Progress PI1535X Používateľská príručka

Kategória
Mixér / kuchynský robot príslušenstvo
Typ
Používateľská príručka
notendaleiðbeiningar
Uppþvottavél
PI1535
EFNISYFIRLIT
Öryggisupplýsingar 2
Vörulýsing 4
Stjórnborð 5
Notkun heimilistækisins 6
Stillið vatnsmýkingarbún 6
Notkun uppþvottavélarsalts 7
Notkun hreinsiefnis og gljáefnis 8
Röðun hnífapara og diska 9
Velja og hefja þvottaferil 10
Þvottastillingar 11
Meðferð og þrif 12
Hvað skal gera ef... 13
Tæknilegar upplýsingar 14
Umhverfisábendingar 15
Með fyrirvara á breytingum
ÖRYGGISUPPLÝSINGAR
Fyrir innsetningu og notkun skal lesa þessa
handbók vandlega:
Til að tryggja öryggi þitt og öryggi eigna
þinna.
Til að vernda umhverfið.
Til að tryggja rétta notkun vélarinnar.
Geymdu þessar leiðbeiningar alltaf með
heimilistækinu, líka ef þú flytur eða gefur
það einhverjum öðrum.
Framleiðandinn er ekki ábyrgur fyrir tjóni
vegna rangrar uppsetningar eða notkunar.
Öryggi barna og viðkvæmra
einstaklinga
Látið ekki fólk, þar með talin börn, sem
hefur skerta líkamlega skynjun, skert and-
legt atgervi eða sem skortir reynslu og
þekkingu, nota heimilistækið. Þau verða
að hafa fengið kennslu eða tilsögn í not-
kun heimilistækisins hjá einstaklingi sem
er ábyrgur fyrir öryggi þeirra.
Börn verða að vera undir eftirliti til að
tryggja að þau leiki sér ekki að heimilis-
tækinu.
Haldið öllum umbúðum frá börnum.
Hætta er á köfnun eða meiðslum.
Geymið öll hreinsiefni á öruggum stað.
Ekki leyfa börnum að snerta hreinsiefnin.
Haldið börnum og gæludýrum frá heimil-
istækinu þegar dyrnar eru opnar.
Almennt öryggi
Ekki breyta tæknilýsingu fyrir þetta tæki.
Það skapar hættu á meiðslum og tjóni á
vélinni.
Fylgið öryggisleiðbeiningum frá framleið-
anda hreinsiefnisins til að koma í veg fyrir
brunasár á augum, munni og hálsi.
Drekkið ekki vatnið sem kemur úr heimil-
istækinu. Leifar af hreinsiefni geta setið
eftir í heimilistækinu.
Ekki hafa hurð heimilistækisins opna án
eftirlits. Það kemur í veg fyrir meiðsli og
að einhver detti á opna hurðina.
Ekki sitja eða standa á hurðinni þegar
hún er opin.
Notkun
Þetta heimilistæki er eingöngu ætlað til
heimilisnota. Ekki nota heimilistækið í öðr-
um tilgangi svo að ekki hljótist af meiðsli á
fólki eða eignatjón.
Notið heimilistækið aðeins til að þvo hluti
sem má þvo í uppþvottavél.
Setjið ekki eldfim efni eða hluti sem eru
blautir með eldfimum efnum í, á heimilis-
tækið eða nálægt því. Hætta á spreng-
ingu eða eldsvoða.
Setjið hnífa og alla oddhvassa hluti í hníf-
aparakörfuna þannig að oddurinn vísi nið-
ur. Annars skal leggja þá í lárétta stöðu í
efri körfuna eða í hnífakörfuna. (Ekki allar
gerðir eru með hnífakörfu).
Notið aðeins efni sem eru sérstaklega
gerð fyrir uppþvottavélar (hreinsiefni, salt,
gljáefni).
Salttegundir sem ekki eru sérstaklega æt-
laðar fyrir uppþvottavélar geta skemmt
vatnsmýkingarbúnaðinn.
Setjið salt á vélina áður en þvottakerfi er
sett í gang. Salt sem situr eftir í heimilis-
tækinu getur valdið ætingu eða myndað
gat í botni heimilistækisins.
Aldrei setja nein önnur efni í gljáahólfið en
gljáann (hvorki hreinsiefni fyrir uppþvott-
avélar né þvottalög). Það getur valdið
skemmdum á heimilistækinu.
Gætið þess að vatnsarmarnir geti hreyfst
óhindrað áður en þvottakerfi er sett í
gang.
2 progress
Heit gufa getur sloppið út úr heimilistæk-
inu ef hurðin er opnuð meðan þvottakerfi
er í gangi. Hætta er á húðbruna.
Ekki fjarlægja leirtauið úr heimilistækinu
fyrr en þvottakerfið klárast.
Meðferð og þrif
Áður en viðhald fer fram á heimilistækinu
skal slökkva á því og aftengja aðalklóna
frá rafmagnsinnstungunni.
Ekki nota eldfim efni eða efni sem geta
orsakað tæringu.
Ekki nota tækið án síanna. Gætið þess
að setja síurnar rétt í. Rangt ísettar síur
geta valdið því að vélin þvær ekki nógu
vel og hún getur skemmst.
Ekki nota vatnsúða eða gufu til að hreinsa
heimilistækið. Hætta á raflosti og að
heimilistækið skemmist.
Innsetning
Gætið þess að heimilistækið hafi ekki
skemmst. Ekki setja upp eða tengja
skemmt heimilistæki heldur hafið sam-
band við söluaðilann.
Fjarlægið allar umbúðir áður en heimilis-
tækið er sett upp og notað.
Öll vinna við rafmagnstengingar, pípul-
agnir og uppsetningu tækisins skal ein-
göngu framkvæmd af fagfólki. Það er til
að forðast hættu á skemmdum á heimilis-
tækinu eða meiðslum.
Gætið þess að klóin sé ekki tengd við raf-
magnsinnstunguna meðan á uppsetningu
stendur.
Ekki bora inn í hliðar heimilistækisins, það
gæti valdið skemmdum á vökva- og raf-
magnsbúnaði.
Mikilvægt!Hlýðið fyrirmælunum í stöðl-
unum sem fylgja heimilistækinu:
Til að setja heimilistækið upp.
Til að setja saman hurðarþilið.
Til að tengja við vatnsinntakið og frár-
ennslið.
Gætið þess að heimilistækinu sé komið
fyrir undir og við hliðina á traustum og
stöðugum hlutum.
Frostvarnir
Ekki koma tækinu fyrir þar sem hitastigið
er lægra en 0 °C.
Framleiðandinn er ekki ábyrgur fyrir
frostskemmdum.
Tenging við vatn
Notið nýjar slöngur til að tengja heimilis-
tækið við vatnsaðföng. Ekki nota notaðar
slöngur.
Ekki tengja tækið við nýjar pípur eða píp-
ur sem ekki hafa verið notaðar lengi. Látið
vatnið renna í nokkrar mínútur áður en
innslangan er tengd.
Gætið þess að kremja hvorki né skemma
vatnsslöngurnar þegar heimilistækinu er
komið fyrir.
Gætið þess að vatnstengi séu þétt til að
forðast vatnsleka.
Í fyrsta sinn sem heimilistækið er notað
skal gæta þess að enginn vatnsleki sé úr
slöngunum.
Vatnsinntaksslangan er með öryggisloka
og tvöfalt slíður með innri rafmagnssnúru.
Aðeins er þrýstingur á vatnsinntaksslöng-
unni þegar vatnið rennur. Ef leki er í
vatnsinntaksslöngunni stöðvar
öryggislokinn vatnsrennslið.
Farðu gætilega þegar þú tengir vatns-
inntaksslönguna:
Sökkvið ekki inntaksslöngunni eða
lekavörninni í vatn.
Ef inntaksslangan eða lekavörnin
skemmast skal strax aftengja klóna
frá rafmangsinnstungunni.
Hafðu samband við viðgerðarþjón-
ustuna til þess að láta skipta um inn-
taksslöngu með lekavörn.
Ađvörun Hættuleg rafspenna.
Tenging við rafmagn
Heimilistækið þarf að vera jarðtengt.
Gætið þess að rafmagnsupplýsingarnar á
tegundarspjaldinu passi við aflgjafann.
Alltaf nota rétt uppsetta innstungu sem
gefur ekki raflost.
Ekki nota fjöltengi eða framlengingarsnúr-
ur. Það skapar eldhættu.
progress 3
Ekki skipta um eða breyta rafmagnssnúr-
unni. Hafið samband við viðgerðarþjón-
ustuna.
Gætið þess að kremja hvorki né skemma
klóna eða rafmagnssnúruna á bak við
heimilistækið.
Gætið þess að rafmagnsklóin sé aðgeng-
ileg eftir uppsetningu.
Ekki toga í snúruna til að taka heimilis-
tækið úr sambandi. Togið alltaf í raf-
magnsklóna.
Viðgerðarþjónusta
Aðeins viðgerðarmaður með réttindi má
gera við eða vinna við tækið. Hafið sam-
band við viðgerðarþjónustuna.
Notið eingöngu upprunalega varahluti.
Til að farga heimilistækinu
Til að koma í veg fyrir hættu á meiðslum
eða tjóni:
Aftengið klóna frá rafmagnsinnstung-
unni.
Klippið rafmagnssnúruna af og fleygið
henni.
Takið hurðarlokuna af. Það kemur í veg
fyrir að börn eða gæludýr geti lokast
inni tækinu. Hætta er á köfnun.
Skilið heimilistækinu á næstu sorphirð-
ustöð.
Ađvörun Hreinsiefni
uppþvottavélarinnar eru hættuleg
og geta valdið ætingu !
Ef slys verður með þessi hreinsiefni,
hafið þá strax samband við lækni.
Ef hreinsiefnið lendir í munni skal hafa
strax samband við lækni.
Ef hreinsiefnið kemst í augu, hafið þá
umsvifalaust samband við lækni og
skolið augun með vatni.
Geymið hreinsiefni fyrir uppþvottavél-
ar á öruggum stað þar sem börn ná
ekki til.
Ekki hafa hurðina á heimilistækinu
opna þegar þvottaefni er í þvottaefn-
ishólfinu.
Setjið aðeins uppþvottaefni í þvott-
aefnishólfið áður en þvottakerfi er
sett í gang.
VÖRULÝSING
1
Efri karfa
2
Vatnsherslustilling
3
Salthólf
4
Þvottaefnishólf
5
Gljáahólf
6
Tegundarspjald
4 progress
7
Síur
8
Neðri vatnsarmur
9
Efri vatnsarmur
STJÓRNBORÐ
1
2
5 46
3
1
Kveikt/slökkt-gaumljósið
2
Kerfismerkjari
3
Gaumljós
4
Tímavalshnappur
5
Byrja/hætta við-hnappur
6
Kerfishnappur
Gaumljós
Gaumljós fyrir þvottaferli. Það kviknar þegar þvotta-eða skolunarferlar eru í
gangi.
Gaumljós fyrir þurrkunarferli. Það kviknar þegar þurrkunarferlið er í gangi.
Endaljós. Á því kviknar við þessar aðstæður:
Þegar þvottakerfið hefur klárast.
Þegar þú stillir vatnsmýkingarbúnaðinn.
Þegar tækið er bilað.
Saltgaumljós. Það kviknar á því þegar þarf að setja salt í salthólfið.
1)
Eftir að þú setur í hólfið getur verið kveikt á saltgaumljósinu í nokkra klukkutíma.
Það truflar ekki virkni heimilistækisins.
1) Þegar hólfin fyrir salt og/eða skolunarlög eru tóm, kvikna gaumljósin fyrir þau ekki á meðan þvottakerfi er í gangi.
Tímavalshnappur
Ýtið á þennan hnapp til að seinka byrjun
þvottakerfis um þrjá klukkutíma. Sjá „Velja
og hefja þvottaferil“.
Byrja/hætta við-hnappur
Notið þennan hnapp fyrir eftirfarandi að-
gerðir:
Til að setja þvottakerfi af stað. Sjá „Velja
og hefja þvottaferil“.
progress 5
Til að stöðva þvottakerfi sem er í gangi.
Sjá „Velja og hefja þvottaferil“.
Til að stilla vatnsmýkingarbúnaðinn ra-
frænt. Sjá „Stillið vatnsmýkingarbúnað“.
Kerfishnappur og kveikt/slökkt-
gaumljós
Kveiktu á vélinni og veldu þvottakerfi.
Stilltu þvottakerfi sem er á kerfishnappn-
um þannig að það bendir á kveikt/slökkt-
gaumljósið. Sjá „Þvottastillingar“. Kveikt/
slökkt-gaumljósið kviknar.
Til að slökva á heimilistækinu.
Stilltu merkjarann I á kerfishnappnum
þannig að hann bendi á slökkt/kveikt-
gaumljósið. Kveikt/slökkt-gaumljósið
slokknar.
NOTKUN HEIMILISTÆKISINS
1. Athugaðu hvort stilling vatnsmýkingar-
búnaðarins passar við herslustig vatns-
ins þar sem þú býrð. Stilltu vatnsmýk-
ingarbúnaðinn ef með þarf.
2. Settu uppþvottavélarsalt í salthólfið.
3. Settu gljáa í gljáahólfið.
4. Settu hnífapör og diska í heimilistækið.
5. Stilltu á rétt þvottakerfi eftir því hvað er í
vélinni og hversu óhreint það er.
6. Fylltu á þvottaefnishólfið með réttu
magni af þvottaefni.
7. Settu þvottakerfið í gang.
STILLIÐ VATNSMÝKINGARBÚNAÐ
Vatnsmýkingarbúnaðurinn fjarlægir steinefni
og sölt úr vatninu sem notað er. Þessi stein-
efni og sölt geta valdið skemmdum á heimil-
istækinu.
Stilltu vatnsmýkingarbúnaðinn ef hann er
ekki rétt stilltur fyrir herslustig vatns þar sem
þú býrð.
Hafðu samband við vatnsveituna til að finna
út herslustig vatns þar sem þú býrð.
Herslustig vatns Herslustig vatns stillt
Þýskar gráður
(dH°)
Franskar gráður
(TH°)
mmól/l Clarke-
gráður
handvirkt ra-
frænt
51 - 70 91 - 125 9,1 - 12,5 64 - 88
2
1)
10
43 - 50 76 - 90 7,6 - 9,0 53 - 63
2
1)
9
37 - 42 65 - 75 6,5 - 7,5 46 - 52
2
1)
8
29 - 36 51 - 64 5,1 - 6,4 36 - 45
2
1)
7
23 - 28 40 - 50 4,0 - 5,0 28 - 35
2
1)
6
19 - 22 33 - 39 3,3 - 3,9 23 - 27
2
1)
5
1)
15 - 18 26 - 32 2,6 - 3,2 18 - 22 1 4
11 - 14 19 - 25 1,9 - 2,5 13 - 17 1 3
4 - 10 7 - 18 0,7 - 1,8 5 - 12 1 2
< 4 < 7 < 0,7 < 5
1
2)
1
2)
1) Upphafleg stilling.
2) Ekki nota salt á þessari stillingu.
Stilla þarf vatnsmýkingarbúnaðinn
handvirkt og rafrænt.
Handvirk stilling
Snúðu valskífu herslustigs vatns yfir á still-
ingu 1 eða 2 (sjá töflu).
6 progress
Rafræn stilling
1. Haldið byrja/hætta við-hnappnum inni.
2. Snúið kerfishnappnum réttsælis þangað
til fyrsta þvottakerfið bendir á kveikt/
slökkt-gaumljósið.
3. Sleppið byrja/hætta við-hnappnum þeg-
ar kveikt/slökkt-gaumljósið og byrja/
hætta við-gaumljósið byrja að blikka.
Á sama tíma, blikkar gaumljósið fyrir
lok þvottakerfis. Fjöldi blikka sýnir still-
inguna fyrir mýkingarefni (til dæmis: 5
blikk / hlé / 5 blikk = 5. stig).
4. Ýttu aftur og aftur á byrja/hætta við
hnappinn til að breyta stillingunni. Í hvert
skipti sem þú ýtir á byrja/hætta við
hnappinn, eykst stillingin um 1 stig.
5. Slökktu á heimilistækinu til að staðfesta.
Ef vatnsmýkingarbúnaðurinn er stilltur
rafrænt á 1. stig kviknar ekki á salt-
gaumljósinu.
NOTKUN UPPÞVOTTAVÉLARSALTS
Svona er salt sett í salthólfið:
1. Snúið lokinu rangsælis til að opna salt-
hólfið.
2. Hellið 1 lítra af vatni í salthólfið (aðeins í
fyrsta sinn sem salt er sett í).
3. Notið trektina til að hella salti í hólfið.
4. Fjarlægið salt í kringum op salthólfsins.
5. Snúið lokinu réttsælis til að loka salt-
hólfinu.
Það á að koma vatn út úr salthólfinu
þegar salt er sett í það.
progress 7
NOTKUN HREINSIEFNIS OG GLJÁEFNIS
2
0
0
3
1
2
3
4
-
+
M
A
x
8
1
2
3
4
5
6
7
Notkun þvottaefnis
Til að vernda umhverfið skal ekki nota
meira en rétt magn af þvottaefni.
Fylgdu fyrirmælum framleiðanda þvott-
aefnisins á þvottaefnisumbúðunum.
Settu þvottaefni í þvottaefnishólfið í eftirfar-
andi skrefum:
1.
Ýtið á opnunarhnappinn
2
til að opna
lokið
8
á þvottaefnishólfinu.
2.
Setjið þvottaefnið í hólfið
1
.
3. Ef þvottakerfið er með forþvotti, skal
setja lítið magn af þvottaefni í þvottaefn-
ishólfið sem er fyrir forþvott
3
.
4. Ef þú notar þvottaefnistöflu, settu þá
töfluna í þvottaefnishólfið
1
.
5. Lokaðu þvottaefnishólfinu. Ýtið á lokið
þar til það smellur fast.
Ólíkar gerðir af þvottaefni eru mislengi
að leysast upp. Sumar þvottaefnistöflur
þvo ekki jafn vel í stuttum þvottakerf-
um. Notaðu löng þvottakerfi þegar not-
aðar eru þvottaefnistöflur svo að þvott-
aefnið skolist alveg af.
Notkun skolunarlögs
Þegar notaður er gljái þurrkast leirtauið
án þess að rákir eða blettir myndist.
Gljáahólfið setur sjálfkrafa gljáa út í
vatnið í síðustu skolun.
Settu gljáa í gljáahólfið í eftirfarandi skrefum:
1. Til að opna gjáahólfið, skal snúa lokinu
4
rangsælis
2.
Setjið gljáa
6
í gljáahólfið. Merkið
„max“ (hámark) sýnir hámarksmagn
sem má setja í.
3. Þurrkaðu upp gljáann sem hellist niður
með rakadrægum klút til að hindra að
of mikil froða myndist meðan á þvotti
stendur.
4. Til að loka gljáahólfinu, skal setja lokið í
rétta stöðu og snúa því réttsælis.
Setjið gljáann í gljáahólfið þegar linsan
5
er gegnsæ.
Aðlagaðu gljáaskammtinn
Stilling á nýrri vél: 3. staða.
Þú getur stillt gljáaskammtinn á milli 1.
stöðu (minnsti skammtur) og 4. stöðu (mesti
skammtur).
Snúið gljáavalsskífunni
7
til að auka eða
minnka skammtinn.
Notkun samsettra þvottaefnistaflna
Þær innihalda efni sem hafa hreinsunar-,
gljáa- og saltvirkni. Sumar gerðir taflna geta
innihaldið önnur efni.
Þegar notaðar eru töflur sem innihalda salt
og gljáa skal ekki fylla á salthólfið og gljáah-
ólfið.
Gangið úr skugga að þessar töflur passi við
herslustig vatnsins þar sem þú býrð (sjá
leiðbeiningar á umbúðum vörunnar).
1. Stilltu herslustig vatns á lægsta stig. Sjá
„Stillið vatnsmýkingarbúnað“.
2. Stilltu skammtastærð gljáa á lægstu still-
ingu. Sjá „Notkun hreinsiefnis og gljáefn-
is“.
Þvottaefni, salt og gljái notað aftur
sérstaklega
1. Fylltu á salthólfið og gljáahólfið.
2. Stilltu herslustig vatns á hæsta stig.
3. Þvoðu eina vél án leirtaus.
4. Þegar þvottaferlinum er lokið, stilltu þá
vatnsmýkingarbúnaðinn á herslustig
vatnsins þar sem þú býrð.
5. Gljáaskammtinum breytt.
8 progress
RÖÐUN HNÍFAPARA OG DISKA
Góð ráð
Ekki nota tækið til að þvo hluti sem geta
dregið í sig vatn (t.d. svampa eða tuskur).
Fjarlægðu matarleifar.
Mýktu brenndar matarleifar í pottum og
pönnum.
Setjið hlutum sem eru holir að innan (t.d.
bollum, glösum og pottum) í vélina þann-
ig að opið vísi niður.
Passaðu að vatn safnist ekki fyrir í ílátum
eða í djúpum botnum.
Passaðu að hnífapör og leirtau festist ekki
saman.
Passaðu að glösin snerti ekki önnur glös.
Leggðu smáa hluti í hnífaparakörfuna.
Blandið skeiðunum saman við önnur hníf-
apör svo að þær festist ekki saman.
Raðið hlutunum þannig að vatn snerti alla
fleti.
Settu létta hluti í efri körfuna. Passaðu að
hlutirnir hreyfist ekki til.
Vatnsdropar sitja oft eftir á plasthlutum
og viðloðunarfríum pottum, fötum eða
pönnum.
Neðri karfa
Setjið potta, lok, diska, salatskálar og hníf-
apör í neðri körfuna. Raðið stórum diskum
og lokum meðfram brún körfunnar.
Hnífaparakarfan
Látið handföng gaffla og skeiða vísa niður.
Látið handföng hnífa vísa upp.
Blandið skeiðunum saman við önnur hnífap-
ör svo að þær festist ekki saman.
Notið hnífaparagrindina. Ef hnífapörin eru of
stór til að hægt sé að nota hnífaparagrind-
ina, getur þú auðveldlega fjarlægt hana.
Efri karfa
Efri karfan er fyrir diska (hámark 24 sm
þvermáli), undirskálar, salatskálar, bolla,
glös, potta og lok. Raðið hlutunum þannig
að vatn snerti alla fleti.
progress 9
Setjið glös á háum fæti í bollarekkana og
með fæturna vísandi upp. Ef um lengri hluti
er að ræða eru bollarekkarnir felldir upp.
Hæð efri körfu stillt
Þú getur sett efri körfuna í tvær stöður til að
auka hleðslusveigjanleikann.
Hámarkshæð leirtaus í:
efri körfu neðri körfu
Hámarkshæð leirtaus í:
Hærri staða 20 sm 31 sm
Lægri staða 24 cm 27 cm
Fylgið þessum skrefum til að færa efri körf-
una í hærri stöðuna:
1. Dragið körfuna út þar til hún stoppar.
2. Lyftið henni varlega báðum megin þar til
búnaðurinn smellur fastur og karfan er
stöðug.
Fylgið eftirfarandi skrefum til að færa efri
körfuna í lægri stöðuna:
1. Dragið körfuna út þar til hún stoppar.
2. Lyftið henni varlega upp báðum megin.
3. Haldið búnaðinum og látið síga hægt
aftur niður.
Varúđ
Ekki lyfta eða láta körfuna bara síga
öðrum megin.
Ef karfan er í efri stöðunni, ekki setja
þá bolla upp á bollarekkana.
VELJA OG HEFJA ÞVOTTAFERIL
Þvottakerfi sett í gang án tímavals
1. Lokið hurð heimilistækisins.
2. Veljið þvottakerfi. Sjá „Þvottastillingar“.
Kveikt/slökkt-gaumljósið kviknar.
3. Ýtið á byrja/hætta við-hnappinn og
þvottakerfið fer sjálfkrafa af stað. Byrja/
hætta við-gaumljósið kviknar.
Þvottakerfi sett í gang með tímavali
1. Lokið hurð heimilistækisins.
2. Veljið þvottakerfi. Sjá „Þvottastillingar“.
Kveikt/slökkt-gaumljósið kviknar.
3. Ýtið á tímavalshnappinn. Gaumljós tím-
avals kviknar.
4. Ýtið á byrja/hætta við-hnappinn og nið-
urtalning hefst sjálfkrafa.
Að niðurtalningu lokinni fer þvottakerf-
ið sjálfkrafa í gang. Gaumljós tímavals
slökknar.
Ef dyrnar eru opnaðar truflar það niður-
talninguna. Þegar þú lokar dyrunum
heldur niðurtalninginn áfram frá þeim
tímapunkti þar sem truflunin varð.
Þvottakerfi stöðvað
Opnaðu hurð uppþvottavélarinnar.
Þá stöðvast þvottakerfið.
Lokaðu hurð tækisins.
Þvottakerfið heldur þá áfram frá þeim
punkti þar sem það var stöðvað.
10 progress
Hætt við þvottakerfi.
Ef þvottakerfið er ekki farið í gang er hægt
að breyta valinu.
Til að breyta valinu meðan þvottakerfi er í
gangi er nauðsynlegt að hætta við kerfið.
Ýttu á og haltu inni byrja/hætta við
hnappnum þangað til byrja/hætta við
gaumljósið slokknar.
Passaðu að það sé þvottaefni í þvott-
aefnishólfinu áður en þú setur nýtt
þvottakerfi í gang.
Hætt við tímaval
Ef tímavalið er ekki farið í gang er hægt að
breyta valinu.
Til að breyta valinu meðan tímaval er í gangi
er nauðsynlegt að hætta við tímavalið.
1. Haldið byrja/hætta við-hnappinum niðri
þar til byrja/hætta við-gaumljósið og tím-
avalsgaumljósið slökkna.
2. Ýtið á byrja/hætta við-hnappinn til að
setja þvottakerfið í gang.
Lok þvottakerfis
Þegar þvottakerfinu er lokið kveiknar á
gaumljósi fyrir lok þvottakerfis.
Slökkvið á tækinu og opnið dyr tækisins.
Tekið úr uppþvottavélinni
Láttu leirtauið kólna áður en þú tekur það
úr vélinni. Heitt leirtau er brothætt.
Tæmdu neðri körfuna fyrst og svo þá efri.
Vatn getur hafa safnast í hliðar og hurðir
uppþvottavélarinnar. Ryðfrítt stál kólnar
fyrr en leirtau.
ÞVOTTASTILLINGAR
Kerfi og staða
kerfishnapps
Gerð óhrein-
inda
Gerð hluta Lýsing á kerfi
Mikil óhreinindi Borðbúnaður, áhöld,
pottar og pönnur
Forþvottur
Þvottur 70 °C
Skolar
Þurrkun
Venjuleg óhrein-
indi
Borðbúnaður og hníf-
apör
Forþvottur
Þvottur 65 °C
Skolar
Þurrkun
1)
Nýtilkomin
óhreinindi
Borðbúnaður og hníf-
apör
Þvottur 65 °C
Skol
2)
Venjuleg óhrein-
indi
Borðbúnaður og hníf-
apör
Forþvottur
Þvottur 50 °C
Skolar
Þurrkun
Notið þetta kerfi fyrir snögga skolun. Það
hindrar að matarleifar festist við diskana
og slæm lykt komi úr heimilistækinu.
Ekki nota þvottaefni með þessu kerfi.
Skol
1) Með þessu kerfi er hægt að þvo hluti með nýtilkomnum óhreinindum. Það þvær vel á stuttum tíma.
2) Þetta er staðalkerfið sem prófunarstofnanir nota. Með þessu kerfi nýtist vatnið og orkan best fyrir borðbúnað og
hnífapör með venjulegum óhreinindum. Sjá prófunarupplýsingar í meðfylgjandi bæklingi.
Upplýsingar um orkunotkun
Kerfi Tímalengd þvottakerfis
(mínútur)
Orka (kWh) Vatn (lítrar)
85-95 1,8-2,0 22-25
100-110 1,4-1,6 19-21
30 0,9 9
progress 11
Kerfi Tímalengd þvottakerfis
(mínútur)
Orka (kWh) Vatn (lítrar)
130-140 1,0-1,2 14-16
12 0,1 5
Vatnsþrýstingur og -hitastig, munur á
aflgjafa og magn leirtaus getur breytt
þessum gildum.
MEÐFERÐ OG ÞRIF
Síur teknar úr og hreinsaðar
Óhreinar síur spilla þvottaárangri.
Í vélinni eru þrjár síur:
1. gróf sía (A)
2. fíngerð sía (B)
3. flöt sía (C)
A
B
C
A
B
C
1. Takið læsinguna af síunarbúnaðinum
með því að snúa handfangi fíngerðu sí-
unnar (B) um það bil 1/4 af hring rangs-
ælis.
2. Takið síunarbúnaðinn úr.
3. Grípið grófu síuna (A) með því að taka í
handfangið með gatinu.
4. Fjarlægið grófu síuna (A) út úr fíngerðu
síunni (B).
5. Fjarlægið flötu síuna (C) úr botni heimil-
istækisins.
D
6. Hreinsið síurnar undir rennandi vatni.
7. Setjið flata síuna (C) aftur í eins og hún
var. Passaðu að hún liggi rétt undir
höldunum tveimur (D).
8. Setjið grófu síuna (A) inn í fíngerðu síuna
(B) og þrýstið síunum saman.
9. Setjið síurnar á sinn stað.
10. Til að læsa síunarbúnaðinum snýrðu
handfanginu á fíngerðu síunni (B) rétts-
ælis þar til hún smellur í lás.
Hreinsun vatnsarma
Ekki fjarlægja vatnsarmana.
Ef óhreinindaagnir hafa stíflað götin á vatns-
örmunum skal fjarlægja óhreinindin með
kokteilpinna.
Hreinsun á ytra byrði
Þrífið ytra byrði uppþvottavélarinnar og
stjórnborðið með rökum, mjúkum klút Notið
aðeins mild þvottaefni. Ekki nota rispandi
efni, stálull eða leysiefni (t.d. aseton).
12 progress
HVAÐ SKAL GERA EF...
Heimilistækið fer ekki í gang eða það stöðv-
ast í miðjum klíðum.
Reyndu fyrst að finna lausn á vandanum (sjá
töflu). Ef engin lausn finnst skaltu hafa sam-
band við viðgerðarþjónustuna.
Þegar um sumar bilanir er að ræða
blikka gaumljósin til að sýna viðvörun-
arkóða.
Viðvörunarkóði Bilun
Byrja/hætta við-gaumljósið blikkar stöðugt.
Endaljósið blikkar einu sinni við og við.
Heimilistækið fyllist ekki af vatni.
Byrja/hætta við-gaumljósið blikkar stöðugt.
Endaljósið blikkar tvisvar sinnum öðru hvoru.
Uppþvottavélin tæmist ekki af vatni.
Byrja/hætta við-gaumljósið blikkar stöðugt.
Endaljósið blikkar þrisvar sinnum öðru hvoru.
Flæðivörnin er í gangi.
Ađvörun Slökkvið á heimilistækinu
áður en athuganirnar eru gerðar.
Bilun Hugsanleg ástæða Hugsanleg lausn
Heimilistækið fyllist ekki af vatni. Vatnskraninn er stíflaður eða
þakinn kalkskán.
Hreinsið vatnskranann.
Vatnsþrýstingur er of lágur. Hafið samband við vatnsveit-
una.
Það er skrúfað fyrir vatnskran-
ann.
Skrúfið frá vatnskrananum.
Sían á innslöngunni er stífluð. Hreinsið síuna.
Innslangan er ekki rétt tengd. Gætið þess að hún sé rétt
tengd.
Innslangan er skemmd. Gættu þess að engar skemmd-
ir séu á innslöngunni.
Uppþvottavélin tæmist ekki af
vatni.
Vaskstúturinn er stíflaður. Þrífið vaskstútinn.
Útslangan er ekki rétt tengd. Gætið þess að hún sé rétt
tengd.
Útslangan er skemmd. Gættu þess að engar skemmd-
ir séu á útslöngunni.
Flæðivörnin er í gangi. Skrúfið fyrir vatnskranann og
hafið samband við viðgerðar-
þjónustuna.
Þvottakerfið fer ekki í gang. Hurð heimilistækisins er opin. Lokið hurð heimilistækisins.
Þú ýttir ekki á byrja/hætta við
hnappinn.
Ýtið á byrja/hætta við-hnapp-
inn.
Rafmagnsklóin hefur ekki verið
rétt sett inn í rafmagnsinnstung-
una.
Setjið rafmagnsklóna í sam-
band.
Öryggið í öryggjaboxinu er
skemmt.
Skiptið um öryggi.
Stillt er á tímaval. Hættið við tímavalið.
Að niðurtalningu lokinni fer
þvottakerfið sjálfkrafa í gang.
progress 13
Eftir skoðun, snúðu kerfishnappinum á
sama þvottakerfi og hann var stilltur á áður
en bilun átti sér stað. Þvottakerfið heldur þá
áfram frá þeim punkti þar sem það var
stöðvað.
Ef bilunin kemur aftur fram skaltu hafa sam-
band við viðgerðarþjónstuna.
Ef mismunandi viðvörunarkóðar birtast skal-
tu hafa samband við viðgerðarþjónustuna.
Allar upplýsingar sem viðgerðarþjónustan
þarf á að halda eru á tegundarspjaldinu.
Taktu niður þessar upplýsingar:
–Gerð
(MOD.) ....................................................
....
Vörunúmer
(PNC) ..........................................
–Raðnúmer
(S.N.) ..............................................
Vélin þvær og þurrkar illa
Vandamál Hugsanleg ástæða Hugsanleg lausn
Leirtauið er ekki hreint. Ekki var valið rétt þvottakerfi
fyrir tegund og óhreinindastig
leirtaus.
Gættu þess að þvottakerfið
henti fyrir tegund og óhreininda-
stig leirtaus.
Ekki var rétt raðað í körfunar,
vatn komst ekki að öllum flöt-
um.
Raðaðu rétt í körfurnar.
Vatnsarmarnir snerust ekki
óhindrað vegna þess að leirtaui
var rangt raðað.
Gættu þess að raða leirtauinu
rétt í svo það hindri ekki hreyf-
ingar vatnsarmanna.
Síurnar eru óhreinar eða ekki
rétt samsettar og innsettar.
Gættu þess að síurnar séu
hreinar og rétt settar saman og
settar inn.
Of lítið eða ekkert þvottaefni var
notað.
Gættu þess að nota nógu mikið
þvottaefni.
Kalkagnir eru á leirtauinu. Salthólfið er tómt. Setjið uppþvottavélarsalt í salt-
hólfið.
Vatnsmýkingarbúnaðurinn er
rangt stilltur
Stillið vatnsmýkingarbúnaðinn.
Lokið á salthólfinu er ekki vel
lokað.
Gættu þess að lokinu á salthólf-
inu sé rétt lokað.
Rákir, mjólkurlitaðir blettir eða
bláleit filma er á glösum og
diskum.
Of mikið af gljáa var notað. Minnkið gljáaskammtinn.
Þurrir vatnsblettir á glösum og
leirtaui.
Of lítið af gljáa var notað. Aukið gljáaskammtinn.
Þvottaefninu getur verið um að
kenna.
Notaðu aðra gerð af þvottaefni.
Diskarnir eru blautir. Þú hefur stillt á þvottakerfi án
þurrrkunar eða með lítilli þurrk-
un.
Láttu dyrnar standa í hálfa gátt í
nokkrar mínútur áður en þú tek-
ur leirtauið úr.
Diskarnir eru blautir og mattir. Gljáahólfið er tómt. Settu gljáa í gljáahólfið.
TÆKNILEGAR UPPLÝSINGAR
Mál Breidd 596 mm
Hæð 818-898 mm
Dýpt 575 mm
14 progress
Vatnsþrýstingur Lágmark 0.5 bör (0.05 MPa)
Hámark 8 bör (0.8 MPa)
Vatnsaðföng
1)
Kalt eða heitt vatn hámark 60 °C
Rúmtak Matarstell 12
1) Tengdu innslönguna við krana með 3/4” skrúfgangi.
Upplýsingar um rafmagn er að finna á
tegundarspjaldinu innan á uppþvottav-
élarhurðinni.
Ef heita vatnið kemur frá öðrum orku-
gjöfum, (t.d. sólarrafhlöðu, sólarrafor-
kueiningu eða vindorku) skal nota hitav-
eitu til að minnka orkunotkunina.
UMHVERFISÁBENDINGAR
Táknið á vörunni eða á umbúðum
hennar táknar að vöruna megi ekki
meðhöndla sem heimilissorp. Þess í stað
ber að skila henni á viðeigandi
endurvinnslustöð sem tekur við
rafeindabúnaði og rafmagnstækjum. Með
því að tryggja að vörunni sé fargað á réttan
hátt stuðlar þú að því að koma í veg fyrir
neikvæð áhrif sem röng förgun vörunnar
gæti hugsanlega haft á umhverfi og heilsu.
Nánari upplýsingar um endurvinnslu
þessarar vöru er hægt að fá hjá yfirvöldum
hreinsunarmála í þínu sveitarfélagi eða í
versluninni þar sem varan var keypt.
Endurvinna þarf öll efni merkt tákninu
.
Settu umbúðirnar í viðeigandi tunnu/sorp-
hirðu til endurvinnslu.
progress 15
www.progress-hausgeraete.de
156956620-A-272011
  • Page 1 1
  • Page 2 2
  • Page 3 3
  • Page 4 4
  • Page 5 5
  • Page 6 6
  • Page 7 7
  • Page 8 8
  • Page 9 9
  • Page 10 10
  • Page 11 11
  • Page 12 12
  • Page 13 13
  • Page 14 14
  • Page 15 15
  • Page 16 16

Progress PI1535X Používateľská príručka

Kategória
Mixér / kuchynský robot príslušenstvo
Typ
Používateľská príručka

V iných jazykoch