IS
3
4. KVEIKTU Á ÞVOTTAVÉLINNI
• Ýttu á “On/O” þar til prógrammhnappurinn lýsir.
Hreymynd birtist og hljóð heyrist. Þá er þvottavélin tilbúin
til gangsetningar.
5. VALIÐ PRÓGRAMM
LEIÐSÖGN - hnappaljósið leiðbeinir við stillingu á prógrammi í þessari
röð: Val á prógrammi / hitastigi / vinduhraða / valkostum. Þegar valið
hefur verið staðfest með því að ýta á hnappinn færist hnappaljósið á
næsta þrep.
• Veldu prógramm:
Gakktu úr skugga um að prógrammhnappurinn logi. Snúðu
hnappnum og veldu prógramm.
Heiti prógramms og tímalengd birtast á skjánum.
Staðfestu valið með því að ýta á hnappinn. Innan fárra sekúndna
sést hámarksþyngd fyrir prógrammið sem var valið.
• Breyttu hitastigi eftir þörfum
Ef þú vilt breyta hitastigi sem sjá má ofan við hitastigshnappinn
skaltu ganga úr skugga um að kvikni á hitastigshnappnum.
Snúðu hnappnum til að velja hitastig og ýttu á hann til að
staðfesta.
• Breyttu vinduhraða eftir þörfum
Ef þú vilt breyta vinduhraða sem sjá má ofan við
vinduhnappinn skaltu ganga úr skugga um að kvikni á
honum.
Snúðu hnappnum til að velja vinduhraða eða skolunarbið,
ýttu síðan á hann til staðfestingar.
• Veldu valmöguleika eftir þörfum
Gakktu úr skugga um að valhnappurinn lýsi. Valmöguleikarnir
fyrir viðkomandi prógramm eru sýndir með ljósaörvum.
Snúðu hnappnum og veldu möguleika. Táknið fyrir valmöguleikann
blikkar. Ýttu á hnappinn til að staðfesta.
Suma möguleika / aðgerðir má velja með því að ýta beint á hnappinn:
Sjá nánar kaana VALMÖGULEIKAR, AÐGERÐIR OG VÍSAR.
SÉRSNIÐ
Þegar kveikt hefur verið á þvottavélinni þarf ekki að fylgja LEIÐSÖGN.
Það er undir þér komið í hvaða röð þú stillir prógrammið. Við stillingu
skal ýta á viðkomandi hnapp, snúa honum til að velja og ýta síðan til að
staðfesta.
Það fer eftir prógramminu hvaða hitastig, vinduhraðar eða
valmöguleikar eru í boði. Þess vegna er mælt með því að byrja stillingu
með því að velja prógrammið.
6. BÆTA VIÐ ÞVOTTAEFNI
• Ef ekki er notuð skömmtunaraðgerðin, skal draga út
þvottaefnisskammtarann og bæta þvottaefni í hann (og
viðbótarefni/mýkingarefni) eins og sýnt er í kaanum
ÞVOTTAEFNISSKAMMTARI.
Fylgdu skömmtunarleiðbeiningum á
þvottaefnispakkanum. Ef valinn var FORÞVOTTUR eða LJÚKA Í, skal
fara eftir leiðbeiningum í VALMÖGULEIKAR, AÐGERÐIR OG VÍSAR.
Síðan skal loka þvottaefnisskammtaranum.
• Ef þú notar “Skömmtunar” stillinguna og lætur þvottaefnið í á
eftir, eftir að þú ert byrjuð/-aður á prógramminu. Sjá kaa
VALMÖGULEIKAR, AÐGERÐIR OG VÍSAR.
• Þegar búið er að setja Í þvottaefni / viðbótarefni skal ekki opna
þvottaefnisskammtarann til forðast að vatn æði.
7. BYRJA Á PRÓGRAMMI
• Ýttu á og haltu „Start/Pause“ þar til hnappurinn lýsir stöðugt
prógrammið byrjar.
• Eftir að valin hefur verið „Dosing Aid“ (skömmtun), sýnir
þvottavélin ráðlagt magn af þvottaefni fyrir viðkomandi
þvottaþyngd eftir að prógrammið er byrjað. Fylgdu
leiðbeiningunum í kaanum VALMÖGULEIKAR, AÐGERÐIR OG
VÍSAR/ Skömmtun.
8. BREYTING Á PRÓGRAMMI Í GANGI EFTIR
ÞÖRFUM
Það er enn hægt að breyta stillingum á meðan prógramm er í gangi.
Breytingarnar taka gildi að því tilskildu að prógrammið sé ekki búið.
• Ýttu á viðeigandi hnapp (t.d. „vinduhnappinn“ til að breyta
vinduhraðanum). Tölugildið blikkar í fáeinar sekúndur.
• Á meðan blikkar er hægt að stilla með því að snúa hnappnum.
Eftölugildið hættir að blikka skal ýta aftur á hnappinn.
• Ýttu á hnappinn til að staðfesta breytinguna. Ef ekki er staðfest gerist
breytingin sjálfkrafa - breytt stilling hættir að blikka
Prógrammið heldur sjálfkrafa áfram.
Til að breyta stillingum á meðan prógramm er í gangi er einnig hægt að
• Ýta á „Start/Pause“ til setja prógramm, sem er í gangi, á bið
• Breyta stillingum
• Ýta á „Start/Pause“ aftur til að halda áfram með prógrammið.
9. SETJA Á BIÐ PRÓGRAMM SEM ER Í GANGI OG
OPNA LÚGUNA EFTIR ÞÖRFUM
• Ýttu og haltu inni „Start/Pause“ til að setja prógramm á bið.
• Ef vatnsyrborð er ekki of hátt eða þvotturinn ekki of heitur
kviknar gaumljós fyrir lúguna. Það er hægt að opna lúguna,
til dæmis til að bæta við eða arlægja þvott.
• Lokaðu lúguopinu aftur og ýttu á „Start/Pause“ til að halda
áfram með prógrammið.
10. ENDURSTILLING Á PRÓGRAMMI SEM ER Í
GANGI, EF ÞÖRF KREFUR
• Ýttu á og haltu inni „On/O“ hnappnum þar til skjárinn sýnir
að hætt hefur verið í prógramminu.
Vélin dælir af sér, prógramminu lýkur og lúgan aæsist.
11. SLÖKKT Á ÞVOTTAVÉL EFTIR AÐ
PRÓGRAMMI LÝKUR
• Skjárinn sýnir að þvottalotunni er lokið og það kviknar á
ljósinu „Door open“ og óhætt er að taka þvottinn út
• Ýttu á „On/O“ til að slökkva á þvottavélinni. Ef ekki er slökkt
á þvottavélinni slekkur hún sjálfkrafa á sér u.þ.b. kortéri eftir
að prógrammi lýkur.
• Skildu lúguna eftir hálfopna til að þvottavélin geti þornað að innan.