Aeg-Electrolux LTH54810 Používateľská príručka

Typ
Používateľská príručka

Tento návod je vhodný aj pre

LAVATHERM 54810
Barkalaus þurrkari
Notendaleiðbeiningar
2
Kæru viðskiptavinir,
vinsamlega lesið notendaleiðbeiningarnar vel, og geymið þær til að
geta flett upp í þeim síðar.
Ef þvottavélin skiptir um eigendur , látið þá leiðbeiningarnar fylgja.
Eftirtalin tákn eru notuð í textanum:
1 Öryggi
Aðvörun! Leiðbeiningar, sem stuðla að bættu öryggi notenda.
Athugið! Leiðbeiningar, sem koma í veg fyrir að vélin skemmist.
3 Leiðbeiningar og hagnýt ráð
2 Umhverfisupplýsingar
3
Efnisyfirlit
Notkunarleiðbeiningar. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 5
Öryggi. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 5
Förgun . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 6
Umhverfisráð. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 7
Lýsing . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 8
Stjórnborð . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 8
Fyrir fyrstu þurrkun. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 9
Flokkun og undirbúningur þvottar. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 9
Kerfistafla . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 10
Þurrkun . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 12
Kveikt á tæki/Kveikt á ljósi . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 12
Hleðsludyr opnaðar/Þvottur settur inn . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 12
Þurrkkerfi valið . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 12
Veljið verndarkerfi . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 12
MJÖG VIÐKVÆMT. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 12
Kerfi sett af stað . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 13
Skipt um kerfi. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 13
Þvotti bætt við eða hann tekinn út áður en kerfi lýkur . . . . . . . . . . . . . . . . 13
Þurrkkerfi lýkur/Þvottur tekinn út. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 13
Hreinsun og viðhald. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 14
Hreinsun á lósigti. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 14
Hreinsun á þéttilista . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 15
Tæming á vatnsgeymi . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 16
Hreinsun á varmaskipti . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 17
Hreinsun tromlu. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 18
Hreinsun stjórnborðs og ytra byrðis. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 18
Hvað skal gera, þegar.... . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 18
Lagið sjálf minniháttar truflanir. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 18
Tæknilegar upplýsingar. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 20
Notkunargildi . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 20
4
Leiðbeiningar um uppsetningu og tengingu. . . . . . . . . . . . . 21
Öryggisleiðbeiningar vegna uppsetningar. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 21
Flutningsfestingar fjarlægðar . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 22
Tenging við rafmagn . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 22
Að breyta hurðaropnun . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 22
Aukabúnaður . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 24
Ábyrgðarskilmálar. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 25
Þjónustumiðstöðvar viðskiptavina. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 26
Þjónusta. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 27
5
Notkunarleiðbeiningar
1 Öryggi
Áður en tækið er tekið í notkun
Lesið kaflann “Leiðbeiningar um uppsetningu og tengingu”
Áður en tækið er tekið í notkun skal athuga hvort það hafi skemmst í
flutningi. Tæki sem hefur orðið fyrir skemmdum má alls ekki tengja.
Ef skemmdir hafa orðið, ber að hafa samband við seljandann.
Rétt notkun
Þurrkarinn er aðeins ætlaður til notkunar á heimilum og til að þurrka
venjulegan fatnað.
Ekki er leyfilegt að breyta þurrkaranum eða endurbyggja hann.
Ekki mega vera nein eldfim leysiefni (bensín, alkóhól, blettahreinsiefni
o.s.frv.) í þvottinum. Hætta á bruna eða sprengingu! Ef þvottur hefur
komist í samband við slík efni þarf að þvo hann vandlega í höndunum
áður en hann er þurrkaður.
Þegar notuð eru þurrhreinsisett: Notið aðeins vörur, sem framleiðandi
hefur merkt að megi nota í þurrkara.
Ekki setja nein þvottaplögg í þurrkarann, sem innihalda frauðgúmmí
eða gúmmikennd efni. Hætta á bruna!
Setjið ekki mikið slitinn þvott í þurrkarann. Hætta á bruna!
Setjið ekki stykki með lausri fyllingu í þurrkarann (t.d. púða). Hætta á
bruna!
Stykki með stífum hlutum (t.d. mottur) geta stíflað loftrásirnar.
Hætta á bruna! Ekki setja slíka hluti í þurrkarann.
Ekki yfirfylla þurrkarann. Hætta á bruna! Hleðsla má ekki fara yfir
6kg.
Verið viss um að engir hlutir sem geta sprungið (t.d. eldfæri,
úðabrúsar o.s.frv.) hafi komist með þvottinum í þurrkarann. Hætta á
bruna eða sprengingu!
Hreinsið örsíu og fínsigti eftir hverja þurrkun.
Ekki nota tækið ef lósigtin vantar eða þau eru skemmd. Hætta á
bruna!
Hreinsið varmaskiptinn reglulega.
Þegar turnuppsetning er notuð: Ekki leggja neina hluti ofan á
þurrkarann. Þeir gætu dottið af á meðan á þurrkun stendur.
6
Öryggi barna
Geymið umbúðir þar sem börn ná ekki til. Hætta á köfnun!
Börn átta sig oft ekki á þeim hættum sem fylgja meðhöndlun
rafmagnstækja. Leyfið börnum ekki að vera ein nálægt þurrkaranum.
Verið ávallt viss um að börn eða lítil dýr klifri ekki inn í tromlu
þurrkarans. Lífshætta! Látið hurð þurrkarans vera lokaða, þegar hann
er ekki í notkun.
Almennt öryggi
Aðeins faglærðir viðgerðarmenn mega gera við þurrkarann.
Takið þurrkarann aldrei í notkun ef rafmagnssnúran er skemmd eða ef
skjár eða ytra byrði þurrkarans eru svo skemmd að opið sé inn í tækið.
Slökkvið á þurrkaranum áður en hann er hreinsaður eða viðhaldi
sinnt. Takið einnig rafmagnsklóna úr sambandi eða – ef vélin er
fasttengd – slökkvið á LS-rofa í rafmagnstöflu eða skrúfið skrúföryggi
alveg úr.
Ef ekki á að nota þurkarann um langan tíma bera að taka hann úr
sambandi við rafmagn.
Takið rafmagnstengil aldrei úr sambandi með því að toga í snúruna,
heldur takið um tengilinn sjálfan.
Notið ekki fjölliða klær, millistykki eða framlengingarsnúrur. Eldur
gæti kviknað vegna ofhitnunar!
Ekki hreinsa þurrkarann með því að sprauta á hann vatni. Hætta á
raflosti!
Ekki má styða sig við opnar hleðsludyr. Tækið gæti oltið um koll.
Eftir að þurrkkerfi hefur verið stöðvað geta þvottur og tromla verið
heit. Hætta á bruna! Gætið varúðarþegar þvotturer fjarlægður.
Förgun
2
Umbúðir
Allar umbúðirnar eru umhverfisvænar og endurvinnanlegar. Plasthlutar
eru merktir með alþjóðlega stöðluðum skammstöfunum, t. d. >PE<,
>PS< o.s.frv. Fargið umbúðum utan af vélinni á endurvinnslustöð.
7
2 Eldri vélar
Táknið
W á vörunni eða á umbúðum hennar táknar að vöruna megi
ekki meðhöndla sem heimilissorp. Þess í stað ber að skila henni á
viðeigandi endurvinnslustöð sem tekur við rafeindabúnaði og
rafmagnstækjum. Með því að tryggja að vörunni sé fargað á réttan hátt
stuðlar þú að því að koma í veg fyrir neikvæð áhrif sem röng förgun
vörunnar gæti hugsanlega haft á umhverfi og heilsu. Nánari
upplýsingar um endurvinnslu þessarar vöru er hægt að fá hjá
yfirvöldum hreinsunarmála í þínu sveitarfélagi eða í versluninni þar sem
varan var keypt.
1 Aðvörun! Þegar taka á tækið úr notkun ber að taka rafmagnsklóna úr
innstungu. Klippið rafmagnssnúruna í sundur og fjarlægið ásamt
klónni.
Eyðileggið lásinn á hurðinni. Þá geta börn ekki lokað sig inni í tækinu,
en það er lífshættulegt.
2 Umhverfisráð
Í þurrkaranum verður þvotturinn léttur í sér og mjúkur. Þess vegna er
ekki þörf á að nota mýkingarefni, þegar þvegið er.
Þurrkarinn sparar orku og vinnur best þegar:
loftrásirnar á sökkli þurrkarans eru auðar;
hann er hlaðinn í samræmi við gildin í kerfistöflunni;
það loftar vel um rýmið;
örsía og fínsigti eru hreinsuð eftir sérhverja þurrkun;
þvotturinn er undinn vel áður en hann er þurrkaður. Dæmi:
Notkunargildi – fara eftir snúningshraða þeytivindu – fyrir 6kg af
þvotti, þurrkuðum á þurrkkerfi BÓMULL MEÐALÞURRT.
Vinding Þurrkun
Snúningar á
mínútu
Þurrkstig Tími
(í mínútum)
Orka
í kWh
Kostnaður
í krónum
1)
1) Gjaldskrá: 8,25 krónur/kWh. Miðað við gjaldskrá Orkuveitu Reykjavíkur þann
6.október 2004
í lítrum í %
800 4,2 70 115 4,2 34,65
1000 3,6 60 100 3,6 29,7
1200 3,2 53 94 3,2 26,4
1400 3,0 50 91 3,0 24,75
1800 2,5 42 78 2,5 20,63
8
Lýsing
Stjórnborð
Skúffa með
þéttivatnsgeymi
Skrúffætur
(stillanleg hæð)
Hleðsludyr
(flytjanlegar
hjarir)
Stjórnborð
Grófsigti
(lósigti)
Loftrásir
Tegundarspjald
Sökkuldyr framan
við varmaskipti
Ö
rsía
(
lósigti)
Fínsigti
(lósigti)
Framvindugaumljós
Kerfisvalhnappur
Viðhaldsgaumljós
VARMASKIPTIR (hreinsa!)
LOSA VATN (tæma geymi!)
HREINSA SIGTI (hreinsa lósigti!)
Hnappa- og gaumljósasvæði
9
Fyrir fyrstu þurrkun
Til að losna við efni sem hugsanlega kunna að sitja í vélinni eftir
frágang hennar frá verksmiðju skal þurrka af tromlunni með rökum klút
eða setja af stað stutta þurrkun (20 MÍN) með rökum klútum.
Flokkun og undirbúningur þvottar
Flokkun þvottar
Flokkið þvottinn eftir efni hans:
Bómull/hör fyrir þurrkkerfin BÓMULL.
Blönduð efni og gerviefni fyrir þurrkkerfin STRAUFRÍTT.
Flokkið eftir þvottamerkjum. Þýðing þvottamerkjanna:
Ekki þurrka ný efni í sterkum litum ásamt ljósum þvottaplöggum.
Liturinn gæti smitast.
Ekki þurrka prjóna- og vefnaðarvöru með þurrkkerfinu MJÖG ÞURRT.
Hætta á að þvottur hlaupi!
Ekki þurrka ull í þurrkaranum. Hætta á flækju! Eftir að ullarflíkur hafa
legið til þerris má meðhöndla þær með kerfinu ULL.
Undirbúningur þvottar
Til að þvottur hnyklist ekki saman: Rennið upp rennilásum, hneppið
upp fóðri, bindið saman laus bönd (t.d. svuntubönd).
Tæmið vasa. Fjarlægið málmhluti (bréfaklemmur, öryggisnælur, ...).
Snúið fóðri út þar sem það á við (t.d. á úlpum með bómullarfóðri).
Þannig þorna þessar flíkur betur.
n m l k
Yfirleitt hægt að
þurrka í þurrkara
Þurrkun við
venjulegan hita
Þurrkun við
lækkaðan hita
(ýtið á hnappinn
MJÖG VIÐKÆMT!)
Ekki leyfilegt að
þurrka í þurrkara
10
Kerfistafla
Þurrkkerfi
mesta hleðsla
(þurr þyngd)
MJÖG VIÐKVÆMT
Notkun/Eiginleikar
Þvotta-
merki
BÓMULL
MJÖG ÞURRT 6kg
Full þurrkun á þykkum eða margra
laga plöggum, t.d.
frottéhandklæðum eða baðsloppum.
m n
VEL ÞURRT 6kg
Full þurrkun á þykkum plöggum, t.d.
frottéfatnaði eða
frottéhandklæðum.
m n
MEÐAL ÞURRT 6kg
Full þurrkun á jafnþykkum plöggum,
t.d. frottéfatnaði, prjónafatnaði eða
frottéhandklæðum.
m n
RAKT 6kg
Fyrir þunn plögg sem eftir á að
strauja, t.d. prjónafatnað eða
bómullarskyrtur.
m n
FYRIR STAUJÁRN 6kg
Fyrir venjulegan þvott úr bómull eða
hör, t.d. rúmfatnað eða borðdúka.
m n
FYRIR STRAUVÉL 6kg
Fyrir plögg úr bómull eða hör, sem
eftir á að strauja í strauvél, t.d.
rúmföt eða borðdúka.
m n
STRAUFRÍTT
MJÖG ÞURRT 3kg
Full þurrkun á þykkum eða margra
laga plöggum, t.d. peysum,
rúmfatnaði eða borðdúkum.
m l
1)
n
1) Ýtið á hnappinn MJÖG VIÐKVÆMT!
MEÐAL ÞURRT 3kg
Fyrir þunn plögg sem ekki á að
strauja, t.d. straufríar skyrtur,
borðdúka, barnaföt, sokka eða
undirfatnað.
m l
1)
n
RAKT 3kg
Fyrir þunn plögg sem eftir á að
strauja, t.d. prjónafatnað eða
bómullarskyrtur.
m l
1)
n
11
Þurrkkerfi
mesta hleðsla
(þurr þyngd)
MJÖG VIÐKVÆMT
Notkun/Eiginleikar
Þvotta-
merki
20 MÍN
40 MÍN
1kg
Til að þurrka einstök stykki betur eða fyrir
litla hleðslu undir 1kg.
m l
1)
n
1) Ýtið á hnappinn MJÖG VIÐKVÆMT!
STRAULÉTT 1kg
Sérstakt kerfi með krumpuvörn fyrir
straulétta vefnaðarvöru á borð við skyrtur
og blússur; fyrir lágmarksnotkun straujárns.
Útkoman fer eftir tegund og gæðum
efnanna. (Hleðslan svarar til u.þ.b. 5 eða 7
skyrtna.)
Ráðlegging: Setjið vefnaðarvöru sem á að
þurrka beint í þurrkarann að lokinni
vindingu. Takið plöggin úr þurrkaranum
strax og þurrkun lýkur og hengið þau á
herðatré.
m l
1)
n
ULL 1kg
Sérstakt kerfi sem blæs heitu lofti stutta
stund á ullarefni sem hafa fengið að liggja
til þerris, eða sem þarf að lofta um eftir
notkun eða eftir langa geymslu. Það réttist
úr ullarþráðum og ullin verður mjúk
viðkomu.
Ráðlegging: Takið tauið strax úr
þurrkaranum eftir að þurrkun lýkur.
VIÐRAÐ 1kg
Sérstakt kerfi, u.þ.b. 35 mínútur, til að viðra
vefnaðarvöru eða hreinsa með venjulegum
þurrhreinsiefnum, sem fást í verslunum.
(Notið aðeins efni, sem framleiðandi merkir
sem hæf til notkunar í þurrkara, og fylgið
leiðbeiningum framleiðanda um notkun.)
12
Þurrkun
Kveikt á tæki/Kveikt á ljósi
Veljið eitthvert þurrkkerfi með kerfisvalhnappinum. Nú er kveikt á
tækinu.
Hleðsludyr opnaðar/Þvottur settur inn
1.Opnið hleðsludyr:
Til þess þarf að þrýsta þétt á hurð vélarinnar (álagspunktur )
2.Leggið þvottinn inn (hann á að vera laus í sér).
1 Athugið! Ekki klemma þvott á milli hurðarinnar og gúmmíþéttilistans.
3.Lokið dyrunum vel. Smellur verður að heyrast í lásnum.
Þurrkkerfi valið
Notið kerfisvalhnappinn til að stilla
á það kerfi sem óskað er.
Veljið verndarkerfi
Ýtið á MJÖG VIÐKVÆMT hnappinn,
ef óskað er.
MJÖG VIÐKVÆMT
Fyrir sérlega milda þurrkun á viðkvæmri vefnaðarvöru með
þvottamerkið l og fyrir efni sem þola illa hita (t.d. akrýl eða viskós).
Þvottakerfið notar minni hita en önnur kerfi.
MJÖG VIÐKVÆMT hentar ekki fyrir meira en 3kg af þvotti!
13
Kerfi sett af stað
Ýtið á hnappinn START/STOPP. Kerfið fer af stað.
Framvindugaumljósin sýna framgang þurrkunarinnar.
Skipt um kerfi
Til að skipta um ranglega valið þurrkkerfi eftir að kerfið er farið af stað,
skal fyrst snúa kerfisvalhnappinum á SLÖKKT og síðan velja nýtt kerfi.
3 Ekki er lengur hægt að breyta þurrkkerfinu eftir að það er farið af stað.
Ef samt sem áður er reynt að skipta um kerfi, blikka
framvindugaumljósin og viðhaldsgaumljósin. Ef þrýst er á MJÖG
VIÐKVÆMT-hnappinn, blikka tilheyrandi gaumljós oft. Þetta hefur þó
engin áhrif á þurrkkerfið (tauvörn).
Þvotti bætt við eða hann tekinn út áður en kerfi lýkur
1.Opnið hleðsludyrnar.
1 Aðvörun! Þvotturinn og tromlan geta verið heit. Hætta á bruna!
2.Bætið við þvotti eða takið út.
3.Lokið hleðsludyrum vel. Smellur verður að heyrast í lásnum.
4.Ýtið á hnappinn START/STOPP til að halda áfram.
Þurrkkerfi lýkur/Þvottur tekinn út
Þegar þurrkun er lokið loga gaumljósið ENDIR og KRUMPUVÖRN.
3 Þegar þurrkun lýkur tekur sjálfkrafa við um 30 mínútna
krumpuvarnarferli. Þá snýst tromlan af og til. Þannig helst þvotturinn
laus í sér og krumpast ekki. Á meðan krumpuvörnin er í gangi má taka
þvottinn út hvenær sem er. (Þvottinn ætti að taka út ekki síðar en í lok
krumpuvarnarferlisins, til að koma í veg fyrir að hann krumpist eftir
þurrkun.)
1.Opnið hleðsludyrnar.
2.Áður en þvotturinn er tekinn út skal fjarlægja ló úr örsíu, helst með
rakri hendi (sjá kaflann “Hreinsun og viðhald”).
3.Takið þvottinn út.
4.Snúið kerfisvalhnappinum á SLÖKKT.
Áríðandi! Eftir hverja þurrkun skal
hreinsa örsíu og lósigti,
tæma vatnsgeymi
(sjá kaflann “Hreinsun og viðhald”).
5.Lokið hleðsludyrum.
14
Hreinsun og viðhald
Hreinsun á lósigti
Til að tryggja að þurrkarinn vinni óaðfinnanlega, þarf að hreinsa
lósigtin (örsíu og fínsigti) eftir hverja þurrkun.
1 Athugið! Notið þurrkarann aldrei án lósigtis eða ef lósigti er skemmt
eða stíflað.
1.Opnið hleðsludyr
2.Hreinsið örsíuna, sem situr í neðri
hluta hleðsluhurðarinnar, með rakri
hendi.
3.Ýtið læsingarhnappinum við
grófsíuna niður.
Grófsían opnast.
4.Takið fínsigtið út.
5.Fjarlægið ló úr fínsigtinu, best er að
gera það með rakri hendi.
15
Hreinsið allt sigtissvæðið
3 Ekki er þörf á að hreinsa allt sigtissvæðið eftir hverja þurrkun, en það
þarf að skoða reglulega og hreinsa burt ló ef þarf með.
6.Takið þá um ofanverða grófsíuna
og togið fram, þar til hún losnar úr
báðum festingunum.
7.Fjarlægið ló af öllu sigtissvæðinu –
helst með ryksugu.
8.Ýtið báðum töppunum á
grófsigtinu inn í festingarnar við
dyrnar, uns þeir smella á sinn stað.
9.Setjið fínsigtið aftur í.
10. Ýtið á grófsigtið uns það smellur
inn í læsinguna.
3 Án fínsigtisins festist grófsigtið ekki
á sinn stað og ekki er hægt að loka
hleðsludyrunum.
Hreinsun á þéttilista
Þurrkið af hurðaþéttilistanum með rökum klút strax og þurrkun lýkur.
16
Tæming á vatnsgeymi
Tæmið vatnsgeyminn eftir sérhverja þurrkun.
Þegar vatnsgeymirinn fyllist stöðvast þurrkun sjálfkrafa og það kviknar
á gaumljósinu LOSA VATN. Til að geta haldið áfram með þurrkkerfið
þarf fyrst að tæma vatnsgeyminn.
1 Aðvörun! Þéttivatnið er ekki hæft til drykkjar eða notkunar við
matreiðslu.
1.Takið skúffuna með
vatnsgeyminum
alveg út (1) og togið stút geymisins
upp eins langt og hann kemst (2).
2.Hellið þéttivatninu í vask eða
annað niðurfall.
3.Ýtið stútinum inn og setjið
vatnsgeyminn aftur á sinn stað.
Ef þurrkkerfi stöðvaðist vegna þess
að vatnsgeymirinn var fullur:
Ýtið á hnappinn START/STOPP, til að
halda áfram með þurrkunina.
3 Vatnsgeymirinn tekur um 4 lítra, en
það dugar fyrir u.þ.b. 6kg af þvotti, sem áður hefur verið undinn á
hraðanum 800 snúningar á mínútu.
3 Þéttivatnið má nota eins og eimað vatn, t.d. í gufustraujárn.
Þéttivatnið skal þó sía fyrir notkun (t.d. með kaffisíu), til að fjarlægja
óhreinindi eða ló í vatninu.
17
Hreinsun á varmaskipti
Ef gaumljósið VARMASKIPTIR logar, þarf að hreinsa varmaskiptinn.
1 Athugið! Notkun tækisins þegar varmaskiptir er óhreinn getur leitt til
skemmda. Að auki eykst orkunotkunin.
1.Opnið hleðsludyrnar.
2.Opnið sökkulspjaldið: Ýtið á
læsingarhnapp í neðanverðu
hleðsluopinu og opnið
sökkulspjaldið til vinstri.
3.Hreinsið ló innan úr hurð og
framan úr varmaskiptinum. Strjúkið
af þéttlista hurðarinnar með rökum
klúti.
4.Snúið báðum öryggisskífunum inn
á við.
5.Grípið um handföng
varmaskiptisins og togið hann út.
Haldið honum láréttum, þannig að
vatn renni ekki úr honum.
6.Tæmið varmaskiptinn með því að
hella úr honum yfir vaski.
1 Athugið! Ekki nota nein beitt áhöld
við þrifin. Varmaskiptirinn gæti
farið að leka.
7.Hreinsið varmaskiptinn.
Best er að nota bursta eða skola með sterkri bunu úr handsturtu.
8.Setjið varmaskiptinn aftur í og læsið (snúið báðum öryggisskífunum út
á við, uns þær smella í).
9.Lokið sökkulspjaldinu.
3 Ekki er hægt að nota þurrkarann þegar gaumljósið VARMASKIPTIR
logar.
1 Athugið! Notið aldrei þurrkarann án þess að varmaskiptirinn sé í.
18
Hreinsun tromlu
1 Athugið! Ekki hreinsa tromlu með ræstiefnum eða með stálull.
3 Kalk í vatni eða mýkingarefni geta myndað næstum ósýnilega skán
innan í tromlunni. Þá er ekki lengur víst að tækið skynji þurrkstig
þvottarins rétt. Þvotturinn kemur blautari úr þurrkaranum en reiknað
var með.
Þurrkið innan úr tromlunni með rökum klút og venjulegu hreinsiefni
(t.d. edikblöndu).
Hreinsun stjórnborðs og ytra byrðis
1 Athugið! Notið ekki efni til að meðhöndla húsgögn eða sterk
hreinsiefni til að hreinsa vélina.
Strjúkið af stjórnborði og ytra byrði vélarinnar með rökum klút.
Hvað skal gera, þegar...
Lagið sjálf minniháttar truflanir
Sýni þurrkarinn villuboð á meðan kerfi stendur ( eitt eða fleiri gaumljós
af framvindu-gaumljósum blikka), athugið næst, hvort hægt er að leysa
vandamálið með aðstoð eftirfarandi töflu. Ef ekki er hægt að leysa
vandamálið sjálfur: Slökkvið og kveikið aftur á vélinni. Veljið kerfi á
nýjan leik. Ýtið á START/STOPP hnappinn.
Ef villuboð birtast aftur, vinsamlega hafið þá samband við
notendaþjónustu og gefið upp hvaða gaumljós blikka.
Vandamál Hugsanleg ástæða Úrlausn
Tækið virkar ekki.
Rafmagnssnúra er ekki í
sambandi eða öryggi er ekki
í lagi.
Stingið snúru í sambandi.
Prófið hvort sé í lagi með
öryggi (í rafmagnstöflu).
Hurðin er opin. Lokið dyrunum.
Var ýtt á hnappinn START/
STOPP?
Ýtið aftur á hnappinn
START/STOPP.
19
Þurrkun ekki
nægjanlega góð.
Rangt þurrkkerfi valið.
Veljið annað þurrkkerfi næst
þegar þurrkað er (sjá kaflann
“Kerfistafla“).
Lósigti stíflað. Hreinsið lósigti.
Varmaskiptir óhreinn. Hreinsið varmaskipti.
Röng hleðsla.
Fylgið leiðbeiningum um
hámarkshleðslu.
Loftrásir stíflaðar.
Fjarlægið hluti sem hindra
loftstreymi um loftrásirnar.
Himna innan í tromlu eða á
tromlugörðum.
Hreinsið tromluna og
tromlugarðana.
Ekki er hægt að loka
hleðsludyrum.
Fínsigti er ekki í og/eða
grófsigti situr ekki rétt.
Setjið fínsigti í og/eða setjið
grófsigti á sinn stað.
Þegar þrýst er á MJÖG
VIÐKVÆMT-hnappinn,
blikkar tilheyrandi
gaumljós oft.
Tauvörn. Eftir að þurrkkerfi
er farið af stað er ekki
lengur hægt að stilla
viðbótarstillingar.
Snúið kerfisvalhnappi á
SLÖKKT. Veljið þvottakerfi á
nýjan leik
Þurrkkerfi heldur ekki
áfram, gaumljósið
LOSA VATN lýsir.
Þéttivatnsgeymir er fullur.
Tæmið þéttivatnsgeyminn og
ræsið kerfið aftur með því að
ýta á hnappinn START/STOPP.
Þurrkun lýkur rétt eftir
að kerfið fór af stað.
Gaumljósið ENDIR
logar.
Of lítið eða of mikið af
þvotti var sett í tækið miðað
við valið þurrkkerfi.
Veljið tímakerfi eða hærra
þurrkstig (t.d. VEL ÞURRT í stað
MEÐALÞURRT).
Þurrkkerfi tekur
óvenju langan tíma.
Ábending:
Eftir í mesta lagi 5 klst.
lýkur þurrkkerfi
sjálfkrafa
(sjá “Þurrkkerfi
endar“).
Lósigti stíflað. Hreinsið lósigti.
Varmaskiptir óhreinn. Hreinsið varmaskipti.
Hnappurinn MJÖG
VIÐKVÆMT er inni og
hleðsla er of mikil.
Hnappurinn MJÖG VIÐKVÆMT
hentar bara fyrir 3kg af þvotti
eða minna.
Of mikil hleðsla í tækinu. Dragið úr hleðslu.
Þvotturinn ekki nógu vel
undinn fyrir þurrkun.
Vindið þvottinn nægilega vel.
Vandamál Hugsanleg ástæða Úrlausn
20
Tæknilegar upplýsingar
5
Þetta tæki uppfyllir eftirtaldar ESB-viðmiðunarreglur:
Viðmiðunarregla nr. 73/23/EWG frá 19.02.1973 um lágspennu
Viðmiðunarregla EMV nr. 89/336/EWG frá 03.05.1989 ásamt viðauka
nr. 92/31/EWG
Viðmiðunarregla nr. 93/68/EWG frá 22.07.1993
Notkunargildi
Notkunargildin voru mæld við staðlaðar aðstæður. Þau geta verið
önnur við notkun á heimilum.
Hæð x breidd x dýpt 85 x 60 x 60 cm
Dýpt með opnar hleðsludyr 109 cm
Hæðarstillingar 1,5 cm
Tóm þyngd u.þ.b. 40kg
Hleðsla (fer eftir þurrkkerfi)
1)
1) Mismunandi upplýsingar um mestu hleðslu í sumum löndum stafa af ólíkum
mæliaðferðum.
mest 6kg
Orkunotkun í samræmi við IEC 1121 s. e.
(6kg bómull, sem áður hefur verið undin á
1000 snún./mín, þurrkkerfi BÓMULL MEÐALÞURRT)
3,6kWh
Notkunarsvið Heimili
Leyfilegt hitastig við notkun + 5°C til + 35°C
Þurrkkerfi
Hleðsla
í kg
Orkunotkun
í kWh
BÓMULL MEÐALÞURRT
1)
1) eftir vindu með 1000 snún./mín
6 3,6
BÓMULL FYRIR STRAUJÁRN
1)
6 2,9
STRAUFRÍTT MEÐALÞURRT
2)
2) eftir vindu með 1200 snún./mín
3 1,3
  • Page 1 1
  • Page 2 2
  • Page 3 3
  • Page 4 4
  • Page 5 5
  • Page 6 6
  • Page 7 7
  • Page 8 8
  • Page 9 9
  • Page 10 10
  • Page 11 11
  • Page 12 12
  • Page 13 13
  • Page 14 14
  • Page 15 15
  • Page 16 16
  • Page 17 17
  • Page 18 18
  • Page 19 19
  • Page 20 20
  • Page 21 21
  • Page 22 22
  • Page 23 23
  • Page 24 24
  • Page 25 25
  • Page 26 26
  • Page 27 27
  • Page 28 28

Aeg-Electrolux LTH54810 Používateľská príručka

Typ
Používateľská príručka
Tento návod je vhodný aj pre

v iných jazykoch