Progress PV3555 Používateľská príručka

Typ
Používateľská príručka
notendaleiðbeiningar
Uppþvottavél
PV3555
EFNISYFIRLIT
Öryggisleiðbeiningar 2
Vörulýsing 4
Stjórnborð 4
Þvottastillingar 5
Valkostir 5
Fyrir fyrstu notkun 6
Dagleg notkun 8
Góð ráð 10
Meðferð og þrif 10
Bilanaleit 11
Tæknilegar upplýsingar 13
Umhverfisábendingar 13
Með fyrirvara á breytingum.
ÖRYGGISLEIÐBEININGAR
Fyrir uppsetningu tækisins og notkun þess,
skal lesa meðfylgjandi leiðbeiningar vand-
lega. Framleiðandinn er ekki ábyrgur fyrir
tjóni ef röng uppsetning eða notkun veldur
líkamstjóni eða skemmdum. Alltaf skal
geyma leiðbeiningarnar með heimilistækinu
til síðari notkunar.
Öryggi barna og viðkvæmra
einstaklinga
Ađvörun Hætta á köfnun, líkamstjóni
eða varanlegri örorku.
Látið ekki fólk, þar með talin börn, sem
hefur skerta líkamlega skynjun, skert and-
legt atgervi eða sem skortir reynslu og
þekkingu, nota heimilistækið. Þau verða
að hafa fengið kennslu eða tilsögn í not-
kun heimilistækisins hjá einstaklingi sem
er ábyrgur fyrir öryggi þeirra.
Leyfið ekki börnum að leika sér með
heimilistækið.
Haldið öllum umbúðum frá börnum.
Haldið öllum þvottaefnum frá börnum.
Haldið börnum og gæludýrum frá hurð-
inni á heimilistækinu þegar hún er opin.
Uppsetning
Fjarlægja skal allar umbúðir.
Ekki setja upp eða nota skemmt heimilis-
tæki.
Ekki koma heimilistækinu fyrir þar sem
hitastigið er lægra en 0 °C.
Fylgja skal uppsetningarleiðbeiningum
sem fylgja með tækinu.
Gætið þess að heimilistækinu sé komið
fyrir undir og við hliðina á traustum og
stöðugum hlutum.
Rafmagnstenging
Ađvörun Eldhætta og hætta á raflosti.
Heimilistækið þarf að vera jarðtengt.
Gætið þess að rafmagnsupplýsingarnar á
tegundarspjaldinu passi við aflgjafann. Ef
ekki, skal hafa samband við rafvirkja.
Alltaf nota rétt uppsetta innstungu sem
gefur ekki raflost.
Ekki nota fjöltengi eða framlengingarsnúr-
ur.
Gætið þess að rafmagnsklóin og snúran
verði ekki fyrir skemmdum. Ef skipta þarf
um rafmagnssnúru verður þjónustuver
okkar að sjá um það.
Aðeins skal tengja rafmagnsklóna við raf-
magnsinnstunguna í lok uppsetningarinn-
ar. Gætið þess að rafmagnsklóin sé að-
gengileg eftir uppsetningu.
Ekki toga í rafmagnssnúruna til að taka
heimilistækið úr sambandi. Togið alltaf í
rafmagnsklóna.
Ekki snerta rafmagnssnúruna eða raf-
magnsklóna með blautum höndum.
Þetta heimilistæki samræmist EBE-tilskip-
unum.
Tenging við vatn
Passið að vatnsslöngurnar verði ekki fyrir
skemmdum.
Áður en heimilistækið er tengt við nýjar
lagnir eða pípulagnir sem hafa ekki verið
notaðar í langan tíma, skal láta vatnið
renna þangað til það er hreint.
Í fyrsta skipti sem heimilistækið er notað,
skal tryggja að enginn leki eigi sér stað.
Vatnsinntaksslangan er með öryggisloka
og slíðri með innri rafmagnssnúru.
2 progress
Ađvörun Hættuleg rafspenna.
Ef innslangan eða öryggislokinn skemmist
skal strax aftengja klóna frá rafman-
gsinnstungunni. Hafðu samband við
þjónustu til að fá nýja slöngu fyrir vatns-
inntakið.
Notkun
Heimilistækið er ætlað til notkunar innan
heimilisins og við svipaðar aðstæður eins
og:
Í starfsmannaeldhúsum í verslun, á
skrifstofum og á öðrum vinnustöðum.
–Á bændabýlum
Af viðskiptavinum á hótelum, mótelum
og á öðrum gististöðum
Á gistihúsum (Bed and Breakfast).
Ađvörun Hætta á líkamstjóni, raflosti
eða bruna.
Ekki skal breyta sérhæfingu þessa tækis.
Setjið hnífa og hnífapör með oddhvössum
brúnum í hnífaparakörfuna með oddinn
niður eða í lárétta stöðu.
Ekki hafa hurð heimilistækisins opna án
eftirlits, til að koma í veg fyrir að einhver
detti á hana.
Ekki sitja eða standa á hurðinni þegar
hún er opin.
Þvottaefni fyrir uppþvottavélar eru hættu-
leg. Farið eftir öryggisleiðbeiningunum á
umbúðum þvottaefnisins.
Ekki skal drekka, eða leika sér með vatnið
í heimilistækinu.
Ekki fjarlægja leirtauið úr heimilistækinu
fyrr en þvottakerfið klárast. Leifar af upp-
þvottaefni geta verið til staðar á diskun-
um.
Heit gufa getur sloppið út úr heimilistæk-
inu ef hurðin er opnuð meðan þvottakerfi
er í gangi.
Ekki skal setja eldfimar vörur eða hluti
sem eru blautir af eldfimum vökva ofan á
eða nálægt heimilistækinu.
Ekki nota vatnsúða og gufu til að hreinsa
heimilistækið.
Förgun
Ađvörun Hætta á líkamstjóni eða
köfnun.
Aftengið heimilistækið frá rafmagnsgjaf-
anum.
Klippa rafmagnssnúruna af og fleygið
henni.
Fjarlægið dyraklemmuna til að koma í veg
fyrir að börn eða dýr geti lokast inni í tæk-
inu.
Þjónusta
Hafið samband við þjónustuna til að láta
gera við heimilistækið. Við mælum með
því að nota aðeins upprunalega varahluti.
Þegar þú hefur samband við þjónustuna,
skaltu vera með eftirfarandi upplýsingar
sem finna má á tegundarspjaldinu.
Gerð :
Vörunúmer (PNC) :
Raðnúmer :
progress 3
VÖRULÝSING
1
2
4
3
7
9
5
6
11
8
10
1
Efri vatnsarmur
2
Neðri vatnsarmur
3
Síur
4
Tegundarspjald
5
Salthólf
6
Vatnsherslustilling
7
Gljáahólf
8
Þvottaefnishólf
9
Hnífaparakarfa
10
Neðri karfa
11
Efri karfa
STJÓRNBORÐ
1234
1
Kveikt/slökkt-hnappurinn
2
Kerfishnappar
3
Tímavalshnappur
4
Gaumljós
Gaumljós Lýsing
3h 3 klst. gaumljós.
6h 6 klst. gaumljós.
9h 9 klst. gaumljós.
Saltgaumljós. Alltaf er slökkt á þessu gaumljósi á meðan þvottaferillinn er í gangi.
Multitab gaumljós.
Endaljós.
4 progress
ÞVOTTASTILLINGAR
Þvottaferill
1)
Óhreininda-
stig
Gerð þvottar
Þvottaferill
fasar
Lengd
(mín)
Orka
(kWh)
Vatn
(l)
Mikil óhreinindi
Borðbúnaður,
áhöld, pottar
og pönnur
Forþvottur
Þvottur 70 °C
Skolar
Þurrkun
90 - 100 1.7 - 1.9 19 - 21
Venjuleg
óhreinindi
Borðbúnaður
og hnífapör
Forþvottur
Þvottur 65 °C
Skolar
Þurrkun
100 - 110 1.3 - 1.4 15 - 16
2)
Nýtilkomin
óhreinindi
Borðbúnaður
og hnífapör
Þvottur 65 °C
Skolar
30 0.8 9
3)
Venjuleg
óhreinindi
Borðbúnaður
og hnífapör
Forþvottur
Þvottur 50 °C
Skolar
Þurrkun
168 1.01 12.4
Venjulegt eða
lágt óhreininda-
stig
Viðkvæmur
borðbúnaður
og glerhlutir
Þvottur 45 °C
Skolar
Þurrkun
60 - 70 0.7 - 0.8 10 - 12
1) Þrýstingur og hitastig vatnsins, breytileiki á rafmagnsinntaki, aukaval og magn borðbúnaðar getur breytt lengd
kerfisins og breytt orkunotkunar- og vatnsnotkunargildum.
2) Með þessu kerfi er hægt að þvo hluti með nýtilkomnum óhreinindum. Það þvær vel á stuttum tíma.
3) Með þessu kerfi nýtist vatnið og orkan best fyrir borðbúnað og hnífapör með venjulegum óhreinindum. (Þetta er
staðalkerfið sem prófunarstofnanir nota).
Upplýsingar fyrir prófunarstofnanir
Til að fá allar nauðsynlegar upplýsingar um prófanir skal senda tölvupóst til:
Skrifaðu niður framleiðslunúmer tækisins (PNC) sem er á málmplötunni.
VALKOSTIR
Virkjaðu eða gerðu óvirkan Multitabval-
kostinn áður en kerfið er sett af stað.
Ekki er hægt að virkja eða gera auka-
valið óvirkt á meðan þvottakerfi er í
gangi.
Multitab
Þennan valkost skal einungis virkja þegar
verið er að nota samsettar þvottaefnistöflur.
Þessi valkostur slekkur á notkun gljáa og
salts. Slökkt er á viðkomandi gaumljósum.
Lengd kerfisins getur aukist.
Hvernig skal slökkva á Multitab
aukavalinu.
1. Ýttu á og haltu niðri á sama tíma tökk-
unum
og þangað til Multitab
gaumljósið kviknar.
Ef þú hættir að nota samsettar
þvottaefnistöflur, þá skaltu framkvæma
eftirfarandi áður en þú hefur notkun
sérstaks þvottaefnis, gljáa og
uppþvottavélarsalts:
1. Stilltu vatnsmýkingarbúnaðinn á hæstu
stillingu.
progress 5
2. Gættu þess að salthólfið og gljáahólfið
séu bæði full.
3. Settu stysta kerfið með skolunarfasa af
stað, án þvottaefnis og án borðbúnaðar.
4. Stilltu vatnsmýkingarbúnaðinn á herslu-
stig vatns á þínu svæði.
5. Stilltu losað magn gljáa.
Hljóðmerki
Hljóðmerki heyrist þegar billun kemur fram í
vélinni, þegar stilla þarf magn vatnsmýking-
arefnis og þegar þvottakerfi er lokið.
Sjálfgefið gildi er að kveikt er á hljóðmerkj-
unum, en það er hægt að gera það óvirkt.
Hvernig skal slökkva á hljóðmerkjum
1. Ýttu á hnappinn kveikja/slökkva til að
virkja heimilistækið. Gættu þess að
heimilistækið sé á núllstillingu, sjá ,,Velja
og hefja þvottakerfi".
2. Ýttu á og haltu niðri á sama tíma hnöpp-
unum
og þangað til
gaumljósin fyrir hnappa
, og
byrja að blikka.
3.
Ýtið á hnapp
.
Gaumljósið fyrir hnappa (
og
) slokkna.
Gaumljósið fyrir hnapp (
)
heldur áfram að blikka.
Þá kviknar
gaumljósið.
4.
Ýtið á hnapp
. Gaumljósið
slokknar og hljóðmerki hætta að
heyrast..
5. Slökkvið á heimilistækinu til að staðfesta
stillinguna.
Hvernig skal slökkva á hljóðmerkjum
1. Sjá ,,Hljóðmerkin gerð óvirk", skref (1) til
(3).
2.
Ýtið á hnapp
.
Gaumljósið fyrir hnappa (
og
) slokkna.
Gaumljósið fyrir hnapp (
)
heldur áfram að blikka.
Gaumljósið
slokknar.
3.
Ýtið á hnapp
. Gaumljósið
kviknar og hljóðmerki eru virk.
4. Slökkvið á heimilistækinu til að staðfesta
stillinguna.
FYRIR FYRSTU NOTKUN
1. Gættu þess að stilling vatnsmýkingarbú-
naðarins passi við herslustig vatnsins
þar sem þú býrð. Stilltu vatnsmýkingar-
búnaðinn ef með þarf. Hafðu samband
við vatnsveituna til að finna út herslustig
vatns þar sem þú býrð.
2. Fylltu salthólfið.
3. Setjið gljáa í gljáahólfið.
4. Skrúfið frá vatnskrananum.
5. Leifar af hreinsiefni geta setið eftir í
heimilistækinu. Settu kerfi af stað til að
fjarlægja þær. Ekki nota þvottaefni og
ekki hlaða neinu í körfurnar.
Að stilla vatnsmýkingarbúnaðinn
Herslustig vatns
Vatnsmýkingarefni
stilling
Þýsk
gráður
(°dH)
Frönsk
gráður
(°fH)
mmól/l Clarke
gráður
Hilla
47 - 50 84 - 90 8.4. - 9.0 58 - 63 10
43 - 46 76 - 83 7.6 - 8.3 53 - 57 9
37 - 42 65 - 75 6.5 - 7.5 46 - 52 8
29 - 36 51 - 64 5.1 - 6.4 36 - 45 7
6 progress
Herslustig vatns
Vatnsmýkingarefni
stilling
Þýsk
gráður
(°dH)
Frönsk
gráður
(°fH)
mmól/l Clarke
gráður
Hilla
23 - 28 40 - 50 4.0 - 5.0 28 - 35 6
19 - 22 33 - 39 3.3 - 3.9 23 - 27
5
1)
15 - 18 26 - 32 2.6 - 3.2 18 - 22 4
11 - 14 19 - 25 1.9 - 2.5 13 - 17 3
4 - 10 7 - 18 0.7 - 1.8 5 - 12 2
< 4 < 7 < 0.7 < 5
1
2)
1) Upphafleg stilling.
2) Ekki nota salt á þessari stillingu.
Hvernig skal stilla
vatnsmýkingarbúnaðinn
1. Ýttu á hnappinn kveikja/slökkva til að
virkja heimilistækið. Gættu þess að
heimilistækið sé á núllstillingu, sjá ,,Velja
og hefja þvottakerfi".
2. Ýttu á og haltu niðri á sama tíma hnöpp-
unum
og þangað til
gaumljósin fyrir hnappa
, og
byrja að blikka.
3.
Ýtið á hnapp
.
Gaumljósið fyrir hnappa (
og
) slokkna.
Gaumljósið fyrir hnapp (
) heldur
áfram að blikka.
Núverandi stilling fyrir vatnsmýkingar-
búnaðinn er gefin til kynna með hljóð-
merkjum og fjölda blikka gaumljóss af
gerðinni
.
Þ.e. 5 hljóðmerki og 5 blikk + hlé +
5 hljóðmerki og 5 blikk = 5. stig.
4.
Ýttu á hnappinn
aftur og aftur til að
breyta stillingunni. Í hvert skipti sem þú
ýtir á hnappinn fer magnstillingin upp um
eitt skref.
5. Slökkvið á heimilistækinu til að staðfesta
stillinguna.
progress 7
Salt sett í salthólfið
1. Snúið lokinu rangsælis til að opna salt-
hólfið.
2. Settu 1 lítra af vatni í salthólfið (einungis
í fyrsta skipti sem þú notar vélina).
3. Setjið uppþvottavélarsalt í salthólfið.
4. Fjarlægið salt í kringum op salthólfsins.
5. Snúið lokinu réttsælis til að loka salt-
hólfinu.
Varúđ Vatn og salt geta runnið út úr
salthólfinu þegar þú fyllir á það. Hætta
á tæringu. Til að hindra það, skaltu
setja þvottaferil af stað eftir að þú setur
salt í salthólfið.
Fyllt á gljáahólfið
20
30
1
2
3
4
-
+
M
A
x
A
B
C D
1. Snúið lokinu (C) rangsælis til að opna
gljáahólfið.
2.
Setjið gljáa í gljáahólfið (A), ekki hærra
upp en að merkinu 'max'.
3. Þurrkið upp gljáann sem hellist niður
með rakadrægum klút til að hindra að
of mikil froða myndist.
4. Setjið lokið í rétta stöðu og snúið því
réttsælis til að loka gljáahólfinu.
Fyllið á gljáahólfið þegar linsan (D) er
gegnsæ.
Hægt er að stilla valskífu fyrir losað
magn (B) frá stöðu 1 (minnsta magn) til
4 (mesta magn).
DAGLEG NOTKUN
1. Skrúfið frá vatnskrananum.
2. Ýttu á hnappinn kveikja/slökkva til að
virkja heimilistækið. Gættu þess að
heimilistækið sé á núllstillingu, sjá ,,Velja
og hefja þvottakerfi".
Ef gaumljósið fyrir salt er kveikt á að
setja salt í salthólfið.
3. Raðið í körfurnar.
4. Setjið þvottaefnið í.
Ef þú notar samsettu þvottaefnistö-
flurnar, skaltu virkja Multitab aukaval-
ið.
5. Stilltu á rétt þvottakerfi eftir því hvað er í
vélinni og hversu óhreint það er.
8 progress
Notkun þvottaefnis
20
30
BA D
C
1. Ýttu á opnunarhnappinn (B) til að lyfta
lokinu (C).
2.
Settu þvottaefnið í þvottaefnishólfið
(A) .
3.
Ef þvottaferillinn er með forþvotti, skal
setja lítið magn af þvottaefni í hólf (D).
4.
Ef þú notar þvottaefnistöflu, settu þá
töfluna í þvottaefnishólfið (A).
5. Settu lokið aftur á. Gættu þess að op-
nunarhnappurinn læsist í rétta stöðu.
Velja og hefja þvottakerfi
Núllstilling
Um sumar stillingar gildir að nauðsynlegt að
tækið sé í ham fyrir stillingar.
Heimilistækið er í stillingarham þegar, eftir
að kveikt er á tækinu, kviknar á öllum
gaumljósum þvottakerfanna.
Ef stjórnborðið sýnir ekki stillingarham, skal-
tu ýta á og halda inni á sama tíma hnöpp-
unum
og þangað til tækið
er komið í stillingaham.
Kerfi sett í gang án tímavals
1. Skrúfið frá vatnskrananum.
2. Ýttu á hnappinn kveikja/slökkva til að
virkja heimilistækið. Gættu þess að
heimilistækið sé á núllstillingu.
3. Ýtið á hnappinn fyrir þvottaferilinn sem
þú ætlar að stilla á. Gaumljós viðkom-
andi þvottakerfis helst kveikt en gaumlj-
ós allra annarra þvottakerfa slokkna.
4. Lokið dyrum uppþvottavélarinnar, kerfið
fer þá í gang.
Þvottakerfi sett í gang með tímavali
1. Stillið á þvottakerfi.
2. Ýttu ítrekað á tímavalshnappinn þar til
kviknar á gaumljósinu fyrir þann tíma-
fjölda sem þú ætlar að stilla á. Hægt er
að stilla á 3, 6 eða 9 tíma.
Gaumljós tímavals kviknar.
3. Lokið dyrum uppþvottavélarinnar, niður-
talning fer þá af stað.
Að niðurtalningu lokinni fer þvottakerf-
ið sjálfkrafa í gang.
Hurðin opnuð á meðan heimilistækið er
í gangi
Ef hurðin er opnuð stöðvast heimilistækið.
Þegar hurðinni er lokað heldur heimilistækið
áfram frá þeim tímapunkti þar sem truflunin
varð.
Hætt við tímaval á meðan niðurtalning
er í gangi
Þegar þú hættir við tímaval, þá hættir þú
einnig við þvottakerfi.
1. Ýttu á og haltu niðri á sama tíma hnöpp-
unum
og þangað til öll
kerfisgaumljós kvikna.
2. Stillið kerfið að nýju
Þvottakerfi afturkallað
1. Ýttu á og haltu niðri á sama tíma hnöpp-
unum
og þangað til öll
kerfisgaumljós kvikna.
Passið að það sé þvottaefni í þvott-
aefnishólfinu áður en nýtt þvottakerfi er
sett af stað.
Við lok þvottakerfis
Þá kviknar
gaumljósið.
1. Ýtið á hnappinn kveikja/slökkva til að
slökkva á heimilistækinu.
2. Skrúfaðu fyrir kranann.
Athugið
Látið leirtauið kólna áður en það er tekið
úr heimilistækinu. Heitt leirtau er brot-
hætt.
Tæmið neðri körfuna fyrst og svo þá efri.
Vatn getur hafa safnast í hliðar og á hurð
heimilistækisins. Ryðfrítt stál kólnar fyrr en
leirtau.
progress 9
GÓÐ RÁÐ
Vatnsmýkingarefni
Hart vatn inniheldur mikið magn steinefna
sem getur valdið tjóni á tækinu og leitt til
slæmrar virkni tækisins. Vatnsmýkingarefnið
gerir þessi steinefni óvirk.
Saltið í uppþvottavélinni hjálpar við að halda
vatnsmýkingarefninu hreinu og í góðu ást-
andi. Það er mikilvægt að stilla rétt magn
vatnsmýkingarefnis. Þetta tryggir að vatns-
mýkingarefnið noti rétt magn af salti og
vatni.
Notkun salts, gljáa og þvottaefnis
Einungis skal nota salt, gljáa og þvotta-
efni sem er ætlað fyrir uppþvottavélar.
Önnur efni geta valdið skemmdum á
heimilistækinu.
Gljáinn aðstoðar á meðan á síðasta skol-
unarfasa stendur, við að þurrka diskana
án bletta eða ráka.
Samsettar þvottaefnistöflur innihalda
þvottaefni, gljáa og önnur viðbætt efni.
Gættu þess að töflurnar eigi við um það
hörkustig vatns sem er á þínu svæði. Sjá
leiðbeiningar á umbúðum efnanna.
Þvottaefnistöflur leysast ekki að fullu upp
ef þvottakerfið er mjög stutt. Til að koma í
veg fyrir leifar þvottaefnis á leirtaui, mæl-
um við með því að töflurnar séu einungis
notaður með lengri þvottakerfum.
Ekki skal nota meira en rétt magn af
þvottaefni. Farið eftir leiðbeiningunum á
umbúðum þvottaefnisins.
Að raða í körfurnar.
Sjá meðfylgjandi bækling sem sýnir
dæmi um hvernig skal raða í körfur.
Notaðu uppþvottavélina einungis til að
þvo hluti sem þvo má í slíkri vél.
Ekki skal setja í vélinu hluti sem eru gerðir
úr tré, honri, áli, pjátri og kopar.
Ekki setja hluti í tækið sem geta tekið í sig
vatn (svampa, viskustykki).
Fjarlægja skal matarleifar af hlutunum.
Til þess að fjarlægja brunnar matarleifar,
skal skola potta og pönnur í vatni áður en
þú setur þau í heimilistækið.
Raðið hlutum sem eru holir að innan (þ.e..
bollum, glösum og pottum) í vélina þann-
ig að opið vísi niður.
Passaðu að hnífapör og leirtau festist ekki
saman. Setið skeiðar með öðrum hnífap-
örum.
Passið að glös snerti ekki önnur glös.
Leggið smáa hluti í hnífaparakörfuna.
Setjið létta hluti í efri körfuna. Passið
hlutirnir hreyfist ekki til.
Gætið þess að vatnsarmarnir geti hreyfst
óhindrað áður en kerfi er sett í gang.
Áður en kerfi er sett af stað
Gættu þess að:
Síurnar eru hreinar og rétt uppsettar.
Vatnsarmarnir eru ekki stíflaðir.
Staða hluta í körfunum sé rétt.
Kerfið eigi við um þá tegund hleðslu og
þau óhreinindi sem í hlut eiga.
Verið sé að nota rétt magn þvottaefnis.
Það sé salt og gljái til staðar (nema þú
notir samsettar þvottaefnistöflur).
Lokið á salthólfinu þarf að vera þétt.
MEÐFERÐ OG ÞRIF
Ađvörun Áður en viðhald fer fram á
tækinu skal slökkva á því og aftengja
aðalklóna frá rafmagnsinnstungunni.
Óhreinar síur og stíflaðir vatnsarmar
draga úr árangri þvottakerfisins.
Athugaðu þær regluglega og hreinsaðu
ef þörf krefur.
10 progress
Hreinsun á síum
C
B
A
1. Snúið síunni (A) rangsælis og takið
hana út.
A1
A2
2. Sían (A) er tekin í sundur með því að
toga (A1) og (A2) í sundur.
3. Takið síuna (B) úr.
4.
Þvoið síurnar með vatni.
5.
Áður en þú setur síuna(B) aftur á sinn
stað, gættu þess að það séu engar
matarleifar eða óhreinindi í eða í kring-
um sæti síunnar.
6. Gætið þess að sían (B) sé rétt staðsett
undir 2 stikum (C).
7. Setjið síuna (A) saman og komið henni
fyrir á sínum stað í síu (B). Snúið henni
réttsælis þar til hún læsist.
Röng staðsetning sía getur leitt til lé-
legrar frammistöðu við þvotta og valdið
tjóni á heimilistækinu.
Hreinsun vatnsarma
Ekki fjarlægja vatnsarmana.
Ef óhreinindaagnir hafa stíflað götin á vatns-
örmunum skal fjarlægja óhreinindin með
þunnum oddhvössum hlut.
Þrif að utan
Þvoðu tækið með rökum og mjúkum klút.
Notið aðeins mild þvottaefni. Ekki nota risp-
andi efni, stálull eða leysiefni.
Þrif á innra byrði
Ef þú notar stutt þvottakerfi reglulega, geta
þau skilið eftir lag af fitu og kalki innan í
tækinu.
Til að koma í veg fyrir þetta mælum við með
því að löng þvottakerfi séu keyrð a.m.k. 2
sinnum í mánuði.
BILANALEIT
Heimilistækið fer ekki í gang eða stöðvast
skyndilega við notkun.
Áður en haft er samband við þjónustu skal
les leiðbeiningarnar sem fylgja til að finna
lausn á vandanum.
Þegar sum vandamál koma upp, blikka
sum gaumljósin stöðugt og/eða slitrótt
á sama tíma til að sýna viðvörunar-
kóða.
progress 11
Viðvörunarkóði Vandamál
Gaumljós hins stillta kerfis blikkar stöðugt.
Gaumljósið
blikkar 1 sinni.
Tækið fyllist ekki af vatni.
Gaumljós hins stillta kerfis blikkar stöðugt.
Gaumljósið
blikkar 2 sinnum.
Heimilistækið tæmist ekki af vatni.
Gaumljós hins stillta kerfis blikkar stöðugt.
Gaumljósið
blikkar 3 sinnum.
Flæðivörnin er á.
Ađvörun Slökkvið á heimilistækinu
áður en athuganirnar eru gerðar.
Vandamál Hugsanleg lausn
Heimilistækið fer ekki í gang. Gættu þess að rafmagnsklóin sé í rafmagnsinnstung-
unni.
Gangið úr skugga um að það sé ekki bilað öryggi í
öryggjaboxinu.
Kerfið fer ekki í gang. Gætið þess að hurð heimilistækisins sé lokuð.
Ef stillt er á tímaval, aflýstu þá stillingunni eða bíddu eftir
að niðurtalningu ljúki.
Heimilistækið fyllist ekki af vatni. Gættu þess að skrúfað sé frá vatnskrananum.
Gættu þess að vatnsþrýstingurinn sé ekki of lágur. Til að
fá upplýsingar um það skaltu hafa samband við vatns-
veituna.
Gættu þess að vatnskraninn sé ekki stíflaður.
Gættu þess að sían í innslöngunni sé ekki stífluð.
Gættu þess að engar beyglur eða sveigjur séu á inn-
slöngunni.
Uppþvottavélin tæmist ekki af vatni. Gættu þess að vatnslásinn sé ekki stíflaður.
Gættu þess að engar beyglur eða sveigjur séu á út-
slöngunni.
Flæðivörnin er á. Skrúfið fyrir vatnskranann og hafið samband við þjónust-
una.
Eftir að hafa athugað þetta er heimilistækið
sett af stað. Þvottaferillinn heldur þá áfram
frá þeim punkti þar sem hann var stöðvað-
ur.
Ef vandamálið kemur aftur upp skaltu hafa
samband við þjónustuna.
Ef aðrir aðvörunarkóðar sjást á skjánum
skaltu hafa samband við þjónustuna.
Ef vélin þvær og þurrkar illa
Hvítar rákir og bláleit lög eru á glösum
og diskum
Losað magn af gljáa er of mikið. Stilla
skal gljáadreifarann og setja hann á lægri
stillingu.
Magn þvottaefnis er of mikið.
Blettir og þurrir vatnsdropar á glösum
og diskum
Losað magn af gljáa er ekki nægilega
mikið. Stilla skal gljáadreifarann og setja
hann á hærri stillingu.
Gæðum þvottaefnisins getur verið um að
kenna.
Diskar eru blautir
Kerfið er án þurrkfasa eða er með þurrk-
fasa sem keyrir við lágt hitastig.
Gljáahólfið er tómt.
Gæðum gljáans getur verið um að kenna.
Gæðum samsetta þvottaefnisins getur
verið um að kenna. Prófaðu annað vör-
umerki eða virkjaðu gljáann og notaðu
gljáa ásamt samsettu þvottaefnistöflun-
um.
12 progress
Sjá "RÁÐLEGGINGAR" til að sjá aðrar
mögulegar orsakir.
Til að gera gljáaskammtarann virkan
1. Ýttu á hnappinn kveikja/slökkva til að
virkja heimilistækið. Gættu þess að
heimilistækið sé á núllstillingu, sjá ,,Velja
og hefja þvottakerfi".
2. Ýttu á og haltu niðri á sama tíma hnöpp-
unum
og þangað til
gaumljósin fyrir hnappa
, og
byrja að blikka.
3.
Ýtið á hnapp
.
Gaumljósið fyrir hnappa (
og
) slokkna.
Gaumljósið fyrir hnapp (
) held-
ur áfram að blikka.
Gaumljósið
slokknar.
4.
Ýtið á hnapp
. Þá kviknar
gaumljósið. Gljáaskammtarinn er virkur.
5. Ýtið á hnappinn kveikja/slökkva til að
staðfesta stillingarnar.
6. Stilltu losað magn gljáa.
7. Setjið gljáa í gljáahólfið.
TÆKNILEGAR UPPLÝSINGAR
Mál Breidd / Hæð / Dýpt (mm) 596 / 818 - 898 / 555
Rafmagnstenging Sjá málmplötuna.
Spenna 220-240 V
Tíðni 50 Hz
Vatnsþrýstingur Lágm. / hámark (bar /MPa) (0.5 / 0.05 ) / (8 / 0.8 )
Vatnsaðföng
1)
Kalt eða heitt vatn
2)
hám. 60 °C
Afkastageta Matarstell 12
Orkunotkun Biðhamur 0.99 W
Slökkt á tækinu 0.10 W
1) Tengið innslönguna við krana með 3/4” skrúfgangi.
2) Ef heita vatnið kemur frá öðrum orkugjöfum, (t.d. sólarrafhðu, sólarraforkueiningu eða vindorku) skal nota hitaveitu
til að minnka orkunotkunina.
UMHVERFISÁBENDINGAR
Endurvinna þarf öll efni merkt tákninu .
Setjið umbúðirnar í viðeigandi sorpílát til
endurvinnslu.
Leggið ykkar að mörkum til verndar
umhverfinu og heilsu manna og dýra og
endurvinnið rusl sem fylgir raftækjum og
raftrænum búnaði. Hendið ekki
heimilistækjum sem merkt eru með tákninu
í venjulegt heimilisrusl. Farið með vöruna í
næstu endurvinnslustöð eða hafið samband
við sveitarfélagið.
Farga skal umbúðum á réttan hátt. End-
urvinna skal umbúðir með endur-
vinnslumerkinu
.
progress 13
14 progress
progress 15
www.progress-hausgeraete.de
156969710-A-252013
  • Page 1 1
  • Page 2 2
  • Page 3 3
  • Page 4 4
  • Page 5 5
  • Page 6 6
  • Page 7 7
  • Page 8 8
  • Page 9 9
  • Page 10 10
  • Page 11 11
  • Page 12 12
  • Page 13 13
  • Page 14 14
  • Page 15 15
  • Page 16 16

Progress PV3555 Používateľská príručka

Typ
Používateľská príručka

V iných jazykoch