ÍSLENSKA
Förgun raf- og rafeindabúnaðar á heimilum. Förgun á notuðum raf- og
rafeindabúnaði (gildir í Evrópusambandinu og öðrum Evrópulöndum með
aðskildum söfnunarkerfum)
Þetta tákn merkir að þessari vöru megi ekki farga með heimilissorpi.
Þess í stað skal skila henni til endurvinnslu á raf- og rafeindabúnaði.
Ef nýjar vörur eru keyptar, ætti að afhenda dreingaraðilanum vöruna eða skila
henni í söfnunarker fyrir raf- og rafeindabúnað.
Með því að tryggja að vörunni sé rétt fargað, kemur þú í veg fyrir hugsanlegar neikvæðar
aeiðingar fyrir umhver og heilsu manna, sem annars kunna að hljótast af rangri förgun
vörunnar eða íhlutum hennar.
Ef vörunni er fargað ólöglega, kann það að valda viðurlögum. Til að fá nánari upplýsingar um
endurvinnslu vörunnar, skaltu hafa samband við yrvöld á þínum stað,
sorpförgunarþjónustuna eða verslunina þar sem þú keyptir vöruna.
Þakka þér fyrir að kaupa Tamron linsuna sem nýjustu viðbótina við ljósmyndabúnaðinn þinn. Áður
en þú notar nýju linsuna þína, skaltu lesa innihald þessarar handbókar vandlega til að kynnast
linsunni og réttu tækninni við að taka eins góðar myndir og mögulegt er. Með réttri meðhöndlun og
umhirðu mun Tamron linsan gera þér kleift að taka fallegar og spennandi myndir í mörg ár.
Útskýrir varúðarráðstafanir sem hjálpa til við að koma í veg fyrir vandamál.
Útskýrir það sem þú þarft að vita til viðbótar við helstu aðgerðir.
HEITI ÍHLUTA (Sjá mynd , ef ekki tilgreint)
Linsuhlíf Samstillingarmerki fyrir áfestingu hlífar
Læsingarmerki fyrir hlíf Síuhringur
Losunarmerki fyrir hlíf Aðdráttarhringur
Brennivíddarkvarði Brennivíddarmerki
Fókushringur Fjarlægðarkvarði
Fjarlægðarmerki Merki fyrir linsufestingu
VC (titringsjöfnunar) ro AF/MF ro
Tengi á milli linsu og myndavélar
HELSTU FORSKRIFTIR
A030
Brennivídd 70-300 mm
Hámarks ljósop F/4-5,6
Sjónarhorn 34
˚
21
'
- 8
˚
15
'
Linsuuppbygging 12/17
Lágmarks fókusfjarlægð 1,5 m (59,1
"
)
Hámark stækkunarhlutfall 1:4
Síustærð
ø
62 mm
Lengd 142,7 mm (5,6")*
Þvermál
ø
82,2 mm (3,2")
Þyngd 765 g (27,0 oz)
*
Linsuhlíf HA005
*
Gildin eru forskriftir fyrir Nikon vörur.
Lengd: Fjarlægð frá framhlið linsu framan að yrborði festingar.
Eiginleikar og útlit linsa sem skráð eru í eigendahandbókinni geta breyst án fyrirvara.
LINSAN FEST VIÐ OG FJARLÆGÐ
Fjarlægðu aftari hettuna af linsunni. Samstilltu áfestingarmerki linsunnar og festingarmerki
myndavélarinnar, settu linsuna síðan í.
Snúðu linsunni rangsælis fyrir Nikon tegundir eða réttsælis fyrir Canon tegundir þangað til að hún
læsist.
Til að fjarlægja linsuna skaltu snúa linsunni í gagnstæða átt meðan þú ýtir á sleppihnapp linsunnar
á myndavélinni.
Slökktu á myndavélinni áður linsan er sett í eða fjarlægð.
Ef um er að ræða Canon myndavélar á að samstilla með EF linsumerkinu (rauðum hring).
Lestu leiðbeiningahandbók myndavélarinnar til að fá frekari upplýsingar.
SKIPT YFIR Í FÓKUSHAM (Sjá myndir - )
Til að taka myndir með sjálfvirkum fókus (AF) skaltu stilla AF/MF rofann á „AF“.
Til að taka myndir með handvirkum fókus (MF) skaltu stilla AF/MF rofann
á „MF“, notaðu síðan
höndina til að snúa fókushringnum og setja myndina í fókus.
Fjarlægðarkvarðinn er genn upp til leiðbeiningar. Hann getur verið frábrugðinn raunverulegri
fókusstaðsetningu.
Ertt getur verið að fá sjálfvirkan fókus til að virka í AF stillingunni en það fer eftir viðfangsefninu.
Með handvirka „full-time“ búnaðinum, þegar fókusinn er stilltur með AF, má skipta yr í MF með því að
snúa fókushringnum á meðan AF/MF ronn er stilltur á AF. AF má virkja á ný með því að sleppa ngrinum
af ljósopslokanum og ýta ljósopslokanum síðan hálfa leið niður.
Til að tryggja fókus við mismunandi aðstæður, snýst fókushringurinn framhjá óendanleika (
∞
) stöðunni.
Því skaltu alltaf skoða fókusinn í myndglugganum þegar myndað er með handvirkum fókus, jafnvel þegar
fókusinn er samstilltur við óendanleikamerkið.
Lestu leiðbeiningahandbók myndavélarinnar til að fá frekari upplýsingar.
VC BÚNAÐUR (Sjá myndir , )
VC (titringsjöfnunar) búnaðurinn dregur úr óskýrleika mynda af völdum fríhendismyndatöku.
Hvernig nota á VC
Þegar þú notar VC skaltu stilla VC rofann á KVEIKT.
Ýttu ljósopslokanum hálfa leið niður og staðfestu að myndin í glugganum sé stöðug áður en
myndin er tekin.
VC er virkur við eftirfarandi aðstæður
Illa upplýstir staðir
Staðir þar ljósmyndun með assi er bönnuð
Staðir þar sem fótfesta er óstöðug
Ekki er víst að VC virki nægilega vel við eftirfarandi skilyrði
Þegar mynd er tekin úr ökutæki sem hristist mikið
Myndataka meðan á meðan myndavélin hreyst mikið
Myndataka með notkun þrífótar
Stilltu VC rofann á SLÖKKVA þegar þú tekur myndir með peruljósmyndun (bulb photography)
(langvarandi útsetning). Annars gæti VC valdið bilun.
Myndin í myndglugganum gæti orðið óskýr fyrst eftir ljósopslokanum er ýtt hálfa leið niður. Þetta
er vegna efnisþátta VC og ekki vegna bilunar.
Þegar VC ronn er stillt á KVEIKJA er hægt að taka færri myndir vegna orkunnar sem það notar frá
myndavélinni.
Stilltu VC rofann á SLÖKKVA meðan á myndatöku stendur þegar myndavélinni er haldið með
einverju öðru en hendinni (t.d. þrífæti).
Ekki fjarlægja linsuna úr myndavélinni á meðan VC er á. Ef linsan er fjarlægð á meðan VC er á,
getur heyrst smellur í linsunni ef hún er hrist. Þetta er ekki bilun. Ef linsan er fest á myndavélina
og kveikt er á myndavélinni, hættir hljóðið.
Í Nikon myndavélum með innbyggðu assi er slökkt á VC meðan á hleðslu innbyggða assins
stendur.
AÐDRÁTTUR (Sjá myndir , )
Snúðu aðdráttarhring linsunnar til að stilla brennivíddina sem hentar myndinni meðan þú horr
í gegnum myndagluggann, taktu síðan myndina.
LINSUHLÍF (Sjá myndir , - )
Linsuhlíf af bayonet-gerð fylgir sem staðalbúnaður.
Við mælum með því að hlín sé höfð á við myndatöku til að draga úr ökkuljósi sem getur haft
áhrif á myndina.
Notkun linsuhlífarinnar (Sjá myndir , )
Samstilltu áfestingarmerki hlífarinnar á hlínni við losunarmerki linsuhlífarinnar á
linsunni.
Snúðu hettunni í þá átt sem örin vísar þar til læsingarmerki hlífarinnar
fellur að losunarmerki
hlífarinnar
.
Skorðun linsuhlífarinnar (Sjá mynd )
Þú getur skorðað linsuhlína með því að festa hana öfugt á.
Samstilltu læsingarmerki hlífarinnar
á hlínni við losunarmerki linsuhlífarinnar á linsunni.
Snúðu hettunni í þá átt sem örin vísar þar til áfestingarmerki hlífarinnar
fellur að
losunarmerki hlífarinnar
.
Athugaðu að jaðar ljósmyndarinnar getur dökknað ef hlín er ekki fest á réttan hátt.
VARÚÐARRÁÐSTAFANIR VIÐ MYNDATÖKUR
Gættu þess að framkvæma aðdráttaraðgerð áður en þú fókusar. Hún getur verið úr fókus ef þú
framkvæmir aðdráttaraðgerð eftir að þú fókusar.
Innra fókusker (IF) er notað til að ná lágmarks fókusfjarlægð. Af þessum sökum er
myndatökusviðið víðara en við á um linsur sem nota önnur fókusker, þegar teknar eru myndir í
fjarlægð sem er styttri en óendanleg.
Fjarlægðu alltaf hettuna þegar þú notar innbyggða assið á myndavélinni við assljósmyndun.
Annars getur hettan eða linsan myrkvað jaðar myndarinnar. Við nærljósmyndun blokkar linsan
sjálf assið og dökkur hálfhringur getur birst neðst á skjánum, jafnvel þegar linsuhetta er ekki
notuð. Við mælum með því að þú notar utanaðkomandi asseiningu frá
myndavélaframleiðandanum fyrir assljósmyndun.
Mismunur á skjákerfum myndavéla getur valdið því að mismunandi gildi komi fram sem eru ólík
hámarks og lágmarks ljósopsgildunum í forskriftinni. Þetta er ekki vísbending um villu.
Notkun með myndavélum með spegillausri, víxlanlegri linsu er ekki tryggð.
TIL AÐ TRYGGJA LANGTÍMA ÁNÆGJU
Fjarlægðu ryk og óhreinindi af linsunni með því að nota blásara eða mjúkan bursta. Ekki snerta
linsuna með ngrunum.
Þegar ngraför eða olía hafa fest á linsunni, skaltu strjúka létt af henni með linsuhreinsipappír,
bleyttu síðan vel þveginn bómullarklút eða örtrefjaklút (hreinsiklút fyrir gleraugu o.s.frv.) í
linsuhreinsi og þurrkaðu létt yr yrborð linsunnar frá miðju. Ekki nota sílíkonklút.
Hreinsaðu linsubolinn með því að nota sílíkonklút. Notaðu aldrei bensen, þynni eða önnur lífræn
leysiefni.
Fremri hlutinn hefur verið húðaður til að hindra vatn og olíukennd efni frá því að festast við. Þessi
húðun hrindir frá sér vökvum á borð við linsuhreinsiefni. Við mælum með að þrífa linsuna með
því að strjúka yr hana í lokin með þurrum klút.
Mygla er meiriháttar vandamál hvað varðar linsur. Geymdu linsuna á hreinum, köldum og þurrum
stað. Þegar þú geymir linsuna í linsuhulstri, skaltu geyma hana með þurrkefni og skipta af og til
um þurrkefni.
Ekki snerta tengin á milli linsunnar og myndavélarinnar. Ef ryk eða blettir valda vandamálum
hvað varðar tengingar, eru merkin ekki send á réttan hátt milli linsu og myndavélar og bilanir
geta komið fram.
Ef hitastig breytist skyndilega, getur raki myndast í myndavélinni og linsunni og valdið bilunum.
Til að koma í veg fyrir þetta, skaltu setja búnaðinn í plastpoka eða svipað ílát. Eftir að búnaðurinn
hefur aðlagast umhvershitanum, skaltu fjarlægja hann úr pokanum og nota hann eins og
venjulega.