IKEA OV24 Používateľská príručka

Kategória
Mixér / kuchynský robot príslušenstvo
Typ
Používateľská príručka
MIRAKULÖS
IS
ÍSLENSKA
Á öftustu síðu þessarar handbók er skrá yfir alla veitendur
eftirsöluþjónustu sem útnefndir hafa verið af IKEA og viðeigandi
símanúmer í hverju landi.
ÍSLENSKA
4
Efnisyfirlit
Öryggisupplýsingar 4
Öryggisleiðbeiningar 6
Innsetning 9
Vörulýsing 10
Fyrir fyrstu notkun 10
Dagleg notkun 11
Örbylgjuhamur 13
Tímastillingar 17
Að nota fylgihluti 18
Viðbótarstillingar 19
Góð ráð 20
Umhirða og þrif 22
Bilanaleit 24
Tæknigögn 25
UMHVERFISMÁL 25
IKEA-ÁBYRGÐ 26
Með fyrirvara á breytingum.
Öryggisupplýsingar
Fyrir uppsetningu og notkun heimilistækisins skal lesa
meðfylgjandi leiðbeiningar vandlega. Framleiðandinn er ekki
ábyrgur fyrir tjóni ef röng uppsetning eða notkun veldur
meiðslum og skemmdum. Alltaf skal geyma leiðbeiningarnar
með tækinu til síðari notkunar.
Öryggi barna og viðkvæmra einstaklinga
Börn, 8 ára og eldri og fólk með minnkaða getu, mega nota
þetta tæki, ef þeim hafa verið veittar leiðbeiningar og/eða
eftirlit varðandi örugga notkun tækisins og ef þau skilja
hættuna sem því fylgir.
Leyfðu ekki börnum að leika sér með tækið.
Haltu öllum umbúðum frá börnum og fargaðu þeim á
viðeigandi hátt.
Halda skal börnum og gæludýrum fjarri heimilistækinu þegar
það er í gangi eða þegar það kólnar. Aðgengilegir hlutar eru
heitir.
Ef heimilistækið er með barnalæsingu ætti hún að vera
virkjuð.
Börn eiga ekki að hreinsa eða framkvæma notandaviðhald á
heimilistækinu án eftirlits.
ÍSLENSKA
4
Alltaf verður að halda börnum 3 ára og eldri frá þessu
heimilistæki þegar það er í notkun.
Almennt öryggi
Einungis til þess hæfur aðili má setja upp þetta heimilistæki
og skipta um rafmagnskapal.
AÐVÖRUN: Heimilistækið og aðgengilegir hlutar þess hitna
við notkun. Auðsýna ætti aðgát til að forðast að snerta
hitaelementin. Halda skal börnum yngri en 8 ára frá tækinu
nema þau séu undir stöðugu eftirliti.
Notaðu alltaf ofnhanska til að fjarlægja eða setja inn
aukahluti eða ofnáhöld.
Áður en viðhald hefst skal aftengja tækið frá rafmagni.
Tryggja skal að slökkt sé á tækinu áður en skipt er um ofnljós
til að forðast möguleika á raflosti.
Ekki nota gufuhreinsibúnað til að hreinsa heimilistækið.
Ekki nota sterk tærandi hreinsiefni eða beittar málmsköfur til
að hreinsa glerhurðina þar sem slíkt getur rispað yfirborðið,
sem getur aftur leitt til þess að glerið brotnar.
Ef rafmagnssnúra er skemmd verður framleiðandi, viðurkennd
þjónustumiðstöð eða svipað hæfur aðili að endurnýja hana til
að forðast hættu vegna rafmagns.
Ekki kveikja á heimilistækinu þegar það er tómt. Málmhlutir
inni í ofnrýminu geta skapað rafneistahlaup.
Ef hurðin eða þéttikantar hurðarinnar skemmast má ekki nota
heimilistækið fyrr en fagmaður er búinn að gera við það.
Aðeins hæf manneskja má framkvæma þjónustu eða
viðgerðir sem fela í sér brottnám hlífar sem veitir vernd gegn
berskjöldun fyrir örbylgjuorku.
Ekki hita vökva eða önnur matvæli í lokuðum ílátum. Líklegt er
að þau springi.
Málmílát fyrir mat og drykki eru ekki leyfðir meðan á
örbylgjumatreiðslu stendur. Þessi krafa á ekki við ef
ÍSLENSKA
5
framleiðandinn tilgreinir stærð og lögun málmíláta sem henta
fyrir örbylgjumatreiðslu.
Notaðu aðeins áhöld sem henta til notkunar í örbylgjuofnum.
Þegar matur er hitaður í plast- eða pappírsílátum skal hafa
auga með tækinu vegna möguleika á íkveikju.
Tækið er ætlað til að hita matvæli og drykki. Þurrkun matvæla
eða fatnaðar og hitun hitapúða, inniskóa, svampa, rakra
klúta og þvíumlíks getur leitt til hættu á meiðslum, íkveikju eða
eldi.
Ef reykur kemur úr heimilistækinu skal taka það úr sambandi
og halda hurðinni lokaðri til að kæfa alla loga.
Hitun drykkja í örbylgju getur leitt til seinkaðrar gossuðu.
Auðsýna verður aðgát þegar ílátið er meðhöndlað.
Innihald pela og barnamatskrukkna skal vera hrært eða hrist
og hitastigið athugað fyrir neyslu, til að forðast bruna.
Egg í skurninni og heil harðsoðin egg ætti ekki að hita í
tækinu þar sem þau geta sprungið, jafnvel eftir að
örbylgjuhitun er lokið.
Hreinsa ætti tækið reglulega og fjarlægja matarleifar.
Misbrestur á að halda tækinu hreinu gæti leitt til þess að
yfirborðið spillist og það gæti haft áhrif á líftíma tækisins og
mögulega leitt til hættulegra aðstæðna.
Öryggisleiðbeiningar
Uppsetning
AÐVÖRUN! Einungis til þess
hæfur aðili má setja upp þetta
heimilistæki.
Fjarlægðu allar umbúðir.
Ekki setja upp eða nota skemmt
heimilistæki.
Fylgdu leiðbeiningum um uppsetningu
sem fylgja með heimilistækinu.
Alltaf skal sýna aðgát þegar
heimilistækið er fært vegna þess að það
er þungt. Notaðu alltaf öryggishanska og
lokaðan skóbúnað.
Ekki draga heimilistækið á handfanginu.
Haltu lágmarksfjarlægð frá hinum
heimilistækjunum og einingunum.
Gættu þess að heimilistækinu sé komið
fyrir undir og við hliðina á traustum og
stöðugum hlutum.
Hliðar heimilistækisins verða að standa
beinar og við hlið tækja eða eininga sem
hafa sömu hæð.
ÍSLENSKA 6
Tenging við rafmagn
AÐVÖRUN! Eldhætta og hætta á
raflosti.
Allar tengingar við rafmagn skulu
framkvæmdar af rafverktaka með tilskilin
starfsréttindi.
Heimilistækið þarf að vera jarðtengt.
Gakktu úr skugga um að
rafmagnsupplýsingarnar á merkiplötunni
passi við aflgjafann. Ef ekki, skal hafa
samband við rafvirkja.
Notaðu alltaf rétt ísetta innstungu sem
ekki veldur raflosti.
Notaðu ekki fjöltengi eða
framlengingarsnúrur.
Gakktu úr skugga um að rafmagnsklóin
og snúran verði ekki fyrir skemmdum. Ef
skipta þarf um rafmagnssnúru verður
viðurkennd þjónustumiðstöð okkar að sjá
um það.
Ekki láta rafmagnssnúrurnar komast í
snertingu við hurð tækisins, einkum þegar
hurðin er heit.
Raflostsvörn lifandi og einangraðra hluta
verður að vera fest þannig að ekki sé
hægt að fjarlægja hana án verkfæra.
Aðeins skal tengja rafmagnsklóna við
rafmagnsinnstunguna í lok
uppsetningarinnar. Gakktu úr skugga um
að rafmagnsklóin sé aðgengileg eftir
uppsetningu.
Ef rafmagnsinnstungan er laus, skal ekki
tengja rafmagnsklóna.
Ekki toga í snúruna til að taka tækið úr
sambandi. Taktu alltaf um klóna.
Notaðu aðeins réttan
einangrunarbúnað:
Línuvarnarstraumloka, öryggi (öryggi
með skrúfgangi fjarlægð úr höldunni),
lekaliða og spólurofa.
Rafmagnsuppsetningin verður að vera
með einangrunarbúnað sem leyfir þér að
aftengja tækið frá stofnæð á öllum
pólum. Einangrunarbúnaðurinn verður
að hafa að lágmarki 3 mm
snertiopnunarvídd.
Þetta heimilistæki samræmist EBE-
tilskipunum.
Notkun
AÐVÖRUN! Hætta á líkamstjóni,
bruna, raflosti eða sprengingu.
Þetta heimilistæki er eingöngu ætlað til
heimilisnota.
Breyttu ekki tæknilýsingu fyrir þetta
heimilistæki.
Gættu þess að loftræstiop séu ekki
stífluð.
Láttu heimilistækið ekki vera án eftirlits á
meðan það er í gangi.
Slökktu á heimilistækinu eftir hverja
notkun.
Farðu varlega þegar þú opnar hurð
heimilistækisins á meðan það er í gangi.
Heitt loft getur losnað út.
Notaðu ekki heimilistækið með blautar
hendur eða þegar það er í snertingu við
vatn.
Beittu ekki þrýstingi á opna hurð.
Notaðu ekki heimilistækið sem
vinnusvæði eða geymslusvæði.
Opnaðu hurð heimilistækisins varlega.
Notkun hráefna með alkóhóli getur
valdið blöndu alkóhóls og lofts.
Láttu ekki neista eða opinn eld komast í
sneringu við heimilistækið þegar þú
opnar hurðina.
Settu ekki eldfim efni eða hluti sem eru
blautir af eldfimum efnum nálægt eða á
heimilistækið.
Notaðu ekki örbylgjuaðgerðina til að
forhita ofninn.
AÐVÖRUN! Hætta á skaða á
tækinu.
Til að koma í veg fyrir skemmdir eða
aflitun á glerungnum:
Settu ekki álpappír beint á botn
heimilistækisins.
Settu ekki vatn beint inn í heitt
heimilistækið.
ÍSLENSKA
7
Láttu ekki raka rétti og rök matvæli
vera inni í heimilistækinu eftir að
matreiðslu er lokið.
Farðu varlega þegar þú fjarlægir
aukahluti eða setur þá upp.
Aflitun á glerungnum hefur engin áhrif á
getu eða frammistöðu heimilistækisins.
Notaðu djúpa skúffu fyrir rakar kökur.
Ávaxtasafi veldur blettum sem geta verið
varanlegir.
Þetta heimilistæki er eingöngu til að
matreiða með. Ekk má nota það í öðrum
tilgangi, til dæmis að hita herbergi.
Alltaf skal elda með ofnhurðina lokaða.
Ef heimilistækið er sett upp á bak við
húsgagnaþil (t.d hurð) skaltu gæta þess
að hurðin sé aldrei lokuð þegar
heimilistækið er í notkun. Hiti og raki
geta byggst upp á bak við lokað
húsgagnaþil og valdið síðari skemmdum
á heimilistækinu, húseiningunni eða
gólfinu. Lokaðu ekki húsgagnaþilinu fyrr
en heimilistækið hefur kólnað til fulls eftir
notkun.
Umhirða og hreinsun
AÐVÖRUN! Hætta á líkamstjóni,
eldsvoða eða því að
heimilistækið skemmist.
Áður en viðhald fer fram á tækinu skal
slökkva á því og aftengja aðalklóna frá
rafmagnsinnstungunni.
Gættu þess að heimilistækið sé kalt.
Hætta er á að glerplöturnar brotni.
Endurnýjaðu glerplöturnar í ofnhurðinni
strax þegar þær skemmast. Hafðu
samband við viðurkennda
þjónustumiðstöð.
Vertu viss um að ofnrýmið og hurðin séu
þurrkuð eftir hverja notkun. Gufa sem
kemur meðan á notkun heimilistækisins
stendur þéttist á veggjum ofnrýmisins og
getur valdið tæringu.
Hreinsaðu heimilistækið reglulega til að
yfirborðsefnin á því endist betur.
Feiti og matarleifar sem verða eftir í
heimilistækinu geta valdið eldsvoða og
rafneistahlaupi þegar örbylgjuaðgerðin
er í gangi.
Ef þú notar ofnhreinsi skaltu hlýða
öryggisleiðbeiningunum á umbúðunum.
Notkun glervöru
Meðhöndlun glervörunnar án viðeigandi
varúðar getur leitt til að hún brotni, flísist úr
henni, sprungur myndist eða verulegar
rispur:
Ekki hella köldu vatni eða öðrum vökvum
á glervöruna vegna þess að skyndileg
lækkun hitastigs kann að valda því að
glerið brotni samstundis. Glerbrot geta
verið afskaplega beitt og erfitt að
staðsetja þau.
Settu ekki heitar glervörur á blautt eða
kalt yfirborð, beint á eldhúsbekk eða
málmflöt; eða meðhöndlaðu heitar
glervörur með blautum klút.
Notaðu ekki eða gerðu við glervöru sem
flísast hefur úr, er sprungin eða er
verulega rispuð.
Misstu ekki eða sláðu glervöru utan í
harða hluti eða berðu áhöldum í hana.
Ekki skal hita tóma eða næstum tóma
glervöru í örbylgjuofni, eða ofhita olíu
eða smjör í örbylgjuofni (notaðu
lágmarkseldunartíma).
Leyfðu heitri glervöru að kólna í kæligrind,
pottaleppi eða þurrum klút. Gakktu úr
skugga um að glervaran sé nægilega köld
fyrir þvott, kælingu eða frystingu.
Forðastu að meðhöndla heita glervöru (þar
með talið vöru með sílikon-gripflötum) án
þurra pottaleppa.
Forðastu misnotkun örbylgjuofns (þ.e. láta
ofninn ganga án álags eða á litlu álagi).
Ofnljósið
Sú tegund ljósaperu eða halógenlampa
sem notuð er fyrir þetta tæki er aðeins
ætluð heimilistækjum. Ekki nota það sem
heimilisljós.
ÍSLENSKA
8
AÐVÖRUN! Hætta á raflosti.
Áður en skipt er um ljósið, skal aftengja
heimilistækið frá rafmagnsinntakinu.
Einungis skal nota ljósaperur sem hafa
sömu eiginleika.
Förgun
AÐVÖRUN! Hætta á líkamstjóni
eða köfnun.
Aftengdu tækið frá rafmagni.
Klipptu rafmagnssnúruna af upp við
heimilistækið og fargaðu henni.
Fjarlægðu hurðina til að koma í veg fyrir
að börn eða dýr geti lokast inni í tækinu.
Umbúðaefni:
Umbúðirnar eru umhverfisvænar og
endurvinnanlegar. Plasthlutar eru merktir
með alþjóðlegum skammstöfunum t.d. PE
PS o.s.frv. Fargaðu umbúðaefninu í til
þess ætluðum gámum á
sorpförgunarstöðinni á staðnum.
Þjónusta
Hafðu samband við viðurkennda
þjónustumiðstöð til að gera við
heimilistækið.
Notaðu eingöngu upprunalega varahluti.
Innsetning
AÐVÖRUN! Sjá kafla um
Öryggismál.
Samsetning
Farðu eftir
samsetningarleiðbeiningunum
við uppsetningu.
Rafmagnsuppsetning
AÐVÖRUN! Aðeins viðurkenndur
einstaklingur má sjá um
raflagnavinnuna.
Framleiðandinn er ekki ábyrgur
ef þú fylgir ekki
öryggisvarúðarráðstöfununum í
öryggisköflunum.
Þetta heimilistæki er aðeins afhent með
rafmagnssnúru.
Kapall
Kapaltegundir sem viðeigandi eru fyrir
uppsetningu eða endurnýjun:
H07 RN-F, H05 RN-F, H05 RRF, H05 VV-F,
H05 V2V2-F (T90), H05 BB-F
Fyrir þversnið kapalsins vísast til heildarafls
á merkiplötunni. Þú getur einnig vísað til
töflunnar:
Heildarafl (W) Þversnið kapals
(mm²)
að hámarki 1380 3 x 0.75
að hámarki 2300 3 x 1
að hámarki 3680 3 x 1.5
Jarðstrengurinn (grænn / gulur kapall)
verður að vera 2 cm lengri en fasinn og
núllkapallinn (bláir og brúnir kaplar).
ÍSLENSKA 9
Vörulýsing
Almennt yfirlit
1 2 43
10
4
3
1
2
9
5
6
7
8
1
Stjórnborð
2
Hnúður fyrir aðgerðir ofnsins
3
Rafrænn forritari
4
Hnúður fyrir hitastigið / afl örbylgju
5
Grill
6
Örbylgjugjafi
7
Ljós
8
Merkiplata
9
Hilluberi, laus
10
Hillustöður
Aukabúnaður
Vírhilla x 1
Fyrir eldunaráhöld, kökuform, steikur.
Glerplata á botni örbylgjuofnsins x 1
Til að styðja við örbylgjuham.
Fyrir fyrstu notkun
AÐVÖRUN! Sjá kafla um
Öryggismál.
Fyrsta hreinsun
Fjarlægðu allan aukabúnað og lausar
hillustoðir úr heimilistækinu.
Sjá kaflann „Umhirða og
hreinsun“.
Hreinsaðu tækið og aukabúnaðinn fyrir
fyrstu notkun.
Settu aukabúnaðinn og lausu hillustoðirnar
aftur í upphaflega stöðu sína.
Tíminn stilltur
Eftir fyrstu tengingu við rafmagn loga öll
tákn á skjánum í nokkrar sekúndur. Næstu
nokkrar sekúndur sýnir skjárinn
hugbúnaðarútgáfuna.
Eftir að hugbúnaðarútgáfan hverfur birtir
skjárinn og "12:00". "12" leiftrar.
1. Snúðu hnúðnum fyrir hitastig /
örbylgjuafl til hægri eða vinstri til að
stilla núverandi klukkustund.
2. Ýttu á til að staðfesta að innstillt
klukkstund verði vistuð sjálfkrafa eftir 5
sekúndur.
Skjárinn sýnir og stillta klukkustund.
"00" leiftrar.
3. Snúðu hnúðnum fyrir hitastig /
örbylgjuafl til hægri eða vinstri til að
stilla núverandi mínútur
4. Ýttu á til að staðfesta að innstilltar
mínútur verði vistaðar sjálfkrafa eftir 5
sekúndur.
Skjárinn sýnir nýja tímann.
ÍSLENSKA 10
Tímanum breytt
Þú getur einungis breytt tíma dags, ef ofninn
er í biðstöðu.
Ýttu á aftur og aftur þar til táknið
blikkar á skjánum.
Að stilla nýjan tíma, sjá „Tími stilltur“.
Forhitun
Fyrir fyrstu notkun skaltu forhita
heimilistækið með aðeins vírhillurnar inni.
Fjarlægja verður neðstu glerplötuna fyrir
örbylgjuofn.
1. Stilltu aðgerðina og
hámarkshitastigið. Ekki bæta við
örbylgjuaðgerðinni.
2. Láttu heimilistækið vinna í eina
klukkustund.
Aukahlutir geta orðið heitari en venjulega.
Heimilistækið getur gefið frá sér lykt og
reyk. Þetta er eðlilegt. Gættu þess að
loftflæði í herberginu sé nægjanlegt.
Vélræna barnalæsingin notuð
Ofninn er með uppsetta barnalæsingu og
hún er virk. Hún er undir stjórnborðinu
hægra megin.
Til að opna ofnhurðina með uppsettri
barnalæsingu skal setja handfang
barnalæsingarinnar upp eins og sést á
myndinni.
Lokaðu ofnhurðinni án þess að toga í
barnalæsinguna.
Til að fjarlægja barnalæsinguna skal opna
ofninn og fjarlægja barnalæsinguna með
torx-lyklinum. Torx-lykillinn er í
fylgihlutapoka ofnsins.
Skrúfaðu skrúfuna aftur inn í gatið þegar þú
hefur fjarlægt barnalæsinguna.
Dagleg notkun
AÐVÖRUN! Sjá kafla um
Öryggismál.
Inndraganlegir hnúðar
Til að nota heimilistækið skal ýta á
stjórnhnúðinn. Stjórnhnúðurinn kemur út.
Örbylgjuaðgerðir
Ofnaðgerð Notkun
Slökkt-staða Slökkt er á heimilistækinu.
ÍSLENSKA 11
Ofnaðgerð Notkun
Örbylgja Býr til hita beint í matinn. Notaðu hana til að hita forun-
dirbúnar máltíðir og drykki, til að afþíða kjöt eða ávexti
og til að sjóða grænmeti og fisk.
Örbylgjugrillun Grillun með örbylgju byrjar eins og venjuleg grillað-
gerð. Þegar þú bætir örbylgjuaðgerðinni við sameinast
örbylgjuofninn og grillaðgerðin á mismunandi tímabil-
um og orkustigi (sjá orkustillingartöfluna). Grillaðu með
örbylgju til að halda stökkleika ákveðna matvæla.
Ljós Til að kveikja á ljósinu án eldunaraðgerðar.
Skjár
A B C
DEFG
A. Tími og hitastig
B. Vísir sem sýnir upphitun og afgangshita
C. Örbylgjuaðgerð
D. Kjöthitamælir (aðeins valdar gerðir)
E. Hurðarlæsing (aðeins valdar gerðir)
F. Klukkustundir / mínútur
G. Klukkuaðgerðir
Hnappar
Hnappur Aðgerð Lýsing
MICROWAVE Til að stilla örbylgjuaðgerðina.
CLOCK Til að stilla aðgerðir klukku.
TEMPERATURE Til að athuga ofnhitastigið eða hitastig
kjöthitamælisins (ef við á). Notaðu aðeins
þegar ofnaðgerð er í gangi.
Upphitunarvísir
Þegar þú virkjar ofnaðgerð birtast línurnar
á skjánum
ein af annarri. Línurnar sýna
hvort hitastig ofnsins er að hækka eða
lækka.
ÍSLENSKA 12
Örbylgjuhamur
Örbylgja
Almennt:
VARÚÐ! Láttu heimilistækið ekki
ganga þegar enginn matur er í
því.
Þegar þú hefur slökkt á heimilistækinu
skaltu láta matinn standa í nokkrar
mínútur. Sjá örbylgjueldunartöflurnar:
Kólnunartími.
Fjarlægðu umbúðir úr álfilmu, málmílát,
o.s.frv. áður en þú matreiðir matinn.
Ekki ráðlagt að not meira en eina hæð
þegar örbygjustilling er notuð.
Ef mögulegt er skaltu alltaf hræra í
matnum áður en hann er borinn fram.
Eldun:
Ef mögulegt er skaltu elda mat undir loki
úr efni sem hentar til notkunar í
örbylgjuofninum. Aðeins skaltu elda mat
án loks ef þú vilt halda skorpunni.
Ekki ofelda réttina með því að stilla orku
og tíma of hátt. Maturinn getur þornað
upp, brunnið við, eða staðið í ljósum
logum.
Ekki skal nota heimilistækið til að sjóða
egg í skurninni, eða snigla, því þau geta
sprungið. Með spælegg skal fyrst stinga
á rauðunni.
Gataðu nokkrum sinnum húð eða hýði á
kartöflum, tómötum, pylsum og svipuðum
matvælum með gaffli áður en þú eldar
svo að maturinn springi ekki.
Fyrir kældan eða frosinn mat skal setja
lengri eldunartíma.
Hræra verður af og til í réttum sem
innihalda sósu.
Snúðu stærri stykkjum þegar
eldunartíminn er hálfnaður.
Ef mögulegt er skal skera grænmeti niður
í bita af svipaðri stærð.
Notaðu flata, breiða diska.
Notaðu ekki eldunaráhöld úr postulíni,
keramík eða leir með gljáalausum
botnum eða litlum götum, t.d. á
handföngum. Raki sem fer inn í götin
getur valdið því að eldunaráhöldin
springi þegar þau eru hituð.
Að afþíða kjöt, alifuglakjöt, fisk:
Settu frosinn, óinnpakkaðan mat á lítinn
disk á hvolfi, með ílát fyrir neðan, eða á
afþíðingargrind eða plastsigti þannig að
afþíddur vökvi renni burt.
Snúðu matnum þegar afþíðingartíminn er
hálfnaður. Ef mögulegt er skaltu skipta
upp og síðan fjarlægja þau stykki sem
byrjuð eru að þiðna.
Að afþíða smjör, tertuhluta, kvarg:
Ekki skal afþíða til fulls í heimilistækinu
heldur láta það þiðna fullkomlega við
stofuhita. Það gefur jafnari árangur.
Fjarlægðu allar málm- eða álumbúðir
eða hluti fyrir afþíðingu.
Að afþíða ávexti, grænmeti:
Ef ávextir eða grænmeti eiga að haldast
hráir, skaltu ekki afþíða þá til fulls í
heimilistækinu heldur láta þá þiðna
fullkomlega við stofuhita.
Þú getur notað meiri örbylgjuorku til að
elda ávexti og grænmeti án þess að
afþíða þá fyrst.
Tilbúnar máltíðir:
Tilbúnar máltíðir í málmumbúðum eða
plastbökkum með málmloki er aðeins
hægt að afþíða eða hita í
örbylgjuofninum ef þær eru sérstaklega
merktar sem hentugar til notkunar í
örbylgjunni.
Þú verður að fylgja leiðbeiningum
framleiðandans sem prentaðar eru á
umbúðirnar (t.d. fjarlægja málmlokið og
stinga gat á plastfilmuna).
ÍSLENSKA
13
Hentug eldunaráhöld og efni
Eldunaráhöld / efni Örbylgja Grillun
Afþíðing Hitun Eldun
Eldfast gler og postulín án málmí-
hluta, t.d. Pyrex, hitaþolið gler
Ekki eldfast gler og postulín
1)
X X X
Grillhilla, gler og glerkeramík gert úr
eldföstu / frostþolnu efni, t.d. Arco-
flam
Keramík
2)
, leiráhöld
2)
X
Hitaþolið plast allt að 200°C
3)
X
Pappi, pappír X X X
Matarfilma X X X
Steikarfilma með örbylgjuöruggri lok-
un
3)
X
Steikardiskar gerðir úr málmi, t.d.
glerungshúðaðir, steypujárn
X X X
Bökunarform, svartlökkuð eða sílikon-
húðuð
3)
X X X
Vírhilla X X X
Neðsta glerplata örbylgjuofns X
Eldunaráhöld til brúnunar, t.d. skúffa
til að baka flögur eða plata til að
þurrka hnetur og kjarna
X X
Tilbúnar máltíðir í umbúðum
3)
1)
Án silfur-, gull-, platínu- eða málmhúðunar / skreytinga.
2)
Án kvars- eða málmíhluta, eða gljáa sem inniheldur málma
3)
Þú verður að fylgja leiðbeiningum framleiðandans um hámarkshitastig.
ÍSLENSKA 14
Ábendingar fyrir örbylgjuna
Árangur Úrlausn
Þú getur ekki fundið upplýsingar um
magn þess matar sem matreiddur er.
Finndu upplýsingar um svipuð matvæli. Auktu eða
styttu lengd eldunartíma í samræmi við eftirfar-
andi reglu: Tvöfalt magn - næstum tvöfaldur tími,
hálft magn - hálfur tími.
Maturinn er of þurr eftir eldun. Settu styttri eldunartíma eða veldu minni örbyl-
gjuorku og lokaðu með efni sem hentar til notkun-
ar í örbylgjuofninum.
Maturinn er enn ekki afþíddur, heitur
eða eldaður eftir lok eldunartíma.
Stilltu lengri eldunartíma eða veldu meiri örbyl-
gjuorku. Athugaðu að hærri réttir þurfa almennt
lengri eldunartíma. Hrærðu í eða snúðu mat á
meðan eldun stendur.
Eftir að eldunartíminn er liðinn er mat-
urinn ofhitaður á jaðrinum en samt
ekki tilbúinn í miðjunni.
Næst skaltu velja minni orku og lengri tíma.
Hrærðu í vökvum, eins og súpu, þegar tíminn er
hálfnaður.
Aðrir hlutir til umhugsunar...
Matvæli hafa mismunandi lögum og
eiginleika. Þau eru matreidd í
mismunandi magni. Vegna þessa getur
nauðsynlegur tími og orka fyrir
afþíðingu, hitun eða eldun verið
breytilegur. Gróflega áætlað: Tvöfalt
magn - næstum tvöfaldur tími.
Örbylgjan býr til hita beint í matinn.
Vegna þessa er ekki hægt að hita alla
staði á sama tíma. Þú verður að hræra
eða snúa hituðum réttum, sérstaklega
þegar um mikið magn matar er að ræða.
Kólnunartíminn er gefinn í töflunum.
Láttu matinn standa, í heimilistækinu eða
utan þess, þannig að hitinn dreifist
jafnar.
Stilltu aflstigið í samræmi við magn
matar. Ef hátt aflstig er notað með litlu
magni matar getur hann brunnið eða
myndað neista þegar þú notar
fylgihlutina.
Þú nærð betri árangri með hrísgrjón ef
þú notar flata, breiða diska.
Örbylgjuaðgerðin stillt
Það fer eftir gerðinni hvort
heimilistækið þitt er með
hnappatákn, vísa eða ljós:
Vísirinn kviknar þegar ofninn
hitnar.
Ljósið kviknar þegar
heimilistækið vinnur.
Táknið sýnir hvort hnappurinn
stjórnar einni hellunni,
ofnaðgerðunum eða
hitastiginu.
1. Snúðu hnúðnum fyrir ofnaðgerðir til að
velja örbylgjuaðgerðina .
Skjárinn sýnir sjálfgefið afl örbylgju og síðan
sjálfgefið gildi aðgerðarinnar Tímalengd.
Heimilistækið byrjar að vinna sjálfvirkt eftir
nokkrar sekúndur án samspils við notanda.
2. Til að breyta stillingum örbylgjuaflsins
skaltu snúa hnúðnum fyrir hitastig /
örbylgjuafl. Aflstillingin breytist í 100
vatta skrefum.
ÍSLENSKA 15
3. Ýttu á og snúðu síðan hnúðnum fyrir
hitastig / örbylgjuafl til hægri eða vinstri
til að breyta stillingum Tímalengdar.
Heimilistækið byrjar sjálfkrafa að vinna eftir
nokkrar sekúndur eða þegar þú ýtir á
.Þegar innstilltum tíma er lokið hljómar
hljóðmerki og örbylgjuaðgerðin slekkur
sjálfkrafa á sér.
4. Snúðu hnúðnum fyrir ofnstillingar í
stöðuna slökkt.
Þegar örbylgjuaðgerðin er í gangi getur þú:
breytt aflstillingunum.
athugaðu aflstillingarnar. Ýttu á
.
Þegar þú opnar ofnhurðina
stöðvast aðgerðin. Til að hefja
hana aftur skaltu ýta á .
Örbylgjugrillunin stillt
1. Snúðu aðgerðarhnúðnum til að velja
ofnaðgerðina .
Skjárinn sýnir sjálfgefið hitastig.
2. Breyttu hitastiginu.
3. Ýttu á . Sjáðu „Örbylgjuaðgerðin
stillt“ og byrjaðu frá skrefi 2.
Vinsamlegast athugaðu að
örbylgjuaðgerðin hefst um leið og
innstilltu hitastigi er náð.
Þegar þú notar
örbylgjuaðgerðina með
aðgerðinni Tímalengd í meira en
7 mínútur og í blandaðri stillingu
getur örbylgjuorkan ekki verið
meiri en 600 W.
Um 5 gráðum áður en innstilltu hitastigi er
náð hljómar hljóðmerki. Þegar innstilltum
tíma er lokið hljómar hljóðmerki aftur og
ofnaðgerðin og örbylgjuaðgerðin slökkva
sjálfkrafa á sér.
4. Snúðu aðgerðarhnúðnum í stöðuna
slökkt.
Dæmi um notkun orkustillinganna við
eldamennsku
Gögnin í töflunni eru aðeins til viðmiðunar.
Orkustilling Notkun
1000 vött
900 vött
800 vött
700 vött
Hitun vökva
Snöggbrenna við upphaf eldunarferlisins
Elda grænmeti
Bræða matarlím og smjör
600 vött
500 vött
Afþíða og hita frosnar máltíðir
Hita máltíðir á einum diski
Láta kássur malla
Elda eggjarétti
400 vött
300 vött
200 vött
Halda áfram að elda máltíðir
Elda viðkvæm matvæli
Hita barnamat
Láta hrísgrjón malla
Hita viðkvæm matvæli
Bræða ost
ÍSLENSKA 16
Orkustilling Notkun
100 vött
Afþíða kjöt, fisk, brauð
Afþíða ost, rjóma, smjör
Afþíða ávexti og tertur (gateaux)
Láta gerdeig hefast
Hita upp kalda rétti og drykki
Tímastillingar
Tafla yfir klukkuaðgerðir
Klukkuaðgerð Notkun
TÍMI DAGS Til að stilla, breyta eða athuga tíma dags. Sjá „Tíminn
stilltur“.
MÍNÚTUTELJARI Notaður til að stilla niðurtalningartíma (að hámarki 23
klst., 59 mín.). Þessi aðgerð hefur engin áhrif á starfsemi
heimilistækisins. Þú getur stillt MÍNÚTUTELJARANN
hvenær sem er, jafnvel þótt slökkt sé á tækinu.
TÍMALENGD Til að stilla hve lengi tækið vinnur. Notaðu aðeins þegar
ofnaðgerð er stillt.
ENDIR Til að stilla hvenær tækið verður að slökkva á sér. Not-
aðu aðeins þegar ofnaðgerð er stillt. Þú getur notað Tí-
malengd og Endir á sama tíma (tímaseinkun) ef virkja á
heimilistækið og afvirkja sjálfvirkt seinna.
Ýttu á aftur og aftur til að
skipta á milli klukkuaðgerða.
Til að staðfesta stillingar
klukkuaðgerða skaltu ýta á
eða bíða í 5 sekúndur eftir
sjálfvirkri staðfestingu.
Stilling á TÍMALENGD og ENDI á meðan
eldunaraðgerð er í gangi.
1. Ýttu á aftur og aftur þar til skjárinn
sýnir eða .
eða leiftrar á skjánum.
2. Snúðu hnúðnum fyrir hitastig / afl
örbylgju til hægri eða vinstri til að stilla
gildin og ýttu á til að staðfesta.
Fyrir Tímalengd stillir þú fyrst
mínúturnar og síðan klukkustundirnar, fyrir
Endi stillir þú fyrst klukkustundirnar og
síðan mínúturnar.
Hljóðmerki hljómar í 2 mínútur eftir að
tímanum lýkur. Táknið
eða og
tímastillingin leiftra á skjánum. Ofninn
stöðvast.
3. Ýttu á einhvern hnapp eða opnaðu
ofnhurðina til að stöðva hljóðmerkið.
ÍSLENSKA 17
Ef þú ýtir á þegar þú stillir
klukkustundirnar fyrir
TÍMALENGD fer
heimilistækið í stillingar fyrir
aðgerðina ENDIR .
Að stilla MÍNÚTUTELJARANN
1. Ýttu á aftur og aftur þangað til og
"00" leiftra á skjánum.
2. Snúðu hnúðnum fyrir hitastig /
örbylgjuafl til hægri eða vinstri til að
stilla MÍNÚTUTELJARANN.
Fyrst stillir þú sekúndurnar, síðan
mínúturnar og þar næst
klukkustundirnar.
Fyrst er tíminn reiknaður út í mínútum og
sekúndum. Þegar þú stillir á lengri tíma
en 60 mínútur birtist táknið
á
skjánum.
Tækið reiknar nú út tímann í klukkustudnum
og mínútum.
3. MÍNÚTUTELJARINN ræsist sjálfkrafa
eftir fimm sekúndur.
Eftir 90% af innstillta tímanum heyrist
hljóðmerki.
4. Þegar innstilltum tíma lýkur heyrist
hljóðmerkið í tvær mínútur. "00:00" og
leiftra á skjánum. Ýttu á einhvern
hnapp til að stöðva hljóðmerkið.
Ef þú stillir MÍNÚTUTELJARANN
á meðan aðgerðirnar
TÍMALENGD eða ENDIR
eru í gangi, birtist táknið á
skjánum.
Upptalning
Notaðu upptalninguna til að fylgjast með
hversu lengi ofninn hefur verið starfandi.
Ýttu á
aftur og aftur þar til skjárinn birtir
tímann án tákna klukkunnar.
Þú getur ekki notað upptalningu
þegar aðgerðirnar Lengd
eða Endir eru í gangi.
Að nota fylgihluti
AÐVÖRUN! Sjá kafla um
Öryggismál.
Aukabúnaðurinn settur í
Vírhilla:
Ýttu hillunni milli stýristanganna á
hillustoðinni og gakktu úr skugga um að
fóturinn snúi niður.
ÍSLENSKA 18
Allur aukabúnaður hefur lítil
skörð efst til hægri og vinstri til að
auka öryggi. Skörðin eru einnig
búnaður til varnar því að
aukabúnaður hvolfist.
Háa brúnin umhverfis hilluna er
búnaður sem kemur í veg fyrir að
eldunaráhöld renni til.
Neðsta glerplata:
VARÚÐ! Notaðu glerplötuna á
botni örbylgjuofnsins aðeins með
örbylgjuaðgerð. Fjarlægðu
aukabúnaðinn þegar þú skiptir
yfir í aðra aðgerð, t.d.
örbylgjugrillun eða grillun.
Settu aukabúnaðinn á botn ofnrýmisins.
Settu matinn á neðstu glerplötuna í
örbylgjuofninum.
Notaðu alltaf neðstu glerplötu
örbylgjuofnsins þegar örbylgjuaðgerðin er í
gangi. Það er nauðsynlegt til að hita mat
eða vökva.
AÐVÖRUN! Glerplatan getur
hitnað þegar heimilistækið er í
gangi.
Viðbótarstillingar
Barnalæsingin notuð
Þegar barnalæsingin er á er ekki hægt að
setja heimilistækið óviljandi í gang.
1. Tryggðu að hnúðurinn fyrir ofnstillingar
sé í stöðunni slökkt.
2. Ýttu á og snúðu um leið hnúðnum
fyrir hitastig/örbylgjuafl til hægri.
Hljóðmerki hljómar. SAFE birtist á skjánum.
Til að slökkva á barnalæsingunni skal
endurtaka skref 2.
Sjálfslokknun
Af öryggisástæðum er heimilistækið
afvirkjað sjálfvirkt eftir dálítinn tíma ef
ofnaðgerð er í gangi og þú breytir ekki
neinum stillingum.
Hitastig (°C) Slokknunartími (klst)
30 - 115 12,5
120 - 195 8,5
200 - 230 5,5
Eftir sjálfslokknun skal slökkva til fulls á
heimilistækinu. Síðan getur þú kveikt á því
aftur.
Slökkt sjálfvirkt virkar ekki með
aðgerðunum Tímalengd, Endir.
Vísir sem sýnir afgangshita á hellu
Þegar þú afvirkjar heimilistækið sýnir
skjárinn afgangshitavísinn ef hitinn í
ofninum er meiri en 40°C. Snúðu hnúðnum
fyrir hitastig til vinstri eða hægri til að sýna
hitastigið í ofninum.
Kælivifta
Þegar tækið gengur kviknar sjálfvirkt á
kæliviftunni til að halda flötum tækisins
svölum. Ef þú slekkur á tækinu, heldur
kæliviftan áfram að starfa þangað til
hitastig heimilistækisins hefur lækkað.
Öryggishitastillir
Röng notkun tækisins eða bilun í íhlutum
getur orsakað hættulega ofhitnun. Til að
ÍSLENSKA 19
koma í veg fyrir þetta, hefur ofninn
öryggishitastilli sem rýfur
rafmagnstenginguna. Ofninn kveikir
sjálfkrafa á sér aftur þegar hitastigið
lækkar.
Góð ráð
Almennar upplýsingar
Heimilistækið hefur fjórar hillustöður.
Teldu hillustöðurnar að neðan frá botni
tækisins.
Raki getur þéttst í heimilistækinu eða á
glerplötum hurðarinnar. Þetta er eðlilegt.
Haltu þig alltaf frá heimilistækinu þegar
þú opnar hurð þess á meðan þú ert að
elda. Ef þú tekur eftir raka inni í ofninum
skaltu halda hurðinni opinni í nokkrar
mínútur.
Hreinsaðu rakann eftir hverja notkun
heimilistækisins.
Ekki setja hlutina beint á botn
heimilistækisins og ekki hylja einingarnar
með álpappír þegar þú eldar (þegar þú
notar ofnaðgerð sem ekki er með
örbylgju). Það getur breytt árangrinum af
bakstrinum og skemmt glerungshúðina.
Eldun á kjöti og fiski
Notaðu djúpa pönnu fyrir mjög feitan
mat til að koma í veg fyrir að blettir sem
geta verið varanlegir komi í ofninn.
Láttu kjötið standa í um það bil 15
mínútur áður en þú skerð það svo að
vökvinn seytli ekki út.
Til að koma í veg fyrir of mikinn reyk í
ofninum á meðan verið er að steikja skal
bæta svolitlu vatni í ofnskúffuna. Til að
koma í veg fyrir þéttingu reyks skal bæta
við vatni í hvert sinn sem það gufar upp.
Eldunartímar
Eldunartímar fara eftir tegund matvæla,
þéttni þeirra og magni.
Í byrjun skaltu fylgjast með frammistöðunni
þegar þú eldar. Finndu bestu stillingarnar
(hitastillingu, eldunartíma, o.s.frv.) fyrir
eldunaráhöldin þín, uppskriftir og skammta
þegar þú notar þetta tæki.
Grillun
Matvæli Hitastig (°C) Tími (mín) Hillustaða
Fyrri hlið Seinni hlið
Nautalund, miðlungssteikt 230 20 - 30 20 - 30 1
Nautasteik (miðlungsst-
eikt), svínahryggur eða
kálfahryggur
210 - 230 30 - 40 30 - 40 1
Lambahryggur 210 - 230 25 - 35 20 - 35 1
Heill fiskur, 500 - 1000 g 210 - 230 15 - 30 15 - 30 1
ÍSLENSKA 20
1 / 1

IKEA OV24 Používateľská príručka

Kategória
Mixér / kuchynský robot príslušenstvo
Typ
Používateľská príručka

V iných jazykoch