Leonard LV1520 Používateľská príručka

Typ
Používateľská príručka
notendaleiðbeiningar
Uppþvottavél
LV1520
EFNISYFIRLIT
Öryggisleiðbeiningar 2
Vörulýsing 4
Stjórnborð 4
Þvottastillingar 5
Valkostir 5
Fyrir fyrstu notkun 6
Dagleg notkun 7
Góð ráð 9
Meðferð og þrif 9
Bilanaleit 10
Tæknilegar upplýsingar 12
Umhverfisábendingar 12
Með fyrirvara á breytingum.
ÖRYGGISLEIÐBEININGAR
Fyrir uppsetningu tækisins og notkun þess,
skal lesa meðfylgjandi leiðbeiningar vand-
lega. Framleiðandinn er ekki ábyrgur fyrir
tjóni ef röng uppsetning eða notkun veldur
líkamstjóni eða skemmdum. Alltaf skal
geyma leiðbeiningarnar með heimilistækinu
til síðari notkunar.
Öryggi barna og viðkvæmra
einstaklinga
Ađvörun Hætta á köfnun, líkamstjóni
eða varanlegri örorku.
Látið ekki fólk, þar með talin börn, sem
hefur skerta líkamlega skynjun, skert and-
legt atgervi eða sem skortir reynslu og
þekkingu, nota heimilistækið. Þau verða
að hafa fengið kennslu eða tilsögn í not-
kun heimilistækisins hjá einstaklingi sem
er ábyrgur fyrir öryggi þeirra.
Leyfið ekki börnum að leika sér með
heimilistækið.
Haldið öllum umbúðum frá börnum.
Haldið öllum þvottaefnum frá börnum.
Haldið börnum og gæludýrum frá hurð-
inni á heimilistækinu þegar hún er opin.
Uppsetning
Fjarlægja skal allar umbúðir.
Ekki setja upp eða nota skemmt heimilis-
tæki.
Ekki koma heimilistækinu fyrir þar sem
hitastigið er lægra en 0 °C.
Fylgja skal uppsetningarleiðbeiningum
sem fylgja með tækinu.
Gætið þess að heimilistækinu sé komið
fyrir undir og við hliðina á traustum og
stöðugum hlutum.
Rafmagnstenging
Ađvörun Eldhætta og hætta á raflosti.
Heimilistækið þarf að vera jarðtengt.
Gætið þess að rafmagnsupplýsingarnar á
tegundarspjaldinu passi við aflgjafann. Ef
ekki, skal hafa samband við rafvirkja.
Alltaf nota rétt uppsetta innstungu sem
gefur ekki raflost.
Ekki nota fjöltengi eða framlengingarsnúr-
ur.
Gætið þess að rafmagnsklóin og snúran
verði ekki fyrir skemmdum. Ef skipta þarf
um rafmagnssnúru verður þjónustuver
okkar að sjá um það.
Aðeins skal tengja rafmagnsklóna við raf-
magnsinnstunguna í lok uppsetningarinn-
ar. Gætið þess að rafmagnsklóin sé að-
gengileg eftir uppsetningu.
Ekki toga í rafmagnssnúruna til að taka
heimilistækið úr sambandi. Togið alltaf í
rafmagnsklóna.
Ekki snerta rafmagnssnúruna eða raf-
magnsklóna með blautum höndum.
Þetta heimilistæki samræmist EBE-tilskip-
unum.
Tenging við vatn
Passið að vatnsslöngurnar verði ekki fyrir
skemmdum.
Áður en heimilistækið er tengt við nýjar
lagnir eða pípulagnir sem hafa ekki verið
notaðar í langan tíma, skal láta vatnið
renna þangað til það er hreint.
Í fyrsta skipti sem heimilistækið er notað,
skal tryggja að enginn leki eigi sér stað.
Vatnsinntaksslangan er með öryggisloka
og slíðri með innri rafmagnssnúru.
2 leonard
Ađvörun Hættuleg rafspenna.
Ef innslangan eða öryggislokinn skemmist
skal strax aftengja klóna frá rafman-
gsinnstungunni. Hafðu samband við
þjónustu til að fá nýja slöngu fyrir vatns-
inntakið.
Notkun
Heimilistækið er ætlað til notkunar innan
heimilisins og við svipaðar aðstæður eins
og:
Í starfsmannaeldhúsum í verslun, á
skrifstofum og á öðrum vinnustöðum.
–Á bændabýlum
Af viðskiptavinum á hótelum, mótelum
og á öðrum gististöðum
Á gistihúsum (Bed and Breakfast).
Ađvörun Hætta á líkamstjóni, raflosti
eða bruna.
Ekki skal breyta sérhæfingu þessa tækis.
Setjið hnífa og hnífapör með oddhvössum
brúnum í hnífaparakörfuna með oddinn
niður eða í lárétta stöðu.
Ekki hafa hurð heimilistækisins opna án
eftirlits, til að koma í veg fyrir að einhver
detti á hana.
Ekki sitja eða standa á hurðinni þegar
hún er opin.
Þvottaefni fyrir uppþvottavélar eru hættu-
leg. Farið eftir öryggisleiðbeiningunum á
umbúðum þvottaefnisins.
Ekki skal drekka, eða leika sér með vatnið
í heimilistækinu.
Ekki fjarlægja leirtauið úr heimilistækinu
fyrr en þvottakerfið klárast. Leifar af upp-
þvottaefni geta verið til staðar á diskun-
um.
Heit gufa getur sloppið út úr heimilistæk-
inu ef hurðin er opnuð meðan þvottakerfi
er í gangi.
Ekki skal setja eldfimar vörur eða hluti
sem eru blautir af eldfimum vökva ofan á
eða nálægt heimilistækinu.
Ekki nota vatnsúða og gufu til að hreinsa
heimilistækið.
Förgun
Ađvörun Hætta á líkamstjóni eða
köfnun.
Aftengið heimilistækið frá rafmagnsgjaf-
anum.
Klippa rafmagnssnúruna af og fleygið
henni.
Fjarlægið dyraklemmuna til að koma í veg
fyrir að börn eða dýr geti lokast inni í tæk-
inu.
leonard 3
VÖRULÝSING
1 2
3456789
10
1
Efri vatnsarmur
2
Neðri vatnsarmur
3
Síur
4
Tegundarspjald
5
Salthólf
6
Gljáahólf
7
Þvottaefnishólf
8
Hnífaparakarfa
9
Neðri karfa
10
Efri karfa
STJÓRNBORÐ
4
32
1
BA
1
Kveikt/slökkt-hnappurinn
2
Kerfisgaumljós
3
Gaumljós
4
Kerfishnappur.
Gaumljós Lýsing
Endaljós.
Saltgaumljós. Slökkt er á þessu gaumljósi á meðan kerfið er í gangi.
4 leonard
ÞVOTTASTILLINGAR
Þvottakerfi
1)
Óhreinindastig
Gerð þvottar
Þvottakerfi
fasar
Lengd
(mín)
Orka
(kWh)
Vatn
(l)
Mikil óhreinindi
Borðbúnaður,
áhöld, pottar og
pönnur
Forþvottur
Þvottur 70 °C
Skolar
Þurrkun
130 - 150 1.3 - 1.4 13 - 15
Venjuleg óhrein-
indi
Borðbúnaður og
hnífapör
Forþvottur
Þvottur 65 °C
Skolar
Þurrkun
100 - 110 1.2 - 1.6 15 - 16
2)
Nýtilkomin
óhreinindi
Borðbúnaður og
hnífapör
Þvottur 65 °C
Skol
30 0.8 9
3)
Venjuleg óhrein-
indi
Borðbúnaður og
hnífapör
Forþvottur
Þvottur 50 °C
Skolar
Þurrkun
195 1.02 11
4)
Allt Forþvottur 14 0.1 4
1) Þrýstingur og hitastig vatnsins, breytileiki á rafmagnsinntaki, aukaval og magn borðbúnaðar getur breytt gildum
kerfisins.
2) Með þessu kerfi er hægt að þvo hluti með nýtilkomnum óhreinindum. Það þvær vel á stuttum tíma.
3) Með þessu kerfi nýtist vatnið og orkan best fyrir borðbúnað og hnífapör með venjulegum óhreinindum. (Þetta er
staðalkerfið sem prófunarstofnanir nota).
4) Notið þetta kerfi fyrir snögga skolun. Það hindrar matarleifar festist við diskana og slæm lykt komi úr
heimilistækinu.
Ekki nota þvottaefni með þessu kerfi.
Upplýsingar fyrir prófunarstofnanir
Til að fá allar nauðsynlegar upplýsingar um prófanir skal senda tölvupóst til:
Skrifaðu niður framleiðslunúmer tækisins (PNC) sem er á málmplötunni.
VALKOSTIR
Hljóðmerki
Hljóðmerkin heyrast þegar tækið er bilað og
það er ekki hægt að slökkva á þeim.
Einnig er til staðar hljóðmerki sem fer af
stað þegar þvottaferli er lokið. Sjálfgefið gildi
er að slökkt er á hljóðmerkinu, en það er
hægt að gera það virkt.
Hvernig skal kveikja á hljóðmerki við
lok þvottaferils
1. Ýttu á hnappinn kveikja/slökkva til að
virkja heimilistækið.
2. Ef nauðsyn krefur, stilltu aðgerðina Res-
et.
3. Ýttu og haltu inni kerfishnappnum þang-
að til kerfisljósið
byrjar að blikka og
kerfisljósið
kviknar með stöðugu
ljósi.
4. Ýttu strax á kerfishnappinn.
Kerfisljósið (
) kviknar með stöð-
ugu ljósi.
Kerfisljósið (
) byrjar að blikka.
5. Biðið þangað til slokknar á kerfisljósi (
). Kerfisljósið ( ) heldur áfram
að blikka.
6. Ýttu á kerfishnappinn. Þá kviknar enda-
ljósið. Það kviknar á hljóðmerki við lok
þvottaferils.
7. Ýtið á hnappinn kveikja/slökkva til að
staðfesta stillingarnar.
leonard 5
Hvernig skal slökkva aftur á hljóðmerki
við lok þvottaferils
1. Sjá "Hvernig skal kveikja á hljóðmerki við
lok þvottaferils" og fylgdu ferlinu frá
skrefi (1) til skref (5). Það er kveikt á
endaljósinu.
2. Ýttu á kerfishnappinn. Það slokknar á
endaljósinu. Það slokknar á hljóðmerki
við lok þvottaferils.
3. Ýtið á hnappinn kveikja/slökkva til að
staðfesta stillingarnar.
FYRIR FYRSTU NOTKUN
1. Gættu þess að stilling vatnsmýkingarbú-
naðarins passi við herslustig vatnsins
þar sem þú býrð. Stilltu vatnsmýkingar-
búnaðinn ef með þarf. Hafðu samband
við vatnsveituna til að finna út herslustig
vatns þar sem þú býrð.
2. Fylltu salthólfið.
3. Settu gljáa í gljáahólfið.
4. Skrúfið frá vatnskrananum.
5. Leifar af hreinsiefni geta setið eftir í
heimilistækinu. Settu kerfi af stað til að
fjarlægja þær. Ekki nota þvottaefni og
ekki hlaða neinu í körfurnar.
Að stilla vatnsmýkingarbúnaðinn
Herslustig vatns
Vatnsmýkingarefni
stilling
Þýsk
gráður
(°dH)
Frönsk
gráður
(°fH)
mmól/l Clarke
gráður
Hilla
47 - 50 84 - 90 8.4. - 9.0 58 - 63 10
43 - 46 76 - 83 7.6 - 8.3 53 - 57 9
37 - 42 65 - 75 6.5 - 7.5 46 - 52 8
29 - 36 51 - 64 5.1 - 6.4 36 - 45 7
23 - 28 40 - 50 4.0 - 5.0 28 - 35 6
19 - 22 33 - 39 3.3 - 3.9 23 - 27
5
1)
15 - 18 26 - 32 2.6 - 3.2 18 - 22 4
11 - 14 19 - 25 1.9 - 2.5 13 - 17 3
4 - 10 7 - 18 0.7 - 1.8 5 - 12 2
< 4 < 7 < 0.7 < 5
1
2)
1) Upphafleg stilling.
2) Ekki nota salt á þessari stillingu.
Rafræn stilling
1. Ýttu á hnappinn kveikja/slökkva til að
virkja heimilistækið.
2. Ef nauðsyn krefur, stilltu aðgerðina Res-
et.
3. Ýttu og haltu inni kerfishnappnum þang-
að til kerfisljósið
byrjar að blikka og
kerfisljósið
kviknar með stöðugu
ljósi.
4. Biðið þangað til slokknar á kerfisljósi (
) og endaljósið byrjar að blikka.
Kerfisljósið (
) heldur áfram að
blikka.
5. Ýttu á kerfishnappinn. Endaljósið byrjar
að blikka. Blikkandi endaljós við og við
vísar til núverandi stillingar.
Þ.e. 5 blikk + hlé + 5 blikk = 5. stig.
6. Ýttu aftur og aftur á kerfishnappinn til að
breyta stillingunni. Í hvert skipti sem þú
ýtir á kerfishnappinn þá hækkar stigsn-
úmerið um eitt stig.
7. Ýtið á hnappinn kveikja/slökkva til að
staðfesta stillingarnar.
6 leonard
Salt sett í salthólfið
1. Snúið lokinu rangsælis til að opna salt-
hólfið.
2. Settu 1 lítra af vatni í salthólfið (einungis
í fyrsta skipti sem þú notar vélina).
3. Setjið uppþvottavélarsalt í salthólfið.
4. Fjarlægið salt í kringum op salthólfsins.
5. Snúið lokinu réttsælis til að loka salt-
hólfinu.
Varúđ Vatn og salt geta runnið út úr
salthólfinu þegar þú fyllir á það. Hætta
á tæringu. Til að hindra það, skaltu
setja þvottaferil af stað eftir að þú setur
salt í salthólfið.
Fyllt á gljáahólfið
20
30
1
2
3
4
-
+
M
A
x
A
B
C D
1. Snúið lokinu (C) rangsælis til að opna
gljáahólfið.
2.
Setjið gljáa í gljáahólfið (A), ekki hærra
upp en að merkinu 'max'.
3. Þurrkið upp gljáann sem hellist niður
með rakadrægum klút til að hindra að
of mikil froða myndist.
4. Setjið lokið í rétta stöðu og snúið því
réttsælis til að loka gljáahólfinu.
Fyllið á gljáahólfið þegar linsan (D) er
gegnsæ.
Hægt er að stilla valskífu fyrir losað
magn (B) frá stöðu 1 (minnsta magn) til
4 (mesta magn).
DAGLEG NOTKUN
1. Skrúfið frá vatnskrananum.
2. Ýttu á hnappinn kveikja/slökkva til að
virkja heimilistækið.
Ef gaumljósið fyrir salt er kveikt á að
setja salt í salthólfið.
3. Raðið í körfurnar.
4. Setjið þvottaefnið í.
5. Stilltu á rétt þvottakerfi eftir því hvað er í
vélinni og hversu óhreint það er.
leonard 7
Notkun þvottaefnis
20
30
BA D
C
1. Ýttu á opnunarhnappinn (B) til að lyfta
lokinu (C).
2.
Settu þvottaefnið í þvottaefnishólfið
(A) .
3.
Ef þvottaferillinn er með forþvotti, skal
setja lítið magn af þvottaefni í hólf (D).
4.
Ef þú notar þvottaefnistöflu, settu þá
töfluna í þvottaefnishólfið (A).
5. Settu lokið aftur á. Gættu þess að op-
nunarhnappurinn læsist í rétta stöðu.
Notkun samsettra þvottaefnistaflna
Þegar notaðar eru töflur sem innihalda salt
og gljáa skal ekki fylla á salthólfið og gljáah-
ólfið. Það kviknar alltaf á gljáaljósinu ef
gljáaskammtarinn er tómur.
1. Stilltu vatnsmýkingarbúnaðinn á lægstu
stillingu.
2. Stillið gljáaskammtarann á lægstu still-
ingu.
Ef þú hættir að nota samsettu
þvottaefnistöflurnar, áður en þú hefur
notkun á öðru þvottaefni, gljáa og salti,
skaltu framkvæma eftirfarandi:
1. Ýttu á hnappinn kveikja/slökkva til að
virkja heimilistækið.
2. Stilltu vatnsmýkingarbúnað á hæstu still-
ingu.
3. Gættu þess að fyllt hafi verið á salthólfið
og gljáaskammtarann.
4. Ræstu stysta þvottakerfið með skolun-
arfasa, án þvottaefnis og án leirtaus í
vélinni.
5. Stilltu vatnsmýkingarbúnaðinn á herslu-
stig vatns á þínu svæði.
6. Stilltu gljáaskammtinn sem losaður er.
Velja og hefja þvottakerfi
Reset Innkaupastilling
Fyrir sumar stillingar er nauðsynlegt að tæk-
ið sé í notendaham.
Tækið er í notendaham þegar kveikt er á
öllum kerfisljósum.
Til að stilla tækið á notendaham, skal beita
Reset aðgerðinni
1. Haltu niðri kerfishnappnum þar til
gaumljós þvottakerfisins kvikna.
Hefja þvottaferil
1. Skrúfið frá vatnskrananum.
2. Ýttu á hnappinn kveikja/slökkva til að
virkja heimilistækið.
3. Ýttu á kerfishnappinn aftur og aftur
þangað til einungis gaumljósið fyrir það
kerfi sem þú vilt stilla á er kveikt.
4. Lokið hurð heimilistækisins. Þvottaferill-
inn fer þá af stað.
Hurðin opnuð á meðan heimilistækið er
í gangi
Ef hurðin er opnuð stöðvast heimilistækið.
Þegar hurðinni er lokað heldur heimilistækið
áfram frá þeim tímapunkti þar sem truflunin
varð.
Þvottaferill afturkallaður
Stilltu Reset aðgerðina.
Passið að það sé þvottaefni í þvott-
aefnishólfinu áður en nýr þvottaferill er
settur í gang.
Við lok þvottakerfis
Þá kviknar endaljósið.
1. Ýtið á hnappinn kveikja/slökkva til að
slökkva á heimilistækinu.
2. Skrúfaðu fyrir kranann.
Ef þú ýtir ekki á kveikja/slökkva hnapp-
inn, slokknar á öllum gaumljósum
nokkrum mínútum eftir að þvottakerfi
lýkur.
Þetta hjálpar til við að minnka orkunotk-
un,
Athugið
Látið leirtauið kólna áður en það er tekið
úr heimilistækinu. Heitt leirtau er brot-
hætt.
Tæmið neðri körfuna fyrst og svo þá efri.
Vatn getur hafa safnast í hliðar og á hurð
heimilistækisins. Ryðfrítt stál kólnar fyrr en
leirtau.
8 leonard
GÓÐ RÁÐ
Vatnsmýkingarefni
Hart vatn inniheldur mikið magn steinefna
sem getur valdið tjóni á tækinu og leitt til
slæmrar virkni tækisins. Vatnsmýkingarefnið
gerir þessi steinefni óvirk.
Saltið í uppþvottavélinni hjálpar við að halda
vatnsmýkingarefninu hreinu og í góðu ást-
andi. Það er mikilvægt að stilla rétt magn
vatnsmýkingarefnis. Þetta tryggir að vatns-
mýkingarefnið noti rétt magn af salti og
vatni.
Notkun salts, gljáa og þvottaefnis
Einungis skal nota salt, gljáa og þvotta-
efni sem er ætlað fyrir uppþvottavélar.
Önnur efni geta valdið skemmdum á
heimilistækinu.
Gljáinn aðstoðar á meðan á síðasta skol-
unarfasa stendur, við að þurrka diskana
án bletta eða ráka.
Samsettar þvottaefnistöflur innihalda
þvottaefni, gljáa og önnur viðbætt efni.
Gættu þess að töflurnar eigi við um það
hörkustig vatns sem er á þínu svæði. Sjá
leiðbeiningar á umbúðum efnanna.
Þvottaefnistöflur leysast ekki að fullu upp
ef þvottakerfið er mjög stutt. Til að koma í
veg fyrir leifar þvottaefnis á leirtaui, mæl-
um við með því að töflurnar séu einungis
notaður með lengri þvottakerfum.
Ekki skal nota meira en rétt magn af
þvottaefni. Farið eftir leiðbeiningunum á
umbúðum þvottaefnisins.
Að raða í körfurnar.
Sjá meðfylgjandi bækling sem sýnir
dæmi um hvernig skal raða í körfur.
Notaðu uppþvottavélina einungis til að
þvo hluti sem þvo má í slíkri vél.
Ekki skal setja í vélinu hluti sem eru gerðir
úr tré, honri, áli, pjátri og kopar.
Ekki setja hluti í tækið sem geta tekið í sig
vatn (svampa, viskustykki).
Fjarlægja skal matarleifar af hlutunum.
Til þess að fjarlægja brunnar matarleifar,
skal skola potta og pönnur í vatni áður en
þú setur þau í heimilistækið.
Raðið hlutum sem eru holir að innan (þ.e..
bollum, glösum og pottum) í vélina þann-
ig að opið vísi niður.
Passaðu að hnífapör og leirtau festist ekki
saman. Setið skeiðar með öðrum hnífap-
örum.
Passið að glös snerti ekki önnur glös.
Leggið smáa hluti í hnífaparakörfuna.
Setjið létta hluti í efri körfuna. Passið
hlutirnir hreyfist ekki til.
Gætið þess að vatnsarmarnir geti hreyfst
óhindrað áður en kerfi er sett í gang.
Áður en kerfi er sett af stað
Gættu þess að:
Síurnar eru hreinar og rétt uppsettar.
Vatnsarmarnir eru ekki stíflaðir.
Staða hluta í körfunum sé rétt.
Kerfið eigi við um þá tegund hleðslu og
þau óhreinindi sem í hlut eiga.
Verið sé að nota rétt magn þvottaefnis.
Það sé salt og gljái til staðar (nema þú
notir samsettar þvottaefnistöflur).
Lokið á salthólfinu þarf að vera þétt.
MEÐFERÐ OG ÞRIF
Ađvörun Áður en viðhald fer fram á
tækinu skal slökkva á því og aftengja
aðalklóna frá rafmagnsinnstungunni.
Óhreinar síur og stíflaðir vatnsarmar
draga úr árangri þvottakerfisins.
Athugaðu þær regluglega og hreinsaðu
ef þörf krefur.
leonard 9
Hreinsun á síum
C
AB
1. Snúið síunni (A) rangsælis og takið
hana út.
A1
A2
2.
Sían (A) er tekin í sundur með því að
toga (A1) og (A2) í sundur.
3.
Takið síuna (B) úr.
4. Þvoið síurnar með vatni.
5.
Áður en þú setur síuna(B) aftur á sinn
stað, gættu þess að það séu engar
matarleifar eða óhreinindi í eða í kring-
um sæti síunnar.
6. Gætið þess að sían (B) sé rétt staðsett
undir 2 stikum (C).
7.
Setjið síuna (A) saman og komið henni
fyrir á sínum stað í síu (B). Snúið henni
réttsælis þar til hún læsist.
Röng staðsetning sía getur leitt til lé-
legrar frammistöðu við þvotta og valdið
tjóni á heimilistækinu.
Hreinsun vatnsarma
Ekki fjarlægja vatnsarmana.
Ef óhreinindaagnir hafa stíflað götin á vatns-
örmunum skal fjarlægja óhreinindin með
þunnum oddhvössum hlut.
Þrif að utan
Þvoðu tækið með rökum og mjúkum klút.
Notið aðeins mild þvottaefni. Ekki nota risp-
andi efni, stálull eða leysiefni.
BILANALEIT
Heimilistækið fer ekki í gang eða stöðvast
skyndilega við notkun.
Áður en þú hefur samband við þjónustu,
athugaðu upplýsingarnar sem fylgja til að
finna lausn á vandanum.
Þegar um sumar bilanir er að ræða
blikkar endaljósið við og við til að sýna
viðvörunarkóða.
10 leonard
Viðvörunarkóði Vandamál
Endaljósið blikkar 1 sinni við og við.
Hljóðmerki heyrist 1 sinni við og við.
Heimilistækið fyllist ekki af vatni.
Endaljósið blikkar 2var við og við.
Hljóðmerki heyrist 2var við og við.
Heimilistækið tæmist ekki af vatni.
Endaljósið blikkar 3var við og við.
Hljóðmerki heyrist 3var við og við.
Flæðivörnin er á.
Ađvörun Slökkvið á heimilistækinu
áður en athuganirnar eru gerðar.
Vandamál Hugsanleg lausn
Þú getur ekki kveikt á heimilistækinu. Gætið þess að klóin sé tengd við rafmagnsinnstunguna.
Gangið úr skugga um að engin ónýt öryggi séu í öryggj-
aboxinu.
Þvottaferillinn fer ekki í gang. Gætið þess að hurð heimilistækisins sé lokuð.
Heimilistækið fyllist ekki af vatni. Gætið þess að skrúfað sé frá vatnskrananum.
Gangið úr skugga um að vatnsþrýstingurinn á kerfinu sé
ekki of lágur. Til að fá þær upplýsingar skal hafa sam-
band við vatnsveituna.
Gangið úr skugga um að vatnskraninn sé ekki stíflaður.
Gangið úr skugga um að sían í innslöngunni sé ekki stífl-
uð.
Gangið úr skugga um að engar beyglur eða sveigjur séu
á innslöngunni.
Uppþvottavélin tæmist ekki af vatni. Gangið úr skugga um að vatnslásinn sé ekki stíflaður.
Gangið úr skugga um að engar beyglur eða sveigjur séu
á útslöngunni.
Flæðivörnin er á. Skrúfið fyrir vatnskranann og hafið samband við
viðgerðarþjónustuna.
Eftir að hafa athugað þetta er heimilistækið
sett af stað. Þvottaferillinn heldur þá áfram
frá þeim punkti þar sem hann var stöðvað-
ur.
Ef vandamálið kemur aftur upp skaltu hafa
samband við viðgerðarþjónustuna.
Ef aðrir viðvörunarkóðar birtast skaltu hafa
samband við viðgerðarþjónustuna.
Ef vélin þvær og þurrkar illa
Hvítar rákir og bláleit lög eru á glösum
og diskum
Losað magn af gljáa er of mikið. Stilltu
gljáaskammtarann á lægri stillingu.
Magn þvottaefnis er of mikið.
Blettir og þurrir vatnsdropar á glösum
og diskum
Losað magn af gljáa er ekki nægilega
mikið. Stilltu gljáaskammtarann á hærri
stillingu.
Gæðum þvottaefnisins getur verið um að
kenna.
Diskar eru blautir
Kerfið er án þurrkfasa eða er með þurrk-
fasa sem keyrir við lágt hitastig.
Gljáahólfið er tómt.
Gæðum gljáans getur verið um að kenna.
Sjá ,,GÓÐ RÁÐ" til að sjá aðrar mögu-
legar orsakir.
leonard 11
TÆKNILEGAR UPPLÝSINGAR
Mál Breidd / Hæð / Dýpt (mm) 596 / 818 -898 / 555
Rafmagnstenging Sjá málmplötuna.
Spenna 220 - 240 V
Tíðni 50 Hz
Vatnsþrýstingur Lágm. / hámark (bar /MPa) (0.5 / 0.05 ) / (8 / 0.8 )
Vatnsaðföng
1)
Kalt eða heitt vatn
2)
hám. 60 °C
Afkastageta Matarstell 12
Orkunotkun Biðhamur 0.50 W
Slökkt á tækinu 0.50 W
1) Tengið innslönguna við krana með 3/4” skrúfgangi.
2) Ef heita vatnið kemur frá öðrum orkugjöfum, (t.d. sólarrafhðu, sólarraforkueiningu eða vindorku) skal nota hitaveitu
til að minnka orkunotkunina.
UMHVERFISÁBENDINGAR
Endurvinna þarf öll efni merkt tákninu .
Setjið umbúðirnar í viðeigandi sorpílát til
endurvinnslu.
Leggið ykkar að mörkum til verndar
umhverfinu og heilsu manna og dýra og
endurvinnið rusl sem fylgir raftækjum og
raftrænum búnaði. Hendið ekki
heimilistækjum sem merkt eru með tákninu
í venjulegt heimilisrusl. Farið með vöruna í
næstu endurvinnslustöð eða hafið samband
við sveitarfélagið.
Farga skal umbúðum á réttan hátt. End-
urvinna skal umbúðir með endur-
vinnslumerkinu
.
12 leonard
leonard 13
14 leonard
leonard 15
156968140-B-392013
  • Page 1 1
  • Page 2 2
  • Page 3 3
  • Page 4 4
  • Page 5 5
  • Page 6 6
  • Page 7 7
  • Page 8 8
  • Page 9 9
  • Page 10 10
  • Page 11 11
  • Page 12 12
  • Page 13 13
  • Page 14 14
  • Page 15 15
  • Page 16 16

Leonard LV1520 Používateľská príručka

Typ
Používateľská príručka

v iných jazykoch