• Stillið á þvottakerfi eftir því hvað er í
vélinni og hversu óhreint það er. Með
ECO kerfinu nýtist vatnið og orkan best
fyrir borðbúnað og hnífapör með
venjulegum óhreinindum.
Notkun salts, gljáa og
þvottaefnis
• Einungis skal nota salt, gljáa og
þvottaefni sem er ætlað fyrir
uppþvottavélar. Aðrar vörur geta valdið
skemmdum á heimilistækinu.
• Samsettar þvottaefnistöflunar eru yfirleitt
ætlaðar til notkunar þar sem harka vatns
er allt að 21 °dH. Á svæðum þar sem
farið er fram yfir þessi mörk verður að
nota gljáa og salt auk
þvottaefnistaflnanna. Hinsvegar, á
svæðum þar sem harka vatnsins er mjög
mikil er mælt með að nota þvottaefni
(duft, gel, töflur án aukalegrar virkni),
gljáa og salt sérstaklega til að ná sem
bestum árangri með hreinsun og
þurrkun.
• Ef notaðar eru samsettar
þvottaefnistöflur skal velja möguleikann
Multitab (ef til staðar). Þessi valmöguleiki
eykur hreinsun og þurrkun með
samsettum þvottaefnistöflum.
• Þvottaefnistöflur leysast ekki að fullu upp
ef þvottakerfið er mjög stutt. Til að koma
í veg fyrir leifar þvottaefnis á borðbúnaði
mælum við með því að þú notir töflurnar
með lengri þvottakerfum.
• Ekki skal nota meira en rétt magn af
þvottaefni. Sjá leiðbeiningarnar á
umbúðum þvottaefnisins.
Hvað á að gera ef þú vilt hætta
að nota samsettar
þvottaefnistöflur
Áður en þú notar þvottaefni, salt eða gljáa
út af fyrir sig skaltu fylgja eftirfarandi
verklagi.
1. Stilltu vatnsmýkingarbúnaðinn á hæsta
stig.
2. Gakktu úr skugga um að salthólfið og
hreinsiefnahólfið séu bæði full.
3. Kveiktu á stysta kerfinu með
skolunaferli. Ekki bæta við þvottaefni og
ekki hlaða neinu í grindurnar.
4. Þegar kerfinu er lokið, stilltu þá
vatnsmýkingarbúnaðinn í samræmi við
herslustig vatnsins á þínu svæði.
5. Stilltu losað magn gljáa.
6. Gera gljáaskammtarann virkan.
Að raða í grindurnar
• Notaðu uppþvottavélina einungis til að
þvo hluti sem þvo má í slíkri vél.
• Ekki skal setja í vélina hluti sem eru
gerðir úr tré, horni, áli, pjátri og kopar.
• Ekki skal setja hluti í tækið sem geta
tekið í sig vatn (svampa, viskustykki).
• Fjarlægðu matarleifarnar af hlutunum.
• Mýkja skal brenndar matarleifar sem eru
á hlutunum.
• Raðaðu hlutum sem eru holir að innan
(þ.e. bollum, glösum og pottum) í vélina
þannig að opið vísi niður.
• Gakktu úr skugga um að hnífapör og
leirtau festist ekki saman. Settu skeiðar
með öðrum hnífapörum.
• Gakktu úr skugga um að glös snerti ekki
önnur glös.
• Leggðu smáa hluti í hnífaparakörfuna.
• Settu létta hluti í efri grindina. Gakktu úr
skugga um að hlutirnir hreyfist ekki til.
• Gakktu úr skugga um að vatnsarmarnir
geti hreyfst óhindrað áður en kerfi er sett
í gang.
Áður en kerfi er sett af stað
Gangið úr skugga um að:
• Síurnar eru hreinar og rétt uppsettar.
• Lokið á salthólfinu þarf að vera þétt.
• Vatnsarmarnir eru ekki stíflaðir.
• Það sé salt og gljái til staðar (nema þú
notir samsettar þvottaefnistöflur).
• Staða hluta í körfunum sé rétt.
• Kerfið eigi við um þá tegund hleðslu og
þau óhreinindi sem í hlut eiga.
• Verið sé að nota rétt magn þvottaefnis.
Progress 13