IKEA RENODLAD 80352036 Používateľská príručka

Kategória
Mixér / kuchynský robot príslušenstvo
Typ
Používateľská príručka
RENODLAD
IS
ÍSLENSKA
Á öftustu síðu þessarar handbók er skrá yfir alla veitendur
eftirsöluþjónustu sem útnefndir hafa verið af IKEA og viðeigandi
símanúmer í hverju landi.
ÍSLENSKA
4
Efnisyfirlit
Öryggisupplýsingar 4
Öryggisleiðbeiningar 5
Vörulýsing 7
Stjórnborð 8
Kerfi 9
Valmöguleikar 10
Stillingar 11
Fyrir fyrstu notkun 15
Dagleg notkun 16
Góð ráð 18
Umhirða og hreinsun 20
Bilanaleit 22
Tæknilegar upplýsingar 26
UMHVERFISMÁL 26
IKEA-ÁBYRGÐ 27
Með fyrirvara á breytingum.
Öryggisupplýsingar
Fyrir uppsetningu og notkun heimilistækisins skal lesa
meðfylgjandi leiðbeiningar vandlega. Framleiðandinn ber ekki
ábyrgð á neinum meiðslum eða skemmdum sem leiða af rangri
uppsetningu eða notkun. Geymdu alltaf leiðbeiningarnar á
öruggum stað þar sem auðvelt er að nálgast þær til síðari
notkunar.
Öryggi barna og viðkvæmra einstaklinga
Börn, 8 ára og eldri og fólk með minnkaða líkamlega-, skyn-
eða andlega getu, eða sem skortir reynslu og þekkingu,
mega nota þetta tæki, ef þau eru undir eftirliti eða hafa verið
veittar leiðbeiningar varðandi örugga notkun tækisins og ef
þau skilja hættuna sem því fylgir.
Leyfðu ekki börnum að leika sér með tækið.
Haltu þvottaefnum frá börnum.
Haltu börnum og gæludýrum frá heimilistækinu þegar hurðin
er opin.
Börn eiga ekki að hreinsa eða framkvæma notandaviðhald á
heimilistækinu án eftirlits.
ÍSLENSKA
4
Almennt öryggi
Þetta heimilistæki er ætlað til notkunar á heimili og við
svipaðar aðstæður og:
Á bóndabýlum; starfsmannaeldhúsum í verslun, á
skrifstofum og öðrum vinnustöðum;
Af viðskiptavinum á hótelum, mótelum, gistiheimilum og á
öðrum íbúðarstöðum.
Breyttu ekki tæknilýsingu fyrir þetta heimilistæki.
Vatnsþrýstingurinn á tækinu (hámark og lágmark) verður að
vera á milli 0.5 (0.05) / 8 (0.8) bör (MPa)
Hlýða skal hámarksfjöldanum, matarstell fyrir 13 .
Ef rafmagnssnúran er skemmd verður að fá nýja frá
framleiðanda, viðurkenndri þjónustumiðstöð eða svipað
hæfum aðila til þess að koma í veg fyrir hættu.
Settu hnífapör í hnífaparaskörfuna þannig að beitti endinn
vísi niður eða settu þau lárétt í hnífaparaskúffuna með beittu
hliðina niður.
Ekki skilja heimilistækið eftir eftirlitslaust með opna hurð til að
forðast að stíga óvart á hana.
Áður en eitthvert viðhald er framkvæmt skal slökkva á
heimilistækinu og aftengja klóna frá rafmagnsinnstungunni.
Ekki skal nota háþrýstan vatnsúða og/eða gufu til að hreinsa
heimilistækið.
Ef heimilistækið er með lofttúður í undirstöðunni má ekki hylja
þær, t.d. með gólfteppi.
Heimilistækið á að tengja við vatn með nýju slöngunum sem
fylgja með því. Ekki má endurnýta gamlar slöngur.
Öryggisleiðbeiningar
Uppsetning
Fjarlægðu allar umbúðir.
Ekki setja upp eða nota skemmt
heimilistæki.
Ekki setja upp eða nota heimilistækið þar
sem hitastigið er lægra en 0 °C.
Fylgdu leiðbeiningum um uppsetningu
sem fylgja með heimilistækinu.
ÍSLENSKA 5
Gættu þess að heimilistækið sé sett upp
undir og við hliðina á traustum og
stöðugum hlutum.
Tenging við rafmagn
AÐVÖRUN! Eldhætta og hætta á
raflosti.
Heimilistækið verður að vera jarðtengt.
Gakktu úr skugga um að færibreyturnar
á merkiplötunni séu samhæfar við
rafmagnsflokkun aðalæðar aflgjafa.
Notaðu alltaf rétt ísetta innstungu sem
ekki veldur raflosti.
Notaðu ekki fjöltengi eða
framlengingarsnúrur.
Gakktu úr skugga um að rafmagnsklóin
og snúran verði ekki fyrir skemmdum. Ef
skipta þarf um rafmagnssnúru verður
viðurkennd þjónustumiðstöð okkar að sjá
um það.
Aðeins skal tengja rafmagnsklóna við
rafmagnsinnstunguna í lok
uppsetningarinnar. Gakktu úr skugga um
að rafmagnsklóin sé aðgengileg eftir
uppsetningu.
Ekki toga í snúruna til að taka tækið úr
sambandi. Taktu alltaf um klóna.
Þetta heimilistæki samræmist tilskipunum
EBE.
Einungis fyrir Bretland og Írland. Tækið
er með 13 ampera rafmagnskló. Ef
nauðsynlegt er að skipta um öryggi í
rafmagnsklónni skaltu nota öryggi: 13
amp ASTA (BS 1362).
Tenging við vatn
Ekki valda skemmdum á vatnsslöngunum.
Áður en þú tengir ný rör, rör sem ekki
hafa verið notuð í langan tíma, þar sem
viðgerðarvinna hefur verið framkvæmd
eða nýr búnaður settur upp (vatnsmælar,
o.s.frv.) skaltu láta vatnið renna þar til
það er hreint og tært.
Tryggðu að það sé enginn sýnilegur
vatnsleki við og eftir fyrstu notkun
heimilistækisins.
Vatnsinntaksslangan er með öryggisloka
og slíðri með innri rafmagnssnúru.
AÐVÖRUN! Hættuleg
rafspenna.
Ef vatnsinntaksslangan skemmist skaltu
samstundis loka vatnskrananum og
aftengja klóna frá rafmangsinnstungunni.
Hafðu samband við viðurkennd
þjónustumiðstöð til að fá nýja
vatnsinntaksslöngu.
Notkun
Ekki sitja eða standa á hurðinni þegar
hún er opin.
Þvottaefni fyrir uppþvottavélar eru
hættuleg. Farðu eftir
öryggisleiðbeiningunum á umbúðum
þvottaefnisins.
Ekki skal drekka, eða leika sér með
vatnið í heimilistækinu.
Ekki fjarlægja diskana úr heimilistækinu
fyrr en þvottakerfinu er lokið. Þvottaefni
kann að verða eftir á diskunum.
Heit gufa getur sloppið út úr
heimilistækinu ef hurðin er opnuð meðan
þvottakerfi er í gangi.
Settu ekki eldfim efni eða hluti sem eru
blautir af eldfimum efnum nálægt eða á
heimilistækið.
Ofnljósið
AÐVÖRUN! Hætta á líkamstjóni.
Þetta heimilistæki er með innbyggðan
lampa sem kviknar þegar þú opnar
ÍSLENSKA
6
dyrnar og slokknar þegar dyrunum er
lokað.
Lampinn sem er í tækinu er ekki gerður til
lýsingar innandyra.
Til þess að skipta um innbyggða ljósið,
skal hafa samband við þjónustuaðila.
Viðgerðir
Hafið samband við viðurkenndan
þjónustuaðila til að láta gera við
heimilistækið. Við mælum með því að
nota aðeins upprunalega varahluti.
Þegar þú hefur samband við
viðurkenndan þjónustuaðila, skaltu vera
með eftirfarandi upplýsingar sem finna
má á tegundarspjaldinu.
Módel:
Vörunúmer (PNC) :
Raðnúmer :
Förgun
AÐVÖRUN! Hætta á líkamstjóni
eða köfnun.
Aftengja skal tækið frá
rafmagnsgjafanum.
Klippa rafmagnssnúruna af og fleygja
henni.
Fjarlægið dyraklemmuna til að koma í
veg fyrir að börn eða dýr geti lokast inni
í tækinu.
Vörulýsing
5
4
67
9
8
12
2
3
1
11 10
1
Efsti sprautuarmur
2
Efri sprautuarmur
3
Neðri sprautuarmur
4
Síur
5
Tegundarspjald
6
Salthólf
7
Loftgat
8
Gljáaskammtari
9
Þvottaefnisskammtari
10
Hnífaparakarfa
ÍSLENSKA 7
11
Neðri grind
12
Efri grind
Beam-on-Floor
Beam-on-Floor er ljós sem birtist á gólfinu
fyrir neðan hurðina á heimilistækinu.
Þegar kerfi fer í gang kviknar hvítt ljós
sem logar á meðan kerfið er í gangi.
Þegar kerfinu er lokið slokknar hvíta
ljósið.
Þegar tækið bilar leiftrar hvíta ljósið.
Beam-on-Floor er slökkt þegar
slökkt er á heimilistækinu.
Þegar AutoOpen er virkjað
meðan á þurrkunarferli stendur
er ekki víst að myndvörpunin á
gólfið sjáist til fulls. Til að sjá
hvort lotu sé lokið skaltu athuga
stjórnborðið.
Stjórnborð
1
2 3 4 5 6 7 8 9
1
Kveikt/slökkt-hnappurinn
2
Skjár
3
Delay-hnappur
4
Þvottakerfishnappur (upp)
5
Þvottakerfishnappur (niður)
6
ExtraHygiene-hnappur
7
DryPlus-hnappur
8
RESET-hnappur
9
Vísar
Vísar
Vísir Lýsing
Endavísir.
Gljáavísir. Alltaf er slökkt á honum á meðan þvottakerfið er í gangi.
Saltvísir. Alltaf er slökkt á honum á meðan þvottakerfið er í gangi.
ÍSLENSKA 8
Kerfi
Þvottakerfi Óhreinindastig
Tegund hleðslu
Kerfisstig Valkostir
P1
1)
Allt
Leirtau, hnífapör,
pottar og pönnur
Forþvottur
Þvær frá 45°C til 70°C
Skol
Þurrkun
ExtraHygiene
DryPlus
P2
Mikil óhreinindi
Leirtau, hnífapör,
pottar og pönnur
Forþvottur
Þvær 70°C
Skol
Þurrkun
ExtraHygiene
DryPlus
P3
2)
Nýtilkomin
óhreinindi
Leirtau og hníf-
apör
Þvær 60°C
Skol
ExtraHygiene
DryPlus
P4
3)
Venjuleg óhrein-
indi
Leirtau og hníf-
apör
Forþvottur
Þvær 50°C
Skol
Þurrkun
ExtraHygiene
DryPlus
P5
Lítil óhreinindi
Viðkvæmt leirtau
og glermunir
Þvær 45°C
Skolar
Þurrkun
DryPlus
P6
4)
Allt Forþvottur
P7
5)
Venjuleg óhrein-
indi
Leirtau og hníf-
apör
Forþvottur
Þvær 50°C
Skol
Þurrkun
DryPlus
1)
Heimilistækið skynjar magn óhreininda og magn hluta í grindunum. Það stillir sjálfkrafa hitastigið og vatnsmagnið,
orkunotkun og tímalengd þvottakerfisins.
2)
Með þessu kerfi er hægt að þvo hluti með nýtilkomnum óhreinindum. Það þvær vel á stuttum tíma.
3)
Með þessu kerfi nýtist vatnið og orkan best fyrir leirtau og hnífapör með venjulegum óhreinindum. (Þetta er staðal-
kerfið sem prófunarstofnanir nota).
4)
Í þessu kerfi fá diskarnir hraðskolun til að hindra að matarleifar festist á þeim og ólykt myndist í heimilistækinu. Ekki
nota þvottaefni með þessu kerfi.
5)
Þetta er hljóðlátasta þvottakerfið. Dælan vinnur á mjög litlum hraða til að draga úr hávaðastigi. Vegna þess hversu
lítill hraðinn er tekur kerfið langan tíma að klára.
ÍSLENSKA 9
Notkunargildi
Kerfi
1)
Vatn
(l)
Orka
(kWh)
Tímalengd
(mín)
P1 7 - 14 0.6 - 1.6 40 - 170
P2 12.5-14.5 1.4-1.7 170-190
P3 10 0.9 41
P4 10.5 0.83 232
P5 12 - 14 0.7 - 0.9 82-92
P6 4 0.1 14
P7 9 - 10 1.1 - 1.3 230 - 250
1)
Þrýstingur og hitastig vatnsins, breytileiki rafmagnsinntaka, valmöguleikar og fjöldi diska getur breytt gildum kerfis-
ins.
Upplýsingar fyrir prófunarstofnanir
Til að fá allar nauðsynlegar upplýsingar um
prófanir skal senda tölvupóst til:
Skrifaðu niður framleiðslunúmer tækisins
(PNC) sem er á málmplötunni.
Valmöguleikar
Virkja verður þá valmöguleika
sem óskað er eftir í hvert sinn
áður en þú byrjar kerfi.
Það er ekki mögulegt að virkja
eða afvirkja valmöguleika á
meðan kerfi er í gangi.
Ekki samræmast allir
valmöguleikar hver öðrum. Ef þú
hefur valið möguleika sem
samræmast ekki mun tækið
sjálfkrafa afvirkja einn eða fleiri
af þeim. Aðeins ljós þeirra
valmöguleika sem enn eru virkir
munu loga.
ÍSLENSKA 10
DryPlus
Virkjaðu þennan valkost þegar þú vilt flýta
þurrkafköstunum. Notkun þessa valkosts
kann að hafa áhrif á tímalengd sumra
kerfa, vatnsnotkun og hitastig síðustu
skolunar.
Samblanda DryPlus og gljáa veitir jafnvel
enn betri þurrkárangur.
Valkosturinn DryPlus er varanlegur valkostur
fyrir öll kerfi önnur en P4 (ECO) og þarf ekki
að velja hann í hverri lotu.
Í hvert sinn sem P4 (ECO) er gert virkt er
slökkt á valkostinum DryPlus og velja þarf
hann handvirkt. Í öðrum kerfum er stilling
DryPlus varanleg og er notuð sjálfvirkt í
næstu lotum. Hægt er að breyta stillingunni
hvenær sem er áður en kerfið hefst.
Hvernig virkja skal DryPlus
Ýttu á .
Tengdur vísir kviknar.
Ef þessi valkostur á ekki við um kerfið
kviknar ekki á tengdum vísi eða hann
leiftrar hratt í nokkrar sekúndur og slokknar
svo.
Skjárinn sýnir hvað uppfært þvottakerfi
tekur langan tíma.
ExtraHygiene
Þessi valkostur skilar betra hreinlæti með
því að halda hitanum í 70°C í að minnsta
kosti 10 mínútur í síðustu skolun.
Hvernig virkja skal ExtraHygiene
Ýttu á , þá kviknar viðkomandi vísir.
Ef valkosturinn á ekki við með völdu
þvottakerfi er ennþá slökkt á vísinum.
Skjárinn sýnir uppfærða lengd þvottakerfis.
Valkosturinn ExtraHygiene er ekki tiltækur
fyrir eftirfarandi kerfi:
P5(Gler)
P6 (Halda skolvatni)
P7(Mjög hljóðlátt)
AutoOpen er afvirkjað þegar
kerfið P3 (Hratt) er sameinað
valkostinum ExtraHygiene vegna
hás hitastigs.
Stillingar
Kerfisvalsstilling og notandastilling
Þegar tækið er stillt á kerfisvalsstillingu er
hægt að setja á þvottakerfi og slá inn
notandastillingu.
Í notandastillingu er hægt að breyta
eftirfarandi stillingum:
Stigi vatnsmýkingar í samræmi við hörku
vatnsins.
Virkjun eða afvirkjun á hljóðmerkinu í lok
kerfisins.
Virkjun eða afvirkjun á tilkynningu um
tóman gljáaskammtara.
Stig gljáans í samræmi við nauðsynlega
skammtastærð.
Virkjun eða afvirkjun á AutoOpen.
Þessar stillingar verða vistaðar þar til þú
breytir þeim aftur.
Hvernig stilla á kerfisvalsstillingu
Tækið er í kerfisvalsstillingu þegar skjárinn
sýnir þvottakerfisnúmerið P4.
Þegar þú virkjar tækið er það yfirleitt í
kerfisvalsstillingu. Ef þetta hinsvegar gerist
ekki er hægt að stilla á kerfisvalsstillingu
með eftirfarandi hætti:
Ýttu á og haltu RESET þar til tækið er í
kerfisvalstillingu.
ÍSLENSKA 11
Vatnsmýkingarbúnaðurinn
Vatnsmýkingarbúnaðurinn fjarlægir
steinefni úr vatninu sem myndu hafa
skaðleg áhrif á þvottaárangur og á
heimilistækið.
Því meira sem vatnið inniheldur af þessum
steinefnum, því harðara er vatnið. Harka
vatns er mælt eftir jafngildum kvörðum.
Vatnsmýkingarbúnaðinn ætti að aðlaga
eftir því hversu hart vatnið er á þínu svæði.
Vatnsveitan á staðnum getur veitt þér
upplýsingar um hversu hart vatnið er á þínu
svæði. Það er mikilvægt að stilla rétt stig
vatnsmýkingar til að tryggja góðar
niðurstöður í þvottinum.
Harka vatns
Þýskar gráður
(°dH)
Franskar gráður
(°fH)
mmól/l Clarke-gráð-
ur
Stig vatnsmýkingar
47 - 50 84 - 90 8,4 - 9,0 58 - 63 10
43 - 46 76 - 83 7,6 - 8,3 53 - 57 9
37 - 42 65 - 75 6,5 - 7,5 46 - 52 8
29 - 36 51 - 64 5,1 - 6,4 36 - 45 7
23 - 28 40 - 50 4,0 - 5,0 28 - 35 6
19 - 22 33 - 39 3,3 - 3,9 23 - 27
5
1)
15 - 18 26 - 32 2,6 - 3,2 18 - 22 4
11 - 14 19 - 25 1,9 - 2,5 13 - 17 3
4 - 10 7 - 18 0,7 - 1,8 5 - 12 2
<4 <7 <0,7 < 5
1
2)
1)
Verksmiðjustilling.
2)
Ekki nota salt á þessu stigi.
Hvort þú notar venjulegt þvottaefni eða
samsettar þvottatöflur (með eða án salts)
skaltu setja rétt hörkustig vatns til að
halda vísi fyrir saltáfyllingu virkum.
Samsettar þvottatöflur innihalda
salt og eru ekki nægilega
skilvirkar til að mýkja hart vatn.
Hvernig stilla á vatnsmýkingarstigið
Heimilistækið verður að vera á
kerfisvalsstillingu.
1. Til að setja tækið í notandastillingu skal
þrýsta á og halda niðri og
þar til vísarnir , , , og
leiftra og skjárinn er auður.
2. Ýttu á .
Slökkt er á vísunum , ,
og .
-vísirinn leiftrar enn.
Skjárinn sýnir núverandi stillingu: t.d.
= 5. stig.
ÍSLENSKA 12
3. Ýttu endurtekið á til að breyta
stillingunni.
4. Ýttu á hnappinn kveikja/slökkva til að
staðfesta stillinguna.
Gljáaskammtarinn
Þegar notaður er gljái þurrkast leirtauið án
þess að rákir eða blettir myndist.
Gljáinn er losaður sjálfkrafa þegar heiti
skolunarferillinn er í gangi.
Þú getur stillt magn gljáans milli 1. stigs
(minnsta magn) og 6. stigs (mesta magn). 0.
stig mun slökkva á gljáaskammtaranum og
enginn gljái kemur.
Verksmiðjustilling: 4. stig.
Hvernig gljáastig er stillt
Heimilistækið verður að vera á
kerfisvalsstillingu.
1. Til að setja tækið í notandastillingu skal
þrýsta á og halda niðri og
þar til vísarnir , , , og
byrja að leiftra og skjárinn er auður.
2. Ýttu á .
Slökkt er á vísunum , , og
.
Vísirinn heldur áfram að
leiftra.
Skjárinn sýnir núverandi stillingu: t.d.
= 4. stig.
Gljáastigin eru á sviðinu frá 0A til
6A þar sem stigið 0A þýðir að
gljái er ekki notaður.
3. Ýttu endurtekið á
til að breyta
stillingunni.
4. Ýttu á kveikja/slökkva til að staðfesta
stillinguna.
Tilkynning um tóman gljáaskammtara
Þegar notaður er gljái þurrkast leirtauið án
þess að rákir eða blettir myndist.
Gljáinn er losaður sjálfkrafa þegar heiti
skolunarferillinn er í gangi.
Þegar gljáahólfið er tómt kviknar á vísi fyrir
gljáa til að tilkynna um að fylla þurfi á
gljáa. Ef þú notar samsettar þvottatöflur
sem innihalda gljáa og þú ert ánægð(ur)
með þurrkárangurinn getur þú gert
tilkynninguna um áfyllingu gljáa óvirka. Hins
vegar mælum við með að þú notir alltaf
gljáa til að fá bestu þurrkframmistöðu.
Ef þú notar venjulegt þvottaefni eða
samsettar þvottatöflur án gljáa skaltu gera
tilkynninguna virka til að halda vísi fyrir
áfyllingu gljáa virkri.
Hvernig gera á tilkynningu um tóman
gljáaskammtara óvirka
Heimilistækið verður að vera á
kerfisvalsstillingu.
1. Til að setja tækið í notandastillingu skal
þrýsta á og halda niðri
og
þar til vísarnir , , , og
byrja að leiftra og skjárinn er auður.
2. Ýttu á .
Slökkt er á vísunum , , og
.
-vísirinn leiftrar enn.
Skjárinn sýnir núverandi stillingu:
= tilkynning um tóman
gljáaskammtara er virk
(verksmiðjustilling).
3. Ýttu á til að breyta stillingunni.
= tilkynning um tóman gljáaskammtara
er óvirk.
4. Ýttu á kveikja/slökkva til að staðfesta
stillinguna.
Hljóðmerki
Hljóðmerki heyrast þegar bilun kemur fram í
heimilistækinu. Það er ekki hægt að slökkva
á þessum hljóðmerkjum.
ÍSLENSKA
13
Einnig er til staðar hljóðmerki sem fer af
stað þegar þvottakerfi er lokið. Sjálfgefið er
kveikt á hljóðmerkinu og mögulegt er að
gera það óvirkt.
Til viðbótar hljómar hljóðmerki áður en
AutoOpen opnar hurðina. Þetta hljóðmerki
stöðvast aðeins ef AutoOpen er gert óvirkt.
Hvernig á að slökkva á hljóðmerki við lok
þvottakerfis
Heimilistækið verður að vera á
kerfisvalsstillingu.
1. Til að setja tækið í notandastillingu skal
þrýsta á og halda niðri
og
þar til vísarnir , , og
byrja að leiftra og skjárinn er auður.
2. Ýttu á
Vísarnir , og slokkna.
Vísirinn heldur áfram að leiftra.
Skjárinn sýnir núverandi stillingu:
= Kveikt á hljóðmerki.
3. Ýttu á til að breyta stillingunni.
= Slökkt á hljóðmerki.
4. Ýttu á hnappinn kveikja/slökkva til að
staðfesta stillinguna.
AutoOpen
AutoOpen bætir þurrkunarárangur með
minni orkunotkun.
Á meðan þurrkstigið gengur
opnar búnaður hurð
heimilistækisins. Hurðinni er síðan
haldið hálfopinni.
VARÚÐ! Reyndu ekki að loka
hurð heimilistækisins næstu 2
mínútur eftir sjálfvirka opnun. Það
getur valdið skemmdum á
tækinu.
Til að forðast mögulega hættu
inni í heimilistækinu (eins og
hnífa, beitta hluti, eða kemísk
efni) fyrir börn, gæludýr, eða fólk
með fötlun, skal gera aðgerðina
óvirka.
AutoOpen er virkjað sjálfvirkt með öllum
þvottakerfum að undanskildu
.
AutoOpen er afvirkjað þegar
kerfið P3 (Hratt) er sameinað
valkostinum ExtraHygiene vegna
hás hitastigs.
Til að bæta þurrkunarafköst skaltu skoða
valkostinn DryPlus eða virkja AutoOpen.
Hvernig afvirkja skal AutoOpen
Heimilistækið verður að vera á
kerfisvalsstillingu.
1. Til að setja tækið í notandastillingu skal
þrýsta á og halda niðri
og
þar til vísarnir , , , og
byrja að leiftra og skjárinn er auður.
2. Ýttu á .
Slökkt er á vísunum
, ,
og .
-vísirinn leiftrar enn.
Skjárinn sýnir núverandi stillingu:
= AutoOpen virkjað.
ÍSLENSKA
14
3. Ýttu á til að breyta stillingunni:
= AutoOpen afvirkjað.
4. Ýttu á kveikja/slökkva til að staðfesta
stillinguna.
Fyrir fyrstu notkun
1. Gætið þess að núverandi staða
mýkingarefnisins sé í samræmi við
herslustig vatnsins. Ef ekki, skal stilla
vatnsmýkingarbúnaðinn.
2. Fylltu salthólfið.
3. Setjið gljáa í gljáahólfið.
4. Skrúfið frá vatnskrananum.
5. Ræsa skal kerfið til að fjarlægja allar
leifar sem enn geta verið inni í tækinu.
Ekki nota þvottaefni og ekki hlaða neinu
í körfurnar.
Þegar þú ræsir kerfi, getur það
tekið tækið allt upp í 5 mínútur til
að endurhlaða kvoðuna í
mýkingarefninu. Það virðist sem
tækið virki ekki. Þvottafasinn
byrjar einungis eftir að þessu ferli
er lokið. Þetta ferli er endurtekið
með reglulegu millibili.
Salthólfið
VARÚÐ! Notið aðeins salt sem er
sérstaklega ætlað til notkunar í
uppþvottavélum.
Saltið er notað til endurhlaða kvoðuna í
mýkingarefninu og tryggja að vélin þvoi vel
daglega.
Salt sett í salthólfið
1 2
3
Settu 1 lítra af vatni
í salthólfið (einungis
í fyrsta skipti sem þú
notar vélina).
4
Settu 1 kg af salti í
salthólfið.
5
VARÚÐ! Vatn og salt geta runnið
út úr salthólfinu þegar þú fyllir á
það. Hætta á tæringu. Til að
fyrirbyggja þetta, skal setja kerfi
af stað eftir áfyllingu salts.
ÍSLENSKA 15
Gljái settur í gljáahólfið
1 2
3
A
Settu gjáa í
gljáahólfið þangað
til gljáinn nær að
„MAX“-merkinu.
Þurrkaðu upp
gljáann sem hellist
niður með
rakadrægum klút til
að hindra að of
mikil froða myndist.
Settu gljáa í
gljáahólfið þegar
vísirinn (A) verður
glær og vísirinn fyrir
gljáann á
stjórnborðinu logar.
4
Dagleg notkun
1. Skrúfaðu frá vatnskrananum.
2. Ýttu á hnappinn kveikja/slökkva til að
virkja heimilistækið.
Gakktu úr skugga um að heimilistækið sé á
kerfisvalsstillingu.
Ef ljósið fyrir salt logar skal fylla á
salthólfið.
Ef ljósið fyrir gljáa logar skal fylla á
gljáahólfið.
3. Raðaðu í grindurnar.
ÍSLENSKA 16
4. Settu þvottaefnið í.
5. Stilltu og ræstu rétt þvottakerfi eftir því
hvað er í vélinni og hversu óhreint það
er.
Notkun þvottaefnis
1 2
2
1
3
30
30
4
5
Ef þvottakerfið felur
í sér forþvott skal
setja dálítið af
þvottaefni í innri
hluta hurðarinnar.
Velja og hefja þvottakerfi
Aðgerðin Auto Off
Þessi aðgerð dregur úr orkunotkun með því
að slökkva sjálfkrafa á tækinu þegar það er
ekki í gangi.
Aðgerðin fer af stað:
5 mínútum eftir að kerfið er lokið.
Eftir 5 mínútur ef kerfið hefur ekki farið í
gang.
Hefja þvottakerfi
VARÚÐ! Taktu ekki grindurnar úr
uppþvottavélinni fyrir
þvottahringrás.
1. Haltu hurðinni á tækinu hálfopinni.
2. Ýttu á hnappinn kveikja/slökkva til að
virkja heimilistækið. Gakktu úr skugga
um að heimilistækið sé á
kerfisvalsstillingu.
3. Ýttu endurtekið á eða þar
til skjárinn sýnir númer kerfisins sem þú
vilt að fari í gang. Skjárinn sýnir númer
kerfisins í um það bil 3 sekúndur og næst
lengd kerfisins.
4. Stilltu viðeigandi valmöguleika.
5. Lokaðu hurð heimilistækisins til að ræsa
kerfið.
Þvottakerfi sett í gang með tímavali
1. Veldu þvottakerfi.
2. Ýttu á aftur og aftur þangað til
skjárinn sýnir þann seinkunartíma sem
þú vilt stilla (frá 1 til 24 klst.).
Það kviknar á tímaseinkunarvísinum.
3. Lokaðu hurð heimilistækisins til að hefja
niðurtalningu.
Á meðan niðurtalning er í gangi er
möguleiki að auka seinkunartímann en ekki
er hægt að breyta vali á kerfum og
valmöguleikum.
Að niðurtalningu lokinni fer þvottakerfið
sjálfkrafa í gang.
ÍSLENSKA
17
Hurðin opnuð á meðan heimilistækið er í
gangi
Ef þú opnar hurðina á meðan kerfið er í
gangi stoppar tækið. Það kann að hafa
áhrif á orkunotkun og tímalengd kerfisins.
Þegar þú lokar hurðinni heldur heimilistækið
áfram frá þeim punkti þar sem truflunin
varð.
Ef hurðin er opin lengur en í 30
sekúndur á meðan
þurrkunarstigið er gangi mun
kerfið sem er í gangi enda. Þetta
gerist ekki ef hurðin er opnuð
með AutoOpen.
VARÚÐ! Reyndu ekki að loka
hurð heimilistækisins næstu 2
mínútur eftir að AutoOpen opnar
hana sjálfvirkt, þar sem það kann
að valda skemmdum á
heimilistækinu. Ef hurðin er
seinna lokuð í aðrar 3 mínútur,
endar kerfið sem er í gangi.
Hætt við tímaval á meðan niðurtalning er í
gangi
Þegar þú afturkallar tímaval verður þú að
stilla þvottakerfi og valkosti á nýjan leik.
Þrýstið RESET og haldið niðri þar til tækið er
í kerfisval-stillingu.
Þvottakerfi afturkallað
Ýttu á og haltu RESET þar til tækið er í
kerfisvalstillingu.
Gættu þess að það sé þvottaefni í
þvottaefnishólfinu áður en nýtt þvottakerfi
er sett í gang.
Lok þvottakerfis
Þegar þvottakerfið er búið og þú opnar
hurðina slokknar sjálfkrafa á tækinu.
Skrúfaðu fyrir kranann.
Góð ráð
Almennt
Eftirfarandi ráðleggingar tryggja bestu þrif
og hreinsun í daglegri notkun og hjálpa við
að vernda umhverfið.
Fjarlægja skal matarleifar af diskunum
og kasta í ruslið.
Ekki skal for-hreinsa diskana handvirkt.
Ef með þarf skal nota for-þvotta kerfi (ef
til staðar) eða velja kerfi með
forþvottafasa.
Ávallt skal nota allt rýmið í körfunum.
Þegar verið er að fylla í tækið skal
tryggja að vatnið í sprautuörmunum nái
alveg að diskunum og geti þvegið þá
almennilega. Tryggið að hlutirnir snertist
ekki eða liggi yfir hvor öðrum.
Hægt er að nota þvottaefni fyrir
uppþvottavélar, gljáa og salt út af fyrir
sig eða hægt er að nota samsettar
þvottaefnistöflur (t.d. ''3 í 1'', ''4 í 1'', ''Allt
í 1''). Fylgið leiðbeiningunum sem standa
á pakkningunni.
Stillið á þvottakerfi eftir því hvað er í
vélinni og hversu óhreint það er. Með
ECO kerfinu nýtist vatnið og orkan best
fyrir borðbúnað og hnífapör með
venjulegum óhreinindum.
Notkun salts, gljáa og þvottaefnis
Aðeins skal nota salt, gljáa og þvottaefni
ætlað fyrir uppþvottavélar. Aðrar vörur
geta valdið skemmdum á heimilistækinu.
Á svæðum þar sem harka vatnsins er
mikil og mjög mikil mælum við með að
ÍSLENSKA 18
nota venjulegt þvottaefni (duft, gel, töflur
án aukalegrar virkni), gljáa og salt, hvert
fyrir sig, til að ná sem bestum árangri
með hreinsun og þurrkun.
Að minnsta kosti einu sinni í mánuði skal
keyra heimilistækið með
heimilistækjahreinsi sem er sérstaklega
hentugur í þeim tilgangi.
Þvottaefnistöflur leysast ekki að fullu upp
ef þvottakerfið er mjög stutt. Til að koma
í veg fyrir leifar þvottaefnis á borðbúnaði
mælum við með því að þú notir töflurnar
með lengri þvottakerfum.
Ekki skal nota meira en rétt magn af
þvottaefni. Sjá leiðbeiningarnar á
umbúðum þvottaefnisins.
Hvað á að gera ef þú vilt hætta að nota
samsettar þvottaefnistöflur
Áður en þú notar þvottaefni, salt eða gljáa
út af fyrir sig skaltu fylgja eftirfarandi
verklagi.
1. Stilltu vatnsmýkingarbúnaðinn á hæsta
stig.
2. Gakktu úr skugga um að salthólfið og
hreinsiefnahólfið séu bæði full.
3. Kveiktu á stysta kerfinu með skolunaferli.
Ekki bæta við þvottaefni og ekki hlaða
neinu í grindurnar.
4. Þegar kerfinu er lokið, stilltu þá
vatnsmýkingarbúnaðinn í samræmi við
herslustig vatnsins á þínu svæði.
5. Stilltu losað magn gljáa.
6. Gerðu tilkynningu um tóman
gljáaskammtara virka.
Að raða í grindurnar
Sjá meðfylgjandi bækling sem
sýnir dæmi um hvernig skal raða
í körfur.
Notaðu heimilistækið einungis til að þvo
hluti sem þvo má í uppþvottavél.
Ekki skal setja í heimilistækið hluti sem
eru gerðir úr tré, horni, áli, pjátri og
kopar.
Ekki skal setja hluti í heimilistækið sem
geta tekið í sig vatn (svampa,
diskaþurrkur).
Fjarlægðu matarleifarnar af hlutunum.
Rennbleyttu þá hluti sem eru með
brenndum matarleifum í vatni.
Raðaðu hlutum sem eru holir að innan
(þ.e. bollum, glösum og pottum) þannig
að opið vísi niður.
Gakktu úr skugga um að hnífapör og
diskar festist ekki saman. Settu skeiðar
með öðrum hnífapörum.
Gakktu úr skugga um að glös snertist
ekki.
Leggðu smáa hluti í hnífaparakörfuna.
Settu létta hluti í efri grindina. Gakktu úr
skugga um að hlutirnir hreyfist ekki til.
Gakktu úr skugga um að vatnsarmarnir
geti hreyfst óhindrað áður en kerfi er sett
í gang.
Áður en kerfi er sett af stað
Gangið úr skugga um að:
Síurnar eru hreinar og rétt uppsettar.
Lokið á salthólfinu þarf að vera þétt.
Vatnsarmarnir eru ekki stíflaðir.
Það sé salt og gljái til staðar (nema þú
notir samsettar þvottaefnistöflur).
Staða hluta í körfunum sé rétt.
Kerfið eigi við um þá tegund hleðslu og
þau óhreinindi sem í hlut eiga.
Verið sé að nota rétt magn þvottaefnis.
Að taka úr grindunum.
Til að fá betri þurrkun skal hafa
hurð heimilistækisins í hálfa gátt í
nokkrar mínútur áður en þú
fjarlægir diskana.
1. Láttu diskana kólna áður en þeir eru
teknir úr heimilistækinu. Auðvelt er að
skemma heita diska.
2. Fyrst skaltu fjarlægja hluti úr neðri
grindinni, síðan efri grindinni.
ÍSLENSKA
19
Í lok kerfisins getur ennþá verið
vatn eftir á hliðum og á hurð
heimilistækisins.
Umhirða og hreinsun
AÐVÖRUN! Áður en viðhald fer
fram á tækinu skal slökkva á því
og aftengja aðalklóna frá
rafmagnsinnstungunni.
Óhreinar síur og stíflaðir
úðaarmar minnka
þvottaárangur. Athugaðu
reglulega og hreinsaðu ef þörf
krefur.
Hreinsun á síum
1
Gæta verður þess
að engar
matarleifar eða
óhreinindi séu skilin
eftir.
2
C
B
A
3
Til að fjarlægja síur
(B) og (C) skal snúa
handfanginu
rangsælis og
fjarlægja. Takið
síuna í sundur (B) og
(C). Þvoið síurnar
með vatni.
4
Fjarlægðu síu (A).
Þvoðu síuna með
vatni.
5
D
Setjið flötu síuna (A)
aftur á sinn stað.
Gangið í skugga um
að hún rétt staðsett
undir merkingunum
2 (D).
6
Samsetning sía (B)
og (C). Settu þær í
rétta stöðu í síu (A).
Snúðu handfanginu
réttsælis þangað til
það læsist.
Röng staðsetning sía getur leitt til
lélegrar frammistöðu við þvotta
og valdið tjóni á heimilistækinu.
ÍSLENSKA 20
  • Page 1 1
  • Page 2 2
  • Page 3 3
  • Page 4 4
  • Page 5 5
  • Page 6 6
  • Page 7 7
  • Page 8 8
  • Page 9 9
  • Page 10 10
  • Page 11 11
  • Page 12 12
  • Page 13 13
  • Page 14 14
  • Page 15 15
  • Page 16 16
  • Page 17 17
  • Page 18 18
  • Page 19 19
  • Page 20 20
  • Page 21 21
  • Page 22 22
  • Page 23 23
  • Page 24 24
  • Page 25 25
  • Page 26 26
  • Page 27 27
  • Page 28 28
  • Page 29 29
  • Page 30 30
  • Page 31 31
  • Page 32 32

IKEA RENODLAD 80352036 Používateľská príručka

Kategória
Mixér / kuchynský robot príslušenstvo
Typ
Používateľská príručka

V iných jazykoch