Notkunarleiðbeiningar
Mikilvægar upplýsingar um öryggismál
Lesið þessa notendahandbók vandlega áður en heimilistækið er sett upp og
notað í fyrsta skipti, þar á meðal öll heillaráð og aðvaranir, til að tryggja
öryggi og rétta notkun. Til að koma í veg fyrir óþarfa mistök og slys er mik-
ilvægt að tryggja að allir sem nota heimilistækið hafi kynnt sér notkun og
öryggisatriði þess. Geymið þessar leiðbeiningar og tryggið að þær fylgi
heimilistækinu ef það er fært eða selt svo að allir notendur þess geti kynnt
sér notkun og öryggisatriði þess til fullnustu.
Almennt öryggi
• Almennt öryggiÞað er hættulegt að breyta eiginleikum eða á annað borð reyna
að breyta þessari vöru á nokkurn hátt.
• Þetta heimilistæki er ekki ætlað fólki (að börnum meðtöldum) með skerta
skynjun, skerta andlega getu eða litla reynslu og þekkingu nema viðkomandi sé
undir eftirliti eða leiðsögn persónu, sem ber ábyrgð á öryggi viðkomandi.
• Tryggið að lítil gæludýr klifri ekki inn í tromluna. Skoðið inn í tromluna fyrir
notkun til að fyrirbyggja slíkt.
• Hlutir eins og smápeningar, nælur, naglar, skrúfur, steinar eða aðrir harðir,
hvassir hlutir geta valdið miklu tjóni og því má alls ekki setja þá í þvottavélina.
• Til að forðast eldhættu við of mikla þurrkun skal ekki nota heimilistækið til að
þurrka eftirfarandi: Púða, teppi og svipaða hluti (sem safna í sig hita).
• Hluti eins og svampgúmmí (latexkvoðu), sturtuhettur, vatnsheldar textílvörur,
efni með gúmmíundirlagi og föt eða kodda með svampgúmmípúðum á ekki að
setja í þurrkarann.
• Takið heimilistækið alltaf úr sambandi eftir notkun, þrif og viðhald.
• Reynið ekki undir neinum kringumstæðum að gera við vélina upp á eigin spýtur.
Ef óreyndir aðilar reyna að framkvæma viðgerðir getur það valdið meiðslum eða
alvarlegri bilun. Hafið samband við viðgerðaraðila á staðnum. Farið alltaf fram
á að ekta varahlutir séu notaðir.
• Hluti sem hafa fengið á sig bletti frá matarolíu, asetóni, bensíni, steinolíu,
blettahreinsiefnum, terpentínu, vaxi og vaxhreinsiefnum verður að þvo fyrst með
aukaskammti af þvottaefni áður en þeir mega fara í þurrkara.
Mikilvægar upplýsingar um öryggismál
5