Whirlpool FSCR80410 Use and care guide

Typ
Use and care guide
Heilsa og öryggi, notkun og meðferð
og uppsetningarleiðbeiningar
www.whirlpool.eu/register
2
ÍSLENSKA ......................................3
3
IS
ÍSLENSKA
HEILSA OG ÖRYGGI, NOTKUN OG MEÐFERÐ
og UPPSETNINGARLEIÐBEININGAR
TAKK FYRIR AÐ KAUPA WHIRPOOL ÞVOTTAVÉL.
Til að fá heildarþjónustu og stuðning skal
skrá þvottavélina á vefslóðinni www. whirlpool. eu / register
ÖRYGGISLEIÐBEININGAR ............................................................................5
VERNDUN UMHVERFISINS ...........................................................................7
SAMRÆMISYFIRLÝSING ..............................................................................7
ÞVOTTAVÉLAR LÝSING ...............................................................................8
RAFTÆKI ..............................................................................................8
ÞVOTTAEFNISSKAMMTARI .............................................................................8
STJÓRNBORÐ .........................................................................................9
TÆKNIUPPLÝSINGAR UM VATNSTENGINGU ............................................................10
LÚGA ................................................................................................11
TROMLULJÓS (ef við á) ...............................................................................11
AUKABÚNAÐUR. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . .11
NOTKUN RAFTÆKISINS .............................................................................12
FYRSTA NOTKUN .....................................................................................12
DAGLEG NOTKUN ....................................................................................13
Notkunar- og viðhaldsleiðbeiningar
Efnisyfirlit
Leiðbeiningar um heilsu og öryggi
4
PRÓGRÖMM OG VALMÖGULEIKAR ....................................................................17
AÐGERÐIR ...........................................................................................23
GAUMLJÓS ..........................................................................................25
SKÖMMTUN OG FYRSTA SINN ........................................................................26
SKÖMMTUN OG DAGLEG NOTKUN. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 28
SPARNAÐARRÁÐ .....................................................................................29
HREINSUN OG VIÐHALD ............................................................................30
ÞRIF Á ÞVOTTAVÉL AÐ UTAN ..........................................................................30
KANNA VATNS SLÖNGUNA ...........................................................................31
HREINSA NETSÍU Á VATNSSLÖNGU ....................................................................32
HREINSA ÞVOTTAEFNISSKAMMTARA ..................................................................33
HREINSA VATNSSÍU / TAPPA AF AFGANGSVATNI .......................................................34
FLUTNINGUR OG AFGREIÐSLA .......................................................................36
LAUSNIR VANDAMÁLA ..............................................................................37
LÚGA – HVERNIG OPNA Á HANA VIÐ BILUN TIL AÐ NÁ ÚT ÞVOTTINUM .................................42
ÞJÓNUSTA ...........................................................................................43
Uppsetningarleiðbeiningar ..........................................................................44
5
IS
ÖRYGGISLEIÐBEININGAR
MIKILVÆGT AÐ LESA OG FARA
EFTIR
Áður en þvottavélin er
tekin í notkun skal lesa
öryggisleiðbeiningarnar.
Hafið leiðbeiningarnar tiltækar ef
leita þarf í þær í framtíðinni.
Þessi handbók og þvottavélin eru
með mikilvægar öryggisaðvaranir
sem þarf að lesa og fara eftir í
hvívetna.
Framleiðandi hafnar allri ábyr
ef ekki er farið eftir þessum
leiðbeiningum, þvottavélin er
ekki rétt notuð eða stilling á
stýringum er röng.
Fjarlægið flutningsfestingar.
Þvottavélin er búin þeim til að
forðast hugsanlegar skemmdir
á innvolsinu við flutninga. Afar
brýnt er að arlægja þessar
festingar áður en þvottavélin er
tekin í notkun. Þegar það hefur
verið gert skal loka götunum
með plasttöppum.
Aldrei skal þvinga lúguna til
að opnast né heldur nota sem
tröppu.
ÖRYGGISVIÐVARANIR
Ungabörnum (0-3 ára) og litlum
börnum (3-8 ára) skal haldið í
burtu frá þvottavélinni nema þau
séu undir stöðugu eftirliti.
Notkun þvottavélarinnar er ekki
leyfð fyrir börn sem eru 8 ára og
eldri eða fólk með takmarkaða
líkamlega eða andlega getu eða
takmarkaða reynslu og þekkingu
nema undir umsjá eða það hafi
fengið fyrirmæli um hvernig
nota eigi þvottavélina örugglega
og skilji hvaða hættur sé um
að ræða. Ekki má leyfa börnum
að leika sér að þvottavélinni.
Börn skulu ekki hreinsa eða
framkvæma viðhald nema undir
eftirliti.
LEYFILEG NOTKUN
VIÐVÖRUN: Þvottavélin er
ekki ætluð til notkunar með
utanáliggjandi tímastillingu eða
sérstakri arstýringu.
Þvottavélin er eingöngu til
heimilisnota, ekki til iðnaðarnota.
Ekki skal nota þvottavélina
utandyra.
Ekki skal geyma eldfim efni, s.s.
úðabrúsa og hvorki skal nota
bensín né önnur eldfim efni í
eða nálægt þvottavélinni: Eldur
getur brotist út ef óvart er kveikt
á raftækinu.
Þvottavélin er eingöngu ætluð til
að þvo þvott sem þolir vélarþvott
í magni sem eðlilegt er á heimili.
UPPSETNING
Tvær persónur þarf til að
handleika og setja upp
þvottavélina. Notaðu
hlífðarhanska við að arlægja
umbúðir utan af og setja upp
þvottavélina.
Allar raftengingar og viðhald
skulu framkvæmd af löggiltum
rafvirkja í samræmi við fyrirmæli
framleiðanda og gildandi
reglugerðir um öryggi. Gerið
ekki við eða skiptið um neinn
hlut í þessari þvottavél nema
það sé sérstaklega tilgreint í
notendahandbókinni.
Börn skulu ekki koma að
uppsetningu vélarinnar. Haldið
börnum frá við uppsetningu.
Geyma skal umbúðaefnin
(plastpoka, pólýstýren-brot
o.s.frv.) þar sem börn ná ekki til
fyrir og eftir uppsetningu.
Þegar umbúðir hafa verið
teknar utan af þvottavélinni
skal ganga úr skugga um að
hún hafi ekki skemmst við
flutningana. Ef vandamál koma
upp, hafið samband við næsta
þjónustuaðila.
Fyrir uppsetningu verður að taka
þvottavélina úr sambandi.
Við uppsetningu skal sjá til þess
að þvottavélin skemmi ekki
rafmagnssnúruna.
Ekki gangsetja þvottavélina fyrr
en uppsetningu er lokið.
Eftir uppsetningu
þvottavélarinnar skal bíða í
fáeinar klukkustundir áður en
hún er gangsett til að hún nái að
aðlagast umhverfisaðstæðum í
herberginu.
Ekki skal setja þvottavélina upp
þar sem eru slæm skilyrði svo
sem: Léleg loftræsting, hitastig
undir 5°C eða yfir 35°C.
Við uppsetningu á þvottavélinni
skal tryggja að fæturnir órir séu
stöðugir á gólfinu og stilla þá
eftir þörfum auk þess að kanna
hvort vélin er á láréttum fleti með
því að nota hallamál.
Ef um er að ræða trégólf eða
"fljótandi parket" skal staðsetja
þvottavélina á krossviðsplötu
sem er a.m.k. 60 x 60 cm breið/
löng og 3 cm þykk og festa við
gólfið.
Notið nýjar slöngur til að tengja
þvottavélina við vatn. Ekki má
endurnota gamlar slöngur,
heldur farga þeim.
Hreyfa skal þvottavélina með því
að halda utan um toppinn án
þess að lyfta henni.
Tengið vatnsslöngurnar við
vatn í samræmi við gildandi
reglugerðir.
Leiðbeiningar um heilsu og öryggi
6
Vélar fyrir áfyllingu með köldu
vatni: Ekki tengja við heitt vatn
Vélar fyrir áfyllingu með heitu
vatni: Hitastig vatnsins má ekki
fara upp fyrir 60°C.
Gangið úr skugga um að ekkert sé
fyrir loftopi undir þvottavélinni (ef
við á) t.d. teppi eða annað efni.
Vatnsþrýstingur inn á vélina skal
vera á bilinu 0,1-1 MPa.
Ef óskað er eftir að setja
þurrkara ofan á þvottavélina
skal hafa áður samband við
þjónustuverkstæði eða söluaðila
til að fá staðfestingu á hvort það
er hægt. Þetta er aðeins leyfilegt
ef þurrkarinn er festur ofan á
þvottavélina með viðeigandi
stöflunarbúnaði sem fæst hjá
þjónustuverkstæði eða söluaðila.
RAFMAGNSVIÐVARANIR
Við uppsetningu skal fylgja
gildandi öryggisreglugerðum.
Fjölpóla rofi með 3 mm
lágmarkssnertibili er
nauðsynlegur og þvottavélin
verður að vera jarðtengd.
Ef rafsnúran er skemmd skal
skipta henni út fyrir aðra eins
snúru. Rafsnúruskipti skulu
framkvæmd af löggiltum
rafvirkja í samræmi við fyrirmæli
framleiðanda og gildandi
reglugerðir um öryggi. Hafið
samband við viðurkennt
þjónustuverkstæði.
Ef klóin, sem fylgir, passar ekki
í innstunguna skal kalla til
rafvirkja.
Rafmagnssnúran þarf að vera
nægilega löng til að tengja
þvottavélina við innstungu
þegar hún er komin á sinn stað
í innréttingunni. Ekki má toga í
rafmagnssnúruna.
Ekki skal nota öltengi, millistykki
eða framlengingarsnúrur.
Ekki skal nota þvottavélina ef
rafsnúran eða klóin eru skemmd,
ef þvottavélin starfar ekki rétt eða
ef er skemmd eða hefur fallið.
Halda skal rafsnúrunni frá heitu
yfirborði.
Rafbúnaður þvottavélar skal
ekki vera aðgengilegur fyrir
notandann eftir uppsetningu
hennar.
Snertið ekki þvottavélina með
rökum líkamshluta og notið hana
ekki þegar þið eruð berfætt.
RÉTT NOTKUN
Ekki má fara yfir leyfilega
hámarksþyngd. Kanna skal
hámarksþyngd sem leyfð er á
viðkomandi prógrammi.
Lokið fyrir vatnskranann þegar
vélin er ekki í notkun.
Ekki má nota leysiefni (t.d.
terpentínu eða benzen), þvottaefni
sem innihalda leysiefni, skúripúlver,
gler, alhliða hreinsiefni eða eldfima
vökva; Ekki má þvo í þvottavél
fataefni sem meðhöndlað
hefur verið með leysiefnum eða
eldfimum vökvum.
HREINSUN OG VIÐHALD
Notið aldrei gufuhreinsitæki.
Nota skal hlífðarhanska við þrif
og viðhald.
Fyrir viðhaldsaðgerð verður að
taka þvottavélina úr sambandi.
7
IS
endurnýtanlegum efnum. Fargið
henni í samræmi við gildandi
reglugerðir um förgun úrgangs.
Nánari upplýsingar um meðferð,
endurheimtur og endurvinnslu á
heimilistækjum fást hjá viðkomandi
stjórnvöldum, móttökustöðvum fyrir
heimilisúrgang eða versluninni þar
sem raftækið var keypt.
Þetta raftæki er merkt í samræmi við
tilskipun Evrópuráðsins 2012/19/
EC, Úrgangur frá raftækjum og
rafeindabúnaði (WEEE).
Með því að tryggja að þessum hlut
sé fargað á réttan hátt takið þið þátt
í að koma í veg fyrir neikvæð áhrif
á umhverfið og heilsu manna sem
annars gætu orðið vegna rangrar
förgunar á hlutnum.
VERNDUN UMHVERFISINS
FÖRGUN UMBÚÐA
Umbúðir eru 100%
endurnýtanlegar og merktar
með merkinu . Þess vegna
þarf að farga hinum ýmsu
hlutum umbúðanna á ábyrgan
hátt og í fullu samræmi við
gildandi reglugerðir um förgun
úrgangs.
FÖRGUN NOTAÐRA
RAFTÆKJA
Þegar raftækinu er fargað skal gera
það ónothæft með því að skera af
rafmagnssnúruna og arlægja hurð
og hillur (þar sem við á) svo börn
eigi ekki auðvelt með að klifra inn í
raftækið og lokast inni.
Þvottavélin er framleidd úr
endurvinnanlegum
eða
Táknið á vélinni eða
meðfylgjandi gögnum gefur til
kynna að ekki skuli meðhöndla
hana eins og heimilisúrgang
heldur þarf að fara með hann
á viðeigandi móttökustöð til
endurvinnslu á raftækjum og
rafeindabúnaði.
SAMRÆMISYFIRLÝSING
Þvottavélin hefur verið hönnuð,
smíðuð og flutningi þess hagað
samkvæmt öryggiskröfum ESB-
tilskipana:
LVD 2014/35/ EU, EMC 2014/30/EU
og RoHS 2011/65/ EU.
8
ÞVOTTAVÉLAR-
LÝSING
RAFTÆKI
ÞVOTTAEFNISSKAMMTARI
1. Plata ofan á
2. Þvottaefnisskammtari
3. Stjórnborð
4. Lúguhandfang
5. Lúga
6. Vatnssía/aftöppunarslanga
(ef við á) - bak við sökkulhlíf -
7. Sökkulhlíf (laus)
8. Stillanlegir fætur (4)
1. Aðalþvottahólf
Þvottaefni f. aðalþvott
Blettaeyðir
Vatnsmýkingarefni
2. Forþvottahólf
Þvottaefni f. forþvott
3. Hólf f. mýkingarefni
Mýkingarefni
Sterkjulögur
Helltu mýkingarefni í upp að „max“ merkinu.
4. Losunarhnappur
(Ýttu á til að fjarlægja þvottaefnisskammtarann
og hreinsa hann)
Notkunar- og viðhaldsleiðbeiningar
1.
3.
2.
5.
4.
7.
6.
8.
9
IS
1. Rofahnappur (Endurstilla/aftöppun ef haldið
inni lengi)
2. Prógrammhnappur
3. Litir 15
4. Oppfriskning
5. Skömmtunarhnappur (Skömmtunarstillingar ef
haldið er lengi)
6. Hnappur (Snúa til að velja/ýta til að staðfesta)
7. Ræsiseinkun
8. Hitastig
9. Vinding
10. Valhnappur (læsir hnappi ef haldið er lengi)
11. Ræsa / bið - hnappur
12. Skjár
13. Prógrammval
STJÓRNBORÐ
Þvottaefnisleiðbeiningar fyrir ýmsar gerðir Þvotts
Hvítur slitþolinn þvottur kalt-95°C Öflug þvottaefni
Hvítur viðkvæmur þvottur kalt-40°C Mild þvottaefni með hvíttara og/eða lýsandi efni
Ljósir/pastel-litir kalt-60°C Þvottaefni með hvíttara og/eða lýsandi efni
Sterkir litir kalt-60°C Þvottaefni fyrir litað án hvíttara/lýsandi efnis
Svartir/dökkir litir kalt-60°C Sérþvottaefni fyrir svartan/dökkan þvott
MAX
30’
40°
60°
1. 7.2.
13. 12.
6. 8.4. 10.3. 9.5. 11.
10
TÆKNIUPPLÝSINGAR UM
VATNSTENGINGU
VATNSTENGING
VATN Kalt
VATNSKRANI 3/4” skrúftengi fyrir slöngu
LÁGMARKSÞRÝSTINGUR INNTAKSVATNS 100 kPa (1 bar)
HÁMARKSÞRÝSTINGUR INNTAKSVATNS 1.000 kPa (10 bör)
11
IS
LÚGA
TROMLULJÓS (ef við á)
AUKABÚNAÐUR
Togaðu í handfangið til að opna lúguna
• Við val á prógrammi: Ljósið kviknar við ísetningu
á þvotti.
• Eftir að prógrammið byrjar dofnar ljósið og
slokknar þvotturinn kemur í.
• Þegar lúgan er opnuð eftir að prógrammi lýkur,
logar ljósið á meðan verið er að taka þvottinn út.
Síðan slokknar það til að spara orku. Snertu hvaða
hnapp sem er til að kveikja það aftur.
Hafðu samband við þjónustumiðstöð til að kanna
hvort eftirfarandi aukabúnaður er fáanlegur á þína
gerð af þvottavél (og þurrkara).
SÖKKULL
Hægt er að setja hann undir þvottavélina til að
hækka hana og auka þægindi þegar þvottur er
tekinn úr og settur í.
HLEÐSLUHILLA
til að koma fyrir þurrkara ofan á þvottavélinni til að
spara pláss og til að auðveldara sé að taka úr vélinni
og setja í hana úr hærri stöðu.
Lokaðu lúguopinu, haltu við handfangið og ýttu
þannig að smellur heyrist.
12
NOTKUN
RAFTÆKISINS
FYRSTA NOTKUN
Þegar þvottavélinni er stungið í samband kviknar
sjálfkrafa á henni.
Þegar fjarlægðar eru leifar úr framleiðslu.
1. Veldu „Bómull“ prógrammið með hitastiginu
95°C. Skoðaðu leiðbeiningar í grein "DAGLEG
NOTKUN".
2. Bættu litlu magni af öflugu þvottaefni í
aðalþvottaefnishólfið í þvottaefnisskammtaranum
(hámark 1/3 af því magni sem
þvottaefnisframleiðandi mælir með fyrir lítið
óhreinan þvott).
3. Settu prógrammið af stað án þvotts. Sjá
kaflann „DAGLEG NOTKUN“ um hvernig eigi að
velja og byrja prógramm.
13
IS
1. FJARLÆGÐU ALLT ÚR VÖSUNUM
• Mynt, naglar o.s.frv. geta skemmt
þvottinn sem og hluta í þvottavélinni.
• Pappírsservíettur og þess háttar tætist
í smátt og þarf að arlægja með höndunum eftir
þvott.
2. LOKA SKAL RENNILÁSUM,
HNÖPPUM OG KRÓKUM. BINDA
SKAL BELTI OG BORÐA SAMAN.
• Þvoðu smáhluti (t.d. nælonsokka,
belti o.s.frv.) og hluti með krókum (t.d.
brjóstahöld) í þvottapoka eða koddaveri
með rennilás. Alltaf skal arlægja hringi af
gluggatjöldum eða þvo þau með hringina
tryggilega bundna í bómullarpoka.
3. GERÐ EFNIS OG ÞVOTTAMERKING
Bómullarefni, blandaðir þræðir, straufrítt / gerviefni,
ull, handþvottaefni.
• Litur
skilja skal að litaðan og hvítan þvott. Þvoðu
nýlitaðan þvott sér.
• Stærð
Þvo skal saman þvott af mismunandi stærð til
að bæta þvottanýtni og dreifingu þvottsins í
tromlunni.
• Viðkvæmur þvottur
Þvoðu viðkvæman þvott sér. Hann þarf góða
meðferð.
DAGLEG NOTKUN
FLOKKUN Á ÞVOTTI
14
Breyttu hitastigi eftir þörfum
Ef þú vilt breyta hitastiginu sem birtist á
skjánum skaltu ganga úr skugga um að
kvikni á hitastigshnappnum.
Snúðu hnappnum til að velja hitastig og ýttu á
hann til að staðfesta.
Breyttu vinduhraða eftir þörfum
Ef þú vilt breyta vinduhraða sem sést á
skjánum skaltu ganga úr skugga um að
kvikni á vindu hnappnum.
Snúðu hnappnum til að velja vinduhraða eða
skolunarbið, ýttu síðan á hann til staðfestingar.
Ef valinn er vinduhraði „0“, endar prógrammið á að
losa burt skolvatnið. Engin lokavinding fer fram.
Ef valið er „Stoppa skolun“, stöðvast prógrammið
eftir skolun. Þvotturinn liggur áfram blautur
í síðasta skolvatninu. Sjá nánari upplýsingar í
kaflanum PRÓGRÖMM, VALMÖGULEIKAR OG
AÐGERÐIR / Stoppa skolun.
1. SETTUR ÞVOTTUR Í VÉLINA
• Opnaðu lúguna og láttu inn þvottinn.
Fylgdu fyrirmælum um hámarksþyngd í
prógrammvalinu.
2.LOKA HURÐ
• Gættu þess að ekki klemmist
þvottur á milli lúgu og
gúmmíþéttingar.
• Lokaðu lúguopinu þannig að smellur heyrist.
3. OPIN VATNSKRANI
• Gakktu úr skugga um að þvottavélin sé
tengd við vatn.
• Opnaðu fyrir vatnið.
4. KVEIKT Á ÞVOTTAVÉLINNI
• Ýttu á On/Off hnappinn þar til
prógrammvalhnappurinn lýsir. Hreyfimynd
birtist og hljóð heyrist. Þá er þvottavélin tilbúin til
gangsetningar.
• Prógrammstillingar sem síðast voru notaðar
birtast í stjórnborði.
5. VALIÐ PRÓGRAMM
LEIÐSÖGN
Hnappaljósið leiðir þig í gegnum stillingar
prógrammsins á eftirfarandi hátt: Val á prógrammi /
hitastigi / vinduhraða / valkostum. Þegar valið hefur
verið staðfest með því að ýta á hnappinn færist
hnappaljósið á næsta þrep.
Veldu prógramm
Gakktu úr skugga um að prógrammhnappurinn
logi. Snúðu hnappnum og veldu prógramm.
Gaumljósið við hliðina á völdu prógrammi
kviknar.
Staðfestu valið með því að ýta á hnappinn.
Sjá nánari upplýsingar um prógrömmin í
Prógrammatöflunni.
NOTKUN ÞVOTTAVÉLAR
15
IS
Veldu valmöguleika eftir þörfum
Ef óskað er eftir frekari valmöguleikum
skal ganga úr skugga um að kvikni í
valmöguleikahnappnum. Valmöguleikarnir fyrir
viðkomandi prógramm eru sýndir með ljósaörvum.
Snúðu hnappnum og veldu möguleika.
Táknið fyrir valmöguleikann blikkar. Ýttu á
hnappinn til að staðfesta.
Suma möguleika / aðgerðir má velja með því að ýta
beint á hnappinn:
Sjá nánar kaflana PRÓGRÖMM, VALMÖGULEIKAR
OG AÐGERÐIR.
SÉRSNIÐ
Þegar kveikt hefur verið á þvottavélinni þarf ekki að
fylgja LEIÐSÖGN.
Það er undir þér komið í hvaða röð þú stillir
prógrammið. Við stillingu skal ýta á viðkomandi
hnapp, snúa honum til að velja og ýta síðan til að
staðfesta.
Það fer eftir prógramminu hvaða hitastig,
vinduhraðar eða valmöguleikar eru í boði.
Þess vegna er mælt með því að byrja stillingu með
því að velja prógrammið.
6. BÆTA VIÐ ÞVOTTAEFNI
• Ef ekki er notuð skömmtunaraðgerðin,
skal draga út þvottaefnisskammtarann
og bæta þvottaefni í hann (og viðbótarefni/
mýkingarefni) eins og sýnt er í kaflanum
ÞVOTTAEFNISSKAMMTARI.
Fylgdu skömmtunarleiðbeiningum á
þvottaefnispakkanum. Ef valinn var FORÞVOTTUR
eða RÆSISEINKUN, skal fylgja fyrirmælum í kafla
PRÓGRÖMM, VALMÖGULEIKAR OG AÐGERÐIR.
Síðan skal loka þvottaefnisskammtaranum.
• Ef notuð er „Skömmtunar“aðgerðin, skal bæta
við þvottaefni síðar eftir að prógrammið er
byrjað. Sjá kafla SKÖMMTUN/DAGLEG NOTKUN.
Mikilvægt er að skammta rétt þvottaefni /
viðbótarefni því að
• þannig fæst bestur þvottur
• þannig má komast hjá ertandi leifum af
þvottaefni í þvottinum
• þannig má spara peninga með því að forðast að
sóa þvottaefni
• þannig er þvottavélin varin fyrir kalkmyndun
• þannig er tekið tillit umhverfisins með því að
forðast óþarfa álag á það
7. BYRJA Á PRÓGRAMMI
Ýttu á og haltu "Start/Pause” þar til
hnappurinn lýsir stöðugt; Prógrammið byrjar.
• Eftir að valin hefur verið „Dosing Aid“
(skömmtun), sýnir þvottavélin ráðlagt magn af
þvottaefni fyrir viðkomandi þvottaþyngd eftir
að prógrammið er byrjað. – Láttu þvottaefni í
aðalþvottahólf þvottaefnisskammtarans, lokaðu
skammtaranum og ýttu á "Start/Pause" til að
halda áfram með prógrammið
• Ef valið hefur verið "Dosing Aid" (Skömmtun)
og einnig "Prewash" (forþvottur), skal láta
þvottefnismagn, sem sýnt er, í aðalþvottahólfið
og sem svarar helmingnum af því magni í
forþvottahólfið.
• Lokaðu þvottaefnisskammtaranum og ýttu á
“Start/Pause” til að halda áfram með prógrammið.
Ekki má ofna þvottaefnisskammtarann eftir þetta
til að forðast að flæði út fyrir.
• Prógrammtíminn er sýndur á skjánum en
hann getur verið breytilegur. Misvægi í þvotti
eða löðurmyndun geta haft áhrif á lengd
prógrammsins.
Í hvert skipti sem eftirlifandi prógrammtími er
reiknaður birtist hann á skjánum.
16
8. BREYTING Á STILLINGUM PRÓGRAMMS
SEM ER Í GANGI, EFTIR ÞÖRFUM
Hægt er að breyta stillingum á meðan prógrammið
er í gangi. Breytingarnar taka gildi að því tilskildu að
prógrammið sé ekki búið.
• Ýttu á viðeigandi hnapp (t.d. „vinduhnappinn“
til að breyta vinduhraðanum). Valið gildi blikkar í
fáeinar sekúndur.
• Á meðan blikkar er hægt að stilla með því að
snúa hnappnum. Ef tölugildið hættir að blikka og
enn er ekki búið að breyta stillingunni skal ýta á
hnappinn aftur.
• Ýttu á hnappinn til að staðfesta breytinguna. Ef
þú staðfestir ekki staðfestist breytingin sjálfkrafa -
breytt stilling hættir að blikka.
Prógrammið heldur sjálfkrafa áfram eftir að
stillingum hefur verið breytt. Notaðu „Key lock“
til að hindra að skipt sé um prógramm fyrir
slysni (t.d. af börnum), (sjá grein PRÓGRÖMM,
VALMÖGULEIKAR OG AÐGERÐIR).
Til að breyta stillingum á meðan prógramm er í
gangi er einnig hægt að
• Ýta á „Start/Pause“ til setja prógramm, sem
er í gangi, á bið
• Breyta stillingum
• Ýta á „Start/Pause“ aftur til að halda áfram
með prógrammið.
Ef búið er að skipta um prógramm skal ekki bæta
við þvottaefni fyrir nýja prógrammið.
9. SETJA Á BIÐ PRÓGRAMM SEM ER Í
GANGI OG OPNA LÚGUNA EFTIR
ÞÖRFUM
Ýttu á „Start/Pause“ til að setja prógramm á bið
• Ef vatnsyfirborð eða hitastig er ekki of
hátt kviknar gaumljósið „door open“.
Hægt er að opna lúguna, t.d. til að bæta
við þvotti eða arlægja þvott sem fór inn fyrir
mistök.
• Ýttu á „Start/Pause“ aftur til að halda áfram með
prógrammið
10. ENDURSTILLING Á PRÓGRAMMI, SEM ER
Í GANGI, EFTIR ÞÖRFUM
• Ýttu og haltu inni "On/Off" hnappnum þar til
“rES” birtist á skjánum. Vatnið er losað burt og
prógrammi lýkur. Lúgan aflæsist.
11. SLÖKKT Á ÞVOTTAVÉL EFTIR AÐ
PRÓGRAMMI LÝKUR
• „End“ birtist á skjánum og það kviknar á ljósinu
"Door open" (lúga ólæst) - hægt er að taka út
þvottinn
• Ýttu á „On/Off“ til að slökkva á þvottavélinni.
Ef ekki er slökkt á þvottavélinni slekkur hún
sjálfkrafa á sér u.þ.b. kortéri eftir að prógrammi
lýkur til að spara orku.
• Skildu lúguna eftir hálfopna til að þvottavélin geti
þornað að innan.
17
IS
PRÓGRÖMM OG
VALMÖGULEIKAR
Þegar valið er viðeigandi prógramm fyrir þvott skal
ætíð fara eftir þvottamerkingum á fatnaði.
PRÓGRAMM Gerð af þvotti
og ráðleggingar
Þvotta-
merkingar
Stillingar
Eco bómull
Eðlilega óhreinn bómullarþvottur.
Við 40°C og 60°C staðlað
bómullarprógramm sem er
hagstæðast hvað varðar vatns- og
orkunotkun. Grunnur fyrir gildum sem
koma fram á orkumerkingunni.
hám. þyngd max
hitastig
Kalt upp að 60°C
hám. vinduhraði max
valmöguleikar Öflug
skolun , Hratt, Litir 15,
Oppfriskning
BÓMULL
Eðlilega óhreinn til mjög óhreinn,
slitþolinn bómullar- og hörþvottur,
s.s. handklæði, nærföt, borðdúkar,
sængurfatnaður o.s.frv.
hám. þyngd max
hitastig
Kalt upp að 95°C
hámarks vinduhraði max
valmöguleikar
Forþvottur, Heitt
endir, Blettir 15,
Mjög óhreint, Öflug
skolun , Hratt, Litir 15,
Oppfriskning
BLANDAÐ
Lítillega til eðlilega óhreinn, slitþolinn
þvottur úr bómull, hör, gerviþráðum
og blöndum þar af.
Skilvirkt klukkustundarprógramm.
Eingöngu þvottur af svipuðum lit
saman.
hám. þyngd 4,0 kg
hitastig
Kalt upp að 60°C
hám. vinduhraði max
valmöguleikar Heitt
endir, Blettir 15, Öflug
skolun , Hratt, Litir 15
GERVIEFNI
Eðlilega óhreinn þvottur úr
gerviþráðum (s.s. pólýester, pólýakrýl,
viskósa o.s.frv.) eða blöndum þeirra og
bómullar.
hám. þyngd 3,0 kg
hitastig
Kalt upp að 60°C
hám. vinduhraði max
valmöguleikar
Forþvottur, Blettir 15,
Mjög óhreinn þvottur,
Öflug skolun , Hratt,
Litir 15
VIÐKVÆMT
Fíngerður þvottur úr viðkvæmum
efnum, sem þurfa góða meðferð.
hám. þyngd 1,5 kg
hitastig
Kalt upp að 40°C
hám.vinduhraði 1000
valmöguleikar
Forþvottur, Hratt, Litir
15°
18
PRÓGRAMM Gerð af þvotti
og ráðleggingar
Þvotta-
merkingar
Stillingar
ULL
Ullarefni merkt með ullarmerki og að
megi þvo þau í vél sem og fataefni úr
silki, hör, ull og viskósa merkt þannig
að megi þvo þau í höndum.
Farðu eftir þvottamerkingum
framleiðenda.
hám. þyngd 1,0 kg
hitastig
Kalt upp að 40°C
hám.vinduhraði 1000
valmöguleikar Hratt, Litir
15°
STUTT 30
30’
Lítið óhreinn þvottur án bletta úr
bómull og/eða gerviefni.
Frískandi prógramm.
hám. þyngd 3,0 kg
hitastig
Kalt upp að 30°C
hám. vinduhraði max
valmöguleikar Litir 15
LITIR
Lítið til eðlilega óhreinn þvottur úr
bómull, gerviefni og blöndum af þeim;
einnig viðkvæmur þvottur.
Hjálpar við að varðveita liti í þvotti.
Gættu þess að nota þvottaefni sem
hæfir litunum í þvottinum.
hám. þyngd 4,0 kg
hitastig
Kalt upp að 60°C
hám. vinduhraði 1.000
valmöguleikar
Forþvottur, Blettir 15,
Mjög óhreint, Hratt,
Öflug skolun, Litir 15
VINDING
Sérstakt vinduprógramm. Hentar fyrir
slitþolinn þvott.
hám. þyngd max
hitastigsbil ""
hám. vinduhraði max
valmöguleikar --
SKOL/
VINDING
Sérstakt skolunar- og vinduprógramm.
Hentar fyrir slitþolinn þvott.
Láta má mýkingarefni í fyrir skolunina.
hám. þyngd max
hitastigsbil ""
hám. vinduhraði max
valmöguleikar Öflug
skolun
19
IS
VALMÖGULEIKAR MEÐ VIÐKOMANDI
HNAPPI
FORÞVOTTUR Hjálpar til við að hreinsa mjög
óhreinan þvott með því að bæta
forþvotti við valið þvottaprógramm.
Fyrir mjög óhreinan þvott, t.d. með
sandi og óhreinindakornum.
Hristu þvottinn vel áður en hann er
látinn í þvottavélina.
Lengir prógrammið um 20 mínútur.
Settu þvottaefni í forþvottahólfið
á skammtaranum eða beint inn
í tromluna. – Þegar valinn er
„Forþvottur“ skal nota þvottaduft
í aðalþvottinn til að tryggja
að þvottaefnið verði áfram í
skammtaranum þar til aðalþvottur
hefst. Farðu eftir fyrirmælum
þvottaefnisframleiðenda um
skammtastærðir eða notaðu
“Skömmtun” valmöguleikann.
HEITT ENDIR
Prógrammið endar á heitri skolun.
Slakar á þráðunum í þvottinum.
Þvotturinn er þægilega heitur
viðkomu þegar hann er tekinn út
stuttu eftir lok prógramms.
BLETTIR 15°
Hjálpar til við að fjarlægja alls konar
bletti, nema fitu/olíu.
Prógrammið byrjar með þvotti í köldu
vatni.
Prógrammið lengist um u.þ.b. 10
mínútur.
Formeðferð ráðlögð vegna þrálátra
bletta.
Ekki hægt að velja fyrir bómull 95 °.
Prógrammvalið gefur yfirlit yfir
allar mögulegar samsetningar
prógramma og valmöguleika. Ekki
er hægt að velja allar samsetningar
prógramma og valmöguleika.
Vissir valmöguleikar eru ekki í boði
í samsetningum. Við þær aðstæður
blikkar sá valmöguleiki og slokknar
aftur og hljóðmerki heyrist.
20
MJÖG ÓHREINT Hjálpar til við að þvo mjög óhreinan
þvott með því að hámarka nýtingu
viðbótarefna við blettahreinsun.
Bættu við hæfilegu magni af
viðbótarefni til blettahreinsunar
(dufti) í aðalþvottahólfið ásamt
þvottaefni. Notaðu eingöngu
þvottaduft með þessum
valmöguleika. Farðu eftir fyrirmælum
framleiðanda um skömmtun.
Getur lengt prógrammið um allt að 15
mínútur.
Mikilvægt: Nota má blettahreinsi og
bleikingarefni með súrefni. Hvorki má
nota klór- né perbórat!
INTENSIV SKYLLING
Hjálpar til við að forðast leifar af
þvottaefni í þvottinum með því að
lengja skolunartímann.
Hentar einkar vel fyrir barnafataþvott,
fólk með ofnæmi og landsvæði með
mjúku vatni.
HRATT
Flýtir þvotti. Styttir prógrammið
jafnframt því að þvo vel.
Aðeins ráðlagt fyrir lítið óhreinan
þvott.
Ekki hægt að velja fyrir bómull 95 °.
  • Page 1 1
  • Page 2 2
  • Page 3 3
  • Page 4 4
  • Page 5 5
  • Page 6 6
  • Page 7 7
  • Page 8 8
  • Page 9 9
  • Page 10 10
  • Page 11 11
  • Page 12 12
  • Page 13 13
  • Page 14 14
  • Page 15 15
  • Page 16 16
  • Page 17 17
  • Page 18 18
  • Page 19 19
  • Page 20 20
  • Page 21 21
  • Page 22 22
  • Page 23 23
  • Page 24 24
  • Page 25 25
  • Page 26 26
  • Page 27 27
  • Page 28 28
  • Page 29 29
  • Page 30 30
  • Page 31 31
  • Page 32 32
  • Page 33 33
  • Page 34 34
  • Page 35 35
  • Page 36 36
  • Page 37 37
  • Page 38 38
  • Page 39 39
  • Page 40 40
  • Page 41 41
  • Page 42 42
  • Page 43 43
  • Page 44 44
  • Page 45 45
  • Page 46 46
  • Page 47 47
  • Page 48 48
  • Page 49 49
  • Page 50 50
  • Page 51 51
  • Page 52 52

Whirlpool FSCR80410 Use and care guide

Typ
Use and care guide

V iných jazykoch