KULINARISK

IKEA KULINARISK Používateľská príručka

  • Ahoj! Prečítal som si používateľskú príručku pre rúru IKEA KULINARISK a som pripravený odpovedať na vaše otázky. Príručka obsahuje podrobné pokyny na inštaláciu, používanie rôznych funkcií pečenia, starostlivosti a riešenie problémov. Môžem vám pomôcť s akýmikoľvek otázkami, ktoré máte ohľadom rúry.
  • Ako môžem použiť funkciu samoočistenia rúry?
    Ako môžem nastaviť časovač?
    Ako môžem použiť kulinársky teplomer?
KULINARISK
IS
ÍSLENSKA
Á öftustu síðu þessarar handbók er skrá yfir alla veitendur
eftirsöluþjónustu sem útnefndir hafa verið af IKEA og viðeigandi
símanúmer í hverju landi.
ÍSLENSKA
4
Efnisyfirlit
Öryggisupplýsingar 4
Öryggisleiðbeiningar 6
Innsetning 8
Vörulýsing 9
Stjórnborð 10
Fyrir fyrstu notkun 12
Dagleg notkun 13
Tímastillingar 17
Sjálfvirk ferli 18
Að nota fylgihluti 19
Viðbótarstillingar 21
Góð ráð 23
Umhirða og þrif 24
Bilanaleit 27
Tæknigögn 29
Orkunýtni 29
UMHVERFISMÁL 30
IKEA-ÁBYRGÐ 31
Með fyrirvara á breytingum.
Öryggisupplýsingar
Fyrir uppsetningu og notkun heimilistækisins skal lesa
meðfylgjandi leiðbeiningar vandlega. Framleiðandinn er ekki
ábyrgur fyrir tjóni ef röng uppsetning eða notkun veldur
meiðslum og skemmdum. Alltaf skal geyma leiðbeiningarnar
með tækinu til síðari notkunar.
Öryggi barna og viðkvæmra einstaklinga
Börn, 8 ára og eldri og fólk með minnkaða líkamlega-, skyn-
eða andlega getu, eða sem skortir reynslu og þekkingu,
mega nota þetta tæki, ef þau eru undir eftirliti eða hafa verið
veittar leiðbeiningar varðandi örugga notkun tækisins og ef
þau skilja hættuna sem því fylgir.
Leyfðu ekki börnum að leika sér með tækið.
Haltu öllum umbúðum frá börnum og fargaðu þeim á
viðeigandi hátt.
Halda skal börnum og gæludýrum fjarri heimilistækinu þegar
það er í gangi eða þegar það kólnar. Aðgengilegir hlutar eru
heitir.
Ef heimilistækið er með barnalæsingu ætti hún að vera
virkjuð.
ÍSLENSKA
4
Börn eiga ekki að hreinsa eða framkvæma notandaviðhald á
heimilistækinu án eftirlits.
Alltaf verður að halda börnum 3 ára og eldri frá þessu
heimilistæki þegar það er í notkun.
Almennt öryggi
Einungis til þess hæfur aðili má setja upp þetta heimilistæki
og skipta um snúruna.
VIÐVÖRUN: Heimilistækið og aðgengilegir hlutar þess hitna
við notkun. Auðsýna ætti aðgát til að forðast að snerta
hitaelementin. Halda skal börnum yngri en 8 ára frá tækinu
nema þau séu undir stöðugu eftirliti.
Notaðu alltaf ofnhanska til að fjarlægja eða setja inn
aukahluti eða ofnáhöld.
Áður en viðhald hefst skal aftengja tækið frá rafmagni.
Tryggðu að slökkt sé á heimilistækinu áður en þú skiptir um
ljósið til að forðast möguleika á raflosti.
Ekki nota gufuhreinsibúnað til að hreinsa heimilistækið.
Ekki nota sterk tærandi hreinsiefni eða beittar málmsköfur til
að hreinsa glerhurðina þar sem slíkt getur rispað yfirborðið,
sem getur aftur leitt til þess að glerið brotnar.
Ef rafmagnssnúra er skemmd verður framleiðandi, viðurkennd
þjónustumiðstöð, eða svipað hæfur aðili að endurnýja hana
til að forðast hættu vegna rafmagns.
Allt sem lekið hefur niður verður að fjarlægja fyrir hreinsun
með eldglæðingu. Fjarlægðu alla hluti úr ofninum.
Til að fjarlægja hilluberana skaltu fyrst toga í framhlið
hilluberanna og síðan toga bakendann burt frá
hliðarveggjunum. Settu hilluberana upp í öfugri röð.
Notaðu aðeins þann matarmæli (kjöthitamæli) sem ráðlagður
er fyrir þetta heimilistæki.
ÍSLENSKA
5
Öryggisleiðbeiningar
Uppsetning
AÐVÖRUN! Einungis til þess
hæfur aðili má setja upp þetta
heimilistæki.
Fjarlægðu allar umbúðir.
Ekki setja upp eða nota skemmt
heimilistæki.
Fylgdu leiðbeiningum um uppsetningu
sem fylgja með heimilistækinu.
Alltaf skal sýna aðgát þegar
heimilistækið er fært vegna þess að það
er þungt. Notaðu alltaf öryggishanska og
lokaðan skóbúnað.
Ekki draga heimilistækið á handfanginu.
Haltu lágmarksfjarlægð frá hinum
heimilistækjunum og einingunum.
Gættu þess að heimilistækinu sé komið
fyrir undir og við hliðina á traustum og
stöðugum hlutum.
Hliðar heimilistækisins verða að standa
beinar og við hlið tækja eða eininga sem
hafa sömu hæð.
Tenging við rafmagn
AÐVÖRUN! Eldhætta og hætta á
raflosti.
Allar rafmagnstengingar skulu
framkvæmdar af viðurkenndum rafvirkja.
Heimilistækið verður að vera jarðtengt.
Gakktu úr skugga um að færibreyturnar
á merkiplötunni séu samhæfar við
rafmagnsflokkun aðalæðar aflgjafa.
Notaðu alltaf rétt ísetta innstungu sem
ekki veldur raflosti.
Notaðu ekki fjöltengi eða
framlengingarsnúrur.
Gakktu úr skugga um að rafmagnsklóin
og snúran verði ekki fyrir skemmdum. Ef
skipta þarf um rafmagnssnúru verður
viðurkennd þjónustumiðstöð okkar að sjá
um það.
Ekki láta rafmagnssnúrurnar komast í
snertingu við hurð tækisins, einkum þegar
hurðin er heit.
Vörn lifandi og einangraðra hluta gegn
raflosti verður að vera fest þannig að
ekki sé hægt að fjarlægja hana án
verkfæra.
Aðeins skal tengja rafmagnsklóna við
rafmagnsinnstunguna í lok
uppsetningarinnar. Gakktu úr skugga um
að rafmagnsklóin sé aðgengileg eftir
uppsetningu.
Ef rafmagnsinnstungan er laus, skal ekki
tengja rafmagnsklóna.
Ekki toga í snúruna til að taka tækið úr
sambandi. Taktu alltaf um klóna.
Notaðu aðeins réttan
einangrunarbúnað:
Línuvarnarstraumloka, öryggi (öryggi
með skrúfgangi fjarlægð úr höldunni),
lekaliða og spólurofa.
Rafmagnsuppsetningin verður að vera
með einangrunarbúnað sem leyfir þér að
aftengja tækið frá stofnæð á öllum
pólum. Einangrunarbúnaðurinn verður
að hafa að lágmarki 3 mm
snertiopnunarvídd.
Lokaðu alveg hurð heimilistækisins áður
en þú tengir rafmagnsklóna við
innstunguna.
Þetta heimilistæki samræmist EBE-
tilskipunum.
Notkun
AÐVÖRUN! Hætta á líkamstjóni,
bruna, raflosti eða sprengingu.
Þetta heimilistæki er eingöngu ætlað til
heimilisnota.
Breyttu ekki tæknilýsingu fyrir þetta
heimilistæki.
Gættu þess að loftræstiop séu ekki
stífluð.
Láttu heimilistækið ekki vera án eftirlits á
meðan það er í gangi.
ÍSLENSKA
6
Slökktu á heimilistækinu eftir hverja
notkun.
Farðu varlega þegar þú opnar hurð
heimilistækisins á meðan það er í gangi.
Heitt loft getur losnað út.
Notaðu ekki heimilistækið með blautar
hendur eða þegar það er í snertingu við
vatn.
Beittu ekki þrýstingi á opna hurð.
Notaðu ekki heimilistækið sem
vinnusvæði eða geymslusvæði.
Opnaðu hurð heimilistækisins varlega.
Notkun hráefna með alkóhóli getur
valdið blöndu alkóhóls og lofts.
Láttu ekki neista eða opinn eld komast í
snertingu við heimilistækið þegar þú
opnar hurðina.
Settu ekki eldfim efni eða hluti sem eru
blautir af eldfimum efnum í, nálægt eða
á heimilistækið.
AÐVÖRUN! Hætta á skaða á
tækinu.
Til að koma í veg fyrir skemmdir eða
aflitun á glerungnum:
Settu ekki ofnáhöld eða aðra hluti í
heimilistækið beint á botninn.
Settu ekki álpappír beint í botninn á
rýminu í heimilistækinu.
Settu ekki vatn beint inn í heitt
heimilistækið.
Láttu ekki raka rétti og rök matvæli
vera inni í heimilistækinu eftir að
matreiðslu er lokið.
Farðu varlega þegar þú fjarlægir
aukahluti eða setur þá upp.
Aflitun á glerungnum eða ryðfríu stáli
hefur engin áhrif á getu eða frammistöðu
heimilistækisins.
Notaðu djúpa skúffu fyrir rakar kökur.
Ávaxtasafi veldur blettum sem geta verið
varanlegir.
Þetta heimilistæki er eingöngu til að
matreiða með. Ekk má nota það í öðrum
tilgangi, til dæmis að hita herbergi.
Alltaf skal elda með ofnhurðina lokaða.
Ef heimilistækið er sett upp á bak við
húsgagnaþil (t.d hurð) skaltu gæta þess
að hurðin sé aldrei lokuð þegar
heimilistækið er í notkun. Hiti og raki
geta byggst upp á bak við lokað
húsgagnaþil og valdið síðari skemmdum
á heimilistækinu, húseiningunni eða
gólfinu. Lokaðu ekki húsgagnaþilinu fyrr
en heimilistækið hefur kólnað til fulls eftir
notkun.
Umhirða og hreinsun
AÐVÖRUN! Hætta á líkamstjóni,
eldsvoða eða því að
heimilistækið skemmist.
Áður en viðhald fer fram skal slökkva á
heimilistækinu og aftengja
rafmagnsklóna frá
rafmagnsinnstungunni.
Gættu þess að heimilistækið sé kalt.
Hætta er á að glerplöturnar brotni.
Endurnýjaðu glerplöturnar í ofnhurðinni
strax þegar þær skemmast. Hafðu
samband við viðurkennda
þjónustumiðstöð.
Vertu varkár þegar þú tekur hurðina af
heimilistækinu. Hurðin er þung!
Hreinsaðu heimilistækið reglulega til að
yfirborðsefnin á því endist betur.
Fitu- og matarleifar sem eftir eru í
heimilistækinu geta valdið eldsvoða.
Ef þú notar ofnhreinsi skaltu hlýða
öryggisleiðbeiningunum á umbúðunum.
Hreinsun með eldglæðingu
Hætta á eldsvoða og bruna.
Áður en þú framkvæmir sjálfhreinsandi
eldglæðingaraðgerð, eða notar
aðgerðina Fyrsta notkun, skaltu fjarlægja
eftirfarandi úr ofninum:
Allar matarleifar, olíu eða fituleifar /
skánir og bletti.
Alla hluti sem hægt er að fjarlægja
(þ.m.t. hillur, hliðarrennur o.s.frv. sem
fylgja með vörunni), einkum alla
potta, pönnur, plötur, áhöld o.s.frv.
ÍSLENSKA
7
Lestu vandlega allar leiðbeiningar um
hreinsun með eldglæðingu.
Haltu börnum fjarri ofninum á meðan
verið er að hreinsa ofninn með
eldglæðingu.
Ofninn verður mjög heitur og heitt loft
kemur út um kælingartúður að framan.
Hreinsun með eldglæðingu er aðgerð
sem er framkvæmd við háan hita sem
getur losað reyk frá matarleifum og
byggingarefnum, og þessvegna er
neytendum sterklega ráðlagt að:
Tryggja góða loftræstingu við og eftir
hverja hreinsun með eldglæðingu.
Tryggja góða loftræstingu við og eftir
fyrstu notkun á aðgerð við hæsta
hitastig.
Ólíkt mönnum, geta sumir fuglar og
skriðdýr verið afar viðkvæm gagnvart
mögulegum reyk sem myndast við
hreinsun með eldglæðingu í ofnum.
Fjarlægðu öll gæludýr (einkum fugla)
úr nágrenni ofnsins á meðan
hreinsun með eldglæðingu stendur
og á eftir og notaðu aðgerð við
hæsta hitastig einungis við góða
loftræstingu.
Lítil gæludýr geta einnig verið mjög
viðkvæm gagnvart staðbundnum
hitastigsbreytingum í nágrenni
eldglæðingar-ofna þegar sjálfhreinsun
með eldglæðingu er í gangi.
Teflonhúð á pottum, pönnum, plötum,
áhöldum o.s.frv. getur skaddast við
hreinsun með eldglæðingu við mikinn
hita í eldglæðingar-ofninum, og getur
einnig myndað reyk sem er að einhverju
leyti skaðlegur.
Reykur sem losnar frá öllum
eldglæðingar-ofnum / matarleifum er
ekki skaðlegur mönnum, þar með talið
ungabörnum eða sjúklingum.
Ofnljósið
Sú tegund ljósaperu eða halógenlampa
sem notuð er fyrir þetta tæki er aðeins
ætluð heimilistækjum. Ekki nota það sem
heimilisljós.
AÐVÖRUN! Hætta á raflosti.
Áður en skipt er um ljósið, skal aftengja
heimilistækið frá rafmagnsinntakinu.
Einungis skal nota ljós sem hafa sömu
eiginleika.
Förgun
AÐVÖRUN! Hætta á líkamstjóni
eða köfnun.
Aftengdu tækið frá rafmagni.
Klipptu rafmagnssnúruna af upp við
heimilistækið og fargaðu henni.
Fjarlægðu hurðina til að koma í veg fyrir
að börn eða dýr geti lokast inni í tækinu.
Umbúðaefni:
Umbúðirnar eru umhverfisvænar og
endurvinnanlegar. Plasthlutar eru merktir
með alþjóðlegum skammstöfunum t.d. PE
PS o.s.frv. Fargaðu umbúðaefninu í til
þess ætluðum gámum á
sorpförgunarstöðinni á staðnum.
Þjónusta
Hafðu samband við viðurkennda
þjónustumiðstöð til að gera við
heimilistækið.
Notaðu eingöngu upprunalega varahluti.
Innsetning
AÐVÖRUN! Sjá kafla um
Öryggismál.
ÍSLENSKA 8
Samsetning
Farðu eftir
samsetningarleiðbeiningunum
við uppsetningu.
Rafmagnsuppsetning
AÐVÖRUN! Aðeins viðurkenndur
einstaklingur má sjá um
raflagnavinnuna.
Framleiðandinn er ekki ábyrgur
ef þú fylgir ekki
öryggisvarúðarráðstöfununum í
öryggisköflunum.
Þetta heimilistæki er aðeins afhent með
rafmagnssnúru.
Kapall
Kapaltegundir sem viðeigandi eru fyrir
uppsetningu eða endurnýjun:
H07 RN-F, H05 RN-F, H05 RRF, H05 VV-F,
H05 V2V2-F (T90), H05 BB-F
Fyrir þversnið kapalsins vísast til heildarafls
á merkiplötunni. Þú getur einnig vísað til
töflunnar:
Heildarafl (W) Þversnið kapals
(mm²)
að hámarki 1380 3 x 0.75
að hámarki 2300 3 x 1
að hámarki 3680 3 x 1.5
Jarðstrengurinn (grænn / gulur kapall)
verður að vera 2 cm lengri en fasinn og
núllkapallinn (bláir og brúnir kaplar).
Vörulýsing
Almennt yfirlit
8
9
6
7
5
4
1
2
3
21
5
4
3
1
Stjórnborð
2
Rafrænn forritari
3
Innstunga fyrir kjöthitamælinn
4
Grill
5
Ljós
6
Vifta
7
Hilluberi, laus
8
Merkiplata
9
Hillustöður
Fylgihlutir
Vírhilla x 2
Fyrir eldunaráhöld, kökuform, steikur.
Bökunarplata x 1
ÍSLENSKA 9
Fyrir kökur og smákökur.
Grill- / steikingarpanna x 1
Til að baka og steikja eða sem panna til
að safna feiti.
Kjöthitamælir x 1
Til að mæla hversu vel eldaður maturinn
er.
Útdraganlegar rennur x 2 sett
Fyrir hillur og plötur.
Stjórnborð
Rafrænn forritari
1 112 4 63 9 105 7 8
Tákn Aðgerð Athugasemd
1
KVEIKJA/SLÖK-
KVA
Til að kveikja og slökkva á heimilistækinu.
2
Hitunaraðgerðir
eða Eldað með
aðstoð
Snertu táknið einu sinni til að velja hitunaraðgerð
eða valmyndina Eldað með aðstoð. Snertu táknið
aftur til að skipta á milli valmyndanna Hitunarað-
gerðir, Eldað með aðstoð. Til að kveikja eða slök-
kva á ljósinu skaltu snerta í 3 sekúndur.
3
Til baka-takki Til að fara eitt stig til baka í valmyndinni. Til að
sýna aðalvalmyndina skal snerta táknið í 3 sek-
úndur.
4
Val á hitastigi Til að stilla hitastigið eða til að sýna núverandi
hitastig í heimilistækinu. Snertu táknið í 3 sekúndur
til að kveikja eða slökkva á aðgerðinni Hröð upp-
hitun.
5
Uppáhalds Til að vista og fá aðgang að uppáhalds kerfunum
þínum.
6
- Skjár Sýnir núverandi stillingar heimilistækisins.
7
Upp-takki Til að fara upp í valmyndinni.
ÍSLENSKA 10
Tákn Aðgerð Athugasemd
8
Niður-takki Til að fara niður í valmyndinni.
9
Tími og viðbótar-
aðgerðir
Að stilla mismunandi aðgerðir. Þegar hitunarað-
gerð er í gangi, skal snerta táknð til að stilla tím-
astillinn eða aðgerðirnar Læsing aðgerða, Uppá-
halds, Hita + Halda og Stilla + af stað. Þú getur
einnig breytt stillingum kjöthitamælisins.
10
Mínútuteljari Til að stilla aðgerðina Mínútuteljari.
11
Í lagi Til að staðfesta valið eða stillinguna.
Skjár
A
DE
B C
A. Hitunaraðgerð
B. Tími dags
C. Upphitunarvísir
D. Hitastig
E. Tímalengd eða lokatími aðgerðar
Aðrir vísar á skjánum:
Tákn Aðgerð
Mínútuteljari Aðgerðin vinnur.
Tími dags Skjárinn sýnir núverandi tíma.
Tímalengd Skjárinn sýnir nauðsynlegan tíma fyrir
eldamennsku.
Lokatími Skjárinn sýnir þegar eldunartíma er
lokið.
Hitastig Skjárinn sýnir hitastigið.
Merki um tíma Skjárinn sýnir hversu lengi hitunarað-
gerðin er virk. Ýttu á og samtímis
til að endurstilla tímann.
ÍSLENSKA 11
Tákn Aðgerð
Útreikningur Heimilistækið reiknar út tímann fyrir
eldamennskuna.
Upphitunarvísir Skjárinn sýnir hitastigið í heimilistæk-
inu.
Vísir hraðrar upphitunar Aðgerðin er virk. Hún styttir upphitun-
artímann.
Sjálfvirk þyngd Skjárinn sýnir að sjálfvirka þyngdark-
erfið er virkt, eða hægt er að breyta
þyngd.
Hita + Halda Aðgerðin er virk.
Fyrir fyrstu notkun
AÐVÖRUN! Sjá kafla um
Öryggismál.
Fyrsta hreinsun
Fjarlægðu allan aukabúnað og lausar
hillustoðir úr heimilistækinu.
Sjá kaflann „Umhirða og
hreinsun“.
Hreinsaðu tækið og aukabúnaðinn fyrir
fyrstu notkun.
Settu aukabúnaðinn og lausu hillustoðirnar
aftur í upphaflega stöðu sína.
Fyrsta tenging
Þegar þú tengir tækið við rafmagn eða eftir
rafmagnsleysi, verður þú að stilla
tungumálið, birtuskil skjásins, birtustig
skjásins og tíma dags.
1. Ýttu á
eða til að stilla gildið.
2. Ýttu á til að staðfesta.
Forhitun
Fyrir fyrstu notkun skaltu forhita
heimilistækið með aðeins vírhillurnar og
bökunarplöturnar inni.
1. Stilltu aðgerðina Hefðbundin eldun
(yfir-/undirhiti) og hámarkshitastigið.
2. Láttu heimilistækið vinna í eina
klukkustund.
3. Stilltu aðgerðina Eldun með
hefðbundnum blæstri og
hámarkshitastigið.
4. Láttu heimilistækið vinna í 15 mínútur.
Fylgihlutir geta orðið heitari en venjulega.
Heimilistækið getur gefið frá sér lykt og
reyk. Þetta er eðlilegt. Gættu þess að
loftflæði í herberginu sé nægjanlegt.
Vélræna barnalæsingin notuð
Ofninn er með uppsetta barnalæsingu og
hún er virk. Hún er undir stjórnborðinu
hægra megin.
Til að opna ofnhurðina með uppsettri
barnalæsingu skal setja handfang
barnalæsingarinnar upp eins og sést á
myndinni.
ÍSLENSKA
12
Lokaðu ofnhurðinni án þess að toga í
barnalæsinguna.
Til að fjarlægja barnalæsinguna skal opna
ofninn og fjarlægja barnalæsinguna með
torx-lyklinum. Torx-lykillinn er í
fylgihlutapoka ofnsins.
Skrúfaðu skrúfuna aftur inn í gatið þegar þú
hefur fjarlægt barnalæsinguna.
Dagleg notkun
AÐVÖRUN! Sjá kafla um
Öryggismál.
Að ferðast á milli valmynda
1. Kveiktu á heimilistækinu.
2. Ýttu á eða til að velja valkost úr
valmyndinni.
3. Ýttu á til að fara í undirvalmyndina
eða samþykkja stillinguna.
Á hverjum stað getur þú farið
aftur í aðalvalmynd með .
Valmyndirnar í yfirlitinu
Aðalvalmynd
Tákn Atriði valmyndar Notkun
Hitunaraðgerðir Inniheldur lista yfir hitunaraðgerðir.
Eldað með aðstoð Inniheldur lista yfir sjálfvirk kerfi.
Uppáhalds Inniheldur lista yfir uppáhaldseldunarkerfi sem
notandinn hefur skapað.
Eldglæðing Hreinsun með eldglæðingu.
Grunnstillingar Notað til að stilla grunnstillingu heimilistækisins.
Sérstakt Inniheldur lista yfir viðbótarhitunaraðgerðir.
ÍSLENSKA 13
Undirvalmynd fyrir Grunnstillingar
Tákn Undirvalmynd Lýsing
Stilla tíma dags Stillir núverandi tíma á klukkunni.
Merki um tíma Þegar KVEIKT sýnir skjárinn núverandi tíma þegar
þú slekkur á heimilistækinu.
Hröð upphitun Þegar KVEIKT minnkar aðgerðin upphitunartí-
mann.
Stilla + af stað Til að stilla aðgerð og virkja hana seinna með því
að ýta á einhvert táknið á stjórnborðinu.
Hita + Halda Heldur elduðum mat heitum í 30 mínútur eftir að
eldunarlotu lýkur.
Tímalenging Kveikir og slekkur á tímalengingaraðgerðinni.
Birtuskil skjás Stillir birtuskil skjásins smátt og smátt.
Birtustig skjás Stillir birtustig skjásins smátt og smátt.
Stilla tungumál Stillir tungumálið fyrir skjáinn.
Hljóðstyrkur hljóðgjafa Stillir hljóðstyrk hljóðtóna og hljóðmerkja smátt og
smátt.
Lykiltónar Kveikir og slekkur á tóninum fyrir snertifletina. Ekki
er mögulegt að slökkva á tóninum fyrir snertiflöt-
inn KVEIKT / SLÖKKT.
Aðvörunar-/villutónar Kveikir og slekkur á viðvörunartónum.
Aðstoð við hreinsun Leiðir þig gegnum hreinsunarferlið.
Áminning um hreinsun Minnir þig á hvenær hreinsa á heimilistækið.
Þjónusta Sýnir útgáfu hugbúnaðarins og samskipan.
Verksmiðjustillingar Endursetur allar stillingar á verksmiðjustillingar.
ÍSLENSKA 14
Hitunaraðgerðir
Hitunaraðgerð Notkun
Eldun með hefðbundnum
blæstri
Til að baka á allt að þremur hillustöðum á sama
tíma og þurrka mat.Stilltu hitann 20 - 40°C lægra
en þarf fyrir aðgerðina Hefðbundin matreiðsla
(Yfir- / undirhiti).
Hefðbundin eldun (yfir-/
undirhiti)
Til að baka eða steikja mat í einni hillustöðu.
Pítsustilling Til að baka mat á einni hillu til að fá meiri brúnun
og stökkan botn. Stilltu hitann 20 - 40°C lægri en
fyrir aðgerðina Hefðbundin matreiðsla (Yfir- / un-
dirhiti).
Hæg eldun Til að undirbúa mjúkar, safaríkar steikur.
Undirhiti Til að baka kökur með stökkum botni og til að
sjóða niður matvæli.
Bökun með rökum blæ-
stri
Til að baka brauð, kökur og bakkelsi. Til að spara
orku á meðan eldað er. Nota verður þessa að-
gerð í samræmi við töfluna Bakað með rökum
blæstri til að ná óskuðum eldunarárangri. Til að fá
frekari upplýsingar um ráðlagðar stillingar skaltu
skoða kaflann Ábendingar og ráð, töfluna Bakað
með rökum blæstri. Þessi aðgerð var notuð til að
skilgreina orkunýtniflokk í samræmi við EN
60350-1.
ECO-steiking Þegar þú notar þessa aðgerð meðan á eldun
stendur gerir það þér kleift að hagræða orkunot-
kuninni. Til að fá frekari upplýsingar um ráðlagðar
stillingar skaltu skoða kaflann Ábendingar og ráð,
töflu með samsvarandi aðgerðum.
Frosin matvæli Til að gera skyndirétti eins og t.d. franskar kartöfl-
ur, kartöflubáta eða vorrúllur stökka.
Grillun Til að grilla flöt matvæli og rista brauð.
Hraðgrillun Til að grilla flöt matvæli í miklu magni og rista
brauð.
ÍSLENSKA 15
Hitunaraðgerð Notkun
Blástursgrillun Til að steikja stærri kjötstykki eða kjúklinga með
beinum á einni hillustöðu. Einnig til að gera grat-
ín-rétti og til að brúna.
Sérstakt
Hitunaraðgerð Umsókn
Brauðbakstur Til að baka brauð.
Gratíneraður matur Fyrir rétti eins og lasagna eða kartöflugratín.
Einnig til að gratínera og brúna.
Hefun deigs Fyrir stjórnun á lyftingu á gerdeigi fyrir bakstur.
Hitun diska Til að forhita diska áður en borið er fram.
Niðursuða Til að gera niðursoðið grænmeti eins og súrar
gúrkur.
Þurrkun Til að þurrka niðurskorna ávexti (t.d. epli, plómur,
ferskjur) og grænmeti (t.d. tómata, kúrbít, sveppi).
Halda heitu Til að halda mat heitum.
Afþíða Þessa aðferð má nota til að afþíða frosinn mat
eins og grænmeti og ávexti. Afþíðingartíminn fer
eftir magni og stærð frosna matarins.
Kveikt á hitunaraðgerð
1. Kveiktu á heimilistækinu.
2. Veldu valmyndina Hitunaraðgerðir.
3. Ýttu á til að staðfesta.
4. Veldu hitunaraðgerð.
5. Ýttu á til að staðfesta.
6. Stilltu hitastigið.
7. Ýttu á
til að staðfesta.
Upphitunarvísir
Þegar þú kveikir á hitaaðgerð, þá kviknar á
súlunni á skjánum. Súlan sýnir að hitastigið
er að hækka. Þegar hitastigi er náð hljómar
hljóðgjafinn 3 sinnum og súlan leiftrar og
hverfur svo.
Vísir hraðrar upphitunar
Þessi aðgerð styttir upphitunartímann.
ÍSLENSKA 16
Settu ekki mat í ofninn þegar
aðgerðin Hröð upphitun er í
gangi.
Til að virkja aðgerðina, haltu inni í 3
sekúndur. Vísir fyrir upphitun skiptir á milli.
Afgangshiti
Þegar þú slekkur á heimilistækinu sýnir
skjárinn afgangshitann. Þú getur notað
hitann til að halda matnum heitum.
Tímastillingar
Tafla yfir klukkuaðgerðir
Klukkuaðgerð Notkun
Mínútuteljari Til að stilla niðurtalningu (hámark 2 klst. 30
mín). Þessi aðgerð hefur engin áhrif á starfs-
emi heimilistækisins.
Notaðu til að virkja aðgerðina. Ýttu á
eða til að stilla mínúturnar og til að
byrja.
Tímalengd Til að stilla lengd notkunar (hám. 23 klst, 59
mín).
Lokatími Til að stilla hvenær slokknar á hitunaraðgerð
(hámark 23 klst, 59 mín).
Ef þú stillir tímann fyrir klukkuaðgerð þá fer
niðurtalning tíma af stað eftir 5 sekúndur.
Ef þú notar klukkuaðgerðirnar
Tímalengd, Lokatími slekkur
heimilistækið á hitaelementunum
eftir 90% af innstilltum tíma.
Heimilistækið notar afgangshita
til að halda eldun áfram þangað
til tímanum lýkur (3 - 20 mínútur).
Aðgerðir klukkunnar stilltar
Áður en þú notar aðgerðirnar
Tímalengd, Lokatími verður þú
fyrst að stilla hitunaraðgerð og
hitastig. Það slokknar sjálfkrafa á
heimilistækinu.
Þú getur notað aðgerðirnar
Tímalengd og Lokatími samtímis
ef þú vilt kveikja og slökkva
sjálfkrafa á heimilistækinu á
ákveðnum tíma seinna.
Aðgerðirnar Tímalengd og
Lokatími virka ekki þegar þú
notar kjöthitamælinn.
1. Stilltu hitunaraðgerð.
2. Ýttu á
aftur og aftur þangað til
skjárinn birtir nauðsynlegar aðgerðir
klukku og tengt tákn.
ÍSLENSKA 17
3. Ýttu á eða til að stilla á
nauðsynlegan tíma.
4. Ýttu á til að staðfesta.
Þegar tímanum lýkur heyrist hljóðmerki. Það
slokknar á heimilistækinu. Skjárinn sýnir
skilaboð.
5. Ýttu á hvaða tákn sem er til að stöðva
merkið.
Hita + Halda
Skilyrði fyrir aðgerðinni:
Stillt hitastig er hærra en 80°C.
Aðgerðin Tímalengd er stillt.
Aðgerðin Hita + Halda heldur elduðum mat
heitum við 80°C í 30 mínútur. Hún fer í gang
eftir að bökunar- eða steikingarferli lýkur.
Þú getur kveikt eða slökkt á aðgerðinni í
valmyndinni Grunnstillingar.
1. Kveiktu á heimilistækinu.
2. Veldu hitunaraðgerðina.
3. Stilltu hitastigið fyrir ofan 80°C.
4. Ýttu á aftur og aftur þar til skjárinn
sýnir Hita + Halda.
5. Ýttu á til að staðfesta.
Þegar aðgerðinni lýkur heyrist hljóðmerki.
Aðgerðin helst áfram ef þú breytir
hitunaraðgerðunum.
Tímalenging
Aðgerðin Tímalenging lætur
hitunaraðgerðina halda áfram eftir að
Tímalengd er lokið.
Á við um allar hitunaraðgerðir
með Tímalengd eða Sjálfvirk
þyngd.
Á ekki við um hitunaraðgerðir
með kjöthitamæli.
1. Þegar eldunartíma lýkur heyrist
hljóðmerki. Ýttu á eitthvert tákn.
Skjárinn sýnir skilaboðin.
2. Ýttu á til að virkja eða til að hætta
við.
3. Stilltu lengd aðgerðarinnar.
4. Ýttu á
.
Sjálfvirk ferli
AÐVÖRUN! Sjá kafla um
Öryggismál.
Uppskriftir á netinu
Þú getur fundið uppskriftir fyrir
sjálfvirku kerfin sem eru tilgreind
fyrir þetta heimilistæki á
vefsvæðinu www.ikea.com. Til að
finna réttu uppskriftabókina
skaltu athuga hlutarnúmerið á
merkiplötunni sem er á fremri
ramma ofnrýmis tækisins.
Eldað með aðstoð með Sjálfvirk uppskrift
Þetta heimilistæki er með uppskriftir sem þú
getur notað. Uppskriftirnar eru fastar og þú
getur ekki breytt þeim.
1. Kveiktu á heimilistækinu.
2. Veldu valmyndina Eldað með aðstoð.
Ýttu á til að staðfesta.
3. Veldu flokk og rétt. Ýttu á til að
staðfesta.
4. Veldu uppskrift. Ýttu á
til að
staðfesta.
ÍSLENSKA 18
Þegar þú notar aðgerðina
Handvirkt notar heimilistækið
sjálfvirku stillingarnar. Þú getur
breytt þeim eins og öðrum
aðgerðum.
Eldað með aðstoð með Sjálfvirk þyngd
Þessi aðgerð reiknar sjálfkrafa út
steikingartímann. Til að nota hana er
nauðsynlegt að slá inn þyngd kjötsins.
1. Kveiktu á heimilistækinu.
2. Veldu valmyndina Eldað með aðstoð.
Ýttu á til að staðfesta.
3. Veldu flokk og rétt. Ýttu á til að
staðfesta.
4. Veldu aðgerðina Sjálfvirk þyngd. Ýttu á
til að staðfesta.
5. Snertu eða til að stilla þyngd
matvæla. Ýttu á
til að staðfesta.
Sjálfvirka kerfið fer í gang.
6. Þú getur breytt þyngdinni hvenær sem
er. Ýttu á eða til að breyta
þyngdinni.
7. Þegar tímanum lýkur heyrist hljóðmerki.
Ýttu á hvaða tákn sem er til að slökkva
á merkinu.
Í sumum kerfum þarf að snúa
matnum við eftir 30 mínútur.
Skjárinn sýnir áminningu.
Að nota fylgihluti
AÐVÖRUN! Sjá kafla um
Öryggismál.
Aukabúnaðurinn settur í
Vírhilla:
Ýttu hillunni milli stýristanganna á
hillustoðinni og gakktu úr skugga um að
fóturinn snúi niður.
Djúp ofnskúffa:
Ýttu djúpu ofnskúffunni milli stýristanganna
á hillustoðinni.
Vírhilla og djúpa ofnskúffan saman:
Ýttu djúpu ofnskúffunni milli stýristanganna
á hillustoðinni og vírhillunni á
stýristengurnar fyrir ofan og gakktu úr
skugga um að fæturnir vísi niður.
ÍSLENSKA 19
Lítil skörð efst auka öryggi.
Skörðin eru einnig búnaður til
varnar því að aukabúnaður
hvolfist. Háa brúnin umhverfis
hilluna kemur í veg fyrir að
eldunaráhöld renni niður af
henni.
Kjöthitamælir
Stilla þarf tvö hitastig: Ofnhitastig og
kjarnahitastig.
Kjöthitamælirinn mælir kjarnahitastig
kjötsins. Þegar kjötið hefur náð innstilltu
hitastigi, slekkur heimilistækið á sér.
VARÚÐ! Einungis skal nota þann
kjöthitamæli sem fylgir með
tækinu eða rétta varahluti.
Kjöthitamælirinn verður að vera í
kjötinu og tengdur í innstungu á
meðan á eldun stendur.
1. Kveiktu á heimilistækinu.
2. Stingdu oddi kjöthitamælisins inn í miðju
kjötsins.
3. Stingdu klónni á kjöthitamælinum í
innstunguna efst í rýminu.
Skjárinn sýnir tákn fyrir kjöthitamælinn.
4. Ýttu á
eða í minna en 5 sekúndur til
að stilla kjarnahitastigið.
5. Stilltu hitunaraðgerðina og ef nauðsyn
krefur, hitastigið í ofninum.
Heimilistækið reiknar út áætlaðan lokatíma.
Lokatíminn er mismunandi fyrir mismunandi
magn matar, stillt ofnhitastig (lágmark
120°C) og stjórnunarhami sem eru í gangi.
Heimilistækið reiknar út lokatímann á um
það bil 30 mínútum.
6. Til að breyta hitastigi kjöthitamælisins
skaltu ýta á .
Þegar kjötið hefur náð innstilltu
kjarnahitastigi heyrist hljóðmerki. Það
slokknar sjálfkrafa á heimilistækinu.
7. Snertu hvaða tákn sem er til að stöðva
merkið.
8. Fjarlægðu kló kjöthitamælisins úr
innstungunni og taktu kjötið út úr
ofninum.
AÐVÖRUN! Skynjari
kjöthitamælisins er heitur. Hætta
er á bruna. Farðu varlega þegar
þú fjarlægir odd og kló
kjöthitamælisins.
Útdraganlegu rennurnar notaðar
Geymdu
uppsetningarleiðbeiningarnar
fyrir útdraganlegu rennurnar fyrir
notkun í framtíðinni.
ÍSLENSKA 20
/