KitchenAid 5KSM150PSEYP Užívateľská príručka

Typ
Užívateľská príručka
Íslenska
10
2
1
4
6
8
O
C
A
U
T
I
O
N
:
U
n
p
l
u
g
b
e
f
o
r
e
i
n
s
e
r
t
i
n
g
o
f
r
e
m
o
v
i
n
g
p
a
r
t
s
KitchenAid
St.
Joseph, M ichigan U SA
Model 5K45SS
MULTIFUNCTIONELE KEUKENROBOTS MET KANTELBARE KOP
GIDS VOOR HET BESTE RESULTAAT
TILT-HEAD STAND MIXERS
GUIDE TO EXPERT RESULTS
BATTEURS SUR SOCLE À TÊTE INCLINABLE
GUIDE DU CONNAISSEUR
KÜCHENMASCHINEN MIT KIPPBAREM MOTORKOPF
ANLEITUNG FÜR PROFI-ERGEBNISSE
ROBOT DA CUCINA CON CORPO MOTORE MOBILE
GUIDA PER OTTENERE RISULTATI PROFESSIONALI
BATIDORAS DE PIE CON CABEZA INCLINABLE
GUÍA PARA CONSEGUIR RESULTADOS PROFESIONALES
KÖKSMASKIN MED UPPFÄLLBART DRIVHUVUD
GUIDE FÖR BÄSTA RESULTAT
TILT-HEAD STAND KJØKKENMASKINER
VEILEDNING FOR PROFESJONELLE RESULTATER
NOSTOPÄISET PÖYTÄMALLISET YLEISKONEET
OPAS PARHAISIIN TULOKSIIN
BRUGSANVISNING TIL KØKKENMASKINE
SÅDAN FÅR DU DE BEDSTE RESULTATER
BATEDEIRAS COM POSICIONADOR DE CABEÇA MOVEL
GUIA PARA RESULTADOS PROFISSIONAIS
HRÆRIVÉL
LEIÐBEININGAR RÉTTA NOTKUN
ΜΙΞΕΡ ΜΕ ΒΑΣΗ ΚΑΙ ΚΙΝOΥΜΕΝΗ ΚΕΦΑΛΗ
ΟΔΗΓΙΕΣ ΧΡΗΣΗΣ ΓΙΑ ΤΕΛΕΙΑ ΑΠΟΤΕΛΕΣΜΑΤΑ
TM
Model 5KSM150PS/
5KSM156PS
9709851A
Íslenska
Efnisyfirlit
Öryggi hrærivélarinnar ....................................................................................................1
Mikilvæg öryggisatriði .....................................................................................................1
Rafnotkun .......................................................................................................................2
Íhlutir 5K45SS hrærivéla ...................................................................................................3
Íhlutir 5KSM150PS/5KSM156PS hrærivéla ......................................................................4
Standsetning hrærivélar ...................................................................................................5
Uppsetning hveitibrautar .................................................................................................6
Notkun KitchenAid
TM
aukahluta .......................................................................................6
Bilið á milli hrærara og skálar ............................................................................................7
Viðhald og þrif .................................................................................................................8
Hreyfimynstur..................................................................................................................8
Notkun hrærivélar ............................................................................................................8
Notkun hraðastillinga - 10-þrepa vélar .............................................................................9
Ábendingar....................................................................................................................10
Vinnsla gerdeigs ............................................................................................................11
Eggjahvítur ....................................................................................................................12
Þeyttur rjómi .................................................................................................................12
Aukahlutir - almennar leiðbeiningar ...............................................................................13
Ef vandamál koma upp ..................................................................................................14
Ábyrgð fyrir KitchenAidTM hrærivélar til heimilisnota ...................................................15
Þjónustuaðilar................................................................................................................15
Þjónusta við viðskiptavini ...............................................................................................16
1
Íslenska
MIKILVÆG ÖRYGGISRÁÐSTAFANIR
Við notkun raftækja skal alltaf taka mið af
grundvallar varrúðarráðstöfunum, þ.á.m.
eftirfarandi:
1. Lesið allar leiðbeiningar.
2. Aldrei má setja hrærivélina í vatn eða
annan vökva því það getur valdið
raflosti.
3. Hafa ætti eftirlit með börnum til að
tryggja að þau leiki sér ekki með
tækið.
4. Takið hrærivélina alltaf úr sambandi
þegar hún er ekki í notkun, áður en
tengihlutir eru festir á eða teknir af
henni og áður en hún er hreinsuð.
5. Forðist að snerta hluti sem hreyfast.
Til að koma í veg fyrir slys og/
eða skemmdir á vélinni á að halda
höndum, hári og fatnaði, sem og
sleifum og öðrum áhöldum, frá
hræraranum þegar vélin er í gangi.
6. Notið ekki hrærivélina ef snúran
eða innstungan eru skemmd, eftir
að vélin bilar eða hún hefur dottið
eða skemmst á einhvern hátt. Látið
viðurkenndan þjónustuaðila yfirfara
vélina áður en hún er aftur tekin til
notkunar.
7. Notkun aukabúnaðar sem ekki er
studdur eða seldur af KitchenAid
getur valdið eldsvoða, raflosti eða
slysum.
8. Notið hrærivélina ekki utanhúss.
9. Látið snúruna ekki hanga yfir
borðbrúnina.
10. Takið hrærarann, þeytarann eða
hnoðarann af vélinni fyrir hreinsun.
11. Ekki er ætlast til að fólk (þar með
talin börn) með minni líkamlega-,
skyn- eða andlega getu, eða sem
skortir reynslu og þekkingu, noti þetta
tæki, nema einhver, sem ber ábyrgð
á öryggi þess, hafi eftirlit með því
eða geti veitt leiðbeiningar varðandi
notkun tækisins.
Öryggi þitt og annarra er mjög mikilvægt.
Í þessum bæklingi og á vélinni eru margar mikilvægar öryggisleiðbeiningar. Lesið
þessar leiðbeiningar og fylgið þeim.
Þetta er viðvörunartákn.
Táknið merkir að hætta geti verið á ferðum.
Allar öryggisleiðbeiningar innihalda þetta tákn og annaðhvort orðið
“HÆTTA” eða “VIÐVÖRUN.” Þau þýða:
Ef ekki er farið samstundis eftir
leiðbeiningunum getur það valdið
alvarlegu slysi eða dauða.
Ef ekki er farið eftir leiðbeiningunum
getur það valdið alvarlegu slysi eða
dauða.
Í öllum öryggisleiðbeiningum kemur fram hvers konar hætta geti verið á ferðum,
hvernig hægt sé að draga úr henni og hvað geti gerst ef ekki er farið eftir
leiðbeiningunum.
HÆTTA
VIDVÖRUN
GEYMIÐ LEIÐBEININGARNAR
Þessi vara er eingöngu ætluð til heimilisnota.
Öryggi hrærivélarinnar
2
Íslenska
Hrærivélin notar venjulegt heimilisrafmagn,
220-240V AC, 50/60 herts. Rafafl í vöttum
er skráð á málmborðann. Rafafl er miðað
við þann aukahlut sem notar mesta aflið en
aðrir aukahlutir kunna að nota mun minna
afl.
Notið ekki framlengingarsnúru. Ef snúran
er of stutt, látið þá rafvirkja koma fyrir
innstungu nær vélinni.
Hætta á raflosti
Notið jarðtengda innstungu.
Notið ekki millistykki.
Notið ekki framlengingarsnúru.
Ef ekki er farið eftir þessum
leiðbeiningum getur það valdið
dauða, eldsvoða eða raflosti.
VIDVÖRUN
Rafnotkun
Þessi vara er merkt í samræmi við
ESB-tilskipun 2002/96/EB um raf- og
rafeindabúnaðarúrgang.
Með því að tryggja að rétt sé staðið að
förgun vörunnar, má draga úr mögulegum
neikvæðum áhrifum á umhverfið og heilsu
manna sem komið geta fram, sé vörunni
ekki fargað eins og til er ætlast.
Táknið
á vörunni eða skjölum sem
henni fylgja þýðir að ekki má farga henni
með venjulegu heimilissorpi. Þess í stað
skal fara með vöruna á viðeigandi
afhendingarstöð fyrir endurvinnslu raf- og
rafeindabúnaðar.
Vörunni skal fargað í samræmi við
umhverfisreglugerðir á hverjum stað um
förgun sorps.
Sé óskað eftir nánari upplýsingum um
meðferð, endurvinnslu og endurnýtingu
vöru þessarar er að jafnaði hægt
að leita til yfirvalda á hverjum stað,
sorpförgunarfyrirtækis eða verslunarinnar
þar sem vara var keypt.
3
Íslenska
Íhlutir 5K45SS hrærivéla
10
2
1
4
6
8
O
C
A
U
T
I
O
N
:
U
n
p
l
u
g
b
e
f
o
r
e
i
n
s
e
r
t
i
n
g
o
f
r
e
m
o
v
i
n
g
p
a
r
t
s
KitchenAid
St. Joseph, M ichigan US A
Vélarhús
Stilliskrúfa fyrir
hæð vélar
Læsing fyrir
vélarhús
(sést ekki)
Hnappur fyrir tengihluti
Naf fyrir tengihluti
Hrærari
Þeytari
Hnoðari
Hraða-
stillir
Skálarfesting
Öxull
4,25 lítra
skál úr
ryðfríu
stáli án
handfangs
4
Íslenska
Vélarhús
Stilliskrúfa fyrir
hæð vélar
Læsing fyrir
vélarhús
(sést ekki)
Hnappur fyrir tengihluti
Naf fyrir tengihluti
Hrærari
Þeytari
Hnoðari
Hraða-
stillir
Skálarfesting
Öxull
4,83 lítra skál úr
ryðfríu stáli með
vinnuvistfræðilegu
handfangi
Íhlutir 5KSM150PS/5KSM156PS hrærivéla
Hveitibraut
5
Íslenska
Standsetning hrærivélar
Skálin fest
1. Setjið hraðastillinguna á „O“.
2. Takið úr sambandi á hrærivélinni eða
við vegg.
3. Setjið læsinguna í AFLÆSTA stöðu og
lyftið vélarhúsinu.
4. Setjið skálina á festinguna.
5. Snúið skálinni varlega réttsælis
á festinguna.
Skálin tekin úr
1. Setjið hraðastillinguna á „O“.
2. Takið úr sambandi á hrærivélinni eða
við vegg.
3. Setjið læsinguna í AFLÆSTA stöðu og
lyftið vélarhúsinu.
4. Snúið skálinni rangsælis.
Hrærari, þeytari eða
hnoðari settur á
1. Setjið hraðastillinguna á „O“.
2. Takið úr sambandi á hrærivélinni eða
við vegg.
3. Setjið læsinguna í AFLÆSTA stöðu og
lyftið vélarhúsinu.
4. Festið hrærarann á snúningsskaftið og
ýtið honum upp eins og hægt er.
5. Snúið hræraranum til hægri þannig að
hann festist á snúningsskaftinu.
Hrærari, þeytari eða hnoðari
tekinn af
1. Setjið hraðastillinguna á „O“.
2. Takið úr sambandi á hrærivélinni eða
við vegg.
3. Setjið læsinguna í AFLÆSTA stöðu og
lyftið vélarhúsinu.
4. Ýtið hræraranum upp eins og hægt er
og snúið honum til vinstri.
5. Togið hrærarann af öxlinum.
Vélarhúsinu læst
1. Gangið úr skugga um að vélarhúsið sé
alveg niðri.
2. Setjið læsinguna í LÆSTA stöðu.
3. Prófið að lyfta húsinu áður en vélin er
sett í gang.
Læsing tekin af mótorhúsi
1. Setjið læsinguna í AFLÆSTA stöðu.
ATHUGIÐ: Vélarhúsið á alltaf að vera í
LÆSTRI stöðu þegar hrærivélin er í gangi.
Hraðastilling
Setjið vélina í samband við viðeigandi
innstungu. Hraðastillingin á alltaf að vera í
lægstu stöðu þegar vélin er sett í gang og
hraðinn svo aukinn smátt og smátt upp
í þann hraða sem óskað er til að koma
í veg fyrir skvettur. Sjá hluta „Notkun
hraðastillinga - 10-þrepa vélar“
Pinni
10
21
4
6
8
O
Slysahætta
Takið hrærivélina úr sambandi
áður en hrærarinn er snertur.
Sé ekki farið eftir þessu, getur
það valdið beinbrotum, skurðum
eða mari.
VARÚÐ
6
Íslenska
Notkun KitchenAid
TM
aukahluta
Hrærari fyrir venjuleg og þykk deig:
kökur kex
krem brauð með lyftidufti
sælgæti kjöthleifur
smákökur kartöflumús
bökudeig
Þeytari fyrir loftmiklar blöndur:
egg svampkökur
eggjahvítur englakökur
þeyttur rjómi majónes
soðinn glassúr sumt sælgæti
Hnoðari fyrir vinnslu gerdeigs:
brauð kaffibrauð
rúnstykki bollur
pítsudeig
Hveitibraut sett á
1. Setjið hraðastillinguna á „O“.
2. Takið úr sambandi á hrærivélinni eða við
vegg.
3. Festið skálina og hrærara, hnoðara eða
þeytara. Sjá „Standsetning hrærivélar“.
4. Rennið hveitibrautinni yfir
hrærivélaskálina framanverða, þar
til brautin er fyrir miðju. Neðri brún
brautarinnar ætti að falla ofan í skálina.
Hveitibrautin fjarlægð
1. Setjið hraðastillinguna á „O“.
2. Takið úr sambandi á hrærivélinni eða við
vegg.
3. Lyftið fremri hluta hveitibrautarinnar
yfir brún skálarinnar og dragið fram.
4. Fjarlægið tengihluta og skál.
Notkun hveitibrautar
1. Besti árangur næst sé brautinni snúið
þannig að vélarhúsið hylji „u-laga“
opið á brautinni. Brautin kemur hægra
megin við tenginafið ef horft er framan
á vélina.
2. Hellið því sem á að fara í skálina í
rennuna.
Uppsetning hveitibrautar*
* Ef hveitibraut fylgir með.
Renna
7
Íslenska
Frá verksmiðju er hrærivélin stillt þannig að aðeins örlítið bil er á milli hrærara og skálar. Ef
hann af einhverjum ástæðum snertir skálina eða hann er of langt frá botni má stilla bilið á
auðveldan hátt.
Bilið á milli hrærara og skálar
1. Setjið hraðastillinguna á „O“.
2. Takið úr sambandi á hrærivélinni eða við
vegg.
3. Lyftið vélarhúsinu.
4. Snúið skrúfunni (A) örlítið rangsælis
(til vinstri) til að lyfta hræraranum eða
réttsælis (til hægri) til að lækka hann.
5. Stillið bilið þannig að hrærarinn sé við
það að snerta botninn. Ef skrúfan er
ofstillt getur verið að skálin læsist ekki.
ATHUGIÐ: Sé hrærarinn rétt stilltur,
mun hann hvorki snerta botn né hliðar
skálarinnar. Ef þeytari eða hrærari snerta
botn skálarinnar getur það valdið sliti á
áhöldunum.
A
8
Íslenska
Skálina, hrærarann og hnoðarann má
þvo í uppþvottavél. Annars á að þvo þá
vandlega upp úr heitu sápuvatni og skola
vel fyrir þurrkun. Ekki geyma áhöld á
snúningsskaftinu.
ATHUGIÐ: Þeytarinn má ekki fara í
uppþvottavél!
ATHUGIÐ: Takið hrærivélina alltaf úr
sambandi fyrir hreinsun. Þurrkið af henni
með mjúkum, rökum klút. Notið ekki
hreinsiefni. Dýfið ekki vélinni í vatn.
Þurrkið reglulega af snúningsskaftinu til að
fjarlægja leifar sem kunna að safnast þar.
Viðhald og hreinsun
Þegar hrærivélin er í
gangi snýst hrærarinn
í hringi í kyrri skálinni
og snýst jafnframt
öfugur um sjálfan
sig. Á myndinni sést
hvernig hrærarinn fer
um alla skálina.
KitchenAid
TM
hrærivélin vinnur hraðar
og betur en flestar aðrar hrærivélar.
Vinnslutíma uppskrifta verður að miða við
þetta til að koma í veg fyrir ofvinnslu.
Hreyfimynstur
Notkun hrærivélar
ATHUGIÐ: Ekki má skafa skálina þegar
vélin er í gangi.
Hönnun skálar og hrærara miðast við að
ekki þurfi að skafa skálina oft. Yfirleitt
nægir að skafa einu sinni eða tvisvar við
hverja hræru. Slökkvið á vélinni áður en
skafið er.
Hrærivélin getur hitnað við notkun.
Ef álagið er mikið í langan tíma getur
vélarhúsið orðIð svo heitt að varla er hægt
að snerta efsta hlutann. Ekkert er óeðlilegt
við það.
Slysahætta
Takið hrærivélina úr sambandi
áður en hrærarinn er snertur.
Sé ekki farið eftir þessu, getur
það valdið beinbrotum, skurðum
eða mari.
VARÚÐ
9
Íslenska
Notkun hraðastillinga – 10 þrepa vélar
Allar hraðastillingar byrja sjálfkrafa með Soft Start™ sem þýðir að vélin byrjar á lágum
hraða þegar hún er sett í gang til að koma í veg fyrir skvettur í byrjun. Hún eykur svo
hraðann fljótlega upp að því þrepi valið var.
Hraðastillingarþrep
Blöndunar-
hraði HRÆRA Hæg hreyfing, blandar og maukar, byrjunarstig
allrar vinnslu. Notað til að bæta í hveiti og
þurrum efnum í deig og blanda vökva í þurr
efni. Notið ekki hraðaþrep 1 til að blanda eða
hnoða gerdeig.
2 HÆGBLÖNDUN Hæg hreyfing, blandar, maukar og hrærir
hraðar. Notað til að blanda og hnoða gerdeig,
þykk deig og sælgæti. Byrjunarstig fyrir
kartöflumús og annað grænmetismauk. Notað
til að hræra smjörlíki saman við hveiti og til
að hræra þunn og blaut deig. Notað þegar
dósaopnari er settur í tengið.
4 BLÖNDUN Notað til að hræra meðalþykk deig svo sem
HRÆRING smákökur og til að krema sykur og smjör eða
bæta sykri út í eggjahvítur fyrir marens.
Meðalhraði fyrir kökur. Notað fyrir aukahlutina
hakkavél, rifjárn, pastarúllu og grænmetspressu.
6 HRÆRING, KREMAÐ Meðalhröð hræring (kremkennd áferð) eða
þeyting. Notað sem lokastig á kökudeig,
kleinuhringi og önnur þunn deig. Hár hraði
fyrir kökudeig. Notað þegar sítruspressan er
sett í tengið.
8 HRÖÐ HRÆRING Notað til að þeyta rjóma, eggjahvítur og glassúr.
ÞEYTING
10 HRÖÐ ÞEYTING Notað til að þeyta minni skammta af rjóma,
eggjahvítum eða til að ljúka við kartöflumús.
Notað fyrir aukahlutina pastapressu og kornkvörn.
ATHUGIÐ: Heldur ekki háum hraða ef álagið
er mikið svo sem við notkun pastapressu og
kornkvarnar.
ATHUGIÐ:
Hægt er að velja hraðastillingar á milli hraðaþrepana í ofangreindri töflu.
Þannig má velja 3, 5, 7 og 9 og fínstilla hraðann. Notið ekki meiri hraða en þrep 2
við vinnslu gerdeigs þar sem það getur skemmt vélina.
10
Íslenska
Ábendingar
Aðlagið uppskriftir að hrærivélinni
Hægt er að nota leiðbeiningarnar í þessum
bæklingi til að laga uppáhaldsuppskriftir að
KitchenAid
TM
hrærivélinni.
Nota verður eigin hyggjuvit til að
ákveða vinnulagið. Fylgist með deiginu og
hættið að hræra þegar deigið hefur náð
því útliti sem það á að hafa samkvæmt
uppskriftinni, t.d. „mjúkt og kremkennt“.
Styðjist við hlutann „Notkun hraðastillinga
- 10-þrepa vélar“ til að ákveða hraðann.
Hráefni bætt í skálina
Þegar flest deig eru hrærð (sérstaklega
kökur og smákökur) er almenna reglan sú
að nota:
1
3 þurrum efnum
1
2 vökva
1
3 þurrum efnum
1
2 vökva
1
3 þurrum efnum
Notið hraðaþrep 1 þar til allt hefur blandast
saman og aukið svo hraðann smám saman
þar til þeim hraða sem óskað var eftir hefur
verið náð.
Hellið alltaf í skálina eins nálægt hlið hennar
og hægt er en ekki beint út í hana. Hægt er
að nota hveitibraut til að auðvelda þetta.
ATHUGIÐ: Ef efni á botni skálarinnar
blandast ekki í deigið er hrærarinn ekki
nógu langt niðri í skálinni. Sjá hluta „Bilið á
milli hrærara og skálar“.
Kökumix
Þegar unnið er með tilbúin kökumix er
notast við þrep 4 fyrir meðalhraða og þrep
6 fyrir hraða hræringu. Til að árangur verði
sem bestur á að hræra í þann tíma sem
gefinn er upp á umbúðunum.
Hnetum, rúsínum og sykruðum
ávöxtum bætt út í
Hörðum efnum á að bæta út í á síðustu
sekúndum vinnslu á hraðaþrepi 1. Deigið
á að vera nógu þykkt til að hneturnar eða
ávextirnir sökkvi ekki til botns í forminu á
meðan bakað er. Klístrugum ávöxtum skal
velt upp úr hveiti svo þeir dreifist betur um
deigið.
Vökvamikið deig
Deig með miklum vökva á að hræra á lægri
hraða til að koma í veg fyrir skvettur.
Hraðinn er aukinn þegar deigið hefur
þykknað.
Gerdeig hnoðað
Notið ALLTAF hnoðarann til að hræra og
hnoða gerdeig. Notið þrep 2 fyrir gerdeig.
Ef önnur þrep eru notuð er hætta á að
vélin bili.
Ekki nota uppskriftir sem þurfa meira en
0,87 kg (7 bolla) af hveiti eða 0,81 kg
(6 bolla) af heilhveiti þegar 4,25 lítra skál
er notuð.
Ekki nota uppskriftir sem þurfa meira en
1 kg (8 bolla) af hveiti eða 0,81 kg (6 bolla)
af heilhveiti þegar 4,8 llítra skál er notuð.
11
Íslenska
Hér er átt við „hraðblöndunaraðferðina“
við brauðbakstur þ.e. þurrgerið er sett út í
ásamt öðrum þurrefnum áður en vökva er
bætt út í. Hefðbundna aðferðin er að leysa
gerið upp í volgu vatni.
1. Setjið öll þurru efnin, ásamt gerinu, í
skálina fyrir utan 25-250 gr. (1-2bolla)
af hveiti.
2. Setjið skálina og hnoðarann í vélina.
Læsið vélhúsinu, setjið á hraðaþrep 2
og hrærið í um 15 sekúndur eða þar til
efnin hafa blandast vel.
3. Hrærið áfram á hraðaþrepi 2 en bætið
vökva hægt út í og hrærið áfram í 1-2
mínútur að því loknu.
ATHUGIÐ: Ef vökva er bætt of hratt út
í safnast hann við hnoðarann sem lengir
vinnslutímann.
4. Haldið áfram á hraðaþrepi 2 og bætið
því sem eftir er af hveitinu hægt út í,
60 gr. (hálfum bolla) í senn. Hrærið
þangað til deigið loðir við krókinn
og hreinsar hliðarnar eða í um tvær
mínútur.
5. þegar deigið loðir við krókinn hnoðIð þá
á hraðaþrepi 2 í um tvær mínútur eða
þar til deigið er mjúkt og teygjanlegt.
6. Aflæsið, lyftið vélarhúsinu og takið deigið
af króknum. Farið eftir leiðbeiningum
um hefun, form og bakstur.
Þegar hefðbundin aðferð er notuð er gerið
leyst upp í volgu vatni í volgri skál.
Vökva og þurrum efnum er svo bætt út í
fyrir utan 125-250 gr. (1-2 bolla) af hveiti.
Hrært á þrepi 2 í um eina mínútu eða þar til
efnin hafa blandast vel og svo haldið áfram
samkvæmt þrepum 4-6.
Báðar aðferðirnar duga jafn vel við
brauðbakstur en fljótvirka aðferðin getur
verið nokkuð sneggri og einfaldari fyrir
byrjendur. Hitastigið skiptir minna máli
þar sem gerið er sett út í ásamt öðrum
þurrefnum en ekki leyst upp í volgum vökva.
Vinnsla gerdeigs
12
Íslenska
Eggjahvítur
Setjið eggjahvítur í hreina þurra skál við
stofuhita. Setjið skál og þeytara í hrærivélina.
Til að koma í veg fyrir skvettur á að hækka
smátt og smátt upp í þann hraða sem óskað
er og þeyta þar til þykktin er eins og hún á
að vera. Sjá töflu hér að neðan.
MAGN HRAÐI
1 eggjahvíta ...........SMÁTT OG SMÁTT
.........................................upp að 10
2-4 eggjahvítur ..........SMÁTT OG SMÁTT
........................................... upp að 8
6 eggjahvítur ..........SMÁTT OG SMÁTT
........................................... upp að 8
Þeytistig
Fljótlegt er að þeyta eggjahvítur með
KitchenAid
TM
hrærivél, en það þarf að gæta
þess að ofþeyta þær ekki. Hér sést við
hverju má búast.
Froðukennt
Stórar, ójafnar loftbólur.
Byrja að halda lögun sinni
Litlar, þéttar loftbólur og massinn er hvítur.
Mjúkir toppar
Topparnir falla þegar þeytarinn er
fjarlægður.
Næstum stíf
Hvassir toppar myndast þegar þeytarinn er
fjarlægður en eggjahvítan er mjúk.
Stíf en ekki þurr
Hvassir, stífir toppar myndast þegar
þeytarinn er fjarlægður. Hvítan er einsleit
og gljáandi.
Stíf og þurr
Hvassir, stífir toppar myndast þegar
þeytarinn er fjarlægður. Hvítan er blettótt
og óásjáleg.
Þeyttur rjómi
Hellið köldum rjóma í kælda skálina. Setjið
skál og þeytara í hrærivélina. Til að koma
í veg fyrir skvettur á að hækka smátt og
smátt upp í þann hraða sem óskað er og
þeyta þar til þykktin er orðin eins og hún á
að vera. Sjá töflu hér að neðan.
MAGN HRAÐI
59 ml (
1
4 bolli) ............SMÁTT OG SMÁTT
.............................................upp að 10
118 ml (
1
2 bolli) ..........SMÁTT OG SMÁTT
.............................................upp að 10
236 ml (1 bolli) ...........SMÁTT OG SMÁTT
............................................... upp að 8
472 ml (1 lítri) .............SMÁTT OG SMÁTT
............................................... upp að 8
Þeytistig
Fylgist vel með þegar rjóminn þeytist. Þar
sem rjómi þeytist svo fljótt í KitchenAid
TM
hrærivél eru aðeins fáeinar sekúndur á
milli stiganna. Fylgist með eftirfarandi
einkennum:
Byrjar að þykkna
Rjóminn er þykkur og kremkenndur.
Heldur lagi
Rjóminn myndar mjúka toppa þegar
þeytarinn er fjarlægður. Hægt að blanda í
annað t.d. eftirrétti og sósur.
Stífur
Rjóminn er stífur og hvassir toppar
myndast þegar þeytarinn er fjarlægður. Nú
má nota hann á kökur og eftirrétti eða í
rjómabollufyllingu.
13
Íslenska
Aukahlutir
Sett á
1. Setjið hraðastillinguna á „O“.
2. Takið úr sambandi við hrærivél eða
vegg.
3. Losið tengihnappinn með því að snúa
honum rangsælis.
4. Lyftið lokinu af tenginu.
5. Stingið öxulinum inn í tengið og
gangið úr skugga um að öxullinn
gangi vel inn í það. Nauðsynlegt getur
verið að snúa aukahlutnum til að fá
öxulinn inn. þegar aukahluturinn er í
réttri stöðu passar pinninn á honum í
skoruna á kanti tengisins.
6. HerðIð tengihnappinn með því að snúa
honum réttsælis þar til aukahluturinn
er alveg fastur á hrærivélinni.
7. Stingið snúrunni í samband.
Tekið af
1. Setjið hraðastillinguna á „O“.
2. Takið úr sambandi við hrærivélina eða
við vegg.
3. Losið tengihnappinn með því að snúa
honum rangsælis. Snúið aukahlutnum
lítið eitt þegar skaftið er tekinn út.
4. Setjið lokið aftur á nafið. Herðið
tengihnappinn með því að snúa honum
réttsælis.
Almennar upplýsingar
KitchenAid
TM
aukahlutir eru hannaðir með endingu í huga. Öxullinn og tengið eru
ferköntuð til að koma í veg fyrir að öxullinn snuði í tenginu. Öxullinn og öxulhúsið
eru keilulaga til að tryggja að þau falli þétt inn í tengið þrátt fyrir mikla notkun og slit.
KitchenAid
TM
aukahlutir þurfa ekki aukaorkugjafa, aflgjafi er innbyggður.
Sjá leiðbeiningarnar um notkun og meðferð fyrir aukahluti á standhrærivél varðandi
hraðastillingar og notkunartíma.
Ekki hluti af hrærivélinni
Almennar leiðbeiningar
Naf fyrir tengihluti
Hnappur fyrir
tengihluti
Skora
Pinni
Skafthús
Aflskaft
Hús
14
Íslenska
Vinsamlegast lesið eftirfarandi áður
en samband er haft við þjónustuaðila.
1. Hrærivélin getur hitnað við notkun.
Ef álagið er mikið í langan tíma getur
mótorhúsið orðið svo heitt að varla
er hægt að hafa hönd á því. Ekkert er
óeðlilegt við það.
2. Hrærivélin getur gefið frá sér sterka
lykt, sérstaklega þegar hún er ný. þetta
á almennt við um rafmagnsmótora.
3. Stöðvið vélina ef hrærarinn snertir botn
skálarinnar. „Bilið á milli hrærara og
skálar”.
Ef hrærivélin bilar eða virkar ekki sem
skyldi, skal athuga eftirfarandi:
- Er hrærivélin í sambandi?
- Er öryggið fyrir innstunguna í lagi?
Gangið úr skugga um að lekaliða hafi
ekki slegið út.
- Slökkvið á vélinni í 10-15 sekúndur og
kveikið svo aftur á henni. Ef hún fer ekki í
gang látið hana þá standa og kólna í
30 mínútur áður en reynt er aftur.
- Ef vandamálið er ekkert af
ofansögðu hafið þá samband við
þjónustumiðstöðina.
Ef vandamál koma upp
Hætta á raflosti
Stingið í samband við
jarðtengda innstungu
Ekki nota millistykki
Ekki nota framlengingarsnúru
Sé þessu ekki fylgt, getur það
valdið dauða, eldsvoða eða
raflosti
15
Íslenska
Lengd ábyrgðar:
Fyrir Artisan
TM
hrærivélar
5KSM150/156PS:
Fimm ára full ábyrgð frá
kaupdegi.
Fyrir KitchenAid
TM
Classic
hrærivélar 5K45SS:
Tveggja ára full ábyrgð frá
kaupdegi.
KitchenAid greiðir fyrir:
Kostnað við varahluti
og viðgerðarvinnu á
efnisgöllum. Þjónustuna
verður viðurkenndur
KitchenAid þjónustuaðili
að veita.
KitchenAid greiðir
ekki fyrir:
A. Viðgerð ef hrærivélin
hefur verið notuð til
annars en venjulegrar
matvælavinnslu.
B. Skemmdir vegna
slysa, breytinga,
rangrar notkunar eða
tengingar á skjön við
rafmagnsreglugerð á
viðkomandi stað.
KITCHENAID TEKUR EKKI ÁBYRGÐ Á TILFALLANDI EÐA AFLEIDDUM
SKEMMDUM.
Ábyrgð fyrir KitchenAid
TM
hrærivélar
til heimilisnota
Þjónustuaðilar
Öll þjónusta Hafið samband við þann
söluaðila þar sem varan var keypt til að
fá upplýsingar um næsta viðurkennda
KitchenAid þjónustuaðila.
EINAR FARESTVEIT & CO.HF
Borgartúni 28
125 REYKJAVIK
ISLAND
Sími verslun: 520 7901
Skrifstofa: 520 7900
Fax: 520 7910
ef@ef.is
16
Íslenska
® Skrásett vörumerki KitchenAid, BNA.
™Vörumerki KitchenAid, BNA.
Lögun sjálfstandandi hrærivélarinnar er vörumerki KitchenAid, Bandaríkjunum
© 2010. Öll réttindi áskilin.
Tækniforskrift getur breyst án fyrirvara.
Þjónusta við viðskiptavini
EINAR FARESTVEIT & CO.hf
Borgartúni 28
125 REYKJAVIK
ISLAND
Sími verslun: 520 7901
Skrifstofa: 520 7900
Fax: 520 7910
ef@ef.is
www.KitchenAid.eu
9709851A 9/10
TM
TM
  • Page 1 1
  • Page 2 2
  • Page 3 3
  • Page 4 4
  • Page 5 5
  • Page 6 6
  • Page 7 7
  • Page 8 8
  • Page 9 9
  • Page 10 10
  • Page 11 11
  • Page 12 12
  • Page 13 13
  • Page 14 14
  • Page 15 15
  • Page 16 16
  • Page 17 17
  • Page 18 18

KitchenAid 5KSM150PSEYP Užívateľská príručka

Typ
Užívateľská príručka

V iných jazykoch