Aeg-Electrolux L52820 Používateľská príručka

Typ
Používateľská príručka
LAVAMAT 52820
Þvottavél
Notendaleiðbeiningar
2
Kæru viðskiptavinir,
vinsamlega lesið notendaleiðbeiningarnar vel, og geymið þær til að
geta flett upp í þeim síðar.
Ef þvottavélin skiptir um eigendur , látið þá leiðbeiningarnar fylgja.
Eftirtalin tákn eru notuð í textanum:
1 Öryggi
Aðvörun! Leiðbeiningar, sem stuðla að bættu öryggi notenda.
Athugið! Leiðbeiningar, sem koma í veg fyrir að vélin skemmist.
3 Leiðbeiningar og hagnýt ráð
2 Umhverfisupplýsingar
3
Efnisyfirlit
Notkunarleiðbeiningar. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 5
Öryggi. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 5
Förgun . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 6
Lýsing . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 7
Stjórnborð . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 7
Yfirlit þvottakerfa . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 8
Fyrir fyrsta þvott . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 10
Yfirferð og flokkun á þvotti . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 10
Farið í gegnum þvottakerfi . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 11
Hurðin opnuð/Þvottur settur í . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 11
Fylla á þvottaefni/mýkingarefni . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 11
Kveikt á vél/Þvottakerfi valið . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 12
Þeytivinduhraða breytt/Skolstopp valið . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 13
Val á viðbótarstillingum . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 13
FORÞVOTTUR. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 13
HRAÐÞVOTTUR . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 13
Kveikt/slökkt á aukaskolun . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 14
Stilling á tímavali. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 14
Gangsetning þvottakerfis . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 15
Þvottakerfi stöðvað/Þvotti bætt við . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 15
Þvottakerfi lýkur/Þvottur tekinn út . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 15
Barnaöryggi. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 16
Hreinsun og umhirða. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 16
Hvað skal gera, þegar.... . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 18
Minniháttar truflanir er hægt að laga sjálf(ur) . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 18
Þegar þvotturinn þvæst ekki nógu vel . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 20
Neyðartæming . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 21
Skolvatnsdæla . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 22
Tæknilegar upplýsingar. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 23
Notkunargildi . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 23
4
Leiðbeiningar um uppsetningu og tengingu. . . . . . . . . . . . . 24
Öryggisleiðbeiningar fyrir uppsetningu. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 24
Uppsetning vélarinnar. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 25
Flutningur vélarinnar. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 25
Flutningfestingar fjarlægðar . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 25
Uppsetningarstaður . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 28
Uppsetning tækis . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 28
Tenging við rafmagn . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 28
Tenging við vatn. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 29
Tenging við vatn. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 29
Frárennsli vatns . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 31
Ábyrgðarskilmálar. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 32
Þjónustumiðstöðvar viðskiptavina. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 33
Þjónusta. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 35
5
Notkunarleiðbeiningar
1 Öryggi
Áður en vélin er tekin í notkun
Farið eftir “Leiðbeiningum um uppsetningu og tengingu“.
Þegar vélin er afhent að vetri og hiti er undir frostmarki: Látið
þvottavélina standa við herbergishita í 24 klst áður en hún er tekin í
notkun.
Rétt notkun
Þvottavélin er einungis ætluð fyrir venjulegan heimilisþvott, og til
notkunar á heimilum.
Ekki er leyfilegt að breyta þvottavélinni eða endurbyggja hana.
Notið aðeins þvotta- og mýkingarefni sem ætluð eru fyrir
heimilisþvottavélar.
Ekki mega vera nein eldfim leysiefni í þvottinum. Hætta á sprengingu!
Ekki nota þvottavélina til efnahreinsunar.
Aðeins má nota litunar- eða aflitunarefni í þvottavélinni ef
framleiðendur efnanna taka skýrt fram að það megi. Við getum ekki
ábyrgst skaða sem af kann að hljótast.
Öryggi barna
Geymið umbúðir þar sem börn ná ekki til. Hætta á köfnun!
Börn átta sig oft ekki á hættunum sem geta stafað af raftækjum og
umgengni við þau. Látið börn aldrei vera án eftirlits nálægt
þvottavélinni.
Verið ávallt viss um að börn eða lítil dýr klifri ekki inn í tromlu
þvottavélarinnar. Lífshætta!
Almennt öryggi
Aðeins löggiltir fagmenn mega sinna viðgerðum á þvottavélinni.
Takið þvottavélina aldrei í notkun ef rafmagnssnúran er skemmd eða
ef skjár eða ytra byrði vélarinnar eru svo skemmd að opið sé inn í
vélina.
Slökkvið á vélinni áður en hún er hreinsuð eða viðhaldi sinnt. Takið
einnig rafmagnsklóna úr sambandi eða –ef vélin er fasttengd –
slökkvið á LS-rofa í rafmagnstöflu eða skrúfið skrúföryggi alveg úr.
6
Ef ekki á að nota vélina um einhvern tíma bera að taka hana úr
sambandi við rafmagn og skrúfa fyrir vatn.
Aldrei taka vélina úr sambandi með því að toga í snúruna, takið ávallt
um rafmagnsklóna sjálfa.
Notið ekki fjölliða klær, millistykki eða framlengingarsnúrur.
Brunahætta vegna ofhitnunar!
Ekki hreinsa vélina með því að sprauta á hana vatni. Hætta á raflosti!
Þegar þvegið er á miklum hita hitnar glerið í hurð vélarinnar. Ekki
snerta!
Áður en neyðartæming er framkvæmd, áður en skolvatnsdæla er
hreinsuð eða dyrnar eru opnaðar í neyð skal leyfa skolvatninu að
kólna.
Smádýr geta nagað rafmagnssnúru og vatnsslöngur svo að þær
skemmist. Hætta á raflosti eða vatnstjóni! Gætið þess að dýr komist
ekki að þvottavélinni.
Förgun
2
Umbúðir
Allar umbúðirnar eru umhverfisvænar og endurvinnanlegar. Plasthlutar
eru merktir með alþjóðlega stöðluðum skammstöfunum, t. d. >PE<,
>PS< o.s.frv. Fargið umbúðum utan af vélinni á endurvinnslustöð.
2 Eldri vélar
Táknið
W á vörunni eða á umbúðum hennar táknar að vöruna megi
ekki meðhöndla sem heimilissorp. Þess í stað ber að skila henni á
viðeigandi endurvinnslustöð sem tekur við rafeindabúnaði og
rafmagnstækjum. Með því að tryggja að vörunni sé fargað á réttan hátt
stuðlar þú að því að koma í veg fyrir neikvæð áhrif sem röng förgun
vörunnar gæti hugsanlega haft á umhverfi og heilsu. Nánari
upplýsingar um endurvinnslu þessarar vöru er hægt að fá hjá
yfirvöldum hreinsunarmála í þínu sveitarfélagi eða í versluninni þar sem
varan var keypt.
1 Aðvörun! Þegar vél er orðin úrelt skal taka rafmagnsklóna úr sambandi.
Klippið rafmagnssnúruna í sundur og fjarlægið ásamt klónni.
Eyðileggið lásinn á hurðinni. Þá geta börn ekki lokað sig inni í vélinni,
en það er lífshættulegt.
7
Lýsing
Stjórnborð
Þvottaefnishólf
Skrúfufætur
(stillanleg hæð)
Sökkulspjald/
skolvatnsdæla
Tegundarspjald
(á bak við dyrnar)
Stjórnborð
Hnappur TÍMAVAL
Hnappur Þeytivinda/SKOLSTOPP
Framvindugaumljós
Kerfisvalhnappur
Hnappur START/STOPP
Gaumljós HURÐ
Hnappar fyrir
viðbótarstillingar
8
Yfirlit þvottakerfa
Þvottakerfi
mesta hleðsla
1)
(þurr þvottur)
1) 10 lítra geymir tekur um 2,5 kg af þurrum þvotti (bómull)
Viðbótarstillingar
Snúningshraði
þeytivindu
SKOLSTOPP
FORÞVOTTUR
HRAÐÞVOTTUR
1200
1000
600
ORKUSPARNAÐUR
2)
2) Kerfisstillingum fyrir prófanir í samræmi við EN 60 456 og IEC 60 456 (eða þar sem þær reglur eru
notaðar til viðmiðunar) er lýst í kaflanum “Notkunargildi”.
6kg
AÐALÞVOTTUR
95, 60, 40, 30
6kg
3)
3) Ráðlagt hámarksmagn í styttri kerfum er 3kg; hægt er að hafa hámarksmagn, en þó með eitthvað minni
þvottagæðum.
STRAUFRÍTT
60, 40
3kg
STUTT STRAUFRÍTT 40 1kg
VIÐKVÆMT
40, 30
3kg
ULL/SILKI H (handþvottur)
KALT, 30
2kg
SKOLUN 3kg
VATNSLOSUN -
VINDING 6kg
9
Notkun/Eiginleikar Þvottamerki
1)
1) Tölurnar á þvottamerkjunum sýna hver er hæsti leyfilegi hiti.
Orkusparnaðarkerfi við 60 °C fyrir lítið til venjulega óhreinan suðu- eða
blandaðan þvott úr bómull/hör.
M O
Kerfi fyrir venjulega til mikið óhreinan suðu- eða blandaðan þvott úr bómull/
hör.
J M O
Þvottakerfi fyrir blönduð, straufrí efni og fyrir gerviefni.
K N
Sérstakt kerfi við 40 °C fyrir straufría vefnaðarvöru sem að loknu þessu kerfi
þarf aðeins að strauja létt eða alls ekki.
K N
Kerfi fyrir viðkvæman þvott, t.d. fíngerða vefnaðarvöru á borð við örtrefjar,
gerviefni og gardínur (mest. 20 til 25 m
2
af gardínum í eina vél). Ef
SKOLSTOPP er notað má einnig nota þvottakerfið fyrir föt úr efni sem andar,
t.d. útivistarfatnað.
I K
Sérlega milt kerfi fyrir vél- og handþvoanlega ull/silki.
Q L H
Sérstök vægileg skolun (3 umferðir, fljótandi mýkingarefni bætt við úr
skolhólfi
&
, vinding). Hentar ekki fyrir ull. Ef þvotturinn er straufrír eða
viðkvæmur ber að draga úr vinduhraða.
J M O
Vatnslosun að loknu skolstoppi.
Vatnslosun og vinding, t.d. að loknu skolstoppi, eða sérstök vinding fyrir
handþvegin plögg sem þola venjulegan þvott. Ef þvotturinn er straufrír,
viðkvæmur eða úr ull ber að draga úr vinduhraða.
J M O
10
Fyrir fyrsta þvott
1.Opnið þvottaefnisskúffuna.
2.Hellið um 2 lítra af vatni í þvottavélina gegnum þvottaefnisskúffuna.
3.Til að losna við efni sem hugsanlega kunna að sitja í tromlu eða belg
eftir frágang vélarinnar frá verksmiðju skal í fyrsta þvotti þvo vélina
tóma. Þvottakerfi: AÐALÞVOTTUR 95, ýtið á hnapp HRAÐÞVOTTUR,
setjið í u.þ.b. 1/4 mæliskeið af þvottadufti.
Yfirferð og flokkun á þvotti
Yfirferð þvottar
Tæmið vasa. Fjarlægið aðskotahluti (t.d. smámynt, bréfaklemmur,
nagla o.s.frv.).
Rennið upp rennilásum og hneppið hnappa til að koma í veg fyrir
skemmdir á þvotti.
Fjarlægið gardínufestingar eða búið um gardínur í þvottaneti.
Þvoið viðkvæman þvott og smáhluti í þvottaneti eða koddaveri, t.d.
gardínur, sokkabuxur, smásokka, vasaklúta eða brjóstahaldara.
Athugið! Þvoið brjóstahaldara og önnur plögg með málmspöngum
aðeins í þvottaneti. Spangir geta losnað og valdið skemmdum á vélinni.
Flokkun þvottar
Eftir lit: Þvoið hvítan og litaðan þvott hvorn í sínu lagi. Þvotturinn
getur litað frá sér.
Eftir hitastigi, tegund þvottar og skv. þvottamerki.
Athugið! Ekki þvo vefnaðarvöru með merkinu G (= má ekki þvo!) í
þvottavél.
11
Farið í gegnum þvottakerfi
Hurðin opnuð/Þvottur settur í
1.Opnið hurðina: togið í handfang hurðarinnar.
Þegar kveikt er á vélinni sýna gaumljósin HURÐ og START/STOPP hvort
hægt sé að opna hurðina:
2.Raðið þvottinum þannig í vélina að
hann sé laus í sér og ekki flæktur.
Blandið saman stórum og smáum
stykkjum.
Athugið! Ekki klemma þvott á milli
hurðarinnar og gúmmíþéttilistans.
3.Lokið hurðinni vel. Smellur verður
að heyrast í lásnum.
Fylla á þvottaefni/mýkingarefni
Athugið! Notið aðeins þvotta- og mýkingarefni sem ætluð eru fyrir
venjulegar heimilisþvottavélar.
Fylgið leiðbeiningum um skammtastærð þvotta- eða mýkingarefnis frá
framleiðanda efnisins. Farið eftir ráðleggingum á umbúðunum.
Skammtastærð fer eftir ýmsu:
hversu óhreinn þvotturinn er,
hve mikill þvotturinn er,
herslustigi kranavatnsins.
Ef framleiðandinn gefur ekki upp skammtastærð fyrir lítið magn af
þvotti: Notið þriðjungi minna fyrir hálf-fulla vél, og ef mjög lítið er í
vélinni notið þá aðeins helming þess þvottaefnis sem mælt er með
fyrir fulla vél.
Ef vatnsherslustig er 2 eða hærra (á ekki við á Íslandi) ber að nota
vatnsmýkingarefni. Þá má ávallt miða þvottaefnismagn við að vatn sé
af herslustigi 1 (=mjúkt). Upplýsingar um vatnsherslu er hægt að fá
hjá vatnsveitu á hverjum stað.
Gaumljósið HURÐ Gaumljósið START/STOPP Er hægt að opna hurð?
blikkar blikkar já, eftir um 2 mínútur
logar logar
nei, vatnsyfirborð of hátt
eða hitastig of hátt
er slökkt blikkar
12
1.Togið þvottaefnisskúffuna út eins langt og hægt er
2.Fyllið á þvottaefni/mýkingarefni.
3.Ýtið þvottaefnisskúffunni alveg inn.
Þvottaduft/töflur fyrir aðalþvott
Þegar vatnsmýkingarefni er notað og nota þarf hægra hólfið fyrir
forþvottaefni eða blettahreinsir, setjið þá vatnsmýkingarefnið með
aðalþvottaefninu í hólfið vinstra megin.
Mýkingarefni, skol, sterkja
Ekki setja meira í hólfið en upp að MAX merkinu. Þykkfljótandi efni eða
þykkni skal þynna skv. leiðbeiningum framleiðenda áður en þau eru sett
í hólfið. Leysið upp sterkju á duftformi.
Þegar fljótandi þvottaefni er notað:
Notið skammtara sem eiga að fylgja með fljótandi þvottaefninu til að
mæla magn þess.
Kveikt á vél/Þvottakerfi valið
Veljið þvottakerfi og hitastig með
kerfisvalhnappinum.
3 Um leið og þvottakerfi er valið
kviknar á vélinni.
Framvindugaumljós sýna þau skref
sem valið þvottakerfi mun fara í
gegnum.
Þvottaduft/töflur
fyrir aðalþvott
Mýkingarefni/
skol/sterkja
Þvottaduft/töflur
fyrir forþvott
eða Blettahreinsir
13
Þeytivinduhraða breytt/Skolstopp valið
Þvottavélin notar venjulega mesta
leyfilega snúningshraða, sem hentar
völdu þvottakerfi. Hægt er að
minnka snúningshraðann:
Ýtið á hnappinn vinding/
SKOLSTOPP uns gaumljósið lýsir við
rétta stillingu.
3 Einnig er hægt að breyta snúningshraðanum fyrir síðustu þeytivindu á
meðan þvottakerfið er í gangi. Þá skal:
1.Ýta á hnappinn START/STOPP.
2.Breyta snúningshraða.
3.Ýta aftur á hnappinn START/STOPP.
SKOLSTOPP
Þegar SKOLSTOPP er valið fær þvotturinn að liggja í síðasta skolvatni.
Síðustu þeytivindu er sleppt, en annars er undið eins og venjulega.
Millivindan er innbyggð í hvert þvottakerfi, og henni er ekki hægt að
breyta.
Val á viðbótarstillingum
Ýtið á hnapp(a) fyrir þær
viðbótarstillingar, sem óskað er. Þá
kviknar á viðkomandi gaumljósum.
FORÞVOTTUR
Heitur forþvottur á undan
aðalþvottinum sem sjálfkrafa fylgir, í þvottakerfum AÐALÞVOTTUR og
STRAUFRÍTT/STUTT STRAUFRÍTT er vinding á milli, en ekki í kerfinu
VIÐKVÆMT.
HRAÐÞVOTTUR
Stytt þvottakerfi fyrir lítið óhreinan þvott.
14
Kveikt/slökkt á aukaskolun
Þegar stillingin AUKASKOLUN er valin, þá bætast tvær umferðir af
skolun við þvottakerfin AÐALÞVOTTUR, STRAUFRÍTT/STUTT STRAUFRÍTT,
VIÐKVÆMT og SKOLUN. Stillingin AUKASKOLUN helst inni eftir að hún
hefur verið valin – einnig eftir að slökkt hefur verið á vélinni.
Kveikt á AUKASKOLUN:
1.Snúið kerfisvalhnappinum á AÐALÞVOTTUR, STRAUFRÍTT/STUTT
STRAUFRÍTT eða VIÐKVÆMT (og veljið rétt hitastig).
2.Haldið hnöppunum FORÞVOTTUR og TÍMAVAL báðum inni, uns
framvindugaumljósin SKOLUN og AUKASKOLUN loga bæði. Nú er kveikt
á aukaskolun.
Framvindugaumljósið AUKASKOLUN logar frá því áður en þvottakerfi
hefst og á meðan öll skolun fer fram.
Slökkt á AUKASKOLUN:
1.Snúið kerfisvalhnappinum á AÐALÞVOTTUR, STRAUFRÍTT/STUTT
STRAUFRÍTT eða VIÐKVÆMT (og veljið rétt hitastig).
2.Haldið hnöppunum FORÞVOTTUR og TÍMAVAL báðum inni, uns slokknar
á framvindugaumljósinu AUKASKOLUN. Nú er slökkt á aukaskolun.
Stilling á tímavali
Hnappurinn TÍMAVAL gerir kleift að fresta gangsetningu þvottakerfis.
1.Veljið þvottakerfi.
2.Ýtið einu sinni á hnappinn TÍMAVAL, ef þvottakerfið á að fara í gang
eftir 6 klukkustundir. Gaumljósið 6h logar.
Ýtið tvisvar á hnappinn TÍMAVAL, ef þvottakerfið á að fara í gang eftir 3
klukkustundir. Gaumljósið 3h logar.
3 Ef er ýtt á hnappinn TÍMAVAL einu sinni enn, þá er hætt við að fresta
gangsetningunni. Gaumljósið hættir að loga.
3.Til að setja tímavalið af stað skal ýta á hnappinn START/STOPP.
Ábending: Ef 6 klukkustunda seinkun er valin, þá logar gamljósið 6h.
Eftir 3 klst breytist gaumljósiðog á skjánum stendur 3h. Eftir alls
6 klukkustundir fer þvottakerfið síðan af stað.
15
Gangsetning þvottakerfis
1.Athugið, hvort skrúfað sé frá aðrennsliskrana.
2.Ýtið á hnapp START/STOPP. Þvottakerfið fer í gang eða, ef tímaval er
virkt, fer í gang þegar valinn biðtími er liðinn.
Á meðan þvottakerfið er í gangi sýna framvindugaumljósin hvaða þrep
kerfisins er í gangi hverju sinni.
3 Ef gaumljósið ENDIR blikkar 4x eftir að ýtt hefur verið á START/STOPP,
þá hefur hurðinni ekki verið nógu vel lokað. Lokið hurðinni örugglega
og ýtið aftur á hnappinn START/STOPP.
Þvottakerfi stöðvað/Þvotti bætt við
Þvottakerfi stöðvað
Með því að ýta á hnappinn START/STOPP má hvenær sem er stöðva
framvindu þvottakerfis og síðan setja það af stað á ný með því að ýta
aftur á START/STOPP.
Til að stöðva þvottakerfi áður en því lýkur skal snúa
kerfisvalhnappinum á SLÖKKT. Athugið! Gætið að vatni í vélinni!
Þvotti bætt við
Hægt er að bæta við þvotti ef gaumljósið HURÐ logar ekki.
1.Ýtið á hnappinn START/STOPP. Hægt er að opna hurðina.
2.Lokið hurðinni og ýtið aftur á hnappinn START/STOPP. Þvottakerfið
heldur áfram.
Þvottakerfi lýkur/Þvottur tekinn út
Þegar þvottakerfi lýkur vinnslu logar framvindugaumljósið ENDIR. Um
leið og slokknar á gaumljósinu HURÐ og kviknar á gaumljósinu ENDIR,
þá er hægt að opna hurðina.
1.Opnið dyrnar og takið þvottinn út.
2.Snúið kerfisvalhnappinum á SLÖKKT.
3.Skrúfið fyrir kranann.
4.Opnið þvottaefnisskúffuna dálítið að þvotti loknum svo að hún geti
þornað. Hallið hurðinni aftur en lokið ekki alveg, svo lofti um vélina.
Ef SKOLSTOPP var valið:
Eftir skolstopp lýsa gaumljósin HURÐ og ENDIR á framvinduskjánum.
Fyrst þarf að dæla burt vatninu:
snúið kerfisvalhnappinum á SLÖKKT, þá á VATNSLOSUN og ýtið á
START/STOPP (vatninu er þá dælt út án þess að vinda),
16
eða snúið kerfisvalhnappinum fyrst á SLÖKKT og síðan á VINDING.
Dragið úr snúningshraða ef það á við um þvottinn sem verið er að þvo
og ýtið á hnappinn START/STOPP (vatninu er þá dælt út og
þvotturinn síðan undinn).
Barnaöryggi
Þegar barnaöryggi er á er ekki hægt að loka dyrum vélarinnar.
Uppsetning barnaöryggis:
Snúið snúningshnappi (innan á hurð
vélarinnar) réttsælis með mynt eins
langt og hann kemst.
1 Aðvörun! Að uppsetningu lokinni
má snúningshnappurinn ekki vera á
hvolfi, því þá er barnaöryggið ekki
virkt! Hnappinn verður að setja upp
eins og sýnt er á myndinni.
Barnaöryggi tekið af:
Snúið snúningshnappinum rangsælis eins langt og hann kemst.
Hreinsun og umhirða
Athugið! Notið ekki efni til að meðhöndla húsgögn eða sterk
hreinsiefni til að hreinsa vélina.
Strjúkið af stjórnborði og ytra byrði vélarnnar með rökum klút.
Umhirða vélarinnar
Ef þvottur er yfirleitt þveginn á lágum hita, borgar sig að keyra heitt
þvottaprógramm með reglulegu millibili. Þetta minnkar útfellingar og
hreinsar vélina að innan.
17
Þvottaefnisskúffa
Best er að hreinsa þvottaefnisskúffuna reglulega.
1.Fjarlægið þvottaefnisskúffuna með því að toga fast í hana.
2.Fjarlægið mýkingarefnishólfið úr
miðskúffunni.
3.Hreinsið alla hlutina með vatni.
4.Ýtið mýkingarefnishólfinu alveg inn,
svo að það sitji fast.
5.Hreinsið allt þvottarými
þvottavélarinnar, sér í lagi túðurnar
efst í þvottahólfinu, með bursta.
6.Leggið þvottaefnisskúffuna á sinn
stað og ýtið henni inn.
Tromla
Ryðgaðir aðskotahlutir í þvotti eða járninnihald kranavatns geta leitt til
ryðútfellinga í tromlunni.
Athugið! Ekki hreinsa tromlu með afkölkunarefnum sem innihalda sýru,
með klór, ræstiefnum sem innihalda járn eða með stálull.
1.Hreinsið hugsanlegar ryðútfellingar í tromlunni með hreinsiefni fyrir
ryðfrítt stál.
2.Látið vélina fara án þvottar í gegnum þvottakerfi, til þess að skola burt
hreinsiefni. Þvottakerfi: AÐALÞVOTTUR 95, ýtið á hnapp
HRAÐÞVOTTUR, setjið í u.þ.b. 1/4 mæliskeið af þvottadufti.
Hurð og gúmmiþéttilisti
Aðgætið reglulega, hvort útfellingar eða aðskotahlutir sitji í fellingum
gúmmíþéttilistans eða sitji innan á gleri hurðarinnar.
Hreinsið glerið í hurðinni og gúmmíþéttilistann reglulega.
18
Hvað skal gera, þegar...
Minniháttar truflanir er hægt að laga sjálf(ur)
Ef framvindugaumljósin sýna einhver neðantalinna villuboða á meðan
þvottakerfi er í gangi:
ENDIR blikkar 1x (vandamál með aðrennsli vatns),
ENDIR blikkar 2x (vandamál með frárennsli vatns),
ENDIR blikkar 4x (hurðin opin),
leitið þá að úrlausn í eftirfarandi töflu.
Eftir að búið er að laga vandamálið, ýtið þá á hnappinn START/STOPP.
Ef önnur villuboð birtast (eitt eða fleiri af framvindugaumljósunum
blikka): Slökkvið og kveikið aftur á vélinni. Veljið þvottakerfi upp á nýtt.
Ýtið á hnappinn START/STOPP.
Ef sömu villuboð birtast aftur, hafið þá samband við notendaþjónustu.
Vandamál Hugsanleg ástæða Úrlausn
Þvottavélin vinnur
ekki.
Rafmagnstengillinn er ekki í
sambandi eða öryggi er ekki í
lagi.
Stingið tenglinum í samband.
Prófið öryggið.
Hurðin er ekki vel lokuð.
Lokið hurðinni, uns smellur
heyrist í lásnum.
Ekki var ýtt nógu lengi á
hnappinn START/STOPP.
Ýtið lengur á hnapp START/
STOPP.
Ekki er hægt að loka
hurðinni.
Barnaöryggi er á. Takið barnaöryggi af.
Gaumljósið ENDIR
blikkar 4x.
Hurðin er ekki vel lokuð.
Lokið hurðinni vel.
Gangsetjið þvottakerfið að
nýju.
Gaumljósið ENDIR
blikkar 1x.
(Vandamál með
aðrennsli vatns.)
Skrúfað fyrir krana. Skrúfið frá krana.
Sigti í tengingu slöngunnar við
kranann er stíflað.
Skrúfið fyrir kranann. Skrúfið
slönguna af, fjarlægið sigtið
og hreinsið það.
Vatnskrani kalkaður eða
bilaður.
Prófið kranann, látið gera við
hann ef þess þarf.
Þvottavélin titrar við
vinnslu eða stendur
ekki kyrr.
Flutningsfestingar hafa ekki
verið fjarlægðar.
Fjarlægið flutningsöryggi.
Skrúffætur eru ekki rétt stilltir.
Stillið fætur eins og lýst er í
uppsetningar- og
tengileiðbeiningum.
19
Ekki er búið að vinda
þvottinn.
Einungis fá, stór stykki sem á
að þvo í tromluna
Hafið tromluna yfirleitt full
hlaðna. Blandið saman
stórum og litlum stykkjum.
Vatn rennur undan
þvottavélinni að
framan.
Skrúfufesting við
aðrennslisslöngu óþétt.
Skrúfið aðrennslisslöngu
fasta.
Frárennslisslanga óþétt. Skiptið um frárennslisslöngu.
Lok skolvatnsdælunnar ekki
rétt fest.
Festið lokið vel.
Þvottur hafði klemmst í
hurðinni.
Hlaðið betur í vélina næst.
Neyðartæmingarslanga óþétt.
Þéttið
neyðartæmingarslönguna.
Þvottavatnið freyðir
mikið.
Líklega var sett of mikið
þvottaefni í vélina.
Fylgið leiðbeiningum
framleiðenda um
skammtastærð.
Gaumljósið ENDIR
blikkar 2x.
(Vandamál með
frárennsli vatns.)
Frárennslisslanga er klemmd. Lagið slönguna.
Leiðbeiningum um
hámarkshæð dælu (1m) ekki
fylgt.
Vinsamlega hafið samband
við notendaþjónustu.
Skolvatnsdæla stífluð.
Slökkvið á vélinni. Takið
rafmagnssnúru úr sambandi.
Hreinsið skolvatnsdælu.
Fjarlægið aðskotahluti úr
dæluhúsinu.
Ef tengt er við vatnslás:
Vatnslás er stíflaður.
Hreinsið vatnslás.
Mýkingarefni ekki
bætt í skolvatn, hólf
w fyrir mýkingarefni
fullt af vatni.
Innskotshólf í skúffu fyrir
mýkingarefni situr ekki rétt
eða er stíflað.
Hreinsið þvottaefnisskúffu,
festið hólf fyrir mýkingarefni.
Vandamál Hugsanleg ástæða Úrlausn
20
Þegar þvotturinn þvæst ekki nógu vel
Þvotturinn er gráleitur og í tromlunni liggur kalk
Of lítið þvottaefni var sett í vélina.
Ekki var notuð rétt tegund af þvottaefni.
Mikil óhreinindi voru ekki meðhöndluð sérstaklega.
Þvottakerfi eða hitastig var ekki rétt stillt.
Í þvottinum eru gráir blettir
Þvottur með smyrsli, fitu eða olíu var þveginn með of litlu þvottaefni.
Þvegið var við of lágt hitastig.
Algeng orsök er, að mýkingarefni – sérstaklega ef það er ætlað til
þynningar – hafi komist í þvottinn. Þvoið slíka bletti úr eins fljótt og
auðið er, og setjið viðkomandi mýkingarefni varlega í næst.
Enn sést froða eftir að síðustu skolun lýkur
Nýjar gerðir af þvottaefni freyða stundum einnig í síðustu skolun.
Samt sem áður er þvotturinn nógu vel skolaður.
Hvítar rákir sjást í þvottinum
Um er að ræða óuppleysanleg efni úr nýjum gerðum þvottaefnis.
Rákirnar stafa ekki af ónógri skolun.
Hristið eða burstið þær úr þvottinum. Hægt er að snúa röngu
þvottarins út næst þegar þvegið er. Farið yfir úrval þvottaefnis.
Ráðlegt er að nota fljótandi þvottaefni fyrir dökkan þvott.
Ekki er hægt að opna
hleðsludyrnar þegar
kveikt er á vélinni.
Hleðsludyr læstar.
Bíðið, uns kerfið hefur lokið
vinnslu og gaumljósið ENDIR
logar.
Rafmagnsleysi! (Slökkt er á
öllum gaumljósum.)
Dyrnar haldast læstar í um
2 mínútur.
Þvottakerfið heldur áfram
vinnslu, þegar
rafmagnsleysinu lýkur.
Til að fjarlægja þvott:
Ef vatn er í vélinni þarf
dæla því burt áður en hurðin
er opnuð (sjá kaflann
„Neyðartæming“).
Þvottur mikið
krumpaður.
Hugsanlega of mikill þvottur í
vélinni.
Fylgið leiðbeiningum um
hleðslu.
Vandamál Hugsanleg ástæða Úrlausn
  • Page 1 1
  • Page 2 2
  • Page 3 3
  • Page 4 4
  • Page 5 5
  • Page 6 6
  • Page 7 7
  • Page 8 8
  • Page 9 9
  • Page 10 10
  • Page 11 11
  • Page 12 12
  • Page 13 13
  • Page 14 14
  • Page 15 15
  • Page 16 16
  • Page 17 17
  • Page 18 18
  • Page 19 19
  • Page 20 20
  • Page 21 21
  • Page 22 22
  • Page 23 23
  • Page 24 24
  • Page 25 25
  • Page 26 26
  • Page 27 27
  • Page 28 28
  • Page 29 29
  • Page 30 30
  • Page 31 31
  • Page 32 32
  • Page 33 33
  • Page 34 34
  • Page 35 35
  • Page 36 36

Aeg-Electrolux L52820 Používateľská príručka

Typ
Používateľská príručka

V iných jazykoch