IKEA SMAKSAOVB Používateľská príručka

Typ
Používateľská príručka
SMAKSAK
IS
ÍSLENSKA
Á öftustu síðu þessarar handbók er skrá yfir alla veitendur
eftirsöluþjónustu sem útnefndir hafa verið af IKEA og viðeigandi
símanúmer í hverju landi.
ÍSLENSKA
4
Efnisyfirlit
Öryggisupplýsingar 4
Öryggisleiðbeiningar 6
Innsetning 8
Vörulýsing 9
Stjórnborð 9
Fyrir fyrstu notkun 10
Dagleg notkun 11
Tímastillingar 13
Að nota fylgihluti 15
Viðbótarstillingar 16
Góð ráð 17
Umhirða og þrif 22
Bilanaleit 25
Tæknigögn 27
Orkunýtni 27
Umhverfismál 28
IKEA-ÁBYRGÐ 29
Með fyrirvara á breytingum.
Öryggisupplýsingar
Fyrir uppsetningu og notkun heimilistækisins skal lesa
meðfylgjandi leiðbeiningar vandlega. Framleiðandinn er ekki
ábyrgur fyrir tjóni ef röng uppsetning eða notkun veldur
meiðslum og skemmdum. Alltaf skal geyma leiðbeiningarnar
með tækinu til síðari notkunar.
Öryggi barna og viðkvæmra einstaklinga
Börn, 8 ára og eldri og fólk með minnkaða líkamlega-, skyn-
eða andlega getu, eða sem skortir reynslu og þekkingu,
mega nota þetta tæki, ef þau eru undir eftirliti eða hafa verið
veittar leiðbeiningar varðandi örugga notkun tækisins og ef
þau skilja hættuna sem því fylgir.
Halda skal börnum á milli 3 og 8 ára gömlum og fólki með
mjög miklar og flóknar fatlanir frá, nema þau séu undir
stöðugu eftirliti.
Halda skal börnum yngri en 3 ára frá tækinu nema þau séu
undir stöðugu eftirliti.
Láttu börn ekki leika sér með heimilistækið.
Haltu öllum umbúðum frá börnum og fargaðu þeim á
viðeigandi hátt.
ÍSLENSKA
4
Haltu börnum og gæludýrum fjarri heimilistækinu þegar það
er í gangi eða þegar það kólnar. Aðgengilegir hlutar eru
heitir.
Ef heimilistækið er með barnalæsingu ætti hún að vera
virkjuð.
Börn eiga ekki að hreinsa eða framkvæma notandaviðhald á
heimilistækinu án eftirlits.
Almennt öryggi
Einungis til þess hæfur aðili má setja upp þetta heimilistæki
og skipta um snúruna.
VIÐVÖRUN: Heimilistækið og aðgengilegir hlutar þess hitna
við notkun. Auðsýna ætti aðgát til að forðast að snerta
hitaelementin.
Notaðu alltaf ofnhanska til að fjarlægja eða setja inn
fylgihluti eða ofnáhöld.
Áður en viðhald hefst skal aftengja tækið frá rafmagni.
Tryggðu að slökkt sé á heimilistækinu áður en þú skiptir um
ljósið til að forðast möguleika á raflosti.
Notaðu ekki gufuhreinsibúnað til að hreinsa heimilistækið.
Notaðu ekki sterk tærandi hreinsiefni eða beittar málmsköfur
til að hreinsa glerhurðina þar sem slíkt getur rispað
yfirborðið, sem getur aftur leitt til þess að glerið brotnar.
Ef rafmagnssnúra er skemmd verður framleiðandi, viðurkennd
þjónustumiðstöð, eða svipað hæfur aðili að endurnýja hana
til að forðast hættu vegna rafmagns.
Til að fjarlægja hilluberana skaltu fyrst toga í framhlið
hilluberanna og síðan toga bakendann burt frá
hliðarveggjunum. Settu hilluberana upp í öfugri röð.
ÍSLENSKA
5
Öryggisleiðbeiningar
Uppsetning
AÐVÖRUN! Einungis löggildur
aðili má setja upp þetta
heimilistæki.
Fjarlægðu allar umbúðir.
Ekki skal setja upp eða nota skemmt
heimilistæki.
Fylgdu leiðbeiningum um uppsetningu
sem fylgja með heimilistækinu.
Alltaf skal sýna aðgát þegar
heimilistækið er fært vegna þess að það
er þungt. Notaðu alltaf öryggishanska og
lokaðan skóbúnað.
Dragðu heimilistækið ekki á
handfanginu.
Haltu lágmarksfjarlægð frá öðrum
heimilistækjum og einingum.
Settu heimilistækið upp á öruggum og
hentugum stað sem uppfyllir
uppsetningarkröfur.
Tenging við rafmagn
AÐVÖRUN! Hætta á eldi og
raflosti.
Allar rafmagnstengingar skulu
framkvæmdar af viðurkenndum rafvirkja.
Heimilistækið verður að vera jarðtengt.
Gakktu úr skugga um að færibreyturnar
á merkiplötunni séu samhæfar við
rafmagnsflokkun aðalæðar aflgjafa.
Notaðu alltaf rétt ísetta innstungu sem
ekki veldur raflosti.
Notaðu ekki fjöltengi eða
framlengingarsnúrur.
Gakktu úr skugga um að rafmagnsklóin
og snúran verði ekki fyrir skemmdum. Ef
skipta þarf um rafmagnssnúru verður
viðurkennd þjónustumiðstöð okkar að sjá
um það.
Ekki láta rafmagnssnúrurnar komast í
snertingu við hurð tækisins, einkum þegar
hurðin er heit.
Vörn lifandi og einangraðra hluta gegn
raflosti verður að vera fest þannig að
ekki sé hægt að fjarlægja hana án
verkfæra.
Aðeins skal tengja rafmagnsklóna við
rafmagnsinnstunguna í lok
uppsetningarinnar. Gakktu úr skugga um
að rafmagnsklóin sé aðgengileg eftir
uppsetningu.
Ef rafmagnsinnstungan er laus, skal ekki
tengja rafmagnsklóna.
Ekki toga í snúruna til að taka tækið úr
sambandi. Taktu alltaf um klóna.
Notaðu aðeins réttan
einangrunarbúnað:
Línuvarnarstraumloka, öryggi (öryggi
með skrúfgangi fjarlægð úr höldunni),
lekaliða og spólurofa.
Rafmagnsuppsetningin verður að vera
með einangrunarbúnað sem leyfir þér að
aftengja tækið frá stofnæð á öllum
pólum. Einangrunarbúnaðurinn verður
að hafa að lágmarki 3 mm
snertiopnunarvídd.
Þetta heimilistæki samræmist tilskipunum
EBE.
Notkun
AÐVÖRUN! Hætta á meiðslum,
bruna og raflosti eða sprengingu.
Þetta heimilistæki er eingöngu ætlað til
heimilisnota.
Breyttu ekki tæknilýsingu fyrir þetta
heimilistæki.
Gættu þess að loftræstiop séu ekki
stífluð.
Láttu heimilistækið ekki vera án eftirlits á
meðan það er í gangi.
Slökktu á heimilistækinu eftir hverja
notkun.
Farðu varlega þegar þú opnar hurð
heimilistækisins á meðan það er í gangi.
Heitt loft getur losnað út.
ÍSLENSKA
6
Notaðu ekki heimilistækið með blautar
hendur eða þegar það er í snertingu við
vatn.
Beittu ekki þrýstingi á opna hurð.
Notaðu ekki heimilistækið sem
vinnusvæði eða geymslusvæði.
Opnaðu hurð heimilistækisins varlega.
Notkun hráefna með alkóhóli getur
valdið blöndu alkóhóls og lofts.
Láttu ekki neista eða opinn eld komast í
snertingu við heimilistækið þegar þú
opnar hurðina.
Settu ekki eldfim efni eða hluti sem eru
blautir af eldfimum efnum í, nálægt eða
á heimilistækið.
AÐVÖRUN! Hætta á skemmdum
á heimilistækinu.
Til að koma í veg fyrir skemmdir eða
aflitun á glerungnum:
Settu ekki ofnáhöld eða aðra hluti í
heimilistækið beint á botninn.
Settu ekki álpappír beint í botninn á
rýminu í heimilistækinu.
Settu ekki vatn beint inn í heitt
heimilistækið.
Láttu ekki raka rétti og rök matvæli
vera inni í heimilistækinu eftir að
matreiðslu er lokið.
Farðu varlega þegar þú fjarlægir
aukahluti eða setur þá upp.
Aflitun á glerungnum eða ryðfríu stáli
hefur engin áhrif á getu eða frammistöðu
heimilistækisins.
Notaðu djúpa skúffu fyrir rakar kökur.
Ávaxtasafi veldur blettum sem geta verið
varanlegir.
Þetta heimilistæki er eingöngu til að
matreiða með. Ekk má nota það í öðrum
tilgangi, til dæmis að hita herbergi.
Alltaf skal elda með ofnhurðina lokaða.
Ef heimilistækið er sett upp á bak við
húsgagnaþil (t.d hurð) skaltu gæta þess
að hurðin sé aldrei lokuð þegar
heimilistækið er í notkun. Hiti og raki
geta byggst upp á bak við lokað
húsgagnaþil og valdið síðar skemmdum
á heimilistækinu, húseiningunni eða
gólfinu. Lokaðu ekki húsgagnaþilinu fyrr
en heimilistækið hefur kólnað til fulls eftir
notkun.
Umhirða og hreinsun
AÐVÖRUN! Hætta á meiðslum,
eldsvoða eða skemmum á
heimilistækinu.
Áður en viðhald fer fram skal slökkva á
heimilistækinu og aftengja
rafmagnsklóna frá
rafmagnsinnstungunni.
Gættu þess að heimilistækið sé kalt.
Hætta er á að glerplöturnar brotni.
Endurnýjaðu glerplöturnar í ofnhurðinni
strax þegar þær skemmast. Hafðu
samband við viðurkennda
þjónustumiðstöð.
Vertu varkár þegar þú tekur hurðina af
heimilistækinu. Hurðin er þung!
Hreinsaðu heimilistækið reglulega til að
yfirborðsefnin á því endist betur.
Fitu- og matarleifar sem eftir eru í
heimilistækinu geta valdið eldsvoða.
Ef þú notar ofnhreinsi skaltu hlýða
öryggisleiðbeiningunum á umbúðunum.
Fjarlægðu ekki hnúðana af
heimilistækinu.
Innri lýsing
AÐVÖRUN! Hætta á raflosti.
Sú tegund ljósaperu eða halógenlampa
sem notuð er fyrir þetta tæki er aðeins
ætluð heimilistækjum. Ekki nota það sem
heimilisljós.
Áður en ljósið er endurnýjað skal
aftengja heimilistækið frá
rafmagnsinntakinu.
Einungis skal nota ljós með sömu
tæknilýsingu.
Þjónusta
Hafðu samband við viðurkennda
þjónustumiðstöð til að gera við
heimilistækið.
ÍSLENSKA
7
Notaðu eingöngu upprunalega varahluti.
Förgun
AÐVÖRUN! Hætta á meiðslum
eða köfnun.
Aftengdu tækið frá rafmagni.
Klipptu rafmagnssnúruna af upp við
heimilistækið og fargaðu henni.
Fjarlægðu hurðina til að koma í veg fyrir
að börn eða dýr geti lokast inni í tækinu.
Umbúðaefni:
Umbúðaefnið er endurvinnanlegt.
Plasthlutar eru merktir með alþjóðlegum
skammstöfunum t.d. PE PS o.s.frv.
Fargaðu umbúðaefninu í til þess ætluðum
gámum á sorpförgunarstöðinni á
staðnum.
Innsetning
AÐVÖRUN! Sjá kafla um
Öryggismál.
Samsetning
Farðu eftir
samsetningarleiðbeiningunum
við uppsetningu.
Rafmagnsuppsetning
AÐVÖRUN! Aðeins viðurkenndur
einstaklingur má sjá um
raflagnavinnuna.
Framleiðandinn er ekki ábyrgur
ef þú fylgir ekki
öryggisvarúðarráðstöfununum í
öryggisköflunum.
Þessi ofn er aðeins afhentur með
rafmagnssnúru.
Kapall
Kapaltegundir sem viðeigandi eru fyrir
uppsetningu eða endurnýjun:
H07 RN-F, H05 RN-F, H05 RRF, H05 VV-F,
H05 V2V2-F (T90), H05 BB-F
Fyrir þversnið kapalsins vísast til heildarafls
á merkiplötunni. Þú getur einnig vísað til
töflunnar:
Heildarafl (W) Þversnið kapals
(mm²)
að hámarki 1380 3 x 0.75
að hámarki 2300 3 x 1
að hámarki 3680 3 x 1.5
Jarðstrengurinn (grænn / gulur kapall)
verður að vera 2 cm lengri en fasinn og
núllkapallinn (bláir og brúnir kaplar).
ÍSLENSKA 8
Vörulýsing
Almennt yfirlit
6
5
11
10
7
8
9
5
4
1
2
3
31 42
1
Stjórnborð
2
Hnúður fyrir hitunaraðgerðir
3
Skjár
4
Stjórnhnúður
5
Hitaelement
6
Ljós
7
Vifta
8
Hólf ofnrýmisins
9
Hilluberi, laus
10
Merkiplata
11
Hillustöður
Fylgihlutir
Vírhilla x 1
Fyrir eldunaráhöld, kökuform, steikur.
Bökunarplata x 1
Fyrir kökur og smákökur.
Grill- / steikingarskúffa x 1
Til að baka og steikja eða sem panna til
að safna feiti.
Útdraganlegar rennur x 1 sett
Fyrir hillur og plötur.
Stjórnborð
Hnappar
Skynjaraflötur / Hnappur Aðgerð Lýsing
VALKOSTIR Til að stilla klukkuaðgerðir. Til að athuga
með hitastig ofns. Notaðu aðeins á með-
an hitunaraðgerð er í gangi.
BYRJA Til að byrja hitunaraðgerð.
Í lagi Til að staðfesta.
ÍSLENSKA 9
Skjár
A B
DG EF C
A. Tímastillir / Hitastig
B. Vísir sem sýnir upphitun og afgangshita
C. Kjöthitamælir (aðeins valdar gerðir)
D. Hurðarlæsing (aðeins valdar gerðir)
E. Klukkustundir / mínútur
F. Kynningarhamur (aðeins valdar gerðir)
G. Klukkuaðgerðir
Fyrir fyrstu notkun
AÐVÖRUN! Sjá kafla um
Öryggismál.
Til að stilla tíma dagsins vísast til
kaflans „Klukkuaðgerðir“.
Fyrsta hreinsun
Fjarlægðu allan aukabúnað og lausar
hillustoðir úr ofninum.
Sjá kaflann „Umhirða og
hreinsun“.
Hreinsaðu ofninn og aukabúnaðinn fyrir
fyrstu notkun.
Settu aukabúnaðinn og lausu hillustoðirnar
aftur í upphaflega stöðu sína.
Forhitun
Forhitaðu tóman ofninn fyrir fyrstu notkun.
Fyrir aðgerð Bein gufa skaltu
lesa kaflann „Dagleg notkun“,
Aðgerðin Bein gufa stillt.
1. Stilltu aðgerðina og
hámarkshitastigið.
2. Láttu ofninn vinna í 1 klukkustund.
3. Stilltu aðgerðina og stilltu
hámarkshitastigið.
4. Láttu ofninn vinna í 15 mínútur.
5. Slökktu á ofninum og láttu hann kólna.
Fylgihlutir geta orðið heitari en venjulega.
Ofninn getur gefið frá sér lykt og reyk.
Gættu þess að loftflæði í herberginu sé
nægjanlegt.
Vélræna barnalæsingin notuð
Ofninn er með barnalæsinguna uppsetta.
Hún er hægra megin á ofninum, undir
stjórnborðinu.
Til að opna ofnhurðina með
barnalæsingunni:
1. Togaðu í og haltu
barnalæsingarhandfanginu upp eins og
sýnt er á myndinni.
2. Opnaðu hurðina.
Lokaðu ofnhurðinni án þess að toga í
barnalæsinguna.
Til að fjarlægja barnalæsinguna skal opna
ofninn og fjarlægja barnalæsinguna með
torx-lyklinum. Torx-lykillinn er í
fylgihlutapoka ofnsins.
ÍSLENSKA
10
Skrúfaðu skrúfuna aftur inn í gatið þegar þú
hefur fjarlægt barnalæsinguna.
AÐVÖRUN! Gættu þess að rispa
ekki stjórnborðið.
Dagleg notkun
AÐVÖRUN! Sjá kafla um
Öryggismál.
Hitunaraðgerðir
Hitunarað-
gerð
Notkun
Slökkt-
staða
Slökkt er á ofninum.
Þvinguð
lofteldun
Til að baka á allt að þremur
hillustöðum á sama tíma og til
að þurrka matvæli.Stilltu hit-
astigið 20 - 40°C lægra en
fyrir Hefðbundið (yfir- og un-
dirhiti).
Hefðbund-
ið (yfir- og
undirhiti)
Til að baka eða steikja mat í
einni hillustöðu.
Hraðgrill-
un
Til að grilla flöt matvæli í mik-
lu magni og rista brauð.
Undirhiti
Til að baka kökur með stökk-
um botni og til að sjóða niður
matvæli.
Hitunarað-
gerð
Notkun
Grillað
með viftu
Til að steikja stærri kjötstykki
eða kjúklinga með beinum á
einni hillustöðu. Til að gera
gratín-rétti og til að brúna.
Brauð- og
pítsubökun
Til að paka pítsu. Til að fá
meiri brúnun og stökkan
botn.
Affrysta
Til að þíða matvæli (grænm-
eti og ávexti). Þíðingartíminn
fer eftir magni og stærð
frosnu matvælanna. Þegar þú
notar þessa aðgerð slokknar
ljósið sjálfkrafa eftir 30 sek-
úndur.
Bein gufa
Til að bæta við raka meðan
á eldun stendur. Til að fá
rétta litinn og stökka skorpu á
meðan verið er að baka. Til
að gera safaríkara meðan á
endurhitun stendur.
ÍSLENSKA 11
Hitunarað-
gerð
Notkun
Eldað með
sparnað-
arblæstri
Þessi aðgerð er hönnuð til að
spara orku á meðan eldað
er. Varðandi leiðbeiningar
um matreiðslu vísast til kafl-
ans „Ábendingar og ráð“,
Eldað með sparnaðarblæstri.
Ofnhurðin ætti að vera lokuð
meðan á matreiðslu stendur
þannig að aðgerðin verði
ekki fyrir truflun og til að
tryggja að ofninn virki af
mestu mögulegu orkunýtni.
Þegar þú notar þessa aðgerð
kann hitastigið í rýminu að
vera frábrugðið innstilltu
hitastigi. Afgangshitinn er
notaður.Hitunarkrafturinn
kann að minnka. Varðandi
almennar ráðleggingar um
orkusparnað vísas til kaflans
„Orkunýtni“, Orkusparnað-
ur.Þessi aðgerð var notuð til
að fylgja orkunýtniflokknum í
samræmi við EN 60350-1.
Þegar þú notar þessa aðgerð
slokknar ljósið sjálfkrafa eftir
30 sekúndur.
Ljós
Til að kveikja á ljósinu án
eldunaraðgerðar. Hægt er
að nota það með afgangs-
hita við lokastig matreiðsl-
unnar til að spara orku.
Hitunaraðgerð stillt
1. Snúðu hnúðnum fyrir hitunaraðgerðir til
að velja hitunaraðgerð.
2. Snúðu stjórnhnúðnum til að velja
hitastigið. Ýttu á til að staðfesta.
Ljósið kviknar þegar ofninn vinnur.
3. Til að slökkva á ofninum skaltu snúa
hnúðunum í stöðuna slökkt.
Snúðu stjórnhnúðinn til að breyta hitastiginu
meðan á eldun stendur. Snúðu hnúðnum
fyrir hitunaraðgerðina til að breyta
hitunaraðgerð meðan á eldun stendur og
ýttu á til að staðfesta.
Að stilla aðgerðinaBein gufa
Þessi aðgerð leyfir að rakastig sé bætt
meðan á eldun stendur.
AÐVÖRUN! Hætta á bruna og
skemmdum á heimilistækinu.
Raki sem sleppur út getur valdið
brunasárum:
Ekki opna hurð ofnsins þegar aðgerðin
er í gangi.
Opnaðu ofnhurðina gætilega eftir að
aðgerðin stöðvast.
Sjá kaflann „Ábendingar og
ráð“.
1. Fylltu hólf ofnrýmisins með kranavatni.
Hámarksrúmtak hólfs ofnrýmisins er 250
ml.
Fylltu hólf ofnrýmisins af vatni aðeins
þegar ofninn er kaldur.
VARÚÐ! Fylltu ekki aftur á
hólf ofnrýmisins með vatni
meðan á eldun stendur eða
þegar ofninn er heitur.
2. Settu mat í ofninn og lokaðu ofnhurðinni.
3. Stilltu aðgerðina Bein gufa .
4. Snúðu stjórnhnúðnum til að velja
hitastig. Ýttu á til að staðfesta.
ÍSLENSKA
12
5. Til að slökkva á ofninum snúa hnúðunum
í stöðuna slökkva.
6. Fjarlægðu vatn úr hólfi ofnrýmisins.
AÐVÖRUN! Gakktu úr
skugga um að ofninn sé
kaldur áður en þú fjarlægir
vatnið sem eftir er í hólfi
ofnrýmisins.
Upphitunarvísir
Þegar ofnaðgerðin er í gangi birtast
súlurnar á skjánum
hver af annarri þegar
hitastigið í ofninum eykst og hverfa þegar
það minnkar.
Tímastillingar
Tafla yfir klukkuaðgerðir
Klukkuaðgerð Notkun
TÍMI DAGS
Til að sýna eða breyta
tíma dags. Þú getur ein-
ungis breytt tíma dags
þegar slökkt er á ofnin-
um.
TÍMALENGD
Til að stilla hve lengi ofn-
inn vinnur. Notaðu aðeins
þegar hitunaraðgerð er
stillt.
ENDIR
Til að stilla hvenær
slokknar á ofninum. Not-
aðu aðeins þegar hitun-
araðgerð er stillt.
TÍMASEINKUN
Sameining aðgerðanna
TÍMALENGD og ENDIR.
MÍNÚTUTELJ-
ARI
Notaðu til að stilla niður-
talningartíma. Þessi að-
gerð hefur engin áhrif á
starfsemi ofnsins. Þú getur
stillt MÍNÚTUTELJARANN
hvenær sem er, jafnvel
þótt slökkt sé á ofninum.
Klukkuaðgerð Notkun
00:00
UPPTALNING-
ARTÍMASTILL-
IR
Ef þú stillir ekki neina
aðra klukkuaðgerð vakt-
ar UPPTALNINGARTÍM-
ASTILLIRINN sjálfkrafa
hversu lengi ofninn vinnur.
Talningin hefst strax þeg-
ar ofninn byrjar að hitna.
Hægt er að nota upptal-
ningarstillinn með að-
gerðunum TÍMALENGD,
ENDIR.
Stilling og breyting tímans
Eftir fyrstu tengingu við rafmagn skaltu bíða
þar til skjárinn sýnir
og „12:00“.
"12“ leiftrar.
1. Snúðu stjórnhnúðnum til að stilla
klukkustundirnar.
2. Ýttu á
til að staðfesta og stilla
mínúturnar.
Skjárinn sýnir og stillta klukkustund.
"00" leiftrar.
3. Snúðu stjórnhnúðnum til að stilla
núverandi mínútur.
4. Ýttu á til að staðfesta að innstilltur
tími dags verði vistaður sjálfkrafa eftir 5
sekúndur.
Skjárinn sýnir nýja tímann.
ÍSLENSKA
13
Til að breyta tíma dags skaltu ýta á aftur
og aftur þar til vísirinn fyrir tíma dags
leiftrar á skjánum.
Aðgerðin TÍMALENGD stillt
1. Stilltu hitunaraðgerð. Ýttu á til að
staðfesta.
2. Ýttu á aftur og aftur þar til byrjar
að leiftra.
3. Snúðu stjórnhnúðnum til að stilla
mínúturnar og ýttu á
til að staðfesta.
Snúðu stjórnhnúðnum til að stilla
klukkustundirnar og ýttu á til að
staðfesta.
Þegar innstilltur Tímalengdar-tími endar
hljómar merkið í 2 mínútur. og
tímastillingin leiftra á skjánum. Það slokknar
sjálfvirkt á ofninum.
4. Ýttu á hvaða hnapp sem er til að stöðva
merkið.
5. Snúðu hnúðunum í stöðuna slökkva.
Þessi aðgerð er ekki tiltæk fyrir sumar
aðgerðir ofnsins.
ENDA-aðgerðin stillt
1. Stilltu hitunaraðgerð. Ýttu á til að
staðfesta.
2. Ýttu á aftur og aftur þar til byrjar
að leiftra.
3. Snúðu stjórnhnúðnum til að stilla
klukkustundirnar og ýttu á
til að
staðfesta. Snúðu stjórnhnúðnum til að
stilla mínúturnar og ýttu á til að
staðfesta.
Við innstilltan Enda-tíma hljómar merkið í 2
mínútur. og tímastillingin leiftra á
skjánum. Það slokknar sjálfvirkt á ofninum.
4. Ýttu á hvaða hnapp sem er til að stöðva
merkið.
5. Snúðu hnúðunum í stöðuna slökkva.
Þessi aðgerð er ekki tiltæk fyrir sumar
aðgerðir ofnsins.
Aðgerðin TÍMASEINKUN stillt
1. Stilltu hitunaraðgerð. Ýttu á til að
staðfesta.
2. Ýttu á aftur og aftur þar til byrjar
að leiftra.
3. Snúðu stjórnhnúðnum til að stilla
mínúturnar fyrir tíma TÍMALENGDAR og
ýttu á
til að staðfesta. Snúðu
stjórnhnúðnum til að stilla
klukkustundirnar fyrir tíma
TÍMALENGDAR og ýttu á til að
staðfesta.
Skjárinn sýnir leiftrandi .
4. Snúðu stjórnhnúðnum til að stilla
klukkustundirnar fyrir tíma ENDA og ýttu
á
til að staðfesta. Snúðu
stjórnhnúðnum til að stilla mínúturnar
fyrir tíma ENDA og ýttu á til að
staðfesta. Skjárinn sýnir og
innstillt hitastig.
Seinna kviknar sjálfkrafa á ofninum, hann
vinnur í innstillan tíma TÍMALENGDAR og
stöðvast við lok innstillts ENDA-tíma.
Við innstilltan tíma ENDA hljómar merkið í 2
mínútur.
og tímastillingin leiftra á
skjánum. Þá slokknar á ofninum.
5. Ýttu á hvaða hnapp sem er til að stöðva
merkið.
6. Snúðu hnúðunum í stöðuna slökkva.
Þú getur breytt hitunaraðgerðinni og
hitastiginu eftir að þú stillir aðgerðina
TÍMASEINKUN.
Snúðu hnúðunum í stöðurnar slökkva til að
stöðva aðgerðina TÍMASEINKUN.
Að stilla MÍNÚTUTELJARANN
Mínútuteljarann er bæði hægt að stilla
þegar kveikt er eða slökkt á ofninum.
1. Ýttu á
aftur og aftur þar til byrjar
að leiftra.
2. Snúðu stjórnhnúðnum til að stilla
sekúndurnar og síðan mínúturnar.
ÍSLENSKA
14
Ýttu einu sinni enn á til að stilla
mínúturnar
Ýttu tvisvar enn á til að stilla
klukkustundirnar
3. Ýttu á
til að staðfesta.
4. MÍNÚTUTELJARINN ræsist sjálfkrafa
eftir 5 sekúndur.
Eftir 90% af innstillta tímanum hljómar
merkið.
5. Þegar innstilltum tíma lýkur hljómar
merkið í 2 mínútur. "00:00" og leiftra
á skjánum. Ýttu á hvaða hnapp sem er
til að stöðva merkið.
UPPTALNINGARTÍMASTILLIR
Ýttu á aftur og aftur þar til skjárinn birtir
tímann án neinna tákna.
Að nota fylgihluti
AÐVÖRUN! Sjá kafla um
Öryggismál.
Aukabúnaðurinn settur í
Vírhilla:
Ýttu hillunni milli stýristanganna á
hillustoðinni og gakktu úr skugga um að
fóturinn snúi niður.
Bökunarplata/ Djúp ofnskúffa:
Ýttu bökunarplötunni /djúpu ofnskúffunni
milli stýristanganna á hillustoðinni.
Vírhilla og bökunarplata / djúp ofnskúffa
saman:
Ýttu bökunarplötunni /djúpu ofnskúffunni
milli stýristanganna á hillustoðinni og
vírhillunni á stýristengurnar fyrir ofan.
ÍSLENSKA 15
Lítil skörð efst auka öryggi.
Skörðin eru einnig búnaður til
varnar því að aukabúnaður
hvolfist. Háa brúnin umhverfis
hilluna kemur í veg fyrir að
eldunaráhöld renni niður af
henni.
Útdraganlegu rennurnar notaðar
Geymdu
uppsetningarleiðbeiningarnar
fyrir útdraganlegu rennurnar fyrir
notkun í framtíðinni.
Útdraganlegar rennur aðstoða þig við að
setja í og fjarlægja vírhillur og plötur á
auðveldari hátt.
VARÚÐ! Ekki hreinsa
útdraganlegu rennurnar í
uppþvottavélinni. Ekki smyrja
útdraganlegu rennurnar.
1
°C
Togaðu út
útdraganlegu
rennurnar bæði
hægra og vinstra
megin.
2
°C
Settu vírhilluna á
útdraganlegu
rennurnar og ýttu
þeim varlega inn í
ofninn.
Gættu þess að ýta útdraganlegu rennunum
alveg inn í ofninn áður en þú lokar
ofnhurðinni.
AÐVÖRUN! Sjá kaflann „Lýsing
vöru“.
Viðbótarstillingar
Barnalæsingin notuð
Þegar barnalæsingin er á er ekki hægt að
kveikja óviljandi á ofninum.
1. Tryggðu að hnúðurinn fyrir ofnstillingar
sé í stöðunni slökkt.
2. Ýttu á og haltu og samtímis í 2
sekúndur.
Merkið hljómar. SAFE birtist á skjánum.
Til að slökkva á barnalæsingunni skal
endurtaka skref 2.
Vísir sem sýnir afgangshita
Þegar þú slekkur á ofninum sýnir skjárinn
vísi fyrir afgangshita ef hitinn í ofninum
er meiri en 40°C.Snúðu stjórnhnúðtil vinstri
eða hægri til að athuga hitastig ofnsins.
Slökkt sjálfvirkt
Af öryggisástæðum slekkur ofninn sjálfvirkt
á sér eftir dálítinn tíma ef hitunaraðgerð er í
gangi og þú breytir ekki hitastigi ofnsins.
Hitastig (°C) Slokknunartími (klst)
30 - 115 12,5
120 - 195 8,5
200 - 245 5,5
250 - hámark 3
Eftir sjálfvirka slokknun skaltu ýta á hvaða
hnapp sem er til að láta ofninn vinna aftur.
Slökkt sjálfvirkt virkar ekki með
aðgerðunum Ljós, Tímalengd,
Endir.
ÍSLENSKA 16
Kælivifta
Þegar ofninn gengur kviknar sjálfvirkt á
kæliviftunni til að halda flötum ofnsins
svölum. Ef þú slekkur á ofninum gengur
kæliviftan áfram þangað til ofninn kólnar.
Öryggishitastillir
Röng notkun ofnsins eða bilun í íhlutum
getur orsakað hættulega ofhitnun. Til að
koma í veg fyrir þetta, hefur ofninn
öryggishitastilli sem rýfur
rafmagnstenginguna. Ofninn kveikir
sjálfkrafa á sér aftur þegar hitastigið
lækkar.
Góð ráð
AÐVÖRUN! Sjá kafla um
Öryggismál.
Ráðleggingar um eldun
Þegar þú forhitar skaltu fjarlægja
vírhillurnar og bakkana úr ofnhólfinu til að
fá sem hröðust afköst.
Ofninn hefur fimm hillustöður. Teldu
hillustöðurnar að neðan frá botni
ofnrýmisins.
Ofninn er með sérstakt kerfi sem setur loftið
í hringrás og endurnýtir stöðugt gufuna.
Með þessu kerfi getur þú eldað í
gufukenndu umhverfi og haldið matnum
mjúkum að innan og stökkum að utan. Það
minnkar eldunartíma og orkunotkun niður í
lágmark.
Raki getur þéttst í ofninum eða á glerplötum
hurðarinnar meðan á eldun stendur. Haltu
þig alltaf frá ofninum þegar þú opnar
ofnhurðina.
Þegar ofninn kólnar skaltu hreinsa rýmið
með mjúkum klút.
Kökur bakaðar
Opnaðu ekki ofnhurðina fyrr en 3/4
baksturstímans eru liðnir
Ef þú notar tvær bökunarplötur á sama tíma
skaltu hafa eina tóma hæð á milli þeirra.
Eldun á kjöti og fiski
Notaðu djúpa pönnu fyrir mjög feitan mat til
að koma í veg fyrir að blettir sem geta verið
varanlegir komi í ofninn.
Láttu kjötið standa í um það bil 15 mínútur
áður en þú skerð það svo að vökvinn seytli
ekki út.
Til að koma í veg fyrir of mikinn reyk í
ofninum meðan verið er að steikja skal
bæta svolitlu vatni í ofnskúffuna. Til að
koma í veg fyrir þéttingu reyks skal bæta
við vatni í hvert sinn sem það gufar upp.
Eldunartímar
Eldunartímar fara eftir tegund matvæla,
þéttni þeirra og magni.
Í byrjun skaltu fylgjast með frammistöðunni
þegar þú eldar. Finndu bestu stillingarnar
(hitastillingu, eldunartíma, o.s.frv.) fyrir
eldunaráhöldin þín, uppskriftir og skammta
þegar þú notar þetta tæki.
Eldað með sparnaðarblæstri
Til að fá sem bestan árangur
skaltu fylgja uppástungunum sem
taldar eru upp í töflunni hér að
neðan.
ÍSLENSKA 17
Matvæli Fylgihlutir Hitastig (°C) Hillustaða Tími (mín)
Snúðar, 12
stykki
bökunarplata eða lekab-
akki
180 2 20 - 30
Rúnstykki, 9
stykki
bökunarplata eða lekab-
akki
180 2 30 - 40
Pítsa, frosin,
0,35 kg
vírhilla 220 2 10 - 15
Rúlluterta bökunarplata eða lekab-
akki
170 2 25 - 35
Brúnkaka bökunarplata eða lekab-
akki
175 3 25 - 30
Frauðréttur, 6
stykki
ramekin-skálar úr keram-
ík á vírhillu
200 3 25 - 30
Svampbökub-
otnar
bakki fyrir bökubotn á
vírhillu
180 2 15 - 25
Viktoríu-sam-
loka
bökunardiskur á vírhillu 170 2 40 - 50
Fiskur soðinn við
vægan hita, 0,3
kg
bökunarplata eða lekab-
akki
180 3 20 - 25
Heill fiskur, 0,2
kg
bökunarplata eða lekab-
akki
180 3 25 - 35
Fiskflak, 0,3 kg pítsufat á vírhillu 180 3 25 - 30
Kjöt í poka, 0,25
kg
bökunarplata eða lekab-
akki
200 3 35 - 45
Shashlik, 0,5 kg bökunarplata eða lekab-
akki
200 3 25 - 30
Smákökur, 16
stykki
bökunarplata eða lekab-
akki
180 2 20 - 30
Makkarónukök-
ur, 20 stykki
bökunarplata eða lekab-
akki
180 2 25 - 35
Formkökur, 12
stykki
bökunarplata eða lekab-
akki
170 2 30 - 40
ÍSLENSKA 18
Matvæli Fylgihlutir Hitastig (°C) Hillustaða Tími (mín)
Bragðsterkt sæt-
abrauð, 16
stykki
bökunarplata eða lekab-
akki
180 2 25 - 30
Mjúkar smákök-
ur, 20 stykki
bökunarplata eða lekab-
akki
150 2 25 - 35
Smábökur, 8
stykki
bökunarplata eða lekab-
akki
170 2 20 - 30
Grænmeti soðið
við vægan hita,
0,4 kg
bökunarplata eða lekab-
akki
180 3 35 - 45
Eggjakaka
grænmetisæt-
unnar
pítsufat á vírhillu 200 3 25 - 30
Grænmeti frá
Miðjarðarhafs-
svæðinu, 0,7 kg
bökunarplata eða lekab-
akki
180 4 25 - 30
Eldað með sparnaðarblæstri - ráðlagðir
fylgihlutir
Notaðu dökk form og ílát sem endurkasta
ekki ljósi. Þau gleypa betur hita en ljósir litir
og diskar sem endurkasta ljósi.
Fylgihlutir Stærð Mynd
Pítsubakki, dökkur, endur-
kastar ekki ljósi
28 cm þvermál
Bökunarfat, dökkt, endur-
kastar ekki ljósi
26 cm þvermál
ÍSLENSKA 19
Fylgihlutir Stærð Mynd
Ramekin-skál, keramík 8 cm þvermál, 5 cm hæð
Bakki fyrir bökubotn,
dökkur, endurkastar ekki
ljósi
28 cm þvermál
Upplýsingar fyrir prófunarstofnanir
Prófanir í samræmi við IEC 60350-1.
Matvæli Aðgerð Fylgihlutir Hillust-
aða
Hitastig
(°C)
Tími (mín) Athugasemdir
Lítil kaka Hefðbundið
(yfir- og un-
dirhiti)
Bökunar-
plata
3 170 20 - 30 Settu 20 litlar kök-
ur á hverja bök-
unarplötu.
Lítil kaka Þvinguð loft-
eldun
Bökunar-
plata
3 150 -
160
20 - 35 Settu 20 litlar kök-
ur á hverja bök-
unarplötu.
Lítil kaka Þvinguð loft-
eldun
Bökunar-
plata
2 og 4 150 -
160
20 - 35 Settu 20 litlar kök-
ur á hverja bök-
unarplötu.
Eplabaka Hefðbundið
(yfir- og un-
dirhiti)
Vírhilla 2 180 70 - 90 Notaðu 2 form
(20 cm þvermál),
raðað skáhallt.
Eplabaka Þvinguð loft-
eldun
Vírhilla 2 160 70 - 90 Notaðu 2 form
(20 cm þvermál),
raðað skáhallt.
Fitulaus
svamp-
kaka
Hefðbundið
(yfir- og un-
dirhiti)
Vírhilla 2 170 40 - 50 Notaðu kökumót
(26 cm þvermál).
Forhitaðu ofninn í
10 mínútur.
ÍSLENSKA 20
  • Page 1 1
  • Page 2 2
  • Page 3 3
  • Page 4 4
  • Page 5 5
  • Page 6 6
  • Page 7 7
  • Page 8 8
  • Page 9 9
  • Page 10 10
  • Page 11 11
  • Page 12 12
  • Page 13 13
  • Page 14 14
  • Page 15 15
  • Page 16 16
  • Page 17 17
  • Page 18 18
  • Page 19 19
  • Page 20 20
  • Page 21 21
  • Page 22 22
  • Page 23 23
  • Page 24 24
  • Page 25 25
  • Page 26 26
  • Page 27 27
  • Page 28 28
  • Page 29 29
  • Page 30 30
  • Page 31 31
  • Page 32 32
  • Page 33 33
  • Page 34 34
  • Page 35 35
  • Page 36 36

IKEA SMAKSAOVB Používateľská príručka

Typ
Používateľská príručka

V iných jazykoch