IS
7
Sjá prógrammval til að kanna hvort valmöguleikar koma til greina fyrir valið
prógramm
VALMÖGULEIKAR sem hægt er að velja beint með
því að ýta á tiltekinn hnapp
Krumpufrítt
Hjálpar til við að halda þvottinum frísklegum ef ekki er hægt
að arlægja hann strax eftir þvott.
Þvottavélin byrjar að snúa þvottinum með reglulegu millibili
stuttu eftir að prógrammi lýkur. Þvottavélin heldur áfram að
snúa þvottinum í 6 klst. eftir að þvottaprógrammi lýkur. Hægt er að
stöðva aðgerðina hvenær sem er með því að ýta á einhvern hnapp.
Lúgan aæsist og hægt er að taka út þvottinn.
VALMÖGULEIKAR sem hægt er að velja með
því að ýta á viðkomandi hnapp
Forþvottur
Hjálpar til við að hreinsa mjög óhreinan þvott með því að bæta
forþvotti við valið þvottaprógramm.
Lengir prógrammið um 20 mínútur.
Þvottaefni bætt við forþvottalotu
• sjálfvirkt: gakktu úr skugga um að sjálfvirka skömmtunarkerð sé
virkt (sjá AÐGERÐIR / Sjálfvirk skömmtun)
• handvirkt: Settu skammt af þvottaefni fyrir forþvottastigið beint inn
í tromluna í þvottaefniskúlu áður en prógrammið byrjar.
Heit skolun
Prógrammið endar á heitri skolun. Þannig slaknar á þráðunum
í þvottinum og hann verður þægilega hlýr viðkomu þegar
hann er tekinn út skömmu eftir að prógrammið endar.
Blettir 15°
Hjálpar til við að arlægja alls konar bletti, nema tu/olíu.
Prógrammið byrjar með þvotti í köldu vatni. Lengir
prógrammið um 10 mínútur.
Undirbúningsmeðferð ráðlögð vegna þrálátra bletta.
Ekki hægt að velja fyrir bómull 95 °C.
Litir 15
Hjálpar til við að varðveita litinn á þvottinum með því að
þvo hann í köldu vatni (15°C). Sparar orku við hitun vatns
jafnframt því að þvo vel.
Hentugt fyrir lítið óhreinan, litaðan þvott án bletta.
• Gakktu úr skugga um að þvottaefnið henti fyrir kaldþvott
(15 eða 20 °C).
• Ekki hægt að velja fyrir bómull 95°C.
Mjög óhreint
Hjálpar til við að hreinsa mjög óhreinan þvott með því að
hámarka nýtingu viðbótarefnis við blettahreinsun.
Bættu við hælegu magni af viðbótarefni til blettahreinsunar
(dufti) í þvottahólð fyrir handskömmtun ásamt þvottaefni (aðeins
dufti). Getur lengt prógrammið um allt að 15 mínútur.
Hentar til notkunar með blettahreinsiefnum, sem byggjast á súrefni, og
bleikiefnum.
Hvorki má nota klór né perbórat!
Intensiv skylling
Hjálpar til við að forðast leifar af þvottaefni í þvottinum með
því að lengja skolunarfasann.
Hentar einkar vel fyrir barnafataþvott, fólk með ofnæmi og
landsvæði með mjúku vatni.
Hratt
Flýtir þvotti.
Aðeins ráðlagt fyrir lítið óhreinan þvott.
Ekki hægt að velja fyrir bómull 95 °.
AÐGERÐIR
Sjálfvirk skömmtun
Skammtar sjálfkrafa jótandi þvottaefni og
mýkingarefni (ef þörf er á) úr þvottaefnisgeymunum. Til
að fá réttan skammt þarf þessi aðgerð að vera sett upp
eins og nefnt er í kaanum FYRSTA SINN/Sjálfvirk
skömmtun, og eins og lýst er nánar í NOTKUN OG
MEÐFERÐ/SJÁLFVIRK SKÖMMTUN - FYRSTI ÞVOTTUR.
Þegar uppsetningu er lokið skal sjá til þess að geymarnir
séu með þvottaefni/mýkingarefni í samræmi við valda
uppsetningu:
• Ef þú notar mýkingarefni:
» Geymir 1: þvottaefni
» Geymir 2: mýkingarefni
Þegar sett er upp prógramm í með þessum hætti kviknar á hnöppum
geyma 1 og 2 til að gefa til kynna að rétt magn af þvottaefni og
mýkingarefni sé skammtað þegar byrjað hefur verið á prógramminu. Ef
ekki er óskað eftir að skammta mýkingarefni skal einfaldlega gera
geymi 2 óvirkan með því að ýta á samsvarandi hnapp..
• Ef þú notar ekki mýkingarefni:
» Geymir 1: aðalþvottaefni
» Geymir 2: þvottaefni tvö
Í þessari uppsetningu er aðeins hægt að velja annað hólð þegar sett
er upp prógramm. Gakktu úr skugga um að réttur geymir sé valinn í
samræmi við þvottaefnið sem þú vilt nota fyrir valið prógramm.
Þvottaefni kemur aðeins úr geyminum sem samsvarandi hnappur lýsir
fyrir.
Stundum er æskilegt að setja þvottaefnið í með handvirkum hætti (t.d.
af því að þú vilt nota annað þvottaefni). Þá skal afvirkja geymana með
því að ýta á hnappana og láta þvottaefni í hólð fyrir handvirka
skömmtun. Afvirkjun geymanna á aðeins við um eitt prógramm.
Sjálfvirk skömmtun virkjast sjálfkrafa aftur fyrir næsta prógramm sem
sett er upp.
Þegar þvottaefni/mýkingarefni fer að minnka í öðrum hvorum
geyminum kemur fram viðvörun um það á skjánum um leið og kveikt
er á þvottavélinni en einnig við lok prógrammsins. Auk þess blikkar ljós
fyrir viðkomandi geymi nokkrum sinnum. Þegar þessi boð birtast í
fyrsta sinn dugar það sem er í geymunum venjulega í tvö eða þrjú
prógrömm í viðbót.
Þegar ekkert er lengur eftir af þvottaefni/mýkingarefni í öðrum
geyminum birtir skjárinn viðvörun þess efnis og upplýsir að aðeins sé
hægt að skammta handvirkt. Það blikkar hnappaljós um tóman geymi
nokkrum sinnum. Annað hvort þarf að fylla á tóma geyminn/tómu
geymana eða skammta þvottaefnið með handvirkum hætti.
Ef óskað er eftir að afvirkja sjálfvirku skömmtunina til frambúðar (af því
að þú vilt alltaf skammta handvirkt), skal ýta á stillihnappinn (settings),
velja sjálfvirka skömmtun og stilla á „O“. Ef óskað er eftir að
endurvirkja aðgerðina skal stilla á „On“.
MIKILVÆGT:
• Aldrei má setja þvottaduft á geymana. Þvottaduftið má aðeins nota í
handvirkri skömmtun
• Ekki er hægt að skammta mýkingarefni handvirkt. Það er einungis
hægt að nota í geymi 2 með sjálfvirkri skömmtun.
Skyllestopp (hægt að velja með snúningshnappnum)
Forðastu sjálfvirka vindingu á þvotti í lok þvottaprógramms.
Þvotturinn er áfram í síðasta skolvatninu, skjárinn sýnir bið eftir
skolun og prógrammið stöðvast.
Hentar fyrir viðkvæman þvott sem ekki ætti að fara í vindingu eða sem
ætti að vinda á lágum snúningshraða. Hentar ekki fyrir silki.
Ef velja skal „Skyllestopp“:
• Ýttu á snúningshnappinn. Veldu Skyllestopp. Táknið Skyllestopp
kviknar á skjánum.
Skjárinn sýnir hvenær prógrammið er komið að Skyllestopp. Veldu að:
• að losa vatn, án vindingar:
VALMÖGULEIKAR, AÐGERÐIR OG VÍSAR