Progress PIX1535X Používateľská príručka

Typ
Používateľská príručka
notendaleiðbeiningar
Uppþvottavél
PIX1535X
EFNISYFIRLIT
Öryggisleiðbeiningar 2
Vörulýsing 4
Stjórnborð 5
Þvottastillingar 5
Valkostir 6
Fyrir fyrstu notkun 7
Dagleg notkun 8
Góð ráð 10
Meðferð og þrif 11
Bilanaleit 12
Tæknilegar upplýsingar 13
Umhverfisábendingar 13
Með fyrirvara á breytingum.
ÖRYGGISLEIÐBEININGAR
Fyrir uppsetningu og notkun heimilistækis-
ins, skal lesa meðfylgjandi leiðbeiningar
vandlega. Framleiðandinn er ekki ábyrgur
fyrir tjóni ef röng uppsetning eða notkun
veldur líkamstjóni eða skemmdum. Alltaf
skal geyma leiðbeiningarnar með tækinu til
síðari notkunar.
Öryggi barna og viðkvæmra
einstaklinga
Ađvörun Hætta á köfnun, líkamstjóni
eða varanlegri örorku.
Látið ekki fólk, þar með talin börn, sem
hefur skerta líkamlega skynjun, skert and-
legt atgervi eða sem skortir reynslu og
þekkingu, nota heimilistækið. Þau verða
að hafa fengið kennslu eða tilsögn í not-
kun heimilistækisins hjá einstaklingi sem
er ábyrgur fyrir öryggi þeirra. Leyfið ekki
börnum að leika sér með tækið.
Haldið öllum umbúðum frá börnum.
Haldið öllum þvottaefnum frá börnum.
Haldið börnum og gæludýrum frá hurð-
inni á heimilistækinu þegar hún er opin
Uppsetning
Fjarlægið allar umbúðir.
Ekki setja upp skemmt heimilistæki eða
nota slíkt tæki.
Ekki koma heimilistækinu fyrir þar sem
hitastigið er lægra en 0 °C.
Fylgja skal leiðbeiningum um uppsetningu
sem fylgja með heimilistækinu.
Gætið þess að heimilistækinu sé komið
fyrir undir og við hliðina á traustum og
stöðugum hlutum.
Tenging við vatn
Passið að vatnsslöngurnar verði ekki fyrir
skemmdum.
Áður en heimilistækið er tengt við nýjar
pípur eða pípur sem hafa ekki verið not-
aðar í langan tíma, skal láta vatnið renna
þangað til það er hreint.
Í fyrsta skipti sem heimilistækið er notað,
skal tryggja að enginn leki eigi sér stað.
Vatnsinntaksslangan er með öryggisloka
og slíður með innri rafmagnssnúru.
Ađvörun Hættuleg rafspenna.
Ef innslangan eða öryggislokinn skemm-
ast skal strax aftengja klóna frá rafman-
gsinnstungunni. Hafðu samband við
þjónustu til að fá nýja innslöngu.
Tenging við rafmagn
Ađvörun Eldhætta og hætta á raflosti.
Heimilistækið þarf að vera jarðtengt.
Gætið þess að rafmagnsupplýsingarnar á
tegundarspjaldinu passi við aflgjafann. Ef
ekki, skal hafa samband við rafvirkja.
Alltaf nota rétt uppsetta innstungu sem
gefur ekki raflost.
Ekki nota fjöltengi eða framlengingarsnúr-
ur.
Gætið þess að rafmagnsklóin og snúran
verði ekki fyrir skemmdum. Hafið sam-
band við þjónustuna eða við rafvirkja til
að skipta um skemmda rafmagnssnúru.
Aðeins skal tengja rafmagnsklóna við raf-
magnsinnstunguna í lok uppsetningarinn-
ar. Gætið þess að rafmagnsklóin sé að-
gengileg eftir uppsetningu.
2 progress
Ekki toga í rafmagnssnúruna til að taka
heimilistækið úr sambandi. Togið alltaf í
rafmagnsklóna.
Notkun
Heimilistækið er ætlað til notkunar innan
heimilisins og við svipaðar aðstæður eins
og:
Í starfsmannaeldhúsum í verslun, á
skrifstofum og á öðrum vinnustöðum.
Bændabýlum
Af viðskiptavinum á hótelum, mótelum
og á öðrum gististöðum
Á gistihúsum (Bed and Breakfast).
Ađvörun Hætta á líkamstjóni.
Ekki breyta tæknilýsingu fyrir þetta heimil-
istæki.
Setjið hnífa og hnífapör með oddhvössum
brúnum í hnífaparakörfuna með oddinn
niður eða í lárétta stöðu.
Ekki hafa hurð heimilistækisins opna án
eftirlits, til að koma í veg fyrir að einhver
detti á hana.
Ekki sitja eða standa á hurðinni þegar
hún er opin.
Þvottaefni fyrir uppþvottavélar eru hættu-
leg. Farið eftir öryggisleiðbeiningunum á
umbúðum þvottaefnisins.
Ekki skal drekka, eða leika sér með vatnið
í heimilistækinu.
Ekki fjarlægja leirtauið úr heimilistækinu
fyrr en þvottakerfið klárast. Leifar af upp-
þvottaefni geta verið til staðar á diskun-
um.
Ađvörun Hætta á raflosti, eldsvoða
eða bruna.
Setjið ekki eldfim efni eða hluti sem eru
blautir með eldfimum efnum í á heimilis-
tækið eða nálægt því.
Ekki nota vatnsúða og gufu til að hreinsa
heimilistækið.
Heit gufa getur sloppið út úr heimilistæk-
inu ef hurðin er opnuð meðan þvottakerfi
er í gangi.
Þjónusta og viðgerðarþjónusta
Hafið samband við þjónustuna til að láta
gera við heimilistækið. Við mælum með því
að nota aðeins upprunalega varahluti.
Þegar þú hefur samband við þjónustuna,
skaltu vera með eftirfarandi upplýsingar sem
finna má á tegundarspjaldinu.
Gerð :
Vörunúmer (PNC) :
Raðnúmer :
Förgun
Ađvörun Hætta á líkamstjóni eða
köfnun.
Aftengja skal tækið frá rafmagnsgjafan-
um.
Klippið rafmagnssnúruna af og fargið
henni.
Fjarlægið dyraklemmuna til að koma í veg
fyrir að börn eða dýr geti lokast inni í tæk-
inu.
progress 3
VÖRULÝSING
1
3
4
7
5
6
11
8
9
10
2
1
Efri vatnsarmur
2
Neðri vatnsarmur
3
Síur
4
Tegundarspjald
5
Salthólf
6
Vatnsherslustilling
7
Gljáahólf
8
Þvottaefnishólf
9
Hnífaparakarfa
10
Neðri karfa
11
Efri karfa
4 progress
STJÓRNBORÐ
AUTO
45º-70º
RESET
70º 65º 50º 45º
ECO
A
B
C
DE
1
5
4
2
6
3
AUTO
45º-70º
RESET
70º 65º 50º 45º
ECO
1
Kveikt/slökkt-hnappurinn
2
Gaumljós
3
Skjár
4
Tímavalshnappur
5
Kerfishnappar
6
Valhnappar
Gaumljós Lýsing
Þvottagaumljós.
Endaljós.
Þvottaefnistöfluljós.
Saltgaumljós. Slökkt er á þessu gaumljósi á meðan þvottaferillinn er í gangi.
Gljáaljós. Slökkt er á þessu gaumljósi á meðan þvottaferillinn er í gangi.
ÞVOTTASTILLINGAR
Þvottaferill
1)
Óhreinindastig
Gerð þvottar
Þvottaferill
fasar
Lengd
(mín)
Orka
(kWh)
Vatn
(l)
AUTO
45º-70º
2)
Allt
Borðbúnaður,
áhöld, pottar og
pönnur
Forþvottur
Þvottur 45°C eða
70°C
Skolar
Þurrkun
90 - 160 0.9 - 1.7 8 - 17
progress 5
Þvottaferill
1)
Óhreinindastig
Gerð þvottar
Þvottaferill
fasar
Lengd
(mín)
Orka
(kWh)
Vatn
(l)
Mikil óhreinindi
Borðbúnaður,
áhöld, pottar og
pönnur
Forþvottur
Þvottur 70 °C
Skolar
Þurrkun
130 - 150 1.4 - 1.6 15 - 16
3)
Nýtilkomin
óhreinindi
Borðbúnaður og
hnífapör
Þvottur 65 °C
Skol
30 0.9 9
4)
Venjuleg óhrein-
indi
Borðbúnaður og
hnífapör
Forþvottur
Þvottur 50 °C
Skolar
Þurrkun
150 - 160 1.0 - 1.1 10 - 11
Venjulegt eða lágt
óhreinindastig
Viðkvæmur borð-
búnaður og gler-
hlutir
Þvottur 45 °C
Skolar
Þurrkun
70 - 80 0.8 - 0.9 12 - 13
1) Þrýstingur og hitastig vatnsins, breytileiki á rafmagnsinntaki, aukaval og magn borðbúnaðar getur breytt lengd
kerfisins og breytt orku og vatnsneyslugildum.
2) Heimilistækið skynjar magn óhreininda og magn hluta í körfunum. Það stillir sjálfkrafa hitastigið og vatnsmagnið,
orkuneysluna og tímalengd þvottaferilsins.
3) Með þessu kerfi er hægt að þvo hluti með nýtilkomnum óhreinindum. Það þvær vel á stuttum tíma.
4) Með þessu kerfi nýtist vatnið og orkan best fyrir borðbúnað og hnífapör með venjulegum óhreinindum. (Þetta er
staðalkerfið sem prófunarstofnanir nota).
Upplýsingar fyrir prófunarstofnanir
Til að fá allar nauðsynlegar upplýsingar um prófanir skal senda tölvupóst til:
Skrifaðu niður framleiðslunúmer tækisins (PNC) sem er á málmplötunni.
VALKOSTIR
Gera skal stillingu fyrir samsetta þvott-
aefnistöflu virka eða óvirka áður en
þvottaferill er settur af stað. Ekki er
hægt að virkja eða gera aukavalið óvirkt
á meðan þvottaferill er í gangi.
Þvottaefnistöflur
Þennan valkost skal einungis virkja, þegar
verið er að nota samsettar þvottaefnistöflur.
Þessi valkostur slekkur á rennsli gljáa og
salts. Slökkt er á viðkomandi gaumljósum.
Lengd kerfisins getur aukist.
1. Ýttu á hnappinn kveikja/slökkva til að
virkja heimilistækið. Gættu þess að
heimilistækið sé á núllstillingu.
Sjá ,,VELJA OG HEFJA ÞVOTTAFERIL".
2. Haltu niðri valhnöppum (D) og (E) sam-
tímis þar til kviknar á á gaumljósi fyrir
þvottaefnistöflu.
Stillt er á þennan valkost þangað til hann er
gerður óvirkur.
Haltu niðri valhnöppum (D) og (E) sam-
tímis þar til slökknar á gaumljósi fyrir
þvottaefnistöflu.
Ef þú hættir að nota samsettu
þvottaefnistöflurnar og áður en þú
byrjar að setja í sérstaklega þvottaefni,
gljáa og salt skaltu gera eftirfarandi:
1. Slökkva á stillingu fyrir samsetta þvott-
aefnistöflu.
2. Stilla vatnsmýkingarbúnaðinn á hæstu
stillingu.
3. Gæta þess að fylla á salthólfið og
gljáaskammtarann.
4. Byrja á stysta þvottakerfinu með skolun-
arfasa, án þvottaefnis og án leirtaus í
vélinni.
5. Stilla vatnsmýkingarbúnaðinn á herslu-
stig vatns á þínu svæði.
6. Stilla gljáaskammtinn sem losaður er.
6 progress
FYRIR FYRSTU NOTKUN
1. Athugaðu hvort stilling vatnsmýkingar-
búnaðarins passar við herslustig vatns-
ins þar sem þú býrð. Stilltu vatnsmýk-
ingarbúnaðinn ef með þarf. Hafðu sam-
band við vatnsveituna til að finna út
herslustig vatns þar sem þú býrð.
2. Fylltu saltílátið.
3. Settu gljáa í gljáahólfið.
4. Skrúfið frá vatnskrananum.
5. Leifar af hreinsiefni geta setið eftir í
heimilistækinu. Ræsa skal þvottakerfi til
að fjarlægja þær. Ekki nota þvottaefni og
ekki hlaða körfurnar.
Ef þú notar samsettu þvottaefnistöflurn-
ar, skaltu stilla á viðeigandi valkost.
Að stilla vatnsmýkingarbúnaðinn
Herslustig vatns
Vatnsmýkingarefni
stilling
Þýsk
gráður
(°dH)
Frönsk
gráður
(°fH)
mmól/l Clarke
gráður
Handvirkt Ra-
frænt
51 - 70 91 - 125 9.1 - 12.5 64 - 88
2
1)
10
43 - 50 76 - 90 7.6 - 9.0 53 - 63
2
1)
9
37 - 42 65 - 75 6.5 - 7.5 46 - 52
2
1)
8
29 - 36 51 - 64 5.1 - 6.4 36 - 45
2
1)
7
23 - 28 40 - 50 4.0 - 5.0 28 - 35
2
1)
6
19 - 22 33 - 39 3.3 - 3.9 23 - 27
2
1)
5
1)
15 - 18 26 - 32 2.6 - 3.2 18 - 22 1 4
11 - 14 19 - 25 1.9 - 2.5 13 - 17 1 3
4 - 10 7 - 18 0.7 - 1.8 5 - 12 1 2
< 4 < 7 < 0.7 < 5
1
2)
1
2)
1) Upphafleg stilling.
2) Ekki nota salt á þessari stillingu.
Stilla þarf vatnsmýkingarbúnaðinn
handvirkt og rafrænt.
Handvirk stilling
Snúið stilliskífu fyrir herslustig vatns á still-
ingu 1 eða 2.
Rafræn stilling
1. Ýtið á hnappinn kveikja/slökkva til að
virkja heimilistækið. Gætið þess að
heimilistækið sé á núllstillingu.
Sjá ,,VELJA OG HEFJA ÞVOTTAFERIL".
2. Haldið niðri valhnöppum (B) og (C) sam-
tímis þangað til gaumljós fyrir ofan valh-
nappa (A), (B) og (C) blikka.
3. Ýtið á valhnapp (A).
Það slokknar á gaumljósunum fyrir
ofan valhnappa (B) og (C).
Gaumljósið fyrir ofan valhnapp (A)
heldur áfram að blikka.
Skjárinn sýnir stillinguna á vatnsmýk-
ingarbúnaðinum, þ.e.
= 5. stig.
progress 7
4. Ýtið ítrekað á valhnapp (A) til að breyta
stillingunni.
5. Slökkvið á heimilistækinu til að staðfesta
stillinguna.
Salt sett í salthólfið
1. Snúið lokinu rangsælis til að opna salt-
hólfið.
2. Settu 1 lítra af vatni í salthólfið (einungis
í fyrsta skipti sem þú notar vélina).
3. Setjið uppþvottavélarsalt í salthólfið.
4. Fjarlægið salt í kringum op salthólfsins.
5. Snúið lokinu réttsælis til að loka salt-
hólfinu.
Varúđ Vatn og salt geta runnið út úr
salthólfinu þegar þú fyllir á það. Hætta
á tæringu. Til að hindra það, skaltu
setja þvottaferil af stað eftir að þú setur
salt í salthólfið.
Gljái settur í gljáahólfið
M
A
X
1
2
3
4
+
-
A
B
D
C
1. Ýtið á opnunarhnappinn (D) til að lyfta
lokinu (C).
2. Setjið gljáa í gljáahólfið (A), ekki hærra
en upp að merkinu 'max'.
3. Þurrkið upp gljáann sem hellist niður
með rakadrægum klút til að hindra að
of mikil froða myndist.
4. Setjið lokið aftur á. Gætið þess að op-
nunarhnappurinn læsist í rétta stöðu.
Til að stilla losað magn gljáa, skal snúa
valskífunni (B) á milli stöðu 1 (minnsta
magn) og stöðu 4 (mesta magn).
DAGLEG NOTKUN
1. Skrúfaðu frá vatnskrananum.
2. Ýttu á hnappinn kveikja/slökkva til að
virkja heimilistækið. Gættu þess að
heimilistækið sé á núllstillingu,
sjá ,,VELJA OG HEFJA ÞVOTTAFERIL".
Ef gaumljósið fyrir salt er kveikt skaltu
setja salt í salthólfið.
Ef gaumljósið fyrir gljáa er kveikt skal-
tu setja gljáa í gljáahólfið.
3. Raðaðu í körfurnar.
4. Bættu við þvottaefni.
5. Stillið á réttan þvottaferil eftir því hvað er
í vélinni og hversu óhreint það er.
8 progress
Notkun þvottaefnis
20
30
M
A
X
1
2
3
4
+
-
A
B
C
1. Ýtið á opnunarhnappinn (B) til að lyfta
lokinu (C).
2. Setjið þvottaefnið í þvottaefnishólf
(A) .
3. Ef þvottaferillinn felur í sér forþvott skal
setja dálítið af þvottaefni í innri hluta
hurðarinnar.
4. Ef notuð er þvottaefnistafla, setjið þá
töfluna í þvottaefnishólfið (A).
5. Setjið lokið aftur á. Gætið þess að op-
nunarhnappurinn læsist í rétta stöðu.
Velja og hefja þvottaferil
Núllstilling
Heimilistækið þarf að vera á núllstillingu til
að hægt sé að samþykkja sumar aðgerðir.
Heimilistækið er á núllstillingu, þegar öll
gaumljós þvottaferla eru kveikt eftir að
kveikt er á heimilistækinu og skjárinn sýnir 2
láréttar stöðustikur.
Ef stjórnborðið sýnir önnur skilyrði, haldið þá
niðri valhnöppum (B) og (C) samtímis þar til
heimilistækið er á núllstillingu.
Kerfi sett í gang án tímavals
1. Skrúfið frá vatnskrananum.
2. Hafið hurð heimilistækisins hálfopna á
meðan þvottaferill er valinn.
3. Ýtið á hnappinn kveikja/slökkva til að
virkja heimilistækið. Gætið þess að
heimilistækið sé á núllstillingu.
4. Ýtið á hnappinn fyrir þvottaferilinn sem
þú ætlar að stilla á.
Gaumljós viðkomandi þvottaferils
helst kveikt en gaumljós allra annarra
þvottaferla slokkna.
Tímalengd þvottaferilsins blikkar á
skjánum.
Þá kviknar þvottagaumljósið.
5. Lokið hurð heimilistækisins. Þvottaferill-
inn fer þá af stað.
Skjárinn sýnir lengd þvottaferilsins,
sem styttist í 1 mínútu skrefum.
Þvottagaumljósið og gaumljós þvotta-
ferilsins haldast kveikt.
Þvottaferill settur í gang með tímavali
1. Stillið á þvottaferil.
2. Ýttu á tímavalshnappinn aftur og aftur
þangað til skjárinn sýnir þann frestunar-
tíma sem þú vilt stilla inn (frá 1 upp í 24
klst.).
Frestunartími þvottaferilsins blikkar á
skjánum.
3. Lokið hurð heimilistækisins. Niðurtalning
fer af stað.
Skjárinn sýnir niðurtalningu tímaval-
sins, sem styttist í 1 klukkustundar
skrefum.
Það slökknar á þvottagaumljósinu.
Að niðurtalningu lokinni fer þvottaferillinn
sjálfkrafa í gang.
Þá kviknar þvottagaumljósið.
Skjárinn sýnir hvað þvottaferillinn tekur
langan tíma.
Hægt er að stilla þvottaferilinn og tíma-
valið þó að hurð heimilistækisins sé lok-
uð. Í því ástandi hefurðu aðeins 3 sek-
úndur eftir hverja stillingu áður en heim-
ilistækið fer í gang.
Hurðin opnuð á meðan heimilistækið er
í gangi
Ef hurðin er opnuð stöðvast heimilistækið.
Þegar hurðinni er lokað heldur heimilistækið
áfram frá þeim tímapunkti þar sem truflunin
varð.
Hætt við tímaval á meðan niðurtalning
er í gangi
Haldið niðri valhnöppum (B) og (C) samtímis
þar til kviknar á gaumljósum allra þvottaferl-
anna og skjárinn sýnir 2 láréttar stöðustikur.
Þegar þú afturkallar tímavalið fer heimil-
istækið aftur í stillingarham. Þá þarftu
að velja þvottaferilinn aftur.
progress 9
Þvottaferill afturkallaður
Haldið niðri valhnöppum (B) og (C) samtímis
þar til kviknar á gaumljósum allra þvottaferl-
anna og skjárinn sýnir 2 láréttar stöðustikur.
Passið að það sé þvottaefni í þvott-
aefnishólfinu áður en nýr þvottaferill er
settur í gang.
Við lok þvottaferils
Þegar þvottaferli er lokið sýnir skjárinn 0.
Endaljósið kviknar og þvottagaumljósið
slokknar.
1. Ýtið á hnappinn kveikja/slökkva til að
slökkva á heimilistækinu.
2. Skrúfið fyrir kranann.
Ef þú ýtir ekki á kveikja/slökkva hnapp-
inn, Auto Off er tækið sjálfkrafa gert
óvirkt eftir nokkrar mínútur. Þetta hjálp-
ar til við að minnka orkuneyslu.
Látið leirtauið kólna áður en það er
tekið úr heimilistækinu. Heitt leirtau er
brothætt.
Tæmið neðri körfuna fyrst og svo þá
efri.
Vatn getur hafa safnast í hliðar og á
hurð heimilistækisins. Ryðfrítt stál
kólnar fyrr en leirtau.
GÓÐ RÁÐ
Vatnsmýkingarefni
Hart vatn inniheldur mikið magn steinefna
sem getur valdið tjóni á tækinu og leitt til
slæmrar virkni tækisins. Vatnsmýkingarefnið
gerir þessi steinefni óvirk.
Saltið í uppþvottavélinni hjálpar við að halda
vatnsmýkingarefninu hreinu og í góðu ást-
andi. Það er mikilvægt að stilla rétt magn
vatnsmýkingarefnis. Þetta tryggir að vatns-
mýkingarefnið noti rétt magn af salti og
vatni.
Að raða í körfurnar.
Sjá meðfylgjandi bækling sem sýnir
dæmi um hvernig skal raða í körfur.
Notaðu uppþvottavélina einungis til að
þvo hluti sem þvo má í slíkri vél.
Ekki skal setja í vélinu hluti sem eru gerðir
úr tré, honri, áli, pjátri og kopar.
Ekki setja hluti í tækið sem geta tekið í sig
vatn (svampa, viskustykki).
Fjarlægja skal matarleifar af hlutunum.
Til þess að fjarlægja brunnar matarleifar,
skal skola potta og pönnur í vatni áður en
þú setur þau í heimilistækið.
Raðið hlutum sem eru holir að innan (þ.e..
bollum, glösum og pottum) í vélina þann-
ig að opið vísi niður.
Passaðu að hnífapör og leirtau festist ekki
saman. Setið skeiðar með öðrum hnífap-
örum.
Passið að glös snerti ekki önnur glös.
Leggið smáa hluti í hnífaparakörfuna.
Setjið létta hluti í efri körfuna. Passið að
hlutirnir hreyfist ekki til.
Gætið þess að vatnsarmarnir geti hreyfst
óhindrað áður en kerfi er sett í gang.
Notkun salts, gljáa og þvottaefnis
Einungis skal nota salt, gljáa og þvotta-
efni sem er ætlað fyrir uppþvottavélar.
Önnur efni geta valdið skemmdum á
heimilistækinu.
Gljáinn aðstoðar á meðan á síðasta skol-
unarfasa stendur, við að þurrka diskana
án bletta eða ráka.
Samsettar þvottaefnistöflur innihalda
þvottaefni, gljáa og önnur viðbætt efni.
Gættu þess að töflurnar eigi við um það
hörkustig vatns sem er á þínu svæði. Sjá
leiðbeiningar á umbúðum efnanna.
Þvottaefnistöflur leysast ekki að fullu upp
ef þvottakerfið er mjög stutt. Til að koma í
veg fyrir leifar þvottaefnis á leirtaui, mæl-
um við með því að töflurnar séu einungis
notaður með lengri þvottakerfum.
Ekki skal nota meira en rétt magn af
þvottaefni. Farið eftir leiðbeiningunum á
umbúðum þvottaefnisins.
Áður en kerfi er sett af stað
Gættu þess að:
Síurnar eru hreinar og rétt uppsettar.
Vatnsarmarnir eru ekki stíflaðir.
Staða hluta í körfunum sé rétt.
Kerfið eigi við um þá tegund hleðslu og
þau óhreinindi sem í hlut eiga.
Verið sé að nota rétt magn þvottaefnis.
Það sé salt og gljái til staðar (nema þú
notir samsettar þvottaefnistöflur).
Lokið á salthólfinu þarf að vera þétt.
10 progress
MEÐFERÐ OG ÞRIF
Ađvörun Áður en viðhald fer fram á
tækinu skal slökkva á því og aftengja
aðalklóna frá rafmagnsinnstungunni.
Óhreinar síur og stíflaðir vatnsarmar
draga úr árangri þvottakerfisins.
Athugaðu þær regluglega og hreinsaðu
ef þörf krefur.
Hreinsun á síum
A
B
C
C
1. Snúið síunni (A) rangsælis og takið
hana út.
A1
A2
2. Sían (A) er tekin í sundur með því að
toga (A1) og (A2) í sundur.
3. Takið síuna (B) úr.
4. Þvoið síurnar með vatni.
5. Setjið síuna (B) aftur í eins og hún var.
Passið að hún liggi rétt undir höldunum
tveimur (C).
6. Setjið síuna (A) saman og komið henni
fyrir á sínum stað í síu (B). Snúið henni
réttsælis þar til hún læsist.
Röng staðsetning sía getur leitt til lé-
legrar frammistöðu við þvotta og valdið
tjóni á heimilistækinu.
Hreinsun vatnsarma
Ekki fjarlægja vatnsarmana.
Ef óhreinindaagnir hafa stíflað götin á vatns-
örmunum skal fjarlægja óhreinindin með
þunnum oddhvössum hlut.
Þrif að utan
Þvoðu tækið með rökum og mjúkum klút.
Notið aðeins mild þvottaefni. Ekki nota risp-
andi efni, stálull eða leysiefni.
progress 11
BILANALEIT
Heimilistækið fer ekki í gang eða stöðvast
skyndilega.
Áður en þú hefur samband við þjónustu,
athugaðu upplýsingarnar sem fylgja til að
finna lausn á vandanum.
Þegar sum vandræði koma upp, birtist
viðvörunarkóði á skjánum:
- Heimilistækið fyllist ekki af vatni.
- Heimilistækið tæmist ekki af vatni.
- Flæðivörnin er á.
Ađvörun Slökkvið á heimilistækinu
áður en athuganirnar eru gerðar.
Vandamál Hugsanleg lausn
Heimilistækið fer ekki í gang. Gættu þess að rafmagnsklóin sé í rafmagnsinnstung-
unni.
Gangið úr skugga um að það sé ekki bilað öryggi í
öryggjaboxinu.
Kerfið fer ekki í gang. Gætið þess að hurð heimilistækisins sé lokuð.
Ef stillt er á tímaval, aflýstu þá stillingunni eða bíddu eftir
að niðurtalningu ljúki.
Heimilistækið fyllist ekki af vatni. Gættu þess að skrúfað sé frá vatnskrananum.
Gættu þess að vatnsþrýstingurinn sé ekki of lágur. Til að
fá upplýsingar um það skaltu hafa samband við vatns-
veituna.
Gættu þess að vatnskraninn sé ekki stíflaður.
Gættu þess að sían í innslöngunni sé ekki stífluð.
Gættu þess að engar beyglur eða sveigjur séu á inn-
slöngunni.
Uppþvottavélin tæmist ekki af vatni. Gættu þess að vatnslásinn sé ekki stíflaður.
Gættu þess að engar beyglur eða sveigjur séu á út-
slöngunni.
Flæðivörnin er á. Skrúfið fyrir vatnskranann og hafið samband við þjónust-
una.
Eftir að hafa athugað þetta er heimilistækið
sett af stað. Þvottaferillinn heldur þá áfram
frá þeim punkti þar sem hann var stöðvað-
ur.
Ef vandamálið kemur aftur upp skaltu hafa
samband við þjónustuna.
Ef aðrir aðvörunarkóðar sjást á skjánum
skaltu hafa samband við þjónustuna.
Ef vélin þvær og þurrkar illa
Hvítar rákir og bláleit lög eru á glösum
og diskum
Losað magn af gljáa er of mikið. Stilla
skal gljáadreifarann og setja hann á lægri
stillingu.
Magn þvottaefnis er of mikið.
Blettir og þurrir vatnsdropar á glösum
og diskum
Losað magn af gljáa er ekki nægilega
mikið. Stilla skal gljáadreifarann og setja
hann á hærri stillingu.
Gæðum þvottaefnisins getur verið um að
kenna.
Diskar eru blautir
Kerfið er án þurrkfasa eða er með þurrk-
fasa sem keyrir við lágt hitastig.
Gljáahólfið er tómt.
Gæðum gljáans getur verið um að kenna.
Gæðum samsetta þvottaefnisins getur
verið um að kenna. Prófaðu annað vör-
umerki eða virkjaðu gljáann og notaðu
gljáa ásamt samsettu þvottaefnistöflun-
um.
Sjá "RÁÐLEGGINGAR" til að sjá aðrar
mögulegar orsakir.
12 progress
Gljáaskammtarinn gerður virkur þegar
stillt er á samsetta þvottaefnistöflu
1. Ýtið á hnappinn kveikja/slökkva til að
virkja heimilistækið. Gætið þess að
heimilistækið sé á núllstillingu.
Sjá ,,VELJA OG HEFJA ÞVOTTAFERIL".
2. Haldið niðri valhnöppum (B) og (C) sam-
tímis þangað til gaumljós fyrir ofan valh-
nappa (A), (B) og (C) blikka.
3. Ýttu á valhnapp (B).
Það slokknar á gaumljósunum fyrir
ofan valhnappa (A) og (C).
Gaumljósið fyrir ofan valhnapp (B)
heldur áfram að blikka.
Skjárinn sýnir stillinguna á gljáask-
ammtaranum.
Slökkt
Kveikt
4. Ýtið á valhnappinn (B) til að breyta still-
ingunni.
5. Slökkvið á heimilistækinu til að staðfesta
stillinguna.
6. Stillið losað magn gljáa.
7. Setjið gljáa í gljáahólfið.
TÆKNILEGAR UPPLÝSINGAR
Mál Breidd / Hæð / Dýpt (mm) 596 / 818 - 898 / 575
Rafmagnstenging Sjá málmplötuna.
Spenna 220-240 V
Tíðni 50 Hz
Vatnsþrýstingur Lágm. / hámark (bar /MPa) (0.5 / 0.05 ) / (8 / 0.8 )
Vatnsaðföng
1)
Kalt eða heitt vatn
2)
hám. 60 °C
Afkastageta Matarstell 12
Orkunotkun Biðhamur 0.10 W
Slökkt á tækinu 0.10 W
1) Tengið innslönguna við krana með 3/4” skrúfgangi.
2) Ef heita vatnið kemur frá öðrum orkugjöfum, (t.d. sólarrafhðu, sólarraforkueiningu eða vindorku) skal nota hitaveitu
til að minnka orkunotkunina.
UMHVERFISÁBENDINGAR
Táknið á vörunni eða á umbúðum hennar
táknar að vöruna megi ekki meðhöndla sem
heimilissorp. Þess í stað ber að skila henni á
viðeigandi endurvinnslustöð sem tekur við
rafeindabúnaði og rafmagnstækjum. Með
því að tryggja að vörunni sé fargað á réttan
hátt stuðlar þú að því að koma í veg fyrir
neikvæð áhrif sem röng förgun vörunnar
gæti hugsanlega haft á umhverfi og heilsu.
Nánari upplýsingar um endurvinnslu
þessarar vöru er hægt að fá hjá yfirvöldum
hreinsunarmála í þínu sveitarfélagi eða í
versluninni þar sem varan var keypt.
Farga skal umbúðum á réttan hátt. End-
urvinna skal umbúðir með endur-
vinnslumerkinu
.
progress 13
14 progress
progress 15
www.progress-hausgeraete.de
117916290-B-202012
  • Page 1 1
  • Page 2 2
  • Page 3 3
  • Page 4 4
  • Page 5 5
  • Page 6 6
  • Page 7 7
  • Page 8 8
  • Page 9 9
  • Page 10 10
  • Page 11 11
  • Page 12 12
  • Page 13 13
  • Page 14 14
  • Page 15 15
  • Page 16 16

Progress PIX1535X Používateľská príručka

Typ
Používateľská príručka

V iných jazykoch