IKEA KULINAOVPX Používateľská príručka

Kategória
Mixér / kuchynský robot príslušenstvo
Typ
Používateľská príručka
KULINARISK
IS
ÍSLENSKA
Á öftustu síðu þessarar handbók er skrá yfir alla veitendur
eftirsöluþjónustu sem útnefndir hafa verið af IKEA og viðeigandi
símanúmer í hverju landi.
ÍSLENSKA
4
Efnisyfirlit
Öryggisupplýsingar 4
Öryggisleiðbeiningar 6
Innsetning 8
Vörulýsing 9
Stjórnborð 10
Fyrir fyrstu notkun 12
Dagleg notkun 13
Tímastillingar 17
Sjálfvirk ferli 18
Að nota fylgihluti 18
Viðbótarstillingar 20
Góð ráð 22
Umhirða og þrif 27
Bilanaleit 30
Tæknigögn 32
Orkunýtni 32
Umhverfismál 33
IKEA-ÁBYRGÐ 34
Með fyrirvara á breytingum.
Öryggisupplýsingar
Fyrir uppsetningu og notkun heimilistækisins skal lesa
meðfylgjandi leiðbeiningar vandlega. Framleiðandinn er ekki
ábyrgur fyrir tjóni ef röng uppsetning eða notkun veldur
meiðslum og skemmdum. Alltaf skal geyma leiðbeiningarnar
með tækinu til síðari notkunar.
Öryggi barna og viðkvæmra einstaklinga
Börn, 8 ára og eldri og fólk með minnkaða líkamlega-, skyn-
eða andlega getu, eða sem skortir reynslu og þekkingu,
mega nota þetta tæki, ef þau eru undir eftirliti eða hafa verið
veittar leiðbeiningar varðandi örugga notkun tækisins og ef
þau skilja hættuna sem því fylgir.
Halda skal börnum á milli 3 og 8 ára gömlum og fólki með
mjög miklar og flóknar fatlanir frá, nema þau séu undir
stöðugu eftirliti.
Halda skal börnum yngri en 3 ára frá tækinu nema þau séu
undir stöðugu eftirliti.
Láttu börn ekki leika sér með heimilistækið.
Haltu öllum umbúðum frá börnum og fargaðu þeim á
viðeigandi hátt.
ÍSLENSKA
4
Haltu börnum og gæludýrum fjarri heimilistækinu þegar það
er í gangi eða þegar það kólnar. Aðgengilegir hlutar eru
heitir.
Ef heimilistækið er með barnalæsingu ætti hún að vera
virkjuð.
Börn eiga ekki að hreinsa eða framkvæma notandaviðhald á
heimilistækinu án eftirlits.
Almennt öryggi
Einungis til þess hæfur aðili má setja upp þetta heimilistæki
og skipta um snúruna.
VIÐVÖRUN: Heimilistækið og aðgengilegir hlutar þess hitna
við notkun. Auðsýna ætti aðgát til að forðast að snerta
hitaelementin.
Notaðu alltaf ofnhanska til að fjarlægja eða setja inn
fylgihluti eða ofnáhöld.
Áður en viðhald hefst skal aftengja tækið frá rafmagni.
Tryggðu að slökkt sé á heimilistækinu áður en þú skiptir um
ljósið til að forðast möguleika á raflosti.
Notaðu ekki gufuhreinsibúnað til að hreinsa heimilistækið.
Notaðu ekki sterk tærandi hreinsiefni eða beittar málmsköfur
til að hreinsa glerhurðina þar sem slíkt getur rispað
yfirborðið, sem getur aftur leitt til þess að glerið brotnar.
Ef rafmagnssnúra er skemmd verður framleiðandi, viðurkennd
þjónustumiðstöð, eða svipað hæfur aðili að endurnýja hana
til að forðast hættu vegna rafmagns.
Allt sem lekið hefur niður verður að fjarlægja fyrir hreinsun
með eldglæðingu. Fjarlægðu alla hluti úr ofninum.
Til að fjarlægja hilluberana skaltu fyrst toga í framhlið
hilluberanna og síðan toga bakendann burt frá
hliðarveggjunum. Settu hilluberana upp í öfugri röð.
Notaðu aðeins þann matarmæli (kjöthitamæli) sem ráðlagður
er fyrir þetta heimilistæki.
ÍSLENSKA
5
Öryggisleiðbeiningar
Uppsetning
AÐVÖRUN! Einungis löggildur
aðili má setja upp þetta
heimilistæki.
Fjarlægðu allar umbúðir.
Ekki skal setja upp eða nota skemmt
heimilistæki.
Fylgdu leiðbeiningum um uppsetningu
sem fylgja með heimilistækinu.
Alltaf skal sýna aðgát þegar
heimilistækið er fært vegna þess að það
er þungt. Notaðu alltaf öryggishanska og
lokaðan skóbúnað.
Dragðu heimilistækið ekki á
handfanginu.
Haltu lágmarksfjarlægð frá öðrum
heimilistækjum og einingum.
Settu heimilistækið upp á öruggum og
hentugum stað sem uppfyllir
uppsetningarkröfur.
Tenging við rafmagn
AÐVÖRUN! Hætta á eldi og
raflosti.
Allar rafmagnstengingar skulu
framkvæmdar af viðurkenndum rafvirkja.
Heimilistækið verður að vera jarðtengt.
Gakktu úr skugga um að færibreyturnar
á merkiplötunni séu samhæfar við
rafmagnsflokkun aðalæðar aflgjafa.
Notaðu alltaf rétt ísetta innstungu sem
ekki veldur raflosti.
Notaðu ekki fjöltengi eða
framlengingarsnúrur.
Gakktu úr skugga um að rafmagnsklóin
og snúran verði ekki fyrir skemmdum. Ef
skipta þarf um rafmagnssnúru verður
viðurkennd þjónustumiðstöð okkar að sjá
um það.
Ekki láta rafmagnssnúrurnar komast í
snertingu við hurð tækisins, einkum þegar
hurðin er heit.
Vörn lifandi og einangraðra hluta gegn
raflosti verður að vera fest þannig að
ekki sé hægt að fjarlægja hana án
verkfæra.
Aðeins skal tengja rafmagnsklóna við
rafmagnsinnstunguna í lok
uppsetningarinnar. Gakktu úr skugga um
að rafmagnsklóin sé aðgengileg eftir
uppsetningu.
Ef rafmagnsinnstungan er laus, skal ekki
tengja rafmagnsklóna.
Ekki toga í snúruna til að taka tækið úr
sambandi. Taktu alltaf um klóna.
Notaðu aðeins réttan
einangrunarbúnað:
Línuvarnarstraumloka, öryggi (öryggi
með skrúfgangi fjarlægð úr höldunni),
lekaliða og spólurofa.
Rafmagnsuppsetningin verður að vera
með einangrunarbúnað sem leyfir þér að
aftengja tækið frá stofnæð á öllum
pólum. Einangrunarbúnaðurinn verður
að hafa að lágmarki 3 mm
snertiopnunarvídd.
Lokaðu alveg hurð heimilistækisins áður
en þú tengir rafmagnsklóna við
innstunguna.
Þetta heimilistæki samræmist tilskipunum
EBE.
Notkun
AÐVÖRUN! Hætta á meiðslum,
bruna og raflosti eða sprengingu.
Þetta heimilistæki er eingöngu ætlað til
heimilisnota.
Breyttu ekki tæknilýsingu fyrir þetta
heimilistæki.
Gættu þess að loftræstiop séu ekki
stífluð.
Láttu heimilistækið ekki vera án eftirlits á
meðan það er í gangi.
Slökktu á heimilistækinu eftir hverja
notkun.
ÍSLENSKA
6
Farðu varlega þegar þú opnar hurð
heimilistækisins á meðan það er í gangi.
Heitt loft getur losnað út.
Notaðu ekki heimilistækið með blautar
hendur eða þegar það er í snertingu við
vatn.
Beittu ekki þrýstingi á opna hurð.
Notaðu ekki heimilistækið sem
vinnusvæði eða geymslusvæði.
Opnaðu hurð heimilistækisins varlega.
Notkun hráefna með alkóhóli getur
valdið blöndu alkóhóls og lofts.
Láttu ekki neista eða opinn eld komast í
snertingu við heimilistækið þegar þú
opnar hurðina.
Settu ekki eldfim efni eða hluti sem eru
blautir af eldfimum efnum í, nálægt eða
á heimilistækið.
AÐVÖRUN! Hætta á skemmdum
á heimilistækinu.
Til að koma í veg fyrir skemmdir eða
aflitun á glerungnum:
Settu ekki ofnáhöld eða aðra hluti í
heimilistækið beint á botninn.
Settu ekki álpappír beint í botninn á
rýminu í heimilistækinu.
Settu ekki vatn beint inn í heitt
heimilistækið.
Láttu ekki raka rétti og rök matvæli
vera inni í heimilistækinu eftir að
matreiðslu er lokið.
Farðu varlega þegar þú fjarlægir
aukahluti eða setur þá upp.
Aflitun á glerungnum eða ryðfríu stáli
hefur engin áhrif á getu eða frammistöðu
heimilistækisins.
Notaðu djúpa skúffu fyrir rakar kökur.
Ávaxtasafi veldur blettum sem geta verið
varanlegir.
Þetta heimilistæki er eingöngu til að
matreiða með. Ekk má nota það í öðrum
tilgangi, til dæmis að hita herbergi.
Alltaf skal elda með ofnhurðina lokaða.
Ef heimilistækið er sett upp á bak við
húsgagnaþil (t.d hurð) skaltu gæta þess
að hurðin sé aldrei lokuð þegar
heimilistækið er í notkun. Hiti og raki
geta byggst upp á bak við lokað
húsgagnaþil og valdið síðar skemmdum
á heimilistækinu, húseiningunni eða
gólfinu. Lokaðu ekki húsgagnaþilinu fyrr
en heimilistækið hefur kólnað til fulls eftir
notkun.
Umhirða og hreinsun
AÐVÖRUN! Hætta á meiðslum,
eldsvoða eða skemmum á
heimilistækinu.
Áður en viðhald fer fram skal slökkva á
heimilistækinu og aftengja
rafmagnsklóna frá
rafmagnsinnstungunni.
Gættu þess að heimilistækið sé kalt.
Hætta er á að glerplöturnar brotni.
Endurnýjaðu glerplöturnar í ofnhurðinni
strax þegar þær skemmast. Hafðu
samband við viðurkennda
þjónustumiðstöð.
Vertu varkár þegar þú tekur hurðina af
heimilistækinu. Hurðin er þung!
Hreinsaðu heimilistækið reglulega til að
yfirborðsefnin á því endist betur.
Fitu- og matarleifar sem eftir eru í
heimilistækinu geta valdið eldsvoða.
Ef þú notar ofnhreinsi skaltu hlýða
öryggisleiðbeiningunum á umbúðunum.
Hreinsun með eldglæðingu
Hætta á eldsvoða og bruna.
Áður en þú framkvæmir sjálfhreinsandi
eldglæðingaraðgerð, eða notar
aðgerðina Fyrsta notkun, skaltu fjarlægja
eftirfarandi úr ofninum:
Allar matarleifar, olíu eða fituleifar /
skánir og bletti.
Alla hluti sem hægt er að fjarlægja
(þ.m.t. hillur, hliðarrennur o.s.frv. sem
fylgja með vörunni), einkum alla
potta, pönnur, plötur, áhöld o.s.frv.
Lestu vandlega allar leiðbeiningar um
hreinsun með eldglæðingu.
ÍSLENSKA
7
Haltu börnum fjarri ofninum á meðan
verið er að hreinsa ofninn með
eldglæðingu.
Ofninn verður mjög heitur og heitt loft
kemur út um kælingartúður að framan.
Hreinsun með eldglæðingu er aðgerð
sem er framkvæmd við háan hita sem
getur losað reyk frá matarleifum og
byggingarefnum, og þessvegna er
neytendum sterklega ráðlagt að:
Tryggja góða loftræstingu við og eftir
hverja hreinsun með eldglæðingu.
Tryggja góða loftræstingu við og eftir
fyrstu notkun á aðgerð við hæsta
hitastig.
Ólíkt mönnum, geta sumir fuglar og
skriðdýr verið afar viðkvæm gagnvart
mögulegum reyk sem myndast við
hreinsun með eldglæðingu í ofnum.
Fjarlægðu öll gæludýr (einkum fugla)
úr nágrenni ofnsins á meðan
hreinsun með eldglæðingu stendur
og á eftir og notaðu aðgerð við
hæsta hitastig einungis við góða
loftræstingu.
Lítil gæludýr geta einnig verið mjög
viðkvæm gagnvart staðbundnum
hitastigsbreytingum í nágrenni
eldglæðingar-ofna þegar sjálfhreinsun
með eldglæðingu er í gangi.
Teflonhúð á pottum, pönnum, plötum,
áhöldum o.s.frv. getur skaddast við
hreinsun með eldglæðingu við mikinn
hita í eldglæðingar-ofninum, og getur
einnig myndað reyk sem er að einhverju
leyti skaðlegur.
Reykur sem losnar frá öllum
eldglæðingar-ofnum / matarleifum er
ekki skaðlegur mönnum, þar með talið
ungabörnum eða sjúklingum.
Innri lýsing
AÐVÖRUN! Hætta á raflosti.
Sú tegund ljósaperu eða halógenlampa
sem notuð er fyrir þetta tæki er aðeins
ætluð heimilistækjum. Ekki nota það sem
heimilisljós.
Áður en ljósið er endurnýjað skal
aftengja heimilistækið frá
rafmagnsinntakinu.
Einungis skal nota ljós með sömu
tæknilýsingu.
Þjónusta
Hafðu samband við viðurkennda
þjónustumiðstöð til að gera við
heimilistækið.
Notaðu eingöngu upprunalega varahluti.
Förgun
AÐVÖRUN! Hætta á meiðslum
eða köfnun.
Aftengdu tækið frá rafmagni.
Klipptu rafmagnssnúruna af upp við
heimilistækið og fargaðu henni.
Fjarlægðu hurðina til að koma í veg fyrir
að börn eða dýr geti lokast inni í tækinu.
Umbúðaefni:
Umbúðaefnið er endurvinnanlegt.
Plasthlutar eru merktir með alþjóðlegum
skammstöfunum t.d. PE PS o.s.frv.
Fargaðu umbúðaefninu í til þess ætluðum
gámum á sorpförgunarstöðinni á
staðnum.
Innsetning
AÐVÖRUN! Sjá kafla um
Öryggismál.
ÍSLENSKA 8
Samsetning
Farðu eftir
samsetningarleiðbeiningunum
við uppsetningu.
Rafmagnsuppsetning
AÐVÖRUN! Aðeins viðurkenndur
einstaklingur má sjá um
raflagnavinnuna.
Framleiðandinn er ekki ábyrgur
ef þú fylgir ekki
öryggisvarúðarráðstöfununum í
öryggisköflunum.
Þessi ofn er aðeins afhentur með
rafmagnssnúru.
Kapall
Kapaltegundir sem viðeigandi eru fyrir
uppsetningu eða endurnýjun:
H07 RN-F, H05 RN-F, H05 RRF, H05 VV-F,
H05 V2V2-F (T90), H05 BB-F
Fyrir þversnið kapalsins vísast til heildarafls
á merkiplötunni. Þú getur einnig vísað til
töflunnar:
Heildarafl (W) Þversnið kapals
(mm²)
að hámarki 1380 3 x 0.75
að hámarki 2300 3 x 1
að hámarki 3680 3 x 1.5
Jarðstrengurinn (grænn / gulur kapall)
verður að vera 2 cm lengri en fasinn og
núllkapallinn (bláir og brúnir kaplar).
Vörulýsing
Almennt yfirlit
8
9
6
7
5
4
1
2
3
21
5
4
3
1
Stjórnborð
2
Rafrænn forritari
3
Innstunga fyrir kjöthitamælinn
4
Grill
5
Ljós
6
Vifta
7
Hilluberi, laus
8
Merkiplata
9
Hillustöður
Fylgihlutir
Vírhilla x 2
Fyrir eldunaráhöld, kökuform, steikur.
Bökunarplata x 1
Fyrir kökur og smákökur.
ÍSLENSKA 9
Grill- / steikingarskúffa x 1
Til að baka og steikja eða sem panna til
að safna feiti.
Kjöthitamælir x 1
Til að mæla hversu vel eldaður maturinn
er.
Útdraganlegar rennur x 2 sett
Fyrir hillur og plötur.
Stjórnborð
Rafrænn forritari
1 112 4 63 9 105 7 8
Tákn Aðgerð Athugasemd
1
KVEIKJA/SLÖK-
KVA
Til að kveikja og slökkva á ofninum
2
Hitunaraðgerðir
eða Eldað með
aðstoð
Ýttu einu sinni til að fara í valmyndina Hitunarað-
gerðir. Ýttu aftur til að skipta í Eldað með aðstoð.
Til að kveikja eða slökkva á ljósinu skaltu ýta á í
3 sekúndur.
3
Til baka-takki Til að fara eitt stig til baka í valmyndinni. Til að
sýna aðalvalmyndina skal ýta á táknið í 3 sekúnd-
ur.
4
Val á hitastigi Til að stilla hitastigið eða til að sýna núverandi
hitastig í ofninum. Ýttu á táknið í 3 sekúndur til að
kveikja eða slökkva á aðgerðinni Hröð upphitun.
5
Uppáhalds Til að vista og fá aðgang að uppáhalds kerfunum
þínum.
6
- Skjár Sýnir núverandi stillingar ofnsins.
7
Upp-takki Til að fara upp í valmyndinni.
ÍSLENSKA 10
Tákn Aðgerð Athugasemd
8
Niður-takki Til að fara niður í valmyndinni.
9
Tími og viðbótar-
aðgerðir
Að stilla mismunandi aðgerðir. Þegar hitunarað-
gerð er í gangi, skal ýta á táknð til að stilla tímast-
illinn eða aðgerðirnar Læsing aðgerða, Uppá-
halds, Hita + Halda og Stilla + af stað. Þú getur
einnig breytt stillingum kjöthitamælisins.
10
Mínútuteljari Til að stilla aðgerðina Mínútuteljari.
11
Í lagi Til að staðfesta valið eða stillinguna.
Skjár
A
DE
B C
A. Hitunaraðgerð
B. Tími dags
C. Upphitunarvísir
D. Hitastig
E. Tímalengd eða lokatími aðgerðar
Aðrir vísar á skjánum:
Tákn Aðgerð
Mínútuteljari Aðgerðin vinnur.
Tími dags Skjárinn sýnir núverandi tíma.
Tímalengd Skjárinn sýnir nauðsynlegan tíma fyrir
eldamennsku.
Lokatími Skjárinn sýnir þegar eldunartíma er
lokið.
Hitastig Skjárinn sýnir hitastigið.
Merki um tíma Skjárinn sýnir hversu lengi hitunarað-
gerðin vinnur. Ýttu á og samtímis
til að endurstilla tímann.
ÍSLENSKA 11
Tákn Aðgerð
Útreikningur Ofninn reiknar út tímann fyrir elda-
mennskuna.
Upphitunarvísir Skjárinn sýnir hitastigið í ofninum.
Hröð upphitun Aðgerðin vinnur. Hún styttir upphitun-
artímann.
Sjálfvirk þyngd Skjárinn sýnir að sjálfvirka þyngdark-
erfið vinnur, eða að hægt sé að breyta
þyngd.
Hita + Halda Aðgerðin vinnur.
Fyrir fyrstu notkun
AÐVÖRUN! Sjá kafla um
Öryggismál.
Fyrsta hreinsun
Fjarlægðu allan aukabúnað og lausar
hillustoðir úr ofninum.
Sjá kaflann „Umhirða og
hreinsun“.
Hreinsaðu ofninn og aukabúnaðinn fyrir
fyrstu notkun.
Settu aukabúnaðinn og lausu hillustoðirnar
aftur í upphaflega stöðu sína.
Fyrsta tenging
Þegar þú tengir ofninn við rafmagn eða eftir
rafmagnsleysi, verður þú að stilla
tungumálið, birtuskil skjásins, birtustig
skjásins og tíma dags.
1. Ýttu á
eða til að stilla gildið.
2. Ýttu á til að staðfesta.
Forhitun
Fyrir fyrstu notkun skaltu forhita ofninn með
aðeins vírhillurnar og bökunarplöturnar inni.
1. Stilltu aðgerðina Conventional Cooking
(Top/Bottom Heat) og
hámarkshitastigið.
2. Láttu ofninn vinna í 1 klukkustund.
3. Stilltu aðgerðina Eldun með
hefðbundnum blæstri
og
hámarkshitastigið.
4. Láttu ofninn vinna í 15 mínútur.
Fylgihlutir geta orðið heitari en venjulega.
Ofninn getur gefið frá sér lykt og reyk
meðan á forhitun stendur. Gættu þess að
loftflæði í herberginu sé nægjanlegt.
Vélræna barnalæsingin notuð
Ofninn er með barnalæsinguna uppsetta.
Hún er hægra megin á ofninum, undir
stjórnborðinu.
Til að opna ofnhurðina með
barnalæsingunni:
1. Togaðu í og haltu
barnalæsingarhandfanginu upp eins og
sýnt er á myndinni.
ÍSLENSKA
12
2. Opnaðu hurðina.
Lokaðu ofnhurðinni án þess að toga í
barnalæsinguna.
Til að fjarlægja barnalæsinguna skal opna
ofninn og fjarlægja barnalæsinguna með
torx-lyklinum. Torx-lykillinn er í
fylgihlutapoka ofnsins.
Skrúfaðu skrúfuna aftur inn í gatið þegar þú
hefur fjarlægt barnalæsinguna.
AÐVÖRUN! Gættu þess að rispa
ekki stjórnborðið.
Dagleg notkun
AÐVÖRUN! Sjá kafla um
Öryggismál.
Að ferðast á milli valmynda
1. Kveiktu á ofninum.
2. Ýttu á eða til að velja valkost úr
valmyndinni.
3. Ýttu á
til að fara í undirvalmyndina
eða samþykkja stillinguna.
Á hverjum stað getur þú farið
aftur í aðalvalmynd með
.
Valmyndirnar í yfirlitinu
Aðalvalmynd
Tákn / Valmynd-
aratriði
Notkun
Hitunaraðgerðir
Inniheldur lista yfir hit-
unaraðgerðir.
Tákn / Valmynd-
aratriði
Notkun
Uppskriftir
Inniheldur lista yfir
sjálfvirk kerfi.
Finna má uppskriftir
fyrir þessi kerfi í upp-
skriftabókinni.
Uppáhalds
Inniheldur lista yfir
uppáhaldseldunarkerfi
sem notandinn hefur
skapað.
Eldglæðing
Hreinsun með eldg-
læðingu.
Grunnstillingar
Notað til að stilla
grunnstillingu heimilis-
tækisins.
Sérstakt
Inniheldur lista yfir við-
bótarhitunaraðgerðir.
ÍSLENSKA 13
Tákn / Valmynd-
aratriði
Notkun
Eldað með að-
stoð
Inniheldur ráðlagðar
ofnstillingar fyrir mikið
úrval rétta. Veldu disk
og byrjaðu eldunar-
ferlið. Hitastig og tímar
eru aðeins viðmiðunar-
reglur til að ná betri
árangri og má aðlaga.
Það fer eftir uppskrift-
unum og gæðum og
magni þess hráefnis
sem notað er.
Undirvalmynd fyrir Grunnstillingar
Tákn / Valmynd-
aratriði
Lýsing
Stilla tíma dags
Stillir núverandi tíma á
klukkunni.
Merki um tíma
Þegar KVEIKT sýnir
skjárinn núverandi
tíma þegar þú slekkur
á heimilistækinu.
Hröð upphitun
Þegar KVEIKT minnkar
aðgerðin upphitunartí-
mann.
Stilla + af stað
Til að stilla aðgerð og
virkja hana seinna
með því að ýta á ein-
hvert táknið á stjórn-
borðinu.
Hita + Halda
Heldur elduðum mat
heitum í 30 mínútur
eftir að eldunarlotu
lýkur.
Tímalenging
Kveikir og slekkur á tí-
malengingaraðgerð-
inni.
Tákn / Valmynd-
aratriði
Lýsing
Birtuskil skjás
Stillir birtuskil skjásins
smátt og smátt.
Birtustig skjás
Stillir birtustig skjásins
smátt og smátt.
Stilla tungumál
Stillir tungumálið fyrir
skjáinn.
Hljóðstyrkur
hljóðgjafa
Stillir hljóðstyrk hljóð-
tóna og hljóðmerkja
smátt og smátt.
Lykiltónar
Kveikir og slekkur á
tóninum fyrir snertiflet-
ina. Ekki er mögulegt
að slökkva á tóninum
fyrir snertiflötinn
KVEIKT / SLÖKKT.
Aðvörunar-/vill-
utónar
Kveikir og slekkur á
viðvörunartónum.
Áminning um
hreinsun
Minnir þig á hvenær
hreinsa á heimilistæk-
ið.
Sýningarstilling
Aðeins til notkunar fyrir
smásöluaðila.
Þjónusta
Sýnir útgáfu hugbú-
naðarins og samskip-
an.
Verksmiðjustill-
ingar
Endursetur allar still-
ingar á verksmiðjustill-
ingar.
ÍSLENSKA 14
Hitunaraðgerðir
Hitunaraðgerð Notkun
Eldun með hefð-
bundnum blæstri
Til að baka á allt að
þremur hillustöðum á
sama tíma og til að
þurrka matvæli.
Stilltu hitastigið 20 -
40°C lægra en fyrir
Hefðbundin mat-
reiðsla.
Conventional
Cooking (Top/
Bottom Heat)
Til að baka eða steikja
mat í einni hillustöðu.
Pítsustilling
Til að paka pítsu. Til að
fá meiri brúnun og
stökkan botn.
Hæg eldun
Til að undirbúa mjúkar,
safaríkar steikur.
Undirhiti
Til að baka kökur með
stökkum botni og til að
sjóða niður matvæli.
Hitunaraðgerð Notkun
Bökun með rök-
um blæstri
Þessi aðgerð er hönn-
uð til að spara orku á
meðan eldað er. Varð-
andi leiðbeiningar um
matreiðslu vísast til
kaflans „Ábendingar
og ráð“, Bökun með
rökum blæstri. Ofn-
hurðin ætti að vera
lokuð meðan á mat-
reiðslu stendur þannig
að aðgerðin verði ekki
fyrir truflun og til að
tryggja að ofninn virki
af mestu mögulegu
orkunýtni. Þegar þú
notar þessa aðgerð
kann hitastigið í rýminu
að vera frábrugðið
innstilltu hitastigi. Af-
gangshitinn er notað-
ur.Hitunarkrafturinn
kann að minnka. Varð-
andi almennar ráð-
leggingar um orku-
sparnað vísas til kafl-
ans „Orkunýtni“, Orku-
sparnaður.Þessi að-
gerð var notuð til að
fylgja orkunýtniflokkn-
um í samræmi við EN
60350-1. Þegar þú
notar þessa aðgerð
slokknar ljósið sjálf-
krafa eftir 30 sekúndur.
Frosin matvæli
Til að gera skyndirétti
(t.d. franskar kartöflur,
kartöflubáta eða vorr-
úllur) stökka.
ÍSLENSKA 15
Hitunaraðgerð Notkun
Grill
Til að grilla flöt mat-
væli og rista brauð.
Hraðgrillun
Til að grilla flöt mat-
væli í miklu magni og
rista brauð.
Blástursgrillun
Til að steikja stærri
kjötstykki eða kjúklinga
með beinum á einni
hillustöðu. Til að gera
gratín-rétti og til að
brúna.
Sérstakt
Hitunaraðgerð Notkun
Brauðbakstur
Til að baka brauð.
Gratíneraður
matur
Fyrir rétti eins og las-
agna eða kartöflugrat-
ín. Til að gera gratín-
rétti og til að brúna.
Hefun deigs
Til að hefa gerdeigið
áður en bakað er.
Þegar þú notar þessa
aðgerð slokknar ljósið
sjálfkrafa eftir 30 sek-
úndur.
Hitun diska
Til að forhita diska
áður en borið er fram.
Niðursuða
Til að gera niðursoðið
grænmeti (t.d. súrar
gúrkur).
Hitunaraðgerð Notkun
Þurrkun
Til að þurrka sneidda
ávexti, grænmeti og
sveppi.
Halda heitu
Til að halda mat heit-
um.
Affrysta
Til að þíða matvæli
(grænmeti og ávexti).
Þíðingartíminn fer eftir
magni og stærð frosnu
matvælanna. Þegar þú
notar þessa aðgerð
slokknar ljósið sjálf-
krafa eftir 30 sekúndur.
Hitunaraðgerð stillt
1. Kveiktu á ofninum.
2. Veldu valmyndina Hitunaraðgerðir.
3. Ýttu á til að staðfesta.
4. Veldu hitunaraðgerð.
5. Ýttu á til að staðfesta.
6. Stilltu hitastigið.
7. Ýttu á
til að staðfesta.
Upphitunarvísir
Þegar þú kveikir á hitunaraðgerð kviknar á
súlunni á skjánum. Súlan sýnir að hitastigið
er að hækka. Þegar hitastigi er náð hljómar
hljóðgjafinn 3 sinnum og súlan leiftrar og
hverfur svo.
Hröð upphitun
Þessi aðgerð styttir upphitunartímann.
Settu ekki mat í ofninn þegar
aðgerðin Hröð upphitun er í
gangi.
ÍSLENSKA 16
Til að kveikja á aðgerðinni skaltu halda
inni í 3 sekúndur. Vísir fyrir upphitun skiptir á
milli.
Þessi aðgerð er ekki tiltæk fyrir sumar
aðgerðir ofnsins.
Afgangshiti
Þegar þú slekkur á ofninum sýnir skjárinn
afgangshitann. Þú getur notað hitann til að
halda matnum heitum.
Tímastillingar
Tafla yfir klukkuaðgerðir
Klukkuaðgerð Notkun
Mínútuteljari
Til að stilla niðurtaln-
ingu (hámark 2 klst. 30
mín). Þessi aðgerð hefur
engin áhrif á starfsemi
ofnsins.
Notaðu
til að kveikja
á aðgerðinni. Ýttu á
eða til að stilla mínút-
urnar og til að
byrja.
Tímalengd
Til að stilla hversu lengi
ofninn vinnur (hám. 23
klst., 59 mín.).
Lokatími
Til að stilla hvenær
slokknar á hitunarað-
gerð (hám. 23 klst., 59
mín).
Ef þú stillir tímann fyrir klukkuaðgerð þá fer
niðurtalning tíma af stað eftir 5 sekúndur.
Ef þú notar klukkuaðgerðirnar
Tímalengd, Lokatími, slekkur
ofninn á hitaelementunum eftir
90% af innstilltum tíma. Ofninn
notar afgangshita til að halda
eldun áfram þangað til tímanum
lýkur (3 - 20 mínútur).
Aðgerðir klukkunnar stilltar
Áður en þú notar aðgerðirnar
Tímalengd, Lokatími verður þú
fyrst að stilla hitunaraðgerð og
hitastig. Það slokknar sjálfvirkt á
ofninum.
Þú getur notað aðgerðirnar
Tímalengd og Lokatími samtímis
ef þú vilt kveikja og slökkva
sjálfkrafa á ofninum á ákveðnum
tíma seinna.
Aðgerðirnar Tímalengd og
Lokatími virka ekki þegar þú
notar kjöthitamælinn.
1. Stilltu hitunaraðgerð.
2. Ýttu á
aftur og aftur þangað til
skjárinn birtir nauðsynlegar aðgerðir
klukku og tengt tákn.
3. Ýttu á eða til að stilla á
nauðsynlegan tíma.
4. Ýttu á til að staðfesta.
Þegar tímanum lýkur heyrist hljóðmerki. Þá
slokknar á ofninum. Skjárinn sýnir skilaboð.
5. Ýttu á hvaða tákn sem er til að stöðva
merkið.
Hita + Halda
Skilyrði fyrir aðgerðinni:
Stillt hitastig er hærra en 80°C.
Aðgerðin Tímalengd er stillt.
ÍSLENSKA
17
Aðgerðin Hita + Halda heldur elduðum mat
heitum við 80°C í 30 mínútur. Hún kviknar
eftir að bökunar- eða steikingarferli lýkur.
Þú getur kveikt eða slökkt á aðgerðinni í
valmyndinni Grunnstillingar.
1. Kveiktu á ofninum.
2. Veldu hitunaraðgerðina.
3. Stilltu hitastigið fyrir ofan 80°C.
4. Ýttu á aftur og aftur þar til skjárinn
sýnir Hita + Halda.
5. Ýttu á
til að staðfesta.
Þegar aðgerðinni lýkur heyrist hljóðmerki.
Tímalenging
Aðgerðin Tímalenging lætur
hitunaraðgerðina halda áfram eftir að
Tímalengd er lokið.
Á við um allar hitunaraðgerðir
með Tímalengd eða Sjálfvirk
þyngd.
Á ekki við um hitunaraðgerðir
með kjöthitamæli.
1. Þegar eldunartíma lýkur heyrist
hljóðmerki. Ýttu á eitthvert tákn.
Skjárinn sýnir skilaboðin.
2. Ýttu á til að kveikja eða til að
hætta við.
3. Stilltu lengd aðgerðarinnar.
4. Ýttu á .
Sjálfvirk ferli
AÐVÖRUN! Sjá kafla um
Öryggismál.
Uppskriftir á netinu
Þú getur fundið uppskriftirnar
fyrir sjálfvirku kerfin sem tilgreind
eru fyrir þennan ofn á
vefsvæðinu www.ikea.com. Til að
finna réttu uppskriftabókina
skaltu athuga hlutarnúmerið á
tegundarspjaldinu sem er á
fremri ramma ofnrýmisins.
Uppskriftir
Þessi ofn er með uppskriftir sem þú getur
notað. Uppskriftirnar eru fastar og þú getur
ekki breytt þeim.
1. Kveiktu á ofninum.
2. Veldu valmyndina Uppskriftir. Ýttu á
til að staðfesta.
3. Veldu flokk og rétt. Ýttu á til að
staðfesta.
4. Veldu uppskrift. Ýttu á
til að
staðfesta.
Að nota fylgihluti
AÐVÖRUN! Sjá kafla um
Öryggismál.
Aukabúnaðurinn settur í
Vírhilla:
Ýttu hillunni milli stýristanganna á
hillustoðinni og gakktu úr skugga um að
fóturinn snúi niður.
ÍSLENSKA 18
Bökunarplata/ Djúp ofnskúffa:
Ýttu bökunarplötunni /djúpu ofnskúffunni
milli stýristanganna á hillustoðinni.
Vírhilla og bökunarplata / djúp ofnskúffa
saman:
Ýttu bökunarplötunni /djúpu ofnskúffunni
milli stýristanganna á hillustoðinni og
vírhillunni á stýristengurnar fyrir ofan.
Lítil skörð efst auka öryggi.
Skörðin eru einnig búnaður til
varnar því að aukabúnaður
hvolfist. Háa brúnin umhverfis
hilluna kemur í veg fyrir að
eldunaráhöld renni niður af
henni.
Kjöthitamælir
Stilla þarf tvö hitastig: Ofnhitastig og
kjarnahitastig.
Kjöthitamælirinn mælir kjarnahitastig
kjötsins. Þegar kjötið hefur náð innstilltu
hitastigi slekkur ofninn á sér.
VARÚÐ! Einungis skal nota þann
kjöthitamæli sem fylgir með, eða
rétta varahluti.
Kjöthitamælirinn verður að vera í
kjötinu og tengdur í innstungu á
meðan á eldun stendur.
1. Stingdu oddi kjöthitamælisins inn í miðju
kjötsins.
2. Stingdu klónni á kjöthitamælinum í
innstunguna efst í rýminu.
3. Kveiktu á ofninum.
Skjárinn sýnir tákn fyrir kjöthitamælinn.
4. Ýttu á eða í minna en 5 sekúndur til
að stilla kjarnahitastigið.
ÍSLENSKA
19
5. Stilltu hitunaraðgerðina og ef nauðsyn
krefur, hitastigið í ofninum.
Ofninn reiknar út áætlaðan lokatíma.
Lokatíminn er mismunandi fyrir mismunandi
magn matar, stillt ofnhitastig (lágmark
120°C) og stjórnunarhami sem eru í gangi.
Ofninn reiknar út lokatímann á um það bil
30 mínútum.
6. Til að breyta hitastigi kjöthitamælisins
skaltu ýta á .
Þegar kjötið hefur náð innstilltu
kjarnahitastigi heyrist hljóðmerki. Það
slokknar sjálfvirkt á ofninum.
7. Ýttu á hvaða tákn sem er til að stöðva
merkið.
8. Fjarlægðu kló kjöthitamælisins úr
innstungunni og taktu kjötið út úr
ofninum.
9. Ýttu á til að slökkva á ofninum.
AÐVÖRUN! Skynjari
kjöthitamælisins er heitur. Hætta
er á bruna. Farðu varlega þegar
þú fjarlægir odd og kló
kjöthitamælisins.
Útdraganlegu rennurnar notaðar
Geymdu
uppsetningarleiðbeiningarnar
fyrir útdraganlegu rennurnar fyrir
notkun í framtíðinni.
Útdraganlegar rennur aðstoða þig við að
setja í og fjarlægja vírhillur og plötur á
auðveldari hátt.
VARÚÐ! Ekki hreinsa
útdraganlegu rennurnar í
uppþvottavélinni. Ekki smyrja
útdraganlegu rennurnar.
1
°C
Togaðu út
útdraganlegu
rennurnar bæði
hægra og vinstra
megin.
2
°C
Settu vírhilluna á
útdraganlegu
rennurnar og ýttu
þeim varlega inn í
ofninn.
Gættu þess að ýta útdraganlegu rennunum
alveg inn í ofninn áður en þú lokar
ofnhurðinni.
AÐVÖRUN! Sjá kaflann „Lýsing
vöru“.
Viðbótarstillingar
Uppáhalds
Þú getur vistað uppáhaldsstillingar þínar,
eins og tímalengd, hitastig og
hitunaraðgerð. Þær eru tiltækar í
valmyndinni Uppáhalds. Þú getur vistað 20
kerfi.
Að vista kerfi
1. Kveiktu á ofninum.
2. Stilltu hitunaraðgerð eða sjálfvirkt kerfi.
3. Ýttu á aftur og aftur þar til skjárinn
sýnir VISTA.
4. Ýttu á til að staðfesta.
Skjárinn sýnir fyrstu lausu stöðu minnis.
5. Ýttu á
til að staðfesta.
6. Færðu inn nafn kerfisins.
Fyrsti stafurinn leiftrar.
7. Ýttu á eða til að breyta um staf.
8. Ýttu á .
Næsti bókstafur leiftrar.
9. Gerðu 7. skref aftur eftir þörfum.
ÍSLENSKA 20
  • Page 1 1
  • Page 2 2
  • Page 3 3
  • Page 4 4
  • Page 5 5
  • Page 6 6
  • Page 7 7
  • Page 8 8
  • Page 9 9
  • Page 10 10
  • Page 11 11
  • Page 12 12
  • Page 13 13
  • Page 14 14
  • Page 15 15
  • Page 16 16
  • Page 17 17
  • Page 18 18
  • Page 19 19
  • Page 20 20
  • Page 21 21
  • Page 22 22
  • Page 23 23
  • Page 24 24
  • Page 25 25
  • Page 26 26
  • Page 27 27
  • Page 28 28
  • Page 29 29
  • Page 30 30
  • Page 31 31
  • Page 32 32
  • Page 33 33
  • Page 34 34
  • Page 35 35
  • Page 36 36
  • Page 37 37
  • Page 38 38
  • Page 39 39
  • Page 40 40

IKEA KULINAOVPX Používateľská príručka

Kategória
Mixér / kuchynský robot príslušenstvo
Typ
Používateľská príručka

V iných jazykoch