straujun.
allt
ÍSLENSKA 7
Stillingar
Hleðsla
1)
Eiginleikar
Tiltækar
aðgerðir
Verk-
smiðju-
merkt
Gallabuxur 7 kg
Þurrkun á hversdagsfatnaði eins
og gallabuxum eða íþróttapeys-
um þar sem efnið er af mismun-
andi þykkt (til dæmis í kraga,
ermum og saumum).
allt
Rúmföt 3 kg
Til að þurrka rúmföt eins og til
dæmis: einbreið og tvíbreið lök,
koddaver, sængurver.
allt
Fiðurkodd-
ar
3 kg
Til að þurrka einbreiðar eða tví-
breiðar sængur og fiðurkodda
(með fyllingu úr fiðri, dúni eða
gerviefni).
allt nema
Krumpuvörn
3)
Viðkvæmt 3 kg Til að þurrka viðkvæm efni.
allt
3)
Straufrítt
Mjög þurrt 3,5 kg
Þurrkun á þykkum eða margra
laga efnum, til dæmis peysum,
rúmfötum, borðdúkum.
allt
Meðal
þurrt
2)
3,5 kg
Þurrkun á þunnum efnum sem á
ekki að strauja, til dæmis strau-
fríum skyrtum, borðdúkum,
barnafötum, sokkum og undirf-
ötum með spöngum eða vírum.
allt
Fyrir strau-
járn
3,5 kg
Þurrkun á þunnum efnum sem
líka á að strauja, til dæmis prjón-
afatnaði og skyrtum.
allt
Straufrítt
1 kg
(eða 5
skyrtur)
Þurrkun straufrírra efna svo sem
skyrtna og blússna; gerir strauj-
un nær óþarfa. Árangurinn fer
eftir gerð efna og áferð. Setjið
þvottinn strax í þurrkarann. Tak-
ið þvottinn strax úr þurrkaranum
að þurrkun lokinni og hengið
hann til þerris.
allt
3)
Sportklæði 2 kg
Þurrkun á íþróttafötum, þunnum
efnum, microfiber-efni og pól-
ýester sem ekki á að strauja.
allt
60 mín. 3 kg
Tímastilling fyrir þurrkun á stök-
um flíkum.
allt
30 mín. 1 kg
Tímastilling fyrir þurrkun á stök-
um flíkum.
allt
1)
Hámarksþyngd þurrs fatnaðar
8
www.aeg.com
2)
Aðeins fyrir prófunarstofnanir:
Við prófanir á afköstum skal nota staðalstillingar sem tilgreindar eru í EN 61121-skjalinu.
3)
Það stillist sjálfkrafa á Viðkvæmt
7. NOTKUN HEIMILISTÆKISINS
7.1 Að undirbúa þvottinn
Einungis skal þurrka þvott sem er
leyfilegt að þurrka í þurrkara.
Gættu þess að þurrka megi
þvottinn í þurrkara. Athugaðu
verksmiðjumerkingu fatnaðarins.
Verk-
smið-
ju-
merkt
Eign
Má þurrka í þurrkara
Má þurrka í þurrkara við
hefðbundið staðlað hitastig
Má þurrka í þurrkara við
lækkað hitastig
Má ekki þurrka í þurrkara
Undirbúðu þvottinn á réttan hátt:
Festið rennilása, lausa borða og bönd
(t.d. á svuntum) og hneppið koddaver-
um saman - þvotturinn getur flækst í
þurrkaranum
gætið þess að allir vasar séu tómir -
fjarlægið málmhluti (bréfaklemmur,
öryggisnælur, o.s.frv.).
snúið fóðruðum fatnaði á rönguna
(þ.e. bómullarfóðraðir jakkar, þá verð-
ur bómullarhliðin að snúa út).
Eingöngu þurrkun:
bómull og léreft með Bómullar kerfum
gerviefni og blöndur með gerviefna
kerfum
þurrka skal sterklituð klæði og létt lit-
uð klæði sitt í hvoru lagi - litir geta lit-
að út frá sér
bómullarpeysur og prónaföt skal ein-
ungis þurrka með viðeigandi kerfum -
fötin geta hlaupið
Ekki setja inn meiri þvott en há-
markshleðslu sem er 7kg.
7.2 Setjið þvottinn í vélina
1.
Lokið hurð heimilistækisins.
2.
Setjið þvottinn létt í vélina.
3.
Lokið hurð heimilistækisins.
VARÚÐ
Látið þvott ekki festast milli dyra
tækisins og gúmmíþéttingarinnar
7.3 Að kveikja á
heimilistækinu.
Ýttu á Kveikt/Slökkt hnappinn til að
kveikja eða slökkva á heimilistækinu.
Þegar kveikt er á tækinu, birtast gaumlj-
ós á skjánum.
7.4 Sjálfvirk í bið aðgerð
Til að draga úr orkunotkun, þá er til stað-
ar sjálfvirk í bið aðgerð sem slekkur á
tækinu.
ef ekki hefur verið ýtt á Start/Hlé
hnappinn og fimm mínútur eru liðnar.
eftir 5 mínútur eftir að þurrkkerfinu lýk-
ur.
Ýttu á Kveikt/Slökkt hnappinn til að
kveikja á heimilistækinu.
ÍSLENSKA 9
7.5 Þurrkkerfi valið
Notið stilliskífuna til að velja stillingu.
Mögulegur þurrktími birtist á skjánum.
Þurrktímarnir sem birtast miðast
við 5 kg hleðslu af þvotti á bóm-
ullar- og gallabuxnastillingum. Á
öðrum stillingum miðast þurrkt-
íminn við þá hleðslu sem mælt er
með. Þurrktíminn er lengri á
bómullar- og gallabuxnastilling-
unum ef hleðslan er meira en 5
kg.
7.6 Aukaval
Auk almennu stillinganna er hægt að
stilla á 1 eða fleiri gerðir aukavals.
Til að kveikja eða slökkva á aukavalinu er
ýtt á viðkomandi hnapp.
Þegar kveikt er á aukavalinu kviknar á
ljósinu ofan við hnappinn.
7.7 Viðkvæmt aðgerð
Til að þurrka á léttari hátt efni sem eru
viðkvæm fyrir hita (þ.e. akrýlik og visk-
ósa). Fyrir efni þar sem tákniðl
er á
verksmiðjumerkingunni. Kerfið starfar við
lægri hitta.
7.8 Hljóðmerki aðgerð
Þegar hljóðmerkis-aðgerðin er virk getur
þú heyrt hljóðmerki við:
í lok kerfis
þegar fituhreinsunarfasinn hefst og
þegar honum lýkur
þegar hringrás er trufluð
Fastastillingin er að kveikt er á hljóð-
merkjum. Þú getur notað þessa aðgerð
til að kveikja á eða slökkva á hljóðinu.
7.9 Krumpuvörn aðgerð
Lengir tíma fituhreinsunarfasans (30 mín-
útur) við lok þurrkhringrásarinnar upp í
90 mínútur. Þessi aðgerð kemur í veg fyr-
ir að þvotturinn fái í sig fitu. Hægt er að
fjarlægja þvott meðan á fituhreinsunar
fasanum stendur.
7.10 Tímaval aðgerðin
Leyfir seinkun á ræsingu þurrkk-
erfis frá að lágmarki 30 mínútum
upp í að hámarki 20 klst.
1.
Að stilla þurrkerfi og aðgerðir.
2.
Ýttu á Tímaval hnappinn aftur og af-
tur þangað til hinn nauðsynlegi
seinkunartími birtist á skjánum (t.d.
ef kerfið á að fara af stað eftir 12
klst..)
3.
Til að virkja Tímaval aðgerðina, ýttu
á Start/Hlé hnappinn. Tími til ræsing-
ar minnkar á skjánum.
7.11 Hefja þurrkkerfi
Kerfið er sett í gang með því að ýta á
hnappinn Start/Hlé . Ljósið fyrir ofan
hnappinn breytir þá um lit og verður
rautt.
7.12 Breyta þurrkkerfi
Þurrkkerfinu er breytt með því að snúa
stilliskífunni yfir á Stop og velja svo aðra
stillingu.
7.13 Aukavalið barnalæsing
Hægt er að setja barnalæsinguna á til að
koma í veg fyir að börn leiki sér að heim-
ilistækinu. Aukavalið barnalæsing læsir
10
www.aeg.com
öllum hnöppum og stilliskífunni (en ekki
Kveikt/Slökkt -hnappnum). Barnalæsing-
in er sett á með því að þrýsta samtímis á
hnappana Krumpuvörn og Tímaval þar til
táknið
birtist á skjánum. Barnalæsing-
in er tekin af með því að þrýsta aftur á
ofangreinda hnappa þar til táknið hverf-
ur.
Hægt er að setja barnalæsinguna á:
áður en ýtt er á Start/Hlé -hnappinn -
heimilistækið fer þá ekki stað
eftir að ýtt er á Start/Hlé -hnappinn -
allir hnappar og stilliskífan verða þá
óvirk
7.14 Við lok þvottakerfis
Þegar þurrkhringrásinni er lokið, blikk-
ar tákn á skjánum. Ef Hljóðmerki aðgerin
er virk, heyrist hljóðmerki við og við í
eina mínútu.
Að fjarlægja þvottinn úr þurrkaranum:
1.
Ýttu á Kveikt/Slökkt hnappinn í 2 sek-
úndur til að slökkva á heimilistækinu.
2.
Opnið hurð heimilistækisins.
3.
Takið þvottinn út.
4.
Lokið hurð heimilistækisins.
Eftir hverja þurrkun:
hreinsið síuna
tæmið vatnsílátið
(Sjá kaflann MEÐFERÐ OG ÞRIF.)
8. GÓÐ RÁÐ
8.1 Vistfræðileg heillaráð
Notið ekki mýkingarefni til að þvo og
síðan þurrka. fötin verða sjálfkrafa
mjúk í þurrkaranum.
Nota skal þéttivatnið eins og annað
eimað vatn, t.d. til að strauja Ef nauðs-
yn krefur skal sía vatnið fyrst (til dæmis
með kaffisíu) til að fjarlægja allar efna-
leifar og ló.
Alltaf skal halda raufum fyrir loftflæði í
botni tækisins hreinum.
Notið þau hleðslurúmmál sem eru til-
greind í kaflanum um þurrkkerfin.
Gætið þess að loftflæði sé nægjanlegt
í uppsettri stöðu tækisins.
Hreinsið síuna eftir hverja þurrkhring-
rás.
Vinda skal þvottinn vel fyrir þurrkun.
8.2 Meðaltalsþungi þvottar
baðsloppur 1200 g
púðaver 700 g
karlmannsvinnus-
kyrta
600 g
karlmannsnáttföt 500 g
lak 500 g
borðdúkur 250 g
karlmannsskyrta 200 g
náttkjóll 200 g
koddaver 200 g
þurrkunarhand-
klæði
200 g
blússa 100 g
kvennærbuxur 100 g
karlmannsnær-
buxur
100 g
servíetta 100 g
teklútur 100 g
8.3 Herslustig vatns og leiðni
Herslustig vatns getur verið mismunandi
eftir stöðum. Herslustig vatnsins hefur
áhrif á leiðni þess og á vinnslu leiðnin-
emans í heimilistækinu. Ef þú veist vatns-
leiðnigildin geturðu breytt stillingu nem-
ans þannig að þurrkárangurinn verði be-
tri.
Leiðni nemans breytt:
1.
Snúið stilliskífunni yfir á tiltæka still-
ingu.
ÍSLENSKA 11
2.
Haldið samtímis inni hnöppunum
Viðkvæmt og Krumpuvörn þar til eitt
þessara tákna birtist á skjánum:
lítil leiðni <300 μS/cm
meðal leiðni 300-600 μS/
cm
mikil leiðni >600 μS/cm
3.
Ýtið ítrekað á Start Hlé -hnappinn
þar til stillt hefur verið á rétt stig.
4.
Ýtið samtímis á hnappana Viðkvæmt
og Krumpuvörn til að vista stilling-
una í minninu.
8.4 Vatnsgeymir fullur -
ljósmerki
Sjálfgefna stillingin er að ljósmerkið er
alltaf kveikt. Það kviknar á því þegar
þurrkferli lýkur eða þegar vatnsgeymirinn
er fullur. Þegar notaður er utanáliggjandi
búnaður til að tæma vatnsgeyminn getur
verið slökkt á ljósinu.
Til að kveikja eða slökkva á ljósmerkinu:
1.
Snúið stilliskífunni yfir á tiltæka still-
ingu.
2.
Haldið samtímis inni hnöppunum
Viðkvæmt og Tímaval þar til rétta
stillingin birtist:
ljósið er slökkt og táknið
birtist - Ljósmerkið verður þá alltaf
slökkt
ljósið er kveikt og táknið
birtist - Ljósið er á
9. MEÐFERÐ OG ÞRIF
9.1 Að hreinsa síuna
Við lok hverrar þurrkhringrásar er kveikt á
síu LED ljósinu til að minna þig á að
hreinsa þarf síuna.
Sían safnar í sig ló. Lóin myndast
um leið og fötin eru þurrkuð í
þurrkaranum.
Að hreinsa síuna:
1.
Opnið hurðina.
2.
Takið út síuna.
12
www.aeg.com
3.
Opnið síuna.
4.
Notaðu raka hönd til að hreinsa af sí-
unni.
5.
Ef nauðsyn krefur skal hreinsa síuna
með heitu vatni og bursta.
Lokið síunni.
6.
Fjarlægið ló úr gróp síunnar. Það má
nota ryksugu til að gera þetta.
7.
Togaðu síuna inn í gróp síunnar.
VARÚÐ
Ekki nota þurrkarann án síunnar
eða ef sían er skemmd eða full af
ló.
Hreinsið síuna eftir hverja þurrk-
hringrás. Stífluð sía eykur þurrk-
tíma og veldur meiri orkunotkun.
9.2 Að tæma vatnsílátið
Tæmið vatnsílátið eftir hverja þurrkhring-
rás.
Ef vatnsílátið er fullt, stöðvast þurrkkerfið
sjálfkrafa og tæma vatnsílát LED ljósið er
kveikt. Til að halda áfram að keyra kerfið,
skal tæma vatnsílátið og ýta á ræsingar-
hnappinn.
Til að tæma vatnsílátið sjálkrafa
getur þú sett inn vatnstæmingar
fylgihlut (sjá kaflann: FYLGIHLUT-
IR)
ÍSLENSKA 13
Að tæma vatnsílátið:
1.
Dragið út vatnsílátið.
2.
Setjið vatnsílátið í lárétta stöðu.
3.
Hreyfið plasttengið út og tæmið
vatnsílátið í vask eða samsvarandi
móttaka.
4.
Hreyfið plasttengið inn og setjið upp
vatnsílátið.
AÐVÖRUN
Hætta á eitrun. Samansafnað
vatnið er ekki hæft til drykkjar
eða til þess að búa til mat.
Hægt er að nota samansafnað
vatnið eins og annað eimað vatn,
t.d. til að strauja. Ef nauðsyn kref-
ur skal sía vatnið fyrst (til dæmis
með kaffisíu) til að fjarlægja allar
efnaleifar og ló.
9.3 Að hreinsa þéttinn
Ef þéttis LED ljósið er kveikt, þá þarf að
hreinsa þéttinn.
14
www.aeg.com
Að hreinsa þéttinn:
1.
Opnið hleðsludyrnar.
2.
Færið losunarhnappinn neðst á dyra-
gáttinni og opnið dyr þéttisins.
3.
Snúið 2 fyrirstöðum til að opna lok
þéttisins.
4.
Lækkið lok þéttisins.
ÍSLENSKA 15
5.
Grípið handfangið og togið þéttinn
út úr botnrýminu. Hreyfið þéttinn
lóðrétt til að hella ekki því vatni sem
eftir er á gólfið.
6.
Hreinsið þéttinn í lóðréttri stöðu fyrir
ofan bað eða samsvarandi. Skolið vel
með sturtuhausnum.
7.
Hreinsið síuna í þéttinum. Skolið vel
með sturtuhausnum.
8.
Setjið þéttinn aftur á sinn stað inni í
botnrýminu.
9.
Lokið loki þéttisins.
10.
Læsið fyrirstöðunum 2 þangað til
þær smella.
11.
Lokið dyrum þéttisins.
VARÚÐ
Notið ekki þurrkarann þegar
þéttirinn er stíflaður af ló. Þetta
gæti valdið skaða á þurrkaranum.
Slíkt eykur einnig rafmagns-
eyðslu.
Ekki skal nota hvöss áhöld til að
hreinsa þéttinn. Skemmdur þéttir
getur valdið lekum.
Ekki nota þurrkarann án þess að
þéttirinn sé í honum.
9.4 Tromlan hreinsuð
AÐVÖRUN
Aftengið heimilistækið áður en
það er hreinsað.
Notið staðlaðan hlutlausan sápulög til að
hreinsa innra byrði tromlunnar og rif
tromlunnar. Þurrkið hreinsaða fleti með
mjúkum klút.
16
www.aeg.com
VARÚÐ
Ekki nota slípiefni eða stálull til
að hreinsa tromluna
9.5 Að hreinsa stjórnborðið og
hlífina
Notið staðlaðan hlutlausan sápulög til að
hreinsa stjórnborðið og hlífina.
Notið rakan klút til að hreinsa. Þurrkið
hreinsaða fleti með mjúkum klút.
VARÚÐ
Notið ekki húsgagnahreinsiefni
eða hreinsiefni sem geta valdið
tæringu til að hreinsa heimilis-
tækið.
10. AÐ LEYSA VANDMÁL
10.1 Bilanaleit
Vandamál
1)
Möguleg orsök Úrlausn
Þurrkarinn
fer ekki í
gang.
Þurrkarinn er ekki tengdur við
rafmagn.
Stingið í samband við inn-
stungu. Athugið bræðivar í raf-
magnstöflu (heimilisrafmagn).
Hurð heimilistækisins er opin. Lokið hurðinni.
Það gleymdist að ýta á Kveikt/
Slökkt -hnappinn.
Ýtið á Kveikt/Slökkt -hnappinn.
Það gleymdist að ýta á Start/
Hlé -hnappinn.
Ýtið á Start/Hlé -hnappinn.
Heimilistækið er í reiðuham
(standby).
Ýtið á Kveikt/Slökkt -hnappinn.
Þurrkarinn
þurrkar ekki
vel.
Rangt kerfi valið.
Veljið viðeigandi kerfi.
2)
Sían er stífluð.
Hreinsið síuna.
3)
Þéttirinn er stíflaður.
Hreinsið þéttinn.
3)
Of mikill þvottur í þurrkaranum.
Fylgið leiðbeiningum um há-
marksmagn þvottar.
Loftristin er stífluð.
Hreinsið loftristina í botni
heimilistækisins.
Óhreinindi inni í tromlunni. Þrífið tromluna að innan.
Herslustig vatns of hátt.
Stillið á rétt herslustig vatns
4)
.
Hurðin lok-
ast ekki.
Sían hefur ekki smollið á réttan
stað.
Setjið síuna í rétta stöðu.
Þvotturinn er fastur a milli hurð-
arinnar og þéttilistans.
Setjið þvottinn rétt inn í troml-
una.
ÍSLENSKA 17
Á skjánum
stendur Err
(Villa).
Þú reynir að breyta stillingunni
eða aukavalinu eftir að þurrk-
ferilinn er hafinn.
Slökkvið og kveikið svo aftur á
þurrkaranum. Veljið nýja still-
ingu.
Aukavalið sem þú reyndir að
stilla á er ekki tiltækt fyrir kerfið
sem valið er.
Slökkvið og kveikið svo aftur á
þurrkaranum. Veljið nýja still-
ingu.
Tíminn á
skjánum líð-
ur of hratt
eða of
hægt.
)
Þurrktíminn reiknast eftir magni
og rakastigi þvottarins.
Sjálfvirka ferlið - þetta er ekki
bilun í heimilistækinu.
Stilling er
óvirk.
Vatnsgeymirinn er fullur.
Tæmið vatnsgeyminn
3)
, ýtið á
Start/Hlé -hnappinn.
Þurrkferill of
stuttur.
Of lítið af þvotti í þurrkaranum. Stillið á viðeigandi tímalengd.
Þvotturinn er of mikið þurrkað-
ur.
Veljið tíma eða hærra þurrkstig
(t.d. Mjög þurrt )
Þurrkferill of
langur
5)
Sían er stífluð. Hreinsið síuna.
Of mikill þvottur í þurrkaranum.
Fylgið leiðbeiningum um há-
marksmagn þvottar.
Ekki nóg þeytivinding á þvott-
inum.
Þeytivindið þvottinn rétt.
Mjög hár herbergishiti - þetta
er ekki bilun í heimilistækinu.
Lækkið herbergishitann ef
hægt er.
1)
Ef það eru villuboð á skjánum (t.d. E51): Slökkvið og kveikið svo aftur á þurrkaranum.
Veljið nýju stillinguna. Ýtið á Start/Hlé -hnappinn. Fer ekki í gang? - hafið samband við
viðgerðarþjónustuna og gefið upp villuboðin.
2)
farið eftir lýsingunum á þurrkkerfunum— sjá kaflann STILLINGAR
3)
sjá kaflann MEÐFERÐ OG ÞRIF
4)
sjá hlutann HERSLUSTIG VATNS í kaflanum GÓÐ RÁÐ
5)
Athugið: Eftir hámark 5 klukkustundir endar þurrkunin sjálfkrafa (sjá hlutann Þurrkunarferli
lokið).
11. TÆKNILEGAR UPPLÝSINGAR
hæð x breidd x dýpt 850 x 600 x 600 mm (hámarks 640 mm)
rúmmál tromlu 118 l
hámarksdýpt með opnar hleðsludyr 1090 mm
hámarksvídd með opnar hleðsludyr 950 mm
stillanleg hæð 850 mm (+ 15 mm - stilling fóta)
þyngd heimilistækisins 41 kg
18
www.aeg.com
hámarks hleðslurúmmál 7 kg
straumur 230 V
tíðni 50 Hz
nauðsynlegt öryggi 16 A
aflþörf alls 2800 W
orkunýtingarflokkur B
orkunotkun kWst/hringrás
1)
4,28 kWst
árleg orkunotkun
2)
504 kWst
vinstri—kveikt á ham orkuísogs 0,55 W
slökkt á ham orkuísogs 0,55 W
tegund notkunar Til heimilisnota
leyfilegur umhverfishiti + 5°C til + 35°C
1)
7 kg af bómull sem er undið með 1000 snúningum á mín. með tilvísan til EN 61121
2)
Orkunotkun á ári í kílóvattstundum er byggð á 160 þurrkunarlotum á venjulegu
bómullarprógrammi við fulla hleðslu og hleðslu að hluta til, og notkun í afllitlum ham.
Raunorkunotkun á þurrklotu er háð því hvaða tæki er notað (REGLUGERÐ (ESB) Nr.
392/2012).
12. INNSETNING
12.1 Staðsetning tækis
Setja þarf þurrkarann upp á þurrum
stað þar sem óhreinindi safnast ekki
upp.
Loft verður að flæða frjálst kringum
tækið. Gætið þess að raufarnar fyrir
loftflæði neðst á tækinu séu ekki stí-
flaðar.
Til að halda titringi og hávaða í lág-
marki, þegar þurrkarinn er í gangi,
verður að setja hann á stöðugt og flatt
yfirborð.
Þegar tækið er sett á sinn endanlega
stað, skal athuga hvort að það sé al-
veg lárétt með hjálp hallamælis. Ef svo
er ekki er, skal stilla fæturna þangað til
tækið er alveg lárétt.
Ekki fjarlægja fæturna. Ekki takmarka
bil á milli gólfs og þurrkara með þykku
teppi, viðarbútum eða öðru samsvar-
andi. Þetta getur aukið hitann sem
getur valdið truflunum á starfsemi
tækisins.
Hitastig hins heita lofts sem er í
þurrkaranum getur farið upp í
60°C. Þannig má ekki setja upp
tækið á gólfi sem þolir ekki
hátt hitastig.
Við notkun þurrkarans má um-
hverfishiti ekki fara niður fyrir
+5 °C og ekki upp fyrir +35 °C,
því það getur haft óvænt áhrif
á afköst tækisins.
Ef nauðsynlegt reynist að
hreyfa tækið, skal hreyfa það
lóðrétt.
Ekki má setja upp tækið á bak-
við læsanlega hurð, rennihurð,
eða bakvið hurð með hjarir á
hinni hliðinni þannig að ekki sé
hægt að opna að fullu dyr
þurrkarans.
Það er hægt að stilla hæð þurrkarans. Til
þess þarf að stilla fæturna (sjá mynd).
ÍSLENSKA 19
15mm
12.2 Umbúðir fjarlægðar
VARÚÐ
Fjarlægja þarf allar umbúðir og flutnings-
búnað fyrir notkun.
Til að fjarlægja polýstýren fyrirstöðurnar:
1.
Opnið hleðsludyrnar.
2.
Togið plastslöngu með pólýstýren
fyrirstöðunum út úr tromlunni.
12.3 Uppsetning undir
borðplötu
Hægt er að setja upp tækið sem frístand-
andi eða undir eldhúsborðplötu sé rétt
rými til staðar (sjá mynd).
> 850 mm
600 mm
600 mm
12.4 Hleðsludyrum snúið við
Hleðsludyrnar má setja upp af notandan-
um á hinni hliðinni Það getur hjálpað við
að setja þvottinn í og taka hann úr tæk-
inu ef það er takmarkað rými. (sjá aðskil-
inn bækling).
12.5 Rafmagnstenging
Tengið vélina við jarðtengda inn-
stungu í samræmi við gildandi reglur
um raflagnir
Gætið þess að rafmagnsupplýsingarn-
ar á tegundarspjaldinu passi við af-
lgjafann.
Alltaf nota rétt uppsetta innstungu
sem gefur ekki raflost.
Ekki nota fjöltengi eða framlengingar-
snúrur. Það skapar eldhættu.
Ef skipta þarf um rafmagnssnúru verð-
ur þjónustuver okkar að sjá um það.
Gætið þess að kremja hvorki né
skemma klóna eða rafmagnssnúruna á
bak við heimilistækið.
Ekki toga í snúruna til að taka heimilis-
tækið úr sambandi. Togið alltaf í raf-
magnsklóna.
Rafmangsklóin verður að vera þurr.
20
www.aeg.com
  • Page 1 1
  • Page 2 2
  • Page 3 3
  • Page 4 4
  • Page 5 5
  • Page 6 6
  • Page 7 7
  • Page 8 8
  • Page 9 9
  • Page 10 10
  • Page 11 11
  • Page 12 12
  • Page 13 13
  • Page 14 14
  • Page 15 15
  • Page 16 16
  • Page 17 17
  • Page 18 18
  • Page 19 19
  • Page 20 20
  • Page 21 21
  • Page 22 22
  • Page 23 23
  • Page 24 24

Aeg-Electrolux T65270AC Používateľská príručka

Typ
Používateľská príručka

V iných jazykoch